Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2010, þriðjudaginn 20. júlí kl. 10:10 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 596. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Þórður Búason, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Jón Hafberg Björnsson, Sigrún Reynisdóttir, Gunnhildur S. Gunnarsdóttir og Valný Aðalsteinsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Bergstaðastræti 16 (01.184.010) 102005 Mál nr. BN041830
Laug ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN037642 sem felst í að fjölga íbúðum úr þremur í fimm, fjölga svölum og fækka útitröppum í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

2. Bergstaðastræti 48 (01.185.301) 102169 Mál nr. BN041516
Svava Guðlaug Sverrisdóttir, Bergstaðastræti 48, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja svalahandrið úr stáli og hertu öryggisgleri á svölum fjórðu hæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 48 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Blönduhlíð 25 (01.713.017) 107228 Mál nr. BN040691
Hermann Kristinn Bragason, Blönduhlíð 25, 105 Reykjavík
Jóhanna Þorsteinsdóttir, Blönduhlíð 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta bílgeymslu við fjölbýlishúsið á lóð nr. 25 við Blönduhlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2010.
Einnig fylgir jákvæð fsp. dags. 7. nóvember 2006 og 10. mars 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. mars 2010 og minnisblað skipulagsstjóra dags. 12. mars 2010. Grenndarkynning stóð yfir frá 9. júní til og með 8. júlí 2010. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu.
Stækkun: 35 ferm., 115,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.886
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

4. Borgartún 6 (01.220.002) 102778 Mál nr. BN041816
BS-eignir ehf, Kirkjustétt 2-6, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breyttri brunahönnun á 2. hæð, en samstæðuskil sem voru EI90 verða tvö EI60 brunahólf með EICS30 hurðum og EI30 gleri.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

5. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN041584
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breyttri staðsetningu á kæli- og frystigeymslu í kjallara, var í B2 en verður í B1 rými -115, einnig er sótt um leyfi til að bæta starfsmannaaðstöðu í rými -105 í verslunar- og skrifstofuhúsinu Höfðatún 2, á lóð nr. 8-16 við Borgartún sbr. BN040741 og BN035574.
Jafnframt er erindi BN041342 dregið til baka.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

6. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN041812
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir skipulagi innréttinga í rými 0601 á 6. hæð í skrifstofuhúsi mhl. 01í Höfðatúni 2 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

7. Brekkustígur 4A (01.134.111) 100321 Mál nr. BN041639
María Jónsdóttir, Brekkustígur 4a, 101 Reykjavík
Gunnar Helgi Kristinsson, Brekkustígur 4a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka steinsteypt einbýlishús með því að byggja viðbyggingu og svalir á bakhlið og hækka gafla og byggja #GLMansard#GL þak á einbýlishúsið á lóð nr. 4A við Brekkustíg.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 13. júní 2010, bréf sömu til Borgarverkfræðings dags. 2. sept. 1999, ásamt umsögn skipulagsins dags. 4. mars. Einnig lóðaleigusamningur innfærður til þinglýsingar 7.7.2010.
Stærðir fyrir stækkun: 111,1 ferm., 447,2 rúmm.
Stækkun: 74,4 ferm., 118,2 rúmm.
Stærðir eftir stækkun: 185,8 ferm., 565,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 9.101
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað til uppdrátta 001, 002, 003 og 004 dags. 9. júlí 2010.
Lagfæra skráningartöflu.

8. Dragháls 6-12 (04.304.503) 111025 Mál nr. BN041464
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta bifreiðaverkstæði á 1. hæð í iðnaðarhúsnæði nr. 9 milli mátlína C-E og 28-30, mhl. 01, á lóð nr. 5-7 og 9-11 við Fossháls.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

9. Fannafold 63 (02.850.004) 109912 Mál nr. BN041758
Guðmundur Ívar Ágústsson, Fannafold 63, 112 Reykjavík
Andrés Ágúst Guðmundsson, Heiðargerði 24, 190 Vogar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri stækkun á kjallara sem framvæmd var við byggingu og til að setja glugga á gafla og nýta þar með geymslur á neðri hæð (kjallara) sem íveruherbergi í parhúsinu á lóð nr. 63 við Fannafold.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 12.7.2010 og útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu.
Stærðir: Samþykkt: 291,6 ferm., 1.023 rúmm.
Stækkun: 58,9 ferm., 159 rúmm.
Samtals: 350,5 ferm., 1.181,9 rúmm.
Nýting 0,53
Gjald kr. 7.700 + 12.243
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Gilsárstekkur 7 (04.612.204) 111768 Mál nr. BN041823
Steindór Einarsson, Gilsárstekkur 7, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða, einangra og breyta utanhúss einbýlishúsinu á lóð nr. 7 við Gilsárstekk.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Grafarholt (04.12-.-95) 110739 Mál nr. BN041646
Golfklúbbur Reykjavíkur, Pósthólf 12067, 132 Reykjavík
Sótt eru leyfi til að byggja steinsteypta þjónustu og vélageymslu með timbureiningaþaki á límtrésbitum í landi Golfklúbbs Reykjavíkur á Grafarholti.
Stærðir: 1. hæð 796,8 - 2. hæð 102,8 - Samtals 899,6 ferm.,
4.741,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 365.080
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

12. Gunnarsbraut 32 (01.247.112) 103344 Mál nr. BN041833
Stefán Bogi Stefánsson, Gunnarsbraut 32, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr plötuklæddri stálgrind á 1. hæð suðurhliðar húss á lóð nr. 32 við Gunnarsbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

13. Gvendargeisli 168 (05.134.701) 190285 Mál nr. BN041826
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að taka 2. áfanga, sem er kjallari, norðurhluti kennslusvæðis og íþróttahluti á fyrstu hæð í notkun og framkvæma lokaúttekt því fylgjandi í Sæmundarskóla á lóð nr. 168 við Gvendargeisla.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

14. Haukdælabraut 2-8 (05.114.501) 214787 Mál nr. BN041813
S.S. Hellulagnir ehf, Kambaseli 28, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir þegar framkvæmdum breytingum frá samþykktu erindi, sem felast í að sameina snyrtingar og þvottahús í eitt rými í hverri íbúð í raðhúsi á lóð nr. 2-8 við Haukdælabraut.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Hólavað 63-75 (04.741.602) 199079 Mál nr. BN041838
Snorri Ólafur Snorrason, Fannahvarf 3, 203 Kópavogur
Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir parhús nr. 75 á lóðinni nr. 63-75 við Hólavað.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN041713
Vatn og land I ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Sótt er um breytingar á nýsamþykktu erindi BN041232 þar sem nú kemur skábraut í stað lyftu frá gangstétt að húsi á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Höfðabakki 9 (04.075.001) 110681 Mál nr. BN041755
Reitir II ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum innan- og utanhúss, sbr. erindi BN041370, í skrifstofubyggingu á lóð nr. 9 við Höfðabakka.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 24. júní.2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Hörðaland 2-24 (01.860.002) 108789 Mál nr. BN041748
Haraldur Guðnason, Hörðaland 14, 108 Reykjavík
Kristín Guðmundsdóttir, Hörðaland 14, 108 Reykjavík
Brynjólfur Guðbjörnsson, Hörðaland 14, 108 Reykjavík
Helga S Ágústsdóttir, Hörðaland 14, 108 Reykjavík
Gunnar Hámundarson, Hörðaland 16, 108 Reykjavík
Oddfríður Lilja Harðardóttir, Hörðaland 16, 108 Reykjavík
Ragnar Þór Magnússon, Hörðaland 16, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir svalaskýlum úr stálstyrktum PVC prófílum og öryggisgleri á 7 íbúðum 2. og 3. hæðar fjölbýlishúss nr. 14 og 16 á lóð húss nr. 14-18 við Hörðaland.
Samþykki allra íbúa á Hörðalandi 14-18 fylgir með sem og eldvarnarúttektarskýrsla verkfræðings dags. 6.7.2010.
Stærðir 52,5 ferm., 136,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 10.534
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Kirkjusandur 2 (01.345.101) 104043 Mál nr. BN041814
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp kælieiningu við hlið rafstöðvargáms á afgirtum steyptum stöpli við Íslandsbanka mhl. 07 á lóð nr. 2 við Kirkjusand.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Kleifarsel 18 (04.975.601) 113267 Mál nr. BN040359
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til minni háttar breytinga, sjá erindi BN038845 dags. 16. september 2008, á íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 18 við Kleifarsel.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Kringlan 1 (01.723.501) 107300 Mál nr. BN041712
Reitir VI ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Laugar ehf, Sundlaugavegi 30A, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta mhl. 01. fyrir starfsemi heilsuræktarstöðvar sem er prentsmiðjuhluti byggingarinnar á lóð nr. 1 við Kringluna.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 28. júní 2010 með skýringum á stærðum og skráningu, aðkomu og aðstöðu fyrir fatlaða. Einnig skiltabókhald dags. 28. júní.2010 og skýringarmyndir af öllu húsinu. Einnig bréf arkitekts dags. 12.7.2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

22. Kvisthagi 9 (01.543.107) 106416 Mál nr. BN041785
Jóhann Guðnason, Kvisthagi 9, 107 Reykjavík
Rósa Hrund Guðmundsdóttir, Kvisthagi 9, 107 Reykjavík
Jóhannes R Jóhannesson, Kvisthagi 9, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka svalir á 1. og 2. hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Kvisthaga.
Meðfylgjandi er yfirlýsing burðarvirkishönnuðar dags. 13.7.2010 og samþykki eigenda á smækkaðri teikningu.
Stækkun um 2,1 ferm úr 3,6 í 5,7
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Laugarnesvegur112-114 (01.341.002) 103937 Mál nr. BN041741
Ingvar Breiðfjörð Skúlason, Laugarnesvegur 114, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að afmarka sérafnotaflöt með timburgrindverki fyrir framan íbúðir 0101 og 0102, sbr. fyrirspurn BN039971, á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr 112-114 við Laugarnesveg.
Meðfylgjandi er ódags. samþykki allra eigenda.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

24. Laugavegur 124 (01.240.202) 102985 Mál nr. BN041680
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja Norðurpólinn, sem er bárujárnsklætt timburhús á einni hæð með risi og steyptum kjallara, byggt 1904 og stóð á Hverfisgötu 125 en hefur nú verið endurbyggt, að utan að mestu, á lóð nr. 124 við Laugaveg og innrétta fyrir veitingastað í flokki II.
Meðfylgjandi er umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 14.6.2010, Minjasafns Reykjavíkur dags 16.6.2010 og svör arkitekts við athugasemdum á umsóknarblaði.
Stærðir: Kjallari 66,1 ferm., 1. hæð 63,4 ferm., rishæð 38,9 ferm., samtals 168,4 ferm., 482 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 37.114
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

25. Laugavegur 28 (01.172.206) 101461 Mál nr. BN041481
Reykjavík backpackers ehf, Laugavegi 28, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa gistiskála upp í flokk V - c, innrétta hluta kjallara sem setustofu og þvottaaðstöðu og 1. hæð sem móttöku og veitingasölu í flokki II fyrir gistiskála í húsi á lóð nr. 28 við Laugaveg.
Erindi fylgir brunahönnun dags. 31. mars 2009, endurskoðuð 13. apríl 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. maí 2010 og umsögn skipulagsstjóra dags. 20. maí 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

26. Laugavegur 32B (01.172.214) 101469 Mál nr. BN041818
Reynir Adamsson, Laugavegur 32b, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum af neðri hæð, en af henni eru engar eldri teikningar til, og af skráningartöflu sem byggir einnig á eldri teikningum af efri hæðum hússins á lóð nr. 32B við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

27. Ljósvallagata 12 (01.162.312) 101285 Mál nr. BN041521
Helgi Egill Einarsson, Brávallagata 20, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu af kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 12 við Ljósvallagötu.
Erindi fylgir bréf eiganda og þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 29. júní 1994.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Lækjargata 10 (01.141.201) 100895 Mál nr. BN041333
Eignanet ehf, Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík
Eignasaga - Traust ehf, Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi innanhúss í veitingahúsi í flokki III á lóð nr. 10 við Lækjargötu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Nesvegur 56 (01.517.012) 105885 Mál nr. BN041770
Vilhelm Steinsen, Nesvegur 56, 107 Reykjavík
Þóra Guðnadóttir, Nesvegur 56, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á húsi og verönd út úr stofu við einbýlishús á lóð nr. 56 við Nesveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Nýlendugata 15A (01.131.209) 100178 Mál nr. BN041820
María Dís Cilia, Nýlendugata 15a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa bakhús, um er að ræða mhl. 02 þar sem á að fjarlægja alla efri hæð, þak, veggi og gólf ásamt öllum innviðum í kjallara, á lóð nr. 15A við Nýlendugötu.
Fyrirhugað er að láta útveggi kjallarans standa, sem munu nýtast þegar húsið verður endurbyggt. Bréf frá eigenda dags. 9. júlí 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

31. Nökkvavogur 26 (01.441.203) 105444 Mál nr. BN041706
Kerstin Tryggvason, Nökkvavogur 26, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara sbr. fyrirspurn BN041467, íbúðarhússins á lóð nr. 26 við Nökkvavog.
Ljósrit úr lýsingabók og íbúðarskoðun dags. 7. maí 2010 fylgir. Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 9. júlí 2010 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

32. Skipholt 70 (01.255.208) 103493 Mál nr. BN041824
Þorp ehf, Bolholti 4, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir núverandi loftræsilögnum og sorpgámum við vesturhlið veitingastaðar, mhl. 0105, á lóð nr. 70 við Skipholt.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Smiðjustígur 6 (01.171.117) 186664 Mál nr. BN041782
Nýja Grand ehf, Smiðjustíg 6, 101 Reykjavík
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir skipulagi útisvæðis og uppsetningu tjalds til veitingareksturs í flokki II við hús á lóð nr. 6 við Smiðjustíg.
Gjald kr. 7.700 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Sólvallagata 27 (01.139.111) 100758 Mál nr. BN041795
Jón Hákon Hjaltalín, Þorrasalir 23, 201 Kópavogur
JHH ehf, Fjarðargötu 13-15, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að innrétta tvær íbúðir sbr. fyrirspurn BN040050 í verslunarhúsnæði á 1. hæð í húsi á lóð nr. 27 við Sólvallagötu.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu.Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Stjörnugróf 9 (01.89-.-99) 108934 Mál nr. BN041841
Ás styrktarfélag, Skipholti 50c, 105 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu og aðstöðusköpun á lóð nr. 9 við Stjörnugróf. Erindi BN040065.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

36. Stórholt 17 (01.246.011) 103282 Mál nr. BN041422
Ragnar Ingibergsson, Svíþjóð, Eiríkur Sigurðsson, Stórholt 17, 105 Reykjavík
Eggert Sigurðsson, Klyfjasel 10, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta tvöfalda bílageymslu á lóð nr. 17 við Stórholt.
Jákvæð fyrirspurn BN041000 dags. 16. feb. 2010 fylgir erindinu og samþykki meðeigenda.
Stærð: 57 ferm., 178,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 13.737
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta 10-01og 10-02 dags.
7. júlí 2010.

37. Strandasel 1-11 (04.934.003) 112888 Mál nr. BN041773
Strandasel 1-3,húsfélag, Strandaseli 1-3, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða með loftræstri álklæðningu gafla fjölbýlishússins á lóð nr.1-3 við Strandasel.
Meðfylgjandi er yfirlýsing formanna húsfélaga hússins Ss. 1-3 að fundur 21. júní 2010 hafi samþykkt framkvæmdina, einnig yfirlýsing formanns Ss. 5 að íbúar þar séu samþykkir og samsvarandi yfirlýsing formanns Ss. 2. Meðfylgjandi einnig svör hönnuðar dags. 13.7.2010 við athugasemdum á umsagnarblaði og yfirlýsing burðarvirkjahönnuðar dags. 14.7. 2010
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Thorsvegur 1 (02.3--.-99) 109211 Mál nr. BN041771
Golfklúbbur Reykjavíkur, Pósthólf 12067, 132 Reykjavík
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir bráðabirgðahurð út úr veitingasal á suðurgafli Korpúlfsstaða sbr. fyrirspurn BN041314 á lóð nr. 1 við Thorsveg.
Meðfylgjandi er umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 25. júní. 2010
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

39. Torfufell 21-35 (04.686.101) 112342 Mál nr. BN041678
Torfufell 25-35, húsfélag, Torfufelli 33, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir svalalokun á öllum svölum, með þaki á efstu hæð og fyrir verönd á neðstu hæð fjölbýlishússins nr. 25-35 á lóð nr. 21-35 við Torfufell.
Meðfylgjandi er samþykki allra eigenda, nema bara munnlegt eins, sem er í útlöndum og fundargerð húsfélags dags. 28. apríl 2010.
Stærðir: Samtals: 405,2 ferm., 1.084,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 83.476
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

40. Tryggvagata 10 (01.132.101) 100210 Mál nr. BN041780
Cent ehf, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa núverandi hús og byggja nýtt tveggja hæða með kjallara og nýtanlegu risi úr steinsteypu með timburþaki í sem næst óbreyttri mynd með gluggum og turni í upprunanlegum stíl sbr. ákvæði í gildandi deiliskipulagi. á lóðinni nr. 10 við Tryggvagötu.
Meðfylgjandi er fyrirspurn BN041514, Bréf Húsafriðunarnefndar dags. 12.7.2010, Bréf arkitekta dags. 13.7.2010
Stærðir: kjallari 70,5 ferm., 1. hæð 146,3 ferm., 2. hæð 143 ferm., 3. hæð 91,2 ferm. Samtals 451 ferm., 1.709,5 rúmm.
Niðurrif fastanúmer 2000547, mhl 1 og hluti mhl 2 samtals x + 346 ferm. y + 1.364 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 131.632
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Úthlíð 14 (01.270.207) 103584 Mál nr. BN041623
Úthlíð 14,húsfélag, Úthlíð 14, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka svalir á 1. og 2. hæð, byggja þaksvalir á 3. hæð og opna úr kjallara út í garð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 14 við Úthlíð.
Erindið var grenndarkynnt frá 9. júní til og með 8. júlí 2010. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er samþykki burðarvirkjahönnuðar dags. 25.5.2010 og útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Viðjugerði 2 (01.806.001) 107765 Mál nr. BN041827
Óskar Jón Konráðsson, Viðjugerði 2, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir svalaskýli úr álprófílum og öryggisgleri á suðursvalir einbýlishúss á lóð nr. 2 við Viðjugerði.
Stærðir 16,7 ferm., 41,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.211
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsagnarblaði.

43. Þverholt 5 (01.241.019) 103014 Mál nr. BN041800
Sólblik ehf, Blikanesi 2, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að byggja svalir að mestu leyti úr járni utan við geymsluglugga sem sagað verður niður úr á 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 5 við Þverholt.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

44. Skeifan 8 (01.461.202) 105668 Mál nr. BN041815
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Á síðasta fundi byggingarfulltrúa þann 13. júlí sl. laðist, að bóka eftirfarandi: Lóðarmarkarbreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkarbreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.

Fyrirspurnir

45. Álfheimar 2-6 (01.430.208) 105199 Mál nr. BN041724
Eyþór Ragnar Jósepsson, Háhlíð 2, 603 Akureyri
Spurt er hvort byggja megi aðra hæð ofan á suðurálmu verslunarhússins á lóð nr. 2 við Álfheima.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 15.júlí 2010.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður sbr. umsögn skipulagsstjóra dags. 15. júlí 2010.

46. Ásvallagata 58 (01.139.011) 100744 Mál nr. BN041786
Hildur Hrefna Kvaran, Ásvallagata 58, 101 Reykjavík
Sigurjón Gunnsteinsson, Ásvallagata 58, 101 Reykjavík
Spurt er hvort loka megi svölum á 2. hæð í einbýlishúsi á lóð nr. 58 við Ásvallagötu.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. útskrift úr gerðarb. skipulagsstjóra

47. Efstasund 53 (01.357.306) 104453 Mál nr. BN041822
Rósa Anna Guðmundsdóttir, Grettisgata 72, 101 Reykjavík
Spurt er um hvaða leyfi þurfi til að fá að fylla upp í skriðkjallara og steypa gólfplötu í húsnæðið á lóð nr. 53 við Efstasund.
Sækja þarf um byggingarleyfi.

48. Hverafold 1-5 (02.874.201) 110375 Mál nr. BN041828
K - 2 fasteignir ehf, Hörðukór 5, 203 Kópavogur
Spurt er hvort leyfi fengist til að loka milli tveggja rýma á jarðhæð í atvinnuhúsnæðinu nr. 5 á lóð nr. 1-5 við Hverafold.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verður sótt um byggingarleyfi.
Sækja þarf um byggingarleyfi.

49. Lækjarmelur 8 (34.533.509) 213997 Mál nr. BN041829
Gunnlaugur Björn Jónsson, Aðalstræti 77a, 450 Patreksfjörður
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta eignarhulta 0109 úr geymslu í atvinnuhúsnæði á lóð nr. 8 við Lækjarmel.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

50. Sigluvogur 4 (01.414.111) 105106 Mál nr. BN041810
Guðmundur Ásgeir Björnsson, Sigluvogur 4, 104 Reykjavík
Jóhann Örn Þórarinsson, Sigluvogur 6, 104 Reykjavík
Spurt er hvort reisa megi sambyggða bílgeymslu milli húsanna á lóðum nr. 4 og 6 við Sigluvog.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júlí 2010 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. umsögn skipulagsstjóra.

51. Skúlagata 32-34 (01.154.306) 101121 Mál nr. BN041817
Auður Halldórsdóttir, Gullengi 5, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja upp ljósaskilti í tengingu við atvinnurekstur á atvinnu og íbúðarhúsnæðinu á lóð nr. 32 - 34 við Skúlagötu
Frestað.
Gera skal betur grein fyrir erindi.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13:20.

Þórður Búason Bjarni Þór Jónsson
Björn Kristleifsson Jón Hafberg Björnsson
Sigrún Reynisdóttir Gunnhildur S. Gunnarsdóttir
Valný Aðalsteinsdóttir