Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2012, miðvikudaginn 19. desember kl. 09.08, var haldinn 300. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Ósk Frímannsd Jensen og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Björn Stefán Hallsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Bjarnason, Magnús Ingi Erlingsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Valný Aðalsteinsdóttir og Margrét Þormar. Fundarritari var Einar Örn Thorlacius.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 14. desember 2012.

2. Húsahverfi svæði C, (02.84) Mál nr. SN120562
breyting á skilmálum vegna húsagerðar E8 og E9
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 12. desember 2012 að breytingu á skilmálum deiliskipulags #GLHúsahverfi Grafarvogur III svæði C#GL vegna húsagerðarinnar E8 og útbyggingum. Breytingin felst í því að heimilt hámarks byggingarmagn er hækkað og heimildum til útbyggingar breytt.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

3. Hólmsheiði, fangelsislóð, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN120371
Arkís arkitektar ehf, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 10. ágúst 2012 var lagt fram erindi Framkvæmdasýslu ríkisins dags. 9. ágúst 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hólmsheiði, fangelsislóðar. Í breytingunni felst m.a. breyting á girðingum, samkvæmt uppdrætti Arkís arkitekta dags. 8. ágúst 2012.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

4. Sundlaugavegur 30, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN120563
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs dags. 14. desember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Laugardals vegna lóðarinnar nr. 30 við Sundlaugarveg. Í breytingunni felst að byggja tveggja hæða varðturn ofan á núverandi búningsaðstöðu Laugardalslaugarinnar, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 12. desember 2012.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

5. Frostaskjól 2, Breyting á deiliskipulagi (01.516.9) Mál nr. SN120564
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík
Lagt fram erindi Knattspyrnufélags Reykjavíkur dags. 14. desember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis KR vegna lóðarinnar nr. 2 við Frostafold. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir byggingarreit fyrir þrjár færanlegar kennslustofur, samkvæmt uppdr. framkvæmda- og eignasviðs dags. 14. desember 2012. Einnig er lagt fram samþykki Knattspyrnufélags Reykjavíkur f.h. lóðarhafa Frostaskjóls 2 og 4 dags. 14. desember 2012.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Frostaskjóli 13, 15, 17, 19, 21, 23 og 25 og Fjörugranda 2, 4, 6, 8, 10 og 12.

6. Blikastaðavegur 2-8, breytt deiliskipulag vegna gagnavers (02.4) Mál nr. SN120228
Arkís arkitektar ehf, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi Arkís dags. 16. maí 2012 ásamt uppdrætti dags. 20. apríl 2012 um breytingu á deiliskipulagi að Blikastaðavegi 2-8. Breytingin felst í því að lóðin verði skilgreind sem verslunar, þjónustu og athafnasvæði og afmarkaðir verða 3 nýir byggingareitir á lóðinni.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

7. Hverfisgata 57, breyting á deiliskipulagi (01.152.5) Mál nr. SN120570
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Hverfill ehf., Helluvaði 1, 110 Reykjavík
Lögð fram tillaga Plús arkitekta varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.152.5 vegna lóðarinnar nr. 57 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst hækkun á húsinu um eina hæð ásamt auknu byggingarmagni á lóðinni samkvæmt uppdrætti Plús arkitekta dags. 18. desember 2012.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 57 við Hverfisgötu þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir. Deiliskipulag lóðanna Hverfisgata 59-61 og Frakkastígs 6b verður tekið til endurskoðunar síðar.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN044003
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 712 frá 18. desember 2012.

(D) Ýmis mál

9. Skipulagsráð, menningarminjalög Mál nr. SN120566
Kynnt ný lög um menningarminjar sem taka gildi um áramótin 2012-2013
Anna Lísa Guðmundsdóttir kynnti.

Jórunn Frímannsdóttir vék af fundi kl. 10:20, Marta Guðjónsdóttir tók sæti á fundinum á sama tíma, þá átti eftir að fjalla um mál nr. 6 og 7 á dagskránni.

10. Öskjuhlíð, opin hugmyndasamk/ samkeppnislýsing(01.76) Mál nr. SN120035
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Kynnt niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um skemmtilegri Öskjuhlíð. Í samkeppnina bárust tillögur frá 58 aðilum og voru margar þeirra mjög fjölbreyttar og frjóar.
Hlín Sverrisdóttir kynnti.

11. Vatnsmýrin, fornleifaskrá og húsakönnun (01.6) Mál nr. SN120558
Minjasafn Reykjavíkur, Pósthólf 10020, 130 Reykjavík
Lagt fram bréf Minjasafns Reykjavíkur dags. 10. desember 2012 ásamt drögum að húsakönnun dags. 10. desember 2012 varðandi mannvirki frá árum seinni heimsstyrjaldar og varðveislugildi þeirra.
Frestað.

12. Skipulagsráð, leiðrétt fundargerð frá 3. desember 2012. Mál nr. SN120569
Lögð fram tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Júlíusar Vífils Ingvarssonar að fundargerð skipulagsráðs frá 3. desember 2012 yrði lagfærð þannig að í afgreiðslu málsins væri bókun Sjálfstæðismanna lögð fram fyrst síðan bókun áheyrnarfulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs og að lokum bókun Besta flokksins og Samfylkingarinnar.
Samþykkt

13. Miðborgin, hús sem má rífa samkv. deiliskipulagi Mál nr. SN120302
Lögð fram samantekt dags. júní 2012 yfir hús sem má rífa í miðborginni samkvæmt samþykktu deiliskipulagi
Kynnt.

14. Betri Reykjavík, Matarmarkaður við höfnina á sumrin Mál nr. SN120486
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 30. nóvember 2012 var lögð fram efsta hugmynd í skipulagsflokki á Betri Reykjavík frá 31. október 2012 #GL Matarmarkaður við höfnina á sumrin#GL ásamt samantekt af umræðum og rökum. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Frestað.

15. Ártúnshöfði, landþróun og skipulag (04.0) Mál nr. SN120552
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 7. desember 2012 ásamt erindi Faxaflóahafna og skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar dags. 30. nóvember 2012 varðandi landþróun og skipulag á Ártúnshöfða og Sævarhöfða. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 6. desember 2012 að vísa erindinu til umsagnar skipulagsráðs.
Frestað.

16. Nelson Mandela torg, bréf Arkitektur- og designhögskolen i Oslo Mál nr. SN120474
Lagt fram bréf Arkitektur- og designhögskolen i Oslo dags. 5. október 2012 varðandi útfærslu á Nelson Mandela torgi í Reykjavík.
Frestað.

17. Reykjavíkurflugvöllur, frumvarp til laga (01.6) Mál nr. SN120511
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarráðs 7. desember 2012 vegna samþykktar borgarráðs þann 6. desember 2012 á umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. nóvember 2012 og sameiginlegri umsögn skrifstofu borgarstjórnar og borgarlögmanns dags. 28. nóvember 2012 um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs.

18. Sóleyjarimi 4 og 6, breyting á deiliskipulagi (02.534.5) Mál nr. SN120526
Lagt fram bréf borgarráðs dags. 7. des. 2012 um samþykkt borgarráðs dags. 6. des. 2012 á auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi vegna Sóleyjarima 4 og 6.

19. Pósthússtræti 11, breyting á deiliskipulagi (01.140.5) Mál nr. SN120519
Hótel Borg ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarráðs dags. 7. des. 2012 um samþykkt borgarráðs dags. 6. des. 2012 á auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi vegna Pósthússtrætis 11.

20. Sléttuvegur, Hrafnista, breyting á deiliskipulagi (01.79) Mál nr. SN120500
Sjómannadagsráð Rvíkur/Hafnarfj, Laugarási Hrafnistu, 104 Reykjavík
THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarráðs dags. 7. des. 2012 um samþykkt borgarráðs dags. 6. des. 2012 á auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar Hrafnistu á Sléttuvegi.

21. Seljahverfi, breyting á deiliskipulagi (04.9) Mál nr. SN120520
Lagt fram bréf borgarráðs dags. 7. des. 2012 um samþykkt borgarráðs dags. 6. des. 2012 á auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi Seljahverfis vegna tengingu gangstíga.

Fundi slitið kl. 12.20.

Páll Hjalti Hjaltason

Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Marta Guðjónsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2012, þriðjudaginn 18. desember kl. 10.40 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 712. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Stefán Hallsson, Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Jón Hafberg Björnsson, Sigurður Pálmi Ásbergsson, Óskar Torfi Þorvaldsson, Björn Kristleifsson og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Harri Ormarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 9 (01.140.414) 100855 Mál nr. BN045089
Aðaleign ehf, Hegranesi 35, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að breyta lítillega innra fyrirkomulagi (sbr.erindi BN044195 og BN044488) í kaffihúsi í kjallara og á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 9 við Aðalstræti.
Um er að ræða kaffihús í flokki I.
Hámarksfjöldi gesta er 29 manns. Sæti eru fyrir 18 manns utandyra.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

2. Almannadalur 25-29 (05.865.201) 208504 Mál nr. BN045339
Þorgeir Benediktsson, Sílakvísl 2, 110 Reykjavík
Brynja Viðarsdóttir, Grundarhvarf 3, 203 Kópavogur
Runólfur Bjarnason, Álfkonuhvarf 59, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum á vestur gafl á hesthúsinu nr. 25 á lóð nr. 25-29 við Almannadal.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

3. Arngrímsgata 5 (01.550.701) 221201 Mál nr. BN045375
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og aðstöðusköpun á lóðinni nr. 5 við Arngrímsgötu (Hús íslenskra fræða) sbr. erindi BN044048.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

4. Ásholt 2-42 (01.242.005) 103030 Mál nr. BN045365
Ásholt 2,húsfélag, Ásholti 2, 105 Reykjavík
Jóna Helga Jónsdóttir, Ásholt 24, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi f til að setja svalalokanir ál- og glerkerfi með braut ofan og neðan í fjölbýlishúsinu nr. 2 á lóð nr. 2-42 við Ásholt.
Jákvæð fyrirspurn BN044660 fylgir.
Stærðir B- rýma í ferm. xx og rúmm. xx brúttó - svalalokanir.
Gjald 8.500 + ??
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Baldursgata 30 (01.186.212) 102241 Mál nr. BN045322
Þorlákur Hilmar Morthens, Haðarstígur 18, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði á annarri hæð í íbúð, koma fyrir svölum á suðurhlið og breyta gluggum á norðurhlið hússins á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu.
Samþykki nokkurra meðeigenda dags. 15.11.2012 fylgir erindinu.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 28.09.2012 (v. fyrirspurnar) fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Baldursgata 39 (01.181.211) 101765 Mál nr. BN045361
Hásteinar ehf., Spítalastíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi vegna jarðvinnu og sökkla viðbyggingar á lóðinni nr. 39 við Baldursgötu. sbr. erindi BN044743.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

7. Barónsstígur 47 (01.193.101) 102532 Mál nr. BN044274
Álftavatn ehf., Pósthólf 4108, 124 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta gistiheimili í flokki II fyrir 46 gesti á 1. hæð í heilsuverndarstöðinni á lóð nr. 47 við Barónsstíg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 2.5. 2012, greinargerð vegna hljóðvistar 27.4. 2012, bréf húsafriðunarnefndar dags. 23.10. 2012.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

8. Bjargarstígur 15 (01.184.106) 102016 Mál nr. BN044657
Stefán Þór Steindórsson, Bjargarstígur 15, 101 Reykjavík
Þórhildur Rafns Jónsdóttir, Bjargarstígur 15, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka svalir sem fjarlægðar hafa verið vegna fúa á annarri hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bjargarstíg.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda dags. 20.11. 2011 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. júní 2012.
Gjald kr. 8.500 + 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Bjargarstígur 2 (01.184.310) 102049 Mál nr. BN045263
Bjargarstígur 2,húsfélag, Bjargarstíg 2, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningu vegna eignaskiptasamnings fyrir fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 2 við Bjargarstíg.
Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 20.11. 2012, fundargerð húsfundar dags. 19.11. 2012, bréf eiganda 0201 dags. 22.11. 2012, greinargerð eiganda 0201 dags. 21.11. 2012, afsal dags. 22.4. 1987, virðingarmat dags. 1.8. 1942.
Mótmæli eins eigenda (tölvubréf dags. 22. nóvember 2012) fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Bókhlöðustígur 2 (01.183.107) 101929 Mál nr. BN045163
Völundur Snær Völundarson, Bókhlöðustígur 2, 101 Reykjavík
YUZU ehf., Bókhlöðustíg 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka kjallara til austurs og innrétta í honum eldhús og veitingasal fyrir 40 gesti og veitingaflokk II en á hæðinni og undir risi er íbúð í húsinu sem byggt var 1882 á lóðinni nr. 2 við Bókhlöðustíg.
Meðfylgjandi er umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 26.10. 2012 og Húsafriðunarnefndar dags. 29.10. 2012.
Stærðir: 365,4 ferm., 1.055,2 rúmm.
Stækkun: 81,2 ferm., 306,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 26.027
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Grenndarkynningu ólokið.

11. Brúnavegur 13 (01.351.001) 104174 Mál nr. BN045358
Fulltrúaráð Sjómannadagsins, Laugarási Hrafnistu, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina 2 vistherbergi, koma fyrir borð- og setustofu á C2, setja 3 nýja glugga á austurhlið C álmu, þvottahús minnkað og geymsla sett inn og komið verður fyrir fótasnyrtistofu í D álmu í Dvalarheimilinu Hrafnistu á lóð nr. 13 við Brúnaveg.
Umsögn burðarvirkshönnuðar dags. 11. des. 2012
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Esjugrund 5 (32.473.703) 125784 Mál nr. BN045286
Sambýlið Esjugrund 5 slf, Esjugrund 5, 116 Reykjavík
Þorsteinn Einarsson, Jörfagrund 42, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044221 þannig að teikning er samræmd við núverandi ástand og texta um brunavarnir í húsinu á lóð nr. 5 við Esjugrund.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

13. Fiskislóð 39 (01.086.601) 209697 Mál nr. BN045350
Formprent ehf., Hverfisgötu 78, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN037444 þar sem færð er til hurð og skyggni úr mátlínu 12A í mátlínu 13A í húsi á lóð nr. 39 við Fiskislóð.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Framnesvegur 68 (01.520.316) 105935 Mál nr. BN045337
Steinunn Þórarinsdóttir, Framnesvegur 68, 101 Reykjavík
Steinunn Thórarinsdóttir slf, Framnesvegi 68, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sem felast í nýjum veröndum, stækkun kjallara að hluta undir upprunalegu húsi og undir allri viðbyggingunni frá 1982 ásamt tilfærslu á nokkrum innveggjum í einbýlishúsi á lóð nr. 68 við Framnesveg.
Stækkun 49 ferm., 132 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 11.220
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

15. Freyjubrunnur 25-27 (02.695.502) 205732 Mál nr. BN045362
Frjálsi hf., Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyt inna skipulagi íbúða, bætt við sorp tunnum , opnanlegum fögum breytt og stálvirki sem fjarlægt var af teikningum 2008 er komið fyrir aftur á þakið á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25-27 við Freyjubrunn sbr. BN035953.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Grandagarður 8 (01.115.101) 100046 Mál nr. BN045353
Víkin - Sjóminjasafn í Re ses., Grandagarði 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja nýjan stiga á milli 1. og 2. hæðar, breytinga á eldhúsi, veitingar-og kaffisal, fjölgun salerna og lagfæringu á eldvörnum í húsinu á lóðinni nr. 8 við Grandagarð.
Bréf frá hönnuði dags. 11. des. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

17. Grandavegur 44 (01.520.402) 216911 Mál nr. BN045297
Þingvangur ehf, Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús, einangrað að utan og klætt flísum og málmplötum, með 99 íbúðum, tíu hæðir og bílakjallara fyrir 73 bíla á lóð nr. 44 við Grandaveg.
Stærðir:
Mhl. 01: 4.340,4 ferm., 12.853,5 rúmm.
Mhl. 02: 4.387,5 ferm., 13.003,8 rúmm.
Mhl. 03: 4.388,4 ferm., 13.130,6 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Grjótháls 10 (04.300.101) 217427 Mál nr. BN045371
Bón og þvottastöðin ehf., Grjóthálsi 10, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta lítillega áður samþykktu erindi (sbr. erindi BN042569 og BN042569). Bílastæði á austurhluta lóðar eru færð í fyrra horf og stigi í gryfju smurstöðvar er færður til í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 10 við Grjótháls.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

19. Haukdælabraut 66 (05.114.802) 214809 Mál nr. BN045084
Gunnar Ás Vilhjálmsson, Bakkastaðir 57, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu, einangrað að utan og klætt með málmi, timbri og múr, á lóð nr. 66 við Haukdælabraut.
Stærð: 1. hæð íbúð 46,9 ferm., bílgeymsla 77,5 ferm.,2. hæð íbúð 287 ferm.
Samtals 411,4 ferm., 1.913,7 rúmm.
B-rými 6,1 ferm.
Gjald kr. 8.500 + 162.665
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

20. Hólmaslóð 10 (01.110.502) 100020 Mál nr. BN045279
Olíudreifing ehf., Pósthólf 4230, 124 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN043780 þannig að hurð milli 0102 og 0103 er fjarlægð og gryfja felld út, settur er upp nýr hlaupaköttur og brunamerkingum breytt í húsinu á lóð nr. 10 við Hólmaslóð. Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

21. Hverafold 1-5 (02.874.201) 110375 Mál nr. BN045366
Jón I. Garðarsson ehf, Hverafold 5, 112 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi íbúðar á þriðju hæð í húsi nr. 5 á lóðinni nr. 1-5 við Hverafold.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Hverfisgata 20 (01.171.008) 101354 Mál nr. BN045179
I 2011 ehf, Þverholti 5, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi veitingastaðar í flokki III þar sem kemur fram stækkun millipalls, fjölgun gesta í 300 og breytingar á innra skipulagi í húsi á lóð nr. 20 við Hverfisgötu.
Samþykki meðeigenda fylgir ódags. á teikningu.
Stækkun: 16,0 ferm.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Hverfisgata 50 (01.172.005) 101428 Mál nr. BN045367
Dóra Takefusa, Hverfisgata 50, 101 Reykjavík
Magdalena M Hermannsdóttir, Hverfisgata 50, 101 Reykjavík
Cecilia Elsa Línudóttir, Hverfisgata 102b, 101 Reykjavík
Borgarhjól REY ehf, Túnbrekku 2, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta klæðningu utanhúss, sbr. nýsamþykkt erindi BN044150, sem felst í að álklæða í stað þess að múrhúða veggi milli glugga í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 50 við Hverfisgötu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Höfðabakki 1 (04.070.001) 110677 Mál nr. BN045342
LBI ehf., Álfheimum 74, 104 Reykjavík
Klöpp arkitektar/verkfræð ehf, Pósthólf 10050, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir veitingaaðstöðu í flokki I fyrir 25 gesti í fiskbúð í mhl. 02 rými 0003 í húsinu á lóð nr. 1 við Höfðabakka.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Klapparstígur 25-27 (01.172.016) 101438 Mál nr. BN045295
Réttur-Aðalsteins & Partner ehf, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík
Klapparhorn ehf, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi á þriðju hæð hússins á lóðinni nr. 25-27 við Klapparstíg.
Samþykki meðeiganda (á teikn.) fylgir erindinu.
Kvöð vegna samnýtingar eignarhluta á þriðju hæð þinglýst 7. sept. 2012 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Korpúlfsstaðavegur-Go (02.4--.-99) 213909 Mál nr. BN045359
Golfklúbbur Reykjavíkur, Pósthólf 12067, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja eina brú í stað tveggja yfir Korpu á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur við Korpúlfsstaði.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

27. Krókháls 4 (04.326.002) 111047 Mál nr. BN045151
G.Th.Eggertsson ehf, Krókhálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteiknum þar sem rými 0102 hefur verið skipt um í 0102 og 0103, rými 0102 verður nýtt sem vörugeymsla og 0103 verður notað sem frysti- og geymslurými í húsinu á lóð nr. 4 við Krókháls.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Kvistaland 1-7 (01.863.301) 108806 Mál nr. BN045346
Guðmundur Magnússon, Kvistaland 3, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess hækka þakkant um 10cm og einangra að innan áður samþykkta viðbyggingu (sbr. erindi BN042931 og BN045044) á suðurhlið hússins nr. 3 á lóðinni nr. 1-7 við Kvistaland.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

29. Laugavegur 15 (01.171.112) 101378 Mál nr. BN045360
Menningar/framfarasj Ludv Storr, Laugavegi 15, 101 Reykjavík
Frank Óskar Chatham Pitt, Kópavogsbraut 100, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að breyta fjórum íbúðum á þriðju og fjórðu hæð í gistiheimili í húsinu á lóðinni nr. 15 við Laugaveg.
Bréf hönnuðar dags. 11.12.2012 fylgir erindinu.
Umboð eigenda dags. 05.12.2012 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Laugavegur 74 (01.174.207) 101610 Mál nr. BN045340
Laug ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi eldhúss og flóttaleiðar í kjallara, stækka gistiheimili en minnka sem því nemur verslunarrými á fyrstu hæð og koma fyrir opnanlegum fögum í gluggum á norðurhlið hússins á lóðinni nr. 74 við Laugaveg.
Um er að ræða gistiheimili í flokki V.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Ljósheimar 14-18 (01.437.101) 105383 Mál nr. BN043068
Ljósheimar 14-18,húsfélag, Ljósheimum 14-18, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja gustlokun á svalaganga á norðausturhlið úr samlímdu öryggisgleri í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14-18 við Ljósheima.
Erindi fylgir umsögn brunahönnuðar dags. 8. júlí 2011.
Stærðir: 2.587,2 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 8.500 + 206.976
Frestað.
Lagfæra skráningu.

32. Logafold 20-22 (02.874.503) 110381 Mál nr. BN045291
Aðalsteinn Óðinsson, Noregur, Sótt er um leyfi fyrir gustlokun á brautum á svalir íbúðar 0302 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 20-22 við Logafold.
Jákvæð fyrirspurn BN045291 fylgir erindinu og samþykki meðlóðarhafa ódagsett.
Stækkun: 23,4 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 1.989
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Lokastígur 2 (01.181.101) 101738 Mál nr. BN045304
Hótel Óðinsvé hf, Þórsgötu 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að opna tímabundið yfir lóðamörk Þórsgötu 1 (Týsgötu 5) og Lokastígs 2 með tengibyggingu og stækka með endurinnréttingu og breytingum hótel Óðinsvé á lóð nr. 1 við Þórsgötu og 2 við Lokastíg.
Sjá bókun skipulagsráðs frá 11.7. 2012.Stækkun 25 ferm., 66,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 5.636
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um samruna eigna eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Þinglýsa skal kvöð vegna tímabundina opnunar fyrir útgáfu byggingarleyfis, þannig að leyfið falli úr gildi verði um breytta notkun eða breytt eignarhald að ræða á lóðinni nr. 1 við Þórsgötu og nr. 2 við Lokastíg.

34. Mýrargata 2-8 (01.116.401) 100072 Mál nr. BN045352
Slippurinn, fasteignafélag ehf., Stórhöfða 25, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044340 þar sem flutt er starfsmannaaðstaða úr kjallara uppá 1. hæð koma fyrir undirbúningseldhúsi í kjallara og koma fyrir pizzaofni á 1. hæð í Marina hóteli á lóð nr. 2-8 við Mýrargötu.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 11.des. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Mýrargata 26 (01.115.303) 100059 Mál nr. BN045370
Byggakur ehf, Lyngási 11, 210 Garðabær
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsteypu veggja á 2. hæð hússins á lóðinni nr. 26 við Mýrargötu. Erindið er vegna byggingaleyfis nr. BN044699 sem samþykkt var þann 17.07 2012 og breytingu á BN035993 sem samþykkt var 27.05 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

36. Nauthólsvegur 50 (01.619.601) 106641 Mál nr. BN045329
Iceeignir ehf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044056 þar sem breytingar eru í brunahönnun aðalstigahúss í hótelinu á lóð nr. 50 við Nauthólsveg.
Bréf frá hönnuði dags. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Njarðargata 43 (01.186.606) 102302 Mál nr. BN044690
Sigurður Már Hilmarsson, Suðurmýri 32, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN040981 sem samþykkt var 30. mars 2010. Þar var sótt um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi, þar sem innréttað er gistiheimili með ellefu rúmum, tvö herbergi með eldunaraðstöðu á 1. hæð, fjögur herbergi með eldunaraðstöðu á 2. hæð og íbúð í risi íbúðarhússins á lóð nr. 43 við Njarðargötu.
Gistiheimilið er rekið í tengslum við gistihúsið Áróru á Freyjugötu 24 í um 20 metra fjarlægð. Þar er móttaka og þjónusta við gesti.
Ath. grunnmynd annarrar hæðar er leiðrétt (vaskur í ræstiskáp) því nýjar teikningar..
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Njálsgata 12A (01.182.212) 101864 Mál nr. BN045055
Lárus Rögnvaldur Haraldsson, Njálsgata 12a, 101 Reykjavík
Hildur Björgvinsdóttir, Njálsgata 12a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja og færa til upprunalegs horfs og byggja kvisti á einbýlishús á lóð nr. 12A við Njálsgötu.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 7. nóvember 2012 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 14. desember 2012.
Erindið var grenndarkynnt frá 14. nóvember til og með 12. desember 2012. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 10,5 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 893.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

39. Norðurgarður 1 (01.112.-95) 100030 Mál nr. BN045332
HB Grandi hf., Norðurgarði 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja spennistöð úr.................... fyrir OR, upp að norð-vestur hluta byggingar á lóð nr. 1 við Norðurgarð.
Stærðir 34 ferm., 68,5 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 5.823
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Nökkvavogur 22 (01.441.201) 105442 Mál nr. BN045176
Magnús Haukur Magnússon, Nökkvavogur 22, 104 Reykjavík
Valborg Kjartansdóttir, Nökkvavogur 22, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta fataherbergi og herbergi í rishæð, koma fyrir kvist á norðurhlið og kvist og svalalokun á vesturhlið í húsinu á lóð nr. 22 við Nökkvavog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. nóvember 2012 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. desember 2012.
Stækkun: 10,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 867
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

41. Sigluvogur 8 (01.414.113) 105108 Mál nr. BN045357
Guðmundur Ingi Jónsson, Sigluvogur 8, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN041367 þar sem breytt er byggingarefni skyggnis, glugga bætt við í hjólageymslu í kjallara og steypa lágan garðvegg á lóðarmörkum á lóð nr. 8 við Sigluvog.
Bréf frá hönnuði dags. 10. des. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Skeifan 11 (01.462.001) 195597 Mál nr. BN045310
Eik fasteignafélag hf., Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra rými 0105 í mhl. 04 til að koma fyrir nýrri verslun í húsinu á lóð nr. 11 við Skeifuna .
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits umsóknarblaði.

43. Skipasund 38 (01.357.109) 104420 Mál nr. BN045313
Íris Einhildur Sturlaugsdóttir, Skipasund 38, 104 Reykjavík
Helga Birgisdóttir, Skipasund 38, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningu þar sem gert er grein fyrir skiptingu sérnotaflata á stækkun svala og þar myndast garðáhaldaskúr og áður gerðar breytingar á mhl. 02 þar sem milliveggur og útihurð, sem sýnd voru á eldri teikningum voru ekki gerðar á húsinu og bílskúr á lóð nr. 38 við Skipasund.
Stækkun garðskýli 6,5 ferm., 10,7 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 909
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

44. Skúlagata 14-16 (01.152.301) 101036 Mál nr. BN045293
101 Skuggahverfi ehf, Hátúni 2B, 105 Reykjavík
Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir matshluta 15, sem er fjölbýlishús á 14 hæðum, Vatnsstígur 20-22 sem er þriðji áfangi framkvæmda á lóð nr. 14-16 við Skúlagötu.
Sjá einnig erindi BN033769. Erindi fylgir samantekt hönnuðar dags. 4. desember 2012.
Stærð 6.763,8 ferm.
Gjald 8.500
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

45. Skúlagata 4 (01.150.301) 100968 Mál nr. BN045351
Sjávarútvegshúsið (Skúlagata 4), Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum á 1- 4 hæð þar sem úrbætur á vinnuaðstöðu starfsmann eru gerðar í húsinu á lóð nr. 4 við Skúlagötu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Stakkholt 2-4 (01.241.103) 103018 Mál nr. BN045197
Arcus ehf, Fossaleyni 16, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt íbúðar- og atvinnuhús einangrað að utan og klætt áli. Húsið skiptist í sex matshluta, fimm mishá stigahús með 139 2-4 herbergja íbúðum, verslunar- og þjónusturýmum og bílakjallara fyrir 144 bíla og verður nr. 2A, 2B, 4A, 4B og 3A og 3B á lóð nr. 2-4 við Stakkholt.
Stærðir:
Mhl.01, bílakjallari: 4500 ferm.
Mhl.02, íbúðir: 4415,7 ferm.
Mhl.03, íbúðir: 2.338,3 ferm.
Mhl.04, íbúðir: 3.795,3 ferm.
Mhl.05, íbúðir: 1.573,8 ferm.
Mhl.06, íbúðir: 2.227 ferm.
Samtals 12.120 ferm., 41.430 rúmm.
Gjöld kr. 8.500 + 3.521.550
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Suðurgata 41-43 (01.600.101) 218919 Mál nr. BN045184
Ríkissjóður Íslands, Vegmúla 3, 150 Reykjavík
Sótt er umleyfi til að breyta fyrirkomulagi og fjölda bílastæða og koma fyrir hliðaslá austan við húsið nr. 43 (Setberg) á lóð Þjóðminjasafnsins nr. 41-43 við Suðurgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. desember 2012 fylgir erindinu.
Sýnd eru 13 bílastæði austan hússins, þar af tvö fyrir fatlaða.Jákvæð fyrirspurn BN044940 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

48. Sæmundargata 14 (01.631.201) 220415 Mál nr. BN045368
Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi Sæmundar, 101 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir 2. hæð í byggingu K4 (nr. 20) á lóðinni nr. 14 við Sæmundargötu sbr. erindi BN044592.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

49. Sörlaskjól 78 (01.531.019) 106134 Mál nr. BN044991
Snorri Pétur Eggertsson, Sörlaskjól 78, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á norðurhlið, svalir á suðurhlið 1. hæðar, verönd og hurð út í garð úr kjallara og til að byggja hjólaskýli við norðurhlið bílskúrs við parhús á lóð nr. 78 við Sörlaskjól.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. október 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. október 2012.
Kvistur: xx rúmm.
Hjólageymsla xx ferm., xx rúmm.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Tjarnargata 30 (01.142.001) 100922 Mál nr. BN045026
Ragnar Ómarsson, Hraunbær 72, 110 Reykjavík
Melissa Ann Berg, Bandaríkin, Nathaniel Berg, Bandaríkin, Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, koma fyrir þakgluggum á vesturhlið og inngangi í kjallara, setja útihurð á sólstofu og hlið á innkeyrslu, byggja sólpall m/setlaug í garði, færa glugga og skrautlista til upprunalegs horfs, útbúa geymslu fyrir reiðhjól undir verönd og breyta í einbýli, fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Tjarnargötu.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Urðarbakki 2-14 (04.604.205) 111741 Mál nr. BN045355
Hildur Gunnarsdóttir, Sólheimar 27, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að taka í notkun aflokuð rými á fyrstu hæð og innrétta þar tómstundarými og sjónvarpshol, minnka glugga á vesturhlið og koma fyrir tveimur gluggum á austurhlið fyrstu hæðar hússins nr. 6 á lóðinni nr. 2-14 við Urðarbakka.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Úlfarsbraut 42-44 (02.698.306) 205717 Mál nr. BN045348
Björn Friðþjófsson, Krókamýri 8, 210 Garðabær
Elías Óskar Illugason, Breiðvangur 19, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN035736 þannig að einangrað verður að innanverðu, þakhalli minnkaður og hæð glugga á efri hæð verða minnkuð í húsinu á lóð nr. 42-44 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Vatnagarðar 8 (01.337.703) 103914 Mál nr. BN045363
Reginn A1 ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Reginn hf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi, koma fyrir nýjum innkeyrsludyrum, breyta flóttaleiðum og nýta sem þrjár séreignareiningar atvinnuhúsið á lóðinni nr. 8 við Vatnagarða.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

54. Veghúsastígur 9 (01.152.418) 101063 Mál nr. BN044391
RR hótel ehf., Laugavegi 182, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta gistiheimili með einni íbúð á hverri hæð með samtals 17 gistirúmum í þriggja hæða íbúðarhúsi á lóð nr. 9 við Veghúsastíg.
Erindi fylgir jákv. fsp. BN044187 dags. 6. mars 2012. Meðfylgjandi er minnisblað eldvarnahönnuðar dags. 16.4. 2012,
Stærðir: Kjallari, 74,1 ferm., 1. hæð, 112 ferm., 2. hæð, 106,6 ferm., ris, 92,4 ferm., samtals, 385,1 ferm., 1.026,8 rúmm.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

55. Vest.6-10A/Tryggv.18 (01.132.113) 216605 Mál nr. BN045356
Hol T18 ehf., Pósthólf 182, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir dyrum með eldvarnarhurð milli rýma 0104 (sameignarrými) og 0102 (séreign) á fyrstu hæð hússins nr. 18 við Tryggvagötu á lóðinni Vest.6-10A/Tryggv.18.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda.

56. Vínlandsleið 2-4 (04.121.101) 188022 Mál nr. BN045281
Vínlandsleið ehf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta lögreglustöð í hluta af 2 hæð og millipalls hússins á lóð nr. 2-4 við Vínlandsleið.
Bréf frá hönnuði dags. 5. des. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

57. Þórsgata 1 (01.181.116) 101752 Mál nr. BN044411
Hótel Óðinsvé hf, Þórsgötu 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tengibyggingu milli Lokastígs 2 og Týsgötu 5/Þórsgötu 1, breyta fyrirkomulagi innanhúss og sameina húsin í hótel, jafnframt eru erindi BN044183 og BN044184 dregin til baka, á lóð nr. 1 við Þórsgötu.
Meðfylgjandi er loftræsihönnun fyrir kjallararými á teikningu númer A-004.
Viðbygging stækkun: 39,3 ferm., 101,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 8.602
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Þinglýsa skal kvöð vegna tímabundina opnunar fyrir útgáfu byggingarleyfis, þannig að leyfið falli úr gildi verði um breytta notkun eða breytt eignarhald að ræða á lóðinni nr. 1 við Þórsgötu og nr. 2 við Lokastíg.

Ýmis mál

58. Garðastræti 17 (01.136.525) 100614 Mál nr. BN044911
Gestur Ólafsson, Garðastræti 15, 101 Reykjavík
Spurt er með hliðsjón af meðfylgjandi mæliblaði Reykjavíkur 1.136.5, unnu af framkvæmda- og eignasviði borgarinnar, landupplýsingadeild, dags. 24.01. 2012 hafa allir eigendur Garðastrætis 17 og Garðastrætis 19 nú samþykkt það fyrirkomulag sem þar kemur fram sbr. meðfylgjandi gögn. Þar sem um er að ræða er að 58.00 ferm verður bætt við lóð Garðastrætis 17 og lóð Garðastrætis 19 skert sem því nemur, eins og fram kemur á ofangreindu breytingarblaði. Hér með er óskað eftir samþykki byggingarfulltrúans í Reykjavík til þessara breytinga eins og þær eru sýndar á meðfylgjandi breytingarblaði Reykjavíkur, 1.136.5.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 31. ágúst 2012 fylgir erindinu ásamt greinagerð byggingarfulltrúa dags. 14. desember 2012.
Frestað.
Með tillögu byggingarfulltrúa til skipulagsráðs sbr. greinagerð byggingarfulltrúa um lóðamörk Garðastrætis 17 dags. 14. desember 2012.
Vísað til afgreiðslu skipulagsráðs.

59. Lækjargata 8 (01.140.510) 100870 Mál nr. BN045369
Lækur ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Á fundi byggingarfulltrúa þann 4. desember 2012 var ranglega bókað svo varðandi erindi BN045233: #GLSótt er um leyfi til breytinga innanhúss, sbr. nýsamþykkt erindi BN044927 að koma fyrir matarlyftu, breyta aðstöðu starfsfólks, fyrirkomulagi í eldhúsi og snyrtingum er fækkað um eina á 1.hæð, en fjölgað um eina á 2.hæð í veitingahúsi á lóð nr. 8 við Lækjargötu#GL.
Ekki var rétt að tengja saman erindi BN045233 og erindi BN044927, þau eru algerlega aðskilin erindi hvort með sinn byggingarstjóra.
Rétt bókun hefði því átt að hljóma svo:
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss, að koma fyrir matarlyftu, breyta aðstöðu starfsfólks, fyrirkomulagi í eldhúsi og snyrtingum er fækkað um eina á 1.hæð, en fjölgað um eina á 2.hæð í veitingahúsi á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

60. Skólavörðustígur 40 (01.181.404) 101794 Mál nr. BN045383
S40 ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Lagt fram erindi frá S40 ehf. þar sem farið er fram á að erindi BN045175 sem samþykkt var á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 4. desember 2012 verði fellt úr gildi.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Fyrirspurnir

61. Búðavað 18-20 (04.791.604) 209921 Mál nr. BN045331
Skeiðarvogur ehf, Móvaði 41, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að færa tvö samliggjandi bílastæði niður fyrir hús nr. 20 á lóð nr. 18 til 20 við Búðavað.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. desember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. desember 2012.
Bréf frá byggingastjóra dags. 3. des. 2012 ásamt teikningum og ljósmyndum fylgja erindinu..
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi.

62. Grandagarður 14 (01.114.501) 100041 Mál nr. BN045347
Klár ehf, Drekavogi 18, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja gistiskála á fyrstu og annarri hæð skrifstofuhúsinu á lóðinni nr. 14 við Grandagarð.
Nei.
Samræmist ekki aðalskipulagi.

63. Hjarðarhagi 54-58 (01.544.401) 106455 Mál nr. BN045343
Birgir Grímsson, Brekkutangi 8, 270 Mosfellsbær
Spurt er hvort leyft yrði að breyta eignarhaldi og skráningu með því að sameina séreignarherbergi 0501, 0502 og 0506 ásamt sameignum 0507 (gangur, eldhús, geymsla, baðherbergi) og 0514 (svalir) og skrá aftur þessar eignir allar sem eina íbúð (íbúð 0501) á fimmtu hæð hússins nr. 56 á lóðinni nr. 54-58 við Hjarðarhaga.
Frestað.
Milli funda.

64. Rauðás 1-7 (04.381.601) 111479 Mál nr. BN045298
Ásmundur Smári Magnússon, Rauðás 9, 110 Reykjavík
Finnur Jón Nikulásson, Rauðás 17, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að færa stoðvegg að gangstétt eða um 120 cm út fyrir lóðamörk norðvestanvert við raðhúsin á lóðunum 1-7 og 9-17 við Rauðás.
Nei.
Ekki er hægt að samþykkja vegg utan lóða.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 12:30

Björn Stefán Hallsson

Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Harri Ormarsson Jón Hafberg Björnsson
Sigurður Pálmi Ásbergsson Óskar Torfi Þorvaldsson
Eva Geirsdóttir