Velferðarráð - Fundur nr. 533
Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 6. maí var haldinn 533. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:03 í Hengli, Austurmiðstöð, Bíldshöfða 20. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Magnús Davíð Norðdahl og Sara Björg Sigurðardóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram tillaga sviðsstjóra, dags. 4. maí 2026, um breytingar á tekjumörkum í reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26050005.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Bjarki Hermannsson, fjármálasérfræðingur á skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 13:17 tekur Þorvaldur Daníelsson sæti á fundinum með rafrænum hætti.
- Kl. 13:18 tekur Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir sæti á fundinum.Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Þessi hækkun á viðmiðum um tekjumörk leggst ofan á hækkun sem tók gildi fyrr á árinu um 5,2%. Mikilvægt er að fylgjast með breytingum á þróun leiguverðs þegar breytingar á húsnæðisstuðningi eiga sér stað.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 4. maí 2026, um breytingar á tekju- og eignamörkum í reglum Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning:
Lagt er til að gerðar verði meðfylgjandi breytingar á 3. og 5. gr. reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning, nr. 1094/2016, varðandi tekju- og eignamörk sérstaks húsnæðisstuðnings. Tekjumörk taki breytingum til samræmis við reglugerð um húsnæðisbætur, nr. 1200/2016 eða 17. gr. laga um húsnæðisbætur nr. 75/2016. Eignamörk taki breytingum til samræmis við reglugerð nr. 1342/2020 um ráðstöfun leiguíbúða skv. 37. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 eða 37. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Breytingar taki gildi á sama tíma og breytingar á samsvarandi ákvæðum framangreindra reglugerða taka gildi. Tillagan leiðir ekki til kostnaðarauka.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26040222.
Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.
Bjarki Hermannsson, fjármálasérfræðingur á skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarstjórn staðfestir fjárhagsáætlun hverju sinni en fulltrúar samstarfsflokkanna í velferðarráði telja eðlilegt að festa skýrt verklag í sessi þannig að sérstakur húsnæðisstuðningur fylgi breytingum sem eiga sér stað hjá ríkinu og leiða til hækkunar á húsnæðisstuðningi. Slíkt hefur verið gert í gegnum tíðina og telja fulltrúarnir eðlilegt að leitast við að festa slíkt verklag skýrt í sessi. Á sama tíma er þó mikilvægt að taka fram í þessu samhengi að velferðarráði og borgarstjórn er alltaf heimilt að taka ákvörðun um breytingar á upphæðum sérstaks húsnæðisstuðnings. Málinu er vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. Í upphaflegri framsetningu málsins í velferðarráði tóku samstarfsflokkarnir skýrt fram að þeim þætti mikilvægt að breytingar á tekjumörkum yrðu alltaf tilkynntar í velferðarráði.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru andvígir því að breytingar á fjárhæðum og viðmiðum í velferðarkerfi Reykjavíkurborgar verði gerðar sjálfvirkar, hvort sem um er að ræða grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar eða tekju- og eignamörk sérstaks húsnæðisstuðnings. Slíkar ákvarðanir eiga að vera teknar með skýrum hætti af kjörnum fulltrúum og koma til umræðu í velferðarráði. Borgarfulltrúarnir styðja að málunum hafi verið vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs enda mikilvægt að heildstætt mat fari fram á fjárhagslegum áhrifum og forsendum breytinganna. Með því að færa ákvarðanatöku yfir í sjálfvirkt kerfi er verið að draga úr pólitískri ábyrgð og gagnsæi í málaflokki sem snertir viðkvæma hópa samfélagsins. Mikilvægt er að fjárhæðir og viðmið taki mið af stöðu fjárhags borgarinnar hverju sinni, en ekki eingöngu tæknilegum uppfærslum sem ráðast af ytri viðmiðum. Því á endurskoðun ávallt að fara fram með virku mati og ábyrgri ákvörðun ráðsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Samstarfsflokkanir harma þá dapurlegu pólitík sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins spila út með því að gefa í skyn að umrædd tillaga sem er sjálfvirk hækkun á grunnframfærslu til viðkvæmra hópa gefi það í skyn að skortur sé á pólitískri ábyrgð vegna ógagnsæis. Um er ræða viðkvæman hóp fólks á grunnframfærslu sem fulltrúar samstarfsflokkanna vilja festa í sessi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Að gera útgjöld sjálfvirk óháð aðstæðum er óábyrgt; meta þarf fjárhæðir hverju sinni út frá stöðu borgarinnar og notenda. Ákvarðanir um slíkt eiga að vera teknar af kjörnum fulltrúum að undangenginni umræðu. Ábyrg meðferð almannafjár getur ekki verið „dapurleg pólitík“.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 4. maí 2026, um breytingu á reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð varðandi sjálfkrafa uppfærslu á fjárhæðum í samræmi við verðlagsforsendur fjárhagsáætlunar:
Lagt er til að meðfylgjandi breyting verði gerð á 10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg þar sem kveðið verði á um að velferðarsvið uppfæri 1. janúar ár hvert grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar í samræmi við verðlagsforsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar um vísitölu neysluverðs. Velferðarráð hafi þó áfram umboð til að endurskoða fjárhæðina árlega í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar enda fari sú endurskoðun fram fyrir 1. október undanfarandi árs. Tillagan leiðir ekki til kostnaðarauka.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26040220.
Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.
Bjarki Hermannsson, fjármálasérfræðingur á skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarstjórn staðfestir fjárhagsáætlun hverju sinni en fulltrúar samstarfsflokkanna í velferðarráði telja eðlilegt að festa skýrt verklag í sessi þannig að fjárhagsaðstoð uppfærist að lágmarki ár hvert miðað við verðlagsforsendur fjárhagsáætlunar. Telja fulltrúarnir eðlilegt að leitast við að festa slíkt verklag skýrt í sessi. Á sama tíma er þó mikilvægt að taka fram í þessu samhengi að kjörnum fulltrúum er heimilt að taka ákvörðun um breytingar á upphæðum. Málinu er vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru andvígir því að breytingar á fjárhæðum og viðmiðum í velferðarkerfi Reykjavíkurborgar verði gerðar sjálfvirkar, hvort sem um er að ræða grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar eða tekju- og eignamörk sérstaks húsnæðisstuðnings. Slíkar ákvarðanir eiga að vera teknar með skýrum hætti af kjörnum fulltrúum og koma til umræðu í velferðarráði. Borgarfulltrúarnir styðja að málunum hafi verið vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs enda mikilvægt að heildstætt mat fari fram á fjárhagslegum áhrifum og forsendum breytinganna. Með því að færa ákvarðanatöku yfir í sjálfvirkt kerfi er verið að draga úr pólitískri ábyrgð og gagnsæi í málaflokki sem snertir viðkvæma hópa samfélagsins. Mikilvægt er að fjárhæðir og viðmið taki mið af stöðu fjárhags borgarinnar hverju sinni, en ekki eingöngu tæknilegum uppfærslum sem ráðast af ytri viðmiðum. Því á endurskoðun ávallt að fara fram með virku mati og ábyrgri ákvörðun ráðsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Samstarfsflokkanir harma þá dapurlegu pólitík sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins spila út með því að gefa í skyn að umrædd tillaga sem er sjálfvirk hækkun á grunnframfærslu til viðkvæmra hópa gefi það í skyn að skortur sé á pólitískri ábyrgð vegna ógagnsæis. Um er ræða viðkvæman hóp fólks á grunnframfærslu sem fulltrúar samstarfsflokkanna vilja festa í sessi.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Að gera útgjöld sjálfvirk óháð aðstæðum er óábyrgt; meta þarf fjárhæðir hverju sinni út frá stöðu borgarinnar og notenda. Ákvarðanir um slíkt eiga að vera teknar af kjörnum fulltrúum að undangenginni umræðu. Ábyrg meðferð almannafjár getur ekki verið „dapurleg pólitík“.
Fylgigögn
-
Lagður fram að nýju 2. liður fundargerðar velferðarráðs frá 25. mars 2026, ársuppgjör velferðarsviðs 2025, sem bókað var um í trúnaðarbók velferðarráðs. VEL26030123.
Við afgreiðslu málsins voru eftirfarandi bókanir færðar í trúnaðarbók velferðarráðs:
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands lögðu fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna leggja áherslu á að ríkið hefur skuldbundið sig til að taka við tilteknum þjónustuþáttum en hefur ekki fylgt þeim yfirlýsingum eftir með fullnægjandi fjármögnun. Enn vantar skýra og varanlega fjárhagslega ábyrgð ríkisins gagnvart þeim verkefnum sem um ræðir. Reynsla síðustu missera sýnir að sveitarfélög hafa ítrekað þurft að bregðast við brýnum þörfum barna og ungmenna með fjölþættan vanda án þess að fjárhagslegt jafnvægi sé tryggt. Samkvæmt gögnum velferðarsviðs hefur kostnaður í barnavernd farið verulega fram úr áætlunum, m.a. vegna úrræða fyrir þennan hóp .Það er óásættanlegt að ábyrgð á þessum viðkvæma málaflokki falli að stórum hluta á sveitarfélög án þess að ríkið standi við sínar skuldbindingar. Hér er um að ræða börn í viðkvæmri stöðu þar sem tafir eða óvissa í fjármögnun geta haft alvarlegar afleiðingar. Fulltrúar samstarfsflokkanna kalla því eftir skýrum viðbrögðum ríkisins, raunhæfri fjármögnun og ábyrgri eftirfylgni við þær skuldbindingar sem þegar hafa verið settar fram.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun:
Þótt heildafrávik ársuppgjörs velferðarsviðs líti út fyrir að vera takmörkuð, sýnir uppgjörið engu að síður skýrt að um er að ræða umtalsverð frávik í lykilmálaflokkum velferðar. Rekstur barnaverndar og þjónusta við fatlað fólk fer verulega fram úr fjárheimildum, sem bendir til viðvarandi vanáætlunar fremur en einstakra undantekninga. Á sama tíma er reksturinn háður mikilli yfirvinnu á meðan hátt veikindahlutfall undirstrikar mönnunarvanda og álag í kerfinu. Þótt fjármögnun ríkisins skipti máli breytir það ekki þeirri staðreynd að áætlanagerð og forgangsröðun innan borgarinnar þarf að vera raunhæf og endurspegla betur þann veruleika sem blasir við.
Fulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram svohljóðandi bókun:
Framsókn leggur áherslu á að ríkið komi með markvissum hætti inn í málaflokk barna með fjölþættan vanda, líkt og áform hafa verið uppi um. Vistun barna og ungmenna utan heimilis með fjölþættan vanda nam 3.440 m.kr., sem er 1.784 m.kr. umfram fjárheimildir. Nú eru uppi áhyggjur af því að ríkið sé að skilgreina sig frá málaflokknum með of þröngri skilgreiningu á börnum með fjölþættan vanda, í þeim tilgangi að forðast kostnað. Slík staða er algjörlega óboðleg, bæði fyrir þau börn sem þurfa á þjónustu að halda og fyrir sveitarfélögin. Hagsmunabarátta borgarinnar gagnvart ríkinu þarf að vera mun öflugri af hálfu borgarstjóra, sem er talsmaður borgarinnar gagnvart ríkinu. Brýnt er að greiða úr þessu sem fyrst. Þjónusta við börn á ekki að vera þrætuepli á milli sveitarfélaga og ríkis.
Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju yfirlit yfir innkaup á velferðarsviði yfir 10. m.kr. 2025, sem fært var í trúnaðarbók, sbr. 3. lið fundargerðar velferðarráðs frá 25. mars 2026. VEL26030134.
Fylgigögn
-
Lagður fram að nýju 2. liður fundargerðar velferðarráðs frá 4. mars 2026, tillaga sviðsstjóra um útboð á framleiðslu máltíða, sem bókað var um í trúnaðarbók velferðarráðs. VEL26020039.
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 2. mars 2026, um útboð á framleiðslu máltíða:
Lagt er til að velferðarráð heimili velferðarsviði að hefja útboðsferli á kaupum á um 1000 máltíðum, þ.e. um 400 skömmtum af hraðkældum pökkuðum mat til heimsendingar og um 600 heitum máltíðum á dag til íbúa í þjónustuíbúðum og gesta félagsmiðstöðva velferðarsviðs á meðan á endurbótum á framleiðslueldhúsi á Vitatorgi stendur. Gert er ráð fyrir samningi við þriðja aðila í 22 mánuði. Áætlað er að heildarkostnaður samnings verði um 1.485 m.kr. Þar af eru 742 m.kr. ekki innan fjárheimilda. Sú upphæð dreifist með þeim hætti innan samningstímans að 338 m.kr. eru vegna 10 mánaða á árinu 2026, 335 m.kr. vegna ársins 2027 og 67 m.kr. vegna fyrstu tveggja mánaða ársins 2028.
Jafnframt er lagt til að fyrri samþykkt velferðarráðs um heimild til að ganga til samninga við Krydd og Kavíar, til 24 mánaða, frá 10. febrúar 2026 verði afturkölluð.
Tillagan var samþykkt og vísað til borgarráðs.
Við afgreiðslu málsins lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar og Pírata fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkar velferðarráðs leggja áherslu á að áður en ákvörðun var tekin um gerð samnings um framleiðslu máltíða hafi verið leitað allra raunhæfra lausna til að tryggja áframhaldandi matarþjónustu innan ramma starfseminnar. Í kjölfar lokunar á framleiðslueldhúsi á Vitatorgi og með hliðsjón af kröfum um matvælaöryggi fyrir viðkvæma hópa liggur nú fyrir að ekki verður hjá því komist að gera tímabundinn samning um framleiðslu máltíða á meðan á framkvæmdum stendur. Samstarfsflokkarnir telja nauðsynlegt að tryggja örugga, samfellda og faglega matarþjónustu fyrir íbúa þjónustuíbúða og gesti félagsmiðstöðva, og að brugðist sé hratt við þeirri stöðu sem upp er komin. Gerð samningsins er því nauðsynleg til að tryggja velferð og öryggi þeirra sem borða mat frá borginni á meðan unnið er að framkvæmdum vegna flutnings framleiðslueldhússins innan Vitatorgs. Ljóst er að kostnaður rúmast ekki innan ramma velferðarsviðs og því verður unnið að því að leita leiða til að fjármagna aukinn kostnað þannig að unnt sé að bjóða áfram upp á máltíðaþjónustu.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 4. maí 2026, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um fjárhagsleg áhrif breytinga á fyrirkomulagi uppbyggingar hjúkrunarheimila, sbr. 5. lið fundargerðar velferðarráðs frá 18. júní 2025. VEL25060079.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á úttekt á þjónustu í neyðarskýlum velferðarsviðs. VEL26040225.
Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir, verkefnastjóri í teymi árangurs- og gæðamats, og Heiðrún Una Unnsteinsdóttir, teymisstjóri árangurs- og gæðamats, taka sæti á fundinum undir þessum lið. Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
-
Fram fer kynning á niðurstöðum frumkvæðisathugana á íbúðakjörnum og herbergjasambýlum fyrir fatlað fólk 2024-2026. VEL26040226.
Valgerður Kristín Eiríksdóttir, verkefnastjóri gæða og rannsókna í teymi árangurs- og gæðamats, Linda Dögg Hólm, verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks, Heiðrún Una Unnsteinsdóttir, teymisstjóri teymis árangurs og gæðamats, og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu málefna fatlaðs fólks, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lagt fram erindisbréf starfshóps um innra eftirlit á velferðarsviði, dags. 29. apríl 2026. VEL26040212.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað, dags. 4. maí 2026, um stöðu úttektar á vistun barna utan heimilis í umsjá Barnaverndar Reykjavíkur. VEL26030078.
- Kl. 15:00 víkur Þorvaldur Daníelsson af fundinum og aftengist fjarfundabúnaði.
- Kl. 15:03 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.Fylgigögn
-
Lagt fram að nýju minnisblað, dags. 13. apríl 2026, um forgangsröðun tillagna stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna. Einnig lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. desember 2025, þar sem tillögum stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna nr. 1.3A, 1.5B, 1.6A, 1.6, 2.2 og 3 er vísað til velferðarráðs til frekari meðferðar, ásamt bréfi skóla- og frístundasviðs, dags. 19. janúar 2026, þar sem tillögu nr. 1.3D er vísað til meðferðar velferðarráðs. Jafnframt lögð fram skýrsla stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna, dags. 17. nóvember 2025. MSS25020124.
Tillögur 1.3D, 1.6A, 1.6B, 2.2 og 3 eru samþykktar.
Tillögum 1.3A, 1.5B og 2.5 er vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2027.Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Velferðaráð samþykkir að vísa tillögunum þremur, 1.3A, 2.5, 1.5B, sem fjármagn er ekki til fyrir í vinnu fjárhagsáætlunargerðar og þær verði unnar samhliða niðurstöðu og þróun Púlsins, verkefnis sem er nýkomið í framkvæmd, samstarfsverkefni sveitarfélaganna til að sporna við ofbeldishegðun barna og ungmenna.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins um skimun fyrir áföllum og tengslaröskunum meðal barna og ungmenna í grunnskólum Reykjavíkur:
Lagt er til að kanna möguleikann á skimun fyrir áföllum og tengslaröskunum meðal barna og ungmenna í grunnskólum Reykjavíkur í samstarfi við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Betri borg fyrir börn. Óskað er eftir að unnin verði sviðsmyndagreining á hugsanlegu umfangi þjónustunnar, fjöldi barna eftir aldri, þjónustuþörf og meðferð sé metinn og kannað hvort til sé vinnu- eða verklag sem fagfólk bæði grunnskóla, heilsugæslu og geðheilbrigðis geti horft til eða hvort þarf að finna nýjar aðferðir. VEL26050004.
Vísað til umsagnar velferðarsviðs.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga skóla- og frístundaráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að koma betur til móts við hagsmuni barna foreldra sem fá fjárhagsaðstoð, sbr. 11. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 5. maí 2025, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 4. maí 2026. Einnig lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 1. september 2025. SFS25050015.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:
Velferðarráð samþykkir að fela velferðarsviði að meta hvernig hægt sé að koma betur til móts við börn foreldra sem fá fjárhagsaðstoð. Metinn verði áætlaður kostnaður við að hækka fjárhagsaðstoð almennt eða að hækka fjárhagsaðstoð foreldra sérstaklega. Þá verði einnig skoðað hvernig megi koma til móts við kostnað vegna íþrótta- og frístundaþátttöku í samvinnu við önnur svið borgarinnar og leitast við að kanna fjölda foreldra sem eru í mjög viðkvæmri stöðu líkt og með langveik börn og hvernig sé hægt að styðja þau betur. Velferðarsvið leggi síðan útfærslu fyrir velferðarráð.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um skólaakstur barna í Kvennaathvarfi, sbr. 10. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 27. nóvember 2025, ásamt umsögn skóla- og frístundasviðs, dags. 27. apríl 2026, og umsögn velferðarsviðs, dags. 4. maí 2026. Einnig lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu, dags. 9. mars 2026. MSS25110132.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:
Velferðarráð felur velferðarsviði að finna leiðir til að tryggja megi skólaakstur barna frá Kvennaathvarfi þannig að slíkt taki gildi sem fyrst.
Samþykkt.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Tillöguflytjenda er þakkað fyrir þessa mikilvæga tillögu, mikilvægt er að önnur sveitarfélög komi einnig að skólaakstri sé slíkt ekki tryggt nú þegar.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn fangar því að skoða eigi málið, en harmar það að málið hafi verið í kerfinu síðan í nóvember án þess að ákvörðun hafi verið tekin um skólaakstur barna sem dvelja í Kvennaathvarfinu. Það er brýnt að klára málið fyrir næsta skólavetur. Framsókn hefði viljað samþykkja það strax í dag í stað þess að þvæla máli sem samstaða er um áfram í kerfinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um þrepaskipt úrræði fyrir einstaklinga með alvarlegan geð- og fíknivanda, sbr. 14. lið fundargerðar velferðarráðs frá 17. september 2025, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 4. maí 2026. VEL25090075.
Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Ísland og Flokks fólksins gegn atkvæði fulltrúa Framsóknarflokksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn harmar það að velferðarráð hafi ekki verið til í að skoða hvort hægt sé að koma á fót þrepaskiptu búsetuúrræði fyrir fólk með alvarlegan geð- og fíknivanda. Tillagan fól í sér að velferðarsviði væri falið að skoða hvernig slíkt úrræði gæti verið og hvernig það myndi best gagnast þjónustuhópnum. Þessi ákvörðun er skrítin pólitísk skilaboð um að vilja ekki einu sinni skoða hvort það sé hægt að koma upp slíku búsetuúrræði.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:
Fulltrúar samstarfsflokkanna hafna fullyrðingum Framsóknar og benda á að fengin var umsögn um málið.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga fulltrúa ÖBÍ í mannréttindaráði um hækkun á útlögðum kostnaði starfsfólks í stoðþjónustu, sbr. 2. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 26. febrúar 2026, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 4. maí 2026. Einnig lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu, dags. 27. febrúar 2026. MSS26020088.
Samþykkt.Fylgigögn
-
Lagðar fram leiðréttar verklagsreglur um tillögur og fyrirspurnir í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar dags. 30. apríl 2026. MSS23090170.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.
-
Lagt fram svar skóla- og frístundasviðs, dags. 16. apríl 2026, við fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um fjarvistir barna í grunnskólum Reykjavíkurborgar, sbr. 18. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. febrúar 2026. VEL26020029.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúinn þakkar fyrir svarið. Það er þó ekki sundurliðað eins og óskað var eftir niður á skólastig. Það er mikið áhyggjuefni að hátt í 10% barna sé með yfir 40 fjarvistarstig.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 4. maí 2026, við fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um fjölda íbúða til útleigu hjá Félagsbústöðum, sbr. 9. lið fundargerðar velferðarráðs frá 21. janúar 2026. VEL26010107.
Fylgigögn
-
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Framsókn leggur til að velferðarráð samþykki eftirfarandi ályktun: Velferðarráð skorar á barna- og menntamálaráðuneytið að styðja við Foreldrahús og tryggja starfsemi þess stöðugan og fyrirsjáanlegan rekstrargrundvöll. Foreldrahús hefur um árabil veitt mikilvæga ráðgjöf, fræðslu og stuðning til foreldra og barna, sem standa frammi fyrir vímuefnavanda. Starfsemi Foreldrahúss er mikilvæg þjónusta við börn og fjölskyldur þeirra og því er mikilvægt að stjórnvöld viðurkenni þetta hlutverk og tryggi að úrræðið geti áfram sinnt verkefnum sínum. Þjónusta Foreldrahúss dregur jafnframt úr kostnaði samfélagsins til lengri tíma litið. VEL26050032.
Frestað.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn er algjörlega á móti því að málinu sé frestað. Nú hefur Foreldrahús lokað vegna þess að ekki fæst fjármagn frá ríkinu. Það liggur því á að samþykkja áskorun til ráðuneytisins. Velferðarráð hefur styrkt Foreldrahús og við skuldum börnum og fjölskyldum í Reykjavík það að standa með þeim svo þau geti áfram notið þjónustu Foreldrahúss.
Fulltrúi Pírata leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Pírata í velferðarráði telur afar mikilvægt að styðja Foreldrahús og tekur undir og styður tillögu Framsóknar sem lögð var fram á fundi ráðsins fyrr í dag.
Fundi slitið kl. 17:08
Sanna Magdalena Mörtudottir Helga Þórðardóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Sara Björg Sigurðardóttir Magnús Davíð Norðdahl
Friðjón R. Friðjónsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 06.05.2026 - Prentvæn útgáfa