Til baka á starfasíðu

Umsjónarkennari á miðstig í Selásskóla skólaárið 2026-2027

Óskum efti kennara eða kennarateymi á miðstig fyrir næsta skólaár,

Fullt starf Selásskóli 110
Sækja um

Umsjónarkennari á miðstig

Laus staða umsjónarkennara á miðstigi fyrir næsta skólaár. Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. 

Í skólanum eru um 180 nemendur og um 40 starfsmenn. 

Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta. 

Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi og upplýsingatækni. Ennfremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru. Selásskóli er teymiskennsluskóli. 

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.

Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.

Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk. Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu.

Hæfniskröfur

Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari

Reynsla af kennslu grunnskólabarna 

Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi. 

Menntun og hæfni til almennrar kennslu á miðstigi

Faglegur metnaður og frumkvæði

Reynsla og áhugi á að starfa með börnum. 

Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi

Stundvísi

Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Hreint sakarvottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara

Starfshlutfall 100%

Umsóknarfrestur 17.mars 2026

Ráðningarform Tímabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veitir Rósa Harðardóttir skólastjóri í síma 4116680 og tölvupósti rosa.hardardottir@reykjavik.is

Sækja um