Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2014, miðvikudaginn 5. nóvember kl. 09:10, var haldinn 85. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Vindheimum. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Áslaug Friðriksdóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Sigurborg Ó Haraldsdóttir árheyrnarfulltrúi.  Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Erna Hrönn Geirsdóttir, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Bjarnason, Magnús Ingi Erlingsson og Marta Grettisdóttir.

Fundarritari var Örn Sigurðsson.

Þetta gerðist:

 (E) Umhverfis- og samgöngumál

1. Borgarlýsing, Mál nr. US140198

Kynning á tillögum um endurbætur og breytingar á borgarlýsinu með tilliti  til,  að banna á notkun ákveðinna gerða af ljósgjöfum á næsta ári.  

Kynnt. 

Gísli Garðarsson tekur sæti á fundinum kl. 09:19. 

Ársæll Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

2. Blesugróf, setja skilti um Tryggva Emilsson við tré Mál nr. US140101

Þórarinn Friðjónsson, Vatnsstígur 14, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf Þórarins Friðjónssonar f.h. afkomendur Tryggva Emilssonar dags. 2. apríl 2014 um að setja skilti um Tryggva Emilsson við tré í Blesugróf.

Kynnt. 

Þórólfur Jónsson deildarstjóri náttúru og garða tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

3. Fjölskyldugarðar, næstu skref Mál nr. US140191

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. október 2014 varðandi næstu skref í rekstri fjölskyldugarða Reykjavíkur. 

Frestað. 

Samþykkt að kynna framlagða tillögu fyrir hverfaráðum Reykjavíkurborgar. 

Þórólfur Jónsson deildarstjóri náttúru og garða tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

4. Klambratún, tímabundin æfingaaðstaða fyrir knattspyrnufélagið Valur. 

US140193 Mál nr. US140193

Lagt fram bréf Jóns Valgeirs Björnssonar f.h. samráðs- og samhæfingarhóps vegna uppbyggingar og framkvæmda við Hlíðarenda ódags. um tímabundna æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Val á Klambratúni.  Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, deildarstjóra náttúru og garða  dags. 3. nóvember 2014. 

Samþykkt að vísa erindinu til umsagnar í hverfisráði Hlíða.  

Þórólfur Jónsson deildarstjóri náttúru og garða tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

5. Reykjavíkurborg, ástandsmat trjágróðurs Mál nr. US140195

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram minnisblað Eflu verkfræðistofu dags. 23. september 2014 varðandi ástandsmat trjágróðurs í Grafarvogi, Bryggjuhverfi og Þórsgötu.

Kynnt. 

Þórólfur Jónsson deildarstjóri náttúru og garða tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

(A) Skipulagsmál

6. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 31. október 2014.

7. Kvosin, breyting á deiliskipulagi (01.1) Mál nr. SN140559

Kynnt kortlagning notkunar og forsendur fyrir breytingu á deiliskipulagi í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 ásamt greinargerð Önnu Maríu Bogadóttur dags. í október 2014. 

Anna María Bogadóttir arkitekt kynnir.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Kristín Soffía Jónsdóttir tekur sæti á fundinum kl. 10:59. 

8. Hlíðarendi, breyting á deiliskipulagi (01.62) Mál nr. SN140049

Valsmenn hf., Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík

Knattspyrnufélagið Valur, Laufásvegi Hlíðarenda, 101 Reykjavík

ALARK arkitektar ehf, Dalvegi 18, 201 Kópavogur

Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Valsmanna hf. og Knattspyrnufélagsins Valur dags. 4. febrúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda í Vatnsmýri. Í breytingunni felst fjölgun á íbúðum, aukningu á atvinnuhúsnæði o.fl., samkvæmt uppdr. Alark arkitekta ehf. dags. 28. apríl 2014 br. 1. nóvember 2014. Einnig er lögð fram greinargerð Alark arkitekta ehf. dags. 28. apríl 2014, síðast breytt 1. nóvember 2014, og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 8. ágúst 2014. Tillagan var auglýst frá 27. júní til og með 8. ágúst 2014. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigurður Thoroddsen dags. 5. ágúst 2014, Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík dags. 7. ágúst 2014, Samtök ferðaþjónustunnar dags. 8. ágúst 2014, Mýflug hf. og læknisfr. þjónusta sjúkraflugs dags. 8. ágúst 2014, Icelandair Group dags. 8. ágúst 2014 og Hjarta í Vatnsmýri dags. 5. ágúst 2014. Einnig er lagt fram minnisblað verkfræðistofunnar Vatnaskil dags. 9. október 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. nóvember 2014. 

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. nóvember 2014 með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar  Hjálmars Sveinssonar og Kristínar Soffíu Jónsdóttur, fulltrúa Bjartrar framtíðar Magneu Guðmundsdóttur og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Gísla Garðarssonar gegn þrem atkvæðum fulltrúa Framsóknarflokksins og flugvallavina Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Júlíusar Vífils Ingvarssonar og Áslaugar Maríu Friðriksdóttur.  

Áslaug María Friðriksdóttir víkur af fundi kl. 13:51, þá var einnig búið að fjalla um liði 11, 12 og 13. 

Kristín Soffía Jónsdóttir víkur af fundi kl 13:55,  þá var einnig búið að fjalla um liði 11, 12 og 13. 

Fulltrúi Framsóknarflokksins og flugvallavina Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

„Framsókn og flugvallarvinir leggja fram svohljóðandi bókun:

Í umsögn skipulagsfulltrúa við athugasemdum sem bárust varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda er vísað til þess að athugasemdir er varða flugbraut 06-24 eigi ekki við rök að styðjast þar sem flugbrautina sé ekki lengur að finna á skipulagi þar sem í gildi sé deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar sem tók gildi 6. júní 2014 sem ekki gerir ráð fyrir flugbrautinni. Við teljum að umrætt deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar sem samþykkt var í borgarstjórn 1. apríl 2014 og tók gildi 6. júní 2014 sé verulega áfátt, bæði varðandi málsmeðferð og efni, og eigi þeir ágallar að leiða til ógildingar deiliskipulagsins en umrætt deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar hefur verið kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. 

Eftir að deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar var samþykkt í borgarstjórn 1. apríl 2014 voru ýmis gögn og breytingar gerðar sem aldrei voru lagðar fram, ræddar eða samþykktar í sveitarstjórn. Með bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 28. apríl 2014, voru athugasemdir gerðar við tillöguna. Þessar athugasemdir Skipulagsstofnunar komu ekki til umræðu í sveitarstjórn heldur breytti skipulagsfulltrúi uppdrættinum og sendi Skipulagsstofnun bréf, dags. 13. maí 2014, þar sem upplýst er hvaða lagfæringar hafi verið gerðar, ásamt leiðréttum uppdrætti. 

Umhverfis- og skipulagssvið sendi svo Skipulagsstofnun, tæpum tveimur mánuðum eftir að deiliskipulagið hafði verið samþykkt í borgarstjórn, eða með bréfi, dags. 26. maí 2014, eftirfarandi gögn vegna yfirferðar Skipulagsstofnunar: minnisblað skipulagsfulltrúa til borgarráðs, dags. 20. maí 2014,  bréf frá Isavia, dags. 23. apríl 2014, bréf til Isavia, dags. 20. maí 2014 og breytta umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2014.  

Deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar var samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 10. mars 2014, þ.e. eins og umsögnin leit upphaflega út en ekki með þeim breytingum sem gerðar voru á umsögninni eftir að bréfið kom frá forstjóra Isavía sem dagsett er 23. apríl 2014 en skipulagsfulltrúi breytti umsögninni frá 10. mars 2014 til samræmis við ábendingar Isavia og var umsögnin send breytt til Skipulagsstofnunar með bréfi, dags. 26. maí 2014, án þess að umræddar breytingar hafi verið lagðar fram, ræddar og samþykktar í sveitarstjórn. Þá var minnisblað skipulagsfulltrúa til borgarráðs, dags. 20. maí 2014, bréf forstjóra Isavia, dags. 23. apríl 2014, og bréf skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2014 hvorki lögð fram, rædd eða samþykkt í sveitarstjórn í tengslum við breytingar á umræddu deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. 

Áhættumat vegna fyrirhugaðrar lokunar flugbrautar 06-24 liggur ekki fyrir. Þá hefur nothæfisstuðull Reykjavíkurflugvallar með og án flugbrautar 06-24 ekki verið endurreiknaður í samræmi við reglugerð 464/2007 um flugvelli. Þá liggur ekki fyrir afstaða Samgöngustofu til lokunarinnar. Þegar þessi atriði liggja fyrir væri fyrst hægt að taka upplýsta ákvörðun um hvaða áhrif slík lokun hefði á umhverfi innanlandsflugs og sjúkraflugs. Er því órökrétt og óábyrgt að gera ráð fyrir byggingum sem teppa aðflug að flugbrautinni og loka henni áður en slíkar upplýsingar liggja fyrir. Í stað faglegra vinnubragða er böðlast áfram með breytingar á deiliskipulagi sem ganga út frá því að flugbrautin sé ekki lengur til. Þá er nefnd sem skipuð var um framtíðarstaðsetningu innanlandsflugs enn að störfum og hefur formaður nefndarinnar óskað eftir svigrúmi til að klára þá vinnu.“ 

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson bókaði eftirfarandi: 

„Með samkomulagi Reykjavíkurborgar, Innanríkisráðuneytisins og Icelandair var gerð þverpólitísk sátt um að setja á laggirnar nefnd sem hefur það verkefni að finna framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallar. Nefndin hefur nýlega greint frá þeim fimm mögulegu flugvallarstæðum sem hún hefur nú til skoðunar og er Vatnsmýrin eitt af þeim. Rögnunefndin, eins og hún hefur verið kölluð, er enn að störfum og hefur formaður hennar óskað eftir svigrúmi til að klára vinnuna.  Í síðustu viku sagði Innanríkisráðherra varðandi deiliskipulag Hlíðarenda og áhrif  þess á Reykjavíkurflugvöll eftirfarandi: „Reykjavíkurborg og ríki voru sammála um að taka ekki stefnumótandi ákvarðanir er varða þetta mál fyrr en Rögnunefndin hefur lokið störfum“. Icelandair gerir athugasemd við deiliskipulag Hlíðarenda og telur „óviðunandi að afkastageta og áreiðanleiki núverandi flugvallarstæðis verði skert með óafturkræfum hætti“ á meðan verið er að vinna að staðarvali fyrir innanlandsflugið. Það er því ljóst að þrír af fjórum fulltrúum í Rögnunefndinni telja að bíða verði þar til niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir. Einungis einn nefndarmanna, Dagur B. Eggertsson, skilur samkomulagið með öðrum hætti. 

Til að virða þá tímabundnu þverpólitísku sátt varðandi nefndarvinnuna, framtíðarstaðsetningu flugvallararins og öryggi hans greiða fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði gegn tillögunni, þar sem ekki er tímabært að skipuleggja svæði með óafturkræfum hætti þegar óvissa ríkir að þessu leyti.“ 

Fulltrúi Samfylkingarinnar  Hjálmar Sveinsson, fulltrúi Bjartrar framtíðar Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Gísli Garðarsson og fulltrúi Pírata Sigurborg Ó. Haraldsdóttir bókuðu:

„Tillagan snýst um breytingu á þegar samþykktu deiliskipulagi Hlíðarendasvæðis, þar sem gert er ráð fyrir að  flugbraut 06-24 víki. Breytingin felur eingöngu í sér fjölgun íbúða og breytta tilhögun  á atvinnuhúsnæði. Hún fellur vel að meginmarkmiðum nýs aðalskipulags að þétta íbúðarbyggð í vesturhluta borgarinnar og stytta vegalengdir í Reykjavík eins og kostur er.  Umhverfis og skipulagsráð hefur nýtt tímann til að fara í saumana á helstu umhverfisþáttum skipulagsins.“ 

Vísað til borgarráðs.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

9. Vatnsveituvegur 4, breyting á deiliskipulagi (04.767.7) Mál nr. SN140537

Sigurbjörn Magnússon, Bleikjukvísl 11, 110 Reykjavík

Luigi Bartolozzi, Túngata 11, 225 Álftanes

Lögð fram umsókn Sigurbjörns Magnússonar dags. 10. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Víðidals vegna lóðarinnar nr. 4 við Vatnsveituveg. Í breytingunni felst að byggja við austurhlið hesthússins, samkvæmt uppdr. Luigi Bartolozzi ark. dags. 8. október 2014. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa dags. 22. september 2014. 

Samþykkt með vísan til 2. mgr. 12. gr. samþykktar um umhverfis- og skipulagsráð. 

Samþykkt að falla frá frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

(B) Byggingarmál

10. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjöl með fundargerð þessari eru nr. 801 frá 4. nóvember 2014. 

 (C) Fyrirspurnir

11. Sigtún 38 og 40, (fsp) uppbygging (01.366.0) Mál nr. SN130590

Íslandshótel hf., Sigtúni 38, 105 Reykjavík

Atelier Arkitektar slf., Skaftahlíð 16, 105 Reykjavík

Lögð fram til kynningar fyrirspurn Íslandshótels slf. dags. 10. desember 2013 varðandi uppbyggingu á lóðunum nr. 38 og 40 við Sigtún ásamt uppdráttum Atelier Arkitekta hf. dags. í október 2014.

Björn Skaptason arkitekt kynnir

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

 (D) Ýmis mál

12. Hæg breytileg átt, Kynning Mál nr. US140188

Kynning á framtíðarhugmyndum verkefnisins "hæg breytileg átt"

Fulltrúar , Krads Kristján Örn Kjartansson og Kristján Eggertsson arkitektar kynna

13. Samgöngumiðstöð, samkeppni og skipun dómnefndar Mál nr. SN140294

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 9. júlí 2014 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 6. júní 2014 ásamt erindi skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar dags. 12. maí 2014 þar sem lagt er til að borgarráð samþykki að efna til samkeppni og skipa dómnefnd vegna áframhaldandi vinnu við þróun samgöngumiðstöðvar og annarrar byggðar á U-reit. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 5. júní 2014 að vísa erindinu til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. nóvember. 

Fulltrúi Mannvits Þorsteinn R. Hermannsson kynnir. 

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. nóvember 2014 samþykkt.

14. Umhverfis- og skipulagssvið, innkaupaskýrsla Mál nr. US130045

Lagt fram yfirlit yfir viðskipti umhverfis- og skipulagssviðs við innkaupadeild í október 2014. 

15. Friggjarbrunnur 51, breyting á deiliskipulagi (02.693.1) Mál nr. SN140354

111 ehf, Vesturlbr Fífilbrekku, 113 Reykjavík

Mansard - Teiknistofa ehf, Hraunbrún 30, 220 Hafnarfjörður

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. október 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar að Friggjarbrunni 51.

16. Reynisvatnsás, Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins varðandi leiksvæði í Reynisvatnsás. Mál nr. US130208

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:

21. ágúst 2013 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis og skipulagsráði fram svofellda tillögu: „Lagt er til að fundinn verði heppilegur staður fyrir leiksvæði barna í Reynisvatnsási. Haft verði samráð við hverfisráð og nærliggjandi íbúa varðandi staðsetningu, frágang og leiktæki“. Tillagan var samþykkt og skrifstofu umhverfisgæða falið að finna hentugan stað fyrir leiksvæði í hverfinu. Ef þess gerðist þörf yrði gerð tillaga að breytingum á deiliskipulagi hverfisins og hún grenndarkynnt. Hvað líður þessu verkefni? 

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 14:35.

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð 

Hjálmar Sveinsson 

                             Magnea Guðmundsdóttir Gísli Garðarsson

                            Júlíus Vífill Ingvarsson             Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir 

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2014, þriðjudaginn 4. nóvember kl. 10:18 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 801. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Jón Hafberg Björnsson, Eva Geirsdóttir, Björn Kristleifsson, Björn Stefán Hallsson, Sigrún Reynisdóttir, Skúli Þorkelsson og Erna Hrönn Geirsdóttir

Fundarritari var Erna Hrönn Geirsdóttir

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 9 (01.140.414) 100855 Mál nr. BN048234

SÓLEY MINERALS ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík

Madison fasteignir ehf., Hraunteigi 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað fyrir 80 gesti í flokki III með opnunartíma til 23:00 á virkum dögum og til kl. 01:00 um helgar í rými austanmegin á 1. hæð í húsinu á lóð nr. 9 við Aðalstræti.

Tvær jákvæðar fyrirspurnir BN046885 og BN047186 dags. 28. nóvember 2013 og 11. febrúar 2014 fylgja erindi.

Einnig hljóðskýrsla frá verkfræðistofunni Eflu dags. 6. október 2014, minnisblað frá verkfræðistofunni Víðsjá um álag á lagnakerfi dags. 13. október 2014 og samþykki Gunnarsfells ehf. og Aðaleignar ehf. f. h. húsfélagsins Aðalstræti 9.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Arnargata 10 (01.553.296) 106567 Mál nr. BN048296

Einar Kristinn Hjaltested, Arnargata 10, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hæð og kjallara og þaksvalir þar ofan á og sólstofu að hluta til við norðvestur hlið hússins á lóð nr. 10 við Arnargötu.

Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. september 2014 fylgir erindinu sem og tölvupóstur frá Borgarsögusafni dags. 30.10. 2014.

Stærðir: fyrir, 131,7 ferm., stækkun, 54 ferm., eftir, 185,7 ferm.,

fyrir, 340,9 rúmm., stækkun 156,6 rúmm., eftir, 497,5 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Austurstræti 8-10 (01.140.404) 100847 Mál nr. BN048441

Reitir III ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að skipta í tvo veitingastaði, annan í flokk II, hinn í flokk III, veitingahúsi á jarðhæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 8-10 við Austurstræti.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Lagfæra skráningu.

4. Álftaland 7 (01.847.505) 108740 Mál nr. BN048451

Álftaland 7,húsfélag, Álftalandi 7, 108 Reykjavík

Sótt er um samþykki svalalokana á tvennum svölum á suðurhlið við íbúðir 0101 og 0201 sbr. erindi BN048246 sem samþykkt var 7.10. 2014 á fjölbýlishúsi á lóð nr. 7 við Álftaland.

Stærðir 5,7 ferm. x 2 = samtals 11,4 ferm., 3o,8 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bollagata 7 (01.247.709) 103405 Mál nr. BN048404

Davíð Kristófer Young, Bollagata 7, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera dyraop út á pall þar sem jarðvegsyfirborð hefur verið lækkað, sbr. fyrirspurn BN048050, við kjallaraíbúð á lóð nr. 7 við Bollagötu.

Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á teikningu.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

6. Borgartún 6 (01.220.002) 102778 Mál nr. BN048394

JHC ehf., Másstöðum 2, 301 Akranes

Sótt er um leyfi til að innrétta leikjamiðstöð í vesturenda kjallara húss á lóð nr. 6 við Borgartún.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

7. Borgartún 8-16A (01.220.107) 199350 Mál nr. BN047928

Höfðatorg ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tólf hæða fjölbýlishús með 80 íbúðum við Bríetartún, mhl. 09, merkt S1 í deiliskipulagi, á tveggja hæða kjallara sem tengist þegar byggðum bílakjallara á lóð nr. 8-16 við Borgartún.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2014.

Einnig bréf frá umsækjanda varðandi staðsetningu sorpgeymslu dags. 22. október 2014 og brunahönnun frá Eflu dags. 28. október 2014. 

Stærð:  Kjallari -2, 31,8 ferm., -1, 1.144,4 ferm., kjallari 00, 1.057,4 ferm., 1. hæð 1.175,7 ferm., 2. - 7. hæð, 1.092,6 ferm., 8. hæð, 514,9 ferm., 9. og 10. hæð, 499,3 ferm., 11. hæð, 501,9 ferm., 12. hæð 430,5 ferm. og 13. hæð 49,1 ferm.

Samtals:  10.477,2 ferm., 41.081,1 rúmm.

B-rými:  ???? ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Borgartún 8-16A (01.220.107) 199350 Mál nr. BN047805

Höfðatorg ehf., Stórhöfða 34-40, 110 Reykjavík

HTO ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja 6. áfanga Höfðatorgs, bílakjallara BK5 á þremur hæðum með 235 stæðum, í horni við Skúlagötu/Skúlatún kringum byggingareit S1 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.

Stækkun:  8.516,7 ferm., 31.166,2 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Brautarholt 2 (01.241.201) 103019 Mál nr. BN048262

Kaffismiðja Íslands ehf., Kárastíg 1, 101 Reykjavík

Centrum fjárfestingar slhf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun á anddyri og leyfi til að innrétta kaffihús í flokki II fyrir 62 gesti í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 2 við Brautarholt.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagfulltrúa frá 10. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. dags. 9. október 2014.

Áður gerð stækkun:  9 ferm., 35,2 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Lagfæra skráningu.

10. Bæjarflöt 10 (02.575.803) 178967 Mál nr. BN048390

Goð ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík

Sótt er um samþykki vegna lokaúttektar á þegar gerðum breytingum á iðnaðarhúsi  á lóð nr. 10 við Bæjarflöt.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

11. Faxafen 11 (01.463.304) 105676 Mál nr. BN048292

MSG ehf, Háuhlíð 10, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta notkun norðurhluta kjallara og innrétta þar verslun í stað vörugeymslu í verslunarhúsi á lóð nr. 11 við Faxafen.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 19.9. 2014 og samþykki meðeigenda ódags.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

12. Fiskakvísl 10-16 (04.236.102) 110931 Mál nr. BN048429

Ólafur Örn Ingólfsson, Fiskakvísl 10, 110 Reykjavík

Erna Eiríksdóttir, Fiskakvísl 12, 110 Reykjavík

Geir Jón Grettisson, Þorrasalir 9, 201 Kópavogur

Jóhann Gunnarsson, Fiskakvísl 16, 110 Reykjavík

Anna María Aðalsteinsdóttir, Fiskakvísl 16, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum kjallara undir  raðhúsi á lóð nr. 10-16 við Fiskakvísl.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.

Erindi fylgir samþykki allra eigenda Fiskakvíslar 10-16 dags. 19. október 2014..

Stækkun:  Hús nr. 10, 104,4 ferm., nr. 12, 101,7 ferm., nr. 14, 101,7 ferm., nr. 16, 104,4 ferm.

Stækkun samtals:  412,2 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Synjað.

Samræmist ekki deiliskipulagi.

Vísað til  umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.

13. Friggjarbrunnur 17-19 (02.693.504) 205773 Mál nr. BN048468

Sveinn Óskar Þorsteinsson, Brúnastaðir 59, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BN048225, breytt er innra skipulagi í kjallara parhúss á lóð nr. 17-19 við Friggjarbrunn.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

14. Friggjarbrunnur 55-57 (02.693.105) 205838 Mál nr. BN048412

RED I hf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús, 2. áfanga og í framhaldi af erindi BN047030, þrjár hæðir og kjallara með 9 íbúðum á lóð nr. 55-57 við Friggjarbrunn.

Stærð 2 áfangi:  1.701 ferm., 2.807,5 rúmm.

Friggjarbrunnur 55-57 verður samtals:  7.369,1 ferm., 20.838,4 rúmm.

Gjald kr. 9.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Frostaskjól 25-31 (01.515.103) 105817 Mál nr. BN048344

Inga Rósa Guðmundsdóttir, Frostaskjól 103, 107 Reykjavík

Jóhann Ingi Kristjánsson, Frostaskjól 103, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu á suðurhlið og til að stækka glugga í kjallara raðhúss nr. 25 á lóð nr. 25-31 við Frostaskjól.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 15. október til og með 12. nóvember 2014 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 24. október er erindið nú lagt fram að nýju.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda á lóð dags. í september 2014.

Stækkun:  17,3 ferm., 49,9 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Grandagarður 20 (01.112.501) 100033 Mál nr. BN048200

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta sorpflokkunarstöð mhl. 11, steypa veggi, sem afmarka lóð og malbika opna veiðafærageymslu á lóð nr. 20 við Grandagarð.

Stærðir: 259 ferm., 1.488 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

17. Grensásvegur  3-7 (01.461.001) 105664 Mál nr. BN048475

BK ehf, Grensásvegi 5, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN045602 vegna athugasemda frá SHS þar sem kemur fram lagfæring á brunahólfun í rými 0101 í húsinu á lóð nr. 5 við Grensásveg. 

Bréf frá hönnuði dags. 28. októ. 2014 fylgir.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Grundarstígur 10 (01.183.308) 101960 Mál nr. BN048465

1904 ehf., Þingholtsstræti 16, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta skilgreiningu veitingarstaðar úr flokk I í flokk II veitingastaður með vínveitingaleyfi fyrir 45 gesti í húsinu á lóð nr. 10 við Grundarstíg. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

19. Hafnarstræti 17 (01.118.502) 100098 Mál nr. BN048484

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi skv. grein 2.4.5. til að rífa skúra og hefja jarðvegsframkvæmdir, sjá erindi BN048060, á baklóð húss nr. 17 við Hafnarstræti.

Niðurrif:  225 ferm., 686,9 rúmm.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Helluvað 7-21 (04.731.601) 199077 Mál nr. BN048423

Helluvað 7-21,húsfélag, Helluvaði 7-21, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á eldvarnarmerkingum hurða vegna lokaúttektar í stigahúsum inn á geymsluganga í kjallara fjölbýlishúss, MHL 01, á lóð nr. 7-13 við Helluvað.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

21. Helluvað 7-21 (04.731.601) 199077 Mál nr. BN048424

Helluvað 7-21,húsfélag, Helluvaði 7-21, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á eldvarnarmerkingum vegna hurða í stigahúsum inn á geymsluganga í kjallara v/lokaúttektar í fjölbýlishúsi, MHL 02, á lóð nr. 7-13 við Helluvað.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

22. Hjallaland 1-31 2-40 (01.862.001) 108797 Mál nr. BN048428

Halldóra Árndís Ingvadóttir, Hjallaland 1, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að útbúa bílastæði, sbr. fyrirspurn BN047989, við hús nr. 1 á lóð nr. 1 - 40 við Hjallaland.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. júlí 2014.

Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 20. október 2014.

Gjald kr. 9.500

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. júlí 2014 og útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014.

23. Hólmaslóð - Örfirisey Mál nr. BN048491

Blómaþing ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að flytja hús, mhl. 01 sem staðsett er á lóð nr. 58A við Hverfisgötu, til tímabundinnar geymslu á lóð nr. 1 við Hólmaslóð Örfirisey.  Sbr. erindi BN048334.

Erindi fylgir bréf og tölvupóstur frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 24. október 2014 og bréf umsækjanda dags. 30. október 2014.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt. 

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Með vísan til tölvupósts skrifstofu eignar og atvinnuþróunar dags. 24. október 2014.

24. Hólmaslóð - Örfirisey Mál nr. BN048478

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að flytja hús, mhl. 01 sem staðsett er á lóð nr. 61 við Hverfisgötu, til tímabundinnar geymslu á lóð nr. 1 við Hólmaslóð Örfirisey.  Sbr. erindi BN048334.

Erindi fylgir bréf frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 29. október 2014, staðfesting borgarráðs dags. 15. september 2014, gjafaafsal dags. 28. október og samkomulag við Faxaflóahafnir dags. 27. október 2014.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til tölvupósts skrifstofu eignar og atvinnuþróunar dags. 29. október 2014.

25. Hólmaslóð 2 (01.111.501) 100027 Mál nr. BN048300

Spector ehf., Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að loka hurðargati úr kaffistofu í rými 0101, mhl. 01, inn í stigahús  á 1. hæð í húsi á lóð nr. 2 við Hólmaslóð.

Meðfylgjandi er staðfesting Spectors ehf. dags. 22. september 2014 sem og annarra meðeigenda.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

26. Hólmaslóð 4 (01.111.401) 100023 Mál nr. BN048459

Brimrún ehf., Hólmaslóð 4, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum frá síðustu samþykkt 13. desember 2005 sem felast í nýjum fellistiga frá 2. hæð og breytingu á herbergjaskipan á 2. hæð í húsi á lóð nr. 4 við Hólmaslóð.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

27. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN048454

Gesthof ehf, Hverhamri, 810 Hveragerði

Sótt er um samþykki á breytingu á nýsamþykktu erindi frá 24. júní 2014, BN047674, sem felst í að brunahólfun íbúðar er felld út í rishæð hússins á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Ingólfsstræti 1A (01.171.021) 101365 Mál nr. BN048153

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að setja sex fjögurra manna borð á gangstétt fyrir utan veitingastaðinn Íslenska barinn sem er á jarðhæð húss á lóð nr. 1A við Ingólfsstræti. Sbr. BN047295.

Umsögn skrifstofu reksturs og umhirðu dags. 3. nóvember 2014 fylgir erindinu.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til leiðbeininga og skilyrða í umsögn skrifstofu reksturs og umhirðu dags. 3. nóvember 2014

29. Ingólfsstræti 2A (01.170.005) 101323 Mál nr. BN048457

P. Petersen ehf., Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir útisalernum tímabundið á svæði sem ætlað er til vörumóttöku framan við Gamla Bíó á lóð nr. 2A við Ingólfsstræti.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til umsagnar skrifstofu rekstur og umhirðu.

30. Kleppsvegur Kleppur (01.404.001) 104957 Mál nr. BN048471

Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að girða af útisvæði á þaki tengibyggingar norðan við deild 15 ásamt afgirtum garði á jarðahæð, Kleppsspítala, mhl. 04 við Kleppsveg.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Korngarðar 1 (01.323.101) 222494 Mál nr. BN048488

Hagar hf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er um takmarkað byggingarleyfi  fyrir jarðvinnu, uppsteypu á sökklum, botnplötu og lögnum í grunn að Korngörðum 1, sbr. erindi BN048020.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

32. Kringlan  4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN048470

Reitir VII ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að skipta einingu S-354 á 3. hæð Kringlunnar í tvær einingar og breyta innréttingum og fronti í þessari einingu í verslunarmiðstöðinni Kringlunni á lóð nr. 4-12 við Kringluna.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Lambhagavegur 23 (02.684.101) 189563 Mál nr. BN048277

Hafberg Þórisson, Lambhagavegur 23, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja við til vesturs, byggja opið rými við suðurhlið og klæða að utan húsið með steinklæðningu á lóð nr. 23 við Lambhagaveg. 

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu.

Stækkun húss með skiptiklefa og kjallara: 77,7 ferm., 275,2 rúmm. 

Stærði opið skýli B-rými: 58 ferm., 201,3 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Laugavegur 86-94 (01.174.330) 198716 Mál nr. BN048453

Púkinn ehf., Grensásvegi 14, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta "take away" núðlusúpustað á 1. hæð í rými 0101 í húsi á lóð nr. 86-94 við Laugaveg.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Lóuhólar 2-6 (04.642.701) 111914 Mál nr. BN048452

Reginn atvinnuhúsnæði ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að innrétta aðstöðu fyrir ræktun á baunaspírum í rými 0105 í verslunarhúsi á lóð nr. 2-6 við Lóuhóla.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Naustabryggja 31-33 (04.023.202) 186176 Mál nr. BN048397

Arcus ehf, Fossaleyni 16, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús, Básbryggju 31-33, fjórar hæðir og kjallara með 30 íbúðum, sem verður mhl. 05 á lóð nr. 31-33 við Naustabryggju.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2014.

Stærð:  Kjallari 588,6 ferm., 1. hæð 744 ferm., 2. og 3. hæð 736,8 ferm. og 4. hæð 833,4 ferm.

Samtals:  3.639,6 ferm., 10.552 rúmm.

B-rými 84,6 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2014.

37. Naustabryggja 31-33 (04.023.202) 186176 Mál nr. BN048398

Arcus ehf, Fossaleyni 16, 112 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús, Tangabryggju 12, fjórar hæðir og kjallara með 32 íbúðum, sem verður mhl. 04 á lóð nr. 31-33 við Naustabryggju.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2014.

Stærð:  Kjallari 485,6 ferm., 1. hæð 732,5 ferm., 2. og 3. hæð 713 ferm. og 4. hæð 665 ferm.

Samtals:  3.309,1 ferm., 10.124,6 rúmm.

B-rými 115,6 ferm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. október 2014.

38. Nauthólsvegur 50 (01.619.601) 106641 Mál nr. BN048467

Iceeignir ehf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að staðsteypa opið sorpskýli og gámaskyggni, mhl. 03 og gasgeymslu, mhl. 04 norðan megin við Hótel Loftleiðir/Icelandair á lóð nr. 50 við Nauthólsveg.

Stærðir, stækkun xx ferm. A rými, B rými, xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Norðlingabraut 4 (04.734.301) 204832 Mál nr. BN048460

Snorri Hjaltason, Ólafsgeisli 11, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft atvinnuhús úr forsteyptum einingum á lóð nr. 4 við Norðlingabraut

Stærð:  1. hæð 1.154,6 ferm., 2. hæð 1.154,6 ferm.

A-rými:  2.309,2 ferm., 9.736,4 rúmm.

B-rými:  502,9 ferm., 1.795,4 rúmm.

Samtals:  2.812,1 ferm., 11.531,8 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Norðurgarður 1 (01.112.201) 100030 Mál nr. BN048201

HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta umbúðageymslu og frystivélahús, mhl. 05, sem verður byggt við mhl. 01 og til að koma fyrir Ammoníakstanki, mhl. 07, safntanki mhl. 08 og olíuskilju, mhl. 06 á lóð nr. 1 við Norðurgarð.

Erindinu fylgir útreikningur af varmatapsramma dags 24. september 2014, einnig jákvæð umsögn frá matvælastofnun dags 2. október 2014. 

Mhl. 05 umbúðageymsla og frystivélahús:  1.745 ferm., 9.237,5 rúmm.

Mhl. 06 Olíuskilja:  5,5 ferm., 4,9 rúmm. 

Mhl. 07 Ammoníakstankur:  13,1 ferm., 22,7 rúmm. 

Mhl. 08 Safngeymir (Kodens tankur): 22,9 ferm., 79,8 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

41. Nökkvavogur 4 (01.441.002) 105408 Mál nr. BN048456

Snorri Petersen, Nökkvavogur 4, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 4 við Nökkvavog.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Óðinsgata 1 (01.181.003) 101727 Mál nr. BN048347

Þuríður Ottesen, Óðinsgata 1, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, hækka þak, byggja svalir og innrétta íbúðarherbergi í risi íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 1 við Óðinsgötu.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt dags. 10. og 13. október, umsögn Minjastofnunar Íslands og Borgarsögusafns dags. 16. september 2014.

Stækkun:  47,2 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

43. Rauðagerði 39 (01.821.307) 108312 Mál nr. BN048477

Úlfar Ægir Þórðarson, Rauðagerði 39, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem gerð er grein fyrir óútgröfnu rými og notkun á því í einbýlishúsi á lóð nr. 39 við Rauðagerði.

Stækkun XX ferm og XX rúmm. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

44. Rauðarárstígur 41 (01.244.201) 103185 Mál nr. BN048396

Íslandshótel hf., Sigtúni 38, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta fimm hótelherbergi þar sem áður var verslun á jarðhæð húss á lóð nr. 41 við Rauðarárstíg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.

Gjald kr. 9.500

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2014.

45. Síðumúli 31 (01.295.301) 103843 Mál nr. BN048365

Ferðaklúbburinn 4x4, Eirhöfða 11, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 1. og 2. hæð í húsi á lóð nr. 31 við Síðumúla.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

46. Skeiðarvogur 20 (01.441.016) 105422 Mál nr. BN048455

Kristín Ósk Reynisdóttir, Klappakór 1a, 203 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr við þríbýlishús á lóð nr. 20 við Skeiðarvog.

Stærð:  32,3 ferm., 96,9 rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Skeljagrandi 15 (01.511.804) 105757 Mál nr. BN048466

Sigurður Ásgeir Kristinsson, Skeljagrandi 15, 107 Reykjavík

Sótt  eru leyfi til að fjarlægja burðarveggi á jarðhæð, setja H bita í staðinn fjarlægja létta veggi í risi og staðfæra baðherbergi í húsinu á lóð nr. 15 við Skeljagranda. 

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Skógarás 21 (04.386.502) 111537 Mál nr. BN048393

Skeiðarvogur ehf, Móvaði 41, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki á stækkun svala í suður átt, sbr. erindi BN039376 dags. 27. janúar 2009, á efri hæð húss á lóð nr. 21 við Skógarás.

Umsögn lögfræðings dags. 29. október 2014 fylgir og úrdráttur úr skipulagsskilmálum.

Stækkun svalir, B-rými:  22,5 ferm.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

49. Smiðshöfði 1 (04.061.101) 110602 Mál nr. BN047795

Pökkun og flutningar ehf, Smiðshöfða 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta húsvarðaríbúð á 2. hæð  (sjá BN029012 sem  samþykkt var 4. maí 2004) og koma fyrir svölum á milli mhl. 02 og 01 í atvinnuhúsi á lóð nr. 1 við Smiðshöfða.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. júní 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júní 2014. Einnig fylgir tölvupóstur frá hönnuði  dags. 19. september þar sem gerð er grein fyrir svölum.

Gjald kr. 9.500 + 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Stangarholt 34 (01.246.207) 103314 Mál nr. BN048464

Helga Dögg Flosadóttir, Stangarholt 34, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 34 við Stangarholt.

Samþykki meðeigenda fylgir með á teikningu.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

51. Starmýri 2C (01.283.001) 103700 Mál nr. BN048388

Mýr-Inn ehf., Starmýri 2c, 108 Reykjavík

Vatnsás ehf., Hólmgarði 45, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta rými fyrir verslun og þjónustu í gistirými í flokki 2 í norðurenda húss nr. 2c á lóð nr. 2 við Starmýri.

Erindi fylgir jákvæð fyrirspurn BN048133 dags. 2. september 2014. Meðfylgjandi er tölvupóstur umsækjanda dags. 29.10. 2014.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

52. Suðurlandsbraut 6 (01.262.102) 103516 Mál nr. BN048469

Thomas Jan Stankiewicz, Blikanes 24, 210 Garðabær

Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga á rýmum innanhúss og til að innrétta samkomusal fyrir 100 gesti á 1. hæð í húsi á lóð nr. 6 við Suðurlandsbraut.

Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 28. október 2014 og umboð eiganda dags. 29.10. 2014.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. 

53. Traðarland 14 (01.871.502) 108830 Mál nr. BN048313

Ásgeir Loftsson, Noregur, Sótt er um leyfi til að breyta skipulagi innanhúss og stækka jarðhæð til austurs, suðurs og vesturs, klæða og einangra að utan, breyta gluggum, grafa frá kjallara og hækka miðhluta í einbýlishúsi á lóð nr. 14 við Traðarland.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. október 2014.

Meðfylgjandi er greinargerð arkitekts um framkvæmdirnar dags. 15. september 2014.

Stækkun brúttó: xx ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

54. Túngata 5 (01.161.112) 101207 Mál nr. BN048461

Mangi ehf., Túngötu 5, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki á þegar gerðri breytingu þar sem bílgeymslu mhl. 02 er breytt í íbúð, einnig er sótt um leyfi til að breyta hurð í glugga og byggja þak yfir bílastæði við hús á lóð nr. 5 við Túngötu.

Sbr. fyrirspurn BN048211 dags. 16. september 2014 og meðfylgjandi umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. október 2014.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Vísað til leiðbeininga og skýringa í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. október 2014.

55. Vesturberg  79-87 (04.661.501) 112038 Mál nr. BN048474

Jón Ragnarsson, Vesturberg 79, 111 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka svalir á húsi nr. 79 í raðhúsi á lóð nr. 79-87 vi' Vesturberg.

Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa ódagsett.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

56. Vesturgata 6-10A og Tryggvagata 18 (01.132.113) 216605 Mál nr. BN048054

Kirkjuhvoll sf, Pósthólf 1100, 121 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta núverandi húsnæði mhl 01, 03 og 04  í gistiheimili í flokki III, hámarksfjöldi gesta á gistiheimili er 62 í 31 herbergi og í veitingahús í flokki III fyrir 120 gesti í húsi nr. 6-10A Vesturgötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. september 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2014.

Umsögn skipulags 28. febrúar 2014, umsögn borgarsögusafns og Minjastofnun Íslands. dags. 18 sept. 2014, skýrsla brunahönnuðar dag. 17 sept. 2014 pg hljóðskýrsla dags. 23. sept. 2014 Samþykki meðeigenda húseignar nr. 18-18 a,b,c við Tryggvagötu fylgir.

Gjald kr. 9.500

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

57. Þórunnartún 4 (01.220.004) 102780 Mál nr. BN048443

Þórunnartún 4 slf., Bolholti 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri viðbyggingu, sjá BN047985, þannig að burðarvirki breytist úr steypu í stál í hóteli á lóð nr. 4 við Þórunnartún.

Gjald kr. 9.500

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

Fyrirspurnir

58. Ármúli 8A (01.290.-98) 103750 Mál nr. BN048480

Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Ármúla 12, 108 Reykjavík

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Spurt er hvort Reykjavíkurborg óski eftir að styrkja fegrun lóðar Fjölbrautarskólans við Ármúla og Leikskólans Múlaborgar nr. 8A við Ármúla.

Erindi fylgir bréf dags. 1. október 2014.

Erindi vísað til borgarráðs til afgreiðslu.

59. Barónsstígur 47 (01.193.101) 102532 Mál nr. BN048462

Álftavatn ehf., Pósthólf 4108, 124 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að selja léttvín í borðsal á 1. hæð í tengslum við rekstur Hostel B47 í Heilsuverndarstöðinni á lóð nr. 457 við Barónsstíg.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

60. Bergstaðastræti 10B (01.180.210) 101698 Mál nr. BN047627

Magnús Albert Jensson, Langagerði 88, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að byggja tengibyggingu yfir í geymsluskúr á baklóð og stækka íbúð á jarðhæð sem því nemur í húsi á lóð nr. 3 við Bergstaðastræti.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014.

61. Elliðavatnsblettur 3 (08.1--.-96) 113486 Mál nr. BN048473

Hrafn Gunnlaugsson, Laugarnestangi 65, 105 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu norðan við sumarhús á Elliðavatnsblett 3.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

62. Gerðhamrar 21 (02.298.505) 109172 Mál nr. BN048481

Svan Gunnar Guðlaugsson, Biskupsgata 25, 113 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að skrá sem tvær íbúðir einbýlishús á lóð nr. 21 við Gerðhamra.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

63. Laugavegur 56 (01.173.112) 101529 Mál nr. BN048476

Djús ehf., Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík

Spurt er hvort rekstrarleyfi fáist fyrir (veitingasölu) í flokki II þar sem búið er að afturkalla tvö leyfi á þessu svæði og pláss er í kvótanum fyrir veitingasölu í húsi á lóð nr. 56 við Laugaveg.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

64. Menntasveigur 15 (01.778.101) 218666 Mál nr. BN048389

Magnús Albert Jensson, Langagerði 88, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að byggja fyrri áfanga ásatrúarhofs, blótrými ásamt stoðrýmum á lóð nr. 15 við Menntasveig.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. október 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. október 2014.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Með vísa til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 31. október 2014.

65. Túngata 33 (01.137.412) 100682 Mál nr. BN048463

Sigrún Benediktsdóttir, Hávallagata 24, 101 Reykjavík

Spurt er hvort innrétta megi gististað með tveim íbúðum, í kjallara annars vegar og á 1. og 2. hæð hins vegar í húsi á lóð nr. 33 við Túngötu.

Með vísan til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 12:33.

Björn Stefán Hallsson

Björn Kristleifsson

Sigrún Reynisdóttir

Jón Hafberg Björnsson

Erna Hrönn Geirsdóttir

Skúli Þorkelsson

Eva Geirsdóttir