Til baka á starfasíðu

Kennari í Ævintýraborg við Nauthólsveg

Leikskólakennari óskast í Ævintýraborg við Nauthólsveg.

Fullt starf Leikskólinn Nauthólsvegi 102
Sækja um

„Viltu starfa í skóla þar sem vellíðan barna og starfsfólks er í forgrunni?“

Ævintýraborg við Nauthólsveg er 6 deilda leikskóli með 90 börnum. Í leikskólanum starfar samhentur og hlýr hópur sem leggur ríka áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnum.

Leikskólinn er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem Öskjuhlíð og Nauthólsvík eru hluti af okkar daglega uppeldis- og námsumhverfi.

Gildi leikskólans eru: Virðing - Vinátta - Vellíðan

Við trúum því að börn læri best í gegnum leik, forvitni og tengsl og að starfsfólk sem fær að njóta sín skapi bestu aðstæðurnar fyrir börnin.

Helstu áherslur okkar eru útinám, læsi, félagsleg færni og nám í gegnum leik þar sem forvitni og vellíðan barna er í fyrirrúmi.

Nú leitum við að öflugum og metnaðarfullum leikskólakennara sem vill taka þátt í þessu ævintýri með okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara
  • Reynsla af leikskólastarfi æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi

  • Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi
  • Frítt fæði
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Menningarkort - bókasafnskort
  • Sundkort í allar sundlaugar í Reykjavík
  • 36 stunda vinnuvika

Upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Anna Metta Norðdahl, í tölvupósti: anna.metta.norddahl@reykjavik.is eða síma 411-6760

Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ/FL

Sækja um