Rekstrarleyfisskyld fyrirtæki

Sé fyrirtækið rekstrarleyfisskylt þarf að sækja um rekstrarleyfi til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, til viðbótar við starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og rekstrarleyfi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þurfa að hanga uppi á áberandi stað.

Eigendaskipti

Við eigendaskipti og við meiriháttar breytingar á starfsemi eða húsnæði þarf að sækja um nýtt rekstrarleyfi og nýtt starfsleyfi.

Óheimilt er að hefja rekstrarleyfisskylda starfsemi liggi rekstrarleyfi fyrir hana ekki fyrir.

Umsókn um rekstrarleyfi

Leyfadeild sýslumanns sendir umsagnarbeiðni til sveitarstjórnar (Ráðhús Reykjavíkur), Vinnueftirlitsins og lögreglunnar. Sveitarstjórn leitar eftir umsögnum frá eftirfarandi aðilum og skilar síðan sameiginlegri umsögn til sýslumanns um umsókn um rekstrarleyfi:

  • Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi, skipulagsskilmála og að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu. 
  • Skipulagsfulltrúi staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. 
  • Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfestir að starfsemi sé í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli og, þegar við á, mat heilbrigðisnefndar á grenndaráhrifum starfseminnar, þ.m.t. hljóðvist.
  • Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins staðfestir að kröfum um brunavarnir sé fullnægt samkvæmt mati slökkviliðs.

Hvaða fyrirtæki eru rekstrarleyfisskyld?

Gististaðir Veitingastaðir
Hótel Veitingahús í flokkum II eða III
Stærra gistiheimili Skemmtistaður í flokkum II eða III
Minna gistiheimili Veitingastofa og greiðasala í flokkum II eða III
Gistiskáli Veisluþjónusta og veitingaverslun í flokkum II eða III
Fjallaskálar Kaffihús í flokkum II eða III
Íbúðir Krá í flokkum II eða III
Frístundahús Samkomusalir í flokkum II eða III

Hvaða búnað þarf ég?

Húsnæði og búnaður leyfisskyldra fyrirtækja tekur mið af hvers konar starfsemi á að vera í viðkomandi húsnæði. Húsnæði, búnaður og matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit) skal vera þannig að öryggi matvæla og viðskiptavina/gesta  sé ávallt tryggt á mestu álagstímum. Vísað er í Leiðbeiningar um góða starfshætti í matvælafyrirtækjum og samræmd starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. 

Vakin er athygli á að í reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald eru tilgreindar kröfur sem gerðar eru til þeirra fyrirtækja sem falla undir reglugerðina og lög nr. 85/2007. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ekki eftirlit með ákvæðum reglugerðarinnar.

Matvæli

Húsnæði, búnaður og matvælaöryggiskerfi (innra eftirlit) skal vera þannig að öryggi matvæla og viðskiptavina/gesta  sé ávallt tryggt á mestu álagstímum.

Veitingastofur og veitingaverslanir

Veitingastofur og veitingaverslanir eru í daglegu tali nefndir skyndibitastaðir. Sé um að ræða veitingastofu er krafa um að gestir hafi aðgang að sérstakri gestasnyrtingu og skal hún taka mið af þörfum fatlaðra. Veitingaverslun er staður þar sem fram fer sala veitinga sem ekki er til neyslu á staðnum enda er slík sala meginstarfsemi staðarins. Ekki er gerð krafa um sérstaka snyrtingu fyrir viðskiptavini veitingaverslana.  

Veitingastofur og veitingaverslanir sem ekki bjóða upp á áfengi (eru í flokki I, skv. lögum nr. 85/2007 og reglugerð nr. 1277/2016) þurfa ekki rekstrarleyfi.

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Nánari upplýsingar veitir leyfadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

  • Nánari skilgreiningar á flokkun og tegundum gisti- og veitingastaða má finna í 3., 4., 17. og 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
  • Leyfadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu
  • Hlíðasmára 1, 201 Kópavogur
  • Sími 458 2000
  • leyfi@syslumenn.is

Samræmd starfsleyfisskilyrði heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og Umhverfisstofnunar fyrir gistiheimili, gistiskála, hótel, og samkomuhús má finna á vefsíðu Umhverfisstofnunar.