Velferðarráð
Ár 2025, miðvikudagur 30. apríl var haldinn 503. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:00 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Guðný Maja Riba, Helgi Áss Grétarsson, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Sara Björg Sigurðardóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Dís Sigurgeirsdóttir og Randver Kári Randversson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL25030023.
-
Fram fer kynning á starfsemi Memmm Play. VEL25040034.
Kristín Stefánsdóttir og Helga Hreiðarsdóttir, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir kynninguna á Memmm Play opna leikskólanum, sem býður foreldrum/forsjáraðilum og ungum börnum þeirra fjölskylduvæna aðstöðu til þess að leika og hitta aðrar fjölskyldur. Þar er einnig hægt að sækja fræðslu um málefni uppeldis og barna. Velkomið er að mæta hvenær sem er á opnunartíma og geta foreldrar átt gæðastundir með börnum sínum í fallegu umhverfi en tækifæri er fyrir börn að hitta jafnaldra sína og efla bæði félags-, tengsla- og málþroska. Mikilvægt er að sjá að fjórðungur barna með annan menningar- og tungumálabakgrunn en íslenskan mæti í Memmm Play, en samkvæmt OECD skýrslu um innflytjendur á Íslandi, eru börn þess hóps ólíklegri en innfædd börn til að sækja leikskóla. Opni leikskólinn Memmm Play er rekinn í samstarfi við Reykjavíkurborg og er gjaldfrjáls fyrir alla sem hann sækja. Reykjavíkurborg hefur styrkt starfsemi Memmm Play þar sem þriggja ára samstarfssamningur var gerður árið 2023 um fjárhagslegan stuðning. Opni leikskólinn er starfræktur á bókasafninu Gerðubergi og samfélagshúsunum að Aflagranda og Bólstaðarhlíð en ánægjulegt er að sjá nýtingu almenningsrýma með þessum hætti.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins styðja að Reykjavíkurborg leiti leiða til að eiga aukið samstarf við Memmm Play. Memmm Play hefur unnið frábærlega faglegt starf sem kemur foreldrum og börnum vel. Í því starfi sameinast gott foreldrasamstarf og samstarfsvettvangur í hverfum þar sem fólk getur kynnst og styrkt böndin. Memmm Play starfa að sænskri fyrirmynd sem hefur reynst vel bæði hérlendis og erlendis. Memmm Play hefur lýst áhuga á að auka þjónustu í hverfum borgarinnar.
-
Fram fer kynning á starfsemi Samhjálpar. VEL25040035.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir kynninguna frá Samhjálp almannaheillafélagi sem er rekið án hagnaðarsjónarmiða. Mikilvægt starf er unnið á vegum Samhjálpar til þess að veita skjólstæðingum stuðning á erfiðum tímum og sér Samhjálp m.a. um rekstur kaffistofunnar.
-
Fram fer kynning á starfsemi Ylju neyslurýmis. VEL25040037.
Sigríður Ella Jónsdóttir, teymisstjóri skaðaminnkunar og félagslegra verkefna hjá Rauða krossinum á Íslandi, og Helga Margrét Gísladóttir, hjúkrunarfræðingur, taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Velferðarráð þakkar fyrir kynningu Ylju á þeirri mikilvægu þjónustu sem neyslurýmið veitir sem og þeirri þekkingu, forsendum og kenningum sem grundvöllur verkefnisins byggir á. Um er að ræða lágþröskulda heilbrigðisþjónustu byggða á skaðaminnkandi hugsun veitta af fagfólki sem veitir samhliða stuðning, fræðslu og samtal við viðkvæma hópa sem sækja Ylju.
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra, dags. 28. apríl 2025, um samþykkt samkomulags við Sjúkratryggingar Íslands um framlengingu samnings um fjármögnun á rekstri neyslurýmis og samnings við Rauða krossinn á höfuðborgarsvæðinu um rekstur neyslurýmis, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að velferðarráð samþykki annars vegar samkomulag um framlengingu samnings milli Sjúkratrygginga Íslands og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar vegna fjármögnunar á rekstri neyslurýmis vegna skaðaminnkandi þjónustu og hins vegar samning á milli velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu um rekstur neyslurýmis.
Sjúkratryggingar Íslands munu fjármagna rekstur neyslurýmis í eitt ár til 30. apríl 2026 með 57,2 m.kr. Reykjavíkurborg ber engan kostnað vegna samnings við Rauða krossinn um rekstur neyslurýmis, þar sem Sjúkratryggingar Íslands leggja fé til rekstrarins.Greinargerð fylgir tillögunni. VEL25030048.
- Magnea Gná Jóhannsdóttir víkur af fundinum meðan á afgreiðslu málsins stendur.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Mikilvægt er að mæta fólki þar sem það er statt og hefur velferðarsvið Reykjavíkurborgar gert samninga við Sjúkratryggingar Íslands, um fjármögnun á rekstri neyslurýmis vegna skaðaminnkandi þjónustu fyrir jaðarsetta einstaklinga sem nota reglubundið vímuefni í æð sem og önnur ávanabindandi lyf. Hér er verið að samþykkja að framlengja samning milli Sjúkratrygginga Íslands og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar vegna fjármögnunar á rekstri neyslurýmis vegna skaðaminnkandi þjónustu og hins vegar samning á milli velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu um rekstur neyslurýmis. Reykjavíkurborg ber engan kostnað vegna samnings við Rauða krossinn um rekstur neyslurýmis, þar sem Sjúkratryggingar Íslands leggja fé til rekstrarins. Skaðaminnkandi nálgun er mennsk leið til að mæta einstaklingum og nærsamfélaginu í heild.
Fylgigögn
-
Tillaga sviðsstjóra um endurnýjun þjónustusamnings við Stígamót. VEL25030059.
Frestað.Edda Ólafsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
-
Lagt fram minnisblað, dags. 28. apríl 2025, um áhrif áforma um styttingu atvinnuleysisbótaréttar á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. VEL25040033.
Agnes Sif Andrésdóttir, fjármálastjóri velferðarsviðs, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:
Standa þarf vörð um rétt til atvinnuleysisbóta og telja fulltrúar samstarfsflokkanna mikilvægt að mæta fólki þar sem það er statt hverju sinni. Lengd bótatímabils er í dag 30 mánuðir, en ekki kemur fram hvert bótatímabil verður í nýju kerfi né hvaða endurhæfing verður unnið með til að styðja við þau sem glíma við langvarandi atvinnuleysi. Hætta er á að fyrirhugaðar breytingar leiði til þess að fleiri sæki um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, sem er skilgreind sem neyðaraðstoð, og er lægri upphæð en atvinnuleysisbætur. Með því er ekki eingöngu verið að velta kostnaði yfir á sveitarfélög, heldur einnig að skapa erfiðar aðstæður fyrir þann sem á í hlut. Óskar velferðarráð eftir því að lagst verði í frekari vinnu við að greina hvaða áhrif þetta muni hafa á fjárútgjöld Reykjavíkurborgar og hvaða fjárhagslegu og félagslegu afleiðingar þetta muni hafa á þau sem fá fjárhagsaðstoð sem er neyðaraðstoð, í stað atvinnuleysisbóta.
Fulltrúi Framsóknar leggur fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir greininguna. Brýnt er að Reykjavíkurborg fylgi málinu eftir við ríkið í þeirri vinnu sem nú stendur yfir í félagsmálaráðuneytinu og miðar að því að stytta atvinnuleysisbótarétt. Þá er mikilvægt að farið sé í frekari greiningu á áhrifum breytinganna á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar þegar frumvarpsdrögin liggja fyrir. Enn er óljóst hvernig Vinnumálastofnun ætlar að auka virkni einstaklinga á atvinnuleysisbótum til að mæta þessum breytingum.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað, dags. 28. apríl 2025, um dagdvölina Þorrasel. VEL25040001.
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknar um sameiginlegan fund velferðarráða á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra, sbr. 16. lið fundargerðar velferðarráðs frá 9. apríl 2025. VEL25040013.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:
Lagt er til að velferðarsvið fái það verkefni að leita til annarra velferðarráða og SSH (Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) til að kanna áhuga annarra velferðarráða á höfuðborgarsvæðinu til að halda sameiginlegan fund velferðarráða á höfuðborgarsvæðinu þar sem málaflokkur heimilislausra er sérstaklega tekinn til umræðu með það að markmiði að auka samtal og samvinnu í málaflokknum. Útfærsla fundarins verði unnin í samtali við SSH og ekki verði útilokað að ræða önnur mál á sviði velferðarmála.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Vinnumálastofnunar, dags. 23. apríl 2025, varðandi uppsögn þjónustusamnings milli Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. VEL25040039.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 18. mars 2025, þar sem kallað er eftir umfjöllunarefnum borgaraþings Reykjavíkur árið 2025. MSS25010177.
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Vilji velferðarráðs er að rædd verði málefni ungmenna, unglingamenning og framtíðarsýn þeirra á borgina og nærsamfélag sitt. Leitað verði til ungmennaráða til að taka þátt í mótun fundarins.
Fylgigögn
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar leggja fram svohljóðandi tillögu:
Óskað er eftir því að umsókn Memmm Play um opinn leikskóla sé sett á dagskrá næsta fundar velferðarráðs. VEL25050003.
Frestað.
-
Velferðarráð leggur fram svohljóðandi tillögu:
Velferðarráð leggur til að félags- og húsnæðismálaráðuneytið verði upplýst um nauðsyn þess að greina hvaða áhrif fyrirhugaðar breytingar á atvinnuleysisbótum hafi á útgjöld sveitarfélaga, þar með talið Reykjavíkurborgar. Einnig hvaða fjárhagslegu og félagslegu afleiðingar verði vegna stöðu þeirra sem fái fjárhagsaðstoð að loknum atvinnuleysisbótarétti. Óskað er eftir því að fá frekari upplýsingar frá ríkinu um hvaða breytingar ráðuneytið hafi í huga á atvinnuleysisbótakerfinu og hversu mikil stytting er fyrirhuguð. VEL25050004.
Samþykkt.
Fundi slitið kl. 17:11
Sanna Magdalena Mörtudottir Guðný Maja Riba
Sara Björg Sigurðardóttir Helgi Áss Grétarsson
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs frá 30. apríl 2025