Til baka á starfasíðu

Sundlaugarvörður í Árbæjarlaug

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur óskar eftir starfsfólki til starfa í Árbæjarlaug. Um er að ræða 100% sumarstarf, en einnig kemur til greina að ráða í hlutastarf. Sundlaugarnar eru tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi og hefur ánægju af því að umgangast og þjónusta viðskiptavini.  

Fullt starf Árbæjarlaug 110
Sækja um

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur óskar eftir sundlaugarverði og baðverði til starfa í Árbæjarlaug. Um er að ræða 100% sumarstarf, en einnig kemur til greina að ráða í hlutastarf.

Sundlaugarnar eru tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi og hefur ánægju af því að umgangast og þjónusta viðskiptavini.

Starfsfólk vinnur á sviði íþrótta-og tómstunda og eru lykillinn að því að veita viðskiptavinum sínum fyrsta flokks þjónustu. Lögð er áhersla á jafnrétti, starfsþróun og vellíðan starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með öryggi sundlaugargesta í og við laug.
  • Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
  • Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
  • Eftirfylgni með umgengnisreglum.
  • Eftirlit með gæðum laugarvatns.
  • Umsjón með hreinlæti í og við laug.

Hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa íslenskukunnáttu á stigi B1-B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. 
  • Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa góða þjónustulund og vera stundvísir. 
  • Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf laugarvarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði. 
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar er skilyrði.
  • Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja með í viðhengi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Vala Bjarney Gunnarsdóttir forstöðumaður - vala@itr.is

Sækja um