Til baka á starfasíðu

Stoðkennari - Laugalækjarskóli

Laugalækjarskóli vill ráða til sín stoðkennara í fullt starf sem fyrst. Leitað er að einstaklingi sem hefur óbilandi trú á unglingum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn til að taka þátt í að móta metnaðarfullt skólastarf í kringum fjölbreyttan nemendahóp. 

Fullt starf Laugalækjarskóli 105
Sækja um

Laugalækjarskóli er annar af hverfisskólum Laugarneshverfis, stofnaður árið 1960. Í skólanum eru um 425 nemendur í 7. – 10. bekk og fer skólinn stækkandi. 

  Einkunnarorð skólans eru virðing, eldmóður og gleði. Stöðugt er stefnt að því að byggja upp öfluga, ábyrga og sjálfstæða einstaklinga. Þá er skólinn réttindaskóli UNICEF og hefur hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Í kennsluskipulagi má finna ríka áherslu á þverfaglega verkefnavinnu, upplýsingatækni, markvissa ígrundun nemenda um eigið líf og nám, öfluga lífsleiknikennslu og öfluga stuðningskennslu. Skólinn býr að ríkum umbótavilja og hefð hefur skapast fyrir lýðræðislegri skólaþróun og samvirkri forystu starfsmanna.

  Félagsmiðstöðin Laugó er staðsett í húsnæði skólans og vinnur með skólanum að félagsstarfi barna og unglinga í Laugarneshverfi. Dalbrautarskólinn er nýlega orðinn hluti af Laugalækjarskóla. Þá starfa Skólahljómsveit Austurbæjar og Frístundamiðstöðin Hof einnig í húsnæði Laugalækjarskóla. Um árabil hefur skólinn átt gott samstarf við Háskóla Íslands og Háskólann í Þrándheimi um menntun og þjálfun kennaranema.

Helstu verkefni:

  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
  • Stuðningskennsla, bæði í námsveri og í almennum kennslustundum. 
  • Alhliða stuðningur við nemendur með annað móðurmál en íslensku. 
  • Samskipti við foreldra og stjórnun nokkurra nemendateyma. 
  • Virk þátttaka í þróun skólastarfsins með samstarfsfólki.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu með sértæka hæfni á grunn- eða framhaldsskólastigi.
  • Reynsla og áhugi á að kenna unglingum og starfa með þeim.
  • Reynsla og/eða nám í kennslu nemenda með stuðningsþörf. 
  • Leikni í samskiptum, samstarfi og sveigjanleiki í starfi.
  • Gott frumkvæði og löngun til þess að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2026. Umsókn fylgi leyfisbréf, ferilskrá og annað er málið varðar. Laun eru samkvæmt kjarasamnigi FG og SNS. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Leyfisbréf til kennslu fylgi umsókn. Nánari upplýsingar veitir Jón Páll Haraldsson skólastjóri (jon.pall.haraldsson@reykjavik.is), sími 411 7900. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um