Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2010, þriðjudaginn 7. september kl. 10:10 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 602. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Björn Kristleifsson, Bjarni Þór Jónsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir

Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Ármúli 5 (01.262.002) 103514 Mál nr. BN041990

Hallarmúli sf, Hallarmúla 1, 108 Reykjavík

Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna sameiningar á matshluta 01 og 02 í matshluta 01 á lóð nr. 5 við Ármúla.

Stækkun: XX ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Árvað 5 (04.731.101) 203628 Mál nr. BN041989

Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að koma fyrir útibúi frá leikskólanum Rauðhól í hluta húsnæðis sem hingað til hefur verið notað sem grunnskóli í Norðlingaholti á lóð nr. 3 við Árvað.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Bakkagerði 14 (01.816.307) 108117 Mál nr. BN041538

Gísli Hafþór Jónsson, Bakkagerði 14, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu sem nota á sem garðstofu við einbýlishúsið á lóð nr. 14 við Bakkagerði.

Stækkun: 26,5 ferm., 70,0 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 5.390

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

4. Bergstaðastræti 27 (01.184.414) 102074 Mál nr. BN042001

Vilborg Ásgeirsdóttir, Bergstaðastræti 27b, 101 Reykjavík

Ingibjörg Tómasdóttir, Reynimelur 84, 107 Reykjavík

Sótt er um samþykkt á reyndarteikningum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 27 við Bergstaðastræti.

Erindi BN035522 er jafnframt dregið til baka.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bjarmaland 18-24 (01.854.402) 108779 Mál nr. BN041928

Pétur Kúld Pétursson, Þingholtsstræti 16, 101 Reykjavík

Anna Sigríður Einarsdóttir, Þingholtsstræti 16, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka anddyri og breyta innra fyrirkomulagi á einbýlishúsi nr. 20 á lóð nr. 18-24 við Bjarmaland.

Jafnframt er áður samþykkt erindi, BN041726 dags. 29. júní 2010 fellt úr gildi en því fylgdi samþykki meðlóðarhafa.

Stækkun 6,8 ferm., 19 rúmm.

Gjald kr 7.700 + 1.463

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

6. Borgartún 20 (01.221.002) 102797 Mál nr. BN041935

Reginn A2 ehf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir innanhúsbreytingum í mhl. 02 á 1, 3 og 4. hæð þar sem stækkuð eru salerni, komið fyrir salerni fyrir fatlaða, mötuneyti fært af 3. hæð upp á 4. hæð og koma fyrir brunastiga á verslunarhúsnæðinu á lóð nr. 20 við Borgartún.

Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 26. ágúst 2010.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

7. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN041721

Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir breytingum, sem hafa orðið á glerskála á byggingartíma Höfðatúns 2, 4. áfanga á lóð nr. 8-16 við Borgartún.

Jafnframt er erindi BN041451 dregið til baka.

Meðfylgjandi eru skýringaruppdrættir og bréf arkitekts dags. 22.6.2010 ásamt brunahönnun frá EFLU dags. 6. mars 2007 endurskoðuð 6. júlí 2010.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Brautarholt 1 125660 (00.018.000) 125660 Mál nr. BN042007

Bjarni Pálsson, Brautarholt 1, 116 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr steinsteypu með bárujárnsklæddu timburþaki og breyta þakplötu yfir sólstofu úr steinsteypu í krossviðarklætt sperruþak með ábræddum þakpappa við einbýlishúsið Brautarholt 1, (Staðgreinir 04-00018000, landnúmer 125660) á Kjalarnesi.

Jafnframt er erindi BN039851sem fjallar um stakstæðan bílskúr fellt úr gildi.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 31.8. 2010

Stærðir stækkun: mhl. 02 íbúð; - 2,4 ferm., 13,1 rúmm.

mhl. 03 bílskúr; 32 ferm., 202,5 rúmm.

Samtals stækkun mhl. 02 og 03, 29,6 ferm., 215,6 rúmm.

Samtals stærðir eftir breytingar: 348,4 ferm., 1.285,5 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 16.601

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

9. Brekkustígur 4A (01.134.111) 100321 Mál nr. BN041639

María Jónsdóttir, Brekkustígur 4a, 101 Reykjavík

Gunnar Helgi Kristinsson, Brekkustígur 4a, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka steinsteypt einbýlishús með því að byggja viðbyggingu og svalir á bakhlið og hækka gafla og byggja #GLMansard#GL þak á einbýlishúsið á lóð nr. 4A við Brekkustíg.

Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 13. júní 2010, bréf sömu til Borgarverkfræðings dags. 2. sept. 1999, ásamt umsögn skipulagsins dags. 4. mars. Einnig lóðaleigusamningur innfærður til þinglýsingar 7.7.2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. sept. 2010. Kynning stóð yfir frá 28. júlí 2010 til og með 26. ágúst 2010. Engar athugasemdir bárust.

Stærðir fyrir stækkun: 111,1 ferm., 447,2 rúmm.

Stækkun: 74,4 ferm., 118,2 rúmm.

Stærðir eftir stækkun: 185,8 ferm., 565,4 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 9.101

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Bröndukvísl 18 (04.235.512) 110924 Mál nr. BN041912

Halldór Jónsson, Bröndukvísl 18, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir stækkun úr léttum timburklæddum útiveggjaeiningum og endurbyggingu tengibyggingar á milli íbúðarhlutans og bílskúrs í einbýlishúsinu á lóð nr. 18 við Bröndukvísl.

Sbr. SN100200 dags. 19. júlí 2010 Stækkun: 23,6 ferm., XX rúmm.

Gjald kr. 7.700 + XX

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Bugðulækur 17 (01.343.318) 104017 Mál nr. BN041643

Sævar Smári Þórðarson, Bugðulækur 17, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja handrið úr járni og timbri, sbr. fyrirspurn BN040778, á þaki bílskúrs sem tilheyrir íbúð 01í fjölbýlishúsi á lóð nr. 17 við Bugðulæk.

Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 3. júní 2010 við teikn. dags. 28.5. 2010

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Enn hafa uppdrættir ekki verið lagfærðir þannig að handrið uppfylli kröfur byggingarreglugerðar um handriðshæð.

Ekki kemur til greina að samþykkja handrið sbr. uppdrátt dags. 24. júní 2010.

12. Bæjarháls, Réttarháls (04.309.601) 190769 Mál nr. BN042003

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss sem felast í breyttri skrifstofuaðstöðu kokks og stækkaðri þvottaaðstöðu í eldhúsi á hæð 2 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur á lóð nr. 1 við Bæjarháls.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vantar áritun aðalhönnuðar á uppdrætti.

13. Einholt 2 (01.244.101) 103179 Mál nr. BN042002

Fasteignin Einholti 2 ehf, Tunguási 9, 210 Garðabær

Kuti slf, Vestmannabraut 30, 900 Vestmannaeyjar

Sótt er um leyfi til að byggja fernar svalir, innrétta sex íbúðir, byggja sólpalla og hjóla- og vagnageymslu á baklóð atvinnuhúss á lóð nr. 2 við Einholt.

Erindi fylgir samþykki tveggja meðeigenda áritað á uppdrátt.

Nýbygging: 30,1 ferm., 76,1rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 5.860

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Fiskislóð 29 (01.089.102) 209682 Mál nr. BN041998

Bílaþvottastöðin Löður ehf, Bæjarlind 2, 201 Kópavogur

Sótt er um leyfi til að breyta brunahönnun, fjölga stálsúlum og bæta við skilti á suðvesturgafli, sjá erindi BN035355 dags. 19. júní 2007, á bílaþvottastöðinni á lóð nr. 29 við Fiskislóð.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Fiskislóð 31 (01.089.101) 209683 Mál nr. BN041675

North Properties ehf, Þverási 25, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á göflum og til að framlengja gaflveggi á efstu hæð, byggja veggi milli þaksvala og til að færa ræstingar á 2. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 31 við Fiskislóð.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. júní fylgir erindinu.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Flugvöllur 106748 (01.66-.-99) 106748 Mál nr. BN041996

Isavia ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að girða 2 metra háa netamöskvagirðingu húðuð með varanlegum gráum lit umhverfis flugstjórnarmiðstöðina í Reykjavík á lóð með staðgreinir 202-9310 og landnúmer 106748 við Flugvöllinn.

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Gerðarbrunnur 15 (05.056.106) 205782 Mál nr. BN042005

Sigurður Þór Snorrason, Bergstaðastræti 73, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fella niður/minnka bílgeymslu og stækka eldhús í einbýlishúsinu á lóð nr. 15 við Gerðarbrunn.

Gjald kr. 7.700

Synjað.

Með vísan til athugasemda skipulagsstjóra á umsóknarblaði.

18. Grandagarður 8 (01.115.101) 100046 Mál nr. BN041945

Búr húsið ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík

Grandagarður 8 ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á 3. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 8 við Grandagarð.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Grjótháls 7-11 (04.304.001) 111019 Mál nr. BN042006

G-7 ehf, Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að aðskilja stjórnstöð frá skrifstofu með millivegg milli ása 13 og 14 á 1. hæð og til að stækka lager fyrir séralagaðan bjór milli ása 20 og 21 á 1. hæð í Ölgerðinni á lóð nr. 7-11 við Grjótháls.

Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 31. ágúst 2010.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Haðarstígur 22 (01.186.627) 102322 Mál nr. BN041975

Bragi Gíslason, Haðarstígur 22, 101 Reykjavík

Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi BN035841 þar sem veitt var leyfi til að lyfta þaki á parhúsi á lóð nr. 22 við Haðarstíg.

Stækkun 9 ferm., 11 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 847

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

21. Hvammsgerði 9 (01.802.505) 107711 Mál nr. BN041986

Ágúst Loftsson, Hvammsgerði 9, 108 Reykjavík

Ragnheiður V Sigtryggsdóttir, Hvammsgerði 9, 108 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að stækka kvisti í risi, hækka þak að hluta og breyta innra fyrirkomulagi einbýlishússins á lóð nr. 9 við Hvammsgerði.

Stærðir: Mhl. 01 íbúð stækkun; xx rúmm.

samtals eftir stækkun 174,8 ferm., 509,4 rúmm.

Stærðir mhl. 02 bílskúr; 36 ferm., 111,6 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + xx

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

22. Hverafold 1-5 (02.874.201) 110375 Mál nr. BN041980

K - 2 fasteignir ehf, Hörðukór 5, 203 Kópavogur

Gullöldin ehf, Hverafold 5, 112 Reykjavík

Sótt er um að loka milli rýma 0101 og 0102 í mhl. 02 með EI60 lokun sbr. fyrirspurn BN041828 á 1. hæð í verslunarhúsi nr. 5 á lóð nr. 1-5 við Hverafold.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

23. Klyfjasel 10 (04.997.605) 113391 Mál nr. BN041966

Eggert Sigurðsson, Klyfjasel 10, 109 Reykjavík

Ingibjörg Svanþórsdóttir, Klyfjasel 10, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi fyrir þegar byggðu hesthúsi (geymslu) mhl. 03, úr timbri á steyptum sökkli á lóð nr. 10 við Klyfjasel.

Meðfylgjandi er sökkla- og fokheldisvottorð fyrir íbúðarhúsið dags. 29.6.1981 og 28.9. 1982, einnig úttekt á botnplötu fyrir hesthús og bílskúr dags. 23.7. 1981.

Stærðir: 23,9 frem., 82,6 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 1.840

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Kvisthagi 1 (01.543.308) 106446 Mál nr. BN041984

Halldóra Kristín Bragadóttir, Kvisthagi 1, 107 Reykjavík

Árni Björn Björnsson, Kvisthagi 1, 107 Reykjavík

Sótt er um samþykkt á reyndarteikningum og til að skilgreina tvo sérnotafleti við fjölbýlishúsið á lóð nr. 1 við Kvisthaga.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt, dags. 30. ágúst 2010.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

25. Lambhagavegur 12B (02.641.101) 218296 Mál nr. BN041978

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta götunúmeri 12B í 10A sbr. erindið BN040786 dags. 15. des. 2009. á lóð nr. 10 við Lambhagaveg.

Erindi BN041899 er dregið til baka.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

26. Laugavegur 21 - Klapp (01.171.108) 101374 Mál nr. BN042008

Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að fjölga gestum úr 16 í 49 í veitingahúsi á lóðinni Laugavegur 21-Klapp.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Laugavegur 23 (01.172.013) 101435 Mál nr. BN041969

Foldir fasteignaþróunarfél ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík

Villy Þór Ólafsson, Seljavegur 9, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta verslun og afgreiðslurými í kaffihús með veitingar í fl. II og kaffiveitingasvæði í leiksvæði á 1. hæð í húsi á lóð nr. 23 við Laugaveg.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

28. Laugavegur 26 (01.172.205) 101460 Mál nr. BN042000

Reitir fasteignafélag hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi skrifstofurýmis 0201 og 0301 í verslunarhúsnæðinu nr. 26 við Laugaveg.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Reynihlíð 8-10 (01.782.805) 107551 Mál nr. BN041878

Björn B Thors, Reynihlíð 10, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta sólstofu 2. hæðar, minnka svalir og breyta hurð út í garð á 1. hæð parhússins nr. 10 á lóð nr. 8-10 við Reynihlíð.

Samþykki meðlóðarhafa dags. 3. sept. 2010 fylgir erindinu.Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Sigluvogur 4 (01.414.111) 105106 Mál nr. BN041964

Guðmundur Ásgeir Björnsson, Sigluvogur 4, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa núverandi bílskýli mhl 70 og byggja staðsteypt bílskýli sem verður mhl 2 og verður tengt bílskýli nr. 6 á lóð nr. 4 við Sigluvog.

Jákvæð fyrirspurn BN041810 dags. 20. júlí 2010 fylgir málinu.

Niðurrif: Bílskúr 27,7 ferm., 72,0 rúmm.

Stærð: Nýr bílskúr 59,4 ferm., 216,8 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 16.694

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Að fengnu samþykki nágranna og lagfæringu uppdrátta verður málið grenndarkynnt.

31. Sigluvogur 6 (01.414.112) 105107 Mál nr. BN041965

Jóhann Örn Þórarinsson, Sigluvogur 6, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að rífa núverandi bílskýli mhl 70 og byggja staðsteypt bílskýli sem verður mhl 2 og verður tengt bílskýli nr. 4 á lóð nr. 6 við Sigluvog.

Jákvæð fyrirspurn BN041810 dags. 20. júlí 2010 fylgir málinu og er tengt máli BN041964.

Niðurrif: Bílskúr 27,7 ferm., 72,0 rúmm.

Stærð: Nýr bílskúr 50,0 ferm., 182,5 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 14.053

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Að fengnu samþykki nágranna og lagfæringu uppdrátta verður málið grenndarkynnt.

32. Skipasund 11 (01.356.306) 104382 Mál nr. BN041979

Jóhanna Þórdórsdóttir, Skipasund 11, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta, sjá erindi BN035604 dags. 11. apríl 2007, staðsetningu og stærð á opnanlegum fögum í gluggum fjölbýlishússins á lóð nr. 11 við Skipasund.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

33. Skúlagata 17 (01.154.102) 174222 Mál nr. BN042004

101 Atvinnuhúsnæði ehf, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykkt á reyndarteikningum af húsi á lóð nr. 17 við Skúlagötu.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Stórhöfði 9 (04.036.501) 110545 Mál nr. BN042025

Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að færa tvær kennslustofur S-9 og stofu S-13 frá lóð nr. 168 við Gvendargeisla til geymslu á lóð nr. 9 við Stórhöfða.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

35. Stórhöfði 9 (04.036.501) 110545 Mál nr. BN042026

Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að færa tvær kennslustofur K-31 mhl. 2261030 og stofu K-34 mhl. 2261029 frá lóð nr. 67 við Sólvallagötu til geymslu á lóð nr. 9 við Stórhöfða.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

36. Stuðlasel 35 (04.923.408) 112629 Mál nr. BN041987

Reynir Þrastarson, Stuðlasel 35, 109 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN040060 dags. 23. júní 2009 þar sem farið er fram á að breyta áður samþykktu erindi BN038802. Breytt er byggingarefni viðbyggingar útveggjaeininga úr steinsteypu í timbur klætt keramikflísum á einbýlishúsinu á lóð nr. 35 við Stuðlasel.

Samþykki Stuðlasel 33 fylgir á teikningu.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Suðurgata 41-43 (01.600.101) 218919 Mál nr. BN041933

Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að loka safnbúð með glerfelliveggjum utan verslunartíma á 1. hæð Þjóðminjasafns Íslands á lóð nr. 41 við Suðurgötu.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

38. Sundlaugavegur 30 (01.37-.101) 104720 Mál nr. BN041992

Íþrótta- og tómstundaráð Rvíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að innrétta þreksal fyrir 50-60 notendur í kjallara Sundmiðstöðvarinnar í Laugardal á lóð nr. 30 við Sundlaugaveg.

Meðfylgjandi er bréf og skýringarmyndir arkitekts dags. 30. ágúst 2010 og yfirlýsing verkfræðings vegna brunamála dags. 31. ágúst 2010.

Gjald kr. 7.700

Frestað.

Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Tjarnargata 39 (01.143.101) 100949 Mál nr. BN041685

Eyjólfur Björgvin Guðbjörnsson, Njarðvíkurbraut 30, 260 Njarðvík

Tjarnargata 39,húsfélag, Tjarnargötu 39, 101 Reykjavík

Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi, m. a. nýjum íbúðarherbergjum í kjallara og risi og nýjum stigum milli hæða og til að hækka handrið á svölum 3. hæðar og stækka svalir á 2. hæð út á þak viðbyggingar við þríbýlishúsið á lóð nr. 39 við Tjarnargötu.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. ágúst 2010 fylgir erindinu. Kynning stóð frá 25. júní til 27. júlí 2010. Engar athugasemdir bárust.

Gjald kr. 7.700 + 7.700

Frestað.

Lagfæra skráningartöflu.

40. Vesturás 31-39 (04.385.603) 111520 Mál nr. BN041971

Helga Stefánsdóttir, Vesturás 37, 110 Reykjavík

Sótt er um samþykki til að endurnýja erindi BN034324 dags. 25. júní 2006 þar sem farið var fram á að nýta áður sökkulrými fyrir tómstundarými og geymslukjallara, byggja steinsteypta viðbyggingu við suðausturhlið 1. hæðar ásamt palli með heitum potti við hús nr. 37 á lóð nr. 31-39 við Vesturás.

Stærð: Kjallari 58,7 ferm., 138,5 rúmm. Viðbygging 18,6 ferm., 55,4 rúmm. Samtals 77,0 ferm., 193,9

Gjald kr. 7.700 + 14.930

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

41. Vesturgata 22 (01.132.002) 100192 Mál nr. BN041963

Vesturgata 22,húsfélag, Vesturgötu 22, 101 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta inngöngupalli og byggja tvennar svalir á vesturhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 22 við Vesturgötu.

Erindi fylgir jákvæð fyrirspurn dags. 10. ágúst 2010.

Einnig fylgir samþykki eigenda dags. 4. júní 2010, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 1. september og Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. september 2010.

Gjald kr. 7.700

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Vesturgata 23 (01.136.003) 100506 Mál nr. BN041808

Jón Hafnfjörð Ævarsson, Álfheimar 70, 104 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að breyta sölubúð í íbúð, rými 0101, sbr. fyrirspurn BN039760, ásamt því að gerð er grein fyrir ósamþykktri íbúð í bakbyggingu á 1. hæð í húsi á lóð nr. 23 við Vesturgötu.

Erindi fylgir þinglýstur eignaskiptasamningur dags. 22. nóvember 1983, útreikningur á eignaskiptum á 1. hæð dags. í apríl 1986 og þinglýst viðbót við skiptayfirlýsingu dags. 12. maí 1986 sem og íbúðarskoðun dags. 12.8.2010 og bréf arkitekts dags. 14. júlí 2010.

Gjald kr. 7.700 + 7.700

Frestað.

Lagfæra skráningartöflu.

43. Öldugata 2 (01.136.311) 100569 Mál nr. BN041970

Andl þjóðarráð baháía á Íslandi, Pósthólf 536, 121 Reykjavík

Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi, BN026978 upphaflega samþykkt 8. júní 2004 þar sem sótt var um #GLleyfi til að rífa bílgeymslu við húsið nr. 2 við Öldugötu og að byggja þess í stað móttökuskála á norðurhluta lóðarinnar ásamt lyftustokki og tilheyrandi tengigangi við norðurhlið hússins. Skálinn verði byggður úr steinsteypu og stáli, klæddur með múrkerfi með svipaðri áferð og hús eða klæddur með grágrýti. Á þaki verði gras. Jafnframt verði byggður nýr kvistur í norðurþak af sömu stærð og með svipaðri áferð og kvistur í suðurþaki. Ennfremur er sótt um leyfi til að breyta notkun og innra fyrirkomulagi allra hæða hússins og koma þar fyrir fundar- og kennsluherbergjum ásamt matsal og framreiðslueldhúsi á fyrstu hæð.#GL

Greiða skal fyrir 4,7 bílastæði í flokki III.

Niðurrif: Bílskúr 32.2 ferm. og 81 rúmm.

Stækkun: 26 ferm. og 199.5 rúmm.

Gjald kr. 7.700 + 15.362

Samþykkt.

Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Fyrirspurnir

44. Klukkurimi 16 (02.544.509) 109473 Mál nr. BN042018

Kristinn Sigurðsson, Klukkurimi 16, 112 Reykjavík

Spurt er hvort byggja megi 10 eða 15 fermetra frístundahús úr timbri á lóð nr. 16 við Klukkurima.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

45. Kúrland 11 (01.861.401) 108796 Mál nr. BN042009

Guðríður Sigurðardóttir, Kúrland 11, 108 Reykjavík

Grétar Þórarinn Gunnarsson, Kúrland 11, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að grafa frá og gera glugga á kjallara raðhúss nr. 11 á lóð nr. 1-29 2-30 við Kúrland.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

46. Laugavegur 21 - Klapparstígur (01.171.108) 101374 Mál nr. BN041923

Reynar Davíð Ottósson, Safamýri 67, 108 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fáist fyrir útiveitingar með aðgang að snyrtingum á Laugavegi 21 frá kl. 11:30 - 22:00 í Sirkusportinu, milli Klapparstígs 30 og Laugavegs 21

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. sept. 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 3. sept. 2010.

Vísað er til umsagna skipulagsstjóra frá 3. sept. 2010 og umsagnar byggingarfulltrúa á fyrirspurnarblaði.

47. Ljósvallagata 18 (01.162.315) 101288 Mál nr. BN041997

Arkitektur.is ehf, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja sólskála yfir núverandi svalir á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 18 við Ljósvallagötu.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

48. Lokastígur 10 (01.181.105) 101742 Mál nr. BN041917

María Hjálmtýsdóttir, Lokastígur 10, 101 Reykjavík

Spurt er hvort veitt yrði leyfi fyrir rekstri gistiheimilis í öllu húsinu sem stendur á lóð nr. 10 við Lokastíg.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 3. sept. 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. sept. 2010.

Nei.

Samræmist ekki deiliskipulagi samanber umsögn skipulagstjóra.

49. Skúlagata 13 (01.153.601) 175690 Mál nr. BN041994

Ingólfur Gauti Ingvarsson, Gvendargeisli 28, 113 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka innkeyrsluhurð um 220 cm og hækkana um 50 cm. í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 13 við Skúlagötu.

Jákvætt.

Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi umsögn burðarvirkishönnuðar.

Vakin er athygli á því að sækja skal um breytta notkun á húsnæðinu sé um það að ræða.

50. Sundaborg 8 (01.336.702) 172376 Mál nr. BN042010

Thomas Jan Stankiewicz, Blikanes 24, 210 Garðabær

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta félagsheimili í vörugeymslunni á lóð nr. 8 við Sundaborg.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

51. Sundlaugavegur 8 (01.360.210) 104525 Mál nr. BN041999

Gunnar Þórðarson, Sundlaugavegur 8, 105 Reykjavík

Spurt er hvort leyfi fengist til að staðsetja skúr til óákveðins tima á lóð nr. 8 við Sundlaugaveg.

Ljósmynd fylgir málinu

Frestað.

Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

52. Templarasund 3 (01.141.210) 100901 Mál nr. BN041993

Guðjón Styrkársson, Njálsgata 110, 105 Reykjavík

Spurt er hvort leyft yrði að innrétta veitingahús í flokki III í rými 0102 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 3 við Templarasund.

Frestað.

Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

53. Þórsgata 15 (01.181.107) 101744 Mál nr. BN041977

Lúðvík Kristinsson, Austurgata 25, 220 Hafnarfjörður

Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja anddyri við kjallara fjölbýlishússins nr. 15 við Þórsgötu.

Nei.

Með vísan til athugasemda skipulagstjóra á fyrirspurnarblaði.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 11:35.

Magnús Sædal Svavarsson

Bjarni Þór Jónsson

Sigrún Reynisdóttir

Björn Kristleifsson

Jón Hafberg Björnsson

Þórður Búason

Guðfinna Ósk Erlingsdóttir

Eva Geirsdóttir