Bókavörður í Borgarbókasafninu
Borgarbókasafnið auglýsir tímabundna 50% stöðu bókavarðar á Borgarbókasafninu í Grófinni, Tryggvagötu 15. Ráðið er til eins árs.
Leitað er að jákvæðum og vandvirkum einstaklingi með ríka þjónustulund og áhuga á fólki, menningu og bókmenntum.
Markmið safnsins er að auka lýðræði og þátttöku, efla læsi og auka aðgengi borgarbúa að fræðslu og menningartengdu efni. Enn fremur eru borgarbúar hvattir til að taka þátt í að efla safnið sem miðstöð menningar og mannlífs, fræðslu og sköpunar.
Bókaverðir eru vikir þátttakendur í að vinna að ofangreindum markmiðum ásamt öðru stafsfólki bókasafnsins.
Starfsfólk skiptir með sér kvöld- og helgarvöktum.
Helstu verkefni
- Afgreiðsla og þjónusta við notendur safnsins
- Frágangur, viðgerðir, plöstun og uppröðun safnefnis
- Þjónusta við notendur sem fá safnefni sent heim í gegnum verkefnið „bókin heim“
- Kynning á safnkosti og þátttaka í móttöku barna- og nemendahópa
- Aðstoð við margvíslega viðburði
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæð vinnubrögð
- Handlagni og hugmyndaauðgi
- Snyrtimennska
- Góð íslenskukunnátta og kunnátta í ensku
Fríðindi í starfi
- Menningarkort
- Sundkort
- Samgöngusamningur
- Líkamsræktarstyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Borgarbókasafn er auk þess með regnbogavottun Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Barbara Guðnadóttir í síma 789 6390 eða um tölvupóstfangið barbara.gudnadottir@reykjavik.is