Velferðarráð - Fundur nr. 529

Velferðarráð

Ár 2026, miðvikudagur 18. mars var haldinn 529. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Magnús Davíð Norðdahl, Sara Björg Sigurðardóttir og Þorvaldur Daníelsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer heimsókn í Kaffistofu Samhjálpar í Hátúni 2. VEL26030110.

    Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13:40 tekur Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sæti á fundinum. 

  2. Fram fer kynning á verkferlum og eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála með fósturforeldrum og einkareknum úrræðum sem vista börn. VEL26030063.

    Íris Dögg Lárusdóttir og Helga Jóna Sveinsdóttir, úr teymi barnaverndarþjónustu GEV, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13:58 víkur Friðjón R. Friðjónsson af fundinum og Þorkell Sigurlaugsson tekur sæti á fundinum.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar samstarfsflokka í velferðarráði þakka fyrir kynningu á verkferlum og eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) með fósturforeldrum og einkareknum úrræðum sem vista börn. Mikilvægt er að úttekt á fyrirkomulagi innra eftirlits hjá sveitarfélögunum sé í gangi og sé öflugt. Þá er brýnt að veita sveitarfélögum aðhald og stuðning með lögbundu eftirliti með fósturforeldrum, að eftirlit sé fullnægjandi ekki síst í ljósi upplýsinga um að innra eftirliti með fósturforeldrum hafi verið ábótavant. Barnavernd sveitarfélaga á alltaf að tilkynna til stofnunarinnar þegar tímabil fósturs verður styttra en til stóð, í tilviki fósturrofs eða riftunar á samningi um fóstur. Ráðuneytið þarf að bæta lagaumhverfi í málaflokknum og forgangsraða meira fjármagni til að tryggja miðlæga gagnasöfnun þvert á landið í gegnum samræmda málaskrá m.t.t. eðli kvartana, atvikvikaskráningar, og fjölda leyfissviptinga rekstraraðila sem upp koma þvert á sveitarfélög. Umhugsunarvert er að sami rekstarleyfishafi geti verið með þrjú mismunandi vistunarleyfi á sama tíma sem getur leitt til þess að of mörg börn séu á heimili á hverjum tíma. Börn sem eru vistuð utan heimilis, eru einn viðkvæmasti hópur samfélagsins og sveitarfélögum og ríki ber að tryggja að aðbúnaður, aðstæður og öryggi þeirra sé eins og best verður á kosið á hverjum tíma.
     

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga velferðarráðs um óháða úttekt til að efla eftirlit með vistun barna utan heimilis:

    Velferðarráð samþykkir að fela óháðum aðila að framkvæma úttekt á vistun barna utan heimilis í umsjá Barnaverndar Reykjavíkur. Við vinnuna skal úttektaraðili eiga samtal við hagaðila svo sem Barnavernd Reykjavíkur, Barna- og fjölskyldustofu, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og Félag fósturforeldra. Úttektin skal fela í sér tillögur að úrbótum á eftirliti, regluverki, vinnu- og verklagi og umgjörð þjónustunnar. Markmið úttektarinnar er að leita allra leiða til að tryggja öryggi og velferð barna sem eru vistuð utan heimilis, byggja upp traust á viðkvæmri þjónustu við börn í Reykjavík og styrkja faglegan stuðning við starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur. Jafnframt er sama aðila falið að framkvæma viðhorfskönnun meðal skjólstæðinga Barnaverndar Reykjavíkur um upplifun þeirra af vistun og þjónustu. Niðurstöður úttektarinnar skulu lagaðar fyrir velferðarráð fyrir lok apríl 2026.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26030078.
    Samþykkt.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn fagnar því að velferðarráð hafi loks náð saman um sameiginlega tillögu. Brýnt er að leita allra leiða til að tryggja öryggi og velferð barna sem eru vistuð utan heimilis.

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á niðurstöðum þjónustukannana meðal notenda í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, Grettistaki, Atvinnu- og virknimiðlun, IPS og TINNU árið 2025. VEL26030085.

    Heiðrún Una Unnsteinsdóttir, teymisstjóri árangurs- og gæðamats, Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu ráðgjafar, Elín Oddný Sigurðardóttir, deildarstjóri í Virknihúsi, Halldóra Gyða Matthíasd. Proppé, framkvæmdastjóri Keðjunnar, og Inga María Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri í Keðjunni, taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

  5. Fram fer kynning á aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna innleiðingar stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík 2026-2030. Einnig lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 16. mars 2026, um samþykkt aðgerðaáætlunar velferðarsviðs vegna innleiðingar stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík:

    Lagt er til að samþykkt verði aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna innleiðingar stefnu um fjölmenningarborgina Reykjavík 2026-2030. Settar eru fram aðgerðir sem unnið verður eftir til að ná fram þeim markmiðum sem skilgreind eru fyrir velferðarsvið í stefnunni. Ekki er gert ráð fyrir að tillagan feli í sér aukakostnað fyrir velferðarsvið.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS25110035.
    Samþykkt.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu ráðgjafar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Stefna Reykjavíkurborgar um fjölmenningarborgina 2026-2030 felur í sér metnaðarfull markmið um inngildingu. Í meðfylgjandi aðgerðaáætlun eru settar fram þær aðgerðir og áherslur sem velferðarsvið hyggst vinna eftir til að ná fram ofangreindum markmiðum. Aðgerðaáætlunin er einnig í takt við velferðarstefnu Reykvíkurborgar. Í stefnunni eru skilgreind markmið sem aðgerðaáætlun velferðarsviðs skal miðast við og fjalla um að ná fram að fjölga starfsfólki með fjölbreyttan menningar-og tungumálabakgrunn til að styðja við framlínuþjónustu, og efla samstarf við foreldra barna af erlendum uppruna með fjölþættan vanda eða félagslegar áskoranir. Einnig á að  auka virkni og samfélagslega þátttöku eldri borgara af erlendum uppruna. Að lokum að huga sérstaklega að ungmennum á aldrinum 16  - 18 ára með fjölbreyttan menningar-og tungumálabakgrunn. Að þeim standi til boða menntun, virkni og annars konar valdefling sem styrkir þau bæði í nútíð og til framtíðar.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 16. mars 2026, um verkefnaáætlun með velferðarstefnu 2026-2030, ásamt fylgiskjali:

    Lagt er til að samþykkt verði meðfylgjandi verkefnaáætlun, 2026-2030, með velferðarstefnu Reykjavíkurborgar. Á grundvelli verkefnaáætlunarinnar verða unnar kostnaðarmetnar aðgerðaáætlanir til eins árs í senn. Gert er ráð fyrir að kostnaður rúmist innan fjárheimilda velferðarsviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL22090177.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um húsnæði fyrir Kaffistofu Samhjálpar, sbr. 2. lið fundargerðar velferðarráðs frá 10. febrúar 2026. VEL26020052.
    Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður tillöguna enda lagði Framsókn fram sambærilega tillögu 5. febrúar síðastliðinn sem meirihlutinn frestaði. Þar lagði Framsókn til að Reykjavíkurborg hefji samtal við Samhjálp um staðsetningu Kaffistofu Samhjálpar sem miði að því að aðstoða Samhjálp við að finna annað húsnæði fyrir kaffistofuna á hentugri stað. Jafnframt er lagt til að borgin skoði sérstaklega eignasafn sitt og meti hvaða fasteignir í eigu borgarinnar geti hentað undir starfsemina, auk þess að eiga samtal við ríkið um mögulegar eignir í borgarlandinu sem nýta mætti í sama tilgangi. Mikilvægt er að niðurstaða um staðsetningu kaffistofunnar verði unnin í samráði við Samhjálp, íbúa og borgaryfirvöld með það að leiðarljósi að tryggja áfram þá mikilvægu þjónustu sem Samhjálp veitir. Jafnframt lagði Framsókn til að umsókn Samhjálpar um styrk frá Reykjavíkurborg verði lögð fram á næsta fundi borgarráðs. Ekki hefur meirihlutinn ekki orðið við því, þrátt fyrir að meira en mánuður sé liðinn síðan tillagan var lögð fram í borgarráði.
     

    Fylgigögn

  8. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kostnaðarmat á líklegum áhrifum setningar laga nr. 80/2025 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á útgjöld Reykjavíkurborgar til málaflokks fatlaðs fólks, sbr. 11. lið fundargerðar velferðarráðs frá 14. janúar 2026. VEL26010074.
    Vísað frá með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Viðreisnar gegn atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður að ráðist sé í frekari greiningu á kostnaðaráhrifum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Mikilvægt er að þjónusta hópinn vel í samræmi við löggjöfina. Góð kostnaðargreining er mikilvægur liður í því að geta áætlað rétt fjármagn í málaflokkinn og átt samtal við ríkið um fjármögnun málaflokksins. 

    Fylgigögn

  9. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. mars 2026, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um afdrif tillögu um að styrkumsókn Memmm Play um opinn leikskóla verði sett á dagskrá velferðarráðs, sbr. 15. lið fundargerðar velferðarráðs frá 15. maí 2025. VEL25050054.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Óeðlilegur seinagangur hefur einkennt málið. Beiðni um að umsókn Memmm Play um opinn leikskóla yrði tekin á dagskrá var lögð fram 30. apríl 2025, en hún var ekki tekin fyrir fyrr en í lok janúar 2026. Í millitíðinni voru lagðar fram tvær fyrirspurnir um stöðu málsins, sem er svarað í mars 2026. Það er óásættanlegt og andlýðræðislegt að kjörnir fulltrúar þurfi að bíða í níu mánuði eftir afgreiðslu máls. Vegna þess að málið kom svo seint fram var ekki hægt að gera ráð fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar eða leggja til breytingar á fjárúthlutun til að tryggja áframhaldandi rekstur opna leikskólans. Afleiðingin er sú að styrkurinn hefur minnkað og starfsemin í Bólstaðarhlíð þarf að leggjast af. Opni leikskólinn gegnir mikilvægu hlutverki fyrir barnafjölskyldur. Þar geta foreldrar komið með börn sín gjaldfrjálst og fjölskyldur tekið þátt í faglegu starfi. Borgin ætti að styðja við og efla þessa mikilvægu starfsemi frekar en að draga úr henni. Núverandi forgangsröðun fjármuna, þar sem selalaug, kynningarfundir borgarstjóra og ,,löber” á yfirborði Naustarinnar eru sett ofar grunnþjónustu við barnafjölskyldur, er meirihlutanum til skammar.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Umsókn um styrkveitingu fyrir Memmm Play var  í vinnslu styrkjahóps velferðarráðs. Niðurstaðan varð sú að samþykkt var að styrkja Memmm Play um 10 milljónir í þrjú ár samtals 30 milljónir yfir tímabilið.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. mars 2026, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um ástæður þess að tillaga um að styrkumsókn Memmm Play verði tekin á dagskrá velferðarráðs hafi ekki verið tekin fyrir, sbr. 18. lið fundargerðar velferðarráðs frá 3. september 2025. VEL25090015.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Óeðlilegur seinagangur hefur einkennt málið. Beiðni um að umsókn Memmm Play um opinn leikskóla yrði tekin á dagskrá var lögð fram 30. apríl 2025, en hún var ekki tekin fyrir fyrr en í lok janúar 2026. Í millitíðinni voru lagðar fram tvær fyrirspurnir um stöðu málsins, sem er svarað í mars 2026. Það er óásættanlegt og andlýðræðislegt að kjörnir fulltrúar þurfi að bíða í níu mánuði eftir afgreiðslu máls. Vegna þess að málið kom svo seint fram var ekki hægt að gera ráð fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar eða leggja til breytingar á fjárúthlutun til að tryggja áframhaldandi rekstur opna leikskólans. Afleiðingin er sú að styrkurinn hefur minnkað og starfsemin í Bólstaðarhlíð þarf að leggjast af. Opni leikskólinn gegnir mikilvægu hlutverki fyrir barnafjölskyldur. Þar geta foreldrar komið með börn sín gjaldfrjálst og fjölskyldur tekið þátt í faglegu starfi. Borgin ætti að styðja við og efla þessa mikilvægu starfsemi frekar en að draga úr henni. Núverandi forgangsröðun fjármuna, þar sem selalaug, kynningarfundir borgarstjóra og ,,löber” á yfirborði Naustarinnar eru sett ofar grunnþjónustu við barnafjölskyldur, er meirihlutanum til skammar.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Umsókn um styrkveitingu fyrir Memmm Play var  í vinnslu styrkjahóps velferðarráðs. Niðurstaðan varð sú að samþykkt var að styrkja Memmm 
    Play um 10 milljónir í þrjú ár samtals 30 milljónir yfir tímabilið.
     

    Fylgigögn

  11. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. mars 2026, við fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um fjölda þeirra sem fengu úthlutað íbúð frá Félagsbústöðum 2021-2025 og riftun leigusamninga á sama tímabili, sbr. 8. lið fundargerðar velferðarráðs frá 21. janúar 2026. VEL26010106.

    Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þakkað er fyrir svarið. Mikilvægt er að velferðarráð sé upplýst um stöðu úthlutana og rifturnar eða uppsagna á leigu af hálfu Reykjavíkurborgar.

    Fylgigögn

  12. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.

  13. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. mars 2026, þar sem lýst er kjöri fulltrúa í velferðarráð á fundi borgarstjórnar 17. mars 2026, og tilkynnt er að Sanna Magdalena Mörtudóttir hafi veri kosin formaður velferðarráðs. MSS22060049.

    Fylgigögn

  14. Samþykkt að taka á dagskrá með afbrigðum tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands um að Guðný Maja Riba verði varaformaður velferðarráðs. VEL26030117.
    Samþykkt.

Fundi slitið kl. 16:18

Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba

Þorkell Sigurlaugsson Magnús Davíð Norðdahl

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Þorvaldur Daníelsson

Sara Björg Sigurðardóttir