Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2012, miðvikudaginn 11. júlí kl. 09.07, var haldinn 281. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, Karl Sigurðsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Marta Guðjónsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Stefán Hallsson, Stefán Finnsson, Marta Grettisdóttir
Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Björn Ingi Edvardsson, Björn Axelsson, Margrét Þormar og Valný Aðalsteinsdóttir
Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 29. júní og 6. júlí 2012

2. Ingólfstorg, (01.140) Mál nr. N120340
hugmyndasamkeppni um uppbyggingu við Ingólfstorg
Kynnt vinningstillaga Ask arkitekta í hugmyndasamkeppni um uppbyggingu í miðborg Reykjavíkur við Ingólfstorg og í Kvosinni. Einnig lagt fram álit dómnefndar.
Fulltrúar Ask arkitekta kynntu.

Kristín Soffía Jónsdóttir tók sæti á fundinum kl. 10:05

3. Lokastígur 2 / Þórsgata 1, breyting á deiliskipulagi (01.181.1) Mál nr. SN120162
Hótel Óðinsvé hf, Þórsgötu 1, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Hótels Óðinsvé hf. dags. 12. apríl 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Þórsgötureits vegna lóðanna nr. 1 og 3 við Þórsgötu og 2 við Lokastígs. Í breytingunni felst sameining lóðanna nr. 1 við Þórsgötu og 2 við Lokastíg, breyting á nýtingu hússins á lóð nr. 2 við Lokastíg, aukning á nýtingarhlutfalli, byggingu tengibyggingar og breytingu á byggingarreit, samkvæmt uppdrætti Nexus arkitekta dags. 3. apríl 2012. Tillagan var auglýst frá 16. maí til og með 2. júlí 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Íbúasamtök miðborgar dags. 23. maí 2012 og Bjarni Rúnar Bjarnason dags. 1. júlí 2012. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 9. júlí 2012.
Skipulagsráð fellst ekki á sameiningu lóða en gerir ekki athugasemd við viðbyggingu við Þórsgötu 1 og 3 né að sú viðbygging verði tengd við Lokastíg 2.
Þinglýsa þarf þó kvöð á báðar lóðirnar sem gerir tenginguna mögulega og vinna útfærslu áfram hvað varðar brunatæknileg atriði í samvinnu við eldvarnareftirlitið og embætti byggingarfulltrúa.

4. Laugavegur 3, breyting á deiliskipulagi (01.171.0) Mál nr. SN120260
Þorsteinn Haraldsson, Sogavegur Melbær, 108 Reykjavík
Lagt fram erindi Þorsteins Haraldssonar dags. 13. júní 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.0 vegna lóðarinnar nr. 3 við Laugaveg. Í breytingunni felst að fella niður kvöð um gönguleið, samkvæmt uppdrætti Gullinsniðs ehf. dags. 1. júní 2012. Einnig er lagt fram samþykki eiganda að Hverfisgötu 18 dags. 7. júní 2012.
Frestað.
5. 1.171.1 Hljómalindareitur, verkefnalýsing Mál nr. SN120137
Laugavegsreitir ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Lagt fram erindi Laugavegsreita ehf. dags. í júní 2012 varðandi uppbyggingu á svokölluðum Hljómalindarreit. Skipulagssvæðið afmarkast af Hverfisgötu, Klapparstíg, Laugavegi og Smiðjustíg.
Fulltrúar Laugavegsreita ehf. kynntu.

6. Heiðmörk, nýtt deiliskipulag (08.1) Mál nr. SN090348
Lagð fram tillaga Landmótunar dags. 6. júlí 2012 að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk samkvæmt meðfylgjandi greinargerð, deiliskipulagsuppdrætti og umhverfisskýrsla, dags. 6. júlí 2012.
Einnig eru lagðar fram umsagnir og bréf sem bárust við fyrri umfjöllun málsins.
Umsagnir Vegagerðarinnar dags. 20. ágúst 2010, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 13. september 2010 ásamt bókun Umhverfis- og samgönguráðs s.d., umsögn Fornleifaverndar ríkisins dags. 14. september 2010, umsögn Landsnets dags. 14. september 2010, umsögn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 21. september 2010, umsögn Veiðimálastofnunar dags. 22. september 2010, umsögn Veiðifélags Elliðavatns dags. 21. september 2010 ásamt rannsóknarskýrslu Veiðimálastofnunar,
umsögn og bókun skipulagsnefndar Kópavogs, ásamt beiðni um samráðsfund dags. 22. september 2010 og umsögn Umhverfisstofnunar dags. 8. nóvember 2010. Samrit af erindi Kópavogsbæjar barst frá skrifstofu borgarstóra s.d., athugasemdir og umsögn skógræktar ríkisins dags. 27. september 2010, athugasemdir Kópavogsbæjar dags. 25. október 2010, Bergljót Rist dags. 1. nóvember 2010 og athugasemdir Garðabæjar dags. 3. nóvember 2010.
Einnig lagt fram bréf Orkuveitunnar dags. 21. desember 2010 umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 17. janúar 2011 um bréf OR frá 21. desember 2010, umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 23. mars 2011, bréf Orkuveitu Reykjavíkur dags. 9. júní 2011 og bókun umhverfis- og samgönguráðs frá 26. júní 2012.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu
Vísað til borgarráðs.

Jafnframt er samþykkt að tilkynna þeim aðilum sem áður gerðu athugasemdir við tillöguna um nýja auglýsingu.

7. Kjalarnes, Melavellir, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN110517
Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbær
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Matfugls ehf. dags. 8. desember 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Melavellir á Kjalarnesi. Í breytingunni felst fjölgun alifuglahúsa á lóðinni, skv. uppdrætti dags. 15. febrúar 2012. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla verkfræðistofunnar Efla dags. 15. febrúar 2012. Auglýsing stóð frá 23. apríl til 6. júní 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugsemdir: Ásthildur Skjaldardóttir og Birgir Aðalsteinsson dags. 30. maí 2012, Ásgeir Harðarson formaður f.h. Íbúasamtaka Kjalarness dags. 6. júní 2012, Ásgeir Harðarson dags. 6. júní 2012 og Sigríður Pétursdóttir formaður hverfisráðs Kjalarness dags. 6. júní 2012. Einnig er lögð fram bókun frá fundi hverfisráðs Kjalarness þann 14. júní 2012 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 4. júlí 2012.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 9. júlí 2012.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 9. júlí 2012.

8. Kjalarnes, Saltvík, breyting á deiliskipulagi (33.5) Mál nr. SN120321
Atli Jóhann Guðbjörnsson, Flétturimi 5, 112 Reykjavík
Lagt fram erindi Atla Jóhanns Guðbjörnssonar dags. 3. júlí 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit við svínasláturhús, samkvæmt uppdrætti TAG Teiknistofunnar dags. 3. júlí 2012.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN044003
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundagerð nr. 690 frá 3. júlí 2012, ásamt fundargerð nr. 691 frá 10. júlí 2012.

10. Hverfisgata 61, Niðurrif - þrír matshl.. (01.152.515) Mál nr. BN044673
Hverfill ehf., Helluvaði 1, 110 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 29. júní 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að rífa matshluta 01 (byggður árið 1915), matshluta 02 (byggður árið 1945) og matshluta 03 (byggður árið 1927) á lóðinni nr. 61 við Hverfisgötu. Jafnframt er erindi BN044458 dregið til baka.
Tímasett verkáætlun hönnuðar dags. 18. júní 2012 fylgir erindinu.
Niðurrif, Hverfisgata 61, landnúmer 101087.Fastanúmer 200-3352 merkt 01- 0101 - íbúð 48,1 ferm. Fastanúmer 200-3353 merkt 01- 0201 - íbúð 47,5 ferm. Fastanúmer 200-3354 merkt 02- 0001 - vörugeymsla 126,4 ferm.
Fastanúmer 200-3355 merkt 02-0101 - verslun 40,0 ferm.Fastanúmer 200-3356 merkt 02-0102 - vörugeymsla 86,4 ferm. Fastanúmer 2003357 merkt 03-0101 - Geymsla 58,8 ferm.Samtals 407,2 ferm.Niðurrif var áður samþykkt 26. júlí 2005 svo 16.maí. 2006 og aftur 4. mars 2008 en síðan synjað 2. september 2009. Gjald kr. 8.500
Frestað.

11. Sogavegur 3, breyting (01.810.-98) Mál nr. BN044504
Fiskikóngurinn ehf, Sogavegi 3, 108 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. maí 2012 þar sem sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BN044074, stækka 1. hæð til vesturs um 2 metra atvinnuhús á lóð nr. 3 við Sogaveg. Grenndarkynning stóð frá 1. júní til og með 29. júní 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún Bergmann dags. 26. júní 2012.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags.6.júlí 2012
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 6. júlí 2012.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

12. Þorragata 1, Viðbygging á 2 hæðum (01.635.709) Mál nr. BN044332
Sælutröð,dagvistunarfélag, Þorragötu 1, 101 Reykjavík
Fulltrúar Ask arkitekta kynna Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. maí 2012 þar sem sótt er um leyfi til rífa skúrbyggingu og byggja steinsteypta tveggja hæða viðbyggingu við leikskólann Sælukot á lóð nr. 1 við Þorragötu. Grenndarkynning stóð frá 1. til 29. júní 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Íris Björg Ævarsdóttir og Andrew Robert Caputo dags. 29. júní 2012 og Sesselja Bjarndóttir dags. 1. júlí 2012.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 9. júlí 2012.
Niðurrif: xx ferm., xx rúmm.
Viðbygging: xx ferm., xx rúmm.Gjald kr. 8.500 + xxTeikningar útlit
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 9. júlí 2012.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa

Gísli Marteinn Baldursson sat hjá við afgreiðslu málsins.

(C) Fyrirspurnir

13. Hafnarstræti 17-19, (fsp) stækkun lóðar og fl. (01.118.5) Mál nr. SN120276
THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 8. júní 2012 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 6. júní 2012 varðandi hækkun á byggingarmagni og stækkun lóðarinnar nr. 17 við Hafnarstræti og fl. ásamt að byggja yfir svalir á lóðinni nr. 19 við Hafnarstræti, samkvæmt tillögu THG Arkitekta dags. 5. júní 2012. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 9. júlí 2012.
Skipulagsráðs lýsir yfir ánægju sinni með að áhugi sé á uppbyggingu og endurgerð húsa á þessum mikilvæga stað í miðborginni. Reitinn þarf að skoða í stærra samhengi og mun skipulagsráð setja þá vinnu af stað strax að loknum sumarleyfum.

14. Stakkholt 2-4, (fsp) breyting á deiliskipulagi Hampiðjureits (01.241.1)Mál nr. SN120335
THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn THG arkitekta, dags. 27. júní 2012, um breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 2 og 4 við Stakkholt.
Frestað.

(D) Ýmis mál

15. Betri Reykjavík, Göngubrú milli Gunnarsbrautar og Eskihlíðar Mál nr. SN120319
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram efsta hugmynd í skipulagsflokki á Betri Reykjavík frá 29. júní 2012 #GLGöngubrú milli Gunnarsbrautar og Eskihlíðar#GL ásamt samantekt af umræðum og rökum.
Vísað til meðferðar skipulagsstjóra.

16. Suðurlandsbraut 6, málskot Mál nr. SN120303
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Húsfélagið Suðurlandsbr 6-framh, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
Lagt fram málskot dags. 21 júní 2012 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 varðandi stækkun 7. hæðar hússins á lóðinni nr. 6 við Suðurlandsveg og byggingu svala á vesturgafli.
Frestað.

Gísli Marteinn Baldursson og Marta Guðjónsdóttir véku af fundi kl 13:00

17. Fegrunarviðurkenningar 2012, tillögur 2012 Mál nr. SN120301
Lagðar fram tillögur Fegrunarnefndar Reykjavíkur dags. júlí 2012 að tilnefningum til viðurkenninga fyrir árið 2012 vegna lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja/stofnanavegna.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.

18. Brekkustígur 5A, friðun (01.134.204) Mál nr. BN044455
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 13. febrúar 2012 ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 1. febrúar og 7. febrúar 2012. Í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði hússins.

19. Bræðraborgarstígur 14, friðun (01.134.220) Mál nr. SR120004
Lagt fram bréf Húsfriðunarnefndar dags. 3. júlí 2012, ásamt bréfum Mennta- og Menningarmálaráðuneytis dags. 21. júní 2012 og 18. júní 2012.
Í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði hússins.

20. Bræðraborgarstígur 19, friðun (01.137.007) Mál nr. SR120003
Lagt fram bréf Húsfriðunarnefndar dags. 03. júlí 2012, ásamt bréfum Mennta- og menningarmálaráðuneytis dags. 21. júní 2012 og 18. júní 2012.
Í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði hússins.

21. Dyngjuvegur 8, friðun (01.383.204) Mál nr. BN044619
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 6. júní 2012 ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 4. maí og 30 maí 2012. Í bréfunum er lýst friðun á innra byrði Gunnarshúss (fastanúmer 202-0040.)

22. Fríkirkjuvegur 11, friðun (01.183.413) Mál nr. SR120001
Lagt er fram bréf Húsfriðunarnefndar dags. 03. júlí 2012, ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytis dags. 30. maí 2012 og 14. júní 2012.
Í bréfunum er lýst friðun á innra byrði hússins.

23. Lagargata 2, friðun (01.116.502) Mál nr. BN044456
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 13. febrúar 2012 ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 1. og 7. febrúar 2012. Í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði hússins.

24. Suðurgata 26, friðun (01.161.207) Mál nr. SR120002
Lagt fram bréf Húsfriðunarnefndar dags. 03. júlí 2012, ásamt bréfum mennta og menningarmálaráðuneytis dags. 21. júní 2012 og 15. júní 2012.
Í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði hússins.

25. Tómasarhagi 16B, friðun (01.553.221) Mál nr. BN044555
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 11. maí 2012 ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 8. febrúar og 4. maí 2012. Í bréfunum er lýst friðun steinbæjarins. Friðunin nær til ytra byrðis hússins.

Fundi slitið kl. 1305.

Hjálmar Sveinsson
Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir Karl Sigurðsson
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2011, þriðjudaginn 29. mars kl. 10.20 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 629. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Björn Stefán Hallsson, Sigrún G. Baldvinsdóttir, Sigurður Pálmi Ásbergsson og Hjálmar Andrés Jónsson. Fundarritari var Harri Ormarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 7 (01.140.415) 100856 Mál nr. BN042671
Aðalstræti 7 sf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir útiveitingum fyrir 18 gesti á Aðalstræti og Vallarstræti við hús á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Meðfylgjandi er bréf Framkvæmda- og eignasviðs dags. 8. mars 2011, útskrift úr gerðabók emþættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 11. mars 2011 og umsögn skipulagsstjóra dags. 7. mars 2011
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Bókun byggingarfulltrúa.
Aðeins er heimilt að staðsetja borð meðfram Vallarstræti þegar gatan
er lokuð fyrir umferð. Almennt skilyrði er um snyrtilega umgengni
og hreinlæti utan dyra.

2. Álfheimar 74 (01.434.301) 105290 Mál nr. BN042810
LF7 ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta 7. hæð í mhl 02 undir skoðunarherbergi fyrir lækna í húsnæðinu á lóð nr. 74 við Álfheima.
Bréf frá hönnuði fylgir dags. 22. mars. 2011.
Gjald kr. 8.000.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Ásvallagata 17 (01.162.301) 101274 Mál nr. BN042030
Ása Guðlaug Lúðvíksdóttir, Ásvallagata 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp járnsvalir á íbúðir 0101, 0102, 0201, 0202, 0301 og 0401í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 17 við Ásvallagötu.
Samþykki meðeigenda ódagsett, jafnframt bréf frá umsækjanda ódagsett ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. desember 2010 fylgir erindinu. Kynning stóð yfir frá 17. nóvember 2010 til og með 15. desember 2010. Engar athugasemdir bárust.
Jákvæð fyrirspurn BN041759 dags. 13. júlí 2010 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

4. Bankastræti 7 (01.170.007) 101325 Mál nr. BN042721
Vigfús Guðbrandsson og Co ehf, Bankastræti 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi verslunar í kjallara og á 1. hæð atvinnuhúss á lóð nr. 7 við Bankastræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Barónsstígur 20 (01.190.118) 102393 Mál nr. BN042793
Þórhallur Hólmgeirsson, Barónsstígur 20, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN040510 dags. 23. mars. 2010 þar sem sótt var um að stækka geymsluskúr, Mhl. 02 við einbýlishúsið á lóð nr. 20 við Barónsstíg.
Erindi fylgja samþykki sumra eigenda Grettisgötu 58A og 60 og Barónsstígs 22 dags. 12. maí 2008 árituð á uppdrátt.
Stækkun Mhl. 02: 2,75 ferm., 7,56 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

6. Bauganes 10 (01.674.101) 106851 Mál nr. BN042805
Halla Sigrún Hjartardóttir, Melhagi 20, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 10 við Bauganes.
Stærð: íbúð 218,1 ferm., bílgeymsla 33,5 ferm.
Samtals 251,6 ferm., 1030,6 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 82.448
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Bergstaðastræti 54 (01.185.601) 102207 Mál nr. BN042162
Hugrún Dögg Árnadóttir, Bergstaðastræti 54, 101 Reykjavík
Magni Þorsteinsson, Bergstaðastræti 54, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að tengja saman núverandi kvisti á fjölbýlishúsinu nr. 54 við nr. 56 á lóðum nr. 54 og 56 við Bergstaðastræti.
Jákvæð fyrirspurn BN041843 fylgir daga. 10. ágúst. 2010.
Umsögn burðarvirkishönnuða fylgir dags. 2. des. 2010.
Stækkun: 6,1rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 470
Frestað.
Með vísan til svars við fyrirspurn BN032565 frá árinu 2005 verður að sameina lóðir nr. 54 og 56 til þess að unnt verði að afgreiða málið.

8. Borgartún 35-37 (01.219.102) 186012 Mál nr. BN042789
Nýherji hf, Borgartúni 37, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp skilti sem stendur á reyklosun á vesturhlið og færa hurð í kjallara inn til varaaflstöðvar í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 37 við Borgartún.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

9. Brattagata 3b/5 (01.136.535) 100624 Mál nr. BN042808
Ingunn Gísladóttir, Brattagata 3b, 101 Reykjavík
Grétar Guðmundsson, Brattagata 3b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta lagerrými í herbergi sem tilheyrir íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu nr. 5 á lóð nr. 3B/5 við Bröttugötu.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

10. Breiðhöfði 11A (04.028.402) 110507 Mál nr. BN042302
Ísaga hf, Pósthólf 12060, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til byggja opið skýli úr stáli við hlið á atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 11A við Breiðhöfða.
Stærð skýlis sem er B rými er : 276,6 ferm., 1064,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 81.974
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Búðavað 9-11 (04.791.803) 209906 Mál nr. BN042783
Skeiðarvogur ehf, Móvaði 41, 110 Reykjavík
Ingibjörg Lóa Ármannsdóttir, Smárarimi 36, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður innsendum teikningum sbr. BN037177 dags. 6. nóv. 2007 þar sem gluggar eru færðir til á parhúsinu nr. 9 - 11 við Búðavað.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Bústaðavegur 7 (01.737.501) 107409 Mál nr. BN042775
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að síkka þrjá glugga á suðurhlið þannig að þeir verði eins og aðliggjandi gluggar og breyta notkun rýmis í vinnurými í húsnæðinu á lóð nr. 7 við Bústaðaveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Dalsel 6-22 (04.948.701) 113071 Mál nr. BN042762
Magnús Halldór Frostason, Dalsel 22, 109 Reykjavík
Edda Þorsteinsdóttir, Dalsel 22, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli úr PVC prófílum styrktum með galvaniseruðu járni á 2. hæð raðhúss nr. 22 í lengju nr. 14 - 22 á lóð nr. 6 - 22 við Dalsel.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda í raðhúsinu ódags. fylgir
Stærðir svalaskýli: 9,6 ferm., 23.9 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.912
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

14. Einarsnes 64 (01.673.003) 106820 Mál nr. BN042744
Snorri Gunnarsson, Einarsnes 64, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu með þaksvölum á einni hæð úr timbri á steyptum undirstöðum milli íbúðarhúss og bílskúrs og þrjá þakkvisti, jafnframt er erindi BN042041 dregið til baka, á einbýlishús á lóð nr. 64 við Einarsnes.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 25. mars 2011 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 25. mars 2011 fylgir erindinu.
Stærðir samtals á lóð fyrir stækkun: 264,1 ferm., 603,4 rúmm.
Stækkun: 17,1 ferm., 97,5 rúmm.
Samtals á lóð eftir stækkun: 281,2 ferm., 700,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Einholt 2 (01.244.101) 103179 Mál nr. BN042002
Fasteignin Einholti 2 ehf, Tunguási 9, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að byggja fernar svalir, innrétta sex íbúðir og byggja sólpalla á baklóð atvinnuhúss á lóð nr. 2 við Einholt.
Erindi fylgir umboð meðlóðarhafa dags. 11. október 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. október 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Frakkastígur 19 (01.190.229) 102432 Mál nr. BN042804
Þórgnýr Thoroddsen, Frakkastígur 19, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka efstu hæð til norðurs, setja kvist á vesturhlið og breyta gluggum til upprunalegs horfs í fjölbýlishúsi á lóð nr. 19 við Frakkastíg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrætti og kaupsamningur vegna íbúðar 0002 í mhl. 01 og 0102 í mhl. 02.
Stækkun: 24,2 ferm., 60,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 4.832
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Frakkastígur 8 (01.172.109) 101446 Mál nr. BN042806
Vatn og land I ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Wissane Inson ehf, Hraunbæ 34, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja loftræsitúðu á þak útbyggingar á verslunarhúsnæðinu á lóð nr. 8 við Frakkastíg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

18. Grensásvegur 9 (01.461.101) 105665 Mál nr. BN042811
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um að endurnýja hluta af áður samþykktu erindi BN040010 dags. 28. júlí 2009, þar sem innréttingum á 2. hæð er breytt, sjá teikningu A-001 og A-002, í atvinnuhúsnæði á lóð nr. 9 við Grensásveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Grensásvegur 9 (01.461.101) 105665 Mál nr. BN042813
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um að endurnýja hluta af áður samþykktu erindi BN040010 dags. 28. júlí 2009, þar sem klæðningu á austurhlið og gluggum er breytt, sjá teikningu A-003, í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 9 við Grensásveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Grettisgata 22B (01.182.118) 101834 Mál nr. BN042814
Jette Corrine Jonkers, Grettisgata 22b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti á fram- og bakhlið, til að stækka anddyri á 1. hæð og í kjallara og gera svalir þar ofan á í einbýlishúsinu á lóð nr. 22B við Grettisgötu.
Stækkun: 8,8 ferm., 24,5 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.960
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Grjótháls 10 (04.300.101) 217427 Mál nr. BN042569
Bón og þvottastöðin ehf, Hálsaseli 6, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja nýtt atvinnuhúsnæði sem á að hýsa bón- og þvottastöð og aðra atvinnustarfsemi á einni hæð, úr staðsteyptri, járnbentri steinsteypu með flötu þaki á lóð nr.10 við Gjótháls.
Áður samþykkt erindi BN039491 dags. 7. apríl 2009 verður fellt úr gildi.
Stærð: 993,7 ferm. og 4.883,6 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 390.688
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Hlyngerði 3 (01.806.303) 107797 Mál nr. BN042461
Rúnar Kristjánsson, Hlyngerði 3, 108 Reykjavík
Björk Sigurðardóttir, Hlyngerði 3, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki á þegar byggðum geymsluskúr og fyrir reyndarteikningum fyrir einbýlishúsið á lóð nr. 3 við Hlyngerði.
Samþykki nágrana aðliggjandi lóðar fylgir. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 25. mars 2011 fylgir erindu.Stækkun: Hús XX ferm., XX rúmm. og geymsluskúrs 19,5 ferm., 56,6 rúmm.
Gjald kr 7.700 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Með vísan til bókunar skipulagsstjóra eru ekki gerðar athugasemdir við að eigandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi í samráði við skipulagsstjóra, sem grendarkynnt verður.

23. Hverfisgata 113-115 (01.222.001) 102836 Mál nr. BN042807
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða útveggi með álklæðningu í ljósum lit og með 50 mm steinullareinangrun lághluta, mhl. 01 og mhl. 02, lögreglustöðvarinnar á lóð nr. 113-115 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Höfðabakki 1 (04.070.001) 110677 Mál nr. BN042646
Þríund hf, Kringlunni 4, 103 Reykjavík
G and M ehf, Höfðabakka 1, 110 Reykjavík
Feiti dvergurinn ehf, Hlíðarbyggð 8, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í rýmum 0102 og 0103 sem eru veitingastaðir á jarðhæð og opna tímabundið yfir eignamörk í húsi á lóð nr. 1 við Höfðabakka.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Höfðabakki 9 (04.075.001) 110681 Mál nr. BN042662
Reitir II ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 2. hæðar E- húss, mhl 03 og opna yfir í mhl 04 í húsnæðinu á lóð nr. 9 við Höfðabakka.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Ingólfsstræti 21B (01.180.221) 101709 Mál nr. BN042779
Halldór Svansson, Bergstaðastræti 28b, 101 Reykjavík
Sótt er um að synjun frá 25. janúar 2006 verði felld úr gildi og að samþykki erindis BN030752 dags. 22. febrúar 2005 verði endurvakið varðandi geymsluskúr á lóð nr. 21B við Ingólfsstræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísast til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

27. Klettagarðar 4 (01.323.301) 215730 Mál nr. BN042826
K 4 ehf, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að hefja jarðvinnu og koma fyrir
aðstöðusköpun á lóðinni nr. 4 við Klettháls.
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

28. Klettháls 3 (04.342.301) 188538 Mál nr. BN042792
Elkjær ehf, Hrauntungu 20, 200 Kópavogur
Sótt er um samþykki á reyndarteikningu vegna uppsetningar á klefa fyrir sprinklerkerfi í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 3 við Klettháls.
Bréf frá eigenda fylgir dags. 19. mars 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Kúrland 1-29 2-30 (01.861.401) 108796 Mál nr. BN042781
Kristján M Baldursson, Kúrland 27, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir heitum potti á baklóð raðhússins nr. 27 á lóð nr. 23 - 29 við Kúrland.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Kúrland 1-29 2-30 (01.861.401) 108796 Mál nr. BN042281
Helgi Þórsson, Kúrland 1, 108 Reykjavík
Guðrún Svanfríður Eyjólfsdóttir, Kúrland 1, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir glugga á austurgafli, koma fyrir hurð á norðurhlið, sameina tvö herbergi til að gera eldhús og breyta núverandi eldhúsi í svefnherbergi í raðhúsalengju nr. 1-5, raðhús nr. 1 á lóð nr. 1-29, 2-30 við Kúrland.
Samþykki eigenda raðhúss 1-5 fylgir ódags og nýtt samþykki eigenda dags. 22. mars. 2011
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Langagerði 32 (01.832.016) 108543 Mál nr. BN042787
Edda Jóhanna Sigurðardóttir, Langagerði 32, 108 Reykjavík
Helgi Halldórsson, Langagerði 32, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta einhalla skúrþaki með því að koma fyrir rishæð með mænisþaki á húsið, með tvo kvisti á sitt hvorri þakhlið, einnig er sótt um að byggja sólstofu á 1. hæð með svölum yfir hluta, í einbýlishúsnæðinu á lóð nr. 32 við Langagerði.
Jákvæð fyrirspurn BN042543 dags. 15. feb. 2011 þar sem spurt var hvort leyfi fengist til að setja ris með kvistum á einbýlishúsið.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

32. Meistaravellir 31-35 (01.523.101) 105995 Mál nr. BN042788
Ómar Eyþórsson, Meistaravellir 31, 107 Reykjavík
Bára Jónsdóttir, Meistaravellir 31, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera hurð út í sameiginlegan garð frá íbúð 0001í fjölbýlishúsinu nr. 31 á lóð nr. 31-35 við Meistaravelli.
Jákvæð fyrirspurn BN041628 dags. 8. júní 2010 fylgir.
Samþykki frá húsfundi Meistaravalla 31 dags. 9. maí 2009, húsfundi frá Meistaravöllum 33 dags. 5. júní 2010 og samþykki frá íbúum að Meistaravöllum 35 ódags fylga erindinu.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Mýrargata 2-8 (01.116.401) 100072 Mál nr. BN042607
Slippurinn, fasteignafélag ehf, Malarhöfða 8, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta hótel, byggja inndregna 4. hæð og sameina tvo matshluta í einn í gamla Slipphúsinu á lóð nr. 2-8 við Mýrargötu.
Meðfylgjandi er mæliblað frá Reykjavíkurhöfn, minnisblað um hljóðvist dags. 18. febrúar 2011, brunahönnunarskýrsla dags. 22. febrúar 2011 og hljóðvistarskýrsla dags. 7. mars 2011
Stærðir Stækkun : xx ferm., xx rúmm.
Samtals: 4.141,2 ferm., 13.741,1 rúmm.
Gjöld kr. 8.000 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Neshagi 16 (01.542.212) 106389 Mál nr. BN042673
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. hæðar úr skrifstofum í kennsluaðstöðu og matsal í húsnæðinu á lóð nr. 16 við Neshaga.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

35. Ránargata 46 (01.134.013) 100309 Mál nr. BN042797
Jón Eiríksson, Ránargata 46, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að yfirbyggja svalir, stækka þakglugga og stækka kvist í fjölbýlishúsinu á lóð nr, 46 við Ránargötu
Samþykki meðeigenda á fylgiskjalli fylgir.
Stækkun: XX ferm og XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

36. Sifjarbrunnur 32 (05.055.405) 211686 Mál nr. BN042825
Friðgeir Kemp, Erluás 18, 221 Hafnarfjörður
Óskað er eftir að bygginarleyfi BN037777 sem samþykkt var þann 10. október 2008 verði fellt úr gildi. Bréf frá umsækjanda dags. 23. mars 2011 fylgir rindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samkvæmt skoðun er lóðin óhreyfð.

37. Sigtún 38 (01.366.001) 104706 Mál nr. BN042796
Húseignarfélagið Sigtún 38 ehf, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á 1. hæð ofan á þak kjallara við vesturhorn 1. hæðar Grand Hótels á lóð nr. 38 við Sigtún.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Síðumúli 34 (01.295.201) 103840 Mál nr. BN042812
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi vinnslusalar, rými 0203 og að breyta brunamerkingum í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 34 við Síðumúla.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

39. Sjafnargata 11 (01.196.008) 102636 Mál nr. BN042400
Edda Þórarinsdóttir, Birkihlíð 13, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við úr steinsteypu nýja innganga til austurs og vesturs, byggja flatt þak yfir svalir, lækka gólf í hluta kjallara og fjarlægja klæðningu utan af húsinu og múra með múrkerfi í ljósum lit, sbr. fyrirspurn BN042289, einbýlishúsið á lóð nr. 11 við Sjafnargötu.
Grenndarkynning fór fram frá 20. janúar 2011 til og með 1. mars 2011 og barst athugasemd frá Þórdísi Arnljótsdóttur sbr. umsögn skipulagsstjóra dags. 3. mars 2011.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 2. nóvember 2010, umsögn skipulagsstjóra dags. 18. nóvember 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 19. nóvember 2010 .
Stækkun 68 ferm., 309,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.000 + 23.824
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Skeifan 11 (01.462.101) 195597 Mál nr. BN042795
LX fasteignir ehf, Skipholti 37, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum í mhl. 04 þar sem komið er fyrir kælum og veggir settir upp í verslunarhúsnæðinu nr. 11D á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Skeifan 11 (01.462.101) 195597 Mál nr. BN040638
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir skilti yfir inngang og loftræstiröri á vesturhlið atvinnuhússins á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda í mhl. 25 dags 23. mars 2011 áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Skeifan 8 (01.461.202) 105668 Mál nr. BN042643
Eik sf, Drekahlíð 3, 550 Sauðárkrókur
Sótt er um leyfi til að breyta 1. hæð., 2. hæð og kjallara og koma fyrir vararafstöð á afgirtu svæði við húsnæði á lóð nr. 8 við Skeifuna.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 25. febrúar 2011 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN042723
Ármannsfell ehf, Hátúni 2B, 105 Reykjavík
Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir allan innanhússfrágang í fjölbýlishúsinu Mánatún 3-5, sem er mhl. 01 á lóð nr. 1 við Sóltún.
Erindi fylgir stöðuúttekt dags. 16. febrúar 2011.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

44. Suðurgata 100 (01.553.117) 106537 Mál nr. BN042388
Ingólfur Gissurarson, Suðurgata 100, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja kvisti, sbr. fyrirspurn BN042142 ásamt umsögn skipulags dags 22.10. 2010, á einbýlishús á lóð nr. 100 við Suðurgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 25. mars 2011 fylgir erindinu,
Stærðir samtals: 194,4 ferm., 473 rúmm.
þar af bílskúr 24,2 ferm., 68,7 rúmm.
Samtals stækkun: 35,6 ferm., 81,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.291
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Suðurlandsbraut 14 (01.263.101) 103522 Mál nr. BN042769
Reginn ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN042503 dags. 8. ferb. 2011 þannig að eldhúsaðstaða og salernisaðstaða breytast, tilfærsla á veggjum og gluggar breytast í norðurhlið í húsnæðinu á lóð nr. 14 við Suðurlandsbraut.
Bréf frá hönnuði dags. 15 mars 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

46. Súðarvogur 44-48 (01.454.405) 105643 Mál nr. BN042791
Mítas ehf, Barðaströnd 23, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að breyta eign 0302 úr vinnustofu í íbúð og breyta áður gerðum gluggum á framhlið í vinnustofu/íbúðarhúsi á lóð nr. 44-48 við Súðarvog.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Sölvhólsgata 7-9 (01.150.306) 100973 Mál nr. BN042708
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi sem felst í breyttu fyrirkomulagi herbergja og nýjum stiga milli 2. og 4. hæðar sbr. fyrirspurn BN042638 í Innanríkisráðuneytinu á lóð nr. 7-9 við Sölvhólsgötu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Tryggvagata 11 (01.117.401) 100089 Mál nr. BN042798
BYGGÐARENDI ehf, Byggðarenda 1, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta og breyta í kaffihús, kvikmyndasal, minjagripasölu og sýningarsvæði 1. hæð Hafnarhvols á lóð nr. 11 við Tryggvagötu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN042299
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu 1. hæðar á þann veg aðallega að draga framhlið inn og skapa þar 27 ferm. verönd og taka glugga og hurðir úr framhlið sbr. fyrirspurn BN042160 á húsi á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Með vísan til 6.gr. reglugerðar nr. 326/2007
Að auki er það ósamrýmanlegt götumynd Hafnarstrætis að loka gluggaopum með krossviðarplötum.

50. Úlfarsbraut 118-120 (02.698.801) 205754 Mál nr. BN042766
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum, sbr. erindi BN040054, hurðum og hurðamerkingum er breytt með tilliti til eldvarna í leikskóla á lóð nr. 118-120 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

51. Úlfarsfell 3 123807 (00.076.050) 123807 Mál nr. BN042784
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa og fjarlægja hús á lóð nr. 3 við Úlfarsfell.
Gjald kr. 8.000
Frestað.Vantar að gefa upp matshlutanúmer og fastanúmer.

52. Veghúsastígur 7 (01.152.419) 101064 Mál nr. BN042815
Gistiheimilið Dómus ehf, Laugavegi 182, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta við glugga á norðurhlið, breyta staðsetningu björgunaropa og breyta staðsetningu eldhúss í íbúð 0202 allt á 2. hæð í gistiheimili á lóð nr. 7 við Veghúsastíg.
Gjald kr. 8.ooo
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Ægisgarður 5 (01.116.101) 100061 Mál nr. BN042773
Sérferðir ehf, Verbúð 6, 101 Reykjavík
Sótt er um stöðuleyfi fyrir miðasöluskúr úr timbri á steyptum undirstöðum á lóð nr. 5-G við Ægisgarð.
Meðfylgjandi eru skilmálar og lóðarblað Faxaflóahafna dags. 4.mars 2011
Stærðir: 25 ferm., 75,6 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 6.048
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

54. Nýlendugata 24C - Brunnstígur 6 Mál nr. BN042822
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóða, þ.e. óskað er eftir að lóðin Brunnstígur 6 verði lögð niður og máð úr skrám og að ný lóð, Nýlendugata 24C, verði til, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 28.3.2011. Brunnstígur 6 (staðgr. 1.131.111, landnr. 100169): lóðin er talin 128,5 m2, lóðin reynist 129 m2, 98 m2 teknir af lóðinni og lagðir við óútvísað land (landnr. 218177), 31 m2 tekin af lóðinni og lagður við Nýlendugötu 24C, lóðin verður 0 m2 og verður máð úr skrám.
Nýlendugata 24C (ný lóð, stgr. 1.131.112, landnr. 220142):
31 m2 teknir úr lóðinni Brunnstígur 6 og 4 m2 teknir úr óútvísuðu landi (landnr. 218177) og lagðir við lóðina, lóðin verður 35 m2.
Óútvísað land (landnr. 218177) stækkar því um 98 m2 -4 m2 = 94 m2.
Sbr. samþykkt skipulagsráðs 24.09.2008 og auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar birt í B-deild Stjórnartíðina 23.02.2009.
Samþykkt.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

55. Aragata 15 (01.630.502) 106675 Mál nr. BN042776
Sigurður Pálmi Kristjánsson, Baugatangi 1, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 32 ferm bílskúr sem kemur uppvið einbýlishúsið á lóð nr. 15 við Aragötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

56. Asparfell 2-12 (04.681.001) 112291 Mál nr. BN042809
Ragnar Ómarsson, Hraunbær 72, 110 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi leikskólann á 1. hæð í Asparfelli 10 yfir eignamörk yfir í húsnæði á 1. hæð í húsi á lóð nr. 12 við Asparfell.
Jákvætt.
Enda verði sótt um byggingarleyfi að teknu tilliti til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

57. Bragagata 33A (01.186.215) 102244 Mál nr. BN042802
Arnar Már Þórisson, Laufásvegur 65, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta geymslum í mhl. 02 í vinnustofur og innrétta sjálfstæða íbúð í þakhæð fjölbýlishússins á lóð nr. 33A við Bragagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

58. Grettisgata 5 (01.171.506) 101422 Mál nr. BN042801
Jens Hrómundur Valdimarsson, Grettisgata 5, 101 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fáist fyrir áður gerðum breytingum á ?? hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 5 við Grettisgötu.
Frestað.
Gera betur grein fyrir erindinu.

59. Háagerði 39 (01.815.220) 107996 Mál nr. BN042803
Kristján Þór Sverrisson, Háagerði 39, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu á skipulögðum bílskúrsreit við raðhúsið á lóð nr. 39 við Háagerði.
Til vara er spurt hvort byggja megi bílskúr sem innangengt væri í og notaðist til íbúðar á sömu lóð.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

60. Hátún 39 (01.235.118) 102962 Mál nr. BN042817
Kristín Ástríður Pálsdóttir, Hátún 39, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka hús með því að byggja mansardþak ofan á einbýlishús á lóð nr. 39 við Hátún.
Nei.
Samræmist ekki nýsamþykktu deiliskipulagi.

61. Hverafold 130 (02.862.706) 110264 Mál nr. BN042778
Krystian Karol Gralla, Hverafold 130, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja lagnakjallara undir bílskúr sem ekki er byggður en samþykktur sbr. erindi BN41832 dags. 15. feb. 2011 er til fyrir á lóð nr. 130 við Hverafold.
Nei.
Ekki er sjáanleg þörf fyrir lagnakjallara undir svo einfalt mannvirki sem bílskúr er.

62. Hverfisgata 102 (01.174.106) 101584 Mál nr. BN042816
Grímur Bjarnason, Efstasund 57, 104 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi svalir á 1. og 2. hæð suðurhliðar fjölbýlishússins á lóð nr. 102 við Hverfisgötu.
Jákvætt.
Að uppfyllltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

63. Laufrimi 35-39 (02.540.601) 172356 Mál nr. BN042774
Einar G Torfason, Laufrimi 39, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja áfast gróðurhús á norðvesturgafl á raðhúsinu nr. 39 á lóð nr. 35-39 við Laufrima.
Nei.
Samræmist ekki deiliskipulagi.

64. Laugavegur 3 (01.171.014) 101360 Mál nr. BN042823
Hjörleifur Stefánsson, Fjölnisvegur 12, 101 Reykjavík
Spurt er hvort loka megi undirgangi með hurð og járngrindarhliði í gegn um hús á lóð nr. 3 við Laugaveg.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

65. Lokastígur 28 (01.181.309) 101779 Mál nr. BN042786
Loki - íslenskt kaffihús ehf, Lokastíg 28, 101 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi skilti við Kaffi loka, nett flagg í runnabeð og skilti á ljósastaur við kaffihús á lóð nr. 28 við Lokastíg.
Nei.
Skilti utan lóðar ekki leyfð og allra síst á ljósastaur.

66. Mávahlíð 42 (01.710.209) 107173 Mál nr. BN042749
Hulda Karen Daníelsdóttir, Mávahlíð 42, 105 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi svalir á íbúð 0301 sbr. fyrirspurn BN042519 og erindi BN041751 í húsi á lóð nr. 42 við Mávahlíð.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

67. Seljabraut 36-52 (04.970.001) 113149 Mál nr. BN042790
Óskar Már Ásmundsson, Seljabraut 52, 109 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fáist fyrir áður gerðri íbúð í kjallara raðhúss nr. 52 á lóð nr. 36-52 við Seljabraut.
Erindi fylgir útreikningur á eignaskiptum dags. 30. september 1989.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

68. Sogavegur 3 (01.810.-98) 107820 Mál nr. BN042764
Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við vesturhlið til að koma fyrir móttöku og lagerrými við verslunarhúsið á lóð nr. 3 við Sogaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 25. mars 2011 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 23. mars 2011 fylgir erindinu.
Nei
.Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 25. mars sl.

69. Þórsgata 7 (01.181.113) 101749 Mál nr. BN042800
Elín Eggerz Stefánsson, Herjólfsgata 10, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort bakhúsið á lóð nr. 7 við Þórsgötu, mhl. 70, geti verið skráð sem samþykkt íbúðarhúsnæði.
Frestað.
Skoðist á staðnum.

70. Öldugata 53 (01.134.305) 100354 Mál nr. BN042785
Halldór Ingi Hannesson, Gunnarssund 10, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir og brunastiga á bakhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 53 við Öldugötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum þar með talið samþykki meðeigenda enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður ef umsókn berst.

Fundi slitið kl. 12.25.