Velferðarráð - Fundur nr. 504

Velferðarráð

Ár 2025, miðvikudagur 7. maí var haldinn 504. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 12:01 í Stekk, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Helgi Áss Grétarsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og Sara Björg Sigurðardóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL25030023.

    -    Kl. 12:06 tekur Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir sæti á fundinum.

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 5. maí 2025, um endurnýjun þjónustusamnings við Stígamót, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að velferðarráð samþykki meðfylgjandi drög að þjónustusamningi Reykjavíkurborgar við Stígamót til loka árs 2027. Kostnaður við samninginn, sem er 12,7 m.kr. á ári á samningstímanum, rúmast innan fjárheimilda velferðarsviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. VEL25030059.
    Samþykkt.
    Vísað til borgarráðs.

    Edda Ólafsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs, og Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu ráðgjafar, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Til fjölda ára hefur Reykjavíkurborg gert samning við Stígamót um veitingu þjónustu í formi ráðgjafar til þolenda, fræðslu til starfsfólks og samráð um málaflokkinn. Velferðarráð telur slíka þjónustu og úrræði nauðsynlegt til stuðnings fólki sem leita sér aðstoðar vegna kynbundins ofbeldis. Markmið samningsins er m.a. áframhald stuðnings við þolendur kynferðisofbeldis, að tryggja nútímalega, virka fræðslu um málaflokkinn með notendur og forsendur þeirra til hliðsjónar. Samningurinn stuðlar að því að Reykjavíkurborg vinni bæði gegn kynferðisofbeldi og eftir þeirri hugmyndafræði að kynferðisofbeldi verði ekki liðið.

     

    Fylgigögn

  3. Fram fer kynning á aðgerðaáætlun með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. VEL25050005.

    Sigþrúður Erla Arnardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu ráðgjafar, og Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

  4. Lagt fram minnisblað, dags. 5. maí 2025, um samstarf Virknihúss og Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar. VEL25050006.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Velferðarsviði er falið að meta hvaða breytingar þurfi að gera á reglum um fjárhagsaðstoð til að mæta hópnum sem hér er fjallað um og kostnaðarmeta einnig áhrifin af slíkri breytingu, þannig að ekki komi til skerðingar á upphæð fjárhagsaðstoðar.

    Samþykkt.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Lagt er til að ráðgjafar verði upplýstir um Menntunarsjóðinn og upplýsingum komið áleiðis til ráðgjafa þegar opið er fyrir umsóknir í sjóðinn. Einnig er lagt til að fulltrúar Virknihúss taki saman upplýsingar um sjóðinn sem birtar verði á upplýsingabrunni velferðarsviðs, ráðgjöfum til upplýsingar.

    Samþykkt.

    Elín Oddný Sigurðardóttir, teymisstjóri Virknihúss velferðarsviðs, og Anna Elísa Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Virknihúsi, taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á undirbúningi aðgerðaáætlunar velferðarstefnu 2026-2030. VEL25050007.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúarnir þakka kynningu á undirbúningi nýrrar aðgerðaáætlunar velferðarstefnu 2026-2030. Fulltrúarnir telja áætlun undirbúningsvinnunnar vera raunsæja og afurðir þessarar vinnu eru verðmætar fyrir borgina og hlökkum við til velferðarstefnudagsins 28. maí nk. í Hörpu.

  6. Lagður fram að nýju 5. liður fundargerðar velferðarráðs frá 9. apríl 2025, kynning á ársuppgjöri velferðarsviðs 2024 sem fært var í trúnaðarbók velferðarráðs. VEL25030025.

    Fylgigögn

  7. Að loknum hefðbundnum velferðarráðsfundi fara velferðarráðsfulltrúar á málþing ÖBÍ um húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks sem er mikilvægt málefni á verksviði velferðarráðs.

Fundi slitið kl. 14:44

Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba

Helgi Áss Grétarsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

Sara Björg Sigurðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs frá 7. maí 2025