Bókavörður 80% staða
Við leitum af jákvæðu, sveigjanlegu og vandvirku fólki með ríka þjónustulund sem þrífst vel í lifandi og fjölbreyttu umhverfi.
Bókavörður í Gerðubergi
Borgarbókasafnið í Gerðubergi auglýsir eftir bókaverði í 80% starfshlutfall.
Við leitum af jákvæðu, sveigjanlegu og vandvirku fólki með ríka þjónustulund sem þrífst vel í lifandi og fjölbreyttu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónustuvaktir á safni
Frágangur og viðgerð safngagna
Þátttaka í teymum og aðstoð við viðburði
Móttaka hópa og aðstoð við leiðsagnir um safnið
Ábyrgð á trúnaðarupplýsingum, þ.e. upplýsingum um persónuhagi og útlán notenda
Umsjón og eftirlit með tækjum og búnaði
Hæfniskröfur
Stúdentspróf eða sambærileg menntun
Almenn tölvukunnátta og færni í notkun samfélagsmiðla
Færni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og rík þjónustulund
Frumkvæði, sveigjanleiki, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.
Reynsla af þjónustustörfum æskileg
Nánari upplýsingar um starfið
Borgarbókasafnið í Gerðubergi er opið flesta daga ársins og skipta starfsmenn með sér kvöld- og helgarvöktum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Borgarbókasafn er auk þess með regnbogavottun Reykjavíkurborgar.
Forsenda ráðningar er að aflað verði upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins, að fengnu upplýstu samþykki umsækjanda, í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar:
Ilmur Dögg Gísladóttir, ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðubergi 3-5
111 Reykjavík