Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2011, miðvikudaginn 19. október kl. 09:12, var haldinn 254. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Sverrir Bollason, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Ósk Frímannsd. Jensen og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Stefán Hallsson, Ólafur Bjarnason, Lilja Grétarsdóttir og Marta Grettisdóttir
Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

(D) Ýmis mál

1. Ingólfstorg, samkeppnislýsing (01.140) Mál nr. SN110275
Lögð fram samkeppnislýsing varðandi hugmyndasamkeppni um Kvosina- Ingólfstorg dags. 5. október 2011.

Samkeppnislýsing samþykkt. Áheyrnarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs Torfi Hjartarson óskaði bókað: #GL Vinstri hreyfingin-Grænt framboð lýsir eindreginni andstöðu við þá fyrirætlun skipulagsráðs að efna til samkeppni arkitekta þar sem allt of stór hótelbygging teflir í tvísýnu sumum af elstu götumyndum landsins og húsum með mikið varðveislugildi. Með því að leggja 130 herbergja og allt að 4.500 fm. hótelbyggingu til grundvallar hugmyndasamkeppni á þessum viðkvæma stað í hjarta Reykjavíkur fara borgaryfirvöld gegn eigin stefnu um borgarvernd og lífsgæði í miðborginni. Í samkeppnislýsingu er lögð mikil áhersla á vandaða hönnun og litríkt mannlíf í góðum tengslum við almannarými, gamla byggð og menningararf en sú krafa lóðarhafans við Vallarstræti og Ingólfstorg að á svæðinu eigi að rísa jafn stórt hótel og hér er á ferðinni með samruna margra lóða, skuggavarpi og einsleitri starfsemi setur þau markmið í uppnám. Með því að hafna þeim hugmyndum og fara fram á opnari nálgun með fjölbreytilegum möguleikum hvað snertir starfsemi og mannlíf byggða á skýrri áherslu á vernd gamallar byggðar tæki ráðið afstöðu í takt við sína eigin stefnumótun og nýja tíma. Greinargerð fylgir bókuninni.

Fulltrúar í skipulagsráði óskuðu bókað:
#GLSkipulagsráð harmar andstöðu Vinstri hreyfingarinnar-Græns framboðs við samkeppnislýsingu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar við Ingólfstorg. Skipulagsráð telur að samkeppnislýsingin taki ríkt tillit til umhverfisins, verndi gömlu timburhúsin við Vallarstræti og skapi umgjörð fyrir fjölbreytilegt mannlíf og starfsemi í sátt við núverandi byggð. Skipulagsráð lítur á samkeppnina sem farsæla leið til að halda áfram metnaðarfullri uppbyggingu í miðborg Reykjavíkur#GL.

Áheyrnarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfi Hjartarson óskaði bókað:
„Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar-Græns framboðs telur ákjósanlegt að samkeppnislýsingin verði lögð fyrir Húsafriðunarnefnd og Borgarminjavörð til umsagnar.“
Fulltrúar í skipulagsráði óskuðu bókað:
„Skipulagsráð telur áríðandi að trúnaður ríki um samkeppnislýsinguna þar til hún er gerð aðgengileg keppendum. Vakin er athygli á því að bæði Húsafriðunarnefnd og Borgarminjavörður verða kölluð til ráðgjafar við dómtöku tillagna eins og fram kemur í samkeppnislýsingunni.“

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:20.

Páll Hjalti Hjaltason
Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Sverrir Bollason Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Jórunn Ósk Frímannsd Jensen

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2011, þriðjudaginn 18. október kl. 10.05 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 656. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Stefán Hallsson, Jón Hafberg Björnsson, Sigrún Reynisdóttir, Björn Kristleifsson, Hjálmar Andrés Jónsson, Sigrún G Baldvinsdóttir og Harri Ormarsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 6 (01.136.502) 100592 Mál nr. BN043676
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um breytt fyrirkomulag í kjallara, geymslum fækkað í bakhúsi, gangur fyrir framan lyftu í kjallara breytist, tengigangur og svalir á 8. hæð verða séreign í húsi á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Gjald 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Aðalstræti 8 (01.136.503) 100593 Mál nr. BN043677
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta eignarhaldi á rými 0011 úr sameign allra í séreign með kvöð um aðgengi allra vegna grindar fyrir snjóbræðslukerfi sem staðsett er í rýminu í kjallara húss á lóð nr. 8 við Aðalstræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Austurbrún 2 (01.381.001) 104771 Mál nr. BN043686
Guðrún Magnúsdóttir, Austurbrún 2, 104 Reykjavík
Heiða Kristjánsdóttir, Bandaríkin, Sótt er um leyfi til að loka svölum á íbúð 0603 og 0906 með 8 mm öryggisgleri á brautum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Austurbrún.
Samþykki sumra fylgir sem tölvupóstur og á undirskriftar blöðum dags. 17. ágúst 2011.
Stærð brúttórúmm: XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Austurbrún 33 (01.354.103) 104271 Mál nr. BN043695
Sigrún Spanó Sigurjónsdóttir, Austurbrún 33, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN039019, endurnýjað sem BN041049, þar sem veitt var leyfi til að byggja geymsluskúr úr timbri á steyptum undirstöðum á lóð nr. 33 við Austurbrún.
Samþykki eigenda Kambsvegar 22 og 24 dags. 29. september 2008 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 17. október 2008, þar sem ekki var gerð athugasemd við erindið fylgdu eldra erindi.
Stærð: 9,8 ferm. 24,1rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 1759
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Ármúli 8 (01.290.003) 103753 Mál nr. BN043663
Fjárfestingafélagið Hegrane ehf, Hegranesi 26, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að rífa niður járnstiga á milli 1. og 2. hæðar og koma fyrir steyptum stiga í staðinn í atvinnuhúsi á lóð nr. 8 við Ármúla.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bankastræti 2 (01.170.101) 101328 Mál nr. BN043662
Minjavernd hf, Pósthólf 1358, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir borðum og stólum til útiveitinga á vegum veitingahússins Lækjarbrekku í garðrými á lóð nr. 2 við Bankastræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Bauganes 19A (01.672.118) 213935 Mál nr. BN043683
Erla Ágústa Gunnarsdóttir, Bauganes 19, 101 Reykjavík
Árni Hermannsson, Bauganes 19, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN038658 dags. 16. september 2008 þar sem veitt var leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu á lóð nr. 19A við Bauganes.
Stærðir: Íbúð 1. hæð 109,6 ferm., 2. hæð 86,7 ferm., samtals 196,3 ferm., bílgeymsla. 22,9 ferm.,
Samtals 219,2 ferm. 979,5 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 78.360
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

8. Bárugata 8 (01.136.218) 100554 Mál nr. BN043286
B.Markan-Pípulagnir ehf, Lyngási 10, 210 Garðabær
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningum vegna gerðar eignarskiptasamnings í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 við Bárugötu.
Bréf frá hönnuði dags. 27. sept. 2011 og eignaskiptasamningur frá 1. júlí 1994 þar sem fram kemur að ósamþykkjanlegar íbúðir í kjallara og í risi eru í húsinu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Birtingakvísl 24-32 (04.233.301) 110863 Mál nr. BN043669
Sigurbjörg A Guttormsdóttir, Birtingakvísl 24, 110 Reykjavík
Haraldur Auðunsson, Birtingakvísl 24, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja laufskála ofan á bílskúr raðhúss nr. 24 á lóð nr. 24-32 við Birtingakvísl.
Stærð laufskála: 16,4 ferm., 52,7 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 4.216
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Dalhús 2 (02.841.201) 109707 Mál nr. BN043694
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN043126 og byggja eimbað og geymslu úr vottuðum, steinsteyptum einingum, í stað þess að staðsteypa, einangra og klæða að utan Grafarvogslaug á lóð nr. 2 við Dalhús.
Stærðir: 52,6 ferm., 161,3 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Efstasund 37 (01.357.103) 104414 Mál nr. BN043643
Kolfinna Sigurvinsdóttir, Efstasund 37, 104 Reykjavík
Kolbrún Sæunn Steingrímsdóttir, Efstasund 37, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum í kjallara og á 1. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 37 við Efstasund.
Bréf frá hönnuði dags. 14. október 2011.
Gjald kr. 8.000
Synjað.
Þar sem umsögn burðarvirkishönnuðar liggur ekki fyrir sbr. ákvæði byggingareglugerðar. Ásamt því er bréf frá hönnuði dags. 14. október 2011, varðandi sömu atriði.

12. Eiríksgata 6 (01.194.303) 102553 Mál nr. BN043485
Rúnar V Sigurðsson, Eiríksgata 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir þegar byggðum garðskála á lóðamörkum við Eiríksgötu 8 og breytingum innanhúss á 2. hæð sem felast í tilfærslum á innveggjum og snyrtingum í gistiheimili á lóð nr. 6 við Eiríksgötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts ódags. og samþykki nágranna á nr. 8 dags. 12. júní 2011. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. október 2011 fylgir erindinu.
Stærðir: 15,7 ferm., 41,6 rúmm
Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 3.328
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

13. Fífusel 25-41 (04.970.403) 113154 Mál nr. BN043684
Fífusel 35,húsfélag, Fífuseli 35, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka svölum á öllum íbúðum með 8 mm öryggisgleri á stýribrautum í fjölbýlishúsi nr. 35 á lóð nr. 25-41 við Fífusel
Stærð brúttórúmm: XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Freyjubrunnur 22-32 (02.695.601) 205746 Mál nr. BN042970
Guðjón Ólafsson, Freyjubrunnur 22, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og aðskilja byggingarleyfi BN037034 dags. 13. nóv. 2007 fyrir mhl. 01 sem er raðhús nr. 22 á lóð nr. 22-32 við Freyjubrunn.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Grensásvegur 9 (01.461.101) 105665 Mál nr. BN043691
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara og 1. hæðar og koma fyrir nýrri útihurð í vesturhlið í suðurenda húss á lóð nr. 9 við Grensásveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Grensásvegur 9 (01.461.101) 105665 Mál nr. BN043690
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 3. hæðar í suðurenda húss á lóð nr. 9 við Grensásveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Gufunes (02.2--.-86) 108942 Mál nr. BN043696
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja opið grillhús með nestisrými úr timbri norðvestan megin við Gufunesbæinn í tengslum við leikflöt og leiktæki á óskilgreindu borgarlandi.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Háaleitisbraut 68 (01.727.301) 107329 Mál nr. BN043660
Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Húsfélagið Háaleitisbraut 68,eh, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfi BN035648 dags. 22. apríl 2007, endurnýjað með erindi BN038993, þar sem veitt var leyfi til að stækka 1. hæð með tilheyrandi breytingu á gangstétt ásamt minniháttar breytingu í kjallara og á 1. hæð og til að uppfæra brunavarnir í Austurveri á lóð nr. 68 við Háaleitisbraut.
Stærðir: Stækkun 280,9 ferm., 1223,6 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 97.888
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Heiðarbær 17 (04.351.403) 111143 Mál nr. BN043681
Guðmundur H Magnason, Brautarás 12, 110 Reykjavík
Birgitta Elín Hassell, Brautarás 12, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að staðsteypa viðbyggingu sem verður notuð sem bílskúr með íþróttaaðstöðu, koma fyrir reiðhjólageymslu, breyta gluggum á öllu húsinu, koma fyrir verönd og setlaug á lóð nr. 17 við Heiðarbæ
Jákvæð fyrirspurn BN039115 dags. 11. nóvember 2008 fylgir erindi.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

20. Hringbraut 121 (01.520.202) 105922 Mál nr. BN043675
Myndlistaskólinn í Reykjav ses, Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sótt er um breytingu þar sem komið er fyrir handriði og yfirborð bárujárns styrkt þar sem er flóttaleið yfir þak sbr. erindi BN043297 í húsi á lóð nr. 121 við Hringbraut.
Bréf frá hönnuði dags. 11. október 2011 fylgir erindi.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

21. Kleppsmýrarvegur Keilir (01.428.003) 105186 Mál nr. BN043526
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um niðurrif á öllu iðnaðarhúsnæði sem er steypt skemma fnr. 202-0965 mhl. 01, 700 ferm., 2.330 rúmm., skemma úr stáli fnr. 202-0966 mhl. 02 , 594 ferm. 3.060 rúmm., og steypt skemma fnr. 202-0968 mhl. 04, 400 ferm. 1.580 rúmm. á lóðinni Kleppsmýrarvegur Keilir.
Samtals niðurrif: 1.694 ferm., 6.970 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Langholtsvegur 38 (01.354.315) 104310 Mál nr. BN043687
Veronica Wall, Langholtsvegur 38, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða að utan með múr á einangrun parhúsið á lóð nr. 38 við Langholtsveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Laufásvegur 70 (01.197.306) 102723 Mál nr. BN043693
Sjöstjarnan ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, gera nýja hurð út í garð á suðurhlið, koma fyrir setlaug, byggja nýtt skyggni yfir inngang og steypa palla á lóð einbýlishúss á lóð nr. 70 við Laufásveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Laugarnesvegur 48 (01.360.104) 104506 Mál nr. BN043613
Linda Björg Halldórsdóttir, Laugarnesvegur 48, 105 Reykjavík
Vilhjálmur Auðunn Albertsson, Laugarnesvegur 48, 105 Reykjavík
Jón Trausti Jónsson, Laugarnesvegur 48, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN040531 og BN038667, m. a. fella niður sólskála á jarðhæð og breyta burðarvirki, þakformi og glugga á bílskúr við fjölbýlishús á lóð nr. 48 við Laugarnesveg.
Minnkar um 25,7 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Laugavegur 178 (01.251.102) 103436 Mál nr. BN043642
Dyrhólmi hf, Hjallalandi 8, 108 Reykjavík
Krista ehf, Haukshólum 1, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta hárgreiðslustofu í mhl. 02 á 1. hæð í húsinu á lóð nr. 178 við Laugaveg.
Bréf frá hönnuði dags. 14. okt. 2011.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Laugavegur 30 (01.172.211) 101466 Mál nr. BN043491
L30 ehf, Laugavegi 30, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir nýjum svölum og flóttaleið frá annarri hæð og breytingum á innra skipulagi á annarri hæð í veitingahúsinu á lóð nr. 30 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er brunavarnagreinargerð dags. 19.9. 2011, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 30. september 2011, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 30. september 2011, tölvupóstur dags. 6. október 2011
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Látrasel 9 (04.928.410) 112791 Mál nr. BN043624
Einar Erlingsson, Látrasel 9, 109 Reykjavík
Sótt er um samþykki á lækkun gatnagerðargjalda á áður gerðri stækkun, sem tekin var í notkun 1992, sbr. skráningu Fasteignamats ríkisins, á kjallara einbýlishússins á lóð nr. 9 við Látraströnd.
Meðfylgjandi er tilkynning byggingarfulltrúa um stærð hússins dags. okt. 1991 og skráning fasteignamatsins í júní 1992 eftir skoðun á húsinu 7.maí 1992, sem sýnir 25,2 fermetra stækkun.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.

28. Miðleiti 1-3 (01.746.401) 107447 Mál nr. BN043666
Páll Bjarnason, Miðleiti 3, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN041714 dags. 6. júlí 2010 þar sem veitt var leyfi til að byggja svalaskýli úr perluglersflekum á rennibrautum á hluta suðursvala fjölbýlishúss á lóð nr. 1-3 við Miðleiti.
Stærðir samtals: 178 ferm., 480 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 38.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Mógilsárvegur 1A (34.176.801) 220010 Mál nr. BN043656
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja dreifistöð fyrir rafmagn fyrir Orkuveitu Reykjavíkur úr stálgrind, klæddri með stálplötum og timbri, trefjaplasti á þaki og á steyptum undirstöðum á lóð nr. 1A við Mógilsárveg.
Stærðir: 4,9 ferm., 13,3 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 10.640
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Mógilsárvegur 23A (34.178.801) 220011 Mál nr. BN043657
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja dreifistöð fyrir rafmagn fyrir Orkuveitu Reykjavíkur úr stálgrind, klæddri með stálplötum og timbri, trefjaplasti á þaki og á steyptum undirstöðum á lóð nr. 23A við Mógilsárveg.
Stærðir: 4,9 ferm., 13,3 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 10.640
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Óðinsgata 15 (01.184.519) 102124 Mál nr. BN043668
Stígur Snæsson, Óðinsgata 15, 101 Reykjavík
Ólöf Sigurðardóttir, Óðinsgata 15, 101 Reykjavík
Sigurgísli Bjarnason, Danmörk, Sótt er um leyfi til breytinga á eignarhlutum með sameiningu útigeymsla 02-0104 og 0105 í 0104 ásamt breytingum á eldhúsi 0101 og þvottahúsi 0201, einnig er sótt um leyfi fyrir svölum úr stái og timbri, sbr. erindi BN038692, á austurhlið 3. hæðar húss á lóð nr. 15 við Óðinsgötu.
Erindi BN038692 var grenndarkynnt 3. sept. til 1. okt. 2008, engar athugasemdir bárust, því fylgdi samþykki meðeigenda, sem eru þeir sömu í dag.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Saltvík 125744 (00.064.000) 125744 Mál nr. BN043578
Stjörnuegg hf, Vallá, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að steypa viðbyggingu með timburþaki fyrir geymslu og vöruafhendingu við austurhlið svínasláturhússins í Saltvík á Kjalarnesi landnúmer 125744.
Stækkun 87,5 ferm., 421,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 8.000 + 33.712
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

33. Sjafnargata 10 (01.196.501) 102657 Mál nr. BN043713
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 10 er talin 751,6 m2, lóðin reynist 749 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Nýjar/br. fasteignir

34. Skeljanes 4 (01.673.106) 106833 Mál nr. BN043671
Hulda Steingrímsdóttir, Skeljanes 4, 101 Reykjavík
María Björk Steinarsdóttir, Noregur, Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu af fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Skeljanes.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 10. október 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Skeljanes 6 (01.673.106) 106897 Mál nr. BN043650
Ásgeir Jóel Jacobson, Fossagata 11, 101 Reykjavík
Þrúður Arna Briem Svavarsdóttir, Fossagata 11, 101 Reykjavík
Sigrún Hrönn Hauksdóttir, Bergstaðastræti 64, 101 Reykjavík
Leifur Örn Svavarsson, Bergstaðastræti 64, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta þrjár íbúðir, koma fyrir svölum og stækka glugga á suðurhlið og timburklæða útbyggingu á vesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 6 við Skeljanes.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Skeljatangi 9 (01.675.205) 106912 Mál nr. BN043365
Skúli Mogensen, Blikanes 19, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á suður- og vesturhlið og fyrir breyttu skipulagi lóðar, m. a. að byggja stoðvegg á lóðamörkum til vesturs við einbýlishúsið á lóð nr. 9 við Skeljatanga.
Umsögn Gatna- og eignaumsýslu dagss. 13. október 2011 fylgir erindinu.Meðfylgjandi er umsögn Gatna- og eignaumsýslu dags. 13. október 2011 Gjald kr. 8.000 + 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

37. Skúlagata 4 (01.150.301) 100968 Mál nr. BN043581
Ríkissjóður Íslands, Vegmúla 3, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi 1. hæðar að hluta, innrétta matsal, kennslu- og fyrirlestrarsal og til að stækka björgunarop á vesturhlið atvinnuhúss á lóð nr. 4 við Skúlagötu.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Snorrabraut 37 (01.240.301) 102987 Mál nr. BN043548
Sjónver ehf, Síðumúla 29 3.hæð, 108 Reykjavík
RT veitingar ehf, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta tveim kvikmyndasölum aftur í veitingastað eins og var í tíð Silfurtunglsins, sbr. fyrirspurn BN043002 dags. 17. maí 2011, á 2. hæð í húsi Austurbæjarbíós á lóð nr. 37 við Snorrabraut.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 18. maí 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

39. Suðurlandsbr28 Árm25- 27 (01.265.001) 103539 Mál nr. BN043605
LF3 ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir tveimur kæliröftum á þaki aflstöðvarhúss, mhl. 08 og til að breyta innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð mhl.05 á bakhlið Ármúla 27 á lóðinni Suðurlandsbr28 Árm25-27.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 22. september 2011 og minnisblað um hljóðvist frá sömu verkfræðistofu dags. 26. september 2011.
Einnig fylgir umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 17. október 2011.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með þeim fyrirvara er fram kemur í umsögn heilbrigðiseftirlits dags. 17 október 2011.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Suðurlandsbraut 75 (01.47-.-99) 105686 Mál nr. BN043673
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi að flytja færanlega leikstofu H-13B frá lóð Norðlingaskóla yfir á lóð leikskólann Steinahlíð á lóð nr. 75 við Suðurlandsbraut
Stærð leikstofa samtals: 214,6 ferm., 729,6 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 58.368
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

41. Sundagarðar 2B (01.335.303) 213922 Mál nr. BN043649
KFC ehf, Garðahrauni 2, 210 Garðabær
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem breytt var texta um byggingaefni og anddyrishurð breytt, sbr. erindið BN042674 í húsnæðinu á lóð nr. 2B við Sundagarða.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

42. Tjarnargata 4 (01.141.006) 100879 Mál nr. BN043674
Húseignin Steindórsprent ehf, Tjarnargötu 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. hæð og í kjallara og innrétta eldhús og matsal á 2. hæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 4 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Vesturgata 23 (01.136.003) 100506 Mál nr. BN043648
Davíð Óskar Ólafsson, Vesturgata 23, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi rishæðar þar sem fjarlægður er veggur og eldhús og salerni flutt til í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 23 við Vesturgötu.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

44. Vesturgata 30 (01.131.215) 100183 Mál nr. BN043665
Ingvar Ágústsson, Vesturgata 32, 101 Reykjavík
Loftur Ágústsson, Hraunbraut 35, 200 Kópavogur
Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir, Tröllateigur 23, 270 Mosfellsbær
Guðmundur Gíslason, Gvendargeisli 50, 113 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu vegna gerðar eignaskiptasamnings í íbúðarhúsi á lóð nr. 30 við Vesturgötu.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 4. október 2011, virðingargjörð dags. 16. september 1897 og 21. júní 1932 og umsögn Húsafriðunarnefndardags. 12. október 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

45. Fjölnisvegur 1 (01.196.215) 102667 Mál nr. BN043700
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðarinnar Fjölnisvegur 1 auk þess að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 1 er talin 972.0 m2, lóðin reynist 975 m2, 3 m2 teknir af lóðinni og gerðir að borgarlandi (landnr. 218177), lóðin verður 972 m2.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

46. Fjölnisvegur 11 (01.196.506) 102662 Mál nr. BN043710
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 11 er talin 1020,6 m2, lóðin reynist 1021 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

47. Fjölnisvegur 13 (01.196.505) 102661 Mál nr. BN043711
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 13 er talin 1020,0 m2, lóðin reynist 1020 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

48. Fjölnisvegur 15 (01.196.504) 102660 Mál nr. BN043712
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 15 er talin 1100,3 m2, lóðin reynist 1108 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

49. Fjölnisvegur 3 (01.196.214) 102666 Mál nr. BN043701
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 3 er talin 1021,0 m2, lóðin reynist 1021 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

50. Fjölnisvegur 5 (01.196.213) 102665 Mál nr. BN043702
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 5 er talin 1020,6 m2, lóðin reynist 1024 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

51. Fjölnisvegur 7 (01.196.212) 102664 Mál nr. BN043703
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 7 er talin 1020,6 m2, lóðin reynist 1020 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

52. Fjölnisvegur 9 (01.196.507) 102663 Mál nr. BN043709
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Fjölnisvegur 9 er talin 1020,6 m2, lóðin reynist 1024 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

53. Landspildur- erfðafestulönd 107473 Mál nr. BN043715
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Framkvæmda- og eignasvið óska eftir því að sex landspildur verði lagðar undir borgarlandið og undir lóðir sem þegar eru til, og landspildurnar síðan afmáðar úr skrám, samanber meðfylgjandi uppdrátt Landupplýsingadeildar dagsettan 12.10.2011. Landnúmerin eru eftirfarandi : landnr.107473, 107472, 107471, 107470, 107469, 107474.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

54. Sjafnargata 12 (01.196.502) 102658 Mál nr. BN043714
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 12 er talin 721,4 m2, lóðin reynist 723 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

55. Sjafnargata 14 (01.196.503) 102659 Mál nr. BN043708
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðarinnar Sjafnargata 14 auk þess að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 14 er talin 756,9 m2, lóðin reynist 765 m2, 4 m2 teknir af lóðinni og gerðir að borgarlandi (landnr. 218177), lóðin verður 761 m2.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

56. Sjafnargata 2 (01.196.201) 102653 Mál nr. BN043699
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðarinnar Sjafnargötu 2 auk þess að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 2 er talin 859,6 m2, lóðin reyndist 860m2, 2 m2 teknir af lóðinni og gerðir að borgarlandi, lóðin verður 858 m2.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

57. Sjafnargata 4 (01.196.202) 102654 Mál nr. BN043705
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 4 er talin 848,9 m2, lóðin reynist 852 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

58. Sjafnargata 6 (01.196.203) 102655 Mál nr. BN043706
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 6 er talin 811,6 m2, lóðin reynist 814 m2 eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

59. Sjafnargata 8 (01.196.204) 102656 Mál nr. BN043707
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Lóðin Sjafnargata 8 er talin 784,3 m2, lóðin reynist 776 m2, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum Landupplýsingadeildar, Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 12.10. 2011. Uppdrættir eru geymdir í safni mælingadeildar og Lóðarskráritara.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

60. Ármúli 44 (01.295.306) 103847 Mál nr. BN043667
Gunnar Hálfdánarson, Háagerði 75, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta litlar íbúðir á 2. og 3. hæð atvinnuhúss á lóð nr. 44 við Ármúla.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

61. Bankastræti 12 (01.171.201) 101382 Mál nr. BN043680
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort áður gerðar framkvæmdir verði samþykktar, sbr. fyrirspurn BN043469 og meðfylgjandi gögn, á baklóð húss á lóð nr. 12 við Bankastræti.
Jákvætt.
Með vísan til bókun byggingarfulltrúa dags. 30 ágúst 2011.

62. Barðastaðir 1-5 (02.422.501) 178904 Mál nr. BN043625
Hjörleifur Björnsson, Tröllateigur 34, 270 Mosfellsbær
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta réttingaverkstæði og koma fyrir innkeyrsludyrum á suðurhlið atvinnuhúss á lóð nr. 1-5 við Barðastaði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. október 2011 fylgir erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 10 október 2011.

63. Brúnastaðir 71 (02.424.204) 178557 Mál nr. BN043682
Ingveldur B Frímannsdóttir, Brúnastaðir 71, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum einbýlishús á lóð nr. 71 við Brúnastaði.
Jákvætt.
Með vísan til leiðbeininga á umsóknarblaði. Sækja þarf um byggingarleyfi.

64. Dugguvogur 13-15 (01.454.117) 105634 Mál nr. BN043602
Einar Þór Guðmundsson, Dugguvogur 15, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka með því að byggja inndregna þakhæð ofan á atvinnuhús nr. 15 á lóð nr. 13-15 við Dugguvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. október 2011 fylgir erindinu
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 11. október 2011.

65. Lindargata 50 (01.153.201) 101098 Mál nr. BN043628
Reykjavík letterpress ehf, Lindargötu 50, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta hönnunar- og prentstofu í mhl. 02 og 03 á lóð nr. 50 við Lindargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 14. október 2011 fylgir erindinu
Jákvætt.
Enda verði sótt um byggingarleyfi.

66. Meðalholt 17 (01.245.205) 103243 Mál nr. BN043688
Elísabet Sigurveig Ólafsdóttir, Ásland 16, 270 Mosfellsbær
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta íbúðarherbergi í kjallara þar sem áður voru geymslur í fjölbýlishúsi á lóð nr. 17 við Meðalholt.
Nei.
Óheimilt að gera íbúðarherbergi í kjallara skv. gr. 96 í byggingareglugerð nr. 441/1998. Lofthæð er auk þess ekki nægjanleg.

67. Næfurás 10-14 (04.381.402) 111477 Mál nr. BN043679
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fáist fyrir áður gerðum breytingum þar sem gerð er grein fyrir áður gerðri stækkun kjallara, óútgrafin rými tekin í notkun í fjölbýlishúsi á lóð nr. 10-14 við Næfurás.
Frestað.

68. Þingholtsstræti 23 (01.180.101) 101677 Mál nr. BN043658
Guðný Margrét Emilsdóttir, Þingholtsstræti 23, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir svalahurð frá íbúð 0201 út á svalir 0204 sem er í sameiginlegri eigu 0201 og 0301 í fjölbýlisinu á lóð nr. 23 við Þingholtsstræti.
Jákvætt.
Enda verði sótt um byggingarleyfi og samþykki 2/3 eigenda fylgi skv. 2. mgr. 38. gr. laga um fjöleignahús nr. 26/1994.

Fundi slitið kl. 11.50

Björn Stefán Hallsson
Jón Hafberg Björnsson Sigrún Reynisdóttir
Björn Kristleifsson Hjálmar Andrés Jónsson
Sigrún G Baldvinsdóttir Harri Ormarsson