Velferðarráð - Fundur nr. 372

Velferðarráð

Ár 2020, miðvikudagur 19. febrúar var haldinn 372. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 13:03 í Hofi, Borgartúni 12-14. Fundinn sátu: Heiða Björg Hilmisdóttir, Aron Leví Beck, Elín Oddný Sigurðardóttir, Alexandra Briem, Vigdís Hauksdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Af hálfu starfsmanna sátu fundinn: Regína Ásvaldsdóttir, Dís Sigurgeirsdóttir, Elsa Guðrún Jóhannesdóttir, Kristjana Gunnarsdóttir, Aðalbjörg Traustadóttir, Berglind Magnúsdóttir og Katrín Harpa Ásgeirsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á starfinu á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.

  2. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 19. febrúar 2020, um gerð viðauka við gildandi þjónustusamning við Ás styrktarfélag.

    Lagt er til að gerður verði viðauki við gildandi þjónustusamning við Ás styrktarfélag, vegna aukinnar þjónustuþyngdar fatlaðra einstaklinga sem eru í þjónustu á grundvelli samningsins. Viðaukinn gildir fyrir árið 2020 og samhliða verði hafin vinna við gerð nýs þjónustusamnings á grundvelli innkaupareglna Reykjavíkurborgar.
    Áætlaður kostnaður nemur allt að 50 m.kr. á árinu 2020 og rúmast innan fjárheimilda velferðarsviðs.
    Samþykkt. 

    Þórdís Linda Guðmundsdóttir, deildarstjóri, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga styrkjanefndar velferðarráðs, dags. 19. febrúar 2020, um styrkveitingu úr borgarsjóði. 

    Lagt er til að velferðarráð samþykki tillögu styrkjanefndar velferðarráðs um styrkveitingar úr borgarsjóði.
    Frestað.

    -    Heiða Björg Hilmisdóttir víkur af fundi á meðan fjallað er um styrkveitingar til ADHD samtakanna. 
    -    Sanna Magdalena Mörtudóttir víkur af fundi á meðan fjallað er um styrkveitingar til EAPN á Íslandi, samtaka gegn fátækt.
    -    Sanna Magdalena Mörtudóttir víkur af fundi á meðan fjallað er um styrkveitingar til Fósturheimilabarna, félags fósturbarna.
    -    Kolbrún Baldursdóttir víkur af fundi á meðan fjallað er um styrkveitingar til Fjölskylduhjálpar Íslands.

  4. Lögð fram tillaga fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, sbr. 46. lið fundargerðar borgarstjórnar þann 19. júní 2018 um stofnun félags leigjenda hjá Félagsbústöðum. 
    Dregin til baka.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram tillaga fulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, sbr. 44. lið fundargerðar borgarstjórnar þann 19. júní 2018 um stofnun félags skjólstæðinga velferðarsviðs. 

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi breytingartillögu:

    Lagt er til að velferðarsvið geri stofnun hagsmunasamtaka þeirra sem nýta sér þjónustu sviðsins auðveldari með því að bjóða upp á stað þar sem hinir ólíku hópar geti fundað kjósi þeir það. Velferðarsvið veitir þjónustu og stuðning til fjölmarga einstaklinga á ólíkum sviðum og mikilvægt er að heyra raddir þeirra einstaklinga til að sjá og heyra hvernig megi bæta þjónustuna. Þjónusta velferðarsviðs snýr að málefnum eldri borgara, fatlaðs fólks, heimilislausra einstaklinga og málefnum barna og unglinga. Þá sinnir velferðarsvið einnig fjölskyldu- og félagsmálum, undir þau mál fellur t.a.m. fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur. Velferðarsvið sinnir einnig heimaþjónustu, kemur að verkefnum félagslegs leiguhúsnæðis og sér um rekstur þjónustu- miðstöðva. Hagsmunasamtök eru til í ýmsum málum er tengjast þjónustu velferðarsviðs en ekki öllum. Oft getur skortur á fundarstað verið hindrun í því að koma upp aðstöðu til að hittast og ræða við þá sem eru í svipuðum aðstæðum og maður sjálfur. Fundarstaður kostar oft pening sem ekki allir eiga og því er lagt til að velferðarsvið útvegi slíkt og geri upplýsingar um fundarstað aðgengilegar. Óski hagsmunasamtök eftir því að koma upplýsingum á framfæri um hvernig megi bæta þjónustuna verði skapaður vettvangur fyrir slíka sérfræðiþekkingu í samvinnu við hagsmuna- samtökin, velferðarsvið og velferðarráð. 

    Samþykkt að vísa breytingartillögunni inn í stýrihóp um stefnumótun um þróun félagsmiðstöðva fyrir fullorðið fólk.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 19. febrúar 2020, um viðauka við samning velferðarsviðs og Reykjavíkurdeild Rauða krossins um rekstur Konukots. 

    Velferðarráð samþykkir viðauka, 2,5 mkr. við samning velferðarsviðs við Reykjavíkurdeild Rauða krossins um rekstur Konukots. Um er að ræða verðlags- og launaþróun. Jafnframt samþykkir velferðarráð að fela velferðarsviði að undirbúa tillögu að framtíðarskipan reksturs Konukots. 
    Samþykkt. 

    Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er á ábyrgð Reykjavíkurborgar að tryggja að enginn búi við heimilisleysi. Hér er m.a. verið að leggja til að fela velferðarsviði að undirbúa tillögu að framtíðarskipan reksturs Konukots. Það er gott að leita til aðila líkt og félagasamtaka sem hafa reynslu og þekkingu á þeim málaflokki sem hér um ræðir. Fulltrúi Sósíalistaflokksins vill þó ítreka mikilvægi þess að ábyrgðin liggur alltaf hjá Reykjavíkurborg, sem á að þjónusta fólkið sem hér um ræðir. Reynsla félagasamtaka byggir oft á því að þau fá allt of lítið fjármagn til að veita almennilega þjónustu og slíkt bitnar á fólkinu sem er í þörf fyrir góða þjónustu. Það er því mikilvægt að leggja áherslu á fjárhagslega ábyrgð Reykjavíkurborgar í framtíðar fyrirhuguðu samstarfi við mögulega utanaðkomandi aðila. Reyndin má ekki verða sú að samningur sé gerður við t.d. félagasamtök um reksturinn sem byggir á því að samtökin fái ákveðið fjármagn til að halda uppi starfseminni, sem dugar síðan ekki til að sinna öllum þeim þáttum sem þarf að sinna. Reykjavíkurborg getur ekki samið ábyrgðina frá sér.

    Fylgigögn

  7. Fram fer kynning á stöðumati aðgerðaráætlunar um atvinnumál fatlaðs fólks. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúar meirihlutans þakka fyrir kynningu á stöðu aðgerðaráætlunar vegna atvinnumála fatlaðs fólks. Ljóst er að hægt hefur gengið að innleiða sumar aðgerðirnar sem þar eru útlistaðar. Hvetja fulltrúarnir eindregið til að aukinn kraftur verði settur innleiðingu þessara þátta. Rétt er að halda til haga að um er að ræða samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga og mikilvægt að efla það samstarf til að betur náist utan um verkefni sem þessi.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins bókar við stöðumat varðandi atvinnumál fatlaðs fólks. Aðgerðaráætlun er komin til aldurs og kannski úrelt að einhverju leyti? Margar tillögur eru góðar en ekki mjög útfærðar. Þetta hefur gengið hægt. Kannski ekki forgangsmál hjá þessum og síðasta meirihluta? Eða ástæðan er að boðleiðir borgarkerfisins eru flóknar? Hér er reyndar ekki verið að tala um launaða vinnu heldur frekar afþreyingu? Það vantar að tengja við atvinnulífið. Flokkur fólksins myndi vilja sjá borgina setja á laggirnar alvöru vinnustað fyrir fatlað fólk þar sem það getur komið saman og sinnt fjölhæfum verkefnum fyrir mannsæmandi laun. Slíkir vinnustaðir eru e.t.v. mest nú á vegum ríkis eða eru sjálfseignarstofnanir. Það vantar staði, vinnustaði, vinnustofur þar sem fólk sem er með skerta starfsorku getur unnið á sínum forsendum. Farsælast er að vinnustaðir geti ráðið fjölbreyttan hóp með eða á örorku enda er eftirspurn eftir störfum mikil. Það hefur lengi loðað við okkar samfélag að skortur hefur verið á vinnustofu fyrir öryrkja, fólk sem hefur átt í erfiðleikum með að fá störf við hæfi t.d. eftir endurhæfingu. Langflesta langar til að komast út meðal fólks og sinna störfum við hæfi og fá fyrir það greitt. Fatlað fólk er ekkert öðruvísi en aðrir með hvað varðar að vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

    Þórdís Linda Guðmundsdóttir, deildarstjóri, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á stöðumati uppbyggingaráætlunar húsnæðis fyrir fatlað fólk. 

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Velferðarráð samþykkti uppbyggingaráætlun sértækra húsnæðisúrræða fyrir fatlaða einstaklinga árið 2017. Á árunum 2012-2019 hefur sértækum búsetuúrræðum fjölgað um 95. Á rúmlega tveimur árum hefur fækkað á biðlista um 48 einstaklinga. Áfram er unnið að fullum krafti við að standa við áður samþykkta uppbyggingaráætlun allt til ársins 2030. Áfram verður unnið út frá þeim forsendum að gera fólki kleift að fá þjónustu óháð búsetu bæði með þjónustu út frá kjarna og færanlegum búsetuteymum auk þess sem unnið er skv. áætlun um niðurlagningu herbergjasambýla. 

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Staða uppbyggingaráætlunar húsnæðis fyrir fatlað fólk hefur gengið hægt. Þessi málaflokkur hefur ekki verið í nægjanlega miklum forgangi árum saman en nú virðist sem hlutir gangi ögn hraðar. Fjöldi á biðlista Í febrúar 2020 er engu að síður 142 einstaklingar á bið eftir húsnæði fyrir fatlað fólk hjá velferðarsviði til samanburðar við 190 einstaklinga í desember 2017. Það er einfaldlega mjög erfitt ástand hjá mörgum þeim sem bíða eftir húsnæði, margir hafa beðið mjög lengi eftir húsnæði og eiga eftir að bíða jafnvel í mörg ár enn. Þetta er óviðunandi ástand. Dæmi eru um að ekki er hlúð nægjanlega vel að þessum fjölskyldum á meðan beðið er eftir húsnæði fyrir fatlaðan fjölskyldumeðlim. Skoða ætti að veita þessum fjölskyldum sérstakan fjárhagsstuðning á meðan beðið er, vissulega að undangengnu mati á þörf. Hafa ætti samband við alla reglulega og kanna stöðuna. Það er oft gríðarálag á þeim sem bíða eftir húsnæðinu og fjölskyldum þeirra ekki síst ef um flókna fötlun er að ræða. Hér er verið að tala um fullorðna einstaklinga sem þurfa að fá húsnæði við sitt hæfi til að geta lifað sínu persónulega lífi. Álag á foreldra fullorðinna fatlaðra einstaklinga sem hafa beðið lengi er oft gríðarlegt.

    Ólafía Magnea Hinriksdóttir, sérfræðingur og Ricardo Mario Villalobos, deildarstjóri, taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Flokks fólksins um heildarkostnað Reykjavíkurborgar vegna lagabreytinga um húsnæðisstuðning. 
    Frestað.

  10. Lögð fram afgreiðsla Öldungaráðs á tillögu Flokks fólksins um aldursfordóma.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Afstaða öldungaráðs er að ekki eigi að styðja tillögu Flokks fólksins um að rýna í regluverk borgarinnar með gagnrýnisgleraugum til að skoða hvort textinn sé gildishlaðinn. Engu að síður vill öldungaráðið hafa tillöguna að leiðarljósi. Flokkur fólksins spyr af hverju má þá ekki bara samþykkja hana? Hér er verið að leggja til að skoða hvort borgin sjálf sé með gildishlaðinn texta í sínu regluverki og samþykktum sem fjalla um eldri borgara og þjónustu við þá. Borgin er fyrirmynd og þarf að hafa hlutina á hreinu hjá sér. Flokkur fólksins hefur séð bækling sem borgin lætur liggja frammi í félagsmiðstöð aldraðra sem var mjög gildishlaðin. Í svari um málið var sagt að ekki ætti að endurútgefa hann en hann hefði átt að fjarlæga að mati borgarfulltrúa. Athuga ber að eldri borgarar hafa ekki beina aðkomu að samningu texta í reglum og samþykktum sem þeim ætti að vera boðið að gera. Tillögu um að gerð yrði könnun meðal eldri borgara um afstöðu þeirra til þessara hluta var líka hafnað. Mikilvægt er að spyrja eldri borgara hvernig það er að upplifa viðmót borgarkerfisins í sinn garð eins og kemur fram í reglum og samþykktum. Það hlýtur að vera metnaður hjá öldungaráðinu og mannréttindaskrifstofu að hafa svona hluti í lagi þ.e. að hvergi sé að finna gildishlaðinn texta neins staðar í regluverki borgarinnar eða upplýsingabæklingum.

    Fylgigögn

  11. Fram fer skipan í nefnd vegna Hvatningarverðlauna velferðarráðs, frestur til tilnefninga rennur út þann 24. febrúar.

    Lagt er til að Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs og Örn Þórðarson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins taki sæti í nefndinni.

    Samþykkt.

  12. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu ásamt greinargerð:

    Lagt er til að Reykjavíkurborg endurskoði gjaldskrá fyrir ferðaþjónustu fatlaðra með það að markmiði að fólk geti keypt árskort fyrir aðgang að ferðaþjónustu fatlaðra og þurfi ekki að greiða fyrir hverja ferð. Lagt er til að Reykjavík beiti sér fyrir því að árskort fyrir ferðaþjónustu fatlaðra gildi einnig til að ferðast með Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu. Ferðaþjónusta fatlaðra er á vegum Reykjavíkur, ekki Strætó og því gilda ólíkar verðskrár. Vegna þess gildir árskort fyrir öryrkja aðeins í strætó en ekki fyrir ferðaþjónustu fatlaðra, sem þó er á vegum Strætó bs. Verð fyrir stakar ferðir er það sama en gjaldskrá fyrir ferðaþjónustu fatlaðra bíður ekki uppá magnafslátt fyrir alla, svo sem með því að kaupa kort. Það er að vísu boðið upp á nemakort fyrir fatlaða nemendur í framhalds- og háskólum, en það kostar 22.600 á ári fyrir 16-17 ára og 52.900 á ári fyrir eldri. 
    Vísað til umsagnar Strætó bs.

  13. Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Flokkur fólksins leggur til að Félagsbústaðir uppfæri heimasíðu sína hvað varðar leyfi til gæludýrahalds í samræmi við samþykkta tillögu Flokks fólksins um að leyfa hunda- og kattahald í félagslegum íbúðum í Reykjavík. Á það hefur verið bent að þrátt fyrir að nú sé ár síðan tillagan var samþykkt hefur vefur Félagsbústaða ekki verið uppfærður í samræmi við hana og enn stendur þar að dýrahald sé bannað í íbúðum Félagsbústaða. Á þetta var sérstaklega bent á þingi Félags ábyrgra hundaeigenda s.l. laugardag. Til upprifjunar: 7. maí 2019 var samþykkt tillaga Flokks fólksins um heimild til dýrahalds í húsnæði Félagsbústaða. Flokkur fólksins lagði fram tillögu í borgarráði þann 16. september 2018 um að hunda- og kattahald í félagslegum leiguíbúðum yrði leyft. Tillögunni var vísað til stjórnar Félagsbústaða þar sem hún var tekin fyrir. Óskað var álits og umsagnar stjórnar samtaka leigjenda á tillögunni. Stjórnin tók málið upp á félagsfundi og þar kom fram að eðlilegt þyki að fylgt sé ákvæðum laga um fjöleignarhús um m.a. að afla þurfi samþykkis annarra íbúa. Samþykkt var að leyfa hunda- og kattahald samkvæmt almennum reglum og samþykktum íbúa. Samþykktin hefur verið kynnt íbúum í fjölbýlishúsum Félagsbústaða og henni framfylgt í samræmi við lög um fjöleignarhús og samþykktir Reykjavíkurborgar um katta- og hundahald. 

    Vísað til Félagbústaða.

PDF útgáfa fundargerðar
velferdarrad_1902.pdf