Umhverfis- og skipulagsráð
Skipulagsráð
Ár 2011, miðvikudaginn 25. maí kl. 09:10, var haldinn 242. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og áheyrnarfulltrúinn Sóley Tómasdóttir.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason, og Helena Stefánsdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum:, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Margrét Leifsdóttir, Haraldur Sigurðsson og Margrét Þormar.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
(A) Skipulagsmál
1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsstjóra Reykjavíkur dags. 13. og 20. maí 2011.
2. Hólaberg 84, breyting á deiliskipulagi (04.674.4) Mál nr. SN110226
Hornsteinar arkitektar ehf, Ingólfsstræti 5, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi Ögmundar Skarphéðinssonar dags. 12. maí 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gerðuberg/Hólaberg vegna lóðarinnar nr. 84 við Hólaberg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit bílageymslu ásamt breytingu á ákvæðum um fjölda bílastæða í bílageymslu, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 9. maí 2011.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.
Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.
3. Suðurlandsbraut Steinahlíð, (01.470) Mál nr. SN110227
breytt deiliskipulag Vogahverfis vegna leikskólalóðar
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 13. maí 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar Steinahlíð við Suðurlandsbraut. Breytingin felst í gerð reits fyrir færanlega leikstofu og fyrirkomulagi bílastæða á lóð, samkvæmt uppdrætti Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 10. maí 2011. Lagt fram ásamt lagfærðum deiliskipulags- og skýringaruppdráttum dags. 19. maí 2011.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Jafnframt var samþykkt að upplýsa hagsmunaaðila í nágrenninu sérstaklega um tillöguna með bréfi.
Vísað til borgarráðs.
4. Kjalarnes, Brautarholt 1, lýsing, deiliskipulag Mál nr. SN100307
Bjarni Pálsson, Brautarholt 1, 116 Reykjavík
Lögð fram lýsing Einars Ingimarssonar fh. lóðarhafa dags 9. febrúar 2011 vegna deiliskipulags golfvallar við Brautarholt á Kjalarnesi. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Lagðar fram umsagnir Fornleifaverndar ríkisins, dags. 12. apríl 2011 og Skipulagsstofnunar dags. 8. apríl 2011.
Einnig er lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kjalarnes, Brautarholt 1, samkvæmt uppdrætti Einars Ingimarssonar dags. 12. maí 2011.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.
5. Kjalarnes, Saltvík, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN110229
Stjörnugrís hf, Vallá, 116 Reykjavík
Atli Jóhann Guðbjörnsson, Flétturimi 5, 112 Reykjavík
Lagt fram erindi Atla Jóhanns Guðbjörnssonar f.h. Stjörnugrís hf. dags. 11. maí 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að byggja við núverandi áhaldahús, samkvæmt uppdrætti Teiknistofunnar Stórhöfða 17 dags. 11. maí 2011.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.
Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.
Jórunn Frímannsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:25
6. Háskóli Íslands, Vísindagarðar, (01.63) Mál nr. SN100444 Aðalskipulag Reykjavíkur
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2002-2024 dags. 9. febrúar 2011. Í breytingunni felst heimild um byggingu nemendaíbúða á svæði Vísindagarða við Háskóla Íslands. Einnig lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags. 11. mars 2011 þar sem ekki er gerð athugasemd við að erindi verði auglýst. Jafnframt lagðar fram umsagnir Kópavogsbæjar dags. 16. febrúar, Seltjarnarnesbæjar dags. 24. febrúar, Mosfellsbæjar dags. 10. mars, umsögn Garðarbæjar dags. 22. mars 2011. Tillagan var auglýst frá 16. mars 2011 til og með 2. maí 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Þorkell Jóhannesson dags. 29. mars 2011, Snorri Bergmann og Védís Húnbogadóttir dags. 10. maí, Helgi Björnsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir dags. 10. maí, Jón Sch. Thorsteinsson fh. íbúa við Aragötu og Oddagötu dags. 10. maí, Jón Sch. Thorsteinsson og Ragnheiður Harðardóttir dags. 10. maí 2011 , Valgerður Hallgrímsdóttir og Jens A. Guðmundsson dags. 10. maí 2011.
Athugasemdir kynntar.
Frestað.
7. Háskóli Íslands, Vísindagarðar, (01.63) Mál nr. SN090460 breyting á deiliskipulagi HÍ
ASK Arkitektar ehf, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Ask Arkitekta dags. 11. desember 2009 f.h. Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. vegna breytinga á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna Vísindagarða. Í breytingunni felst m.a. að lóðinni er skipt upp í sjö lóðir fyrir Vísindagarða, Stúdentagarða og spennistöð Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt uppdrætti Ask Arkitekta dags. 15. janúar 2011 ásamt greinargerð og skilmálum dags. 15. janúar 2011
Tillagan var auglýst frá 16. mars til og með 10. maí 2011. Lagður fram tölvupóstur Jóns Sch. Thorsteinssonar dags. 20. apríl 2011 þar sem óskað er eftir að frestur til athugasemda verði framlengdur. Frestur var framlengdur til og með 10. maí 2011.
Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: bréf frá stúdentaráði Háskóla Íslands dags. 14. apríl 2011 þar sem lýst er yfir mikilli ánægju með deiliskipulagið, Þorkell Jóhannesson dags. 29. mars, Vigdís Finnbogadóttir ódags., Orkuveita Reykjavíkur, dags. 14. apríl 2011, Max Dager, f.h. Norræna hússins, dags. 2. maí, íbúar að Aragötu 7, dags. 8. maí, Pétur H. Ármannsson, dags. 9. maí, Helgi Björnsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, dags. 10. maí, Helga Þorkelsdóttir og Páll Þorgeirsson, dags. 10. maí, Valgerður Hallgrímsdóttir og Jens A. Guðmundsson, dags. 10. maí, Baldur Símonarson dags. 10. maí, 2011, Snorri Bergmann og Védís Húnbogadóttirdags. 10. maí, Jón Sch. Thorsteinsson og Ragnheiður Harðardóttir dags. 10. maí og Jón Sch. Thorsteinsson f.h íbúa við Aragötu og Oddagötu dags. 10. maí ásamt fylgiskjölum: álitsgerð Ingibjargar Þórðardóttur fasteignasala, dags. 9. maí 2011 og álitsgerð Glámu-Kím, dags. 20. júní 2010. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 10. maí 2011.
Athugasemdir kynntar.
Frestað.
8. Reitur 1.172.1, Laugavegur - Vatnsstígur, (01.172.1) Mál nr. SN100378 breyting á deiliskipulagi vegna Laugavegur 33, 33a og 35 ásamt Vatnsstíg 4
Arkibúllan ehf, Tómasarhaga 31, 107 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga ArkiBúllunar dags. 18. október 2010 að breytingu á deiliskipulagi Laugavegar/Vatnsstígs. Í breytingunni felst möguleg uppbygging á horni Laugavegs og Vatnsstígs samkvæmt meðfylgjandi deiliskipulags- og skýringaruppdrætti dags. 18. október 2010. Tillagan var auglýst frá 24. janúar 2011 til og með 8. apríl 2011. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Arkitektar Hjördís og Dennis dags. 2. mars 2011, Hermann Hermannson og Berglind Hallgrímsdóttir f.h. NBI banka dags. 3. mars 2011 og íbúasamtök miðborgar dags. 6. mars 2011, Torfusamtökin dags. 6. mars 2011, Lögmenn ehf f.h. Eðal fasteignafélags dags. 28. mars og Steinþór Kári Kárason f.h. eigenda Laugavegs 37, 37b, íbúða 0302 og 0401 að Hverfisgötu 54 dags. 7. apríl 2011 og Guðjón Þór Pétursson og Pétur Jónasson Hverfisgötu 52 dags. 7. apríl 2011.
Athugasemdir kynntar
(B) Byggingarmál
9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN043013
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 635 frá 17. maí og 636 frá 24. maí 2011.
(D) Ýmis mál
10. Austurbakki 2, Tónlistarhús, Mál nr. SN110133 aðstaða rekstraraðila á lóð Hörpunnar
Totus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 25. mars 2011 var lagt fram bréf borgarstjóra dags. 17. mars 2011 ásamt bréfi framkvæmdastjóra Totus ehf. dags. 9. mars 2011 varðandi aðstöðu rekstraraðila, starfsmanna, ráðstefnuhaldara o.fl. á lóð Hörpunnar. Erindinu var vísað til meðferðar hjá skipulagstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 8. apríl 2011.
Frestað.
11. Elliðavatn, afmörkun lóðar (08.1) Mál nr. SN110102
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 28. febrúar 2011 ásamt bréfi Orkuveitu Reykjavíkur dags. 18. febrúar 2011 varðandi skráningu lóðar fyrir véla- og verkfærageymslu Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn ásamt lóðarblaði Orkuveitu Reykjavíkur dags. 28. apríl 2011.
Tillaga að lóðarafmörkun samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð
(A) Skipulagsmál
12. Nýr Landspítali við Hringbraut, (01.19) Mál nr. SN110037
lýsing, nýtt deiliskipulag
SPITAL ehf, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Lögð fram umsókn Spital ehf. dags. 13 september 2010, lýsing Spital vegna Landspítala við Hringbraut dags. 25. janúar 2011, drög að endurskoðaðu varðveislumati dags. 2. febrúar 2011 ásamt umsögnum hagsmunaaðila og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 2. mars 2011 ásamt fornleifskráningu Minjasafns Reykjavíkur móttekin í mars 2011.
Einnig er lögð fram tillaga að deiliskipulagi Landsspítala við Hringbraut dags. 10. apríl 2011 og drög að greinargerð og skilmálum dags. 20. maí 2011 ásamt minnisblaði dags. 12. apríl 2011. Einnig er lagt fram bréf Spital til skipulagsráðs dags. 28. apríl 2011. Einnig er lögð fram bókun Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 10. maí 2011 , þrívíddarmyndir dags. 19. maí 2011 og uppfærðum uppdráttum dags. 23. maí 2011.
Kynnt.
(D) Ýmis mál
13. Göngu- og hjólastígar, kynning Mál nr. SN110180
Samgöngustjóri kynnir hjólaleiðir á höfuðborgarsvæðinu 1. áfanga. dags. í mars 2011.
Ólafur Bjarnason samgöngustjóri kynnti.
14. Kópavogur, endurskoðun aðalskipulags Kópavogs 2000-2012 Mál nr. SN110219
Kópavogsbær, Fannborg 2, 200 Kópavogur
Lagt fram bréf skipulagsstjóra Kópavogsbæjar dags. 2. maí 2011 varðandi endurskoðun aðalskipulags Kópavogs 2000-2012. Einnig er lögð fram verklýsing dags. 15. apríl 2011 og umhverfismat dags. 15. apríl 2011.
Vísað til meðferðar hjá embætti skipulagsstjóra.
15. Kúrland 27, kæra, umsögn (01.861.4) Mál nr. SN110232
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 11. maí 2011 ásamt kæru, dags. 3. maí 2011 þar sem kærð er samþykkt afgreiðslufundar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 29. mars 2011 á byggingarleyfisumsókn fyrir uppsetningu setlaugar í bakgarði lóðarinnar við Kúrland 27. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 18. maí 2011.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.
16. Ægisgata 4, kæra, umsögn (01.131.1) Mál nr. SN110221
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 27. apríl 2011, vegna framkvæmda á lóð nr. 4 við Ægisgötu. Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 9. maí 2011.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.
17. Laugavegur 15, kæra, umsögn (01.171.1) Mál nr. SN110181
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 13. apríl 2011 ásamt kæru dags. 30. mars 2011 þar sem kærð er synjun byggingarfulltrúa á umsókn um leyfi fyrir klæðningu húss að Laugavegi 15 í Reykjavík. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 5. maí 2011.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.
18. Boðagrandi 9, breyting á deiliskipulagi (01.521.4) Mál nr. SN110217
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 19. maí 2011 um samþykkt borgarráðs s.d. á auglýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Boðagranda 9, Grandaborg.
19. Kvistaland 26, breyting á deiliskipulagi (01.862.3) Mál nr. SN110215
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 19. maí 2011 um samþykkt borgarráðs s.d. á auglýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Kvistaland 26, Kvistaborg.
20. Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli, (01.363.0) Mál nr. SN110213 breyting á deiliskipulagi
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 19. maí 2011 um samþykkt borgarráðs s.d. á auglýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Kirkjuteig 24, leikskólann Hof
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:22.
Páll Hjalti Hjaltason
Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Jórunn Frímannsdóttir
Sóley Tómasdóttir
Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005
Árið 2011, þriðjudaginn 24. maí kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 636. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Harri Ormarsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Eva Geirsdóttir og Sigrún G Baldvinsdóttir
Fundarritari var Harri Ormarsson
Þetta gerðist:
Nýjar/br. fasteignir
1. Aðalstræti 12 (01.136.505) 100595 Mál nr. BN043043
Fiskmarkaðurinn ehf, Aðalstræti 12, 101 Reykjavík
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta loftræsilögnum í kjallara og á 1. hæð og endurnýja loftstokka utanhúss og breyta ræstigeymslu í kjallara í veitingahúsi á lóð nr. 12 við Aðalstræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
2. Akrasel 18 (04.943.301) 113024 Mál nr. BN043044
Kristín Elínborg Sigurðardóttir, Akrasel 18, 109 Reykjavík
Eiríkur Kristján Gissurarson, Valadalur, 560 Varmahlíð
Sótt er um leyfi til að klæða að utan með tvenns konar álklæðningu og einangra með 50 mm steinull sem fest er á ál-undirkerfi einbýlishúsið á lóð nr. 18 við Akrasel.
Umsögn burðarvirkshönnuðar fylgir dags. 17. maí 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
3. Bjallavað 7-11 (04.732.801) 203018 Mál nr. BN043041
Búseti svf,húsnæðissamvinnufél, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Húsafl sf, Nethyl 2 (hús 3), 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sbr. BN032693 dags. 19. okt. 2005 þar sem lagfært er útlit, eldvarnamerkingar og sorpskýli í fjölbýlishúsinu nr. 11 á lóð nr. 7-11.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
4. Bjallavað 7-11 (04.732.801) 203018 Mál nr. BN043039
Búseti svf,húsnæðissamvinnufél, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Húsafl sf, Nethyl 2 (hús 3), 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sbr. BN032621 dags. 11. okt. 2005 þar sem lagfært er útlit, eldvarnamerkingar og sorpskýli í fjölbýlishúsinu nr. 9 á lóð nr. 7-11.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
5. Bjallavað 7-11 (04.732.801) 203018 Mál nr. BN043038
Búseti svf,húsnæðissamvinnufél, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Húsafl sf, Nethyl 2 (hús 3), 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sbr. BN031873 dags. 11. okt. 2005 þar sem lagfært er útlit, eldvarnamerkingar og sorpskýli í fjölbýlishúsinu nr. 7 á lóð nr. 7-11.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
6. Bragagata 33A (01.186.215) 102244 Mál nr. BN042913
Nordic Workers á Íslandi ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum og búa til sér íbúð í þakhæð fjölbýlishússins á lóð nr 33A við Bragagötu.
Jákvæð fyrirspurn BN042802 dags. 5. apríl 2011 fylgir erindi, einnig samþykki meðeiganda dags. 14. apríl.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.
7. Bugðulækur 17 (01.343.318) 104017 Mál nr. BN042993
Sævar Smári Þórðarson, Bugðulækur 17, 105 Reykjavík
Ragnheiður Hauksdóttir, Bugðulækur 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja óleyfishandrið, sbr. erindi BN041643 sem synjað var, á þaki bílskúrs á lóð nr. 17 við Bugðulæk.
Meðfylgjandi er bréf eigenda ódagsett og samþykki meðeigenda dags. 8. maí 2011
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. maí 2011 fylgir erindinu ásamt fyrri umsögn skipulagsstjóra dags. 25. febrúar 2011
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra er mögulegt að samþykkja svalir á bílskúrsþaki í samræmi við meðsenda skissu. Sjá að öðru leyti umsögn skipulagsstjóra.
8. Dugguvogur 2 (01.452.001) 105605 Mál nr. BN043024
Reginn ÞR1 ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa og fjarlægja tveggja hæða iðnaðarhús, sem byggt var 1959, landnr. 105605, mhl. 1 á lóð nr. 2 við Dugguvog.
Stærðir niðurrifs 180 ferm., 463 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
9. Fákafen 9 (01.463.401) 105678 Mál nr. BN043014
Geir Thorsteinsson, Holtasel 42, 109 Reykjavík
Oddný Guðnadóttir, Hrafnshöfði 27, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki II fyrir 100 gesti í rými 0102 í húsi á lóð nr. 9 við Fákafen.
Erindi fylgir umboð eiganda dags. 11. maí 2011.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.
10. Fossagata 3 (01.636.602) 106720 Mál nr. BN042975
Rannveig Björk Þorkelsdóttir, Fossagata 3, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem gert er grein fyrir að húsið er 10 cm mjórra en sýnt er á teikningum á lóð nr. 3 við Fossagötu sbr. BN038701 dags. 11. maí 2010 .
Minnkun: 2,8 ferm., 6,8 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Orkuveita Reykjavíkur getur fallist á að eitt horn nýbyggingar falli inn í kvöð um ræsi, sem er á lóðinni, enda tryggi húsbyggjandi að undirstöður hússins raski ekki legu ræsisins. Húseigandi skal gera Orkuveitu Reykjavíkur (fráveitu) grein fyrir hvernig hann hyggst standa að framkvæmdum.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
11. Framnesvegur 14 (01.133.229) 100258 Mál nr. BN042327
Þórir Björnsson, Lindargata 64, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti á suður- og norðurhlið, koma fyrir þakgluggum og fá afmarkaða áður gerða íbúð í risi fjölbýlishússins á lóð nr. 14 við Framnesveg.
Erindi fylgir jákv. fsp. dags. 9. febrúar 2010, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 25. febrúar 1997 og yfirlýsing fyrri eiganda ódagsett.
Einnig fylgir þinglýst afsal dags. 17. nóvember 1988 þar sem íbúð á efri hæð er seld frá rishæð.
Stækkun: xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
12. Grjótháls 5 (04.302.301) 111015 Mál nr. BN043049
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á 1. hæð, fækka veggjum, færa snyrtingar, ný loftræsirými og inntök við vestanverða skábraut og tvær nýjar aksturshurðir á suðurhlið framhúss á lóð nr. 5 við Grjótháls.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
13. Hamrahlíð 17 (01.714.101) 107254 Mál nr. BN043032
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyft byggja þrjár hæðir ofaná vörumóttöku við norðurhlið saman við aðalhús, stækka og breyta notkun sorpskýlis svo hægt sé að nota sem hjólaskýli og byggja skyggni yfir inngang á 2. hæð við hús Blindrafélagsins á lóð nr. 17 við Hamrahlíð.
Jákvæð fyrirspurn BN42239 dags. 2. nóv. 2010 fylgir.
Stækkun: XX ferm,. XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra, þar sem svalir og hjólageymsla fara út fyrir byggingarreit.
14. Haukdælabraut 100 (05.114.104) 214819 Mál nr. BN043046
HB-100 ehf, Dofraborgum 9, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka þakkant, fella niður útitröppur og breyta innra fyrirkomulagi í einbýlishúsi, sjá erindi BN041454, á lóð nr. 100 við Haukdælabraut.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
15. Haukdælabraut 104 (05.113.502) 214821 Mál nr. BN042952
Rúnar Grétarsson, Gerðhamrar 8, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til minni háttar breytinga á innra fyrirkomulagi og gluggum einbýlishússins á lóð nr. 104 við Haukdælabraut sbr. BN041955.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. maí 2011 fylgir erindinu.Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
16. Haukdælabraut 108 (05.113.504) 214823 Mál nr. BN043045
Rafn Magnús Hjaltason, Haukdælabraut 6, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einnar hæðar einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 108 við Haukdælabraut.
Stærð: Íbúð 182,6 ferm., bílgeymsla 42,9 ferm.
B- rými: 1,8 ferm.
Samtals: 225,5 ferm., 800,7 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 64.056
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
17. Hjarðarhagi 2-6 (01.552.401) 106511 Mál nr. BN043033
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta við björgunaropum og útljósi á 1. og 2. hæð sbr. BN042231 dags. 26. okt. 2010 í húsnæðinu nr. 4 á lóð nr. 2-6 við Hjarðarhaga.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
18. Hrefnugata 4 (01.247.302) 103363 Mál nr. BN042948
Sigurður Rúnar Steingrímsson, Hrefnugata 4, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á rishæð og gerð er grein fyrir stækkun á kvisti á suðurhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 4 við Hrefnugötu.
Erindi fylgir fsp. dags. 10. febrúar 2009. Jafnframt er erindi BN039861 dregið til baka. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda.
Áður gerð stækkun: 1 ferm., 3 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 240
Frestað.
Grenndarkynningu ólokið.
19. Höfðabakki 9 (04.075.001) 110681 Mál nr. BN043053
Reitir II ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum sbr. BN041755 dags. 27. júlí 2010 í mhl. 04 þar sem brunatákn hafa verið yfirfarin, björgunaropum fækkað og bílastæðum fækkað til að koma fyrir grænum svæðum í húsinu á lóð nr. 9 við Höfðabakka.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
20. Í landi Fitjakots 125677 (00.026.002) 125677 Mál nr. BN043076
Jón Jóhann Jóhannsson, Búðavað 10, 110 Reykjavík
Ingibjörg R Þengilsdóttir, Búðavað 10, 110 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir steinsteyptum hluta hússins á lóð Perluhvamms í landi Fitjakots.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
21. Jakasel 33 (04.994.206) 113299 Mál nr. BN042399
Guðlaugur Kristján Sigurðsson, Jakasel 33, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til minni háttar breytinga á nýsamþykktu erindi, sjá BN041456, m.a. á að loka útgöngudyrum úr kjallara, loka dyrum á útigeymslu undir sólpalli og opna milli kjallara og útigeymslu á einbýlishúsinu á lóð nr. 33 við Jakasel.
Bréf RVK Ráðgjafar f.h. umsækjenda dags. 16. desember 2010 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Þær breytingar sem sótt er um lúta að lokun útgönguleiða úr kjallara hússins í því skyni að lækka fjárhæð gatnagerðisgjalds og þeim húshluta. Í 8. gr. samþykktar um gatnagerðargjald í Reykjavík nr. 725/2007 eru taldar undantekningar frá greiðslu gatnagerðagjalds. Þar segir í lið a) Af kjallararýmum íbúðarhúss skal greiða 25#PR af venjulegu gatnagerðagjaldi en sé rýmið gluggalaust og aðeins gengt í það innan frá. Sú breyting sem sótt er um breytir því ekki fjárhæð gatnagerðagjalds. Umsækjanda er hér með bent á að hægt er að semja um greiðslu gatnagerðagjalds og er það á verksviði skrifstofustjóra Framkvæmdasviðs. Jafnframt skal ítrekað að embætti byggingarfulltrúa gerir kröfur til þess að málinu verði lokið þannig að ekki þurfi að koma til beitingar þvingunarúrræða vegna þess.
22. Kambasel 69 (04.975.104) 113227 Mál nr. BN042979
Dagný Ágústsdóttir, Kambasel 69, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina íbúð 0302 við rýmið 0402, koma fyrir svölum á austurgafl og 6 nýja þakglugga á rýmið 0402 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 69 við Kambasel.
Jákvæð fyrirspurn BN042498 dags. 1. feb. 2011 og samþykki meðlóðarhafa ódags. fylgir.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags . 17. maí 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
23. Kirkjuteigur 5 (01.360.507) 104541 Mál nr. BN043022
Ásta Dan Ingibergsdóttir, Álfheimar 56, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina tvær íbúðir á 2. hæð í eina og fella niður fastanúmer 226-4862 í húsi á lóð nr. 5 við Kirkjuteig.
Samþykki meðeigenda dags. 17.5. 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Gera nánari grein fyrir sameiningu þar sem grunnmynd sýnir enn tvær íbúðir.
24. Klettagarðar 4 (01.323.301) 215730 Mál nr. BN043077
K 4 ehf, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsetningu og samsteypu á sökkulveggjum og frágangi grunnlagna í húsinu á lóðinni nr. 4 við Klettagarða.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
25. Kristnibraut 26 (04.133.201) 190365 Mál nr. BN043052
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja færanlega kennslustofu nr. K-43 frá Húsaskóla á lóð leikskólans Geislabaugs nr. 26 við Kristnibraut.
Stærð: 62,7 ferm., 210,9 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 16.872
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.
26. Laugavegur 166 (01.242.102) 103032 Mál nr. BN042957
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 4. hæð, m. a. innrétta fyrirlestrarsal og nýtt mötuneyti í skrifstofuhúsi á lóð nr. 166 við Laugaveg.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
27. Laugavegur 28A (01.172.208) 101463 Mál nr. BN043037
Vernharður Skarphéðinsson, Smyrlahraun 1, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og innrétta gistiheimili í flokki II í einbýlishúsi á lóð nr. 28A við Laugaveg.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
28. Laugavegur 74 (01.174.207) 101610 Mál nr. BN042903
Laug ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til undirbúnings framkvæmda á lóð nr. 74 við Laugaveg, sbr erindi BN042483 og sbr.bréf eiganda dags. 11. apríl 2011.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
29. Lækjargata 8 (01.140.510) 100870 Mál nr. BN042955
Lækur ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta kvistum, útveggjaklæðingu og gluggum til upprunalegs horfs og sameina í einn matshluta veitingahúsin á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 28. apríl 2011 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 3. maí 2011.
Stækkun: 9,5 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 760
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til umsagnar Minjasafns Reykjavíkur skal allur frágangur vera í samræmi við aldur og gerð hússins.
30. Njörvasund 27 (01.415.102) 105153 Mál nr. BN043023
Sigurður Stefánsson, Njörvasund 27, 104 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN034911 sem felst í að byggja svalir við vesturhlið íbúðar á 1. hæð hússins á lóð nr. 27 við Njörvasund.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
31. Pósthússtræti 13 (01.140.512) 100872 Mál nr. BN043015
Austurvöllur fasteignir ehf, Ármúla 21, 108 Reykjavík
Matti ehf, Pósthólf 1072, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir útiveitingar í fl. III fyrir 100 gesti á gangstétt á horni Kirkjustrætis og Pósthússtrætis fyrir framan hús á lóð nr. 13 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra, þar sem farið er fram á veitingasölu í flokki III. Málinu jafnframt vísað til umsagnar skrifstofu Gatna- og eignaumsýslu.
32. Rauðavað 21-25 (04.773.203) 198532 Mál nr. BN043036
Arnór Árnason, Rauðavað 21, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svalalokun með hertu gleri í eignarhluta 0301 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 21 við Rauðavað.
Samþykki sumra meðeigenda fygir dags. 1. maí 2011.
Stærðir: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 8.000 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
33. Ránargata 15 (01.136.201) 100537 Mál nr. BN043030
Dóróthea Lárusdóttir, Ránargata 15, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja gluggakvist á norðvesturhlið, koma fyrir þakglugga á mæni, endurnýja eldri þakglugga og byggja svalir á suðurgafl fjölbýlishússins á lóð nr. 15 við Ránargötu.
Stækkun: xx rúmm.
Gjald kr. 8.000 + ??
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
34. Saltvík 125744 (00.064.000) 125744 Mál nr. BN043069
Stjörnuegg hf, Vallá, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa og fjarlægja eftirtalin mannvirki, sem sum eru þegar horfin:
Refahús, matsnr. 225-8021, mhl. 05, byggt 1935, 42,9 ferm., 212 rúmm., geymslu, matsnr. 208-5426, mhl. 07, byggð 1935, 42,7 ferm., 116 rúmm., hlöðu II, matsnr. 208-5427, mhl. 08, byggð 1935, 187,4 ferm., 944 rúmm., votheysturn, matsnr. 208-5428, mhl. 09, byggður 1947, 22 ferm., 333 rúmm., fjós, matsnr. 208-5429, mhl. 10, byggt 1935, 174,8 ferm., 602 rúmm., gripahús, matsnr. 225-8026, mhl. 12, byggt 1935, 94,9 ferm., 351 rúmm., haughús, matsnr. 208-5431, mhl. 13, byggt 1935, 63,1 ferm., 150 rúmm., #GLvirki#GL, matsnr. 225-8028, mhl. 18, byggt 2001, 30 ferm., 240 rúmm.
í landi Saltvíkur á Kjalarnesi.
Samtals stærðir niðurrif: 658 ferm., 2.948 rúmm.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
35. Skarfagarðar 4 (01.321.501) 209678 Mál nr. BN042937
Hampiðjan hf, Skarfagörðum 4, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu þar sem lagfærðar eru athugasemdir um eldvarnir sem fram komu við lokaúttekt á atvinnuhúsi á lóð nr. 4 við Skarfagarða.
Erindi fylgir brunahönnun frá VSI uppfærð 12. apríl 2011.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
36. Skeifan 11 (01.462.101) 195597 Mál nr. BN042895
LX fasteignir ehf, Skipholti 37, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja léttan kant á tvær hliðar til að koma fyrir skiltum á og til að einfalda útlit hússins á nr. 11D á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Samþykki sumra fylgir á teikningu ódags. Umsögn frá arkitekt áformadeildar dags. 19. maí 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
37. Skipholt 37 (01.251.204) 103442 Mál nr. BN042976
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna úrbóta á brunavörunum í húsinu á lóð nr. 37 við Skipholt.
Bréf frá hönnuði dags. 11. maí 2011 og tölvupóstur frá Ásu Þorkelsdóttir dags. 12.maí 2011 fylgir.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
38. Skútuvogur 4 (01.420.201) 105166 Mál nr. BN041469
Nýborg ehf, Súlunesi 19, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að koma fyrir leikjasal fyrir börn, ásamt tilheyrandi veitingaaðstöðu í flokki l á 1. og 2. hæð í eystri hluta mhl 01 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 4 við Skútuvog.
Vottun leiktækja dags. 7. mars 2007 fylgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.
39. Sóleyjarimi 6 (02.534.501) 192054 Mál nr. BN042942
Isavia ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa millibyggingu og reisa nýja úr gleri sem hýsa á matsal við fjarskiptastöðina á lóð nr. 6 við Sóleyjarima.
Niðurrif: 40,2 ferm., 104 rúmm.
Nýbygging: 95,9 ferm., 351,3 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 28.104
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.
40. Sólheimar 19 (01.433.201) 105276 Mál nr. BN043051
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta staðsetningu á annarri færanlegar kennslustofu nr. K-75B og setja tengigang á milli hennar og stofu K-74B á lóð leikskólans Sundaborgar nr. 6 við Sólheima.
Sbr. erindið BN042567 dags. 19. apríl 2011.
Stærð tengigangs: 23 ferm., 118,2rúmm.
Gjald kr.8.000 + 9.456
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
41. Stjörnugróf 9 (01.89-.-99) 108934 Mál nr. BN042981
Ás styrktarfélag, Skipholti 50c, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til steypa klórkassa fyrir sundlaug 110 X 190 og 100 cm á hæð við kjallaratröppur á suðurhlið á húsinu á lóð nr. 9 við Stjörnugróf sbr. erindi BN040065.
Stærð: 2,1 fem. 100 cm hæð. 2,1 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 168
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
42. Suðurhlíð 9 (01.780.401) 107506 Mál nr. BN043007
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á afmörkuðum svæðum og að endurbæta flóttaleiðir í Öskjuhlíðaskóla á lóð nr. 9 við Suðurhlíð.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 9. maí 2011 og gátlisti fyrir aðgengi/ frágengi dags. 9. maí 2011 og skýrsla brunahönnuðar dags. 10. maí 2011 fylgja.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.
43. Sundagarðar 2B (01.335.303) 213922 Mál nr. BN042674
KFC ehf, Garðahrauni 2, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt anddyri einangrað að utan og klætt með álplötum við veitingaskála á lóð nr. 2B við Sundagarða.
Meðfylgjandi er samþykki meðeiganda á lóð dags. 22. febrúar 2011 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 1. apríl 2011 og umsögn skipulagsstjóra dags. 1. apríl 2011.
Stækkun: 31,2 ferm., 124 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 9.920
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing vegna breytinga á eignarhlutfalli í húsinu liggi fyrir eigi síðar en við fokheldi.
44. Súðarvogur 6 (01.452.101) 105606 Mál nr. BN042928
Reginn ÞR1 ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu sem sýnir breytt innra fyrirkomulag og ytra útlit, sem og endurbættar brunavarnir í atvinnuhúsi (mhl.01) á lóð nr. 6 við Súðarvog.
Jafnframt er erindi BN041558 dregið til baka.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
45. Tindar 1 (00.052.010) 125726 Mál nr. BN043027
Atli Guðlaugsson, Tindar, 116 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem fjarlægð er taðþró og hurð sett á milli rýma í véla/reiðskemmu/hesthúsi á lóð Tinda 1 á Kjalarnesi.
Gjald kr. 8.000
Synjað.
Taðþró skal vera við hesthús samanber reglugerð nr. 847/1999.
46. Tjarnargata 46 (01.143.006) 100946 Mál nr. BN042768
Philippe Louis Le Bozec, Tjarnargata 46, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi einbýlishússins á lóð nr. 46 við Tjarnargötu.
Erindi fylgir fsp. BN042680 dags. 8. mars 2011.
Gjald kr. 8.000 + 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
47. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN042915
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Chardonnay ehf, Ármúla 21, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, minnka gestafjölda úr 430 í 310 og til að gera inndregna verönd, sem lokað yrði með hurðum og járnhliði þegar staðurinn er lokaður, fyrir framan inngang veitingahúss á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. apríl 2011 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
48. Úlfarsbraut 118-120 (02.698.801) 205754 Mál nr. BN042766
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum, sbr. erindi BN040054, hurðum og hurðamerkingum er breytt með tilliti til eldvarna í leikskóla á lóð nr. 118-120 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 8.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
49. Vitastígur 18 (01.190.214) 102417 Mál nr. BN043016
Kristján Ingi Sveinsson, Vitastígur 18, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og byggja viðbyggingu úr timbri og breyta einbýlishúsi í tvíbýlishús í timburhúsinu frá 1905 á lóð nr. 18 við Vitastíg.
Meðfylgjandi er umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 24. júní 2009 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 27. júlí 2009
Stærðir fyrir stækkun xxx ferm., xxx rúmm
Stækkun xxx ferm., xxx rúmm.
Stærðir eftir stækkun: Kjallari 42,3 ferm., 1. hæð 65,2 ferm., 2. hæð 52,1 ferm., þakhæð 49,8 ferm.
Samtals 193,4 ferm., 578,2 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
50. Víðihlíð 16-22 (01.782.607) 107542 Mál nr. BN043018
Þorgeir Örlygsson, Víðihlíð 16, 105 Reykjavík
Sótt eru leyfi til að breyta seinni tíma þaksvölum og byggja þar aftur þakkvist eins og var upphaflega á einingu 16 í raðhúsi nr. 16, 18, 20 og 22 við Víðihlíð.
Stærðarbreyting xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.000 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
51. Vættaborgir 27 (02.343.509) 176316 Mál nr. BN042962
Egill Hjartar, Vættaborgir 27, 112 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að setja glugga og hurð á vesturhlið kjallara og innrétta þar fyrir innan í óuppfylltu rými kalda geymslu í einbýlishúsi á lóð nr. 27 við Vættaborgir.
Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 10. maí 2011.
Stærðir fyrir breytingu: 248,7 ferm., 854,2 rúmm.
Stækkun: 7,7 ferm., 20,8 rúmm.
Samtals eftir stækkun: 256,4 ferm., 875,2 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 1.664
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
52. Þingholtsstræti 21 (01.180.102) 101678 Mál nr. BN043050
ST Holding ehf, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til rífa einnar hæðar atvinnuhús og byggja í staðinn steinsteypt einbýlishús í gömlum stíl, tvær hæðir og ris sem verður matshluti 02 á lóð nr. 21 við Þingholtsstræti.
Jafnframt er erindi BN036928 dregið til baka.
Niðurrif: Fastanr. 200-5650 mhl.02 merkt iðnaðarh 0101 82 ferm.
Nýbygging : 1. hæð 112,2 ferm., 2. hæð 75,8 ferm., 3. hæð 66,6 ferm.
Samtals 254,6 ferm., 767,5 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 61.400
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Ýmis mál
53. Meistari - málarameistari Mál nr. BN043071
Ragnar Hafliðason, Hringbraut 2b, 220 Hafnarfjörður
Ofanritaður sækir um staðbundin réttindi sem málarameistari í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til bréfs Umhverfisráðuneytisins dags. 25. nóvember 2005.
54. Miklabraut 101 (01.285.001) 103737 Mál nr. BN043061
Skeljungur hf, Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík
Sótt er um breytingu á mæliblaði í samræmi við nýtt mæliblað. Miklabraut 101 (staðgr. 1.285.001, landnr. 103737): Lóðin er 1932 m2. Bætt við lóðina úr óútvísuðu landi (landnr. 218177) 403 m2. Tekið af lóðinni og bætt við óútvísað land (landnr. 218177) -1 m2. Lóðin verður 2334 m2. Óútvísað land (landnr. 218177) minnkar því um 402 m2. Sbr. minnisblað dags. 16. janúar 1991. Sbr. samþykkt embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 6. maí 2011.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
55. Mímisvegur, Freyjugata, Barónsstígur Mál nr. BN043056
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans í fyrsta lagi að breyta mörkum tveggja lóða, þ.e. lóðanna Mímisvegur 2-2A og Freyjugötu 42 og í öðru lagi er óskað eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skrá lóðarstærðir í samræmi við niðurstöður úr rannsóknavinnu landupplýsingadeildar á áður nefndum tveim lóðum auk lóðanna Barónsstígs 78, 78A og 80, Freyjugötu 44 og 46 og Mímisvegar 4, 6 og 8, eins og sýnt er á meðsendum uppdráttum landupplýsingadeildar, framkvæmda- og eignasviðs, dags. 16. maí 2011. Lóðin Mímisvegur 2-2A er talin 1266,0 m2, sbr. þinglýst skjal S-1940/2004, dags. 11. nóvember 2002, lóðin reynist 1304 m2, 4 m2 teknir af lóðinni og sett undir borgarland (landnr. 218177), lóðin verður 1300 m2. Lóðin Freyjugata 42 er talin 777,7 m2, lóðin reynist 778 m2, 4 m2 teknir af lóðinni og sett undir borgarland (landnr. 218177) lóðin verður 774 m2. borgarlandið (landnr. 218177) stækkar því um 8 m2, vegna þessara tveggja lóða. Lóðin Barónsstígur 78 er talin 716,4 m2, lóðin reynist 715 m2. Lóðin Barónsstígur 78A er talin 219,9 m2, lóðin reynist 220 m2. Lóðin Barónsstígur 80 er talin 844,1 m2, lóðin reynist 846 m2. Lóðin Freyjugata 44 er talin 831 m2, lóðin reynist 829 m2. Lóðin Freyjugata 46 er talin 780,0 m2, lóðin reynist 779 m2. Lóðin Mímisvegur 4 er talin 784,0 m2, lóðin reynist 791 m2. Lóðin Mímisvegur 6 er talin 861,0 m2, lóðin reynist 867 m2. Lóðin Mímisvegur 8 er talin 802,6 m2, lóðin reynist 804 m2. Samanber uppdrætti í safni Mælingardeildar og Lóðaskráritara. Samanber rannsóknarvinnu Landupplýsingadeildar. Samanber forsögn skipulagsfulltrúa vegna aðstæðna á staðnum. Allir lóðasamningar hér eru fallnir úr gildi nema á lóðinni Mímisvegur 2-2A.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Fyrirspurnir
56. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN043040
Pétur Vilberg Guðnason, Lóuás 8, 221 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyfi fengist til að endurnýja þakklæðningar á þökum þannig með þakpappa, þakjárni og að efra þak eru þakjárn lyft upp á lektum og undir því er betri pappi heillímdur á samskeytum, engar útlitsbreytingar eiga sér stað við þessar viðhaldsframkvæmdir á húsinu nr. 6 við Þönglabakka á lóð nr. 12/16 Álfabakka/ Þönglabakka.
Verksamningur dags. 5 maí 2011 fylgir
Jákvætt.
Enda verði byggingarstjóri skráður á verkið sérstaklega með tilliti til að um heita vinnu er að ræða. Ber að framfylgja leiðbeiningum Mannvirkjastofnunar (áður Brunamálastofnunar) þar að lútandi.
57. Bergstaðastræti 13 (01.180.309) 101720 Mál nr. BN043020
Mótamenn ehf, Þúfuseli 2, 109 Reykjavík
Sótt er um stöðuleyfi fyrir frystigám á bak við bakarí í húsi á lóð nr. 13 við Bergstaðastræti.
Frestað.
Fyrirspyrjandi geri grein fyrir þörf á staðsetningu gáms og samþykki allra meðlóðarhafa.
58. Bergstaðastræti 54 (01.185.601) 102207 Mál nr. BN043042
Spurt er hvort skila þurfi nýjum eignaskiptasamningi fyrir mál nr. BN041427 til að lokaúttekt geti farið fram, en samningurinn er óbreyttur nema atvinnuhúsnæði er breytt í íbúð frá samningi 2002 og von er á nýjum samningi vegna breytinga sem gerðar munu verða og voru samþykktar með erindi BN042162 fyrir hús á lóð nr. 54 við Bergstaðastræti.
Nei.
59. Grensásvegur 11 (01.461.102) 105666 Mál nr. BN043048
Sætrar ehf, Gerðhömrum 27, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta fyrirkomulagi bílastæða og umferð á lóð, þannig að á lóðinni verði möguleiki á akstri í báðar áttir í stað einstefnu og einnig er spurt um afstöðu borgarinnar til þess að bæta við innakstri frá Skeifu við miðja suðurhlið hússins á lóð nr. 11 við Grensásveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
60. Gvendargeisli 116 (05.135.601) 190279 Mál nr. BN042984
Jóhanna Ásdís Njarðardóttir, Gvendargeisli 162, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 5 ferm. garðskúr á lóð nr. 116 við Gvendargeisla.
Nei.
Miðað við áætlaða staðsetningu.
61. Háagerði 39 (01.815.220) 107996 Mál nr. BN042803
Kristján Þór Sverrisson, Háagerði 39, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu á skipulögðum bílskúrsreit við raðhúsið á lóð nr. 39 við Háagerði.
Til vara er spurt hvort byggja megi bílskúr sem innangengt væri í og notaðist til íbúðar á sömu lóð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. maí 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. maí 2011.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
62. Kleppsvegur 96 (01.353.005) 104216 Mál nr. BN043017
Níels Tri Kien Huynh, Kleppsvegur 28, 105 Reykjavík
Spurt er hvort hvort leyfi fengist til að breyta bílskúr í íbúð og lengja um 5 metra og bæta hæð ofan á húsið á lóð nr. 96 við Kleppsveg.
Nei.
Ekki má gera íbúð í bílskúr. Lóðin er þegar fullbyggð samkvæmt ákvæðum deiliskipulags.
63. Njálsgata 23 (01.182.125) 101839 Mál nr. BN043012
Ananda Marga Pracaraka Samgha, Efstasundi 26, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir utanáliggjandi stiga á bakhlið og stækka kvisti, innrétta íbúð í risi, sali fyrir félagsstarf á 1. og 2. hæð og ýmsa aðstöðu og snyrtingar í kjallara fjölbýlishússins Frakkastígur 16 á lóð nr. 23 við Njálsgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
64. Snorrabraut 37 (01.240.301) 102987 Mál nr. BN043002
Sjónver ehf, Síðumúla 29 3.hæð, 108 Reykjavík
Spurt er hvort breyta megi tveim kvikmyndasölum aftur í veitingastað eins og var í tíð Silfurtunglsins á 2. hæð í húsi Austurbæjarbíós á lóð nr. 37 við Snorrabraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. maí 2011 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 18. maí 2011.
Jákvætt.
Að uppfylltu skilyrði, enda verði sótt um byggingarleyfi.
65. Sogavegur 3 (01.810.-98) 107820 Mál nr. BN042980
Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við til vesturs, breyta aðkomu og fjölga bílastæðum á lóð nr. 3 við Sogaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundi skipulagsstjóra 20. maí 2011 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 19. maí 2011.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist það.
Umsækjandi skal tafarlaust fjarlægja óleyfisskilti á norðurhlið hússins að öðrum kosti verði gripið til þvingunaraðgerða.
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:00.
Magnús Sædal Svavarsson
Harri Ormarsson
Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir
Jón Hafberg Björnsson
Þórður Búason
Eva Geirsdóttir
Sigrún Baldvinsdóttir