Velferðarráð - Fundur nr. 531

Velferðarráð - Fundur nr. 531

Velferðarráð

Ár 2026, miðvikudagur 15. apríl var haldinn 531. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Sara Björg Sigurðardóttir og Þorvaldur Daníelsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 13. apríl 2026, um tímabundna fjölgun rýma á Droplaugarstöðum:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki að heimila tímabundna tvísetningu í hjúkrunarrýmum á Droplaugarstöðum þar sem aðstæður leyfa, í þeim tilgangi að fjölga biðrýmum og bregðast við auknu álagi á Landspítala. Gert er ráð fyrir að með þessu megi fjölga rýmum um allt að þrjú til sex, með fyrirvara um mönnun og aðstæður á hverri einingu. Um svokölluð biðrými væri að ræða. Heimildin gildi í allt að sex mánuði, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um þrjá mánuði í senn, að mati stjórnenda Droplaugarstaða. Tillagan felur ekki í sér auka kostnað fyrir velferðarsvið.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26040034.
    Samþykkt.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkir tillögu sviðsstjóra velferðarsviðs um að heimila tímabundna tvísetningu í hjúkrunarrýmum á Droplaugarstöðum þar sem aðstæður leyfa, í þeim tilgangi að bregðast við miklu álagi á Landspítala og styðja við samfellu í þjónustu. Ráðið leggur áherslu á að um sé að ræða tímabundna neyðarráðstöfun, sem sett er fram að beiðni heilbrigðisráðuneytisins og miðar að því að mæta sérstaklega þungri stöðu í bráðaþjónustu og felur ekki í sér auka kostnað fyrir velferðasvið. Gert er ráð fyrir að hægt verði að fjölga biðrýmum um allt að þrjú til sex rými, með fyrirvara um mönnun og aðstæður á hverri einingu. Fulltrúarnir árétta að almennt sé miðað við einbýli á hjúkrunarheimilum, enda styður slíkt fyrirkomulag við lífsgæði, reisn og velferð íbúa. Sú heimild sem hér um ræðir gildir því í allt að sex mánuði, með möguleika á framlengingu allt að tvisvar sinnum um þrjá mánuði í senn. Ráðið telur mikilvægt að Reykjavíkurborg sýni í þessu samhengi samábyrgð með heilbrigðiskerfinu í heild, þegar tímabundnar og afmarkaðar aðgerðir geta létt á álagi í bráðaþjónustu, að því gefnu að öryggi, mönnun og viðeigandi aðstæður fyrir íbúa og starfsfólk séu ávallt tryggð.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar taka undir að við þær aðstæður sem uppi eru í heilbrigðiskerfinu geti verið nauðsynlegt að grípa til tímabundinna ráðstafana til að bregðast við álagi á Landspítala. Mikilvægt er þó að slíkar ákvarðanir séu teknar í góðu samkomulagi við skjólstæðinga Droplaugarstaða. Jafnframt leggja fulltrúarnir ríka áherslu á að um sé að ræða skýrt afmarkaða neyðarráðstöfun. Þótt heimildin geti varað í allt að 12 mánuði er mikilvægt að hún verði ekki framlengd umfram það, enda ber stjórnvöldum, bæði ríki og Reykjavíkurborg, að nýta þann tíma til að finna varanlega lausn á þeim vanda sem uppi er. Tryggja þarf að heimild til tvísetningar verði felld niður um leið og aðstæður leyfa, enda er einbýli grundvallarforsenda fyrir lífsgæði, reisn og velferð íbúa hjúkrunarheimila. Slíkar aðgerðir mega ekki verða varanleg lausn á kerfisvanda í heilbrigðiskerfinu.
     

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 15. apríl 2026, þar sem tilkynnt er að samþykkt hafi verið á fundi borgarstjórnar 14. apríl 2026, að Helga Þórðardóttir taki sæti sem aðalfulltrúi í velferðarráði í stað Guðnýjar Maju Riba. MSS22060049.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins um að Helga Þórðardóttir verði varaformaður velferðarráðs. VEL26040090.
    Samþykkt.

  4. Lagðar fram verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum, dags. 27. mars 2026, ásamt bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. apríl 2026. MSS23090170.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram minnisblað, dags. 13. apríl 2026, um stöðu tillagna að betri nýtingu á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar. MSS25040003.
    Vísað til borgarráðs.

    Halla Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu fjármála og reksturs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka undir mikilvægi þess að leita leiða til betri nýtingar fjármuna og auka skilvirkni í rekstri velferðarþjónustu. Ljóst er að tækifæri eru til staðar, meðal annars í samrekstri úrræða og endurskoðun verkferla, sem geta skilað raunverulegum sparnaði og bættri nýtingu mannafla. Jafnframt vekur athygli að stór hluti tillagnanna er enn á undirbúningsstigi og væri til bóta að þær hefðu skýrari tímalínu, markmið og mælanlegan árangur. Mikilvægt er að hraða vinnunni og tryggja að ákvarðanir um hagræðingu byggi á heildstæðri sýn, en dragist ekki áfram. Þá er brýnt að tryggja að hagræðingaraðgerðir komi ekki niður á gæðum þjónustu við viðkvæma hópa og að tekið sé á þeim kerfislæga vanda að Reykjavíkurborg beri kostnað umfram það sem eðlilegt er, sérstaklega í rekstri hjúkrunarþjónustu.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að verklagsreglum um tillögur og fyrirspurnir í ráðum og nefndum sé fylgt, sbr. 10. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. mars 2026. VEL26030015.
    Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um skólaakstur barna í Kvennaathvarfinu, sem vísað var til meðferðar velferðarráðs, sbr. 6. lið fundargerðar mannréttindaráðs frá 5. mars 2026. Einnig lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu, dags. 9. mars 2026. MSS25110132.
    Vísað til umsagnar velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram minnisblað, dags. 13. apríl 2026, um stöðu mála varðandi börn með fjölþættan vanda. VEL26040025.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðgjafarþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samstarfsflokkarnir þakka fyrir minnisblaðið um stöðu samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 og stöðu samningsgerðar milli Reykjavíkurborgar og Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) um þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir á árinu 2026. Ráðið tekur undir að grundvallarforsendur samkomulagsins hafi verið uppfylltar vegna ársins 2025 þar sem ríkið hefur efnt skuldbindingar sínar vegna ársins 2025 með fjárhagslegri ábyrgð á þjónustu og búsetu barna með fjölþættar stuðningsþarfir utan heimilis. Fulltrúarnir vilja benda á að samningurinn tekur eingöngu til þeirra barna sem hafa verið metin af sérfræðiteymi BOFS í þörf fyrir búsetu utan heimilis og uppfylla skilgreiningu um fjölþættar stuðningsþarfir en ekki annarra barna og hætta er á að börn falli milli kerfa. Fulltrúarnir benda á að samningsvinna og útfærsla greiðsluáætlana er ekki lokið, m.a. hvað varðar greiðsluáætlanir, SIS-númer og lokasamninga vegna þeirra barna sem þegar hafa verið samþykkt inn í þjónustu sérfræðingateymis. Þá liggur fyrir að engin heimild er fyrir umsýslukostnaði, hlutavistun og skaðleysisákvæði til Reykjavíkurborgar, auk þess er ekki gert ráð greiðslum fyrir barnaverndarúrræði fyrir 18–20 ára ungmenni. Fulltrúarnir telja brýnt að ljúka samningsferlinu án tafar, þannig að Reykjavíkurborg fái fullar greiðslur fyrir þau börn sem eru í þjónustu á árinu 2026 og að skilgreining verði ekki þrengd milli ára.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn þakkar fyrir minnisblað um stöðu samkomulags ríkis og sveitarfélaga og stöðu samningsgerðar milli Reykjavíkurborgar og Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) um þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Framsókn bendir á að samningurinn tekur eingöngu til þeirra barna sem hafa verið metin af sérfræðiteymi BOFS í þörf fyrir búsetu utan heimilis og uppfylla skilgreiningu um fjölþættar stuðningsþarfir, en ekki annarra barna sem falla undir sérfræðiteymið en eru á biðlista, með þeim afleiðingum að þau börn og ungmenni falla milli kerfa. Samningsvinna og útfærsla greiðsluáætlana er ekki lokið, m.a. hvað varðar greiðsluáætlanir, SIS-númer og lokasamninga vegna þeirra barna sem þegar hafa verið samþykkt inn í þjónustu sérfræðingateymis. Þá liggur fyrir að engin heimild er fyrir því að greiða umsýslukostnað til Reykjavíkurborgar fyrir barnaverndarúrræði fyrir 18–20 ára. Framsókn telur brýnt að ljúka samningsferlinu án tafar, þannig að Reykjavíkurborg fái fullar greiðslur fyrir þau börn sem eru í þjónustu á árinu 2026 og að skilgreiningin verði ekki þrengd á milli ára. Það stenst enga skoðun að undir fimm börn í Reykjavík uppfylli skilyrðin. Þetta setur alla áætlanagerð og barnaverndarþjónustu Reykjavíkurborgar í uppnám. Framsókn óskar eftir því að velferðarráð fái fund með ráðherra vegna málsins.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram minnisblað, dags. 13. apríl 2026, um ábata og kostnað af innleiðingu Solihull aðferðarinnar í starfi með börnum. VEL26040029.

    -    Kl. 14:34 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum og Þorvaldur Daníelsson víkur af fundinum.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Velferðarsviði er falið að kanna hvort innleiða megi Solihull aðferðina í starfi með börnum á smærri starfsstöðum eða teymum borgarinnar. Velferðarsviði verði falið að kanna og leggja stöðumat fyrir velferðarráð.

    Samþykkt.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðgjafarþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar samstarfsflokkanna telja að Solihull aðferðin falli vel að markmiðum snemmtækrar íhlutunar, forvarna og betri gæða í þjónustu við börn og felur velferðarsviði að vinna áfram að næstu skrefum að því gefnu að teknar verði ákvarðanir um innleiðingu. Aðferðin hefur verulegan faglegan og þjónustulegan ávinning fyrir börn, foreldra, fagfólk og þjónustukerfið í heild en bæði reynsla og rannsóknir, bæði innanlands og erlendis, sýna bætt tengsl foreldra og barna, minni hegðunarvanda, aukna starfsánægju fagfólks og samræmdari vinnubrögð, án þess að aðferðin krefjist aukins þjónustutíma. Þá er kostnaður við innleiðingu talinn hóflegur miðað við ávinning, auk þess sem mögulegt er að nýta fræðslu- og starfsmenntunarsjóði til að standa undir grunnþjálfun.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram að nýju trúnaðarmerkt tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um breytingar á fyrirkomulagi búsetuúrræðis, sbr. 6. lið fundargerða velferðarráðs frá 21. janúar 2026, ásamt trúnaðarmerktri umsögn velferðarsviðs, dags. 23. mars 2026. VEL26010104.

    Velferðarráð leggur fram breytingartillögu sem færð er í trúnaðarbók.
    Breytingartillagan er samþykkt.
    Tillagan er samþykkt svo breytt.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðgjafarþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  11. Lagt fram minnisblað, dags. 13. apríl 2026, um forgangsröðun tillagna stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna. Einnig lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 18. desember 2025, þar sem tillögum stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna nr. 1.3A, 1.5B, 1.6A, 1.6, 2.2 og 3 er vísað til velferðarráðs til frekari meðferðar, ásamt bréfi skóla- og frístundasviðs, dags. 19. janúar 2026, þar sem tillögu nr. 1.3D er vísað til meðferðar velferðarráðs. Jafnframt lögð fram skýrsla stýrihóps um forvarnir og aðgerðir gegn ofbeldi barna og ungmenna, dags. 17. nóvember 2025. MSS25020124.
    Frestað.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðgjafarþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

  12. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um að staða fólks á fjárhagsaðstoð verði könnuð, sbr. 10. lið fundargerðar velferðarráðs frá 5. nóvember 2025, ásamt umsögn velferðarsviðs, dags. 13. apríl 2026. VEL25110013.
    Samþykkt.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðgjafarþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð telur mikilvægt að staða fólks á fjárhagsaðstoð verði könnuð. Lagt er til að það upplegg sem lagt er til í umsögn velferðarsviðs verði viðhaft.   

    Fylgigögn

  13. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aðra staðsetningu fyrir vinnu og virkniúrræði sem flytja á í Skeifuna, sbr. 9. lið fundargerðar velferðarráðs frá 19. nóvember 2025. VEL25110062.
    Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Fylgigögn

  14. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um styrkveitingu til Matthildarsamtakanna, sbr. 10. lið fundargerðar velferðarráðs frá 17. desember 2025. VEL25120043.
    Felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Matthildarsamtökin vinna mikilvægt starf, því miður er ekki fjárhagslegt svigrúm til að styðja við samtökin á þessu stigi.

    Fylgigögn

  15. Lögð fram tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um frístundastyrk fyrir 67 ára og eldri í Reykjavíkurborg, sem vísað var til meðferðar velferðarráðs sbr. 4. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 17. mars 2026. Einnig lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 19. mars 2026. MSS26030061.

    -    Kl. 16:20 víkur Friðjón R. Friðjónsson af fundinum.

    Vísað til stýrihóps um aldursvæna borg með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Fylgigögn

  16. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.

  17. Lagt er til að Helga Þórðardóttir taki sæti sem aðalfulltrúi í áfrýjunarnefnd velferðarráðs í stað Guðnýjar Maju Riba. VEL22060021.
    Samþykkt.

    -    Kl. 16:47 víkur Helga Þórðardóttir af fundinum.
    -    Kl. 16:59 víkur Magnús Davíð Norðdahl af fundinum.
    -    Kl. 17:00 víkur Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir af fundinum.

Fundi slitið kl. 17:07

Sanna Magdalena Mörtudottir Sara Björg Sigurðardóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 15.04.2026 - Prentvæn útgáfa