Velferðarráð - Fundur nr. 534

Velferðarráð

Ár 2026, miðvikudagur 24. júní var haldinn 534. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:10 í Hofi. Á fundinn mættu: Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir,  Helgi Áss Grétarsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Regína Ásvaldsdóttir, Róbert Ragnarsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Berglind Magnúsdóttir, Halla Hallgrímsdóttir, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Gunnlaugur Sverrisson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 4. júní 2026, þar sem lýst er kosningu fulltrúa í velferðarráð til fjögurra ára og kjöri varafulltrúa á fundi borgarstjórnar 2. júní 2026. MSS26060017.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram samþykkt fyrir velferðarráð Reykjavíkurborgar, dags. 18. júní 2019. VEL26060017.

    Fylgigögn

  3. Fram fer kosning varaformanns velferðarráðs. VEL26060018.

    Varaformaður er kosinn Róbert Ragnarsson án atkvæðagreiðslu. 

  4. Fram fer kosning fulltrúa í áfrýjunarnefnd velferðarráðs. VEL26060019.

    Kosin eru án atkvæðagreiðslu: 

    Aðalmenn eru Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir og Róbert Ragnarsson. Varamenn þeirra eru Skúli Helgason, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Þorvaldur Daníelsson.  

    Fyrir hönd velferðarsviðs munu starfa með nefndinni Sigrún Skaftadóttir, deildarstjóri, varamaður hennar er Helga Sigurjónsdóttir, deildarstjóri, og Fanney Magnadóttir, lögfræðingur, varamaður hennar er Bára Sigurjónsdóttir, lögfræðingur. 

    Formaður er kosinn Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. 

    Fylgigögn

  5. Lagður fram til undirritunar þagnareiður velferðarráðsfulltrúa. VEL26060020.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram fundadagatal velferðarráðs ágúst - desember 2026. VEL26060022.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 22. júní 2026, um samþykkt samnings við Ás styrktarfélag: 

    Lagt er til að samþykktur verði þjónustusamningur við Ás styrktarfélag sem gilda mun frá 1.janúar 2026 til 31. desember 2028. Samningurinn er þríþættur og skiptast upphæðir í þrjá flokka: 1) 1.035.572.181 kr. á ári vegna búsetuþjónustu, 2) 1.152.397.184 kr. á ári vegna dagþjónustu, hæfingar og verndaðrar vinnu og 3) 55.606.363 kr. á ári vegna Lyngáss, sérhæfðrar dagþjónustu fyrir fötluð og langveik börn á leikskólaaldri. Greiðslur þjónustukaupa (Reykjavíkurborgar) vegna samningsins nema samtals 2.243.575.728 kr. fyrir tólf mánaða tímabil og ná fjárhæðir þessar yfir greiðslur fyrir alla þjónustu sem þjónustukaupi kaupir af þjónustusala samkvæmt samningnum. Fjárhæðin rúmast innan fjárheimilda velferðarsviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26060071.
    Samþykkt og vísað til borgarráðs. 

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Velferðarráð fagnar því að náðst hafi samningar um mikilvæga þjónustu við fatlað fólk við Ás styrktarfélag vegna búsetuþjónustu, reksturs Lyngáss og vinnu og virkni. Ás hefur áratuga sögu um þjónustu við fatlað fólk og mikil reynsla og þekking liggur innan starfseminnar. Þó er ljóst að um miklar fjárhæðir er að ræða, eða 6,8 milljarða á því þriggja ára tímabili sem samningurinn gildir. Því er mikilvægt að velferðarsvið fylgi eftir þeirri vönduðu kröfulýsingu sem liggur fyrir og kynni eftirfylgni með samningnum fyrir velferðarráði með reglubundnum hætti.  

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á uppgjöri velferðarsviðs í janúar - mars 2026.  VEL26060023.

    Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Reglubundinn rekstur velferðarsviðs án bundinna liða fyrstu þrjá mánuðina árið 2026 var 5,7% umfram fjárhagsáætlun eða sem nam 603 milljónum króna. Frávik skýrist helst af vistunargjöldum vegna einstaklinga með fjölþættan vanda. Þessi tiltekni halli, í samanburði við áætlun, skýrist af því að Reykjavíkurborg er að taka að sér verkefni sem íslenska ríkið á að sinna. Útkoma af þessu tagi er ekki í lagi fyrir rekstur borgarinnar. Í aðdraganda borgarstjórnarkosninga 16. maí síðastliðinn, var það eitt af áhersluatriðum Miðflokksins að flokkurinn hygðist í velferðarmálum ná betri samningum fyrir hönd Reykjavíkurborgar við ríkið og önnur sveitarfélög, og þannig fá viðunandi fjármagn í því skyni að bæta velferðarþjónustuna. Þegar horft er til lengri tíma er nauðsynlegt að kostnaðarskipting á milli ríkis og sveitarfélaga sé í samræmi við lög. Á þeim grundvelli ætti að vera auðveldara fyrir Reykjavíkurborg að sækja fram í velferðarmálum.

    Fylgigögn

  9. Fram fer kynning á skýrslu Ríkisendurskoðunar vegna innleiðingar farsældarlaganna. VEL26060082.

    Berglind Eygló Jónsdóttir, sérfræðingur, Elísabet Stefánsdóttir, verkefnastjóri frá lögfræðisviði Ríkisendurskoðunar, Hákon Sigursteinsson og Hulda Björk Finnsdóttir frá skrifstofu ráðgjafaþjónustu velferðarsviðs, taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð þakkar fyrir kynningu á stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Skýrslan er mikilvægt framlag til umræðunnar og staðfestir margt af því sem sveitarfélög, fagfólk og fjölskyldur hafa bent á frá gildistöku laganna. Í skýrslunni kemur fram að innleiðing farsældarlaganna hafi ekki skilað þeim árangri sem vænst var, m.a. vegna ófullnægjandi undirbúnings, skorts á heildstæðri þarfagreiningu og óraunhæfra væntinga um áhrif kerfisbreytingarinnar. Þá bendir Ríkisendurskoðun á að enn skorti skýra yfirsýn yfir stöðu barna og hlutlæga mælikvarða til að meta árangur laganna. Sérstaklega vekur athygli að börn með flóknastar þjónustuþarfir, þ.á m. börn með fötlun, fjölþættan vanda, vímuefnavanda eða þörf fyrir sérhæfð úrræði, hafi ekki notið nægjanlegs ávinnings af breytingunum. Langir biðlistar og skortur á viðeigandi úrræðum séu áfram veruleg hindrun í vegi markmiða laganna. Velferðarráð tekur undir ábendingar Ríkisendurskoðunar um að efla þurfi þjónustuinnviði, bæta samræmda upplýsingagjöf og tryggja aðgengi barna og fjölskyldna að viðeigandi þjónustu á réttum tíma. Markmið farsældarlaganna eru mikilvæg en skýrslan sýnir að raunveruleg farsæld barna ræðst ekki aðeins af samhæfingu kerfa heldur einnig af því að þjónustan sjálf sé til staðar þegar hennar er þörf. Ábendingar í skýrslunni eru gott veganesti fyrir forsætisráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti til að bæta framkvæmd laganna. 

    Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Kynning á skýrslu Ríkisendurskoðunar um svokölluð farsældarlög nr. 86/2021 var fróðleg. Efni skýrslunnar gefur til kynna að brotalamir séu viðvarandi við að hrinda efni laganna í framkvæmd. Ástæða er fyrir alla sem tengjast málaflokki barna að bæta innviði svo að lögin geti virkað sem skyldi. Það verður ekki gert nema að stofnanir ríkisins tryggi að bæði viðunandi fjármagn og mannafli sé til staðar svo hægt sé að framkvæma lögin. Einnig verður ekki framhjá því horft að breyta þurfi stefnunni um skóla án aðgreiningar svo raunhæft sé að veita börnum og ungmennum sem eiga í erfiðleikum, viðunandi þjónustu. Farsæld barna verður sem sagt ekki tryggð með innantómum fagurgala, heldur hinu, að marka raunsæja stefnu sem hægt er að hrinda í framkvæmd með markvissum hætti. Jafnframt er ávallt ástæða til að hlúa að velferð fjölskyldunnar, einni af grunneiningum þjóðfélagsins. Slíkt er til þess fallið að styrkja möguleika barna og ungmenna að glíma við erfiðleika í sínu lífi.

    Fylgigögn

  10. Fram fer kynning á stöðu verkefnisins Betri borg fyrir börn. VEL25060055.

    Hákon Sigursteinsson og Hulda Björk Finnsdóttir, verkefnastjórar farsældar barna, á skrifstofu ráðgjafaþjónustu velferðarsviðs, taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Velferðarsviði, í samstarfi við þjónustu- og nýsköpunarsvið, er falið að innleiða tilkynningavef vegna ofbeldis gagnvart eldra fólki. VEL26060083.

    Frestað.

    -    Kl. 16:00 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundi og Þorvaldur Daníelsson tekur sæti á fundinum. 

    Fylgigögn

  12. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Velferðarsviði er falið að leita leiða til að tryggja varanlegt og hentugt húsnæði fyrir starfsemi skaðaminnkandi úrræðisins Ylju miðsvæðis í Reykjavík.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26060084.
    Samþykkt.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir telja eðlilegt að Reykjavíkurborg skoði aðkomu að húsnæðismálum Ylju með sambærilegum hætti og áður hefur verið gert vegna húsnæðismála Kaffistofu Samhjálpar. Markmið tillögunnar er að kanna mögulegar leiðir til lausnar en ekki að fyrirfram ákveða tiltekna aðkomu borgarinnar.

    Fylgigögn

  13. Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Það ríkir óvissa um húsnæðismál Kaffistofu Samhjálpar, enda óvíst að starfsemi Kaffistofunnar geti til lengri tíma verið við Grensásveg 46, sjá úrskurð umhverfis- og auðlindamála frá 23. júní 2026 í máli UUA2604002. Spurt er, kemur til álita að velferðarsvið Reykjavíkur komi með virkum hætti að því að leysa húsnæðismál Kaffistofunnar? VEL26060114.

  14. Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fram kom í fjölmiðlum nýlega að 93 ára íbúi á hjúkrunarheimili í Grafarvogi í Reykjavík hafi lent í slysi þar sem ein orsök þess hafi verið slæmt ástand gangstéttar þar sem íbúinn fór um í hjólastól, en viðkomandi naut aðstoðar starfsmanns hjúkrunarheimilisins til að fara um á hjólastól sínum. Spurt er, safnar velferðarsvið Reykjavíkur saman tölum um slys, sem þjónustuþegar sviðsins lenda í og hverjar séu orsakir slíkra óhappa? Ef þessar tölum er haldið til haga, eru til tölulegar upplýsingar um tíðni slysa sem orðið hafa vegna slælegs ástands gangstétta í Reykjavík? VEL26060115.

Fundi slitið kl. 16:18.

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Helgi Áss Grétarsson Magnea Gná Jóhannsdóttir

Regína Ásvaldsdóttir Róbert Ragnarsson

Þorvaldur Davíð Kristjánsson

PDF útgáfa fundargerðar
Velferðarráð 24.6.2026 - prentvæn útgáfa