Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2010, miðvikudaginn 27. október kl. 9.07, var haldinn 221. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson og áheyrnarfulltrúnn Sóley Tómasdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Leifsdóttir, Margrét Þormar, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Lilja Grétarsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 22. október 2010.

2. Árbæjarblettur 62, Þykkvibær 21, breyting á deiliskipulagi (04.350.9)Mál nr. SN060118
Linda Hrönn Ágústsdóttir, Fjarðarás 5, 110 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu eru lögð fram að nýju drög að breytingu á deiliskipulagi Árbær - Selás vegna lóðarinnar að Þykkvabæ 21. dags. 16. febrúar 2006. Málið var í kynningu frá 30. mars til og með 27. apríl 2006. Athugasemdabréf bárust frá Birni S. Ásgeirssyni hrl. f.h. Bjarna Ágústssonar og Ástu Marinósdóttur dags. 10. apríl 2006, Theódóri Marinóssyni dags. 19. apríl 2006, Ingva G. Sigurðssyni mótt. 25. apríl 2006, Stefáni Thors dags. 26. apríl 2006, listi með 127. undirskriftum frá íbúum úr Árbænum mótt. 26. apríl 2006, Ólafi Hannibalssyni og Guðrúnu Pétursdóttur dags. 4. apríl 2006 og Árna Vigfússyni, Sigurði Halldórssyni og Theodór Marinóssyni dags. 26. apríl 2006. Einnig lagt fram bréf lögfræði og stjórnsýslu dags. 27. apríl 2006 til lögfræðiskrifstofu Reykjavíkurborgar vegna beiðni um umsögn vegna eignarnámsheimilda, umsögn lögfræðiskrifstofu Reykjavíkurborgar dags. 12. september 2006 og bréf borgarstjóra dags. 6. október 2006, vegna samþykkt borgarráðs 5. október 2006 á afgreiðslu skipulagsráðs frá 27. september 2006, varðandi viðræður um kaup á Árbæjarbletti 62 vegna breytinga á deiliskipulagi Árbæjar og Seláss, ennfremur er lögð fram umsögn lögfræðiskrifstofu Reykjavíkurborgar dags. 12. september 2006 og bréf Lex lögmannsstofu dags. 5. desember 2007. Erindinu var vísað til umsagnar Framkvæmda- og eignasviðs og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Framkvæmda- og eignaráðs dags. 19. febrúar 2009. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 4. október 2010.
Synjað með vísan til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.
Vísað til borgarráðs.

3. Áland, Furuborg, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN090093
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 5. mars 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgarspítalans vegna lóðar leikskólans Furuborgar. Í breytingunni felst stækkun lóðar og byggingarreits auk fjölgunar á bílastæðum, samkvæmt uppdrætti dags. 3. mars 2009. Einnig er lögð fram skýrsla Umhverfis- og samgöngusviðs að svifryks- og hljóðvistarmælingum fyrir lóðina, dags. 25. júní 2010. Tillagan var áður auglýst frá 4. nóvember til og með 16. desember 2009.

Gísli Marteinn Baldursson tók sæti á fundinum kl. 09:10

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu að nýju.
Vísað til borgarráðs.

4. Háskóli Íslands, Vísindagarðar, breyting á deiliskipulagi HÍ(01.63)Mál nr. SN090460
ASK Arkitektar ehf, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 2. júlí 2010 var lagt fram erindi Ask Arkitekta dags. 11. desember 2009 f.h. Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. vegna breytinga á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna Vísindagarða. Í breytingunni felst m.a. að lóðinni er skipt upp í sjö lóðir fyrir Vísindagarða, Stúdentagarða og spennistöð Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt uppdrætti Ask Arkitekta dags. 23. mars 2010 ásamt greinargerð og skilmálum dags. 29. mars 2010. Einnig eru lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs dags. 9. júní 2010 af kynningarfundi vegna málsins sem haldinn var þann 3. júní sl. Auglýsing stóð yfir frá 31. apríl til og með 30. júní 2010. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Þorkell Jóhannesson dags. 31. maí, Snorri Bergmann og Védís Húnbogadóttir dags. 22. júní, Helga Þorkelsdóttir, Páll Þorgeirsson, Jóhannes Fossdal og Hilda Hansen dags. 28. júní, Ragnheiður Harðardóttir dags. 10. júní, Ragnheiður Harðardóttir og Jón Sch. Thorsteinsson dags. 29. júní, greinargerð Glámu Kím unnin fyrir íbúa við Odda- og Aragötu dags. 28. júní, Ingibjörg E. Björnsdóttir f.h. Svanhildar Sigurðardóttur dags. 30. júní, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Helgi Björnsson dags. 30. júní, Bjarki Gunnar Halldórsson dags. 30. júní, Baldur Símonarson dags. 30. júní, Jón Jóhannes Jónsson dags. 30. júní og Max Dager f.h. Norræna hússins dags. 1. júlí 2010.

Jórunn Frímannsdóttir tók sæti á fundinum kl. 09:20

Frestað.
Skipulagsráð óskar eftir því að samgöngustefna Háskóla Íslands verði lögð fram á fundi ráðsins. Óskað er eftir því að umbeðin gögn berist tímanlega fyrir fund skipulagsráðs í næstu viku.

5. Teigahverfi norðan Sundlaugavegar, nýtt deiliskipulag Mál nr. SN090100
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar dags. 22. október 2010. Einnig er lögð fram Húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur skýrsla nr. 150 dags. 2009, endurskoðað varðveislumat Minjasafns Reykjavíkur vegna Bjargs dags. 23. febrúar 2010 og samantekt verkefnisstjóra dags. 6. ágúst 2010 varðandi ábendingar úr hagsmunaaðilakynningu.
Elín Gunnlaugsdóttir, arkitekt kynnti tillöguna.
Frestað.

6. Kaplaskjól, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN100380
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 22. október 2010 að breytingu á deiliskipulagi Kaplaskjóls. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir að á lóðunum nr. 1 til 3 við Meistaravelli sé gert ráð fyrir tveimur flutningshúsalóðum í stað fjögurra.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Júlíus Vífill Ingvarsson sat hjá við afgreiðslu málsins

7. Kristnibraut 65-67, breyting á skilmálum (04.115.4) Mál nr. SN100337
Búseti svf,húsnæðissamvinnufél, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Eyjólfur Einar Bragason, Melhæð 2, 210 Garðabær
Lögð fram umsókn og tillaga Eyjólfs Einars Bragasonar f.h. Búseta svf dags. 10. september 2010 að breytingu á skilmálum deiliskipulags Grafarholts, svæðis 3 vegna lóðarinnar nr. 65-67 við Kristnibraut. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum hússins úr 18 í 19.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

8. Afgreiðslufundu byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN042241
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 609 frá 26. október 2010.

(C) Fyrirspurnir

9. Laugavegur 178, (fsp) breyta skrifstofuhúsnæði í hótel (01.251.1) Mál nr. SN100379
Þráinn Karlsson, Hjallaland 8, 108 Reykjavík
Vallhólmi ehf, Hjallalandi 8, 108 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Vallhólma ehf. móttekin 18. október 2010 varðandi leyfi til að breyta skrifstofuhúsnæði í hótel á 2, 3 og 4 hæð og 1. hæð í morgunverðarsal og móttöku á lóðinni nr. 178 við Laugaveg samkvæmt uppdrætti Þráins & Benedikts dags. í október 2010. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra 22. október 2010.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samræmist landnotkun í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Sækja þarf um byggingarleyfi.

10. Lækjargata 8, (fsp) breyting á deiliskipulagi (01.140.5) Mál nr. SN100382
Lækur ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Orri Árnason, Laugavegur 39, 101 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Zeppelin arkitekta f.h. Lækjar ehf., dags. 21. okt. 2010, um breytingu á deiliskipulagi Pósthússtrætisreits vegna aukins byggingarmagns fyrir Lækjargötu 8.
Neikvætt.
Ekki er fallist á að heimila breytingu á deiliskipulagi svæðisins í samræmi við fyrirspurnina.

11. Landakot, (fsp) safnaðarheimili á lóð Kaþólsku kirkjunnar(01.160.1)Mál nr. SN100384
Kaþólska kirkjan á Íslandi, Pósthólf 490, 121 Reykjavík
Davíð Kristján Chatham Pitt, Skildinganes 11, 101 Reykjavík
Lögð fram fyrirspurn Davíðs Pitt f.h. Kaþólsku kirkjunnar, dags. 18. okt. 2010, um safnaðarheimili og fjölnotahús á lóð Kaþólsku kirkjunnar við Landakot.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi til samræmis við erindið.
Tillagan verður auglýst þegar hún berst.

12. Borgartún 8-16, (fsp) færsla á byggingarmagni (01.220.1) Mál nr. SN100145
PK-Arkitektar ehf, Höfðatúni 12, 105 Reykjavík
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Lögð fram að nýju fyrirspurn PK Arkitekta dags. 14. apríl 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Höfðatorgsreits. Einnig er lagt fram erindi PK - Arkitekta dags. 23. september 2010 ásamt uppdrætti dags. 4. apríl 2008 breyttur 27. ágúst 2010 og skýringaruppdrætti dags. 20. september 2010. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 15. október 2010.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

13. Skaftahlíð 24, (fsp) stækkun (01.274.2) Mál nr. SN100318
THG Arkitektar ehf, Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Reitir fasteignafélag hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 10. september 2010 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta dags. 3. september 2010 varðandi stækkun hússins á lóð nr. 24 við Skaftahlíð samkvæmt uppdrætti dags. 25. ágúst 2010. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 18. október 2010.
Frestað.

14. Vatnsstígur 4, (fsp) niðurrif og nýbygging (01.172.119) Mál nr. BN040514
S33 ehf, Stórhöfða 33, 110 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. október 2009 þar sem spurt er hvort leyft yrði að rífa hús sem fyrir er á lóð og byggja nýtt, þrjár hæðir og kjallara, tólf íbúðir með bílgeymslu fyrir fimm bíla í kjallara á lóð nr. 4 við Vatnsstíg.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 3. desember 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 14. desember 2009.
Frestað.

(D) Ýmis mál

15. Flugvallarvegur, málskot (01.628) Mál nr. SN100328
Flugbjörgunarsveitin Reykjavík, Flugvallarvegi, 101 Reykjavík
Verkfræðistofa Sigurðar Sigurðs, Hegranesi 15, 210 Garðabær
Lagt fram málskot Verkfræðistofu Sigurðar Sigurðssonar f.h. Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík dags. 8. september 2010 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsstjóra varðandi afnot af grænu svæði, stækkun á lóð og viðbótarbílastæði, breikkun og færslu á núverandi inn- og útkeyrslu ásamt því að leggja nýja innkeyrslu á lóð Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur við Flugvallarveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 24. júní 2010.
Frestað.

16. Langirimi 21-23, málskot (02.546.8) Mál nr. SN100369
Spöng ehf, Bæjarflöt 15, 112 Reykjavík
Teiknistofan Óðinstorgi ehf, Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík
Lagt fram málskot Spangar ehf. dags. 11. október 2010 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsstjóra frá 10. september 2010 um að breyta endahúsnæði á vesturenda á 2. hæð á lóð nr. 21-23 við Langarima, úr sólbaðsstofu í íbúð. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 15. október 2010.
Frestað.

17. Lóð fyrir einkasjúkrahús, staðsetning Mál nr. SN100208
Lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjóra dags. 14. maí 2010 vegna erindis Ástráðar Haraldssonar f.h. undirbúningsfélags um stofnun og rekstur einkasjúkrahúss í Reykjavík dags 22. mars 2010 varðandi staðsetningu fyrir slíkt sjúkrahús innan borgarmarkanna.
Frestað.

18. Skipulagsráð, tillaga um kynningu á framkvæmdum Mál nr. SN100355
Lögð fram eftirfarandi tillaga. #GLSamfylkingin og Besti flokkurinn gera tillögu um að ítarleg kynning á framkvæmdum í borginni á framkvæmdarstað verði eitt af skilyrðum byggingarleyfis. Sérstök áhersla skal lögð á ítarlega myndræna kynningu og upplýsingatexta á byggingarstað þar sem byggt er í miðborginni. Slíkar upplýsingar skal setja upp á framkvæmdarstað um leið og framkvæmdir hefjast.#GL
Greinargerð fylgir tillögunni.
Vísað til meðferðar hjá embætti skipulagsstjóra.

19. Laugavegur 4-6, lokun svæðisins (01.171.3) Mál nr. SN100213
Lagðar fram tillögur Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 18. október 2010 að grindverki lóðarinnar nr. 4-6 við Laugaveg.
Frestað.

20. Skipulagsráð, Fjölorkustöðvar Mál nr. SN100366
Olíuverslun Íslands hf, Pósthólf 310, 121 Reykjavík
Lagt fram bréf Olíuverslunar Íslands hf. dags. 6. október 2010 þar sem félagið upplýsir skipulagsráð Reykjavíkur að félagið hafi á stefnuskrá sinni að gera í framtíðinni stærstu þjónustustöðvar sínar að fjölorkustöðvum. Bréfinu fylgir afrit af bréfi til Sorpu dags. 5. október 2010 varðandi dreifingu á metangasi fyrir bifreiðar.

21. Sóleyjarimi 1-7, kæra 24/2010, umsögn (02.536.1) Mál nr. SN100176
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnendar skipulags- og byggingarmála dags. 4. maí 2010 ásamt kæru dags. 23. apríl 2010 þar sem kærð er veiting byggingarleyfis fyrir lokun svala fjölbýlishússins að Sóleyjarima 1-7. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 18. okt. 2010.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

22. Sóleyjarimi 1-7, kæra 37/2010, umsögn (02.536.1) Mál nr. SN100233
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnendar skipulags- og byggingarmála dags. 15. júní 2010 ásamt kæru dags. 7. júní 2010 þar sem kærð er synjun afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þ. 18. maí 2010 á byggingarleyfisumsókn fyrir lokun svala í mhl. 04 í íbúð 0602 á 6. hæð fjölbýlishússins nr. 1-7 við Sóleyjarima. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 18. okt. 2010.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

23. Þingholtsstræti 2-4 og Skólastræti 1, kæra (01.170.2) Mál nr. SN100386
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 21. október 2010 ásamt kæru dags. 14. september 2010 þar sem kærð er deiliskipulagsákvörðun um sameiningu lóðanna Þingholtsstræti 2-4 og Skólastræti 1 í Reykjavík.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

Fundi slitið kl. 12.05.

Páll Hjalti Hjaltason
Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Jórunn Frímannsdóttirr

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2010, þriðjudaginn 26. október kl. 10.40 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 609. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 7 (01.140.415) 100856 Mál nr. BN042225
Aðalstræti 7 sf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta notkun 1. hæðar í kaffihús í flokki II í húsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Bréf frá eigendum Vallarstræti 4 fylgir dags. 7. og 14. okt. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

2. Austurbakki 2 (01.119.801) 209357 Mál nr. BN038981
Eignarhaldsfélagið Portus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja spennistöð við austurhlið tónlistar- og ráðstefnuhússins sbr. erindi BN037260 og BN042027 ásamt breytingu BN037608 á neðanjarðar bílahúsi á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Bréf hönnuðar dags. 22. sept. 2008, minnisblað varðandi útblástur frá varaaflstöð dags. 5. des. 2007 og tölvupóstur Umhverfissviðs Reykjavíkur frá 7. des. 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Spennistöð (matshluti 03) neðri kjallari 134,7 ferm., kjallari 294,5 ferm., samtals 429,2 ferm., 1688,1 rúmm.
Gjald kr. 7300 + 7.700 + 129.984
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Álftamýri 59-75 (01.280.301) 103666 Mál nr. BN042180
Knútur Grétar Hauksson, Álftamýri 63, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að saga niður úr tveimur gluggum á suðurhlið 1. hæðar til að koma fyrir gluggum sem ná niður í gólf og verða með rennihurð í raðhúsinu nr. 63 á lóð nr. 59-75 við Álftamýri
Samþykki meðeigenda fylgir dags.13. sept. 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Álftamýri 59-75 (01.280.301) 103666 Mál nr. BN042179
Jón Valur Jónsson, Álftamýri 65, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að saga niður úr tveimur gluggum á suðurhlið 1.hæðar til að koma fyrir gluggum sem ná niður í gólf og verða með rennihurð í raðhúsinu nr. 65 á lóð nr. 59-75 við Álftamýri
Samþykki meðeigenda fylgir dags.13. sept. 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Ásvallagata 21 (01.162.208) 101266 Mál nr. BN042212
Anna Svava Sverrisdóttir, Ásvallagata 21, 101 Reykjavík
Ester Ásgeirsdóttir, Ásvallagata 21, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til endurnýjunar og breytinga á áður samþykktu erindi BN033899 dags. 7. nóv. 2006 þannig að komið verður fyrir salerni við herbergi í kjallara sem minnkar þvottahús og breyta þakgerð á þaksvölum úr glerþaki yfir í bárujárnsþak í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 21 við Ásvallagötu.
Samþykki eigenda fylgir ódags. á uppdráttum.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bergstaðastræti 13 (01.180.309) 101720 Mál nr. BN042173
Mótamenn ehf, Þúfuseli 2, 109 Reykjavík
Takmarkað byggingarleyfi fyrir uppsteypu neðstu hæðar í nýbyggingu
á lóðinni Bergstaðastræti 13.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

7. Borgartún 26 (01.230.002) 102910 Mál nr. BN042158
LF6 ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjölga skrifstofum og gera fundarherbergi í rými 0301 til norðurs og gera minniháttar breytingu á núverandi innréttingum á 3. hæð í verslunarhúsnæðinu á lóð nr. 26 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

8. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN042157
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta kaffi- og setustofu í framreiðslueldhús og matsal sem einungis tekur við tilbúnum mat í skrifstofurými 0601 í Höfðatúni 2 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

9. Einarsnes 48 (01.672.015) 106803 Mál nr. BN032330
Björn Júlíusson, Einarsnes 48, 101 Reykjavík
Rannveig Einarsdóttir Arnar, Einarsnes 48, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr, koma fyrir nýrri hurð, byggja sólstofu á suðurhlið og stækka í vesturátt einbýlishús á lóð nr. 48 við Einarsnes.
Stækkun: Íbúð 40,1 ferm., 108 rúmm.
Samtals eftir stækkun 188,1 ferm., 616,1 rúmm.
Bílskúr nýbygging 49,4 ferm., 140,8 rúmm.
Samtals stækkun og nýbygging: 89,5 ferm., 248,8 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 7.700 + 19.158
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Einholt 2 (01.244.101) 103179 Mál nr. BN042002
Fasteignin Einholti 2 ehf, Tunguási 9, 210 Garðabær
Kuti slf, Vestmannabraut 30, 900 Vestmannaeyjar
Sótt er um leyfi til að byggja fernar svalir, innrétta sex íbúðir og byggja sólpalla á baklóð atvinnuhúss á lóð nr. 2 við Einholt.
Erindi fylgir samþykki tveggja meðeigenda áritað á uppdrátt ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 15. október 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Fannafold 145 (02.851.606) 109964 Mál nr. BN042113
Guðrún Björg Halldórsdóttir, Viðarás 25a, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta byggingarleyfi í tvennt þar sem sólstofa hefur þegar verið byggð við eignarhluta 0102 sbr. sem er áfangi 1, en ekki við eignarhluta 0101, sbr. erindi BN038868, við tvíbýlishús á lóð nr. 145 við Fannafold.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 28.9. 2010, einnig eignaskiptayfirlýsing þar sem samþykki eigenda á lóð kemur fram dags. 14.7. 2009.
Stærðir 1. áfangi viðbót garðstofa við 0102: 13,87 ferm., 41,09 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.164
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda vegna eldvarna.

12. Flugvallarvegur 3-3A (01.751.201) 107467 Mál nr. BN042226
Keiluhöllin ehf, Pósthólf 8500, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir útskotsglugga á suðurhlið og innrétta skrifstofur í stað sorpgeymslu sem verður komið fyrir í sorpgám á suðvesturhorni bílastæða í eigu atvinnuhúsnæðisins á lóð nr. 3-3A við Flugvallarveg.
Stækkun á útskotsglugga : XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

13. Fossaleynir 1 (02.456.101) 190899 Mál nr. BN041778
Kvikmyndahöllin ehf, Austurstræti 11, 101 Reykjavík
R-Höllin ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir nýja, uppfærða og endurútgefna aðaluppdrætti af mhl. 03 Egilshallarinnar á lóð nr. 1 við Fossaleyni sjá BN036460.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 25. júní 2010 og annað dags. 9. sept. 2010, einnig endurskoðuð brunahönnunarskýrsla dags. 31. júlí 2010 og bréf frá Reginn ehf. vegna eignaskiptayfirlýsingar dags. 20. okt. 2010.
Stækkun: 60,2 ferm., (0,1 rúmm.)
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Ekki er unnt að gefa frest til gerðar eignaskiptaryfirlýsingar til 1. september 2011, en 1. mars 2011 væri nærri lagi.

14. Haðaland 9-15 (01.864.101) 108810 Mál nr. BN042230
Guðni Ingimarsson, Stararimi 17, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka til austurs og vesturs, hækka vegg á lóðamörkum í norður, hækka bílskúr, steypa nýja þakplötu þar á, byggja skjólveggi sunnan við hús og breyta innra fyrirkomulagi í einbýlishúsi nr. 15 á lóð nr. 15-21 við Haðaland.
Bílskúr minnkar um 1,8 ferm., stækkar um 25,5 rúmm.
Íbúð stækkar um 55,1 ferm., 171,9 rúmm.
Samtals stækkun: 55,1 ferm., 197,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 15.200
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Hafnarstræti 1-3 (01.140.005) 100817 Mál nr. BN042037
BS10 ehf, Þangbakka 8, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á 1. hæð, í veitingasal á 2. hæð, í kjallara og á útblástursröri frá háfi á 1. hæð í veitingahúsi í flokki II, mhl. 02 á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. september 2010. Einnig umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 13.okt. 2010 og Minjasafns Reykjavíkur dags. 14. okt. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Heiðargerði 98 (01.802.218) 107683 Mál nr. BN042215
Birgitta Guðrún S Ásgrímsdóttir, Heiðargerði 98, 108 Reykjavík
Alexander Schepsky, Heiðargerði 98, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka þak um 500 mm, koma fyrir anddyri og byggja steinsteyptan bílskúr á lóð nr. 98 við Heiðargerði.
Erindi fylgir fsp. BN041221.
Stækkun: 15,0 ferm., 42,7 rúmm.
Stærð bílskúrs: 28,1 ferm., 82,0 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.370
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

17. Hjarðarhagi 2-6 (01.552.401) 106511 Mál nr. BN042231
Ríkissjóður Íslands, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu sem felur í sér breytingu á eldvörnum og hurðir fjarlægðar sbr. erindið BN041018 í húsi nr.4 á lóð nr. 2-6 við Hjarðarhaga.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

18. Holtavegur 8-10 (01.408.101) 104960 Mál nr. BN042168
Reitir II ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi á rými 0201 í einingu 203 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 8-10 við Holtaveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Hvammsgerði 7 (01.802.504) 107710 Mál nr. BN042228
Bryndís Ingibjörg Jónsdóttir, Hvammsgerði 7, 108 Reykjavík
Árni Björnsson, Hvammsgerði 7, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 7 við Hvammsgerði.
Jafnframt er gerð grein fyrir kjallara undir hluta húss.
Kjallari: 11,7 ferm., 26,2 rúmm.
Viðbygging 11,9 ferm., 33,9 rúmm.
Samtals stækkun: 23,6 ferm., 60,1 ferm.
Gjald kr. 7.700 + 4.628
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

20. Kjalarvogur 10 (01.428.004) 105187 Mál nr. BN042206
Olíudreifing ehf, Pósthólf 4230, 124 Reykjavík
Sótt er um samþykki reyndarteikninga, sem unnar eru eftir byggingarnefndarteikningum frá 1962 og uppmælingum, vegna eignaskiptayfirlýsingar fyrir staðsteypt geymslu- og lagerhús með timburþaki, mhl. 04, á lóð nr. 10 við Kjalarvog
Stærðir samtals: 625 ferm., 2.854 rúmm.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

21. Kjalarvogur 10 (01.428.004) 105187 Mál nr. BN042207
Ker ehf, Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki reyndarteikninga, sem unnar eru eftir uppmælingum vegna eignaskiptayfirlýsingar fyrir geymsluhús úr timbri á steyptum sökkli, sem byggt var 1968, mhl. 06, á lóð nr. 10 við Kjalarvog
Stærðir samtals: 82 ferm., 276 rúmm.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

22. Kjalarvogur 10 (01.428.004) 105187 Mál nr. BN042208
Ker ehf, Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki reyndarteikninga, sem unnar eru eftir uppmælingum, vegna eignaskiptayfirlýsingar fyrir geymsluskýli úr timbri og steinsteypu á steyptum sökkli, sem byggt var 1965, mhl. 08, á lóð nr. 10 við Kjalarvog
Stærðir samtals: 274 ferm., 916 rúmm.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

23. Kjalarvogur 10 (01.428.004) 105187 Mál nr. BN042204
Ker ehf, Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki reyndarteikninga, sem unnar eru eftir byggingarnefndarteikningum frá 1979 og uppmælingum, vegna eignaskiptayfirlýsingar fyrir steinsteypt geymslu- og lagerhús mhl. 13 á lóð nr. 10 við Kjalarvog
Stærðir samtals: 2.682 ferm,. 12.567 rúmm.
Gjald kr 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

24. Kjalarvogur 10 (01.428.004) 105187 Mál nr. BN042205
Ker ehf, Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki reyndarteikninga, sem unnar eru eftir byggingarnefndarteikningum frá 1951 og uppmælingum, vegna eignaskiptayfirlýsingar fyrir steinsteypt geymslu- og lagerhús með stálgindar og timburþaki, mhl. 2, á lóð nr. 10 við Kjalarvog
Stærðir samtals: 992 ferm., 4.580 rúmm.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

25. Klapparstígur 17 (01.152.402) 101048 Mál nr. BN042209
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, Kjartansgata 10, 105 Reykjavík
Marías Sveinsson, Langholtsvegur 132, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta súlum undir stigapalla, sjá erindi BN041911 dags. 31. ágúst 2010, á nýsamþykktu fjölbýlishúsi á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Laufásvegur 64 (01.197.204) 102719 Mál nr. BN042203
Skúli Gunnarsson, Laufásvegur 64, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi breyta áður samþykktum byggingaráformum með því að fella burt útbyggingu á vesturgafli, sbr. erindi BN036462, á vesturgafli parhúss á lóð nr. 64 við Laufásveg.
Minnkun: A-rými - 5,7 ferm., 10,3 rúmm. B-rými 4,9 ferm., 9,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.
Jón Hafberg Björnsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

27. Laugavegur 41 (01.172.113) 101449 Mál nr. BN042221
David Anthony Noble, Laugavegur 50, 101 Reykjavík
Vatn og land I ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslun í veitingaverslun í flokki I sem einnig á að versla með heimilisiðnað og gjafavörur í húsnæðinu á lóð nr. 41 við Laugaveg.
Jákvæð fyrirspurn BN042017 dags. 21. sept. 2010 þar sem fjallað var um kaffibar og skyndibita stað í flokki I fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Laugavegur 60 (01.173.115) 101532 Mál nr. BN042177
Pétur Heiðar Egilsson, Breiðvangur 2, 220 Hafnarfjörður
Rosita Yufan Zhang, Breiðvangur 2, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN039563 dags. 28. apríl 2009 þar sem sótt er um að innrétta veitingastað í flokki II á 1. hæð í húsi á lóð nr. 60 við Laugaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 fylgir erindinu.Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Miðtún 10 (01.223.005) 102880 Mál nr. BN042211
Hálist ehf, Vatnsstíg 9, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og fá samþykkta ósamþykkta íbúð í kjallara þríbýlishússins á lóð nr. 10 við Miðtún.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 17. október 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Mýrargata 2-8 (01.116.401) 100072 Mál nr. BN042194
Leggjarbrjótur ehf, Einimel 22, 107 Reykjavík
Slippurinn, fasteignafélag ehf, Malarhöfða 8, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir skábraut fyrir fatlaða, innrétta snyrtingu fyrir konur og fatlaða á 1. hæð, karla í kjallara og fyrir starfsfólk einnig í kjallara sbr. erindi BN041647 samþ. 22.6. 2010 í húsi á lóð nr. 2 við Mýrargötu.
Meðfylgjandi er bréf Hreins Ágústssonar dags. 19. okt. 2010 varðandi snyrtingu starfsfólks.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Njálsgata 49 (01.190.127) 102402 Mál nr. BN042216
Hildur Bjarnadóttir, Njálsgata 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrrum verslunarrými 0102 í íbúð sbr. fyrirspurn BN037696 á 1. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 49 við Njálsgötu.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 18.10. 2010 og samþykki allra meðeigenda nema á nr. 0101.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Ofanleiti 11-13 (01.744.102) 107430 Mál nr. BN042083
Ágúst Ólafsson, Ofanleiti 13, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svalaskýli með glerþaki á íbúð 0302 í fjölbýlishúsinu nr. 13 á lóð nr. 11-13 við Ofanleiti.
Jákvæð fyrirspurn BN041872 dags. 17. ágúst 2010 og samþykki
meðeigenda dags. 30. mars 2010 fylgja erindi.
Einnig bréf frá hönnuði um eldvarnir dags. 15. okt. 2010.
Stærðir: 18,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.450
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

33. Reyrengi 49-51 (02.387.703) 109267 Mál nr. BN042107
Guðmundur Kr Eydal, Reyrengi 51, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN031245 dags. 12. apríl 2005 þar sem sótt var um að gera sólstofu við suðurhlið hússins nr. 51 á lóðinni nr. 49-51 við Reyrengi. Jafnframt verði sett upp vélræn loftræsing fyrir snyrtiherbergi innan við sólstofu.
Stækkun: 16,3 ferm. og 43 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.311
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Safamýri 26 (01.285.002) 103738 Mál nr. BN042196
Knattspyrnufélagið Fram, Safamýri 28, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að nýta félagsheimili Knattspyrnufélagsins Fram til veisluhalda í flokki III á 2. hæð í mhl. 03 íþróttahúss á lóð nr. 26 við Safamýri.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

35. Skúlagata 17 (01.154.102) 174222 Mál nr. BN042223
Brennheitt ehf, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík
101 Atvinnuhúsnæði ehf, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að lengja opnunartíma veitingarstaðarins í flokki III sem tilgreindur er í byggingalýsingu þannig að opið er frá 10 að morgni til 2 eftir miðnætti í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 17 við Skúlagötu.
Leyfisbréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæði dags. 26 ágúst 2008 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

36. Smiðjustígur 4A (01.171.115) 101381 Mál nr. BN042100
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um tímabundið leyfi til að opna á báðum hæðum yfir í hús á lóð nr. 6 við Smiðjustíg úr húsi á lóð nr. 4A við Smiðjustíg.
Meðfylgjandi er þinglýst yfirlýsing um tímabundna opnun yfir lóðamörk Smiðjustígs 4A og 6, dags. 12. okt. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Engar athugasemdir, en bíður eðli máls samkvæmt afgreiðslu Smiðjustígs 6, mál nr. BN042101.

37. Smiðjustígur 6 (01.171.117) 186664 Mál nr. BN042101
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um tímabundið leyfi til að opna á báðum hæðum yfir í hús á lóð nr. 4A við Smiðjustíg úr húsi á lóð nr. 6 við Smiðjustíg.
Meðfylgjandi er þinglýst yfirlýsing um tímabundna opnun milli Smiðjustígs 4A og 6, dags. 12.10. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningu.

38. Suðurgata 8A (01.161.105) 101200 Mál nr. BN042055
Valdimar Birgisson, Akrar, 271 Mosfellsbær
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna breytinga á skráningartöflu sem er forsenda fyrir nýjum eignaskiptasamningi fyrir tvíbýlishús á á lóð nr. 8A við Suðurgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

39. Templarasund 3 (01.141.210) 100901 Mál nr. BN042222
Kirkjuhvoll sf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta hárgreiðslustofu í kaffihús í flokki I í húsi á lóð nr. 3 við Templarasund.
Jákvæð fyrirspurn BN041993 dags. 21. sept. 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Tjarnargata 12 (01.141.306) 100909 Mál nr. BN042198
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki á breyttum eldvarnarmerkingum, sbr. nýsamþykkt erindi BN042094, vegna brunahönnunar Tjarnarbíós á lóð nr. 12 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

41. Þingholtsstræti 2-4 (01.170.205) 101333 Mál nr. BN042165
Íslenska eignafélagið ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa bakhús við Skólastræti 1 og byggja viðbyggingu við Þingholtsstræti 2-4, milli þess og Skólastrætis 1, steinsteypt íbúðahótel með 20 íbúðareiningum, þrjár hæðir og kjallara á sameinaðri lóð nr 2-4 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir brunahönnun, forhönnun frá VSI dags. 7. október 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 og umsögn skipulagsstjóra dags. 20. október 2010.
Niðurrif: Mhl. 02 fastanr. 200-4340 merkt 0101 trésmiðja 197,5 ferm.
Nýbygging: Kjallari, 1. 2. og 3. hæð eru allar 191,9 ferm., 4. hæð 9,9 ferm.
Samtals viðbygging: 777,5 ferm., 2.378 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 183.106
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði og umsagnar skipulagsstjóra frá 20. okt. 2010.

Ýmis mál

42. Bergvík 125777 (16.000.010) 125777 Mál nr. BN042235
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir að lóðin Bergvík 125777, Kjalarnesi, landnr. 125777, stærð 2.100 m2, sem er í eigu Reykjavíkurborgar verði felld af skrám og sameinuð óútvísuðu landi Reykjavíkurborgar, landnúmer 218177.
Engin mannvirki eru á lóðinni.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

43. Urðarstígur 12 (01.186.402) 102277 Mál nr. BN042233
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóðarinnar Urðarstígs 12 eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dags. 20. október 2010. Við breytinguna minnkar lóðin Urðarstígur 12 (landnr.102277) úr 260 m2 í 240 m2 og borgarland (landnr. 218177) stækkar um 20 m2. Sbr. deiliskipulag sem samþykkt var í skipulagsráði 4. nóvember 2009 og í Borgarráði 14. ágúst 2009. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins var birt í B-deild stjórnartíðinda 3. febrúar 2010.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.

Fyrirspurnir

44. Baughús 46 (02.848.106) 109851 Mál nr. BN042185
Kristinn Sigurjónsson, Baughús 46, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka svalir, koma fyrir stiga af svölum niður af sólpalli, breyta glugga í svalahurð, þvottahúsglugga breytt í hurð og setja upp arinn í stofu með reykröri í einbýlishúsinu á lóð nr. 46 við Baughús.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi samþykki aðliggjandi lóðarhafa vegna útitrappa.

45. Dugguvogur 23 (01.454.409) 105647 Mál nr. BN042178
Íris Hera Norðfjörð Jónsdóttir, Skúlagata 32, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir á 3. hæð, Kænuvogsmegin á húsi á lóð nr. 23 við Dugguvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi sem fylgi samþykki meðlóðarhafa. Berist umsókn verður hún grenndarkynnt.

46. Hverfisgata 105 (01.154.406) 101134 Mál nr. BN042109
Domingos Tavares Ferreira, Sæbólsbraut 40, 200 Kópavogur
Spurt er hvort leyfi fengist til að opna skemmtistað í flokki III í kjallara í verslunar og íbúðarhúsnæðinu á lóð nr. 105 Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. október 2010 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 7. október 2010 fylgir erindinu.
Vísað er til umsagnar skipulagsstjóra dags. 7. okt. 2010.

47. Í landi Fitjakots 125677 (00.026.002) 125677 Mál nr. BN042219
Jón Jóhann Jóhannsson, Búðavað 10, 110 Reykjavík
Spurt er hvernig skrá skuli óuppfyllta sökkla í mhl. 1 og hvort steypa megi bílaplan og skýli undir því sem mhl. 02 við einbýlishús í Perluhvammi í landi Fitjakots, landnúmer 125677.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

48. Kjarrvegur 15 (01.846.508) 108714 Mál nr. BN042227
Bergþór Þormóðsson, Kjarrvegur 15, 108 Reykjavík
Spurt er um leyfi til að byggja sólstofu á svölum 3. hæðar íbúðar 0301 fjölbýlishússins á lóð nr. 15 við Kjarrveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

49. Klapparstígur 17 (01.152.402) 101048 Mál nr. BN042171
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, Kjartansgata 10, 105 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir breytingu á álögðum gjöldum á nýbyggingu á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Erindi fylgir bréf lóðarhafa dags. 7. október 2010 ásamt umsögn framkvæmda - og eignasviðs dags. 22. október 2010 og minnisblaði byggingarfulltrúa dags. 25. október 2010.
Með vísan til minnisblaðs byggingarfulltrúa og umsagnar framkvæmda- og eignasviðs er beiðni um breytingu á álögðum gjöldum hafnað.

50. Nesvegur 49 (01.531.101) 106142 Mál nr. BN042156
Jónína Eyvindsdóttir, Nesvegur 49, 107 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir kjallaraíbúð í einbýlishúsi á lóð nr. 49 við Nesveg.
Erindi fylgir ný íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 21. október 2010.
Nei.
Meginhluti íbúðarinnar er með lofthæð 227 og fullnægir því ekki kröfu um lofthæð samþykktra íbúða.

51. Nóatún 17 (01.235.201) 102967 Mál nr. BN042176
Íshamrar ehf, Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja ca. 30 ferm. hjólageymslu sunnan við hús nr. 17 við Nóatún.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 15. október 2010.
Neikvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

52. Selvogsgrunn 14 (01.350.611) 104166 Mál nr. BN042210
Hallur Kristvinsson, Efstasund 94, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr vestanmegin við parhúsið á lóð nr. 14 við Selvogsgrunn.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

53. Skúlagata 28 (01.154.304) 101119 Mál nr. BN042229
Magnús Albert Jensson, Langagerði 88, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að gera flóttastiga út á borgarland á suðurgafli gistiskála iðnaðarhússins á lóð nr. 28 við Skúlagötu.
Erindi fylgir jákvæð fsp. BN042070 dags. 28. september 2010.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Björn Kristleifsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

54. Suðurgata 100 (01.553.117) 106537 Mál nr. BN042142
Ingólfur Gissurarson, Suðurgata 100, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka rishæð um 140 cm og byggja kvisti götumegin á einbýlishúsið nr. 100 við Suðurgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 22. október 2010.
Jákvætt.
Með þeim takmörkunum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.

55. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN042160
Ásmundur Jóhannsson, Hraunteigur 9, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að breyta innréttingu 1. hæðar á þann veg aðallega að draga framhlið inn og skapa þar svæði fyrir útiveitingar og taka glugga og hurðir úr framhlið.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 18. október 2010.
Neikvætt
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra og athugasemda á fyrirspurnarblaði.

56. Varmadalur 125767 (00.080.002) 125767 Mál nr. BN042193
Haraldur Jónsson, Varmadalur 3, 116 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja stauraskýli norðan við einbýlishúsið á lóðinni Varmadalur III.
Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 30. september 2010 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 22. október 2010.
{Jákvætt.}
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, en sækja verður um byggingarleyfi sbr. ákvæði 12. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998. engar frekari framkvæmdir eru leyfðar fyrr en að fengnu samþykki á byggingaráformum og útgáfu byggingarleyfis.

Fundi slitið kl. 12.25.

Magnús Sædal Svavarsson

Bjarni Þór Jónsson Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson
Þórður Búason Guðfinna Ósk Erlingsdóttir
Eva Geirsdóttir