Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 4. mars var haldinn 528. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Guðný Maja Riba, Alexandra Briem, Kjartan Magnússon, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Sara Björg Sigurðardóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Bára Sigurjónsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um að styrkumsókn Memmm Play verði tekin á dagskrá velferðarráðs, sbr. 12. lið fundargerðar velferðarráðs frá 30. apríl 2025. VEL25050003.
Vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar og Pírata gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn gagnrýnir harðlega niðurskurð á styrkveitingum til opna leikskólans Memmm Play, sem sinnir afar mikilvægu starfi fyrir foreldra og ung börn í hverfum borgarinnar. Memmm Play heldur úti gjaldfrjálsu, framsæknu og faglegu starfi í samfélagshúsum borgarinnar. Í gegnum opna leikskólann fá börn sem ekki eru komin í leikskóla tækifæri til að kynnast öðrum börnum og taka þátt í faglegu starfi undir leiðsögn umsjónarmanna Memmm Play. Jafnframt hefur í kringum starfið myndast öflugt tengslanet foreldra í hverfum borgarinnar sem eflir félagsauð og stuðning á milli fjölskyldna. Slíkt foreldrasamstarf gegnir lykilhlutverki í forvarnarstarfi til framtíðar og dregur úr félagslegri einangrun sem getur myndast í fæðingarorlofi. Viðvera opna leikskólans í samfélagshúsum borgarinnar hefur einnig haft jákvæð áhrif á samfélagshús borgarinnar, aukið vitneskju um þau og kynslóðablöndun í þeim. Aðsóknin í opna leikskólann er mikil og umsjónarfólk hefur verið tilbúið til að auka opnunartímann til að mæta eftirspurn. Meirihlutinn virðist þó ekki vilja bregðast við þeirri þörf og leggur til að styrkur borgarinnar til starfsins verði lækkaður. Þannig sker vinstri meirihlutinn niður í velferðarmálum. Styrkurinn er sambærilegur við Hafnarfjörð, þrátt fyrir að íbúar borgarinnar séu um fimmfalt fleiri.
Fylgigögn
-
Lögð fram trúnaðarmerkt tillaga sviðsstjóra, dags. 2. mars 2026, um útboð á framleiðslu máltíða. VEL26020039.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu öldrunamála, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram bókun sem færð er í trúnaðarbók.
-
Tillaga sviðsstjóra um rekstur íbúðakjarna að Stefnisvogi. VEL26020122.
Frestað. -
Fram fer kynning á starfi áfrýjunarnefndar velferðarráðs 2025. VEL26010134.
Fanney Magnadóttir, lögfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs, og Sigrún Skaftadóttir, deildarstjóri virkni og ráðgjafar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á drögum að aðgerðaáætlun með velferðarstefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030. VEL26020059.
Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi hjá Strategíu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkar velferðarráðs þakka fyrir kynningu á aðgerðaáætlun velferðarstefnu 2026–2030 og þeirri markvissu vinnu sem lögð hefur verið í samráð og undirbúning. Skýrar áherslur, mælanleg markmið og 90 daga verkáætlun er jákvætt skref í átt að auknu gagnsæi og árangursríkri innleiðingu. Sérstaklega er mikilvægt að áherslur á einstaklingsmiðaða þjónustu, snemmtæka íhlutun, forvarnir og heildstæða nálgun endurspegli raunverulegar þarfir íbúa. Þá eru áherslur á samráð við notendur og hagaðila, auk gagnadrifinnar ákvarðanatöku og stafrænnar þróunar, lykilatriði til að tryggja fagmennsku og framsýni í þjónustunni. Fulltrúar leggja áherslu á að við innleiðingu verði tryggt að verkefni séu raunhæf, vel forgangsraðað og þau studd með nægum mannafla og fjármagni. Árangur áætlunarinnar mun ráðast af skýrri eftirfylgni, reglulegu mati og vilja til að bregðast við þegar þörf krefur.
-
Lögð fram árleg samantektarskýrsla vegna TINNU 2025. VEL26020123.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkar velferðarráðs þakka fyrir ítarlega og gagnlega ársskýrslu TINNU fyrir árið 2025. Ljóst er að úrræðið gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja einstæða foreldra og börn þeirra í viðkvæmri stöðu og að skapa raunveruleg tækifæri til betra lífs. Fjöldi þátttakenda, fjölbreytt virkni og náið samstarf við fjölmarga aðila sýnir hversu heildstæð og einstaklingsmiðuð þjónustan er. Sérstaklega vekja jákvæðar niðurstöður þjónustukönnunar athygli, þar sem yfirgnæfandi meirihluti þátttakenda lýsir trausti og ánægju með stuðninginn. Þá sýna afdrif útskrifaðra þátttakenda hvort sem er í nám, vinnu eða aðra endurhæfingu að TINNA skilar raunverulegum árangri. Fulltrúarnir leggja áherslu á mikilvægi þess að tryggja áframhaldandi stöðugleika og þróun úrræðisins, enda er ljóst að þörfin er til staðar og áhrifin jákvæð bæði fyrir foreldra og börn þeirra.
Fylgigögn
-
Tillaga Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands um úttekt á fyrirkomulagi eftirlits með fósturforeldrum sem starfa fyrir Barnavernd Reykjavíkur. VEL26020096.
Frestað. -
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um aðgerðir til að auka eftirlit með vistun barna utan heimilis. VEL26020098.
Frestað. -
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags.12. febrúar 2026, þar sem tilkynnt er um samþykkt borgarráðs á tillögu borgarstjóra um hækkun á tekju- og eignamörkum sérstaks húsnæðisstuðnings. Einnig lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 12. febrúar 2026, þar sem tilkynnt er um samþykkt borgarráðs á tillögu borgarstjóra um breytingar á tekju- og eignamörkum vegna félagslegs leiguhúsnæðis. VEL26020057.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Velferðarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að velferðarráð fylgi 3. gr. verklagsreglna um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og setji tillögurnar sem fulltrúar minnihlutans leggja fram í velferðarráði á dagskrá funda ráðsins innan 30 daga. Engin tillaga frá velferðarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokks hefur verið sett á dagskrá ráðsins innan 30 daga tímafrestsins og sem stendur eru útistandandi tillögur orðnar margra mánaða gamlar. Velferðarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins biðla til formanns ráðsins og fulltrúa samstarfsflokkanna að sjá sóma sinn í að fylgja eigin verklagsreglum. VEL26030015.
Frestað. -
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Velferðarráð samþykkir að fjölga valkostum í matarþjónustu borgarinnar. Lagt er til að velferðarsviði verði falið að útfæra tillögu sem miðar að því að borgin bjóði upp á fjölbreyttari matseðil og aukið val um mat, bæði hvað varðar heimsendan mat og hádegismat í félagsmiðstöðvum borgarinnar.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26030032.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Á fundi velferðarráðs 10. febrúar sl. fluttu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins tillögu vegna húsnæðis kaffistofu Samhjálpar. Afgreiðslu tillögunnar var frestað að ósk fulltrúa meirihlutans. Í 8. grein samþykktar fyrir velferðarráð Reykjavíkurborgar kemur skýrt fram að sé tillögu um mál frestað, skuli hún tekin fyrir á næsta fundi ráðsins. Þrátt fyrir þetta skýra ákvæði og ítrekun af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, hefur umrædd tillaga ekki enn verið tekin fyrir í ráðinu þrátt fyrir að tveir fundir hafi verið haldnir frá framlagningu hennar, þ.e. 18. febrúar og 4. mars. Um leið og gerð er alvarleg athugasemd við þessi vinnubrögð, er óskað eftir því að farið verði eftir samþykktum ráðsins í þessu efni sem öðrum og tillagan tekin til afgreiðslu sem fyrst. Tekið skal fram að formanni ráðsins er ekki heimilt að tefja mál og fresta tillögum eftir eigin geðþótta heldur á hann, öðrum fremur, að gæta þess að farið sé eftir gildandi samþykktum við stjórn ráðsins.
Spurt er hverju þetta sætir? VEL26030033.
Fundi slitið kl. 15:10
Guðný Maja Riba Alexandra Briem
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sara Björg Sigurðardóttir
Magnea Gná Jóhannsdóttir Kjartan Magnússon
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 04.03.2026 - Prentvæn útgáfa