Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2011, miðvikudaginn 17. ágúst kl. 9.10, var haldinn 249. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Sverrir Bollason, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Ósk Frímannsd Jensen og áheyrnarfulltrúinn Sóley Tómasdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Stefán Hallsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir.
Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Magnús Sædal Svavarsson, Björn Axelsson, Harri Ormarsson og Margrét Leifsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 12. ágúst 2011.

2. Háskóli Íslands, breyting á deiliskipulagi (01.6) Mál nr. SN110274
Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík
Lögð fram tillaga Landmótunar f.h. Háskóla Íslands dags. 20. júní 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Í breytingunni felst niðurfelling á áður samþykktri stækkun á tjörn og votlendisstæði ásamt að bæta umferð og dvöl á svæðinu með stígagerð, upplýsingaskiltum og fuglaskoðunarhúsi.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

3. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN043433
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 647 frá 16. ágúst 2011.

(D) Ýmis mál

4. Kjalarnes, Móavík, orðsending skrifstofu borgarstjóra Mál nr. SN110033
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
LEX ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 27. janúar 2011 var lagt fram bréf Framkvæmda- og eignasviðs dags. 20. janúar 2011 ásamt orðsendingu skrifstofu borgarstjóra dags. 18. janúar 2011 varðandi bréf Lex lögmannsstofu dags. 13. janúar 2011 um skiptingu á landi Móavíkur á Kjalarnesi. Einnig er lagt fram bréf Lex lögmanna dags. 3 júní 2011 þar sem óskað er eftir skýringum á drætti og umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 29. júní 2011..
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt

5. Þingholtsstræti 29A, bréf byggingarfulltrúa (01.183.605) Mál nr. BN043402
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 8. júní 2011 til eiganda hússins nr. 29A við Þingholtsstræti þar sem kynnt er tillaga byggingarfulltrúa um beitingu þvingunarúrræða vegna seinagangs við framkvæmdir á lóðinni. Andmælafrestur eiganda er liðinn án þess að hann hafi verið nýttur.
Tillaga byggingarfulltrúa samþykkt.
Vísað til borgarráðs.

6. Þverholt 15-19 og 21, Sameining lóða Mál nr. BN043375
Landsbankinn hf, Austurstræti 11, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að sameina lóðirnar Þverholt 15-19 og Þverholt 21 í eina lóð. Lóðin Þverholt 15-19, landnr. 215990, staðgr. 01.244.301 er fyrir sameingu 7102 m2, en lóðin Þverholt 21, landnr. 215991, er fyrir sameiningu 1529 m2. Eftir sameiningu verður ný lóð 8632 m2. Málinu fylgir breytingablað Landupplýsingadeildar dags. 2. ágúst 2011.
Samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

7. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, framkvæmdaleyfi (05.8) Mál nr. SN110316
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram bréf Framkvæmda- og eignasviðs dags. 28. júlí 2011 þar sem óskað er eftir endurnýjun á framkvæmdaleyfi til jarðvegslosunar á Hólmsheiði. Nýtt framkvæmdaleyfi verði byggt á grundvelli deiliskipulags sem samþykkt var í skipulagsráði 13. október 2010. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 8. ágúst 2011.
Samþykkt með vísan til c-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

8. Aragata 15, kæra Mál nr. SN110329
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 9. ágúst 2011 ásamt kæru dags. 21. júlí 2011 þar sem kærð er synjun á umsókn um leyfi fyrir byggingu bílskúrs á lóð nr. 15 við Aragötu.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

9. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, endurupptaka, umsögn (05.8) Mál nr. SN110334
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 13. apríl 2011 ásamt beiðni Þóris J Einarssonar ehf., Skaftahlíð 38, dags. 29. mars 2011 um endurupptöku frávísunarúrskurðar í máli nr. 26/2010 sem kveðinn var upp hinn 16. mars 2011. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 11. ágúst 2011.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

10. Nýr Landspítali við Hringbraut, lýsing, nýtt deiliskipulag (01.19) Mál nr. SN110037
SPITAL ehf, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Spital ehf. dags. 13 september 2010, lýsing Spital vegna Landspítala við Hringbraut dags. 25. janúar 2011, drög að endurskoðaðu varðveislumati dags. 2. febrúar 2011 ásamt umsögnum hagsmunaaðila og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 2. mars 2011 ásamt fornleifskráningu Minjasafns Reykjavíkur móttekin í mars 2011.
Einnig er lögð fram tillaga SPITAL að deiliskipulagi Landsspítala við Hringbraut samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum dags. 10. ágúst 2011 ásamt ásýndarmyndum og skuggavarpi dags. 10. ágúst 2011 og drög að greinargerð og skilmálum dags. 8. ágúst 2011 ásamt minnisblaði dags. 12. apríl 2011, bréf Spital til skipulagsráðs dags. 28. apríl 2011, bókun Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 10. maí 2011 þrívíddarmyndir dags. 19. maí 2011 minnisblað SPITAL dags. 7. júní 2011, minnisblða SPITAL varðandi umferðardreifingu dags. 7. júní 2011 , minnisblað SPITAl vegna bílastæða dags. 20. júní 2011, minnisblað verkefnisstjóra dags. 28. júní 2011 , minnisblað SPITAL dags. 1. júlí 2011 og minnisblað Skipulags- og byggingarsviðs dags. 5. júlí 2011. Einnig eru lagðar fram eftirfarandi skýrslur:
Drög að greinargerð um samgöngur dags. 31. maí 2011, Þyrlupallur forsendur dags. 18. apríl 2011, Flutningur hættulegra efna um Hringbraut, áhættugreining dags. 4. mars 2011, Gróður á lóð Landspítalans dags. 1. mars 2011, Samgöngustefna 1. úgáfa dags. í maí 2011 ásamt kynningarbréfi dags. 30. maí 2011 og Hljóðvistarskýrsla dags. 1. mars 2011

Gert var hlé á fundinum kl 10:25 og hófst hann að nýju kl 11:05.
Frestað.

Fundi slitið kl. 11.07.

Páll Hjalti Hjaltason
Sverrir Bollason Elsa Hrafnhildur Yeoman
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Jórunn Ósk Frímannsd Jensen
Sóley Tómasdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2011, þriðjudaginn 16. ágúst kl. 10.30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 647. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Stefán Hallsson, Magnús Sædal Svavarsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Hjálmar Andrés Jónsson og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Harri Ormarsson.
Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurstræti 17 (01.140.308) 100841 Mál nr. BN043344
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja hurð af 2. hæð Austurstrætis yfir í stigagang Lækjartorg 1 í húsnæðinu á lóð nr. 17 við Austurstræti.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 9. ágúst 2011 fylgir málinu.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

2. Barónsstígur 32 (01.192.102) 102529 Mál nr. BN043370
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja kennslustofu frá Selásskóla og nýta sem viðbót við frístundaheimili á lóð Austurbæjarskóla nr. 32 við Barónsstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. ágúst 2011 fylgir erindinu fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 12. ágúst 2011 verður að breyta deiliskipulagi vegna umsóknarinnar og skal umsækjandi sækja um það til skipulagsstjóra.

3. Bergstaðastræti 16 (01.184.010) 102005 Mál nr. BN043405
BK-44 ehf, Mjóstræti 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innréttingum á 1., 2. og 3. hæð og að fella niður útitröppur sbr. nýsamþykkt erindi BN043078 við einbýlishús á lóð nr. 16 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

4. Boðagrandi 9 (01.521.405) 105956 Mál nr. BN043411
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir færanlegri leikstofu, K-21B sem áður stóð við Norðlingaskóla, við leikskólann Grandaborg á lóð nr. 9 við Boðagranda.
Stærð: 62,7 ferm., 210,9 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 16.872
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

5. Brattagata 3A (01.136.536) 100625 Mál nr. BN043414
Tómthús ehf, Lynghaga 3, 107 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á erindi BN025563, samþykkt 8. október 2002 og endurnýjað 27. apríl 2010, þar sem veitt var leyfi til að breyta vinnuskúr í sérgeymslur, stækka kvisti á norðurþekju, byggja svalir og nýjan kvist á suðurþekju og innrétta nýja íbúð á þakhæð hússins á lóð nr. 3A við Bröttugötu.
Þessi skjöl fylgdu fyrra máli, brunatæknileg úttekt VSI dags. 28. júní 2002 . Umsögn Árbæjarsafns dags. 8. júlí 2002 og umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 8. júlí 2002 . Virðingargjörð dags. 1. nóvember 1941.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 20. ágúst 2002.
Stærð: Stækkun kvistir 3,6 ferm., 13,5 rúmm.
Gjöld kr. 8.000 + 1.080
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

6. Brekkubær 32-44 (04.361.605) 111272 Mál nr. BN043214
Guðmundur Smári Ólafsson, Brekkubær 40, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja garðstofu úr timbri undir og framundan svölum raðhúss nr. 40 á lóð nr. 32-42 við Brekkubæ.
Samþykki meðeigenda fylgir ódags.
Stærðir 15,8 ferm., 43 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 3.440
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

7. Bræðraborgarstígur 23 (01.137.003) 100635 Mál nr. BN043419
Kieran Francis Houghton, Bræðraborgarstígur 23, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa gamlan skúr og byggja bílskúr úr timbri á steyptum undirstöðum með bárujárnsþaki á lóð nr. 23 við Bræðraborgarstíg.
Niðurrif: xx ferm., xx rúmm.
Bílskúr: 40,5 ferm., 121,5 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 9.720
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

8. Bræðraborgarstígur 23A (01.137.002) 100634 Mál nr. BN043420
Geir Svansson, Bræðraborgarstíg 23a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi byggja hjólageymslu og sólskála úr timbri og gleri með bárujárnsþaki á steyptum undirstöðum með hellulögðu gólfi við einbýlishúsið á lóð nr. 23A við Bræðraborgarstíg.
Stærðir: 18 ferm., 43 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 3.440
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

9. Eiríksgata 5 (01.194.102) 102544 Mál nr. BN043294
Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja nýja hurð og skábraut sem fer út á nýja verönd sem verður í garði og að girða af umræddan garð milli álma geðdeildar LSH við Hringbraut á lóð nr. 5 við Eiríksgötu.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Fossaleynir 1 (02.456.101) 190899 Mál nr. BN043303
Knatthöllin ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Kvikmyndahöllin ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina matshluta 01 og 03, innrétta keiluhöll á 1. hæð kvikmyndahúss, endurútgefa heildarteikningar, leggja fram nýja skráningartöflu ásamt ýmsum smærri breytingum á Egilshöll á lóð nr. 1 við Fossaleyni.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

11. Funafold 97 (02.861.601) 110194 Mál nr. BN043296
Aðalsteinn Snorrason, Vættaborgir 19, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi , eldhús og borðstofa sameinuð, forstofa stækkuð og að breyta útliti þar sem komið er fyrir nýrri útihurð og breyta gluggum á einbýlishúsinu á lóð nr. 97 við Funafold.
Umsögn burðarvirkishönnuðar ódags. fylgir.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

12. Gnoðarvogur 84 (01.473.003) 105739 Mál nr. BN042967
Alexander H Depuydt, Gnoðarvogur 84, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breyttum garðskála í kjallara þar sem svalir á 1. hæð verða ekki stækkaðar sbr. erindi BN041954 dags. 5.10. 2010 við hús á lóð nr. 84 við Gnoðarvog.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á teikn. og umboð.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

13. Grenimelur 5 (01.541.403) 106344 Mál nr. BN043401
BG fjárfestingar ehf, Bollagörðum 107, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að fá samþykkta íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 5 við Grenimel.
Gjald kr. 8.000
Synjað.
Með vísan til fyrri afgreiðslna málsins.

14. Grensásvegur 1 (01.460.001) 105655 Mál nr. BN043259
Mannvit hf, Grensásvegi 1, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi skrifstofa, starfsmannaaðstöðu í mhl. 03 á 1. hæð, breyta hurða- og gluggaeiningum fyrir aðalinngang og að koma fyrir verönd og sorptunnuskýli við húsið á lóð nr. 1 við Grensásveg.
Jafnframt er erindi BBN043316 dregið til baka. Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags. 8. júlí 2011 og samþykki nágranna, meðeiganda á lóð, O.R. fylgir.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Haukdælabraut 100 (05.114.104) 214819 Mál nr. BN043424
HB-100 ehf, Dofraborgum 9, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi BN043046, hækka þakkant um 16 cm, færa þakniðurfall og bæta við stoðvegg að lóð og á hluta lóðamarka í austur að borgarlandi við einbýlishús á lóð nr. 100 við Haukdælabraut.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

16. Hólaberg 84 (04.674.402) 218401 Mál nr. BN043436
Félag eldri borgara, Stangarhyl 4, 110 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu, aðstöðusköpun og uppsteypu á sökklum á lóðinni nr. 84 við Hólaberg sbr. erindi BN042713.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

17. Ingólfsstræti 2A (01.170.005) 101323 Mál nr. BN043410
Mogul Holding ehf, Bankastræti 10, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi sbr. erindi BN034663 samþykkt 19. september 2006, lokaúttekt fór ekki fram þá en er fyrirhuguð núna á húsnæði Íslensku óperunnar á lóð nr. 2A við Ingólfsstræti.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

18. Kirkjuteigur 24 (01.363.001) 104598 Mál nr. BN043412
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir færanlegri leikstofu og tengigangi, H-3B og TL-4 sem áður stóðu við Sæmundarskóla og Norðlingaskóla, á lóð leikskólans Hofs á lóð nr. 24 við Kirkjuteig.
Stærð: 123,9 ferm., 430,1 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 34.408
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

19. Kleppsvegur 26-32 (01.341.103) 103943 Mál nr. BN043408
Kleppsvegur 26-28-30,húsfélag, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða með sléttu Steni á álgrind og einangra með 50 mm steinull líkt og hús nr. 32 útveggi húss nr. 30 og suðurhliðar á nr. 26 og 28 fjölbýlishússins á lóð nr. 26-32 við Kleppsveg.
Meðfylgjandi er bréf verkfræðistofunnar Eflu dags. 5. ágúst 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Langholtsvegur 163 (01.470.008) 105694 Mál nr. BN043372
Birgir Bachmann, Langholtsvegur 163a, 104 Reykjavík
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Langholtsvegur 163, 104 Reykjavík
Fannar Sigurðsson, Langholtsvegur 163b, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta við einu bílastæði fyrir hús nr. 163B í suðvesturhorni lóðar og til að skipta í sérnotafleti raðhúsalóð nr. 163 við Langholtsveg.
Erindi fylgja drög að samkomulagi um skiptingu lóðar dags. 16. maí 2011.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. ágúst 2011 fylgir erindinu.Gjald kr. 8.000
Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra frá 12. ágúst 2011. Ekki er gerð athugasemd við afmörkun sérafnotaflata en ákvörðun um það má gera í breyttri eða nýrri eignaskiptayfirlýsingu sem staðfesta þar af embætti byggingarfulltrúa fyrir þinglýsingu.

21. Laugavegur 37 (01.172.116) 101452 Mál nr. BN043413
Basalt ehf, Pósthólf 806, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN041160 þar sem veitt var leyfi til að innrétta hótel með #GLsex íbúðareiningum#GL og leyfi fyrir tvö verslunarrými í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 37 við Laugaveg.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

22. Lynghagi 26 (01.554.107) 106584 Mál nr. BN043422
Lynghagi 26-28,húsfélag, Lynghaga 28, 107 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að byggja kvist á norðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 26 við Lynghaga.
Stækkun: 4,9 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 392
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

23. Lynghagi 28 (01.554.106) 106583 Mál nr. BN043423
Lynghagi 26-28,húsfélag, Lynghaga 28, 107 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að byggja kvist á norðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 28 við Lynghaga.
Stækkun: 4,9 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 392
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

24. Lynghagi 4 (01.554.310) 106612 Mál nr. BN043418
Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir, Lynghagi 4, 107 Reykjavík
Guðmundur Bjarni Arnkelsson, Lynghagi 4, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka svalaskýli á 4. hæð , 01-0104, á fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Lynghaga.
Ódags. bréf umsækjanda fylgir og samþykki sex meðeigenda af átta.
Stærðir stækkun xx
Gjald: 8.000 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Móvað 25 (04.773.406) 195935 Mál nr. BN043415
Þórður Adolfsson, Móvað 25, 110 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN038546 sem fjallar um að byggja sólstofu úr timbri og gleri sem breytingu á erindi BN028708 við einbýlishús á lóð nr. 25 við Móvað.
Stærðir: 13,8 ferm., 43,7 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 3.496
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Orrahólar 1-5 (04.648.001) 111996 Mál nr. BN043354
Orrahólar 1-5,húsfélag, Orrahólum 3, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða með álklæðningu á upphengikerfi úr málmi með 50 mm steinullareinangrun fjölbýlishúsið á lóð nr. 1-5 við Orrahóla.
Meðfylgjandi er fundargerð húsfundar dags. 4. maí 2011 þar sem framkvæmdin er samþykkt.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Seljabraut 36-52 (04.970.001) 113149 Mál nr. BN043417
Óskar Már Ásmundsson, Seljabraut 52, 109 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð í kjallara raðhúss nr. 52 á lóð nr. 36-52 við Seljabraut.
Erindi fylgir jákv. fsp. dags. 12. apríl 2011, íbúðarskoðun dags. 29. apríl 2011, samþykki meðeigenda ódagsett, eignaskiptalýsing dags. 29. ágúst 1989 og þinglýst afsal dags. 6. apríl 1990.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Að lagfærðum athugasemdum við uppdrætti er hægt að skrá íbúðina sem ósamþykkta íbúð.

28. Seljavegur 32 (01.133.111) 100230 Mál nr. BN043099
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja færanlega leikstofu H-7 frá Norðlingaskóla og fjölga um 8 bílastæði á lóð nr. 32 við Seljaveg.
Tölvupóstur Fjármálaráðuneytisins vegna samþykkis dags. 23. maí 2011 fylgir.
Stærð: 133.3 ferm., 468,3 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 37.464
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Skildinganes 44 (01.676.005) 106920 Mál nr. BN043416
Ingvar Vilhjálmsson, Skildinganes 44, 101 Reykjavík
Helga María Garðarsdóttir, Skildinganes 44, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu neðri hæðar, þar sem breytt er inntaksrými, sjá erindi BN035664, einbýlishússins á lóð nr. 44 við Skildinganes.
Jafnframt eru erindi BN041957 og BN042960 dregin til baka.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Sóleyjargata 27 (01.197.416) 102751 Mál nr. BN043343
Pnina Moskovitz, Ísrael, Sótt er um leyfi til að innrétta gististað í flokki III með fimm útleigueiningum og íbúð eiganda í risi, til að síkka glugga, lækka gólf og gera nýjan útgang úr kjallara einbýlishúss á lóð nr. 27 við Sóleyjargötu. Málinu fylgir umsögn skipulagsstjóra vegna fyrirspurnar BN043319 dags. 25. júlí 2011.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. júlí 2011 fylgir erindinu ásamt bréfi umsækjanda dags. 12. ágúst 2011 og bréfi hönnuðar ódagsettu.
Stækkun: 30,9 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 2.472
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Nýjum uppdráttum er vísað til skipulagstjóra vegna fyrirhugaðra grenndarkynninga.

31. Sóleyjarimi 19-23 (02.536.106) 199447 Mál nr. BN043321
Sóleyjarimi 19-23,húsfélag, Sóleyjarimi 19-23, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja svalalokun á allar einkasvalir og undir svalir á jarðhæð fjölbýlishússins á lóð nr. 19 -23 við Sóleyjarima.
Fundargerð húsfélagsins sem haldin var 19. apríl 2010, Samþykki 39 íbúða af 45 fylgja erindinu dags. 31. maí 2011.
Stækkun: 685 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 54.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

32. Starhagi 10 (01.555.108) 106631 Mál nr. BN043275
Bjarni Már Guðlaugsson, Nesbali 86, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að stækka glugga til að koma fyrir hurð og að koma fyrir palli með því að grafa frá húsi í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 10 við Starhaga.
Samþykki meðeigenda dags. 29. júní 2011 fylgir sem og samþykki nágranna vegna sorps á lóðamörkum dags. 28.7. 2011 og staðfesting burðarvirkishönnuðar dags. 14.7. 2011
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Stekkjarbakki 4-6 (04.602.201) 180655 Mál nr. BN043314
Dalsnes ehf, Fossaleyni 21, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka mhl. 02 vínbúð til norðurs og stækka anddyri á austurhlið húsnæðisins á lóð nr. 4-6 við Stekkjarbakka.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. júlí 2011 fylgir erindinu.
Neikvæð fyrirspurn BN037650 dags. 4. mars. 2008 fylgir.
Stækkun: 112 ferm., 459,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 36.752
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

34. Sætún 8 (01.216.303) 102760 Mál nr. BN043338
Stólpar ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sex hæða viðbyggingu og stækka þakhýsi á núverandi húsi við skrifstofuhús (mhl. 02) á lóð nr. 8 við Sætún.
Áður samþykkt niðurrif erindi BN043195:
Mhl. 02 (hluti): 883,3 ferm., 3.652,1 rúmm.
Mhl. 07: 73,4 ferm. 320 rúmm.
Stærð viðbyggingar: 2980 ferm., 9391,4 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 751.312
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Vesturberg 138-142 (04.662.203) 112048 Mál nr. BN043407
Vesturberg 138-142,húsfélag, Vesturbergi 142, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða austurhlið með sléttri álklæðningu eins og suðurgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 138-142 við Vesturberg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

36. Sætún 8 (01.216.303) 102760 Mál nr. BN043435
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóðarinnar Sætún 8, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 15. ágúst 2011. Við breytinguna minnkar lóðin Sætún 8 úr 4214 m2 í 4121 m2 og óútvísað land borgarinnar (landnr. 218177) stækkar um 93 m2. Samanber samþykkt skipulagsráðs 23. mars 2011, samþykkt borgarráðs 7.apríl 2001 og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda dags. dags. 8. júlí 2011.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

37. Bergþórugata 8 (01.192.012) 102518 Mál nr. BN043421
Guðlaugur Vignir Sigursveinsson, Bergþórugata 8, 101 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi svalir úr stáli og timbri við suðurhlið 2. hæðar íbúðarhússins á lóð nr. 8 við Bergþórugötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist umsókn.

38. Bogahlíð 12-18 (01.714.001) 107250 Mál nr. BN043397
Ólafur Ólafsson, Bogahlíð 18, 105 Reykjavík
Spurt er hvort stafsetja megi sorpskýli við bílastæði við Stakkahlíð og við Bogahlíð fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 12-18 við Bogahlíð.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

39. Dofraborgir 3 (02.344.802) 173229 Mál nr. BN043384
Rakel Ólafsdóttir, Dofraborgir 3, 112 Reykjavík
Jón Sigurður Pálsson, Dofraborgir 3, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka íbúðarrými inn í núverandi bílskúr og byggja nýjan bílskúr eins og sýnt er á meðfylgjandi skissu af einbýlishúsi nr. 3 við Dofraborgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. ágúst 2011 fylgir erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

40. Frostafold 133A (02.854.705) 110054 Mál nr. BN043409
Anna Kristbjörg Hallgrímsdóttir, Frostafold 55, 112 Reykjavík
Spurt er um burðarþol og þyngd bíla sem leggja mega á þaki bílageymslu á lóð nr. 133A við Frostafold.
Vísað er til svara á fyrirspurnarblaði.

41. Hverfisgata 18 (01.171.005) 101351 Mál nr. BN043268
Hverfiseignir ehf, Pósthólf 414, 121 Reykjavík
Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, Kríuás 33, 221 Hafnarfjörður
Spurt er hvort lækka megi gólf í kjallara og fjölga þannig gestum í veitingahúsinu á 1. hæð og í kjallara hússins á lóð nr. 18 við Hverfisgötu.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 22. júlí 2011 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 9. ágúst 2011 fylgja erindinu.
Endanleg afstaða til erindisins verður ekki tekin vegna málsins fyrr en bætt hefur verið úr athugasemdum sem fram koma í bókunum eldvarnaeftirlits frá 12. ágúst 2011 og byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2011.

42. Kristnibraut 55-59 (04.114.602) 187821 Mál nr. BN043396
Heiðrún Harðardóttir, Kristnibraut 55, 113 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi bílskúr austan við og áfast við þrjá skúra, sem fyrir eru við fjölbýlishús á lóð nr. 55-59 við Kristnibraut.
Frestað.
Gera betur grein fyrir málinu.

43. Leifsgata 16 (01.195.207) 102599 Mál nr. BN043349
Kristján Ólafur Eðvarðsson, Leifsgata 16, 101 Reykjavík
Þorgerður Þorvaldsdóttir, Leifsgata 16, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að loka svölum rýmis 0101 og útbúa sólstofu með léttum stiga niður í garð og endurskipuleggja kjallarann svo innangengt verði frá íbúð 0101 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Leifsgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. júlí 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. ágúst 2011.
Neikvætt vegna byggingu sólstofu en jákvætt að byggja stiga niður í garð með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Sækja þarf um byggingarleyfi.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

44. Næfurás 10-14 (04.381.402) 111477 Mál nr. BN043395
Freyr Franksson, Næfurás 10, 110 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fáist fyrir reyndarteikningum af kjallara fjölbýlishúss nr. 14 á lóð nr. 10-14 við Næfurás.
Erindi fylgir bréf eiganda 0001 dags. 4. ágúst 2011, vottorð frá FMR dags. 29. júní 2009 og samþykki sumra meðeigenda dags. 15. maí 1997.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

45. Nökkvavogur 60 (01.445.203) 105569 Mál nr. BN043399
Jón Kristinn Dagsson, Öldugata 15, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort risíbúð sé samþykkt í húsi á lóð nr. 60 við Nökkvavog.
Nei.
Með vísan til umsagnar á fyrirspurnarblaði.

46. Óðinsgata 8 (01.180.306) 101717 Mál nr. BN043406
Dóróthea Magnúsdóttir, Óðinsgata 8, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu við íbúð á neðri hæð undir svalir á vesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 8 við Óðinsgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

47. Snorrabraut 56 (01.193.204) 102534 Mál nr. BN043398
Sigurður Karl Guðgeirsson, Strandvegur 15, 210 Garðabær
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta veitingastað í flokki II í verslunarhúsi á lóð nr. 56 við Snorrabraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar frá 12. ágúst 2011 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

48. Veltusund 3B (01.140.420) 100860 Mál nr. BN043394
Hlal Jarah, Njálsgata 30b, 101 Reykjavík
Spurt er hvort reka megi skyndibitastað í rými 0101 í húsi á lóð nr. 3B við Veltusund.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 13.10.

Björn Stefán Hallsson

Magnús Sædal Svavarsson Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir Harri Ormarsson
Hjálmar A. Jónsson Eva Geirsdóttir