Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 18. nóvember var haldinn 543. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:03 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Róbert Ragnarsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Berglind Magnúsdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Kristinn Jakob Reimarsson, Rannveig Einarsdóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á 9 mánaða uppgjöri velferðarsviðs í janúar - september 2026. Trúnaður er um málið þar til uppgjörið hefur verið lagt fyrir borgarráð. VEL26110100.
- Kl. 13:07 tekur Helgi Áss Grétarsson sæti á fundinum.
- Kl. 13:11 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum.
-
Lagt fram yfirlit, dags. 18. nóvember 2026, yfir innkaup á velferðarsviði yfir 10 m.kr. á tímabilinu október 2025 - september 2026. Trúnaður er um málið þar til 9 mánaða uppgjör velferðarsviðs 2026 hefur verið lagt fyrir borgarráð. VEL26110101.
-
Lagt fram minnisblað, dags. 16. nóvember 2026, um gjaldtöku sveitarfélaga fyrir stuðningsþjónustu, einkum þegar þjónustan felst að mestu í þrifum. VEL26080114.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihlutinn þakkar fyrir vandað og vel unnið minnisblað. Stuðningsþjónusta á fyrst og fremst að efla sjálfstæði fólks og gera því kleift að búa sem lengst á eigin heimili. Þjónustan á ekki sjálfkrafa að felast í því að starfsfólk taki yfir verkefni sem einstaklingar geta sinnt sjálfir með viðeigandi stuðningi, þjálfun eða hjálpartækjum. Því er lagt til að taka upp tekjumörk fyrir þá sem þurfa eingöngu aðstoð við þrif, að fyrirmynd Akureyrarbæjar. Þannig verði fjármunum forgangsraðað til þeirra sem mest þurfa á þjónustunni að halda. Kostnaði verður enn haldið í algjöru lágmarki fyrir tekjulága og háar tekjur munu ekki útiloka þrif þegar einstaklingur þarf jafnframt víðtækari stuðning. Samhliða eru lagðar til mikilvægar umbætur á þjónustunni. Einfalda á umsóknarferlið og draga úr óþarfa umsýslu. Í stað þess að samþykkja sjálfkrafa ótímabundna þrifþjónustu verði færni og þarfir einstaklingsins metnar, meðal annars með tilliti til hjálpartækja, leiðsagnar og tímabundinnar færniþjálfunar á heimilinu. Þeir sem þurfa varanlega aðstoð fái hana áfram samkvæmt einstaklingsbundnu mati. Þá verði kannaður möguleiki á námskeiðum í heimilishaldi fyrir yngri þjónustuþega. Með breytingunum er þjónustan betur sniðin að raunverulegum þörfum fólks, færni þess og getu til sjálfstæðrar búsetu. Þannig má bæði bæta lífsgæði og nýta fjármuni betur.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á upplýsingavef um eldra fólk og ofbeldi í Reykjavík. Lagt fram minnisblað, dags. 16. nóvember 2026, um innleiðingu upplýsingavefs og vinnu að ferlum vegna ofbeldis gagnvart eldra fólki. VEL26060083.
Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir, jafnréttisráðgjafi á skrifstofu ráðgjafarþjónustu, Árdís Freyja Antonsdóttir, öldrunarfélagsráðgjafi, Eva Lind Vestmann, öldrunarfélagsráðgjafi, og Thelma Vestmann öldrunarfélagsráðgjafi, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúarnir þakka fyrir góða kynningu og góð störf við útfærslu upplýsingavefs og ferla vegna ofbeldis. Ofbeldi gagnvart eldra fólki getur birst með margvíslegum hætti, meðal annars sem líkamlegt, andlegt eða fjárhagslegt ofbeldi og vanræksla. Oft á það sér stað innan veggja heimilisins og getur verið erfitt fyrir þolendur að leita sér aðstoðar, ekki síst þegar gerandinn er nákominn. Með þessum breytingum er stigið mikilvægt skref í að gera ofbeldi sýnilegra og auðvelda bæði þolendum og aðstandendum að leita hjálpar. Á upplýsingavef borgarinnar má nú finna skýrar leiðbeiningar um birtingarmyndir ofbeldis og hvert hægt er að leita. Jafnframt hafa verið mótaðir verkferlar sem skýra ábyrgð starfsfólks og samstarf við lögreglu og Neyðarlínuna. Sérstaklega ánægjulegt er að unnið sé að stafrænni tilkynningaleið fyrir þá sem vilja koma ábendingum á framfæri án þess að hringja í 112. Mikilvægt er að hafa í huga að Reykjavíkurborg hefur ekki heimildir til að rannsaka mál, heldur er tilgangurinn að veita aðstoð og upplýsingar. Þannig lækkar þröskuldurinn fyrir fólk sem annars gæti veigrað sér við að leita aðstoðar. Næsta skref er að kynna upplýsingarnar og verklagið vel fyrir starfsfólki og almenningi og tryggja markvissa eftirfylgni.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins fagna þeirri vinnu sem farið hefur fram við að bæta upplýsingagjöf og skýra verkferla vegna ofbeldis gegn eldra fólki. Vel hefur verið staðið að undirbúningi af fagaðilum og sérstaklega er ánægjulegt að fundin hafi verið leið til að auðvelda fólki að tilkynna ofbeldi en jafnframt tryggja að málum sé fylgt eftir með viðeigandi aðstoð og úrræðum. Mikilvægt er að safna gögnum um nýtingu tilkynningarleiðarinnar og afdrif mála svo hægt verði að meta árangur þessara breytinga að einhverjum tíma liðnum og þróa verklagið áfram á grundvelli reynslunnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Vinstrisins um úttekt á áhrifum breytinga á máltíðaþjónustu velferðarsviðs, sbr. 10. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. nóvember 2026. VEL26110036.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.- Kl. 14:44 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundinum.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar tekur heilshugar undir mikilvægi þess að ráðast í úttekt á áhrifum breytinga á máltíðaþjónustu á Vitatorgi. Þegar meirihlutinn ákvað að hækka verð á máltíðum lífeyrisþega um 73% í sumar var varað við því að breytingin gæti bitnað á fjárhagi eldra fólks og félagslegri þátttöku. Í bréfi Íbúasamtaka miðborgar til velferðarráðs koma fram ábendingar sem vekja verulegar áhyggjur. Þar er lýst fækkun gesta, áhyggjum fólks af eigin heilsu og fjárhag, versnandi matargæðum, litlum skammtastærðum og því að maturinn sé stundum búinn áður en allir hafa fengið að borða. Upphaflega var gert ráð fyrir tímabundinni útvistun matreiðslunnar meðan ráðist yrði í endurbætur á eldhúsi Vitatorgs. Nýr meirihluti ákvað hins vegar að hætta við endurbæturnar og halda útvistuninni áfram. Því er nauðsynlegt að meta áhrif þessara breytinga með hliðsjón af reynslu notenda og tryggja bæði gæði og aðgengi að þjónustunni.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. nóvember 2026, við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um kostnað af þjónustu við börn með fjölþættan vanda á tímabilinu 2019-2025, sbr. 13. lið fundargerðar velferðarráðs frá 7. október 2026. VEL26100047.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Ástæða er til að þakka fyrir svarið sem varpar ljósi á útgjöld Reykjavíkurborgar vegna barna með fjölþættan vanda á tímabilinu 1. janúar 2018 til og með 30. júní 2026. Þessi útgjöld eru þung fyrir rekstur velferðarsviðs borgarinnar. Með réttu hlýtur að liggja í augum uppi að ríkið eigi að bera kostnað af þessari þjónustu þar eð þessi hópur á að falla undir þriðja stigs þjónustu samkvæmt svokölluðum farsældarlögum. Með pólitískum lúðrablæstri í mars 2025 var gert mikið úr því að núverandi ríkisstjórn hygðist taka á þessu viðfangsefni í samvinnu við sveitarfélögin. Það samkomulag hefur síðan af hálfu ríkisins verið útfært þannig að mikil byrði af útgjöldunum heldur áfram að lenda á sveitarfélögum, meðal annars Reykjavíkurborg. Í þessum efnum þarf hagsmunagæsla Reykjavíkurborgar gagnvart ríkinu að vera mun skilvirkari og einkennast af því að árangri skuli náð, eftir atvikum með málaferlum, ef samningaleiðin dugar ekki.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. nóvember 2026, við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um þjónustu við einstaklinga á vinnualdri á tímabilinu 2021-2025, sbr. 15. lið fundargerðar velferðarráðs frá 7. október 2026. VEL26100052.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Svar þetta er yfirgripsmikið en hefur vissar takmarkanir, meðal annars vegna persónuverndarsjónarmiða. Við þetta verður að una í bili en til hliðsjónar hefur í Danmörku lengi verið tekin saman nákvæm tölfræði um hverjar séu samfélagslegar afleiðingar innflytjendastefnu landsins á hverjum tíma (d. Det nationale integrationsbarometer). Þegar horft er til íslensks veruleika komu gildandi lög um útlendinga til framkvæmdar 1. janúar 2017 og þá var 10% heildarfjöldi íbúa á Íslandi með erlent ríkisfang. Níu árum síðar, 1. janúar 2026, hefur þessi tala tvöfaldast, er komin upp í 20%. Ólíkt stöðunni í Danmörku hefur vantað markvissa opinbera upplýsingagjöf um hverjar séu afleiðingarnar af þessari breyttu samsetningu íbúa landsins en kjörnir fulltrúar á Alþingi og í sveitarstjórnum hafa undanfarið beint ítarlegum fyrirspurnum til stjórnvalda í því skyni að fá heildstæðari mynd af stöðu mála, svo sem í ýmsum velferðarkerfum hins opinbera. Sem dæmi, sé horft til mannfjöldatalna frá Hagstofu Íslands og talna samkvæmt fyrirliggjandi svari, má ætla að árið 2025 hafi um 70% íbúa með ríkisfang frá Palestínu, á vinnualdri, fengið þjónustu frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Full ástæða er til að rýna nánar í tölfræði sem þessa og í hvaða átt við viljum sjá íslenskt þjóðfélag þróast.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.
Fundi slitið kl. 15:17
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Róbert Ragnarsson Helgi Áss Grétarsson
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Þorvaldur Davíð Kristjánsson