Velferðarráð - Fundur nr. 484

Velferðarráð

Ár 2024, miðvikudagur 21. ágúst var haldinn 484. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:03 í Hofi, Borgartúni 12-14. Á fundinn mættu: Magnea Gná Jóhannsdóttir, Helga Þórðardóttir, Ellen Jacqueline Calmon, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Þorvaldur Daníelsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundabúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Magnús Davíð Norðdahl og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Aðalbjörg Traustadóttir, Anna Sigrún Baldursdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Gunnlaugur Sverrisson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs. VEL24010017.

  2. Fram fer kynning á niðurstöðum notendakönnunar Pant akstursþjónustu maí – júní 2024. VEL24080015.

    Sturla Halldórsson, deildarstjóri hjá Pant akstursþjónustu, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Pant þjónustan hefur að mestu gengið ágætlega og búið er að sníða af ákveðna byrjunarhnökra. Þó hafa komið upp alvarleg tilvik sem eru mjög sláandi eins og þegar einstaklingur gleymist í bílnum eða er skilinn eftir. Það er reiðarslag og slíkt má einfaldlega aldrei gerast. Ekki liggur fyrir hvaða eða hvort gerð sé bakgrunnsathugun á  bílstjórum áður en þeir byrja að keyra fyrir Pant, þjálfun þeirra og símenntun.  Bent er á að stór hluti notenda þjónustunnar fer um í leigubílum, eitt með bílstjóra. Þetta er viðkvæmasti hópur samfélagsins. Þá verður utanumhaldið að vera gríðarlega öruggt. Vankantar snúa helst að biðtíma í símsvörun þjónustuvers Pant akstursþjónustu og hversu stuttur eða langur biðtími er í símsvörun þjónustuvers Pant akstursþjónustu. Einnig er umtalsverð óánægja með lengd opnunartíma hjá Pant akstursþjónustu. Einnig þarf að bæta stundvísi hjá Pant akstursþjónustu. Könnunin nær ekki til persónuverndarmála.  Hvað finnst notendum um það að Persónuvernd hafi komist að þeirri niðurstöðu að Strætó bs, sem ábyrgðaraðili hafi ekki fullnægt kröfum persónuverndarlaga um viðeigandi öryggisráðstafanir við vinnslu persónuupplýsinga í kerfum Strætó bs. 2023?  Einnig má nefna mikilvægi þess að kalla eftir hvernig upplýsingar um farþega/notenda eru skráðar, hvaða upplýsingar bílstjórar fá og hvaða verkferlum þeir eiga að vinna eftir.

  3. Lagt fram minnisblað um styrk til áfangaheimilisins Lítillar þúfu, dags. 19. ágúst 2024. VEL24080024.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Velferðarráð felur velferðarsviði að aðstoða Litla þúfu við að finna annað húsnæði fyrir starfsemi áfangaheimilisins. Óskað er eftir að verkið sé unnið sé hratt og vel sem og að velferðarráð fái upplýsingar um stöðu mála eigi síðar en á tveggja vikna fresti.
    Samþykkt.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Nú er komin sú alvarlega staða að mygla hefur greinst í húsnæðinu við Snekkjuvog og því verður að finna nýtt heimili fyrir áfangaheimilið. Flokkur fólksins telur afar brýnt að áfangaheimilið Lítil þúfa geti haldið áfram rekstri en það er eina áfangaheimilið sem er rekið eingöngu fyrir konur, utan Njálu sem Reykjavíkurborg rekur. Þann 1. mars 2023 tók fasteignafélagið Lítil þúfa að sér rekstur Dyngjunnar og óskaði í kjölfarið eftir því að taka húsnæðið að Snekkjuvogi til leigu. Eignaskrifstofa Reykjavíkurborgar og almannahagsmunafélagið Lítil þúfa gerðu með sér húsaleigusamning í júní 2023 þar sem kveðið er á um styrk til innri leigu. Uppreiknaður kostnaður á innri leigu vegna Snekkjuvogs er um 6,7 m.kr. á ári.  Nú óskar Lítil þúfa eftir því að Reykjavíkurborg auki styrkveitingu til innri leigu sem eykur möguleika félagsins á að finna annað húsnæði. Samkvæmt minnisblaði hefur Reykjavíkurborg hingað til ekki veitt styrki til húsaleigu áfangaheimila en Flokkur fólksins styður að það sé gert í þessu tilfelli. Hægt er að benda á að velferðarsviði ber skv. 2. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, að veita aðstoð og ráðgjöf til einstaklinga með fíknivanda. 

    Fylgigögn

  4. Fram fer kynning á niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3204/2023 3. júlí 2024. VEL24080019.

    Ebba Schram, borgarlögmaður, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Reykjavíkurborg var dæmd til að greiða konu eina milljón króna í skaðabætur vegna tafa borgarinnar við afgreiðslu umsóknar konunnar um NPA þjónustu árið 2019. Hér er um fordæmisgefandi dóm að ræða og vænta má að fleiri sæki rétt sinn. Vegna tafa á meðferð kom konan ekki til greina við úthlutun NPA. Féllst dómur á það sjónarmið að vegið hafi verið að persónu konunnar og sé borgin ábyrg fyrir því. Um var að ræða 5 ára töf án haldbærra skýringa. Flokki fólksins finnst það blasa við að þessar afsakanir borgarinnar standast ekki skoðun. Enda þótt tafir hafi verið á setningu reglnanna hafi ekki þurft að tefja meðferð. Þessi dómur er fordæmisgefandi og munu fleiri án efa fylgja með tilheyrandi kostnaði fyrir Reykjavík. Í raun hefði mátt segja sér að ekki allir láta bjóða sér að fá ekki nauðsynlega þjónustu sem þeir eiga rétt á og síðan vera settir á bið í 5 ár.

  5. Lögð fram drög að erindisbréfi starfshóps um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA), beingreiðslusamninga og húsnæði fyrir fatlað fólk. VEL24070030.
    Samþykkt. Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ebba Schram, borgarlögmaður, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mikilvægt er að fara yfir fyrirkomulag þeirra þátta sem eru nefndir í erindisbréfinu og tryggja að ávallt séu viðhöfð góð móttaka og afgreiðsla umsókna.  Fulltrúi Sósíalistaflokksins telur eðlilegt að fulltrúi notenda NPA fái aðkomu að starfshópnum.  Að sama skapi ætti að vera fulltrúi notenda í hópnum varðandi húsnæði og beingreiðslusamninga, þannig að sjónarmið notenda komi skýrt fram í starfshópnum frá upphafi. Sósíalistar minna á einkennisorð fatlaðra: Ekkert um okkur án okkar.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Starfshópurinn á að skila í október næstkomandi. Hlutverk hans er viðamikið og verkefni margslunginn. Þessi starfshópur er að að mati Flokks fólksins of fjölmennur. Nánast útilokað má telja að hópurinn nái að hittast nógu oft til að fjalla um öll þau verkefni sem honum er ætlað. Fjölmennir hópar eiga gjarnan erfitt með að finna tíma sem allir komast á fund og eru því lítið skilvirkir. Flokkur fólksins styður hins vegar að starfshópur verði stofnaður og öll þau verkefni sem starfshópurinn á að vinna að og óskar honum velfarnaðar.

  6. Lagt fram bréf sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs, dags. 1. júlí 2024, ásamt drögum að umsögn velferðarráðs, dags. 19. ágúst 2024, um reglur um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum. MIR24070001.

    Samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Flokks fólksins gegn einu atkvæði fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Samkvæmt 11. greininni eru áfengisveitingar í íþróttamannvirkjum bannaðar þó undanþágur séu mögulegar. Í reynd tíðkast þó á stærri íþróttaviðburðum fullorðinna að undanþága sé gerð.  Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur að breyta ætti greininni svo almenna reglan sé að leyfa áfengisveitingar en þá frekar skilyrða það leyfi við atburði sem eru helst sóttir af fullorðnum. Íþróttafélögin eru í eðli sínu sérfróð um lýðheilsuhlutverk sitt og þeim er treystandi til að útfæra sjálf fyrirkomulag áfengisveitinga við íþróttamannvirki sín með ábyrgum hætti. Því telur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins eðlilegra að spara slíkar útfærslur í umsögninni þar sem íþróttamannvirkin eru mismunandi eins og þau eru mörg og íþróttafélögin eru mun kunnugri um ábyrgar lausnir á áfengisveitingu á hverjum stað en ráðsmenn velferðarráðs.

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi sósíalista telur að ekki eigi að opna á sölu áfengis á íþróttaviðburðum með þessum hætti, sérstaklega þar sem börn eru.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Til kynningar eru drög að umsögn velferðarráðs um reglur um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum. Flokkur fólksins getur tekið undir flest það sem segir í umsögn, einkum það að hagsmunir barna eigi að ráða för þegar tekin er ákvörðun um hvort leyfa eigi áfengi á íþróttaviðburðum. Flokkur fólksins telur mikilvægt að hafa lýðheilsusjónarmið að leiðarljósi í allri slíkri ákvarðanatöku. Flokkur fólksins styður stefnu stjórnvalda  í áfengis- og vímuvörnum þar sem fram kemur að ein mikilvægasta aðgerðin til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis og að vernda viðkvæma hópa eins og börn og ungmenni, sé að takmarka aðgengi. Ef tekin verður ákvörðun um að leyfa sölu áfengis á íþróttaviðburðum þá er brýnt að það verði ýmsum takmörkunum háð eins og að einungis væri hægt að kaupa og neyta áfengis á afmörkuðu svæði stúkunnar þar sem börnum er óheimill aðgangur. Leiki hinn minnsti vafi á aldri kaupanda þarf hann að sýna viðurkennt skilríki, vegabréf eða ökuskírteini.  Þá er líka mikilvægt að hafa í boði áfengislaus svæði fyrir börn og barnafjölskyldur.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram ársskýrsla vettvangsgeðteymis Reykjavíkurborgar 2023. VEL24080021.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í ársskýrslunni kemur fram að á síðasta ári var stutt netkönnun send á alla stjórnendur íbúðakjarna fyrir fólk með geðfötlun, deildarstjóra og ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið könnunarinnar var að kanna upplifun þeirra af stuðningi og ráðgjöf vettvangsgeðteymisins. Í þjónustukönnuninni kemur helst fram að 71% þátttakenda eru mjög ánægð með stuðning og ráðgjöf frá vettvangsgeðteyminu og 22% frekar ánægð. Um er að ræða viðunandi niðurstöður en fulltrúi Flokks fólksins bendir á að um 30 prósent eru ekki ánægð. Helsta umkvörtunarefnið var að það þyrfti fleiri stöðugildi til teymisins svo það nái að anna öllum málum. Það kemur þó fram að 100% þátttakenda telur að aðkoma frá teyminu hafi haft jákvæð áhrif á lífsgæði íbúa og 62% telja að aðkoma teymisins hafi nýst sínum starfsstað að mjög miklu leyti til að styðja betur við íbúa.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf Áss styrktarfélags, dags. 17. júlí 2024, varðandi stuðning við lóðaumsókn. VEL24080022.

    Velferðarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Styrktarfélagið Ás og velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafa um langt skeið átt í góðu og farsælu samstarfi. Nú bregður svo við að Ás ætlar að sækja um lóð til þess að byggja íbúðir til búsetu fyrir skjólstæðinga sína. Velferðarráð fagnar þessum áformum styrktarfélagsins Áss og biðlar hér með til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar að taka vel í erindið.

  9. Lögð fram fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál 5. júní 2024. VEL24080014.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Undir lið 1 í fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá 5. Júní 2024 er fjallað um hvort ráða eigi einn eða tvo verkefnastjóra og myndi fulltrúi Flokks fólksins telja að einn dugi í 100% starfshlutfall. Mikilvægt er að halda allri yfirbyggingu í lágmarki til að tryggja skilvirkni og sparnað. Undir lið 2, Jöfnunarsjóður, samtal vegna umsókna í sjóðinn er enga bókun frá Reykjavík að finna og er því ekki gott að vita hvernig borgin ávarpaði þennan lið. Undir lið 3, Samhjálp vetraropnun vill Flokkur fólksins koma því að hér að hann styður að auka mannskap komi til opnunar næsta vetur og að settur verði í forgang kostnaður vegna þátttöku í VoR teyminu við gerð næstu fjárhagsáætlunar. Undir lið 6, Félagslegt leiguhúsnæði, eignasafn sveitarfélaga hlakkar Flokkur fólksins til að sjá fjölda félagslegs leiguhúsnæðis í sveitarfélögum eins og Garðabæ og  Seltjarnarnesbæ.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 12. ágúst 2024, við bréf SSH varðandi endurnýjun þjónustusamnings við Fjölsmiðjuna. MSS24070015.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 19. ágúst 2024, við fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um niðurfellingu á hækkun fjárhagsaðstoðar vegna meðlagsgreiðslna, sbr. 17. lið fundargerðar velferðarráðs frá 5. júní 2024. VEL24060015.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins óskaði upplýsinga um hvaða áhrif  niðurfelling á hækkun fjárhagsaðstoðar vegna meðlagsgreiðslna þýddi fyrir  einstaklinga í þessari stöðu.  Breytingin felur í sér að ekki er lengur veitt aukin fjárhagsaðstoð sem samsvarar fjárhæð meðlagsgreiðslna sem greidd var beint til Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Í svari kemur fram að enda þótt brottfall 13. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg  hafi ekki haft áhrif á upphæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu þá mun viðkomandi safna upp meðlagsskuld hjá Innheimtustofnun sem þarf að greiða á endanum nema að viðkomandi lýsi sig gjaldþrota. Það er ekki öllum ljóst sem eru í þessari stöðu að þeir stofni til skuldar við Innheimtustofnun sveitarfélaga sem nemur einu meðlagi á mánuði þann tíma sem viðkomandi fær fjárhagsaðstoð.  Ef skuldir  verða miklar er hugsanlega hægt að semja við ríkið um lækkun skuldar  í gegnum umboðsmann skuldara. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af þessum hópi og hvetur velferðarsvið að  halda utan um hann og gefa þeim greinargóðar upplýsingar.   

    Fylgigögn

  12. Lagt fram svar sviðsstjóra, dags. 19. ágúst 2024, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um áfangaheimilið Brú við Stórhöfða, sem vísað var til meðferðar velferðarráðs með bréfi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 26. júní 2024. MSS24060064.

    Fylgigögn

  13. Fram fer kosning fulltrúa og varafulltrúa í áfrýjunarnefnd velferðarráðs. VEL22060021.

    Kosning gildir frá 1. október 2024. Skipan áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar helst óbreytt fram til 1. október 2024 en þann dag tekur gildi samþykkt áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar og þá falla jafnframt úr gildi reglur um verksvið og starfshætti áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar frá 25. janúar 2018.

    Velferðarráð kýs eftirfarandi aðila til setu í áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar: Aðalmenn eru Magnea Gná Jóhannsdóttir, sem jafnframt er formaður, Þorvaldur Daníelsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Varamenn eru Helga Þórðardóttir, Ellen Jacqueline Calmon og Sandra Hlíf Ocares.

    Samþykkt.

Fundi slitið kl. 15:41

Magnea Gná Jóhannsdóttir Magnús Davíð Norðdahl

Sanna Magdalena Mörtudottir Þorvaldur Daníelsson

Ellen Jacqueline Calmon Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Helga Þórðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð velferðarráðs frá 21. ágúst 2024