Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2011, miðvikudaginn 21. desember kl. 9.10, var haldinn 260. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Ósk Frímannsd Jensen og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Ágúst Jónsson, Stefán Finnsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Margrét Leifsdóttir og Haraldur Sigurðsson.
Fundarritari var Einar Örn Thorlacius.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 16. desember 2011.

2. Nýr Landspítali við Hringbraut, lýsing, nýtt deiliskipulag(01.19) Mál nr. SN110037
SPITAL ehf, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Spital ehf. dags. 13 september 2010, lýsing Spital vegna Landspítala við Hringbraut dags. 25. janúar 2011, drög að endurskoðaðu varðveislumati dags. 2. febrúar 2011 ásamt umsögnum hagsmunaaðila og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 2. mars 2011 ásamt fornleifskráningu Minjasafns Reykjavíkur móttekin í mars 2011.
Einnig er lögð fram tillaga SPITAL að deiliskipulagi Landsspítala við Hringbraut samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum dags. 10. ágúst 2011 br. 24. ágúst 2011 ásamt ásýndarmyndum og skuggavarpi dags. 10. ágúst 2011 br. 24. ágúst 2011 og drög að greinargerð og skilmálum dags. 8. ágúst 2011 ásamt minnisblaði dags. 12. apríl 2011, bréf Spital til skipulagsráðs dags. 28. apríl 2011, bókun Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 10. maí 2011 þrívíddarmyndir dags. 19. maí 2011 minnisblað SPITAL dags. 7. júní 2011, minnisblað SPITAL varðandi umferðardreifingu dags. 7. júní 2011 , minnisblað SPITAl vegna bílastæða dags. 20. júní 2011, minnisblað verkefnisstjóra dags. 28. júní 2011 , minnisblað SPITAL dags. 1. júlí 2011 og minnisblað Skipulags- og byggingarsviðs dags. 5. júlí 2011, breytt 17. ágúst 2011.
Einnig eru lagðar fram eftirfarandi skýrslur:
Drög að greinargerð um samgöngur dags. 31. maí 2011, Þyrlupallur forsendur dags. 18. apríl 2011, Flutningur hættulegra efna um Hringbraut, áhættugreining dags. 4. mars 2011, Gróður á lóð Landspítalans dags. 1. mars 2011, Samgöngustefna 1. útgáfa dags. í maí 2011 ásamt kynningarbréfi dags. 30. maí 2011 og Hljóðvistarskýrsla dags. 1. mars 2011.

Kynning stóð til og með 1. október 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn ábendingar og athugasemdir: Tómas R. Hansson dags. 5. september 2011, Orri Þór Ormarsson dags. 6. sept., Finnbogi Gústafsson og Edda Hallsdóttir dags. 30. sept., Páll Benediktsson f.h. húsfélagsins að Miklubraut 22-30 dags. 30. sept., Hilmar Þór Björnsson, dags. 30. sept., Þórir Einarsson, dags. 30. sept., Elín Steinarsdóttir, dags. 30. sept., Katrín Þorsteinsdóttir, dags. 30. sept., Einar Eiríksson og Ásdís Gestsdóttir f.h. átakshóps suður Þingholta #GLVerjum hverfið#GL dags. 30. sept, Sturla Snorrason dags. 30. sept., Þorbergur Þórsson dags. 30. sept., Þóra Andrésdóttir dags. 1. okt., Þóra Andrésdóttir dags. 1. okt; Steinunn Þórhallsdóttir f.h. Íbúasamtök 3. hverfis dags. 1. okt., Magnús Skúlason f.h. Íbúasamtök Miðborgar dags. 4. okt., Hollvinir Grensásdeildar, dags. 26. sept. Einnig er lögð fram umsögn Umhverfis og samgöngusviðs dags. 29. september 2011.
Nú lögð fram drög að umferðarskýrslu umhverfis og samgöngusviðs dags. 16. desember 2011 ásamt minnisblaði SPITAL dags. 30. nóvember 2011.

Jórunn Frímannsdóttir vék af fundi kl. 10:55

Kynnt.

(B) Byggingarmál

3. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN043689
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa nr. 665. frá 20. desember 2011 .

(D) Ýmis mál

4. Höfuðborgarsvæðið, samgöngur, samgönguáætlun 2011-2022 Mál nr. SN110405
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 7. október 2011 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 30. september 2011 ásamt drögum að tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun 2011-2022. Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 29. september 2011 að vísa drögum að tillögu samgönguráðs til umsagnar skipulagsráðs.
Frestað.

5. Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, Mál nr. SN110397
fyrirkomulag samstarfs aðildarsveitarfélaga SSH
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. september 2011 ásamt bréfi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 21. þ.m. um fyrirkomulag samstarfs aðildarsveitarfélaga SSH vegna svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Borgarráð vísaði erindinu til skipulagsráðs á fundi sínum 22. september 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagssjóra dags. 12. desember 2011.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 12. desember 2011 samþykkt með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
Vísað til borgarráðs.

6. Atvinnustefna Reykjavíkur, bréf skrifstofu borgarstjórnar Mál nr. SN110505
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 2. desember 2011 þar sem óskað er eftir umsögn fyrir 16. desember nk. um drög að atvinnustefnu Reykjavíkurborgar dags. 25. nóvember 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 12. desember 2011.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 12. desember 2011 samþykkt.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksin Júlíus Vífill Ingvarsson og Gísli Marteinn Baldursson sátu hjá við afgreiðslu málsins og óskuðu bókað:
#GL Drög að atvinnustefnu Reykjavíkur bera þess merki að aðeins einn borgarfulltrúi hefur unnið að stefnunni, án samráðs við þá borgarfulltrúa sem sitja í fagráðum borgarinnar. Í atvinnustefnunni eru teknar ýmsar ákvarðanir, sem enn eru í lýðræðislegu ferli við vinnu við nýtt aðalskipulag Reykjavíkur. Sú vinna er í anda íbúalýðræðis og hefur samráðs verið leitað víða og mun enn aukast á næstu mánuðum. Því er í hæsta máta óeðlilegt að í atvinnustefnu sé það samráðsferli að engu haft, heldur ákvarðanir teknar án samráðs eða forvinnu þeirrar sem á sér stað í starfshópi um aðalskipulag. Inn í atvinnustefnuna vantar ýmsa mikilvæga þætti sem varða bæði samgöngumál og skipulagsmál, eins og til dæmis kemur fram í umsögn umhverfis- og samgöngusviðs. Koma hefði mátt í veg fyrir gagnrýni af þessum toga með því að hleypa fleirum að verkinu fyrr, og nýta þá þekkingu og kunnáttu sem liggur út á sviðum borgarinnar og meðal kjörinna fulltrúa í nefndum og ráðum. Á sínum tíma samþykkti borgarstjórn að þessi stefna skyldi unninn af þverpólitískum hópi borgarfulltrúa, en án nokkurrar heimildar borgarstjórnar setti núverandi meirihluti þessa vinnu í þann farveg sem við nú stöndum frammi fyrir #GL.

Fundi slitið kl. 12.10.

Páll Hjalti Hjaltason

Hjálmar Sveinsson Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2011, þriðjudaginn 20. desember kl. 10.15 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 665. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Harri Ormarsson, Björn Stefán Hallsson, Jón Hafberg Björnsson, Sigrún Reynisdóttir, Björn Kristleifsson og Sigrún G Baldvinsdóttir.
Fundarritari var Harri Ormarsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN043930
Hneitir ehf, Þönglabakka 6, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rétta úr bogabrú á 3. hæð milli Þönglabakka 1 og 6 á lóð nr. Álfabakki 12-16/Þönglabakki 1-6.
Stækkun 4,48 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 358
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Ármúli 21 (01.264.105) 103532 Mál nr. BN043938
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Bíó ehf, Ármúla 21, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu þar sem gerð er grein fyrir breytingum á ákvæðum um brunavarnir frá nýsamþykktu erindi, sjá BN043797, í kjallara og á 1. hæð atvinnuhúss á lóð nr. 21 við Ármúla.
Erindi fylgir brunaskýrsla frá Eflu dags. 6. desember 2011.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Ármúli 21 (01.264.105) 103532 Mál nr. BN043951
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Vietnam Restaurant ehf, Háaleitisbraut 54, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem fram koma breytingar á innra skipulagi í veitingarstaðnum í flokki II í húsi nr. 21 við Ármúla.
Bréf frá hönnuði dags. 13. des. 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Ármúli 8 (01.290.003) 103753 Mál nr. BN043946
Fjárfestingafélagið Hegrane ehf, Hegranesi 26, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að koma fyrir millilofti, andyri stækkað og skyggni sett upp, hurðum og gluggum breytt á 1. og 2. hæð og að einangra suðurvegg með 50 mm einangrun og klæða með álklæðningu á atvinnuhúsið á lóð nr. 8 við Ármúla.
Stækkun: Anddyri 3,7 ferm., 17,5 rúmm.
millilofts XX ferm.
Gjald kr. 8.000 + 1.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Baldursgata 16 (01.186.202) 102231 Mál nr. BN042910
Emiliano Monaco, Ítalía, Sótt er um leyfi til að byggja svalir á suðurhlið þakhæðar og samræma glugga á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Baldursgötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 14. janúar 2011. Meðfylgjandi er útskrift úr gerðabók skipulags dags. 10. júní 2011. Málið var grenndarkynnt 7. maí til 7. júní 2011. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Frestað.
Lagfæra skráningu.

6. Bárugata 8 (01.136.218) 100554 Mál nr. BN043286
B.Markan-Pípulagnir ehf, Lyngási 10, 210 Garðabær
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningum vegna gerðar eignarskiptasamnings í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 við Bárugötu.
Bréf frá hönnuði dags. 27. sept. 2011 og eignaskiptasamningur frá 1. júlí 1994 þar sem fram kemur að ósamþykkjanlegar íbúðir í kjallara og í risi eru í húsinu. Samþykki sumra meðeigenda ódags.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Bergstaðastræti 44 (01.185.204) 102158 Mál nr. BN043924
Fasteignafélagið Snerra ehf, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sjö íbúðir, byggja svalir á suðurhlið 3. hæðar, breyta opnanlegum fögum í gluggum og byggja reiðhjólaskýli í garði fjölbýlishúss á lóð nr. 44 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir jákvæð umsögn skipulagsstjóra dags. 6. október 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Bergþórugata 8 (01.192.012) 102518 Mál nr. BN043947
Guðlaugur Vignir Sigursveinsson, Bergþórugata 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr stáli og timbri á 2. hæð suðurhliðar og gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að síkka glugga og gera svalahurðir á 1. og 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 8 við Bergþórugötu.
Erindi fylgir jákvæð fyrirspurn dags. 16. ágúst 2011 og samþykki meðeigenda dags. 8. desember 2011 áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Borgartún 33 (01.219.101) 102777 Mál nr. BN043900
Reginn A1 ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka um eina hæð og byggja einnar hæðar viðbyggingu fyrir varaaflstöð og nýtt stigahús á norðurhlið skrifstofuhúss á lóð nr. 33 við Borgartún.
Jafnframt er erindi BN043086 dregið til baka.
Stækkun: 1.017,6 ferm., 2.418,8 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 273.504
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

10. Bústaðav. Bjarkahlíð (01.836.-98) 108619 Mál nr. BN043955
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, gera verönd sunnan og norðan megin, gera nýjan inngang í kjallara og klæða að utan með Virokplötum skólahúsið Bjarkarhlíð við Bústaðaveg.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Bæjarháls, Réttarháls (00.000.000) 190769 Mál nr. BN043842
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta í tvo eignarhluta skrifstofuhúsi (mhl.09) á lóð nr. 1 við Bæjarháls.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Dunhagi 18-20 (01.545.113) 106483 Mál nr. BN043923
Mondo ehf, Sjafnargötu 5, 101 Reykjavík
D18 ehf, Smáratorgi 3, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss sem felast í því að fjölga íbúðum á 2. og 3. hæð úr fjórum í tíu á hvorri hæð, breyta notkun 1. hæðar þannig að helmingur verslunarrýmis verði fjórar íbúðir, en helmingurinn óbreyttur, breyta kjallara með geymslum og þvottahúsum til samræmis við þetta og færa sorpgeymslur út á lóð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 18-20 við Dunhaga.
Meðfylgjandi er afrit af bréfi skipulagsstjóra Reykjavíkur dags. 17.11. 2011
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Engjavegur 6 (01.37-.-93) 104719 Mál nr. BN043957
Íslensk getspá sf, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Íþrótta-og Ólympíusamband Ísl, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Íþróttabandalag Reykjavíkur, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna viðbyggingar og endurbóta nýs stigahúss í nýbyggingu íþrótta- og Olympíusambands Íslands á lóð nr. 6 við Engjaveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15.12. 2011
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Faxafen 10 (01.466.101) 195609 Mál nr. BN043774
Antik og List ehf, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík
Einar Ingi Marteinsson, Njörvasund 19, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að opna húðflúrstofu í eignarhluta 0104 og hluta af eignarhluta 0103 í húsnæðinu á lóð nr. 10 við Faxafen.
Erindi fylgir tölvupóstur Páls Kristjánssonar, hdl. skiptastjóra þrotabús Antíks og listar ehf dags. 19. desember 2011.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Framnesvegur 28 (01.133.244) 100273 Mál nr. BN043843
Katrín Ingjaldsdóttir, Framnesvegur 28, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu af kjallara og 1. hæð vegna gerðar eignaskiptasamnings í fjölbýlishúsi á lóð nr. 28 við Framnesveg.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Funahöfði 9 (04.060.101) 110582 Mál nr. BN043846
AB varahlutir ehf, Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja skýli við inngang og breyta innra skipulagi í atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Funahöfða.
Stækkun skýli B-rými: 16,1 ferm., 48,2 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 3.856
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

17. Grensásvegur 11 (01.461.102) 105666 Mál nr. BN043852
Sætrar ehf, Gerðhömrum 27, 110 Reykjavík
Sótt er um stækkun á 1. hæð til norðurs aftan við tengibyggingu auk breytinga á ásýnd, aðkomu og lóðarfyrirkomulagi skrifstofu- og verslunarhúss á lóð nr. 11 við Grensásveg.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 14.11. 2011 og eldvarnarskýrsla dags. nóvember 2011 og annað bréf arkitekts dags. 28.11. 2011
Stækkun: 193,7 ferm., 1.428,4 rúmm.
Stærð eftir stækkun: 6.276 ferm., 24.937,3rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 11.272
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Grjótháls 7-11 (04.304.001) 111019 Mál nr. BN043953
LF12 ehf, Álfheimum 74, 104 Reykjavík
Landfestar ehf, Álfheimum 74, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að uppfæra eldvarnir, reisa stálstiga á austurgafli frá mötuneyti, breyta glugga í hurð og setja þjónustuhurð, skv. meðfylgjandi uppdráttum og brunahönnun í verksmiðjuhúsi Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, mhl. 02, á lóð nr. 7-11 við Grjótháls.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 12.12. 2011 og brunahönnun Eflu dags. 10.12. 2011.
Stærðir við endurútreikninga: Stækkun 57 ferm., minnkun 172 rúmm
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Hafnarstræti 20/Læk5 (01.140.302) 100836 Mál nr. BN043819
Landsbankinn fasteignafélag ehf, Austurstræti 16, 155 Reykjavík
IF hópurinn ehf, Hátröð 5, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi sjá BN042314 þar sem breytingar felast í að innréttað verður starfsmannarými á 4. hæð í veitingastað í húsi á lóð nr. 20 við Hafnarstræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

20. Kleppsvegur Kleppur (01.404.001) 104957 Mál nr. BN043920
Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta aðra hæð aðalbyggingar og hálfa hæð viðbyggingar til austurs fyrir réttargeðdeild í Kleppspítala við Kleppsveg - Kleppur.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Klettagarðar 19 (01.324.301) 192630 Mál nr. BN043958
Sökklar 1912 ehf, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofur í rými á 2. hæð sem áður var óráðstafað í húsinu á lóð nr. 19 við Klettagarða.
Bréf frá hönnuði 2. des. 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Klettagarðar 4 (01.323.301) 215730 Mál nr. BN043936
K 4 ehf, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi sbr. BN042573 til að breyta innra skipulagi, stækka lóð um 1713 ferm., koma fyrir olíuskilju og olíutanki og girðingu, 2,0 m hárri úr stálneti á lóðarmörkum í húsinu á lóð nr. 4 við Klettagarða.
Stækkun: Hús XX rúmm. stærð tanka XX ferm., XX rúmm.
Frestað.
Deiliskipulagsferli ólokið.

23. Lambhagavegur 23 (02.6--.---) 189563 Mál nr. BN043855
Hafberg Þórisson, Lambhagavegur 23, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu til vesturs, klæða eldra hús með steinklæðningu og breyta innra skipulagi kjallara einbýlishúss á lóð nr. 23 við Lambhagaveg.
Stækkun: Kjallari 15,9 ferm., 1. hæð 55,6 ferm.
Samtals 71,5 ferm., 324,2 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 25.936
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Laugavegur 28A (01.172.208) 101463 Mál nr. BN043037
Vernharður Skarphéðinsson, Smyrlahraun 1, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og innrétta gistiheimili í flokki II með rými fyrir sjö gesti í einbýlishúsi á lóð nr. 28A við Laugaveg.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 26. júlí 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Leifsgata 16 (01.195.207) 102599 Mál nr. BN043950
Kristján Ólafur Eðvarðsson, Leifsgata 16, 101 Reykjavík
Þorgerður Þorvaldsdóttir, Leifsgata 16, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu, koma fyrir stiga út í garð og að endurskipuleggja kjallararými svo að það verði innangengt upp í íbúð í parhúsi á lóð nr. 16 við Leifsgötu.
Neikvæð fyrirspurn BN043349, samþykki meðeigenda dags. 12 des. 2011 fylgir.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

26. Malarhöfði 8 (04.055.502) 110558 Mál nr. BN043646
Malarhús ehf, Malarhöfða 8, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta erindi BN035165 þar sem veitt var leyfi til að innrétta húsvarðaríbúð í norðvesturhluta 2. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 8 við Malarhöfða.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

27. Óðinsgata 14 (01.184.421) 102081 Mál nr. BN043574
Anna Sigurveig Magnúsdóttir, Óðinsgata 14, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á áður gerðum breytingum og stækkun á einbýlishúsi á lóð nr. 14 við Óðinsgötu.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.000 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Skútuvogur 13 (01.427.401) 105178 Mál nr. BN043844
Bíla-Doktorinn ehf, Pósthólf 69, 202 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að gera nýjan inngang á suðurhlið og fyrir samþykkt á reyndarteikningum af innra skipulagi atvinnuhúss á lóð nr. 13 við Skútuvog.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Smáragata 12 (01.197.407) 102742 Mál nr. BN043952
Þórhallur Bergmann, Bárugata 10, 101 Reykjavík
Guja Dögg Hauksdóttir, Smáragata 12, 101 Reykjavík
Einar Jónsson, Smáragata 12, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera breytingar innanhúss, endurnýja þak og byggja fimm kvisti, byggja nýjar svalir til vesturs, fjarlægja skorstein, byggja úr steinsteypu með timburþaki geymsluskúr á lóð, gera nýjan sérinngang á austurhlið og útgang úr kjallara, sbr. fyrirspurn BN043116, á íbúðarhúsi á lóð nr. 12 við Smáragötu.
Meðfylgjandi er samkomulag eigenda dags. 12.12. 2011.
Stærðir geymsluskúr, 25 ferm., 67,3 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 5.384
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Suðurlandsbraut 4A (01.262.001) 103513 Mál nr. BN043956
Margrét Sigurðardóttir, Austurberg 4, 111 Reykjavík
Bara Betri ehf, Austurbergi 4, 111 Reykjavík
LHF ehf, Lyngási 11, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að innrétta fyrir framleiðslu á snyrtivörum rými 0204 í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 4A við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir jákvæð fyrirspurn dags. 6. desember 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

31. Sævarhöfði 31 (04.021.401) 110503 Mál nr. BN043915
Ríkissjóður Íslands, Vegmúla 3, 150 Reykjavík
Jarðboranir hf, Hlíðasmára 1, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að setja niður olíuskilju vestan við skemmu mhl. 02 á lóð nr. 31 við Sævarhöfða.
Bréf frá hönnuði dags. 23. nóv. 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

32. Vatnagarðar 4 (01.337.701) 103912 Mál nr. BN043959
Ólafur Þorsteinsson ehf, Vatnagörðum 4, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum og skráningartöflu vegna eignaskiptasamnings af iðnaðarhúsi á lóð nr. 4 við Vatnagarða.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Vatnsveituv. Fákur (04.712.001) 112366 Mál nr. BN043783
Guðrún Oddsdóttir, Norðurás 6, 110 Reykjavík
Sveinbjörn Runólfsson, Fagribær 6, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr timbri innfelldar í þak út frá kaffistofu á 2. hæð hesthúss Fáks mhl. 01 nr. 2 á lóð nr. 9 við Faxaból og Vatnsveituveg.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

34. Brynjólfsgata Mál nr. BN043968
Byggingarfulltrúi leggur til að lóð fyrir hús stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur við Brynjólfsgötu verði tölusett sem Brynjólfsgata 1.
Jafnframt er lagt til að bygging VR-III, matshlutar 05 og 07 verði tölusettir sem Brynjólfsgata 7, eru nú skráðir við Hjarðarhaga 2-6.
Núverandi landnúmer er 106511.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

35. Dunhagi Mál nr. BN043962
Byggingarfulltrúi leggur til að bygging Tæknigarðs, mhl 12 verði tölusett sem Dunhagi 5 og bygging endurmenntunar HÍ, mhl 09 sem Dunhagi 7.
Núverandi landnúmer er 106507.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

36. Hjarðarhagi Mál nr. BN043963
Byggingarfulltrúi leggur til að bygging sunnan við hús nr. 2 við Hjarðarhaga sem er skráð sem mhl 04, fastanúmer 202-8476 verði tölusett sem Hjarðarhagi 2A og bygging sunnan hennar, mhl 08, fastanúmer 223-5031 verði skráð sem Hjarðarhagi 2B.
Núverandi landnúmer 106511.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

37. Sætún 8 (01.216.303) 102760 Mál nr. BN043971
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 25.10. sl. var samþykkt umsókn um leyfi til að byggja sex hæða viðbyggingu við skrifstofuhús nr. 10 (mhl.02) á lóð nr. 8-10 við Sætún. Í texta stóð að greiða skyldi fyrir 48,1 bílastæði í flokki III, en átti að vera 41,8 bílastæði í flokki III, eins og fram kemur í samþykkt málsins.
Varðandi frestun á greiðslu hluta gjalda sjá fskj. I dags. 20.12.2011.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

38. Bauganes 37A (01.673.108) 106835 Mál nr. BN043944
Ásdís Káradóttir, Bauganes 37a, 101 Reykjavík
Arnar Þór Másson, Bauganes 37a, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að lækka hellulagt svæði og stoðveggir verði settir í sömu hæð og aðliggjandi land á lóð nr. 37A við Bauganes.
Jákvætt.
Ekki er gerð athugasemd við erindið, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við aðliggjandi lóðarhafa.

39. Fljótasel 19 (04.972.304) 113183 Mál nr. BN043964
Ricardo E Villalobos, Fljótasel 19, 109 Reykjavík
Spurt er hvort skilja megi frá íbúðinni og skrá sem séreign kjallara raðhússins nr. 19 á lóð nr. 19 -23 við Fljótasel.
Nei.
Með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

40. Funahöfði 9 (04.060.101) 110582 Mál nr. BN043954
AB varahlutir ehf, Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi upp skilti sbr. meðfylgjandi myndir á og við hús á lóð nr. 9 við Funahöfða.
Frestað.
Með vísan til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

41. Njálsgata 23 (01.182.125) 101839 Mál nr. BN043868
Ananda Marga Pracaraka Samgha, Efstasundi 26, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að lyfta þaki og innrétta íbúð í risi, dýpka kjallara og innrétta félagsheimili í kjallara og á 1. og 2. hæð íbúðarhússins Frakkastígur 16 á lóð nr. 23 við Njálsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. desember 2011, ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 15. desember 2011 fylgja erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 15. desember 2011.

42. Nökkvavogur 36 (01.441.208) 105449 Mál nr. BN043960
Hrefna Zoéga, Nökkvavogur 36, 104 Reykjavík
Arnar Lárus Baldursson, Nökkvavogur 36, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja kvist á norðurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 36 við Nökkvavog.
Jákvætt.
Enda verði sótt um byggingarleyfi í samræmi við deiliskipulag.

43. Skipasund 81 (01.413.014) 105078 Mál nr. BN043910
D.H. Holdings ehf, Andarhvarfi 2, 203 Kópavogur
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja tvöfalda bílageymslu, 72 fermetra á stærð á lóð nr. 81 við Skipasund.
Dregið verður til baka fyrirspurn BN43857 sem var í fresti.Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 16. desember 2011 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 13. desember 2011 fylgja erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 13 desember 2011.

44. Víðihlíð 38 (01.782.611) 107546 Mál nr. BN043932
Georg Georgsson, Birkihlíð 28, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að reisa garðskála að mestu undir svölum annarar hæðar raðhússins nr. 38 á lóð nr. 36-42 við Víðihlíð.
Ljósmynd fylgir{Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. desember 2011, ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 15. desember 2011 fylgja erindinu.}
Frestað.
Gera þarf betur grein fyrir erindinu.

Fundi slitið kl. 11.15

Björn Stefán Hallsson
Jón Hafberg Björnsson Sigrún Reynisdóttir
Björn Kristleifsson Sigrún G Baldvinsdóttir
Harri Ormarsson