Velferðarráð
Ár 2026, fimmtudagur 13. ágúst var haldinn 535. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Halldór Bachmann, Helgi Dagbjartur Áss Grétarsson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Skúli Þór Helgason og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Berglind Magnúsdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á starfsemi Samhjálpar. VEL26080003.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti velferðarráðs þakkar fulltrúum Samhjálpar fyrir góða og upplýsandi kynningu og ekki síður fyrir það mikilvæga starf sem samtökin hafa unnið um áratugaskeið í þágu fólks sem stendur höllum fæti. Starfsemin er fjölbreytt og nær allt frá meðferð og eftirfylgni í Hlaðgerðarkoti til áfanga- og stuðningsheimila og Kaffistofu Samhjálpar, sem sinnir umfangsmikilli neyðar- og matarþjónustu alla daga ársins. Gögnin um Kaffistofuna sýna vel hversu mikil þörfin er. Áætlað er að þangað séu 75–90 gestakomur á dag og á álagstímum geta yfir 60 gestir verið þar samtímis. Starfsemin er því mikilvægur hluti þess öryggisnets sem til staðar er fyrir fólk í viðkvæmri stöðu. Meirihlutinn leggur áherslu á að fólk fái rétta þjónustu á réttum tíma og að góð samvinna sé milli borgarinnar og þeirra öflugu félagasamtaka sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu. Ábending Samhjálpar um þörf fyrir áfangaheimili fyrir konur á höfuðborgarsvæðinu er mikilvæg og verðugt er að skoða hvernig sveitarfélögin geti tekið höndum saman um að mæta þeirri þörf.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Kynning á starfsemi Samhjálpar var ítarleg og fróðleg en sem stendur skiptir mestu máli að borgaryfirvöld geri allt í sínu valdi til að aðstoða samtökin við að finna heppilegt húsnæði fyrir Kaffistofu Samhjálpar. Á fundi velferðarráðs 24. júní síðastliðinn lagði velferðarráðsfulltrúi Miðflokksins fram fyrirspurn um málefni Kaffistofunnar (VEL26060114) og svar við þeirri fyrirspurn var lagt fram á fundinum í dag. Brýnt er að starfsemi Samhjálpar njóti velvildar borgaryfirvalda og málum sem þessum, sé komið í glöggan farveg, strax.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 11. ágúst 2026, um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis:
Lagt er til að velferðarráð heimili velferðarsviði að breyta og einfalda gjaldskrá veitinga og fæðis fyrir árið 2026. Almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækki úr 1.915 kr. í 2.387 kr. Verð fyrir lífeyrisþega hækki úr 1.100 kr. og 1.190 kr. í 1.900 kr. Lagt er til að gjald vegna aksturs heimsendra máltíða og fast fæði/matarmiðar verði lagt niður og innifalið í nýrri gjaldskrá. Eitt verð verði fyrir allar máltíðir óháð því hvar þeirra er neytt. Innifalið í heimsendum mat verði akstursgjald á sama hátt og framreiðslukostnaður í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðum er innifalinn í verði. Breytingin taki gildi 1. september 2026.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080004.
Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Inga Borg, teymisstjóri á skrifstofu fjármála og reksturs, og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu öldrunarmála, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti velferðarráðs styður þær breytingar sem lagðar eru til á rekstri matarþjónustu velferðarsviðs. Matarþjónusta er mikilvægur hluti þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk og meginmarkmiðið hlýtur ávallt að vera að tryggja örugga, góða og hagkvæma þjónustu. Rekstur framleiðslueldhússins á Vitatorgi hefur um árabil verið þungur og farið verulega fram úr fjárheimildum. Jafnframt liggur fyrir að endurbætur á eldhúsinu myndu kosta að lágmarki 500 m.kr. án þess að leysa undirliggjandi rekstrarvanda. Við þær aðstæður er ekki forsvaranlegt að ráðast í svo umfangsmikla fjárfestingu þegar unnt er að tryggja þjónustuna með öðrum hætti. Með áframhaldandi kaupum á máltíðum frá sérhæfðum aðila og útboði á dreifingu þeirra er stefnt að öruggari, skilvirkari og hagkvæmari þjónustu. Samhliða er nauðsynlegt að bregðast við þeirri staðreynd að núverandi gjaldskrá hefur verið langt undir kostnaðarverði. Breytt og einfaldari gjaldskrá ásamt hagræðingu í rekstri miðar að því að koma matarþjónustunni á sjálfbærari rekstrargrundvöll til framtíðar.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillagan felur í sér tugprósenta hækkun á matarverði til skjólstæðinga velferðarþjónustunnar í borginni en í þeim hópi er fólk með lágar tekjur. Vel má rökstyðja að tilefni hafi verið til nokkurrar hækkunar þar sem verðið hefur verið lægra í borginni en í flestum öðrum sveitarfélögum. En 43-72% hækkun á hádegismat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum er gríðarleg breyting og langt umfram allt meðalhóf í samfélagi þar sem verðbólga mælist 5,3%. Þá stingur í augu að almennt verð á hádegismat fyrir aðra en lífeyrisþega hækkar hlutfallslega mun minna eða um 24% en í þeim hópi eru einstaklingar á vinnumarkaði, sem geta verið með mun hærri ráðstöfunartekjur en almennir lífeyrisþegar. Hækkanir á gjaldskrám borgarinnar af þessari stærðargráðu eru líka alvarlegt innlegg í viðkvæma stöðu kjarasamninga á vinnumarkaði, þar sem borgaryfirvöld hétu því á sínum tíma að halda gjaldskrárhækkunum innan hóflegra marka á fjögurra ára samningstíma gildandi kjarasamninga sem eru í gildi til 2028. Framsókn sem nú er í meirihluta með Sjálfstæðisflokki og Viðreisn greiddi atkvæði 25. mars síðastliðinn í velferðarráði gegn tillögu um margfalt minni gjaldskrárhækkun matarþjónustu á þeim forsendum að hún ógnaði verðstöðugleika. Viðsnúningur þess flokks er þeim mun athyglisverðari nú.
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Mótatkvæði fulltrúa Vinstrisins snýr einna helst að gjaldskrárhækkun gagnvart þeim sem reiða sig á lífeyrisgreiðslur en þar er um verulega hækkun að ræða, allt að 800 krónur á máltíð. Ljóst er að kostnaður vegna máltíðaþjónustu hefur hækkað og nauðsynlegt er að finna leiðir til að mæta þeim kostnaði. Hér er þó um að ræða verulega hækkun fyrir þá sem eru með lágar tekjur. Hætta er á að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á máltíðum af fjárhagslegum ástæðum og að aðgengi að næringarríkum og reglulegum máltíðum skerðist með neikvæðum afleiðingum á heilsu og lífsgæði. Góð næring er ein af grunnforsendum heilsu og vellíðanar og tryggja þarf að allir Reykvíkingar hafi aðgang að næringarríkum máltíðum alla daga. Hætta er á því að þessi gjaldskrárbreyting vinni gegn því.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Dagskrárliðir 2-4 fela í sér heildarpakka um breytingar á þjónustu við eldra fólk. Velferðarráðsfulltrúi Miðflokksins er ekki sannfærður um ágæti þessara tillagna, þótt þær séu um sumt rökréttar. Sem dæmi er hækkun á gjaldskrá veitinga og fæðis til eldra fólks afar há, eða sem nemur tugum prósenta. Einnig er óljóst, hvort það sé skynsamlegt, til lengri tíma, að hætta rekstri framleiðslueldhússins á Vitatorgi. Reykjavíkurborg ber skyldur gagnvart hagsmunum eldra fólks og þar skiptir matarþjónusta, bæði heimsendur matur og á félagsmiðstöðvar eldra fólks, töluverðu máli. Í ljósi þessara skyldna borgaryfirvalda er ekki víst að útvistun þjónustunnar sé æskileg, þegar málið er hugsað til langs tíma. Það liggur ekki fyrir að þessar breytingar hafi verið undirbúnar þannig að talsmenn notenda hafi fengið að tjá sig um þær, svo sem öldungaráð Reykjavíkurborgar. Með hliðsjón af þessum efasemdum, jafnvel þótt breytingarnar kunni að vera til bóta fyrir rekstur borgarinnar til skemmri tíma, situr fulltrúinn hjá í þessum matarpakka núverandi meirihluta borgarstjórnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 11. ágúst 2026, um breytingu áforma um endurbætur á framleiðslueldhúsi:
Lagt er til að velferðarráð heimili velferðarsviði að hætta við áform um endurbætur á framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi og haldi áfram að fá þriðja aðila til að sjá um framleiðslu máltíða.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080026.
Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Inga Borg, teymisstjóri á skrifstofu fjármála og reksturs, og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu öldrunarmála, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti velferðarráðs styður þær breytingar sem lagðar eru til á rekstri matarþjónustu velferðarsviðs. Matarþjónusta er mikilvægur hluti þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk og meginmarkmiðið hlýtur ávallt að vera að tryggja örugga, góða og hagkvæma þjónustu. Rekstur framleiðslueldhússins á Vitatorgi hefur um árabil verið þungur og farið verulega fram úr fjárheimildum. Jafnframt liggur fyrir að endurbætur á eldhúsinu myndu kosta að lágmarki 500 m.kr. án þess að leysa undirliggjandi rekstrarvanda. Við þær aðstæður er ekki forsvaranlegt að ráðast í svo umfangsmikla fjárfestingu þegar unnt er að tryggja þjónustuna með öðrum hætti. Með áframhaldandi kaupum á máltíðum frá sérhæfðum aðila og útboði á dreifingu þeirra er stefnt að öruggari, skilvirkari og hagkvæmari þjónustu. Samhliða er nauðsynlegt að bregðast við þeirri staðreynd að núverandi gjaldskrá hefur verið langt undir kostnaðarverði. Breytt og einfaldari gjaldskrá ásamt hagræðingu í rekstri miðar að því að koma matarþjónustunni á sjálfbærari rekstrargrundvöll til framtíðar.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Hér er lagt til að falla frá nýlega samþykktum áformum um endurbætur á framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi og útvista þess í stað þjónustunni til einkaaðila. Ljóst er að hér ræður pólitísk hugmyndafræði nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar för en ekki faglegar forsendur enda er engin greining lögð fram með samanburði á og göllum mismunandi rekstrarforma með tilliti til þjónustustigs, verðlags eða kostnaðar fyrir borgina. Brýnt er að nýta þjónustukannanir sem gerðar hafa verið meðal skjólstæðinga matarþjónustunnar á Vitatorgi og í núverandi fyrirkomulagi. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur áherslu á að mikilvægt er að taka sérstakt tillit til gæða þjónustunnar en borgin hefur mótað og fylgt vandaðri matarstefnu með áherslu á hollan, fjölbreyttan og næringarríkan mat í skólum og velferðarþjónustu borgarinnar, sem taki mið af mismunandi þörfum notenda þjónustunnar. Nauðsynlegt er að staðinn verði vörður um þær gæðakröfur áfram.
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi bókun:
Hér er um mikla stefnubreytingu að ræða. Farsælla væri að halda sig við fyrri áform um uppbyggingu framleiðslueldhússins á Vitatorgi, þannig að starfsemin og þekkingin á því að framleiða mat samkvæmt ákveðnum stöðlum haldist innan borgarinnar. Kostnaðarsamara er að reiða sig á kaup á máltíðum af utanaðkomandi aðila og þá felst einnig áhætta í því að reiða sig með ríkum hætti á utanaðkomandi aðila.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Dagskrárliðir 2-4 fela í sér heildarpakka um breytingar á þjónustu við eldra fólk. Velferðarráðsfulltrúi Miðflokksins er ekki sannfærður um ágæti þessara tillagna, þótt þær séu um sumt rökréttar. Sem dæmi er hækkun á gjaldskrá veitinga og fæðis til eldra fólks afar há, eða sem nemur tugum prósenta. Einnig er óljóst, hvort það sé skynsamlegt, til lengri tíma, að hætta rekstri framleiðslueldhússins á Vitatorgi. Reykjavíkurborg ber skyldur gagnvart hagsmunum eldra fólks og þar skiptir matarþjónusta, bæði heimsendur matur og á félagsmiðstöðvar eldra fólks, töluverðu máli. Í ljósi þessara skyldna borgaryfirvalda er ekki víst að útvistun þjónustunnar sé æskileg, þegar málið er hugsað til langs tíma. Það liggur ekki fyrir að þessar breytingar hafi verið undirbúnar þannig að talsmenn notenda hafi fengið að tjá sig um þær, svo sem öldungaráð Reykjavíkurborgar. Með hliðsjón af þessum efasemdum, jafnvel þótt breytingarnar kunni að vera til bóta fyrir rekstur borgarinnar til skemmri tíma, situr fulltrúinn hjá í þessum matarpakka núverandi meirihluta borgarstjórnar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 11. ágúst 2026, um útboð á dreifingu máltíða:
Lagt er til að velferðarsvið hefji undirbúning útboðs á dreifingu máltíða í heimahús og móttökueldhús þjónustuíbúða og félagsmiðstöðva velferðarsviðs. Heildarkostnaður á ársgrundvelli vegna akstursins er áætlaður u.þ.b. 88,9 m.kr. Áætlaður heildarkostnaður vegna dreifingu máltíða með þriðja aðila er metinn u.þ.b. 78 m.kr. á ári.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080024.
Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.Inga Borg, teymisstjóri á skrifstofu fjármála og reksturs, og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu öldrunarmála, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti velferðarráðs styður þær breytingar sem lagðar eru til á rekstri matarþjónustu velferðarsviðs. Matarþjónusta er mikilvægur hluti þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk og meginmarkmiðið hlýtur ávallt að vera að tryggja örugga, góða og hagkvæma þjónustu. Rekstur framleiðslueldhússins á Vitatorgi hefur um árabil verið þungur og farið verulega fram úr fjárheimildum. Jafnframt liggur fyrir að endurbætur á eldhúsinu myndu kosta að lágmarki 500 m.kr. án þess að leysa undirliggjandi rekstrarvanda. Við þær aðstæður er ekki forsvaranlegt að ráðast í svo umfangsmikla fjárfestingu þegar unnt er að tryggja þjónustuna með öðrum hætti. Með áframhaldandi kaupum á máltíðum frá sérhæfðum aðila og útboði á dreifingu þeirra er stefnt að öruggari, skilvirkari og hagkvæmari þjónustu. Samhliða er nauðsynlegt að bregðast við þeirri staðreynd að núverandi gjaldskrá hefur verið langt undir kostnaðarverði. Breytt og einfaldari gjaldskrá ásamt hagræðingu í rekstri miðar að því að koma matarþjónustunni á sjálfbærari rekstrargrundvöll til framtíðar.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Dagskrárliðir 2-4 fela í sér heildarpakka um breytingar á þjónustu við eldra fólk. Velferðarráðsfulltrúi Miðflokksins er ekki sannfærður um ágæti þessara tillagna, þótt þær séu um sumt rökréttar. Sem dæmi er hækkun á gjaldskrá veitinga og fæðis til eldra fólks afar há, eða sem nemur tugum prósenta. Einnig er óljóst, hvort það sé skynsamlegt, til lengri tíma, að hætta rekstri framleiðslueldhússins á Vitatorgi. Reykjavíkurborg ber skyldur gagnvart hagsmunum eldra fólks og þar skiptir matarþjónusta, bæði heimsendur matur og á félagsmiðstöðvar eldra fólks, töluverðu máli. Í ljósi þessara skyldna borgaryfirvalda er ekki víst að útvistun þjónustunnar sé æskileg, þegar málið er hugsað til langs tíma. Það liggur ekki fyrir að þessar breytingar hafi verið undirbúnar þannig að talsmenn notenda hafi fengið að tjá sig um þær, svo sem öldungaráð Reykjavíkurborgar. Með hliðsjón af þessum efasemdum, jafnvel þótt breytingarnar kunni að vera til bóta fyrir rekstur borgarinnar til skemmri tíma, situr fulltrúinn hjá í þessum matarpakka núverandi meirihluta borgarstjórnar.
Fylgigögn
-
Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók. VEL26080033.
-
Lögð fram drög að samstarfssamningi Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðarkaupstaðar um fjármögnun stöðugildis í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar, dags. 13. ágúst 2026. Einnig lagður fram vinnslusamningur vegna meðferðar persónuupplýsinga. VEL26060102.
Samþykkt.Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Velferðarráð lýsir yfir ánægju með að samningur hafi náðst um aðkomu Hafnarfjarðarbæjar að fjármögnun stöðugildis í Vettvangs- og ráðgjafateymi (VoR) Reykjavíkurborgar. Starfsemin er mikilvæg til að sinna heimilislausum með miklar og flóknar þjónustuþarfir og rennir samningurinn styrkari stoðum undir starfsemina sem er fagnaðarefni.
Fylgigögn
-
Lögð fram svo breytt tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að innleiða upplýsingavef vegna ofbeldis gagnvart eldra fólki, sbr. 11. lið fundargerðar velferðarráðs frá 24. júní 2026:
Velferðarsviði, í samstarfi við þjónustu- og nýsköpunarsvið og Neyðarlínuna - 112, er falið að gera upplýsingar um ofbeldi gagnvart eldra fólki og úrræði sýnilegri og aðgengilegri á vef Reykjavíkurborgar. Markmiðið er að efla þekkingu á ofbeldi gegn eldra fólki og einfalda tilkynningar um ofbeldi með beinum tengingum af vef Reykjavíkurborgar inn á tilkynninga- og ráðgjafarleiðir 112. Jafnframt er velferðarsviði falið að vinna verkferla og leiðbeiningar fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar, í samstarfi við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, um viðbrögð þegar ofbeldi gegn eldra fólki á sér stað eða þegar grunur þar um vaknar. Verkferlarnir skýri hvernig bregðast skuli við, hvert sé hlutverk Reykjavíkurborgar og hvernig samstarfi við aðra aðila sé háttað, m.a. lögreglu, þegar ofbeldi gegn öldruðum á sér stað eða þegar grunur þar um vaknar. VEL26060083.
Samþykkt.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er ágæt hugmynd að kalla eftir frekari göngum um ofbeldismál gagnvart eldra fólki og gera þær upplýsingar aðgengilegri á vef borgarinnar. Hins vegar verður að halda til haga að slík upplýsingagjöf reisir væntingar um ný og bætt úrræði til að mæta slíkum tilvikum og ekki er kveðið á um ný úrræði í tillögu meirihlutans. Það hlýtur þó að vera kjarni málsins að koma betur til móts við eldra fólk sem verður fyrir ofbeldi með árangursríkum úrræðum, ef tillagan á að þjóna tilgangi sínum gagnvart borgarbúum.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn velferðarráðs um áhrif uppsagnar samnings um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á aðgang barna að leikskólum borgarinnar, dags. 9. júlí 2026. VEL25060067.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Vinstrisins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Svarið leiðir í ljós að engar upplýsingar hafa verið teknar saman hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu um stöðu barna í hópi umsækjenda um alþjóðlega vernd varðandi aðgengi þeirra að leikskólum borgarinnar og annarra sveitarfélaga. Þetta er áhyggjuefni í ljósi þess að Vinnumálastofnun sagði upp þjónustusamningi við Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög í fyrra sem dró úr aðgengi viðkomandi barna að leikskólum. Á þeim tíma voru samtals 26 börn á aldrinum 0-5 ára sem tengdust samningi Reykjavíkurborgar þar af 12 börn í leikskóla, 9 ungabörn og 5 á biðlista eftir leikskólaplássi. Núverandi staða er ekki viðunandi m.a. í ljósi þess álits Umboðsmanns barna að það samræmist ekki ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að börnum umsækjenda um alþjóðlega vernd standi ekki til boða að sækja leikskóla, frístund og tómstundir. Æskilegt er að ráðuneyti og sveitarfélög leiti leiða til að koma betur til móts við umræddan hóp barna í viðkvæmri stöðu svo þau hafi áfram aðgengi að leikskólum eins og önnur börn.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 11. ágúst 2026, við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um húsnæðismál Kaffistofu Samhjálpar, sbr. 13. lið fundargerðar velferðarráðs frá 24. júní 2026. VEL26060114.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 11. ágúst 2026, við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um tölulegar upplýsingar um tíðni slysa vegna ástands gangstétta í Reykjavík, sbr. 14. lið fundargerðar velferðarráðs frá 24. júní 2026. VEL26060115.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðarsvið greini hvort og hvernig veitt þjónusta í stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk endurspeglar þarfagreiningu, SIS-mat og þjónustuáætlanir einstaklinga, meti fjárhagsleg áhrif ósamræmis þar á milli og geri tillögur að úrbótum hvar við á.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080041.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðarsvið geri greiningu á framboði og eftirspurn eftir valkostum við hefðbundna búsetukjarna, þar á meðal: a) yfirlit yfir þá einstaklinga á biðlista eftir sértæku húsnæði þar sem sjálfstæð búseta með stuðningi gæti komið til greina í stað búsetukjarna b) samanburð á kostnaði á hvern notanda milli þjónustuforma: búsetukjarna, sjálfstæðrar búsetu með sólahringsstuðningi (Liðsaukinn), NPA og beingreiðslusamninga, og stuðnings- og stoðþjónustu í eigin húsnæði. Einnig er velferðarsviði falið að vinna tillögur að næstu skrefum, þar á meðal hvort mögulegt sé að þróa fjölbreyttari þjónustuleiðir í sjálfstæðri búsetu sem mæta þörfum einstaklinga á biðlistum með lægri tilkostnaði en sértæk búsetuþjónusta. VEL26080042.
Frestað.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að fela velferðarsviði að vinna minnisblað með eftirfarandi upplýsingum:
1. Hlutverk SIS-mats við að tryggja þjónustuþegum þjónustu við hæfi yfir tíma. 2. Heildarfjölda einstaklinga sem njóta þjónustu og hafa gilt SIS-mat, úrelt mat eða eru án mats, sundurliðað eftir þjónustuþætti. 3. Núverandi verklag í tengslum við SIS-mat og endurnýjun þess. 4. Greiningu á fjárhagslegum áhrifum þess að SIS-mat vanti eða sé úrelt þar á meðal: a. Áætlað tekjutap vegna framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem borgin verður af vegna þjónustuþega sem eru án SIS-mats. b. Samanburð á raunframlagi úr Jöfnunarsjóði og þeim framlögum sem borgin hlyti ef öll SIS-möt væru reglulega uppfærð í samræmi við breyttar þarfir þjónustuþega.Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080032.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðasviði verði falið að greina þróun gjaldskráa með tilliti til kostnaðarþróunar og annarra viðkomandi þátta.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080043.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðarsvið greini kostnaðarþróun skammtímadvala og kanni hvort tækifæri séu til að haga rekstri þeirra með hagkvæmari hætti á komandi árum.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080045.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðarsviði verði falið að vinna aðgerðaráætlun um lækkun fjarvistahlutfalls í búsetuþjónustu. Aðgerðaráætlunin taki mið af eftirfarandi: Í fyrsta lagi verði farið yfir veikinda- og yfirvinnuþróun á öllum heimilum í búsetuþjónustu og þannig greint hvar fjarvistavandinn er hvað mestur, svo hægt sé að beina aðgerðum þangað fyrst. Í öðru lagi verði gerð mælanleg árleg markmið um lækkun veikindahlutfalls með lokamarkmiðið að ná hlutfallinu niður í 5% eða lægra. Í þriðja lagi verði innleidd markviss viðverustefna á öllum heimilum, þar á meðal skýrt verklag um tilkynningu veikinda, fjarvistarsamtöl þegar veikindi fara yfir ákveðið viðmið og áætlanir um endurkomu í vinnu. Í fjórða lagi verði metið hvort aukið hlutfall faglærðs starfsfólks, hærra meðalstarfshlutfall og markvissar starfsþróunaráætlanir geti stuðlað að lækkun fjarvistahlutfalls til lengri tíma. Árangur verði mældur árlega og borinn saman við sett markmið. Skýrsla verði lögð fram fyrir velferðarráð.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26080044.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hvernig er upplýsingamiðlun háttað á velferðarsviði eftir nýlegar breytingar meirihlutans sem fólu í sér uppsagnir á upplýsingafulltrúum? VEL26080054.
-
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir tölulegum upplýsingum um fjölda þeirra sem sækja miðstöðvar borgarinnar ár hvert. Þá er einnig óskað eftir sundurliðun eftir miðstöðum ef þær upplýsingar liggja fyrir sem og öðrum upplýsingum sem kunna að varpa ljósi á fjölda þeirra sem mæta á miðstöðvar borgarinnar í leit að þjónustu, upplýsingum, stuðningi og ráðgjöf. VEL26080055.
Fundi slitið kl. 16:09
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Halldór Bachmann
Skúli Helgason Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Ingunn Rós Kristjánsdóttir Helgi Áss Grétarsson
Sanna Magdalena Mörtudottir
PDF útgáfa fundargerðar
Velferðarráð 13.08.26 - prentvæn útgáfa