Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2017, miðvikudaginn 7. júní kl. 9.07, var haldinn 194. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstödd voru: Hjálmar Sveinsson, Karl Sigurðsson, Gísli Garðarsson, Sverrir Bollason, Halldór Halldórsson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Sigurborg Ó Haraldsdóttir  áheyrnarfulltrúi. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Nikulás Úlfar Másson, Þorsteinn Hermannsson, Gunnar Már Jakobsson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson og Marta Grettisdóttir.

Fundarritari er Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

(D) Ýmis mál

1. Gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001), byggingarfulltrúi Reykjavíkur   Mál nr. US170178

Kynntar niðurstöður ytri úttektar hjá embætti byggingarfulltrúa Reykjavíkur. 

Kynnt.

Pétur Helgason fulltrúi frá Vottun h/f  tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

2. Hallarmúli 2, málskot  (01.261.1) Mál nr. SN170343

Yrki arkitektar ehf, Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík

Lagt fram málskot Yrki arkitekta ehf., dags. 10. apríl 2017, vegna afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 24. mars 2017 um að hækka húsið á lóð nr. 2 við Hallarmúla, auka byggingarmagn og stækka byggingarreit til samræmis við nærliggjandi byggð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2017.

Fyrri afgreiðsla skipulagfulltrúa frá 24. mars 2017 staðfest.

Umhverfis- og skipulagsráð leggur enn fremur áherslu á að dregið verði úr byggingarmagni til vesturs þar sem gert verði ráð fyrir garðrými á lóð.

Sigurborg Ó. Haraldsdóttir og Karl Sigurðsson víkja af fundi undir þessum lið.

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(E) Umhverfis- og samgöngumál

3. Fræðsluátak og gjaldtökuheimild vegna notkunar nagladekkja.,    Mál nr. US170162

Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngur, dags. 15. maí 2017, um fræðsluátak og gjaldtökuheimild vegna notkunar nagladekkja. Einnig er lögð fram   tillaga að lagaákvæði í umferðarlögum um heimild til gjaldtöku vegna notkunar negldra hjólbarða.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi breytingartillögu:

Breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Áslaugar Maríu Friðriksdóttur og Herdísar Önnu Þorvaldsdóttur er sú að aftan við fyrirliggjandi tillögu bætist eftirfarandi ákvæði:"Heimild um gjaldtöku vegna nagladekkja verði aldrei samþykkt nema að undangenginni íbúakosningu í sveitarfélaginu þar sem að minnsta kosti helmingur íbúa styðji gjaldtöku. Slík kosning gæti verið rafræn.

Lögð fram breytt tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og Herdísar Önnu Þorvaldsóttur:

Breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og Herdísar Önnu Þorvaldsdóttur er sú að aftan við fyrirliggjandi tillögu bætist eftirfarandi ákvæði:

Heimild um gjaldtöku vegna nagladekkja verði ekki samþykkt nema að undangenginni íbúakosningu í Reykjavík þar sem að minnsta kosti helmingur kjósenda styðji gjaldtöku. Slík kosning gæti verið rafræn.

Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og og Herdísar Önnu Þorvaldsdóttur tekin til atkvæðagreiðslu og felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Sverris Bollasonar, fulltrúa Bjartrar framtíðar Karls Sigurðsson og fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísla Garðarssonar gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks Halldórs Halldórssonar og Herdísar Önnu Þorvaldsdóttur.

Fulltrúi framsóknar og flugvallarvina Guðfinnu J. Guðmundsdóttur situr hjá og bókar:

Orðalag þessarar tillögu gengur ekki upp í lagatexta

Fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason, fulltrúi Bjartrar framtíðar Karl Sigurðsson og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs  Gísli Garðarsson og áheyrnarfulltrúi Pírata Sigurborg Ósk Haraldsdóttir bóka:

Notkun nagladekkja veldur verulegri svifryksmengun sem er hættuleg heilsu fólks, ekki síst smábarna og þeirra sem eru veikir fyrir. Umhverfisstofnun Evrópusambandsins áætlar að á Íslandi hafi um hundrað manns látist ótímabært af völdum loftmengunar árið 2015. Sérfræðingar Umhverfisstofnunar Íslands telja nagladekk jafnframt valda 60 til 100 sinnum meira sliti á malbiki en dekk án nagla, sem hefur í för með sér 200-300 milljóna króna kostnað fyrir borgarbúa á hverju ári. Samkvæmt mengunarbótareglunni telst eðlilegt að þeir sem valdi mengun gjaldi fyrir hana en kostnaðurinn leggist ekki á aðra. Því er fullkomlega sanngjarnt að notkun nagladekkja verði gerð gjaldskyld. Íbúakosningar skapa skilyrði til aukinnar upplýsingamiðlunar til almennings, efla almenning til lýðræðislegrar þátttöku og mynda þannig sameiginlega ábyrgð. En þar sem íbúakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur tíðkast hvað mest er ekki hefð fyrir því að kosið sé um skatta og gjöld og fyrir því eru rökréttar ástæður. Jafnframt væri vægast sagt ótækt annaðhvort að biðja ráðherra setja lög þar sem eitt sveitarfélag er tekið út fyrir sviga eða að fara fram á það að hendur annarra og töluvert fámennari sveitarfélaga séu bundnar af ákvörðunum Reykjavíkur.

Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngur, dags. 15. maí 2017 um fræðsluátak og gjaldtökuheimild vegna notkunar nagladekkja samþykkt.

Umhverfis- og skipulagssviði er jafnframt falið að koma tillögu að lagabreytingu á framfæri við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Alþingi.

Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngur, dags. 15. maí 2017 , um fræðsluátak og gjaldtökuheimild vegna notkunar nagladekkja tekin til atkvæðagreiðslu og samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Sverris Bollasonar, fulltrúa Bjartrar framtíðar Karls Sigurðsson og fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísla Garðarssonar gegn þremur  atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks Halldórs Halldórssonar og Herdísar Önnu Þorvaldsdóttur og fulltrúa framsóknar og flugvallarvina Guðfinnu J. Guðmundsdóttur sem jafnframt bóka:

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina Halldór Halldórsson, Herdís Þorvaldsdóttir og Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir leggjast gegn samþykkt meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði um gjaldtöku vegna nagladekkja. Meirihlutinn felldi tillögu Sjálfstæðisflokksins um að heimild yrði ekki samþykkt nema að undangenginni íbúakosningu. Mikilvægt er að hafa í huga að borgarbúar sem nota nagladekk gera það vegna þess að þeirra öryggistilfinning segir þeim að þannig séu þeir öruggari í umferðinni. Auk þess búa margir í íbúðargötum þar sem mikill halli er og léleg þjónusta. Þessir íbúar hafa ekki fundið aðra leið en að nota nagla. Með gjaldtöku er verið að refsa þeim fyrir að búa á stöðum þar sem íbúðargötur eru ekki almennilega færar marga daga í röð þar sem þær eru ekki mokaðar. Til að gera nagladekk óþörf þarf betri vetrarþjónustu en er í boði í dag. Hluti röksemdarfærslu meirihlutans fyrir því að hefja gjaldtöku vegna nagladekkja snýr að svifryki. Besta leiðin til að vinna gegn svifryki er að þrífa göturnar oftar en það hefur verið vanrækt.

4. Sjálfkeyrandi ökutæki, minnisblað varðandi líkleg áhrif og tímalína innleiðingar   Mál nr. US170179

Lagt fram minnisblað  umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra, dags. 2. júní 2017 varðandi líkleg áhrif og tímalína innleiðingar.

Kynnt.

(A) Skipulagsmál

5. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð   Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags. 2. júní 2017.

6. Aðalskipulagsbreyting, stefna um íbúðarbyggð, heimildir um fjölda íbúða, lýsing   Mál nr. SN160793

Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf Skipulagsstofnunar, dags. 22. mars 2017, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við birtingu auglýsingar, þegar tekið hefur verið tillit til athugasemda stofnunarinnar. Einnig er lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í febrúar 2017, uppfærð 31. mars 2017, og umsögn deildarstjóra aðalskipulags Reykjavíkur, dags. 31. mars 2017. Tillagan var auglýst frá 7. apríl til og með 22. maí 2017.

Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Kristján Sveinlaugsson f.h. Þingvangs ehf., dags. 18. apríl 2017, Dagfinnur Stefánsson, dags. 19. maí 2017, Alfhild Nielsen f.h. ByggáBIRK, Hagsmunafélags eigenda einkabygginga á Reykjavíkurflugvelli, dags. 20. maí 2017, ásamt bréfi, dags. 1977, sem fylgir nokkrum innsendum athugsemdum, Erling Jóhannesson og Alfhild Nielsen, dags. 20. maí 2017 og viðhengi, Halldór Jónsson stjórnarm. ByggáBirk, Hagsmunafélags eigenda einkabygginga á Reykjavíkurflugvelli, dags. 20. maí 2017, ásamt bréfi, dags. 1977, Magnús Brimar Jóhannsson f.h. Skildinga  ehf., dags. 20. maí 2017, Guðmundur Unnsteinsson, f.h. Flugklúbbs Íslands ehf., dags. 20. maí 2017, Hafsteinn Linnet, dags. 20. maí 2017, Pétur Halldórsson, dags. 21. maí 2017, Hallgrímur Ó. Guðmundsson, dags. 22. maí 2017, Ingibjörg Petra Bryde, dags. 22. maí 2017, Úlfar Henningsson og Hólmfríður E. Guðmundsdóttir f.h. Garðaflugs ehf., dags. 22. maí 2017, Friðbjörn Orri Ketilsson f.h. Flugfélagsins Geirfugl ehf. og Svals Lofts ehf., dags. 22. maí 2017, Bjarni Bærings, dags. 22. maí 2017, Haraldur Unason Diego F.h. Stjórnar Félags íslenskra einkaflugmanna (AOPA Ísland) og Vélflugfélags Íslands, dags. 22. maí 2017 og Aðalsteinn Jörundsson, dags. 22. maí 2017.  Einnig er lögð fram umsögn deildastjóra aðalskipulags dags. 2. júní 2017.

Samþykkt með vísan til umsagnar deildastjóra aðalskipulags dags. 2. júní 2017.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Halldór Halldórsson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Fulltrúi framsóknar og flugvallarvina Guðfinna J. Guðmundsdóttir situr hjá og bókar

Fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina er ekki sammála því að felldar séu niður heimildir um byggingu íbúða við Köllunarklett og situr því hjá.

Vísað til borgarráðs.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

7. Aðalskipulag Reykjavíkur, Lóuhólar 2-6, breyting á aðalskipulagi  (04.642.7) Mál nr. SN170459

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna lóðar nr. 4-6 við Lóuhóla, dags. maí 2017. Um er að ræða lítilsháttar breytingu á þéttbýlisuppdrætti Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030, varðandi afmörkun verslunar- og þjónustusvæðis (VÞ) við Lóuhóla 2-6.

Samþykkt skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráð.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

8. Aðalskipulag Reykjavíkur, Stekkjarbakki, verkefnislýsing skipulagsgerðar og umhverfismats  (04.613) Mál nr. SN170460

Lögð fram verkefnislýsing skipulagsgerðar og umhverfismats umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna Stekkjarbakka milli Reykjanesbrautar og Höfðabakka, dags. júní 2017. Breytingin felst í að horfið er frá fyrirhugaðri færslu götu til norðurs.

Verklýsing, ásamt matslýsingu samþykkt skv. 30. gr. 1. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráð.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

9. Háteigsvegur 43, breyting á deiliskipulagi  (01.254.2) Mál nr. SN170180

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur, mótt. 28. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 43 við Háteigsveg. í breytingunni felst afmörkun lóðar, samkvæmt tillögu, ódags. Einnig er lagður fram tölvupóstur Orkuveitu Reykjavíkur dags. 29. maí 2017 þar sem erindið er dregið til baka.

Erindið dregið til baka samkvæmt tölvupósti Orkuveitu Reykjavíkur dags. 29. maí 2017.

10. Hverfisgata 106, breyting á deiliskipulagi  (01.174.1) Mál nr. SN170137

Gunnfánar ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík

Noland Arkitektar ehf., Kjóahrauni 12, 220 Hafnarfjörður

Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Noland Arkitekta ehf., mótt. 14. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.1 vegna lóðarinnar nr. 106 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst hækkun á mæni, settir eru skilmálar um kvisti og svalir auk þess sem nýtingarhlutfall er hækkað, samkvæmt uppdr. Noland Arkitekta ehf., dags. 14. febrúar 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. apríl til og með 4. maí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Eysteinn Már Sigurðsson, Morgane Priet-Mahéo, Halldór Heiðar Bjarnason og Lilian Pineda, dags. 3. maí 2017, Þórir Gunnarsson, dags. 4. maí 2017 og Karl Palsson, dags. 6. maí 2017.  Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2017.

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2017.

Vísað til borgarráðs

Guðlaug Erna Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

11. Borgartún 24, breyting á deiliskipulagi  (01.221.1) Mál nr. SN170457

Yrki arkitektar ehf, Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík

Lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf., mótt. 1. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 24 við Borgartún í samræmi við rammaskipulag samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði 5. apríl 2017. Í breytingunni felst breyting á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með allt að 65 íbúðum, lifandi jarðhæðir og bílastæði í bílakjallara. Lögð er áhersla á góðar göngutengingar í gegnum svæðið, mannlegan kvarða og góða aðstöðu fyrir hjólandi vegfarendur. Tillagan gerir ráð fyrir auknu byggingarmagni og hækkar nýtingarhlutfall á lóð úr 0,83 í 1,96, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf., dags. 1. júní 2017.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Vísað til borgarráðs.

Sverrir Bollason og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir víkja af fundi undir þessum lið.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(B) Byggingarmál

12. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð   Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 927 frá 6. júní 2017.

(C) Fyrirspurnir

13. Klapparstígur 29, (fsp) breyting á notkun  (01.172.0) Mál nr. SN170284

KS 29 ehf., Hlíðasmára 4, 201 Kópavogur

Yrki arkitektar ehf, Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík

Lögð fram fyrirspurn Yrki arkitekta ehf., mótt. 27. mars 2017, um að breyta hársnyrtistofu á 1. hæð hússins á lóð nr. 29 við Klapparstíg í veitingastað í flokki II. Einnig er lagt fram bréf Yrki arkitekta ehf., dags. 27. mars 2017, og umsögn skipulagsfulltrúa dags.  28. apríl 2017.

Jákvætt er tekið í að fyrirspyrjandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. apríl 2017.

Sverrir Bollason og Gísli Garðarsson hjá við afgreiðslu málsins.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.

Halldóra Hrólfsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

(D) Ýmis mál

14. Betri Reykjavík, körfuknattleiksvöllur við Dverga- og Eyjabakka  (USK2017050059)   Mál nr. US170173

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið "körfuknattleiksvöllur við Dverga- og Eyjabakka" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 17. maí 2017. Erindið var þriðja efsta hugmynd aprílmánaðar á samráðsvefnum og jafnframt efst í málaflokknum framkvæmdir.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, framkvæmda og viðhalds.

15. Betri Reykjavík, göngubrú á Miklubraut við 365 í stað gangbrautar  (USK2017050060)   Mál nr. US170175

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið "göngubrú á Miklubraut við 365 í stað gangbrautar" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 17. maí 2017. Erindið var fjórða efsta hugmynd aprílmánaðar á samráðsvefnum og jafnframt efst í málaflokknum samgöngur. 

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra.

16. Betri Reykjavík, höfum 2 Miðgarða (e. Central Parks) í miðborg Reykjavíkur   Mál nr. US170176

Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lagt fram erindið "höfum 2 Miðgarða (e. Central Parks) í miðborg Reykjavíkur" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 17. maí 2017. Erindið var önnur efsta hugmynd aprílmánaðar á samráðsvefnum og jafnframt efst í málaflokknum umhverfismál. .

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, umhverfisgæða.

17. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, viðmið um skuggavarp vegna hæðar og staðsetningu trjáa   Mál nr. US170132

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 29. mars 2017 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur verði gert skoða hvort setja megi viðmið um skuggavarp vegna hæðar og staðsetningu trjáa í þéttri byggð til tryggja birtu í görðum og hýbýlum fólks og þar með grunn lífsgæði.  Einnig er lögð fram umsögn  umhverfis- og skipulagssviðs, umhverfisgæða dags. 2. júní 2017.

Tillagan samþykkt með vísan til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, umhverfisgæða dags. 2. júní 2017.

18. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, örva innleiðingu vistvænna lausna með tilliti til loftslagsstefnunnar   Mál nr. US170141

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 5. apríl 2017 var lög fram eftarfarandi  tillaga fulltrúa Sjálfstæðisiflokksins:

Umhverfis- og skipulagsráð samþykki að skoða hvernig innleiða megi hvata í skipulagið á uppbyggingarsvæðum borgarinnar í því skyni að örva innleiðingu vistvænna lausna með tilliti til loftslagsstefnunnar meðal annars. Einnig verði skoðað hvort skilgreina megi næsta nýtt hverfi innan Reykjavíkur sérstaklega fyrir vistvænar nýjungargjarnar lausnir þar sem jafnvel yrðu settar meiri kröfur til aðila sem fá úthlutuðum lóðum.

Fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísli Garðarsson leggur til að tillögunni verði vísað frá.

Frávísunartillagan samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Sverris Bollasonar, fulltrúa Bjartrar framtíðar Karls Sigurðssonar og fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísla Garðarssonar gegn þremur atkvæðum fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Halldórs Halldórssonar og  Herdísar Önnu Þorvaldsdóttur og fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina Guðfinnu J. Guðmundsdóttur.

19. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, innleiða menningarstefnu inn í skipulag   Mál nr. US170128

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 22. mars 2017 var lögð fram eftirfarandi  tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að  skoða hvernig innleiða má menningarstefnu borgarinnar inn í skipulag með árangursríkari hætti en verið hefur. Skoða verði hvernig hægt er að draga einkenni hverfanna fram og hvort styrkja megi svæði ákveðnum ákveðnum menningarverkefnum. Þannig mætti til dæmis skipuleggja sérstök svæði tileinkuð tónlist eða hönnun og margt fleira í þeim dúr."

Frestað.

20. Lækjargata 10 og 12, Vonarstræti 4-4b og Skólabrú 2, kæra 41 og 42/2017, umsagnir  (01.141.2) Mál nr. SN170331

Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík

Lögð fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 6. apríl 2017 ásamt kæru 41/2017 og dags. 10. apríl 2017 ásamt kæru 42/2017, þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna Lækjargötu 10 og 12, Vonarstrætis 4-4b og Skólabrúar 2. Í kærunum er gerð krafa um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða. Einnig lagðar fram umsagnir skrifstofu sviðsstjóra, dags. 26. maí 2017 vegna kæru 41/2017 og dags. 29. maí 2017 vegna kæru 42/2017.

Fundi slitið kl.12.30

Hjálmar Sveinsson

Karl Sigurðsson Sverrir Bollason

Gísli Garðarsson  Halldór Halldórsson

Herdís Anna Þorvaldsdóttir Guðfinna J. Guðmundsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2017, þriðjudaginn 6. júní kl. 10:15 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 927. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar umhverfis- og skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigrún Reynisdóttir, Nikulás Úlfar Másson, Olga Hrund Sverrisdóttir, Óskar Torfi Þorvaldsson, Harri Ormarsson, Jón Hafberg Björnsson og Sigríður Maack.

Fundarritari var Harri Ormarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 7  (01.140.415) 100856 Mál nr. BN052944

Lindarvatn ehf., Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047437, hætt er við að lyfta húsi, kjallari stækkaður og dýpkaður, bætt við svölum á bakhlið, breytt opnun lyftu o. fl. í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti.

Stækkun:  59 ferm., 122,5 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

2. Austurbakki 2  (01.119.801) 209357 Mál nr. BN052849

Ístak hf., Bugðufljóti 19, 270 Mosfellsbær

Sótt er um leyfi til að koma upp vinnubúðum vegna framkvæmda við hótel á reit 5 suðvestan við Hörpu á reit 7 á lóð nr. 2 við Austurbakka.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

3. Álagrandi 6  (01.521.606) 197240 Mál nr. BN052940

Sigurjón Ólafsson, Álagrandi 6, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja timburhús sem nota á sem tómstundahús með einhalla þaki, með steyptum sökklum og steyptri og einangraðri gólfplötu, innrétta baðherbergi og eldunaraðstöðu á lóð nr. 6 við Álagranda.

Stærð: 34 ferm., 121,6 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Bergþórugata 5  (01.190.226) 102429 Mál nr. BN052682

Vilborg Ámundadóttir, Fagraþing 4, 203 Kópavogur

Yngvi Sindrason, Fagraþing 4, 203 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til vesturs og til austurs, byggja rishæð og innrétta fjórar íbúðir í einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Bergþórugötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní  2017.

Stækkun:  209,1 ferm., 614,2 rúmm.

Stærð eftir stækkun, A-rými:  442 ferm., 1.332,2 rúmm.

B-rými:  110,6 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrú dags. 2. júní 2017.

5. Bíldshöfði 8  (04.064.001) 110667 Mál nr. BN052886

Brimborg ehf., Bíldshöfða 6, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja smávörulager við suðurhlið húss á lóð nr. 8 við Bíldshöfða.

Stærðir: x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

6. Blikastaðavegur 2-8  204782 Mál nr. BN052943

Korputorg ehf., Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík

Sótt um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými I og J á milli mátlína 11-15 í verslunarhúsi á lóð nr. 2-8 við Blikastaðaveg.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Brúnaland 2-40 3-21  (01.852.002) 108765 Mál nr. BN052548

Kristín Auður Sophusdóttir, Ánaland 6, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta áður gert útgrafið rými í kjallara og innrétta tómstundaherbergi, geymslu og baðherbergi ásamt því að grafa frá húshlið að norðanverðu á húsi á lóð nr. 21 við Brúnaland.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. mars 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. mars 2017.

Stækkun: A-rými 45,1 ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Drápuhlíð 36  (01.713.006) 107217 Mál nr. BN052838

Helga Benediktsdóttir, Drápuhlíð 36, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr við austurhlið lóðar upp við lóðarmörkum nr. 38  á lóð fjölbýlishúss nr. 36 við Drápuhlíð.

Bréf frá hönnuði dags. 9. maí 2017, Eignaskiptayfirlýsing dags. 20 nóv. 2011 og  bréf hönnuðar dags. 31. maí með samþykki sumra dags. 26.maí 2017 fylgir.

Stærð bílskúr:  28,0 ferm., 85,4 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Umsókn er í grenndarkynningu.

9. Efstasund 79  (01.410.118) 105001 Mál nr. BN052949

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, Efstasund 79, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN046936, um er að ræða að uppfæra brunamerkingar í húsinu á lóð nr. 79 við Efstasund .

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Eggertsgata 2-34  (01.634.-99) 106682 Mál nr. BN052738

Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að steypt hefur verið skyggni við inngang, anddyri stækkað og settar hafa verið upp svalalokanir samhliða viðhaldsframkvæmdum, auk þess sem minniháttar breytingar hafa verið gerðar á geymslum á 1. og 2. hæð í húsi nr. 2-4 á lóð nr. 2-34 við Eggertsgötu.

Stækkun: A-rými 5,2 ferm., 14,7 rúmm.

Sjá erindi BN049710.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Einimelur 19  (01.525.101) 106065 Mál nr. BN052959

Jórunn Ósk Frímannsd Jensen, Einimelur 19, 107 Reykjavík

Hörður Ólafsson, Einimelur 19, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta gluggum í kvistum á suðurhlið með því að síkka þá og koma fyrir hurð út á pall  á húsinu á lóð nr. 19 við Einimel.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Framnesvegur 40  (01.133.413) 100291 Mál nr. BN052832

Framnesvegur ehf., Krókamýri 56, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að byggja fimm íbúða fjölbýlishús úr forsteyptum samlokueiningum á lóð nr. 42 við Framnesveg.

Stærð, A-rými:  441,4 ferm., 1.304,2 rúmm

B-rými:  22,4 ferm., 62,7 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Framnesvegur 42  (01.133.414) 100292 Mál nr. BN052831

Framnesvegur ehf., Krókamýri 56, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra íbúða fjölbýlishús úr forsteyptum samlokueiningum á lóð nr. 42 við Framnesveg.

Stærð, A-rými:  446 ferm., 1.319,7 rúmm

B-rými:  19,7 ferm., 55,1 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Friggjarbrunnur 10-12  (05.055.105) 205896 Mál nr. BN052967

HB eignir ehf., Haukdælabraut 102, 113 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á erindi BN035242 vegna lokaúttektar þannig  að geymslum er breytt í baðherbergi og verandir eru stækkaðar á lóð nr. 10-12 við Friggjarbrunn.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Friggjarbrunnur 51  (02.693.101) 205822 Mál nr. BN052509

Bygg Ben ehf, Vesturlbr Fífilbrekku, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049156, sett er inn kvöð um aðkeyrslu að bílgeymslu yfir lóð 47A, útfærslu svala 0404 breytt, innra skipulagi kjallara breytt og komið fyrir sorpgeymslu á lóð fjölbýlishúss nr. 51 við Friggjarbrunn.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.

Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Friggjarbrunnur 53  (02.693.103) 205831 Mál nr. BN052833

RED ehf., Garðastræti 37, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi stæða í bílgeymslu, skiptingu svala á 5. hæð og fyrir breyttum frágangi þaka, sjá erindi BN048621,  á fjölbýlishúsi á lóð nr. 53 við Friggjarbrunn.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

17. Gnoðarvogur 43  (01.440.301) 219761 Mál nr. BN052977

Reykjavíkurborg - eignasjóður, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að skipta út og breyta glerveggjum og hurðum við skrifstofur og kennslustofur á 1. og 2. hæð Vogaskóla á lóð nr. 43 við Gnoðarvog.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Gnoðarvogur 44-46  (01.444.101) 105528 Mál nr. BN052829

ADHG ehf., Baldursgötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN051965 þar sem farið er fram á að steypa kassa með stálhurð að framan fyrir gaskúta við norðvesturhlið veitingarstaðarins í mhl. 02 rými 0101 í húsinu nr. 46  á lóð nr. 44 til 46 við Gnoðarvog.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Grandagarður 2  (01.115.301) 100058 Mál nr. BN052934

Ernst Jóhannes Backman, Lindarflöt 36, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að setja upp skilti á horni Rastargötu og Grandagarðs sem verður þríhyrnt á steyptum sökkli  á borgarlandi fyrir utan lóð nr. 2 við Grandagarð.

Teikning frá umsækjanda fylgir.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

20. Grandagarður 8 - göngubryggja  (01.115.101) 100046 Mál nr. BN052791

Bjarnar ehf, Borgartúni 30, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja göngubrú sem tengir gönguleið frá Rastagötu að bryggju við Sjóminjasafn og liggur að húsi á lóð nr. 8 við Grandagarð.

Erindi fylgir samþykki Faxaflóahafna dags. 24. apríl 2017 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017.

21. Grandagarður 11  (01.115.206) 100053 Mál nr. BN052968

Reykjavík Napólí ehf., Hverfisgötu 50, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í fl. II tegund ?? með 30 gestum í rými 0101 í nr. 11 og loka á milli húsa nr. 9 og 11 á lóð nr. 9- 11 við Grandagarð.

Samþykki eiganda dags. 18 maí 2017 fylgir.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Grenimelur 3  (01.541.404) 106345 Mál nr. BN052246

Margrét Helga Ögmundsdóttir, Grenimelur 3, 107 Reykjavík

Þorvarður Sveinsson, Grenimelur 3, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á suðurhlið rishæðar og kvisti á þaki á húsi á lóð nr. 3 við Grenimel.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. febrúar 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. febrúar 2017.

Stækkun:  10,8 ferm., 35,6 rúmm.

Bréf hönnuðar dags. 16. janúar 2017 fylgir erindi ásamt samþykki meðeigenda ritað á teikningu ódags.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Hafnarstræti 1-3  (01.140.005) 100817 Mál nr. BN052631

Strjúgur ehf., Rúgakur 1, 210 Garðabær

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III. teg. A á 1. hæð í austurenda Fálkahússins og fjölga gluggum á viðbyggingu á norðurhlið hússins, sjá erindi BN050841, á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti.

Með erindi BN050841 fylgdi  hljóðvistarskýrsla og umsögn Minjastofnunar Íslands

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Hagamelur 67  (01.525.007) 106064 Mál nr. BN052647

Fisherman ehf., Aðalgötu 15, 430 Suðureyri

Blómagallerí ehf., Hagamel 67, 107 Reykjavík

Úlló ehf., Aflagranda 35, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi rýmis 0101 þannig að bókabúð og kaffihúsi er breytt í fiskverslun á lóð nr. 67 við Hagamel.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

25. Hagatorg 1  (01.55-.-97) 106504 Mál nr. BN052807

Bændahöllin ehf., Hagatorgi 1, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa hluta 1. hæðar og byggja nýja viðbyggingu, breyta innra fyrirkomulagi í kjallara og á 1. og 2. hæð, ásamt því að endurnýja hluta glugga á austur og vestur hlið í hóteli á lóð nr. 1 við Hagatorg.

Stærðarbreytingar:

Niðurrif: XX ferm., XX rúmm.

Stækkun: XX ferm., XX rúmm.

Stærðarbreyting: Minnkun A-rýmis 43,1 ferm., 347,9 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

26. Haukdælabraut 78-92  (05.114.303) 214815 Mál nr. BN052966

Pálmar ehf, Bleikjukvísl 12, 110 Reykjavík

Sótt er um breytingu á erindi BN052251 sem felst í því að útveggur á suðurhlið 2. hæðar færist utar um 63 cm í raðhúsi á lóð nr. 78-92 við Haukdælabraut.

Stækkun A-rými 28,1 ferm., 78,4 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

27. Háagerði 73  (01.815.717) 108065 Mál nr. BN052723

Jórunn Viggósdóttir, Háagerði 73, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta bílgeymslu í vinnustofu sem verður séreign, ásamt því að breyta innra skipulagi í kjallara, eignamörkum og eignarhaldi í húsi á lóð nr. 73 við Háagerði.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Synjað.

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2017.

28. Hestháls 6-8  (04.323.101) 111035 Mál nr. BN052646

BL ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík

EGG fasteignir ehf., Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að reisa tveggja hæða stálgrindarhús á steyptum undirstöðum með milliplötu úr forsteyptum holplötueiningum, mhl. 02,  á lóð nr. 6 - 8 við Hestháls

Bréf frá hönnuði dags. 28. mars 2017 og bréf frá burðarvirkishönnuði dags. 28. mars. 2017

Stærðir húss er : 2.766,0 ferm., 11.725,5 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áður en framkvæmd hefst skal hafa samráð við Veitur ohf. vegna mögulegra lagna við lóðamörk. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Holtavegur 8-10  (01.408.101) 104960 Mál nr. BN052892

Reitir II ehf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta notkun verslunarrýmis og innrétta aðstöðu fyrir golfklúbb með golfhermum og svæðum til golfæfinga ásamt því að innrétta veitingastað í flokki ll - tegund ? í húsi á lóð nr. 8-10 við Holtaveg.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Hrefnugata 4  (01.247.302) 103363 Mál nr. BN052905

Kristján Már Atlason, Hrefnugata 4, 105 Reykjavík

Arndís Guðjónsdóttir, Hrefnugata 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Hrefnugötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Hringbraut Landsp.  (01.198.901) 102752 Mál nr. BN052751

Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta kennslurými og skrifstofur, koma fyrir loftræsikerfi og hefðbundnu ofnakerfi, lagfæra hljóðvist og breyta innra skipulagi í hluta 1. og  2. hæðar og allri  3. hæð í Hjúkrunarskólanum, Eiríksgötu 34A á lóðinni Hringbraut Landssp.

Erindi fylgir bréf hönnuðar varðandi algilda hönnun dags. 18. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

32. Hrísateigur 6  (01.360.502) 104536 Mál nr. BN052969

Atli Freyr Þórðarson, Gullteigur 4, 105 Reykjavík

Ásdís María Rúnarsdóttir, Gullteigur 4, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu og aukaíbúð á jarðhæð á lóð nr. 6 við Hrísateig.

Stærð:  250,1 ferm., 823,7 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

33. Hverfisgata 113-115  (01.222.001) 102836 Mál nr. BN052824

Ríkiseignir, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050155 dags 17. nóvember 2015, þannig að komið er fyrir eldvarnagleri í stigahúsi á norðurhlið á lögreglustöð á lóð nr. 113-115 við Hverfisgötu.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Hverfisgata 4  (01.170.002) 101320 Mál nr. BN052754

H 4-6 ehf., Laugavegi 1b, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 2. og 3. hæð og innrétta þar 10 ný gistiherbergi og opna tímabundið yfir í hótel á lóð nr. 8-10  í húsi á lóð nr. 4-6 við Hverfisgötu

Bréf arkitekts ódagsett fylgir erindi og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 06.03.2017 ásamt samþykki meðeigenda sem áritað er á teikningar.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Þinglýsa skal kvöð um tímabundna opnun fyrir útgáfu byggingaleyfis.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

35. Hverfisgata 8-10  (01.170.004) 101322 Mál nr. BN052756

IP Studium Reykjavík ehf, Laugavegi 1b, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta gestaherbergjum á 1. og 2. hæð, fækka þeim um eitt, innrétta tvö þeirra m.v. algilda hönnun og opna tímabundið yfir í hótelrými á 2. og 3. hæð á lóð nr. 4-6 í húsi á lóð nr. 8-10 við Hverfisgötu

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 06.03.2017 ásamt samþykki meðeigenda á lóð nr. 4-6 sem áritað er á teikningar.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Þinglýsa skal kvöð um tímabundna opnun fyrir útgáfu byggingaleyfis.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

36. Kirkjustétt 2-6  (04.132.201) 188525 Mál nr. BN052287

M fasteignir ehf., Bæjarlind 14-16, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð og innrétta sjálfstæðar vinnustofur á efri hæð í mhl. 02 á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. mars fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. mars 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Kistumelur 9  (34.533.502) 206636 Mál nr. BN052851

Eignarhaldsfélagið Ögur ehf, Akralind 6, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að opnað er tímabundið milli eignarhluta og flóttaleiðum breytt auk þess sem settir eru nýir gluggar á gaflveggi í húsi á lóð nr. 9 við Kistumel.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

38. Krókháls 5-5G  (04.323.401) 111039 Mál nr. BN052595

Nafir ehf, Dalvegi 2, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að rífa niður milliloft úr húsum 5D og 5E þannig að einungis eru eftir tæknirýmin og settar eru fjórar vöruhurðir á suðurhlið sömu húsa 5D og 5C á lóð nr. 5-5G við Krókháls.

Minnkun vegna niðurrifs á millipöllum er: 329,5 ferm.

Samþykki meðeigenda í tölvupósti dags. 1. apríl 2017. Samþykki meðeienda Krókháls C , 5F, 5G og 5E neðrihæð

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

39. Laufásvegur 22  (01.183.408) 101968 Mál nr. BN052840

Benedikt Erlingsson, Reykjabyggð 40, 270 Mosfellsbær

Sótt er um leyfi til að skipta í tvær eignir þannig að mhl. 03 verður vinnustofa með áður gerðri íbúð á neðri hæð og mhl. 01 verður áfram einbýlishús, einnig er sótt um að deila lóðinni upp í tvo sérafnotareiti og stækka svalir á mhl. 01 til vesturs  á húsi á lóð nr. 22 við Laufásveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 fylgir erindinu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Laugarnesvegur 74A  (01.346.016) 104069 Mál nr. BN052960

Steinabrekka ehf., Vatnsstíg 19, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051000, um er að ræða breytingu og fjölgun á snyrtingum, eldhúsi er breytt í setustofu og innréttað nýtt eldhús á jarðhæð í gististað í flokki II, teg. gistiskáli á lóð nr. 74A við Laugarnesveg.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Laugateigur 20  (01.364.304) 104634 Mál nr. BN052964

Unnur Kristín Ragnarsdóttir, Laugateigur 20, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar sem felst í breytingu á eignarmörkum íbúðar 0001 og gerð hurðar úr kjallaraíbúð út í garð samhliða því að grafa frá húshlið, auk þess sem matshlutanúmerum á bílskúrum er breytt, í húsi á lóð nr. 20 við Laugateig.

Stærðarbreyting frá eldri skráningu -3,8 ferm., -38,4 rúmm.

Samþykki meðeigenda dags. 23.05.2017 fylgir erindi.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Laugavegur 38  (01.172.219) 101474 Mál nr. BN052973

Grjótagata ehf., Pósthólf 738, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta áður gerðum íbúðum 0201 og 0301 í gististað í fl. II tegund e í húsi á lóð nr. 38 við Laugaveg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. maí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2917.

Erindi BN052669 er dregið til baka.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Laugavegur 42  (01.172.223) 101478 Mál nr. BN052970

Kebab ehf., Grensásvegi 3, 108 Reykjavík

Húsfélagið Laugavegi 42, Pósthólf 82, 121 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta tveimur skrifstofurýmum á 2. hæð í tvær íbúðir  til útleigu sem gistirými, byggja svalir á 3. hæð, bæta brunavarnir og endurnýja handrið, ásamt áður gerðum breytingum innan íbúða á efri hæðum í húsi á lóð nr. 42 við Laugaveg.

Samþykki eigenda dags. 20.02.2017 fylgir erindi.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.05.2017 við fyrirspurn SN170351 fylgir erindi.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Laugavegur 86-94  (01.174.303) 101639 Mál nr. BN052941

Sjöstjarnan ehf., Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki I tegund C fyrir 15 gesti  í rými 0101 í mhl. 01 á lóð nr. 86-94 við Laugaveg.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Erindið er til umfjöllunar hjá skipulagsfulltrúa.

45. Lautarvegur 32  (01.794.607) 213582 Mál nr. BN052920

Vetrarfell ehf., Seljavegi 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús úr forsmíðuðum timbureiningum á steinsteyptum kjallara með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 32 við Lautarveg.

Stærð, A-rými:  337,6 ferm., 1.139,8 rúmm.

B-rými:  26,3 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Lautarvegur 34  (01.794.608) 213583 Mál nr. BN052921

Vetrarfell ehf., Seljavegi 2, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús úr forsmíðuðum timbureiningum á steinsteyptum kjallara með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 32 við Lautarveg.

Stærð, A-rými:  337,6 ferm., 1.139,8 rúmm.

B-rými:  26,3 ferm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Lækjargata 5  (01.180.001) 101665 Mál nr. BN052835

Ríkiseignir, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047781 sem felst í því að stétt við nýjar útitröppur og rými við hringstiga á efri hæð hefur verið breytt í Íþöku á lóð nr. 5 við Lækjargötu.

Umsögn Minjastofnunar dags. 13.07.2016 fylgir erindi ásamt bréfi hönnuðar dags. 09.05.2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til skilyrðis í umsögn samgöngustjóra dags. 10. júní 2014.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

48. Melgerði 22  (01.815.603) 108037 Mál nr. BN052910

Guðrún Líneik Guðjónsdóttir, Melgerði 22, 108 Reykjavík

Óðinn Bolli Björgvinsson, Melgerði 22, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja hæð ofaná einbýlishús á lóð nr. 22 við Melgerði.

Stækkun:  55,,1 ferm., xx rúmm.

Eftir stækkun:  230,2 ferm., xx rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Mýrargata 21-23  (01.131.019) 217347 Mál nr. BN052979

Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins, Öldugötu 44, 101 Reykjavík

Sótt er um stöðuleyfi fyrir smáhýsi sem hýsa mun aðstöðu fyrir starfsmenn við nýbyggingu og sölubás fyrir kirkjuna á lóð  nr. 21-23 við Mýrargötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Mýrargata 26  (01.115.303) 100059 Mál nr. BN052889

Casula ehf., Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofurými á jarðhæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 26 við Mýrargötu.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

51. Mýrargata 26  (01.115.303) 100059 Mál nr. BN052792

Otron ehf., Bollagörðum 65, 170 Seltjarnarnes

Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki 1 - teg. e og fjölga salernum í rými 0122 í húsi á lóð nr. 26 við Mýrargötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Nökkvavogur 11  (01.441.113) 105435 Mál nr. BN051458

Jeannette Castioni, Nökkvavogur 11, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að síkka glugga í stofu á suðurhlið, koma fyrir svalahurð við hlið hans og koma fyrir stigapalli og tröppur út í garð, síkka glugga í kjallara að sunnan og vestanmegin og koma fyrir nýjum glugga á kjallara á austurgafl í húsi á lóð nr. 11 við Nökkvavog.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016.

Samþykki frá meðeigendum lóðar dags. 28. Júní 2016 og umsögn Burðarvirkishönnuðar dags. 21. sept. 2016 fylgir

Gjald kr. 10.100 + 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

53. Óðinsgata 11  (01.184.521) 102126 Mál nr. BN052929

Ásdís Olsen, Óðinsgata 11, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir ofaná vinnustofu, gera tröppur úr garði og útbúa nýjan inngang og sameina stigahús við íbúð 0101 í húsi á lóð nr. 11 við Óðinsgötu.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

54. Ránargata 21  (01.135.302) 100470 Mál nr. BN051932

Jón Kristinsson, Holland, Sunna Ronaldsdottir Wathen, Spánn, Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum v/gerðar eignaskiptasamnings í húsi á lóð nr. 21 við Ránargötu.

Erindi fylgir þinglýst samkomulag um afnotarétt á lóð milli húsa dags. 10. nóvember 1947, brunavirðing dags. 1. mars 1943 og samþykki sumra lóðarhafa Bárugötu 22, Ránargötu 19 og Ránargötu 23 og allra lóðarhafa Stýrimannastígs 7.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. desember 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. desember 2016 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 12. maí 2017.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Lagfæra skráningu.

55. Skeifan 15, Faxafen 8  (01.466.001) 195608 Mál nr. BN052839

Vesturgarður ehf., Laugavegi 59, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, færa til pylsusölu og gleraugnabúð og innrétta kaffihús í flokki l - tegund e ásamt því að gera glugga á norður hlið í húsi Hagkaupa á lóð nr. 15 við Skeifuna.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Lagfæra skráningu.

56. Skeifan 7  (01.460.201) 105659 Mál nr. BN052911

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051800 þannig að stiga í flóttaleið er breytt í húsinu á lóð nr. 7 við Skeifuna.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.

57. Skipholt 70  (01.255.208) 103493 Mál nr. BN052942

Enver ehf., Lágmúla 7, 105 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingum á erindi BN050386 sem orðið hafa á byggingartíma, m.a. hafa sorpgeymslur verið færðar til á lóð húss á lóð nr. 70 við Skipholt.

Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 1. júní 2017, samþykki meðlóðarhafa dags. 18. maí 2017, samþykki lóðarhafa Hjálmholts 2 og eins lóðarhafa í Hjálmholti 6.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

58. Skólavörðustígur 43  (01.182.314) 101911 Mál nr. BN052502

Prikið ehf, Bankastræti 12, 101 Reykjavík

Reykjavík Rent ehf, Hverfisgötu 105, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að sameina mhl. 01 og 02, breyta mhl. 03 í mhl. 02 og innrétta verslunarrými í íbúð 0102 í mhl. 01 á lóð nr. 43 við Skólavörðustíg .

Samþykki sumra dags. 30. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

59. Stigahlíð 72  (01.733.503) 107396 Mál nr. BN052974

Rikharð Sigurðsson, Stigahlíð 72, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að gera sérinngang að tómstundarherbergi í kjallara ásamt kjallaratröppum, fjarlægja stiga milli hæða og loka stigaopi með léttum vegg í húsi á lóð nr. 72 við Stigahlíð.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

60. Suðurlandsbraut 8  (01.262.103) 103517 Mál nr. BN052902

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um samþykki á reyndarteikningum v/lokaúttektar á erindi BN050622, í rými 0101 hefur verið færður inn áður samþykktur veitingastaður, sjá BN052617 og í rými 0102 hefur verið færð inn áður samþykkt verslun, sjá BN052147, vörulyftu hefur verið komið fyrir í bílgeymslu, auk minni háttar breytinga sem orðið hafa á byggingartíma mhl. 01 og mhl. 04 á lóð nr. 8 við Suðurlandsbraut.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

61. Suðurlandsbraut 8  (01.262.103) 103517 Mál nr. BN052688

Eik fasteignafélag hf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík

Sótt er um stöðuleyfi fyrir 12 feta gám sem hýsa á vararafstöð í 12 mánuði á suðurhlið lóðar nr. 8 við Suðurlandsbraut.

Samþykki frá Ármúla 7 sem eru Reitir II 10. maí 2017 og Ráðagerðis ehf dags. 31. maí 2017. Greinargerð vegna stöðuleyfis dags. 30. maí 2017 . Hljóðvist vegna varaaflstöð dags. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Stöðuleyfi gildir til 6. júní 2018.

62. Sörlaskjól 78  (01.531.019) 106134 Mál nr. BN052814

Snorri Pétur Eggertsson, Sörlaskjól 78, 107 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja kvist á norðurhlið, svalir á suðurhlið 1. hæðar, verönd og hurð út í garð úr kjallara og til að byggja hjólaskýli við norðurhlið bílskúrs við parhús á lóð nr. 78 við Sörlaskjól.

Sams konar erindi, BN044991, var grenndarkynnt árið 2013.

Kvistur:  3,2 rúmm.

Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 24. maí 2017.

Hjólageymsla:  6 ferm., 13,9 rúmm.

Stækkun:  6 ferm., 17,1 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

63. Vegamótastígur 4  (01.171.404) 101413 Mál nr. BN052811

Vegamótastígur 4 hf, Huldubraut 32, 200 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að innrétta starfsmannaaðstöðu og vörumóttöku í rými 0102 og sameina það veitingarými í sama matshluta, einnig er sótt um leyfi til að loka dyraopi á lóðamörkum að Laugavegi, byggja nýja flóttaleið út á þak lágbyggingar og koma fyrir aðstöðu til útiveitinga fyrir 50 gesti á torgi framan við hús á lóð nr. 4 við Vegamótastíg.

Jafnframt er erindi BN050823 dregið til baka.

Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2016.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

64. Vitastígur 7  (01.174.031) 101578 Mál nr. BN052495

Rauðsvík ehf., Skúlagötu 30, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á baklóð og breyta innra skipulagi í þríbýlishúsi á lóð nr. 7 við Vitastíg.

Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. mars 2017 og minnisblað um brunavarnir frá Lotu dags. 17. mars 2017.

Stækkun: 90,3 ferm., 254,6 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

65. Víðimelur 56  (01.540.015) 106232 Mál nr. BN052857

Karen Lind Ólafsdóttir, Fálkaklettur 4, 310 Borgarnes

Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr á lóð, lækka gólf í kjallara og byggja þar anddyri ásamt því að breyta innra fyrirkomulagi í húsi á lóð nr. 56 við Víðimel.

Stækkun:

Mhl.01 x ferm., x rúmm.

Mhl.02 x ferm., x rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

66. Þjóðhildarstígur 2-6  (04.112.201) 188027 Mál nr. BN052926

Gullhamrar veitingahús ehf, Þjóðhildarstíg 2-6, 113 Reykjavík

Sótt er að nýju um leyfi til að byggja létta viðbyggingu fyrir geymslu ofan á þak bílgeymslu auk skyggnis framan við bílastæði við veitinga-, skemmti- og verslunarhúsið á lóð nr. 2-6- við Þjóðhildarstíg.

Stærðir:

A-rými 120,0 ferm., 389,0 rúmm.

Gjald kr. 11.000

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

67. Þorragata 10-20  (01.65-.-99) 106746 Mál nr. BN052961

Skeljungur hf., Borgartúni 26, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að steypa plan fyrir Jet-A1 geymir ásamt því að koma fyrir  sand- og olíuskilju á lóð með landnr. 106746 á Reykjavíkurflugvelli  á lóð nr. 10-20 við Þorragötu.

Stærð sand- og olíuskilju: XX ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

68. Ægisíða 48  (01.555.004) 106619 Mál nr. BN052157

Kári Guðjón Hallgrímsson, Bretland, Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á tveimur hæðum, ásamt því að rífa núverandi bílskúr og byggja nýjan við einbýlishús á lóð nr. 48 við Ægisíðu.

Niðurrif: x ferm., x rúmm.

Stækkun: Mhl.01 x ferm., x rúmm. , Mhl.02 x ferm., x rúmm. Samtals stækkun: x ferm., x rúmm.

Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa við fyrirspurn SN150475 dags. 09.11.2015.

Gjald kr. 10.100

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

69. Öldugata 53  (01.134.305) 100354 Mál nr. BN052952

Öldugata 53,húsfélag, Öldugötu 53, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja svalir á bakhlið 2., 3. og 4. hæðar, gera sérnotaflöt fyrir íbúð 1. hæðar og koma fyrir fellistiga á fjölbýlishúsi á lóð nr. 53 við Öldugötu.

{Jafnframt er erindi BN046007 dregið til baka.

Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 21. maí 2017.

Gjald kr. 11.000

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

70. Köllunarklettsvegur 4  (01.329.702) 180644 Mál nr. BN052985

Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Endurútgáfa mæliblað fyrir lóðina nr. 4 við Köllunarklettsveg.

Hjálagt er nýtt mæliblað fyrir lóðina nr. 4 við Köllunarklettsveg. Mæliblaðið er endurútgefið vegna niðurfellingar á kvöð um frágang á milli punkta 387 og 388 á mæliblaði. Þá er kortgrunnur uppfærður.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.

71. Vest. 6-10A/Tryggv.18  (01.132.113) 216605 Mál nr. BN052982

Á afgreiðslufundi 23. maí sl. var samþykkt erindið BN051886.  Í textanum stendur að um sé að ræða gististað í flokki IV en hið rétta er að um er að ræða gististað í flokki III í Tryggvagötu 18 á lóðinni Vest.  6-10A/Tryggv. 18.

Afgreitt.

Fyrirspurnir

72. Boðagrandi 1-7  (01.521.301) 105950 Mál nr. BN052981

Kári Garðarsson, Boðagrandi 1, 107 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að setja sólpall við íbúð í mhl 01 í húsi nr. 1 á lóð nr. 1 til 7 við Boðagranda.

Afgreitt.

Með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

73. Granaskjól 24  (01.515.502) 105854 Mál nr. BN052954

Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, Granaskjól 24, 107 Reykjavík

Spurt er hvort íbúð á jarðhæð fengist samþykkt sem séreign í húsi á lóð nr. 24 við Granaskjól.

Neikvætt.

Með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

Fundi slitið kl. 13.50

Harri Ormarsson

Nikulás Úlfar Másson Sigríður Maack

Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson

Óskar Torfi Þorvaldsson Olga Hrund Sverrisdóttir