Til baka á starfasíðu

Tónmenntakennari í Selásskóla skólaárið 2026 til 2027

Óskum eftir tónmenntakennara í Selásskóla í 50 - 75% starf frá og með 1. ágúst 2026

Hlutastarf Selásskóli 110
Sækja um

Selásskóli óskar eftir að ráða tónmenntakennara í 50 - 75% starf skólaárið 2026-2027.

Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 180 nemendur og um 35 starfsmenn. Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi, sköpun, teymiskennslu og upplýsingatækni. Enn fremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast tónmenntakennslu nemenda í samráði við samkennara og skólastjórnendur.
  • Uppsetning á tónverkum í tengslum við leiksýningar.
  • Vinna með stjórnendum og samstarfsmönnum að því að þróa framsækið og faglegt skólastarf með áherslu á samþættingu námsgreina og fjölbreytta kennsluhætti 
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Sérmenntun í verk-og listgreinum með áherslu á tónmennt.
  • Færni í píanóleik 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum

Hlunnindi

  • Menningarkort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara

Starfshlutfall 50 -75%

Umsóknarfrestur 17. mars 2026

Ráðningarform ótímabundin ráðning

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rósa Harðardóttir skólastjóri í síma 4116880 og tölvupósti rosa.hardardottir@reykjavik.is

Sækja um