Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2010, miðvikudaginn 14. apríl kl. 10:10, var haldinn 204. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Ásgeir Ásgeirsson, Sóley Tómasdóttir, Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir og árheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir, Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Þórarinn Þórarinsson, Jóhannes Kjarval , Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Margrét Leifsdóttir
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 9. apríl 2010.

2. Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi (01.11) Mál nr. SN090009
Eignarhaldsfélagið Portus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Lagt fram erindi Portus ehf., dags. 14. nóvember 2009, varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar TRH vegna gatna- og stígatengsla á svæðinu milli Hafnarstrætis og Tónlistahússins samkvæmt uppdrætti Batterísins, dags. 14. desember 2009 mótt. 12. apríl 2010. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 5. febrúar 2010, minnisblað Portusar og Austurhafnar, dags. 12. febrúar 2010, og minnisblað Mannvits, dags. 23. október 2009, ásamt bókun umhverfis- og samgönguráðs vegna málsins, dags. 23. febrúar 2010.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Skipulagsráð leggur áherslu á að vandað verði sérstaklega til við hönnun og efnisvals á yfirborði gatna og í göturýminu í heild sinni.

3. Hólaberg 84, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN100126
Hornsteinar arkitektar ehf, Ingólfsstræti 5, 101 Reykjavík
Félag eldri borgara, Stangarhyl 4, 110 Reykjavík
Lagt fram erindi Andrésar N. Andréssonar, dags. 25. mars 2010, varðandi breytingu á deiliskipulagi Gerðuberg/Hólaberg vegna lóðarinnar nr. 84 við Hólaberg. Um er að ræða breytingu á byggingareitum samkvæmt uppdrætti Hornsteinar arkitektar ehf., dags. 17. mars 2010.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, jafnframt samþykkt að senda bréf til hagsmunaaðila á svæðinu.
Vísað til borgarráðs.

4. Sogavegur 69, deiliskipulag (01.810.9) Mál nr. SN100031
PK-Arkitektar ehf, Höfðatúni 12, 105 Reykjavík
Konráð Adolphsson, Sogavegur 69, 108 Reykjavík
Á fundi skipulagsstjóra 5. febrúar 2010 var lagt fram erindi PK arkitekta, dags. 22. janúar 2010, varðandi deiliskipulag fyrir lóð nr. 69 við Sogaveg samkvæmt uppdrætti, dags. 5. janúar 2010. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt lagfærðum uppdrætti, dags. 23. febrúar 2010.
Frestað.

5. Vínlandsleið 1, breyting á deiliskipulagi (04.111.4) Mál nr. SN090452
Arkís ehf, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík
Húsasmiðjan ehf, Holtavegi 10, 104 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Arkís, dags. 9. desember 2009, varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, athafnasvæðis vegna lóðarinnar nr. 1 við Vínlandsleið. Breytingin felur í sér að koma fyrir byggingarreit fyrir timburlager á suðausturhorni lóðarinnar samkvæmt uppdrætti, dags. 2. desember 2009. Auglýsing stóð yfir frá 13. janúar 2010 til og með 24. febrúar 2010. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: bréf Hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals, dags. 22. febrúar og 18. mars 2010, G. Jón Bjarnason, dags. 24. febrúar 2010. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra, dags. 19. mars 2010 ásamt umsögn umhverfis- og samgöngusviðs, dags. 19. mars 2010.
Frestað.

(B) Byggingarmál

6. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN041404
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 582 frá 13. apríl 2010.

(C) Fyrirspurnir

7. Barónsstígur 47, (fsp) breyta í hótel (01.193.101) Mál nr. BN040980
Álftavatn ehf, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. janúar þar sem spurt er hvort leyft verði að innrétta húsnæði áður Heilsuverndarstöð Reykjavíkur sem hótel fyrir Icelandair Hótel á lóðinni nr. 47 við Barónsstíg. Málinu fylgir bréf fyrirspyrjanda, dags. 21. janúar 2010. Einnig lögð fram umsögn Minjasafns Reykjavíkur, dags. 4. febrúar 2010. Einnig lagt fram bréf Arkþing, dags. 11. febrúar 2010, ásamt uppdráttum, dags. 12. febrúar 2010.
Frestað að beiðni fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs; Sóleyjar Tómasdóttur.

8. Þjóðhildarstígur, (04.11) Mál nr. SN080548
(fsp) lóð fyrir sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu
Atlantsolía ehf, Lónsbraut 2, 220 Hafnarfjörður
Á fundi skipulagsstjóra, dags. 22. ágúst 2008, var lögð fram fyrirspurn Atlantsolíu ehf, dags. 21. ágúst 2008, þar sem spurt er hvort leyft sé að koma fyrir lóð við Þjóðhildarstíg fyrir sjálfsafgreiðslustöð með tvær til þrjár dælur. Óskað er einnig eftir því að útbúin verði ný innkeyrsla frá Reynisvatnsvegi sem einnig getur nýst fyrir hverfisstöð og bílastæði sem gert er ráð fyrir að komið verði þar fyrir. Meðfylgjandi eru uppdrættir, dags.19. ágúst 2008. Erindinu var vísað til umsagnar hjá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs, dags. 13. október 2008, og umsögn skipulagsstjóra 26. mars 2010.
Neikvætt.
Ekki er fallist á að breyta gildandi deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurn með vísan til niðurstöðu í umsögn skipulagsstjóra.

(D) Ýmis mál

9. Rauðarárstígur 31, málskot (01.244.0) Mál nr. SN100129
Hýði ehf, Kríunesi 1, 210 Garðabær
Lagt fram málskot framkvæmdastjóra Hýðis ehf., dags. 11. mars 2010, vegna neikvæðrar afgreiðslu embættisafgreiðslufundar byggingarfulltrúa 15. desember 2009 á fyrirspurn um hvort leyfi fengist til að breyta 1. hæð í skammtímaleiguíbúðir í íbúðar- og verslunarhúsinu á lóð nr. 31 við Þverholt. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra, dags. 12. apríl 2010.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við erindið með vísan til niðurstöðu í umsögn skipulagsstjóra.

10. Miðborgin, Listahátíð Reykjavíkur 2010 Mál nr. SN100130
Listahátíð í Reykjavík, Lækjargötu 3, 121 Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík óskar eftir leyfi til þess að setja upp ljósmyndir utandyra á 20 stöðum í miðborginn á meðan Listahátíð stendur yfir. Ljósmyndirnar eru í svarthvítu stærð þeirra er frá 50 X 60 cm og upp í 200 X 300 cm. Myndefnið er ágrip af bestu ljósmyndum sögunnar. Áætlaðir uppsetningastaðir:
1) Á Glitnishúsi við Lækjargötu
2) Á veggnum sem snýr að Lækjargötu á horni Austurstrætis og Lækjargötu
3) Á Vonarstræti 4
4) Á vegg Nasa sem snýr að sundinu milli Austurvallar og Ingólfstorgs.
5) Á gamla Póst- og símahúsinu
6) Á gamla Morgunblaðshúsinu
7) Á Miðbæjarmarkaðnum
8) Á húsinu gegnt Skólabrú við Kirkjutorg
9) Á Iðnó
10) Á Hótel Borg ( á milli gamla hóltelsins og Austurbæjarapóteks.
11) Á húsi VG við Suðurgötu
12) Á Grófarhúsi
13) Á Hafnarshúsi
14) Á Ráðhúsi
15) Á Hafnarhvoli
16) Á Tryggvagötu 10
17) Á Tryggvagötu 11
18) Á veggnum við Burgerjoint/Búlluna
19) Á Ægisgötu 4
20) Á 10 skiltum á Austurvelli.
Kynnt.

11. Laugarnestangi 65, vegna óleyfisframkvæmda (01.314.4) Mál nr. SN100091
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 26. mars 2010. þar sem samþykkt var á fundi borgarráðs 25. s.m. að vísa eftirfarandi tillögu til umhverfis- og samgöngusviðs, framkvæmda- og eignasviðs og skipulags- og byggingarsviðs: Borgarráðsfulltrúi VG leggur til að framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar verði falið að koma borgarlandinu við Laugarnestanga í viðunandi ástand á kostnað eiganda Laugarnestanga 65. Framkvæmdum verði lokið fyrir varptíma fugla á svæðinu.
Vísað til umsagnar hjá embætti skipulagsstjóra.

Fulltrúi Vinstri hreyfingarnnar græns framboðs Sóley Tómasdóttir óskaði bókað:
#GLFulltrúi Vinstri grænna ítrekar þá afstöðu sína að grípa verði til aðgerða á og við lóðina á Laugarnestanga 65 hið fyrsta. Um margra ára skeið hefur lóðarhafi komist upp með að vanvirða lóð og land á svæðinu þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar og kvartanir frá borgarbúum. Nauðsynlegt er að svæðinu sé komið í sómasamlegt horf fyrir vorið.#GL

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Ragnar Sær Ragnarsson og fulltrúar Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Ásgeir Ásgeirsson óskuð bókað:#GL Eins og upplýst hefur verið er mál þetta þegar í vinnslu hjá byggingarfulltrúa og verður til umfjöllunar á næsta fundi skipulagsráðs.#GL

13. Álftamýri 1-5, bréf byggingarfulltrúa (01.280.103) Mál nr. BN041400
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 1. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eiganda Álftamýri 1-5 30 daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram samrunaskjal vegna eignabreytinga í húsinu nr. 1-5 við Álftamýri. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga í bréfi byggingarfulltrúa samþykkt.

14. Bíldshöfði 8, bréf byggingarfulltrúa (04.064.001) Mál nr. BN041402
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 9. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eiganda Bíldshöfða 8 30 daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram samrunaskjal vegna eignabreytinga í húsinu nr. 8 við Bíldshöfða. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga í bréfi byggingarfulltrúa samþykkt.

15. Nethylur 3-3A, bréf byggingarfulltrúa (04.232.602) Mál nr. BN041401
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 1. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eiganda Nethyls 3-3A 30 daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram samrunaskjal vegna eignabreytinga í húsinu nr. 3-3A við Nethyl. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga í bréfi byggingarfulltrúa samþykkt.

16. Laugavegur 4-6, Völundarverk (01.171.3) Mál nr. SN100083
Kynning á framkvæmdum á lóðunum Laugavegi 4-6 á vegurm Völundarverks.
Örn Baldursson og Margrét Leifsdóttir kynntu.

17. Reykjavíkurflugvöllur, orðsending borgarstjóra (01.6) Mál nr. SN100137
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Félag íslenskra atvinnuflugm, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogur
Lögð fram orðsending borgarstjóra, dags. 6. apríl 2010, ásamt ályktun Félags íslenskra atvinnuflugmanna um framtíð Reykjavíkurflugvallar, dags. 25. mars 2010.

18. Nönnugata 10, kæra, umsögn (01.186.5) Mál nr. SN090286
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 29. júlí 2009, ásamt kæru frá 7. s.m. á ákvörðun skipulagsráðs 10. júní 2009 um afturköllun byggingarleyfis vegna Nönnugötu 10. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 30. mars 2010.
Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt.

19. Traðarland 1, Víkingur, kæra, umsögn (01.875.9) Mál nr. SN090361
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 9. október 2009, ásamt kæru, dags. 9. september 2009, vegna deiliskipulagsbreytingar að Traðarlandi 1, íþróttasvæði knattspyrnufélagsins Víkings í Fossvogi. Einnig lögð fram umsögn lögfræði- og stjórnsýslu, dags. 23. mars 2010.
Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt.

{Ragnar Sær Rangarsson vék af fundi kl. 11:50}

20. Grundarstígur 10, kæra, umsögn, úrskurður Mál nr. SN090316
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 8. febrúar 2010 vegna kæru á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. júli 2009 um að veita leyfi m.a. til að byggja við kjallara og hækka þak hússins að Grundarstíg 10 í Reykjavík og breyta notkun þess.
Úrskurðarorð:
Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 21. júlí 2009, sem staðfest var í borgarráði 6. ágúst 2009, um að veita leyfi til að byggja við og hækka þak hússins að Grundarstíg 10 í Reykjavík og breyta notkun þess.
Skipulagsráð beinir því til embættis skipulagsstjóra að hefja vinnu við gerð skipulagsforsagnar á reitnum til samræmis við niðurstöður í framlögðum úrskurði.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:55.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ásgeir Ásgeirsson
Sóley Tómasóttir Stefán Benediktsson
Björk Vilhelmsdóttir Magnús Skúlason

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2010, þriðjudaginn 13. apríl kl. 10:.10 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 582. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Ármúli 12 (01.290.201) 103755 Mál nr. BN041364
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Ríkissjóður Íslands, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta fyrirlestrasal, breyta eldvörnum og fyrir öðrum smávægilegum breytingum innanhúss í mhl. 03, sbr. erindið BN035392 dags. 14. ágúst 2007 í Ármúlaskóla á lóð nr. 12 við Ármúla.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

2. Ármúli 29, Suðurlands (01.265.101) 103542 Mál nr. BN041292
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er leyfi til breytinga innanhúss, sem felast í að innrétta rými fyrir pökkun matvæla, þar sem áður voru skrifstofur í rými 0101 á 1. hæð húss á lóð nr. 32 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Ásvallagata 7 (01.162.306) 101279 Mál nr. BN040773
Sigurður Örn Guðleifsson, Ásvallagata 7, 101 Reykjavík
Jarþrúður Karlsdóttir, Ásvallagata 7, 101 Reykjavík
Helga Fossberg, Ásvallagata 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir þrennum svölum á suðurhlið og breyta innra fyrirkomulagi í risi fjölbýlishússins á lóð nr. 7 við Ásvallagötu.
Grenndarkynning stóð yfir frá 1. febrúar til og með 1. mars 2010.
Erindi fylgir fsp. BN040457 dags. 29. september og fsp. BN039601 dags. 24. mars 2009 ásamt samþykki eiganda kjallaraíbúðar dags. 18. desember 2009 áritað á uppdrátt.
Áður gerð stækkun: 20,3 ferm., 40,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.126
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Bakkastígur 7 (01.116.203) 100064 Mál nr. BN041355
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa niður hús og mannvirki á lóðinni nr. 7 við Bakkastíg.
Landnúmer100064 , fastanúmer 200-0197 ,mhl. 04, iðnaðarhús 100 ferm., Fastanúmer 200-0197, mhl. 05, skrifstofa 110 ferm. Samtals 210 ferm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

5. Blönduhlíð 25 (01.713.017) 107228 Mál nr. BN040691
Hermann Kristinn Bragason, Blönduhlíð 25, 105 Reykjavík
Jóhanna Þorsteinsdóttir, Blönduhlíð 25, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta bílgeymslu við fjölbýlishúsið á lóð nr. 25 við Blönduhlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 8. febrúar 2010.
Einnig fylgir jákvæð fsp. dags. 7. nóvember 2006 og 10. mars 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. mars 2010 og minnisblað skipulagsstjóra dags. 12. mars 2010. Grenndarkynning stóð yfir frá 25. nóvember til og með 7. janúar 2010. Eftirtaldir aðilar lögðu inn athugasemdir: Helga Benediktsdóttir f.h íbúa að Drápuhlíð 34 og 36 dags. 30. desember 2009.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað
Vísað er til fyrri athugasemda á umsóknarblaði.

6. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN041366
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki I austanmegin 1. hæðar turnsins, Höfðatúns 2 á lóðinni nr. 8-16 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Búðavað 6-8 (04.791.607) 209918 Mál nr. BN041373
Torfi Pálsson, Básbryggja 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta hæð á gluggum á austur- og vesturgöflum, breyta svalahandriði á húsi nr. 6 og til að fá aðskilið byggingarleyfi fyrir parhúsið á lóð nr. 6-8 við Búðavað.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Dalbraut 16 (01.348.102) 178964 Mál nr. BN041376
Haukur Harðarson, Fjarðarás 28, 110 Reykjavík
Sótt er um gluggapóstalausa svalalokun á íbúð 0102 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Dalbraut,
Samþykki sumra meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. 25. mars 2010.
Meðfylgjandi er afgreiðsla hliðstæðs erindis dags. 22. apríl 2008
Stækkun: 12,6 fem., 34,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.626
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Einarsnes 64A (01.673.018) 188235 Mál nr. BN041350
Jón Helgi Pálsson, Einarsnes 64a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN036696 dags. 11. sept. 2007 þar sem farið er fram á að byggja bílskúr á lóð einbýlishússins á lóðinni nr. 64 við Einarsnes.
Stærð: 49,5 ferm., 163,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 12.574
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Faxafen 14 (01.466.201) 195611 Mál nr. BN041383
Heilsuborg ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík
Íslandsbanki hf, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir tveimur handlaugum og einum skolvaski, sbr. erindið BN040303 samþykkt 13. okt. 2009 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 14 við Faxafen.
Samþykki eigenda dags. 9. mars 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað
Umsækjandi hafi samband við heilbrigðiseftirlit.

11. Faxafen 14 (01.466.201) 195611 Mál nr. BN041267
Bessi ehf, Sóleyjargötu 8, 900 Vestmannaeyjar
Sótt er um leyfi til að innrétta matvöruverslun í rými 0105 á 1. hæð í verslunarhúsi á lóð nr. 14 við Faxafen.
Erindi fylgir jákv. fsp. dags. 23. febrúar 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

12. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041334
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta gallerí í vesturhlið jarðhæðar í húsi nr. 5a á lóðinni 3a-7c við Geirsgötu.
Gjald. kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041361
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitinga- og samkomusal í flokki ? á 1. og 2. hæð í atvinnuhúsnæðinu nr. 7B á lóð nr. 3A til 7C við Geirsgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041302
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II fyrir 92 gesti á 1. og 2. hæð og setja tvo nýja glugga á norðausturgafl verbúðar á lóð nr. 7C við Geirsgötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Vakin er athygli á vöntun sorpgeymslu.

15. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041335
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sædís Bauer Halldórsdóttir, Birkiás 38, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að innrétta gullsmíðaverkstæði í suðurhlið jarðhæðar húss nr. 5B á lóð nr. 3a-7c við Geirsgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041269
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta húsnæði fyrir minjagripaverslun á 1. hæð og setja nýjan glugga á norðausturgafl hússins á lóð nr. 5C við Geirsgötu.
Meðfylgjandi er bréf burðarþolshönnuðar dags. 8. mars 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Grjótháls 1-3 (04.302.401) 111016 Mál nr. BN041044
Grjót eignarhaldsfélag ehf, Lindarbergi 56, 221 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að byggja léttan tengigang á 2. hæð að lóðamörkum við nr. 5, sbr. fyrirspurn BN040211, við hús á lóð nr. 1-3 við Grjótháls.
Stækkun 40,9 ferm., 118,5 rúmm.
Gjald kr 7.700 + 7.700 + 9.125
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Grjótháls 5 (04.302.301) 111015 Mál nr. BN041407
Grjótháls ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að vinna undirstöður og jarðvinnu sbr. BN040850 á lóðinni nr. 5 við Grjótháls.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

19. Gvendargeisli 108 (05.135.903) 190275 Mál nr. BN041358
Ámundi Ingi Ámundason, Gvendargeisli 108, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa sorpgeymslur upp með norðurhlið nær lóðarmörkum og færa geymslu úr bílageymslu inn í íbúð á lóð nr. 108 við Gvendargeisla.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Gvendargeisli 20-28 (05.135.204) 190246 Mál nr. BN040989
Gvendargeisli 20-28,húsfélag, Gvendargeisla 28, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir svalalokanir á íbúðir 0101, 0103, 0104, 0105, 0202, 0203 og 0205 í fjölbýlishúsnæðinu 20, 22, 24, 26 og 28 á lóð nr. 20 - 28 við Gvendargeisla.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir.
Stækkun: 31,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.449
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Hafnarstræti 20/Læk5 (01.140.302) 100836 Mál nr. BN041384
Landsbankinn fasteignafélag ehf, Austurstræti 16, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta kaffihús og ísbúð í flokki II á jarðhæð hússins á lóðinni Hafnarstræti 20/Læk 5.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Haukdælabraut 102 (05.113.501) 214820 Mál nr. BN041379
Berglind Björk Halldórsdóttir, Kárastígur 12, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu á lóð nr. 102 við Haukdælabraut.
1. hæð íbúð 161,6 ferm., 2. hæð íbúð 175,2 ferm., bílgeymsla 61,1 ferm.
Samtals: 397,9 ferm., 1.385,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 106.653
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Hátún 10-12 (01.234.001) 102923 Mál nr. BN041372
Brynja, Hússjóður Öryrkjabandal, Hátúni 10, 105 Reykjavík
Árni Kjartansson, Hvassaleiti 119, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra og ytra skipulagi hússins og rífa hluta tengibyggingar við austurenda á atvinnuhússinu á lóð nr. 10 við Hátún.
Niðurrif: ? ferm., ? rúmm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Heiðargerði 55 (01.801.207) 107628 Mál nr. BN041365
Anna Dóra Þorgeirsdóttir, Heiðargerði 55, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja forstofu og útitröppur, tvennar svalir á vesturhlið með þaki yfir, jafnframt því sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi einbýlishússins á lóð nr. 55 við Heiðargerði.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

25. Heiðargerði 76 (01.802.206) 107671 Mál nr. BN041068
Guðmundur Ó. Eggertsson, Heiðargerði 76, 108 Reykjavík
Sótt er um leyf til að lyfta hluta af þaki og koma fyrir einum kvisti á norðurhluta þaks og tveim á suðurhluta þaks í húsi á lóð nr. 76 við Heiðargerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. mars 2010 fylgir erindinu.
Stækkun: 9,08 ferm. 28,12rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.165
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

26. Hverfisgata 20 (01.171.008) 101354 Mál nr. BN041375
Bílastæðasj Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja dyr á úthlið sorpgeymslu og grindur í op 1. hæðar að Smiðjustíg klæddar að innan með plexigleri í bílastæðahúsinu á lóð nr. 20 við Hverfisgötu.
Bréf frá hönnuði dags. 6.apríl 2010 og tölvupóstur frá Lagnatækni dags. 6. apríl 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

27. Hverfisgata 54 (01.172.102) 101440 Mál nr. BN041232
Vatn og land I ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta skrifstofur á 2. hæð, koma fyrir lyftu , breyta aðgengi að 1. hæð með skábraut ú á gangstétt og merkja eitt bílastæði við götu fötluðum sbr. fyrirspurn BN041094 í húsi á lóð nr. 54 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir yfirlýsing um kvaðir og afnotarétt bílastæða dags. 12. maí 1990 og eignaskiptasamningur dags. 25. nóvember 1980.
Einnig fylgir umsögn Framkvæmda- og eignasviðs dags. 29. mars 2010, sem og bréf vegna skábrautar dags. 29.3. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Höfðabakki 9 (04.075.001) 110681 Mál nr. BN041370
Reitir II ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta rannsóknastofu,geymslur og búningsaðstöðu fyrir starfsfólk í mhl. 04 í kjallara , innrétta á anddyri, móttöku og opið skrifstofurými með matsal og mötuneytiseldhúsi á 1. og 2. hæð, og koma fyrir svölum sem mynda skyggni yfir inngang inn í atvinnuhúsnæðið á lóð nr. 9 við Höfðabakka.
Bréf frá hönnuði dags. 31. mars. 2010, burðarvirkishönnuði dags. 29. mars 2010 og skýrsla frá brunahönnun dags. 29. mars 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra vegna svala sem fara út fyrir byggingarreit.

29. Ingólfsstræti 1A (01.171.021) 101365 Mál nr. BN041362
Ingólfsstræti 1a ehf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta þrjú hótelherbergi á 2. og 3. hæð veitinga- og skrifstofuhússins á lóð nr. 1A við Ingólfsstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Í landi Fitjakots 125677 (00.026.002) 125677 Mál nr. BN041356
Jón Jóhann Jóhannsson, Perlukór 6, 203 Kópavogur
Ingibjörg R Þengilsdóttir, Perlukór 6, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta anddyri og innra skipulagi í nýsamþykktu erindi BN039922 varðandi einbýlishús í landi Fitjakots.
Stærðir stækkun 18,9 ferm., 84 rúmm.
Samtals eftir stækkun 373.1 ferm., 969.5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.468
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Klapparstígur 17 (01.152.402) 101048 Mál nr. BN041158
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, Kjartansgata 10, 105 Reykjavík
Marías Sveinsson, Langholtsvegur 132, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fimm íbúða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með utanáliggjandi stiga, kjallara og þrjár hæðir á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 30. mars 2010, bréf hönnuðar dags. 8. mars 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. mars 2010.
Stærðir: Kjallari 21 ferm., 1. hæð 138,3 ferm., 2. hæð 152 ferm., 3. hæð 152 ferm.
A-rými samtals: 463,3 ferm., 1.611,1 rúmm.
B-rými samtals: 57,4 ferm.
Samtals 520,7 ferm., 1.611,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 124.055
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Langagerði 40 (01.832.101) 108547 Mál nr. BN041354
Páll Kristján Pálsson, Langagerði 40, 108 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun og áður gerða breytingu á erindi BN030315 dags. 12. janúar 2005, þar sem samþykkt var leyfi til að byggja garðhús í austurhorni lóðar einbýlishússins nr. 40 við Langagerði.
Breytingin sem sótt er um er að koma fyrir baði og breyta hurðum garðhússins.
Sjá erindi BN030315 dags. 12. janúar 2005 og BN032408 dags. 6. september 2005.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Athygli umsækjanda er vakin á því að búseta er óheimil í garðhúsinu.

33. Langagerði 76 (01.832.209) 108566 Mál nr. BN041256
Birgir Rafn Þráinsson, Kelduland 21, 108 Reykjavík
Sótt er leyfi til að breyta sundlaugarrými í stofu og baðsvæði í einbýlishúsi á lóð nr. 76 við Langagerði.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna í Langagerði 64, 66, 74, 78 og 88 dags. 6. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Laufásvegur 58 (01.197.201) 102716 Mál nr. BN041322
Klettur-eignir ehf, Laufásvegi 49-51, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi jarðhæðar, síkka glugga á suðurhlið, útbúa franskar svalir og innrétta tvær íbúðir í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 58 við Laufásveg.
Erindi fylgir bréf umsækjanda ódagsett, staðfesting á starfsábyrgðartryggingu dags. 18. mars, umsögn burðarvirkishönnuðar og viljayfirlýsing eigenda efri hæða Laufásvegar 58 dags. 19. mars og samkomulag um framkvæmdir milli eigenda Laufásvegar 58 dags. 20. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

35. Laugav 22/Klappars 33 (01.172.201) 101456 Mál nr. BN040678
Átt-kaup ehf, Stekkjarseli 9, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka stigahúsi á 1. hæð og leggja niður eldhús í veitingahúsi á lóð nr. 22 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er Leyfisbréf dags. 27.2. 2009, Umsókn dags 23.7. 2009, Umsókn dags. 20.7. 2009, leigusamningur dags.12.3. 2009, Umsögn Byggingarfulltrúa dags. 3.9. 2009, Umsögn dags. 23.7. 2009, Umsögn Vinnueftirlits dags. 13.8. 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Laugavegur 61-63 (01.173.016) 101505 Mál nr. BN041003
Nóni ehf, Laugavegi 61, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka rýmið 0205 með því að reisa nýja gluggaeiningu á móts við útbyggingu og nýta skyggni á suðurhlið sem svalir fyrir íbúðir á 2. hæð í atvinnu- og fjölbýlishúsinu nr. 61 á lóð nr. 61-63 við Laugaveg.
Samþykki meðeigenda dags. 3. nóv. 2007 og 16. apríl 2008 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. febrúar 2010.
Nýtt samþykki meðeigenda dags. 9. mars 2010 og tölvupóstur frá burðarvirkishönnuði dags. 9. mars 2010 fylgir.
Stækkun: 5,4 ferm., 13,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 1.039
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Laugavegur 23 (01.172.013) 101435 Mál nr. BN040890
Villy Þór Ólafsson, Seljavegur 9, 101 Reykjavík
Dagbjartur ehf, Laugavegi 23, 101 Reykjavík
Foldir fasteignaþróunarfél ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi kjallara og 1. hæðar þar sem veitingasal er breytt í verslun og skrifstofurými breytt í veitingasal með kaffiveitingum í fl. II í húsi á lóð nr. 23 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

38. Laugavegur 4 (01.171.302) 101402 Mál nr. BN041072
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og endurgera verslunarhúsið á lóð nr. 4 við Laugaveg.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur báðar dagsettar 15. febrúar 2010 og gátlisti fyrir aðgengi í almenningsbyggingum dags. 22. febrúar 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Bókun forvarnasviðs SHS: SHS leggst ekki gegn því að erindið sé samþykkti með fyrirvara um að Reykjavíkurborg skoði hvort ekki sé eðlilegt að setja vatnsúðakerfi í húsið vegna verndunar á menningarverðmætum samanber húsið Laugavegur 6.

39. Laugavegur 40A (01.172.222) 101477 Mál nr. BN041059
Rosso ehf, Laugavegi 40A, 101 Reykjavík
Lali ehf, Blönduhlíð 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir gasgeymslu í undirgöngum íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 40A við Laugaveg.
Erindi fylgir samþykki húsfélags Laugavegs 40 og Laugavegs 40A dags. 15. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

40. Laugavegur 70 (01.174.204) 101607 Mál nr. BN041137
Sigurgeir Sigurjónsson ehf, Hverfisgötu 71, 101 Reykjavík
Sigurjón Sigurgeirsson, Laugavegur 128, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum svölum yfir 1. hæð og breyttu fyrirkomulagi í kjallara og í íbúð 0201, þvottahús og geymsla í kjallara verður séreign íbúðar og opnað er upp í ris á efstu hæð, sbr. fyrirspurn. BN036007, í húsi á lóð nr. 70 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 16.3. 2010, svarbréf Húsafriðunarnefndar dags. 18.3. 2010 og Minjasafns Reykjavíkur dags. 29.3. 2010
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

41. Rauðarárstígur 27 (01.244.002) 103176 Mál nr. BN041296
Sparisjóðabanki Íslands hf, Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, BNO411080 dags. 23. febrúar 2010, og koma fyrir gasgeymslu við bakhlið verslunar- og skrifstofuhússins nr. 27 við Rauðarárstíg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

42. Sigluvogur 8 (01.414.113) 105108 Mál nr. BN041367
Guðmundur Ingi Jónsson, Sigluvogur 8, 104 Reykjavík
Sótt er um leyft til að breyta innra skipulagi, byggja við til norðurs og stækka bílskúr við einbýlishúsið á lóð nr. 8 við Sigluvog.
Bréf frá hönnuði dags. 30. mars. 2010 fylgir erindinu.
Stækkun: kjallara ? ferm. ? rúmm. Stækkun: Bílskúrs 1,5 ferm., 6,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XX
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

43. Síðumúli 34 (01.295.201) 103840 Mál nr. BN041380
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum stærðarbreytingum á tönkum fyrir CO2 og N2, tankar fyir O2 hafa verið teknir burt af lóð nr. 34 við Síðumúla.
Tankar sem áður voru samþykktir á lóðinn sbr. BN40407: 24,5 ferm., 87,1 rúmm.
Tankar sem voru settir á lóð eru: 9 ferm., 38,2 rúmm.
Minnkun: 15,5 ferm., 48,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.941
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

44. Skálholtsstígur 2 (01.183.417) 101977 Mál nr. BN038381
Kristín Sveinbjarnardóttir, Skálholtsstígur 2, 101 Reykjavík
Guðrún Sveinbjarnardóttir, Skálholtsstígur 2, 101 Reykjavík
Helga Sveinbjarnardóttir, Starhagi 7, 107 Reykjavík
Unnur Sveinbjarnardóttir, Þýskaland, Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir ósamþykktri íbúð í kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 2 við Skálholtsstíg.
Erindi fylgir umboð frá Sýslumanninum í Reykjavík dags. 16. ágúst 2007 til að ganga frá málum dánarbús og virðingargjörð dags. 21. júlí 1929.
Einnig bréf umsækjanda dags. 12. janúar 2010, gögn úr manntali dags. 1. desember 1950, afsalsbréf dags. 10. október 1947, útdráttur úr skiptayfirlýsingu dags. 5. nóvember 1974, og þinglýsingarvottorð dags. 21. maí 2008.
Ennfremur íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 5. desember 2008.
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

45. Skildinganes 43 (01.674.209) 106868 Mál nr. BN040134
Högni Snjólfur Kristjánsson, Skildinganes 43, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta parhúsi í einbýlishús á lóð nr. 43 við Skildinganes.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 25. mars 2010 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

46. Skipasund 56 (01.357.312) 104459 Mál nr. BN041290
Rangá sf, Skipasundi 56, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri á steyptum sökkli á einni hæð með þaksvölum við hús á lóð nr. 56 við Skipasund.
Samþykki meðeigenda dags. 24.3. 2010 fylgir
Stækkun 35,9 ferm., 108,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.324
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Skólavörðustígur 16 (01.181.004) 101728 Mál nr. BN041339
ÞEJ fasteignir ehf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að færa inngang í verslun á jarðhæð á horn, gera tröppur með hitalögn við nýjan inngang og stækka skyggni yfir inngangi í verslun á jarðhæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 16 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Skriðustekkur 17-23 (04.616.202) 111837 Mál nr. BN041357
Lárus Einar Huldarsson, Skriðustekkur 23, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við suðurhlið einbýlishússins nr. 23 á lóð nr. 17-23 við Skriðustekk.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 30. mars 2010 þar sem er gerð grein fyrir breyttu deiliskipulagi.
Viðbygging: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Skúlagata 30 (01.154.305) 101120 Mál nr. BN041353
Vatn og Land II ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta afgreiðslu fyrir bílaleigubíla á 2. hæð á suðurhlið í húsi á lóð nr. 30 við Skúlagötu.
Meðfylgjandi er samþykki umsækjanda dags. 17. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

50. Spöngin 9-31 (02.375.201) 177193 Mál nr. BN041377
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II í mhl. 02 í rými 0102 í atvinnuhúsnæðinu nr. 11 á lóð nr. 9 - 31 við Spöngina.
Ennfremur er óskað eftir að erindi BN041125 verði dregið til baka
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Sundlaugavegur 16 (01.361.003) 104552 Mál nr. BN041368
Sigrún Erla Sigurðardóttir, Jórvík, 801 Selfoss
Sótt er um fá samþykkta ósamþykkta íbúð í risi fjölbýlishússins á lóð nr. 16 við Sundlaugaveg.
Erindi fylgir íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 6. apríl 2006.
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Uppfyllir ekki skilyrði um áður gerðar íbúðir.

52. Torfufell 21-35 (04.686.101) 112342 Mál nr. BN041347
Torfufell 25-35, húsfélag, Torfufelli 33, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða allar hliðar með sléttu og báraðri álklæðningu á álgrind, ekki verður einangrað undir klæðningu og einnig verða endurnýjuð opnanleg fög í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 25-35 við Torfufell.
Fundargerð húsfélagsins Torfufelli 25-35 dags. 1. mars 2010 og ástandsskoðun og viðhaldsmat dags. 18. júní 2009 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Skoðist á staðnum.

53. Úlfarsbraut 122-124 (05.055.701) 205755 Mál nr. BN041352
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja boltagerði upp til bráðabirgða í 2 - 3 ár á skólalóðina nr. 122-124 við Úlfarsbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

54. Þingholtsstræti 2-4 (01.170.205) 101333 Mál nr. BN041298
Íslenska eignafélagið ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN039133 dags. 11. nóvember 2008 og stækka aðaldyr 1. hæðar og gluggana sitt hvoru megin á verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóð nr. 2-4 við Þingholtsstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjasafns Reykjavíkur og Húsafriðunarnefndar báðar dags. 7. apríl 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Útfærslur dyra skulu vera í samræmi við aldur hússins.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

55. Þingvað 31 (04.791.303) 201480 Mál nr. BN041363
Ívar Trausti Jósafatsson, Viðarás 26, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN038153 dags. 18. júní 2008 þannig að koma fyrir tveimur þakgluggum og fyrirkomulag þvottaherbergis og svefnherbergis á 2. hæð breytist í einbýlishúsinu á lóð nr. 31 við Þingvað.
Bréf frá hönnuði dags. 30. mars 2010 fylgir.
Stækkun: 3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 231
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

56. Snorrabraut 56 (01.193.204) 102534 Mál nr. BN041405
Eignaumsjón hf, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Jóhann Ágúst Jóhannson, Eignaumsjón hf. sækir um f.h. Húsfélagsins Snorrabraut 56, mhl. 03, landnúmer 102534 staðgr.nr. 01.193.204 að fjölbýlishúsið á lóðinni mhl. 03 verði skráð sem Snorrabraut 56B. Málinu fylgir tölvubréf dags. 24. mars 2010.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

57. Bergstaðastræti 52 (01.185.306) 102174 Mál nr. BN041374
Kjartan Ólafsson, Bergstaðastræti 52, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að útbúa sólpall ofaná þak að Bragagötu til nota fyrir íbúð á 2. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 52 við Bergstaðastræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

58. Bugðulækur 7 (01.343.313) 104012 Mál nr. BN041359
Ólafur Elfar Sigurðsson, Bugðulækur 7, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að hækka þak og byggja kvist á húsið á lóð nr. 7 við Bugðulæk.
Bréf frá eiganda dags. 29. mars 2010 fylgdi erindinu
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

59. Framnesvegur 44 (01.133.416) 100294 Mál nr. BN041349
Jóhann Örn Ingvason, Heiðarholt 34, 230 Keflavík
Spurt er hvort samþykki fáist fyrir íbúð 0101 á 1. hæð og í kjallara húss nr. 44 við Framnesveg.
Erindi fylgir söluyfirlit dags. 25. mars 2010.
Jákvætt.
Samanber áður samþykkt erindi BN038787 frá 25. nóvember 2008 þar sem byggingarleyfi var ekki gefið út. Sækja skal um nýtt byggingarleyfi.

60. Grettisgata 53B (01.174.227) 101630 Mál nr. BN041360
Snæbjörn Þór Stefánsson, Grettisgata 51, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að fjarlægja utanáliggjandi tröppur, grafa frá húsi og gera nýjan inngang á jarðhæð og hvort ósamþykkt íbúð á 2. hæð fengist samþykkt með sýndum breytingum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 53B við Grettisgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

61. Gunnarsbraut 32 (01.247.112) 103344 Mál nr. BN041351
Stefán Bogi Stefánsson, Gunnarsbraut 32, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja tvöfalda svalahurð og svalir 90cm x 290 cm á 1. hæð suðurhliðar hússins á lóð nr. 32 við Gunnarsbraut.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi er taki mið af athugasemdum á fyrirspurnarblaði.

62. Kirkjuteigur 11 (01.360.510) 104544 Mál nr. BN041386
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, Kirkjuteigur 11, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að lyfta þaki og bæta þannig við einni hæð á húsið á lóð nr. 11 við Kirkjuteig.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi í samræmi við gildandi skipulagsskilmála.

63. Laugavegur 12 (01.171.401) 101410 Mál nr. BN041381
Guðfinnur Sölvi Karlsson, Asparholt 3, 225 Álftanes
Spurt er hvort veitingahús í flokki II yrði samþykkt eins og meðfylgjandi teikningar sýna af húsi á lóð nr. 12 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

64. Maríubaugur 13-19 (04.125.301) 186852 Mál nr. BN041385
Kristín Halldórsdóttir, Maríubaugur 15, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja upp sólskála á vesturhlið raðhússins nr. 15 á lóð nr. 13 - 19 við Maríubaug 15.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

65. Stangarholt 10 (01.246.005) 103276 Mál nr. BN041378
Atli Viðar Thorstensen, Stangarholt 10, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að gera svalir likt og samþykkt var með erindinu BN025046 dags. 13. ágúst 2002 á hús nr 6-8 sjá teikningu, á fjölbýlishúsið á lóð nr. 10-12 við Stangarholt.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fundi slitið kl. 12.00.

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson
Þórður Búason Guðfinna Ósk Erlendsdóttir
Eva Geirsdóttir