Til baka á starfasíðu

Skemmtileg hlutastörf frístundaleiðbeinenda í frístundaheimilum í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum í boði hjá frístundamiðstöðinni Tjörninni

Skemmtileg hlutastörf frístundaleiðbeinenda í frístundaheimilum í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum í boði í vetur. 

Hlutastarf Frístundamiðstöðin Tjörnin 107
Sækja um

Frístundamiðstöðin Tjörnin leitar að áhugasömu starfsfólki í hlutastörf á frístundaheimilum sínum í vetur, en starfið hefst 22. ágúst. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur um 13:30 og er starfið kjörið fyrir þau sem eru í skóla og leita að skemmtilegu hlutastarfi með námi eða þau sem vilja vinna í 50% starfi eftir hádegi.

Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki.

Frístundamiðstöðin Tjörnin starfrækir frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Eldflaugina við Hlíðaskóla, Frostheima, safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk í Vesturbæ, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Selið við Melaskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla og Undraland við Grandaskóla en leitað er eftir fólki á alla þessa staði. Umsækjendur geta tekið fram í umsókn hvort einn staður henti betur en annar.

Frístundamiðstöðin Tjörnin heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks og við störfum samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  •  Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  •  Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  •  Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  •  Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.

Hæfniskröfur

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Í boði eru hlutastörf 20-50% eftir hádegi.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. 

Ráðningarform - Timabundin ráðning til 6. júní 2025

Tjörnin - Barnastarf

Vesturmiðstöð

Sækja um