Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð miðvikudaginn 28. október 2026 nr. 393

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 28. október, kl. 9:02 var haldinn 293. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Birkir Ingibjartsson, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtalinn fulltrúi tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Brynjar Þór Jónasson, Hjördís Sóley Sigurðardóttir, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Sigurjóna Guðnadóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttir Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna breytingar á deiliskipulagi sem nær til lóðanna Suðurlandsbraut 2, Hallarmúla 2 og Ármúla 3 og afmarkast af Suðurlandsbraut til norðurs, Hallarmúla til norðausturs, Ármúla til suðausturs og lóðanna Lágmúla 5A, Lágmúla 5 og Ármúla 1A suðvesturs. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu blandaðrar byggðar, með verslun og þjónustu á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum, ásamt bílakjallara, auk útidvalarsvæða, göngu- og hjólastíga fyrir íbúa og almenning. Tillagan var í kynningu frá 5. mars 2026 til og með 7. apríl 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma kynntar.

    Jóhanna Helgadóttir, Vilhjálmur Leví Egilsson og Sigríður Maack taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120299

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Fulltrúar meirihlutans taka jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir um uppbyggingu blandaðrar byggðar við Ármúla, Hallarmúla og Suðurlandsbraut. Hér gefst tækifæri til að nýta betur land sem í dag fer að stórum hluta undir yfirborðsbílastæði, skapa rými fyrir nýjar íbúðir á þessum frábæra stað, verslun og þjónustu og bæta borgarumhverfið með grænum svæðum og auknum gæðum almenningsrýma. Hafa þarf í huga einkenni svæðisins í Múlunum þannig að einkenni núverandi bygginga fái að njóta sín áfram á svæðinu. Meirihlutinn leggur jafnframt ríka áherslu á að fyrirhuguð uppbygging taki mið af raunverulegri bílastæðaþörf núverandi atvinnustarfsemi og framtíðaríbúa. Í skipulagslýsingunni er gert ráð fyrir að heildarfjöldi bílastæða haldist óbreyttur og að sameiginlegur bílakjallari skapi möguleika á betri samnýtingu þeirra. Mikilvægt er að þær forsendur verði skýrt útfærðar og studdar gögnum í áframhaldandi skipulagsvinnu, þannig að tryggt verði gott aðgengi að fyrirtækjum og þjónustu á svæðinu. Áður en deiliskipulagstillaga verður lögð fram til afgreiðslu þarf að liggja fyrir greinargott mat á bílastæðaþörf, samnýtingu stæða og áhrifum uppbyggingarinnar á samgöngur og starfsemi á svæðinu. Einnig þarf að huga að öruggum og greiðum leiðum fyrir gangandi vegfarendur á svæðinu. Með þessu er lögð áhersla á að ný uppbygging og góðar samgöngutengingar fari saman við raunhæfar lausnir í bílastæðamálum og að skipulagsferlið sé gagnsætt og fyrirsjáanlegt fyrir íbúa, fyrirtæki og uppbyggingaraðila.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um uppbyggingu blandaðrar byggðar við Suðurlandsbraut, Hallarmúla og Ármúla. Hér er tækifæri til að nýta vannýtt land í grónu borgarhverfi, fjölga íbúðum og skapa fjölbreytt og mannvænt borgarumhverfi í góðum tengslum við Borgarlínu. Við teljum mikilvægt að ábendingar umsagnaraðila verði teknar alvarlega við áframhaldandi skipulagsvinnu, sérstaklega hvað varðar loftgæði, hljóðvist, græn svæði og góð dvalarsvæði fyrir íbúa. Einnig þarf að skoða fjölda bílastæða í ljósi nálægðar við öflugar almenningssamgöngur. Við viljum jafnframt leggja áherslu á fjölbreytt húsnæðisform og að skoðað verði hvort hluti íbúðanna geti orðið á vegum óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga. Þetta verkefni er gott dæmi um hvernig Reykjavík getur vaxið inn á við, nýtt fyrirliggjandi innviði betur og skapað ný heimili án þess að brjóta undir byggð nýtt land.
     

    Fylgigögn

  2. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, dags. 20. október 2026. USK22120094
     

    Fylgigögn

  3. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa, dags. 20. október 2026. USK24070166
     

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar um gangbrautir á skólaleið barna í Rimahverfi, sbr. 11. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags, 12. október 2026.
    Samþykkt að vísa inn í vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar. USK26100050

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir umsögnina og þær skýringar sem þar koma fram. Tillagan var lögð fram í kjölfar ítrekaðra ábendinga um að börn og forráðamenn þeirra upplifi sig ekki örugg á gönguleiðum til og frá Rimaskóla. Við leggjum áherslu á að slíkar ábendingar séu teknar alvarlega og brugðist við þeim með skjótum hætti. Umferðaröryggi barna verður ávallt að njóta forgangs og mikilvægt er að ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir áður en slys verða. Við óskum því eftir að umræddar gönguþveranir verði skoðaðar sérstaklega og nauðsynlegum úrbótum hraðað, hvort sem þær felast í merkingum gangbrauta, bættri lýsingu eða hraðalækkandi aðgerðum.
     

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um heildarmat COWI á breytingum við Höfðabakka, sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 13. október 2026. USK26090490

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir skýr svör sérfræðinga samgöngudeildar. Það vekur hins vegar athygli og nokkrum áhyggjum að ákveðið hefur verið að vinna áfram með endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups þrátt fyrir að sérfræðingar borgarinnar telji slíka útfærslu skerða umferðaröryggi. Í umsögninni kemur skýrt fram að framhjáhlaupið fjölgi óljósastýrðum árekstrapunktum, auki hættu á meiri aksturshraða og flæki samspil akandi, gangandi og hjólandi vegfarenda. Jafnframt kemur fram að sviðsmynd 2, án framhjáhlaups, bæti afkastagetu gatnamótanna verulega og anni núverandi umferð. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að umferðaröryggi allra vegfarenda sé ávallt í forgangi við hönnun gatnamóta. Við leggjum því áherslu á að heildstætt mat á fyrirhugaðri útfærslu liggi fyrir áður en endanleg ákvörðun er tekin og að ekki verði ráðist í breytingar sem skerða öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda til að greiða götu bílaumferðar.
     

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um hjólanet höfuðborgarsvæðisins, sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 12. október 2026. USK26090491

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir svörin og fagna því að mikilvægi stofnleiða hjólreiða meðfram Höfðabakka sé áréttað. Það vekur hins vegar athygli að unnið sé áfram með endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups án þess að fyrir liggi hvernig tryggja eigi örugga og greiða leið gangandi og hjólandi vegfarenda um gatnamótin. Umrædd hjólaleið er hluti af stofnneti hjólreiða höfuðborgarsvæðisins og mikilvægt að uppbygging þess verði ekki látin víkja fyrir aukinni afkastagetu bílaumferðar. Við leggjum áherslu á að heildstætt mat á öllum ferðamátum liggi fyrir áður en endanleg ákvörðun er tekin um útfærslu gatnamótanna og að umferðaröryggi allra vegfarenda verði haft að leiðarljósi.
     

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 9:54

Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald

Birkir Ingibjartsson Margrét Rós Sigurjónsdóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Pétur Hafliði Marteinsson

Sigrún Ásta Einarsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 28. október 2026