Velferðarráð
Ár 2026, þriðjudagur 10. febrúar var haldinn 526. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 8:31 í fjarfundakerfinu Webex. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Kjartan Magnússon, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Sara Björg Sigurðardóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Inga Borg, Rannveig Einarsdóttir, Þórhildur Guðrún Egilsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra um samning um framleiðslu máltíða:
Lagt er til að velferðarráð heimili velferðarsviði að ganga til samninga við fyrirtækið Krydd og kavíar ehf. um kaup á um 1000 máltíðum á dag þ.e. um 400 skömmtum af hraðkældum pökkuðum mat til heimsendingar og um 600 heitum máltíðum til íbúa í þjónustuíbúðum og fyrir gesti félagsmiðstöðva velferðarsviðs.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26020039.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkar velferðarráðs leggja áherslu á að áður en ákvörðun var tekin um gerð samnings um framleiðslu máltíða hafi verið leitað allra raunhæfra lausna til að tryggja áframhaldandi matarþjónustu innan ramma starfseminnar. Í kjölfar lokunar á framleiðslueldhúsi á Vitatorgi og með hliðsjón af kröfum um matvælaöryggi fyrir viðkvæma hópa liggur nú fyrir að ekki verður hjá því komist að gera tímabundinn samning um framleiðslu máltíða á meðan á framkvæmdum stendur. Samstarfsflokkarnir telja nauðsynlegt að tryggja örugga, samfellda og faglega matarþjónustu fyrir íbúa þjónustuíbúða og gesti félagsmiðstöðva, og að brugðist sé hratt við þeirri stöðu sem upp er komin. Gerð samningsins er því nauðsynleg til að tryggja velferð og öryggi þeirra sem borða mat frá borginni á meðan unnið er að framkvæmdum vegna flutnings framleiðslueldhússins innan Vitatorgs. Í samningnum er um að ræða tveggja rétta máltíðir, kjöt eða fiskur sem aðalréttur og grænmetisréttur sem aðalréttur. Annars vegar er maturinn hraðkældur og pakkaður til heimsendingar og hins vegar afhentur heitur, fyrir íbúa þjónustuíbúða og gesti félagsmiðstöðva.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að Reykjavíkurborg leiti leiða til að finna kaffistofu Samhjálpar húsnæði við hæfi á heppilegum stað í borginni. Þegar slíkt húsnæði finnst verði jafnframt gerður samningur um að borgin styðji fjárhagslega við rekstur kaffistofunnar.
Greinargerð fylgir tillögunni. VEL26020052.
Frestað.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 9:01
Sanna Magdalena Mörtudottir Magnús Davíð Norðdahl
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sara Björg Sigurðardóttir
Kjartan Magnússon Guðný Maja Riba
Magnea Gná Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs 10.02.2026 - Prentvæn útgáfa