Velferðarráð
Ár 2026, miðvikudagur 18. febrúar var haldinn 527. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Sandra Hlíf Ocares, Sara Björg Sigurðardóttir og Þorvaldur Daníelsson. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Bára Sigurjónsdóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á stöðu aðgerða hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, og Barna og- og fjölskyldustofu, varðandi börn með fjölþættan vanda. VEL26010153.
- Kl. 13:03 tekur Magnús Davíð Norðdahl sæti á fundinum með rafrænum hætti.
- Kl. 13:37 tekur Magnús Davíð Norðdahl sæti á fundinum.Þór Hauksson Reykdal, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu, Ásrún Eva Harðardóttir, lögfræðingur í fósturteymi Barna- og fjölskyldustofu, Ásdís Sigurjónsdóttir, sérfræðingur á farsældarsviði hjá Barna- og fjölskyldustofu, Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, Arna Kristjánsdóttir, deildarstjóri fósturteymis hjá Barnavernd Reykjavíkur og Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokka í velferðarráði þakka fyrir kynningu á ábyrgðar- og fjármögnunarfyrirkomulagi vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Mikilvægt er að það sé skýr verkaskipting og markviss uppbygging sérhæfðrar þjónustu á landsvísu. Fulltrúarnir leggja þó áherslu á að skilgreiningar og framkvæmd samninga þurfi að tryggja að ekkert barn falli á milli kerfa á meðan uppbygging nýrra úrræða stendur yfir. Sérstaklega er mikilvægt að endurmat og flokkun á stöðu barna valdi ekki töfum á þjónustu eða óvissu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Samstarfsflokkarnir leggja ríka áherslu á að hagsmunir barnsins og samfella í þjónustu verði ávallt leiðarljós í framkvæmd, og að sveitarfélög fái skýra upplýsingagjöf um eftirfylgni með fyrirkomulaginu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir góða kynningu. Enn og aftur koma glærukynningar frá ríkinu sem ber ábyrgð á úrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda en engin úrræði eru komin á legg því miður. Pólitískan kjark hefur vantað í þennan málaflokk um árabil og kemur það fram í því úrræðaleysi sem blasir við, því miður. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar haldi áfram aðhaldi og þrýstingi á ríkið að standa við sína lagaskyldu gagnvart börnum í viðkvæmri stöðu.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Framsóknar þakkar fulltrúum BOFS ágæta kynningu. Það er hins vegar merkilegt að fjármagn skuli ekki ætla að fylgja til málaflokksins þrátt fyrir að í mars 2025 hafi verið gefið loforð þar um. Það er augljóst að útfærsla úthlutunar fjármuna er ekki tilbúin frá hendi mennta- og barnamálaráðuneytis. Fulltrúi Framsóknar hvetur ráðuneytið til þess að ganga í það mál, því þörfin fyrir fjármagn í málaflokkinn er knýjandi hjá sveitarfélögum.
-
Fram fer kynning á starfi félags fósturforeldra. VEL26020073.
Guðlaugur Kristmundsson, formaður félags fósturforeldra, Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Arna Kristjánsdóttir, deildarstjóri fósturteymis hjá Barnavernd Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 14:29 víkur Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir af fundinum.
- Kl. 14:30 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum. -
Fram fer kynning á drögum að stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fatlaðs fólks 2026-2036. VEL25090041.
Vísað í samráðsferli.Lára Sigríður Baldursdóttir, deildarstjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks, Arne Friðrik Karlsson, verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks, Katrín Harpa Ásgeirsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu málefna fatlaðs fólks, og Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar, taka sæti á fundinum undir þessum lið. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á eftirliti Barnaverndar Reykjavíkur með fósturforeldrum. VEL26020065.
Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Arna Kristjánsdóttir, deildarstjóri fósturteymis Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokka velferðarráðs þakka fyrir kynningu á vistunum utan heimilis á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Í ljósi umfangs málaflokksins þar sem 276 börn eru í vistun á vegum þjónustunnar er ljóst að ábyrgð barnaverndar á eftirfylgni og eftirliti er bæði viðamikil og afar þýðingarmikil. Samkvæmt barnaverndarlögum ber barnaverndarþjónustu að fylgjast með aðbúnaði og líðan barna og tryggja að ráðstöfun nái tilgangi sínum Fulltrúarnir leggja ríka áherslu á að eftirlit sé ekki einungis formlegt heldur virkt, reglubundið og gagnsætt. Þegar börn eru vistuð utan heimilis eru þau í sérstakri viðkvæmri stöðu og því verður að tryggja að samskipti við börn séu raunveruleg, heimsóknir reglubundnar og viðbrögð skýr ef ábendingar eða frávik koma upp. Jafnframt telja fulltrúarnir mikilvægt að verklag og upplýsingaflæði um eftirlit sé skýrt gagnvart öllum sem eiga í hlut, þannig að hægt sé að meta hvort lagaákvæðum og gæðakröfum sé fylgt í framkvæmd. Traust til barnaverndar byggir á fagmennsku, skýrum verkferlum og virkri eftirfylgni.
Magnús Davíð Norðdahl, fulltrúi Pírata, leggur fram svohljóðandi bókun:Fulltrúinn þakkar fyrir kynningu á fyrirkomulagi eftirlits með fósturforeldrum en lýsir yfir miklum áhyggjum af því hvort eftirlitið sé í raun fullnægjandi. Í annarri kynningu hjá velferðarráði fyrr í dag kom fram að eftirliti með fósturforeldrum væri ábótavant og í vissum tilvikum væri lágmarkseftirliti ekki sinnt. Fulltrúinn tekur þessar upplýsingar mjög alvarlega og lýsir yfir miklum áhyggjum af því að brotalamir séu í eftirliti með fósturforeldrum. Upplýsingar sem þessar kalla á tafarlaus viðbrögð enda eru börn í vistun einn af viðkvæmari hópum samfélagsins. Meirihluti velferðarráðs hyggst af þessum sökum samþykkja að setja af stað sérstaka úttekt á fyrirkomulagi eftirlits með fósturforeldrum sem starfa fyrir Barnavernd Reykjavíkur. Úttektin verður framkvæmd af óháðum aðila og er nauðsynlegt fyrsta skref í að bæta öryggi og aðbúnað fósturbarna. Í kynningunni kom einnig fram að Barnavernd Reykjavíkur sinni sjálf eftirliti með fósturforeldrum sem ráðnir eru til starfa. Fulltrúinn telur ótækt að sá sem veitir þjónustu skuli sjálfur sinna eftirliti og telur brýnt að Reykjavíkurborg hefji samtal við löggjafann til þess að gera megi breytingar á lögum hvað þetta varðar. Sama á við um miðlæga skráningu upplýsinga og hvernig þeim er miðlað á milli sveitarfélaga og þeirra stofnana sem koma að barnaverndarmálum.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 16. febrúar 2026, um rekstur neyðarheimilis Barnaverndar Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að fjármagni verði veitt til Barnaverndar Reykjavíkur svo hægt verði að semja við fjölskyldu um rekstur neyðarheimilis þar sem börn geta dvalið í neyðartilvikum á meðan að fundin er lausn á málum þeirra. Vistun barna á neyðarheimilinu yrði bráðavistun á grundvelli 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Neyðarheimilið þarf að geta tekið við allt að fjórum börnum í bráðavistun og er áætlaður hámarkskostnaður 42.532.560 á ári. Kostnaðurinn rúmast ekki innan fjárheimilda velferðarsviðs.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26010155.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Arna Kristjánsdóttir, deildarstjóri fósturteymis Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúarnir samþykkja tillögu um rekstur neyðarheimilis Barnaverndar Reykjavíkur en ítreka mikilvægi þess að eftirliti með heimilinu verði sinnt í samræmi við reglur þar um, m.a. með reglulegum heimsóknum án fyrirvara. Fulltrúarnir óska eftir að fá upplýsingar um hvernig gengið hefur með þetta nýja úrræði, m.a. með hliðsjón af eftirliti, að liðnum tveimur mánuðum frá því að úrræðið tekur til starfa og aftur eftir sex mánuði.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 16. febrúar 2026, um aukningu stöðugilda hjá Barnavernd Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að fjárheimild verði aukin frá og með 1. mars 2026 til að styrkja starfsemi Barnaverndar Reykjavíkur um þrjú stöðugildi. Er þar um að ræða þrjú stöðugildi ráðgjafa, eitt í könnunar og meðferðarteymi eldri barna, eitt í könnunar- og meðferðarteymi erlendra barna og eitt í fósturteymi. Áætlaður kostnaður er 51 m.kr., sem rúmast ekki innan fjárheimilda velferðarsviðs.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26010154.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, og Arna Kristjánsdóttir, deildarstjóri fósturteymis Barnaverndar Reykjavíkur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður tillöguna heilshugar. Mikilvægt er að tryggja fjármagn til barnaverndar í þeim fjárhagsáætlunum sem gerðar eru. Barnaverndin er ein af mikilvægustu einingunum innan borgarinnar sem styður við börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu. Líkt og sést í minnisblaðinu þá hefur álag á starfsmenn aukist vegna fjölgunar tilkynninga og vaxandi málaþunga og er raunar ítrekað langt umfram æskileg viðmið samkvæmt mælingum á álagi og málafjölda í málavoginni. Einnig verður að horfa til þess að íbúum í Reykjavík hefur fjölgað síðustu fimm ár og er því mikilvægt að samþykkja aukningu á stöðugildum þannig að aukið álag og fjölgun tilkynninga bitni ekki á fagmennsku og þjónustu sem börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu eiga rétt á.
Fulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn styður fjölgun stöðugilda í Barnavernd Reykjavíkur. Barnavernd þjónustar viðkvæmasta hóp okkar samfélags og má aldrei vera undirmönnuð. Það er þó gerð athugasemd við það að stöðugildin hafi ekki verið aukin í síðustu fjárhagsáætlun sem gerð var í desember. Sérstaklega í ljósi þess að erindi Barnaverndar um þörf á fjölgun stöðugilda barst í nóvember. Það hefði farið betur á því að tryggja fjármagnið í fjárhagsáætlun þessa árs. Fjölgun barna í Reykjavík og aukinn þungi mála kallar á fjölgun stöðugilda í barnavernd.
Fylgigögn
-
Kynning á drögum að aðgerðaáætlun velferðarstefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030. VEL26020059.
Frestað. -
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 16. febrúar 2026, um samþykkt samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að samþykkt verði drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna, auk draga að verklagsreglum teymisins og stýrihóps þess. Reykjavíkurborg annast hýsingu bráða- og viðbragðsteymisins og starfsmannahald vegna þess. Samningurinn gildir frá undirritunardegi til ársloka 2027. Áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar vegna verkefnisins rúmast innan fjárheimilda velferðarsviðs.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26020064.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Andrea Marel Þorsteinsdóttir, teymisstjóri bráða- og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna, og Guðrún Halla Jónsdóttir, forvarnafulltrúi Reykjavíkurborgar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar fagna því að Púlsinn sé að taka til starfa. Staða ofbeldismála á meðal barna og ungmenna hefur verið viðsjárverð og mikilvægt er að yfirvöld stígi inn í með afgerandi hætti. Framsókn hvetur til þess að sáttamiðlun verði notuð þar sem því verður við komið til þess að ná fram góðum málalyktum. Skoða þarf sérstaklega hvort ástæða sé til þess að endurvekja verkefnið Hringinn í því samhengi.
Fylgigögn
- Tillaga um samþykkt samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi
- Bréf framkvæmdastjóra SSH, dags. 4. febrúar 2026
- Drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
- Drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps
- Samstarfsyfirlýsing vegna þátttöku BOFS og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
- Styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar
- Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. febrúar 2026, við fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um vistun barna í Bakkakoti á Suðurlandi, sbr. 17. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. febrúar 2026. VEL26020030.
Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar samstarfsflokka í velferðarráði eru miður sín yfir því ofbeldi sem börn þurftu að sæta sem vistuð voru í Bakkakoti af hálfu Barnaverndar Reykjavíkur undir lok síðustu aldar og í byrjun þessarar. Binda fulltrúarnir miklar vonir við þá úttekt sem ríkisstjórn Íslands hefur boðað að ráðist verði í. Fulltrúarnir munu leggja sitt af mörkum á næstu misserum til þess að bæta öryggi og aðbúnað fósturbarna, m.a. með sérstakri úttekt á því hvernig eftirliti er háttað af hálfu Barnaverndar Reykjavíkur gagnvart fósturforeldrum í dag en um er að ræða mikilvægt fyrsta skref.
Fulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar þakka Barnavernd fyrir skjót og góð svör varðandi vistun barna í Bakkakoti. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að fulltrúar í velferðarráði fái slík gögn svo fljótt sem auðið er. Fulltrúar Framsóknar óska jafnframt eftir því að álitsgerð lögfræðinga Barnaverndar Reykjavíkur um það hvernig eftirliti var háttað verði lögð fram sem allra fyrst.
Fylgigögn
-
Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 16. febrúar 2026, við fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins um eftirlit með fósturforeldrum og öðrum úrræðum sem vista börn, sbr. 16. lið fundargerðar velferðarráðs frá 4. febrúar 2026. VEL26020028.
Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lögð fram drög að umsögn velferðarráðs, dags. 16. febrúar 2026, um skýrslu nefndar um heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins (upptökuheimili barna) 1974-1979. MSS26010078.
Samþykkt.Fylgigögn
-
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um að styrkumsókn Memmm Play verði tekin á dagskrá velferðarráðs, VEL25050003.
Frestað. -
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi tillögu:
Velferðarráð leggur til að sviðsstjóri velferðarsviðs kalli til óháðan aðila til að framkvæma úttekt á fyrirkomulagi eftirlits með fósturforeldrum sem starfa fyrir Barnavernd Reykjavíkur. Framkvæmd úttektar skal flýtt eins og kostur er og skal lokið eigi síðar en 31. mars næstkomandi. Þá skal sama aðila einnig falið að gera viðhorfskönnun meðal skjólstæðinga Barnaverndar Reykjavíkur. Viðhorfskönnun skal lokið eigi síðar en 30. apríl næstkomandi. Sviðsstjóri skal viðhafa náið samráð við velferðarráð um nánari afmörkun og útfærslu og eins hvaða aðili er valinn til starfsins.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26020096.
Frestað.Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að velferðarsviði verði falið að skoða hvernig bæta megi eftirlit og auka gagnsæi með vistun barna utan heimilis og gera drög að verklagi við eftirlit með vistun barna. Jafnframt er lagt til að skoðað verði sérstaklega hvernig auka megi stuðning við starfsfólk Barnaverndar Reykjavíkur til að bæta faglega þjónustu í þessum efnum. Tillögur þess efnis skal leggja fram í síðasta lagi á fundi velferðarráðs 25. mars n.k. Í þeirri vinnu verði haft samráð við Félag fósturforeldra, Barnavernd Reykjavíkur, Barna- og fjölskyldustofu og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Sérstaklega verði skoðað hvort ástæða sé til þess að ráða inn óháðan aðila sem sinnir eftirliti á vettvangi. Í dag sinnir Barnavernd Reykjavíkur sjálf eftirliti með fósturforeldrum sem eru með börn frá Barnavernd Reykjavíkur í sinni vistun í samræmi við barnaverndarlög. Það fyrirkomulag sem sett er fram í lögunum endurspeglar ekki góða stjórnsýsluhætti og er ekki í anda farsældarlaganna, þ.e að sá sem veitir þjónustu skuli sjálfur sinna eftirliti. Velferðarsviði er því falið að hefja samtal við löggjafann um breytingar á lögum hvað þetta varðar og einnig falið að útbúa áskorun til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála þess efnis að stofnunin sinni gæða- og eftirlitshlutverki sínu og haldi betur utan um málaskrá vegna fósturforeldra, bæði hvað varðar veitingu leyfa og sviptingu leyfa, en listi yfir þá aðila sem fengið hafa fósturleyfi frá stofnuninni er ekki aðgengilegur Barnavernd Reykjavíkur. Þá er lagt til að innleiðing á nýju málaskrárkerfi hjá Barnavernd Reykjavíkur verði sett í forgang. Markmiðið með þessari tillögu er að leita allra leiða til að tryggja öryggi og velferð barna sem eru vistuð utan heimilis. VEL26020098.
Frestað.Fylgigögn
-
Kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL26010020.
Frestað.- Kl. 18:44 víkur Sandra Hlíf Ocares af fundinum.
Fundi slitið kl. 19:03
Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba
Sara Björg Sigurðardóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir
Þorvaldur Daníelsson Magnús Davíð Norðdahl
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 18.02.2026 - Prentvæn útgáfa