Velferðarráð - Fundur nr. 139

Velferðarráð

VELFERÐARRÁÐ

Ár 2010, miðvikudaginn 7. júlí var haldinn 139. fundur velferðarráðs og hófst hann kl. 12:20 að Borgartúni 12-14. Mættir: Björk Vilhelmsdóttir, Margrét Kristín Blöndal, Ágúst Már Garðarsson, Bjarni Karlsson, Sveinn H. Skúlason, Áslaug Friðriksdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson. Af hálfu starfsmanna: Ellý A Þorsteinsdóttir, Hörður Hilmarsson og Helga Jóna Benediktsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Breyting á skipan fulltrúa Sjálfstæðisflokks í velferðarráði sbr. bréf skrifstofustjóra borgarstjórnar dags. 1. júlí 2010.

2. Kosning eins fulltrúa minnihluta í áfrýjunarnefnd velferðarráðs og kosning varamanns.
Lagt til að Áslaug Friðriksdóttir verði kjörin aðalmaður í áfrýjunarnefnd og Þorleifur Gunnlaugsson varamaður.
Samþykkt samhljóða.

3. Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða, dags. 6. júlí 2010, lagt fram til kynningar og umræðu.
Velferðarráð samþykkti eftirfarandi bókun:
Velferðarráð fagnar því að samkomulag liggi fyrir um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga um nk. áramót. Velferðarráð vill nýta tækifærið til að bæta aðgengi og þjónustu við fatlað fólk í sínu nærumhverfi. Tryggja þarf réttindi allra borgarbúa til virkrar þátttöku í samfélaginu, á forsendum hvers og eins. Mikilvægt er að rödd fatlaðra við mótun þjónustunnar í aðdraganda yfirfærslunnar verði sýnileg. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði hafður að leiðarljósi í starfinu til að þjónustan uppfylli mannréttindi fatlaðs fólks.

4. Sumarlokanir hjálparstofnana.
Eftirfarandi tillaga fulltrúa Vinstri grænna í velferðarráði lögð fram:
Fulltrúi Vinstri grænna í velferðarráði leggur til að veittur verði sumarstyrkur til þeirra sem njóta fjárhagsaðstoðar frá Reykjavíkurborg. Styrkurinn verði kr. 15.000 til hvers einstaklings sem nýtur fjárhagsaðstoðar og kr. 5.000 vegna hvers barns sem einstaklingur sem nýtur fjárhagsaðstoðar hefur forsjá fyrir.

Tillagan var samþykkt með áorðnum breytingum með fimm samhljóða atkvæðum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

- Áslaug Friðriksdóttir vék af fundi kl. 13.40
-
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Besta flokksins og Vinstri grænna lögðu fram eftirfarandi bókun:
Það er afleitt að hér á landi skuli hundruð einstaklinga þurfa að leita til hjálparsamtaka í viku hverri til að þiggja matargjafir. Það fer því ekki á milli mála að lægstu laun, hvort sem um er að ræða laun á vinnumarkaði eða bætur hins opinbera eru of lág. Yfir 90#PR sem þiggja aðstoð hjálparstofnana lifa á slíkum tekjum. Ekki er til opinber mælikvarði á það, hversu mikið fólk þarf að hafa milli handanna til þess að eiga fyrir nauðþurftum, unnið er að slíku en staðreyndirnar tala sínu máli. Það er skylda sveitarfélaga að tryggja að íbúar þeirra geti séð fyrir sér og sínum. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er hugsuð sem neyðaraðstoð, ekki tekjur til langs tíma en langtímaatvinnuleysi setur þar strik í reikninginn. Nú vinnur velferðarráð að því að finna leiðir til að koma fólki sem lifir á fjárhagsaðstoð upp fyrir lágtekjumörk, og einnig er byrjað að vinna að tillögum um hvernig borgin getur á ýmsan annan hátt bætt kjör fátækra Reykvíkinga. Á meðan unnið er að langtímalausn og hjálparstofnanir eru í sumarfríi hefur Velferðarráð ákveðið að veita sumarstyrk að upphæð 15 þúsund krónur fyrir þá einstaklinga sem njóta fjárhagsaðstoðar og 5 þúsund krónur að auki fyrir hvert barn á framfæri þeirra. Ljóst er að sumaruppbót þessi gerir engan gæfumun hvað kjör viðkomandi einstaklinga varðar en líta má á sem táknrænt skref í áttina að þeirri leiðréttingu sem fyrir liggur á kjörum hinna lægst launuðu.

Fundi slitið kl. 13.50.

Björk Vilhelmsdóttir
Margrét Kristín Blöndal Ágúst Már Garðarsson
Bjarni Karlsson Sveinn H. Skúlason
Þorleifur Gunnlaugsson