Umsjónarkennari á yngra stig í Selásskóla skólaárið 2026-2027
Óskum eftir umsjónarkennara á yngra stig í Selásskóla fyrir næsta skólaár. Í Selásskóla er flottur starfsmannahópur og mikið þróunarstarf. Við leggjum áherslu á skapandi skólastarf, útikennslu, STEAM og tækni.
Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara við Selásskóla í 100% stöðu frá og með 1. ágúst 2026. Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 180 nemendur og um 40 starfsmenn.
Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta.
Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi og upplýsingatækni. Ennfremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru. Síðustu ár hefur Selásskóli fengið viðurkenningar fyrir framsækið skólastarf sem leggur áherslu á STEM kennslu og sköpun.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is og á Facebooksíðu skólans.
Verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu.
Hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
- Reynsla af kennslu grunnskólabarna
- Þekking í lestrakennslu
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Menntun og hæfni til almennrar kennslu á yngsta stigi og/eða miðstigi
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Hreint sakarvottorð
Frekari upplýsingar um starfið
- Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.
- 100% Starfshlutfall
- Umsóknarfrestur 17. mars
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rósa Harðardóttir skólastjóri í síma 4116680 og tölvupósti rosa.hardardottir@reykjavik.is