Teymisstjóri skipulagsmála
Umhverfis- og skipulagssvið leitar að kraftmiklum einstaklingi í starf teymisstjóra til að leiða samráð, samskipti og upplýsingagjöf á stærstu skipulagsverkefnum borgarinnar.
Skrifstofa skipulags- og byggingarmála fer með öll mál sem berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Reykjavíkur. Deild skipulagmála veitir borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum og verktökum upplýsingar og ráðgjöf um skipulagsmál. Auk þess vinnur deildin úr erindum sem berast skipulagsfulltrúa, annast grenndarkynningar og kynningarfundi, veitir umsagnir um leyfisumsóknir, annast samráð við opinbera umsagnaraðila, almenning og aðra hagaðila skv. ákvæðum laga og reglugerða.
Um nýtt starf er að ræða, næsti yfirmaður er deildarstjóri skipulagsmála en starf teymisstjóra mun eiga snertifleti og samstarf við fjölmarga aðila sem koma að uppbyggingu og skipulagi borgarinnar.
Verksvið og ábyrgð
- Teymisstjórn og stuðningur við verkefnastjóra.
- Yfirsýn framvindu og kostnaðaráætlana verkefna, eftirfylgni og upplýsingaflæði.
- Verkefnastjórnun skipulagsverkefna.
- Leiðandi hlutverk við mótun og framfylgd gæðamála og stefna Reykjavíkurborgar.
- Yfirsýn yfir verkstöðu og aðkeypta þjónustu vegna verkefna og samráð við deildarstjóra við gerð fjárhagsáætlana.
- Hefur umsjón með samningum í verkefnum teymisins, kostnaðaráætlunum, framvindureikningum og lokauppgjöri er heyra undir verkefni teymisins.
- Hefur forystu um faglega verkefnastjórnun og framþróun hennar í teyminu og styður verkefnastjóra eins og þörf er á.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framhaldsmenntun í arkitektúr,landslagsarkitektúr, skipulagsfræði eða sambærilegum greinum á háskólastigi sem nýtast í starfi.
- A.m.k. fimm ára reynsla á starfssviðinu.
- Þekking og reynsla af skipulagsverkefnum á stjórnsýslustigi.
- Reynsla af verkefnastjórnun.
- Frumkvæði í starfi, framsýni, skipulagsfærni og góð yfirsýn yfir verk og verkþætti.
- Leiðtogahæfileikar, stefnufesta og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Góð færni í textagerð og framsetningu gagna, sem og í framsögu og kynningum. Góð tæknikunnátta.
- Íslenskukunnátta C1-C2 í samræmi við í samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta C1
Nánar um starfið
- Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem auðga mannlífið í borginni. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg og þar gegnir starfsfólkið lykilhlutverki með einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir.
- Umhverfis- og skipulagssvið hefur innleitt 36 stunda vinnuviku og starfar eftir áherslum Reykjavíkurborgar um heilsueflingu á vinnustöðum og leggur áherslu á gagnkvæman sveigjanleika og að stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
- Nánari upplýsingar um starfið veita Hjördís Sóley Sigurðardóttir deildarstjóri, hjordis.soley.sigurdardottir@reykjavik.is eða Anna Lára Karlsdóttir mannauðsráðgjafi, anna.lara.karlsdottir@reykjavik.is.
- Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2026.