Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti 11 leitar að kennara og er starfið laust frá miðjum ágúst eða eftir nánara samkomulagi Um er að ræða fullt starf.
Leikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholti 11, rétt ofan við Hlemm. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum- Njótum. Leikskólinn leggur áherslu á læsi og íslenskt mál auk þess sem Nóaborg er þátttakandi í Nordplusverkefni um hreyfingu leikskólabarna.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Hæfniskröfur:
-Leyfisbréf kennara
-Sjálfstæð vinnubrögð
-Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
-Íslenskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið.
-Hreint sakavottorð
-Reynsla af leikskólastarfi æskileg
-Faglegur metnaður og brennandi áhugi á starfi með börnum
-Frumkvæði í starfi
Fríðindi í starf
-36 stunda vinnuvika
-Sundkort
-Samgöngustyrkur
-Menningarkort
-Líkamsræktarstyrkur
-Frítt fæði
-Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna þegar börnin hafa náð eins árs aldri
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið anna.margret.olafsdottir@reykjavik.is