Heiðarborg - sumarvinna
Leikskólinn Heiðarborg leitar að einstaklingum til að starfa með nemendum skólans næstkomandi sumar. Ath. leikskólinn verður lokaður 9. júlí-5. ágúst 2026
Heiðarborg er fjögurra deilda en þar dvelja 69 börn samtímis við leik og störf. Einkunnarorð skólans er vinátta, gleði, virðing, sem er rauður þráður í leikskólastarfinu. Meðal annars er unnið út frá hugmyndafræði Howard Gardners um fjölgreindakenninguna. Einnig er lögð áhersla á umhverfismennt.
Helstu verkefni og ábyrgð·
- Taka þátt í daglegu starfi með börnunum
- Aðstoða börnin og leiðbeina þeim
- Önnur tilfallandi verk sem deildar- og/eða leikskólastjóri felur viðkomandi
Hæfniskröfur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Frumkvæðni
- Góð samskiptahæfni
- Sjálfstæðni
- Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópskum tungumálaramma
Fríðindi í starfi
- Fríar máltíðir á vinnutíma
- Samgöngustyrkur
- 36 stunda vinnuvika
ATH. leikskólinn verður lokaður dagana 9. júlí-5. ágúst 2026
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri: Jóhanna Benný Hannesdóttir á netfanginu johanna.benny.hannesdottir@reykjavik.is eða í síma 690-7493.