Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2010, miðvikudaginn 12. maí kl. 10.10, var haldinn 207. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12-14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Ásgeir Ásgeirsson, Torfi Hjartarson, Stefán Benediktsson, Sigurður Kaiser Guðmundsson og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Björn Axelsson, Margrét Þormar og Margrét Leifsdóttir.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 7. maí 2010.

2. Urðarbrunnur 130-134 Skyggnisbraut 20-30, breyting á deiliskipulagiMál nr. SN100180
VA arkitektar ehf, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Lögð fram tillaga VA arkitekta að breytingu á deiliskipulagi Hallar Hamrahlíðarlönd og suðurhlíðar Úlfarsfells Hverfi 4 vegna lóðanna Urðarbrunns 130-134 og Skyggnisbrautar 20-30 mótt. 26. apríl 2010. Í breytingunni er gerð tillaga að því að skipta lóðinni í þrennt, fjölga íbúðum auk þess sem byggingarreitur fyrir bílageymslu er felldur niður að hluta.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.
Vísað til borgarráðs.

3. Vatnsmýrin, samgöngumiðstöð, (01.6) Mál nr. SN100183
tillaga að deiliskipulagi vegna samgöngumiðstöðvar
Teiknistofan ehf, Brautarholti 6, 105 Reykjavík
Lögð fram drög að tillögu Teiknistofunnar ehf. dags. í maí 2010 að deiliskipulagi vegna samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri.
Halldór Guðmundsson og Halldór Eiríksson arkitektar kynntu.
Ásgeir Ásgeirsson vék af fundi við umfjöllun málsins

4. Borgartúnsreitur vestur, deiliskipulag staðgreinireitur 1.216(01.216)Mál nr. SN090424
Lögð fram tillaga Vinnustofunnar Þverá að deiliskipulagi Borgartúnsreits vestur samkvæmt uppdrætti dags. 12. maí 2010.
Valdís Bjarnadóttir arkitekt kynnti
Frestað.
Ásgeir Ásgeirsson vék af fundi við umfjöllun málsins

5. Bergstaðastræti 16-20, Spítalastígur 6b, (01.184.0) Mál nr. SN090116
breyting á deiliskipulagi Bergstaðastrætisreits
KRADS ehf, Hafnarstræti 19, 101 Reykjavík
Laug ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Krads f.h. Lauga ehf. dags. 18. mars 2009 um breytingu á deiliskipulagi Bergstaðastrætisreits vegna lóðanna nr. 16,18 og 20 við Bergstaðastræti og lóðarinnar nr. 6B við Spítalastíg samkvæmt uppdrætti Krads dags. 8 júní 2009 . Í breytingunni felst að breyta heimild til að hafa hótelíbúðir. Einnig lagt fram samkomulag BHB byggingarfélags og Festar frá 18. desember 2008 og bókun húsafriðunarnefndar frá 15. maí 2008. Tillagan var auglýst frá 26. júni til og með 28. október 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Regína Eiríksdóttir dags. 26. júní, Egill Þórðarson og Sara McMahon dags. 5. ágúst 2009, Hilmir Víglundsson og Jón Rafn Antonsson fh. ORO ehf. dags. 6. ágúst 2009, Ingibjörg Friðriksdóttir dags. 5. ágúst 2009, og Bryndís Jónsdóttir, Baldur Björnsson, Einar Árnason, Kári Halldór, Stefán Þór Steindórsson, dags. 3. ágúst og 2. sept. 2009, Ingibjörg Stefánssdóttir, dags. 7. ágúst 2009, íbúasamtök miðborgar dags. 29. júlí 2009, Þóra Andrésdóttir dags. 6. sept. 2009, Katrín Fjeldsted dags. 7. sept. 2009, Vésteinn Valgarðsson dags. 8. sept. 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 10. maí 2010.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

6. Njarðargata 25, breyting á deiliskipulagi (01.186.5) Mál nr. SN090437
Magnús Albert Jensson, Langagerði 88, 108 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Magnúsar Jenssonar, dags. 26. nóvember 2009, varðandi breytingu á deiliskipulagi Nönnugötureits vegna lóðarinnar nr. 25 við Njarðargötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli samkvæmt uppdrætti, dags. 25. nóvember 2009. Grenndarkynningin stóð frá 6. janúar til og með 3. febrúar 2010. Eftirfarandi aðilar gerðu athugasemdir: Harpa Njáls, f.h. íbúa að Nönnugötu 14, dags. 3. febrúar 2010 og Gunnar Guðmundson og Margrét Kristinsdóttir, dags., 3. febrúar 2010. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt upplýsingum um skuggavarp og umsögn skipulagsstjóra dags. 10. maí 2010.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð og umsagnar skipulagsstjóra.

7. Gufunes, útivistarsvæði, breyting á deiliskipulagi (02.2) Mál nr. SN090170
Fjörefli ehf, Suðurlandsbraut 48, 108 Reykjavík
Eyþór Kristján Guðjónsson, Mánabraut 7, 200 Kópavogur
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Fjöreflis ehf. mótt. 7. maí 2009 um breytingu á deiliskipulagi Gufunes útivistarsvæði vegna skemmtigarðs. Í breytingunni felst að færa og stækka byggingarreit samkvæmt uppdrætti Landarks dags. 5. maí 2009. Einnig var lögð fram eldri umsögn umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl 2009, fundargerð af samráðsfundi dags. 11. júní 2009, lagfærðir uppdrættir dags. 16. júní 2009, breytt 31. ágúst 2009 og lagfærðir 7. maí 2010 og umsögn umhverfis - og samgöngusviðs dags. 12. júní 2009. Einnig lögð fram bókun Hverfaráðs Grafarvogs dags. 3. september og 8. desember 2009, bréf ÍTR dags. 22. september 2009, bréf Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 19. nóvember 2009.
Tillagan var auglýst frá 18. nóvember 2009 til og með 4. janúar 2010. Eftirtaldur aðili sendi inn athugasemdir: Rúnar G. Valdimarsson, dags. 22. desember 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 10. maí 2010.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

8. Vallarstræti, breyting á deiliskipulagi (01.140.4) Mál nr. SN100060
Lagt fram erindi Björns Ólafs arkitekts, dags. 18. febrúar 2010, varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðanna nr. 7 við Aðalstræti, nr. 4 við Vallarstræti og nr. 2 við Thorvaldssenstræti. Í breytingunni felst að byggt verði fimm hæða hús með kjallara sunnan Vallarstrætis á nýrri lóð sem sameinar lóðirnar Aðalstræti 7 samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrátta dags. 23. apríl 2010
Kynnt.

9. Bryggjuhverfi, breyting á deiliskipulagi (04.0) Mál nr. SN100148
Björgun ehf, Sævarhöfða 33, 110 Reykjavík
Lagt fram erindi Björns Ólafs arkitekts fh. Björgunar dags. 3. maí 2010 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Bryggjuhverfis. Í breytingunni felst fjölgun íbúða á lóðunum 12 A, B, C, D og 15C.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál

10. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN041531
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 586 frá 11. maí 2010.

11. Klapparstígur 17, nýbygging (01.152.402) Mál nr. BN041158
Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, Kjartansgata 10, 105 Reykjavík
Marías Sveinsson, Langholtsvegur 132, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fimm íbúða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með utanáliggjandi stiga, kjallara og þrjár hæðir á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 30. mars 2010, bréf hönnuðar dags. 8. mars 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 19. mars 2010.
Stærðir: Kjallari 21 ferm., 1. hæð 138,3 ferm., 2. hæð 152 ferm., 3. hæð 152 ferm.
A-rými samtals: 463,3 ferm., 1.611,1 rúmm.
B-rými samtals: 57,4 ferm.
Samtals 520,7 ferm., 1.611,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 124.055
Ráðið telur að breyta þurfi byggingarlýsingu á þann hátt að húsið verði málað að utan auk þess sem gera þarf ráð fyrir að gluggar hússins skuli vera í hefðbundnum stíl eldri húsa og úr viði. Ráðið gerir ekki athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa lagfærðir að því er þessi atriði varðar auk annara athugasemda á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Fulltrúi Framsóknarflokksins, Ásgeir Ásgeirsson sat hjá við afgreiðslu málsins

(D) Ýmis mál

13. Lækjargata 2 og Austurstræti 22, Kynning Mál nr. SN100184
Staða framkvæmda á lóðunum Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 kynnt.
Örn Baldursson og Margrét Leifsdóttir kynntu.

17. Baldursgata 32, bréf byggingarfulltrúa (01.186.321) Mál nr. BN041545
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 31. mars 2010 ásamt bréfi dags. 1. febrúar 2010, til skipulagsráðs.
Tillaga byggingarfulltrúa sem kemur fram í bréfi dags. 1. febrúar sl. um tímafrest að viðlögðum dagsektum samþykkt

18. Skipholt 40, bréf byggingarfulltrúa (01.253.006) Mál nr. BN041546
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 1. mars 2010 til eins eiganda fasteignarinnar Skipholts 40. Í bréfinu er gerð tillaga um tímafrest að viðlögðum dagsektum verði tilteknum framkvæmdum ekki lokið innan gefins tímafrests. Eigandi hefur ekki nýtt sér andmælarétt.
Tillaga byggingarfulltrúa sem fram kemur í bréfi dags. 1. mars sl. samþykkt.

20. Hólmsheiði, jarðvegslosun, framkvæmdaleyfi (05.8) Mál nr. SN100164
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lagt fram bréf Framkvæmda- og eignasviðs dags. 21. apríl 2010 þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi til jarðvegslosunar á stækkuðu losunarsvæði á Hólmsheiði. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 10. maí 2010.
Samþykkt með vísan til heimilda í d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

21. Mjódd, bókun hverfaráðs v/ lóðaleigusamninga Mál nr. SN100171
Lögð fram bókun hverfaráðs Breiðholts frá 20.apríl 2010 þar sem ítrekuð er ályktun hverfaráðsins frá 27. febrúar 2009 vegna lóðarleigusamninga í Mjódd.

22. Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi (01.11) Mál nr. SN090009
Eignarhaldsfélagið Portus ehf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 6. maí 2010 um samþykkt borgarráðs s.d. þar sem samþykkt er auglýsing á breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar, TRH.

23. Sóleyjarimi 1-7, kæra (02.536.1) Mál nr. SN100176
Lögð fram kæra til úrskurðarnendar skipulags- og byggingarmála dags. 23. apríl 2010 þar sem kærð er veiting byggingarleyfis fyrir lokun svala fjölbýlishússins að Sóleyjarima 1-7.
Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

24. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, (05.8) Mál nr. SN100185
kæra vegna aðkomu og frágangs
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 5. maí 2010 þar sem kært er deiliskipulag vegna afmörkunar svæðis til jarðvegsfyllingar á Hólmsheiði.
Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

25. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, (05.8) Mál nr. SN100187
kæra vegn afmörkunar á svæði til jarðvegsfyllingar
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 4. maí 2010 þar sem kært er deiliskipulag vegna afmörkunar svæðis til jarðvegsfyllingar á Hólmsheiði.
Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.

Fundi slitið kl. 12.10.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ragnar Sær Ragnarsson
Ásgeir Ásgeirsson Torfi Hjartarson
Stefán Benediktsson Sigurður Kaiser Guðmundsson

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2010, þriðjudaginn 11. maí kl. 10.30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 586. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurstræti 12A (01.140.408) 100851 Mál nr. BN041520
Reitir IV ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innanhúsfyrirkomulagi og innréttingum fyrir veitingastað í flokki III á öllum hæðum í húsi á lóð nr. 12A við Austurstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

2. Austurstræti 16 (01.140.501) 100861 Mál nr. BN041393
A 16 fasteignafélag ehf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Toppmál ehf, Naustabryggju 27, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir 15 borð fyrir 45 gesti á gangstétt við Pósthússtræti fyrir framan veitingastað á 1. hæð í húsi á lóð nr. 16 við Austurstræti.
Meðfylgjandi er bréf frá framkvæmda- og eignasviði dags. 19. mars 2010
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Allur frágangur á svæði útiveitinga er á ábyrgð umsækjanda og ber honum að sjá til þess að allt rusl sé þrifið jafnóðum og fjarlægt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Austurv Thorvaldsenst (01.140.418) 100859 Mál nr. BN041522
Lindarvatn ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af 3. hæð Landssímahússins við Austurvöll á lóð nr. 6 við Thorvaldsenstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Álfab. 12-16/Þönglab. (04.603.503) 111722 Mál nr. BN041268
Bakarameistarinn ehf, Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á nýsamþykktu erindi BN039745 sem felast í breyttum eldvarnarkröfum fyrir Bakarameistarann í Mjódd á lóð nr. 12 við Álfabakka.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

5. Ásvallagata 7 (01.162.306) 101279 Mál nr. BN040773
Sigurður Örn Guðleifsson, Ásvallagata 7, 101 Reykjavík
Jarþrúður Karlsdóttir, Ásvallagata 7, 101 Reykjavík
Helga Fossberg, Ásvallagata 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir þrennum svölum á suðurhlið og breyta innra fyrirkomulagi í risi fjölbýlishússins á lóð nr. 7 við Ásvallagötu.
Grenndarkynning stóð yfir frá 1. febrúar til og með 1. mars 2010.
Erindi fylgir fsp. BN040457 dags. 29. september og fsp. BN039601 dags. 24. mars 2009 ásamt samþykki eiganda kjallaraíbúðar dags. 18. desember 2009 áritað á uppdrátt.
Áður gerð stækkun: 20,3 ferm., 40,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 3.126
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

6. Bergstaðastræti 48 (01.185.301) 102169 Mál nr. BN041516
Svava Guðlaug Sverrisdóttir, Bergstaðastræti 48, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja svalahandrið úr stáli og hertu öryggisgleri á svölum fjórðu hæðar fjölbýlishúss á lóð nr. 48 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Bergstaðastræti 54 (01.185.601) 102207 Mál nr. BN041427
Klettur-eignir ehf, Laufásvegi 49-51, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarrými á 1. hæð í íbúð í húsi á lóð nr. 54 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir samþykki sumra meðlóðarhafa (vantar einn) áritað á ljósmynd.
Gjald kr. 7 700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Blönduhlíð 7 (01.704.215) 107095 Mál nr. BN041511
Þórhildur Tómasdóttir, Blönduhlíð 7, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að grafa frá kjallaraíbúð, setja hurð úr stofu út í garð og mynda sérafnotaflöt undir svölum, einnig er sótt um að steypa stoðvegg og sorpskýli við gangstétt við hús á lóð nr. 7 við Blönduhlíð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Borgartún 21 - 21A (01.218.001) 102771 Mál nr. BN041458
LF1 ehf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum innanhúss á 2. og 3. hæð mhl. 6 og koma fyrir nýjum stiga á milli hæðanna í skrifstofuhúsnæði nr. 21 á lóð nr. 21-21A.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 10. maí 2010.
Minnkun: 8,9 ferm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN041366
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki I suðvestanmegin 1. hæðar turnsins, Höfðatúns 2 á lóðinni nr. 8-16 við Borgartún.
Bréf frá eigendum um notkun á sameiginlegri snyrtingu dags. 13. apríl 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

11. Brúnavegur 13 (01.351.001) 104174 Mál nr. BN041448
Fulltrúaráð Sjómannadagsins, Laugarási Hrafnistu, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum á innanhúsbreytingum í G-álmu, þar sem ÚT- ljós er leiðrétt , eldvarnarhurð á 3. hæð færð innar á ganginn og hætt verður við að saga vegg á milli borðstofu og gangs á 1. hæð niður eins og samþykkt var í erindi BN038640 dags. 23. sept. 2008 í húsi Hrafnistu á lóð nr. 13 við Brúnaveg.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

12. Fiskislóð 31 (01.089.101) 209683 Mál nr. BN041524
North Properties ehf, Þverási 25, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja þak yfir hálfar svalir á 3. hæð með vegg beggja vegna, og breyta innréttingum á 1. og 2. hæð, bæta við gluggum á suðvestur og norðvestur gafla á atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 31 við Fiskislóð.
Stækkun. B rými xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

13. Flugvöllur 106748 (01.66-.-99) 106748 Mál nr. BN041326
Flugstoðir ohf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við suðurhlið, stækka milligólf (0202), og breyta innra fyrirkomulagi vélageymslu og slökkvistöðvar á Reykjavíkurflugvelli.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010 fylgir erindinu.
Stækkun: 38,8 ferm., 105,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 8.124
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Fossagata 3 (01.636.602) 106720 Mál nr. BN038701
Rannveig Björk Þorkelsdóttir, Fossagata 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á einni hæð úr timbri á steyptum kjallara við einbýlishús á lóð nr. 3 við Fossagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 31. júlí 2008 fylgir erindinu.
Stærðir: Núv. 99,4 ferm., 243,4 rúmm.
Stækkun 75,8 ferm., 197,6 rúmm.
Samtals eftir stækkun 175,2 ferm., 441,9 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 14.425
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041315
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sushi smiðjan ehf, Geirsgötu 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir léttu vindskýli, #GLmarkísu#GL við norðvesturhlið húss nr. 3B við Geirsgötu.
Erindi fylgir fsp. BN041154 dags. 9. mars 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

16. Geirsgata 3a-7c (01.117.306) 100086 Mál nr. BN041361
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitinga- og samkomusal í flokki III á 1. og 2. hæð í atvinnuhúsnæðinu nr. 7B á lóð nr. 3A til 7C við Geirsgötu.
Umsögn burðavirkishönnuðar dags. 3. maí 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Gerðarbrunnur 58 (05.054.708) 206067 Mál nr. BN041530
Ólafur Viðarsson, Gvendargeisli 100, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN038005 dags. 20. maí 2008 þannig að settur verður þakgluggi og brunakröfum á glugga á norðvesturhlið verði aflétt á einbýlishúsinu á lóð nr. 58 við Gerðarbrunn.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 30. apríl 2010 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700 kr.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Grettisgata 28 (01.190.002) 102340 Mál nr. BN041519
Maríanna Clara Lúthersdóttir, Grettisgata 28, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr ? á við 2. hæð tvíbýlishússin á lóð nr. 28 við Grettisgötu.
Samþykki meðeigenda dags. 4. maí 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Hafnarstræti 20/Læk5 (01.140.302) 100836 Mál nr. BN041384
Landsbankinn fasteignafélag ehf, Austurstræti 16, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta kaffihús og ísbúð í flokki II á fyrstu og annarri hæð hússins á lóðinni Hafnarstræti 20/Læk 5.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. mars 2010 og vottun fyrir JOMY fellistiga.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

20. Haukdælabraut 100 (05.114.104) 214819 Mál nr. BN041454
HB-100 ehf, Dofraborgum 9, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja úr staðsteypu með timburþaki og einangrað að innan, einbýlishús á tveim hæðum með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 100 við Haukdælabraut. Sótt er um að erindi BN039722 dags. 7. apríl 2009 verði dregið til baka.
Meðfylgjandi er mæli- og hæðarblað.
Stærðir: 1. hæð 162,0 fem. 2. hæð 198,8 ferm. bílgeymsla 74,0 ferm. Samt. 434,8 ferm og 1695,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 130.569
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Haukdælabraut 102 (05.113.501) 214820 Mál nr. BN041379
Berglind Björk Halldórsdóttir, Kárastígur 12, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu á lóð nr. 102 við Haukdælabraut.
1. hæð íbúð 162,0 ferm., 2. hæð íbúð 182,0 ferm., bílgeymsla 60,8 ferm.
Samtals: 404,8 ferm., 1.508,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 106.653
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Haukdælabraut 94 (05.114.101) 214816 Mál nr. BN041461
Kristín Sigurey Sigurðardóttir, Þórðarsveigur 15, 113 Reykjavík
Hjörtur Lúðvíksson, Þórðarsveigur 15, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús með flötu þaki og sambyggðri bílageymslu á lóð nr. 94 við Haukdælabraut.
Stærð: Einbýlishús 219,8 ferm., 774,2 rúmm. Bílgeymsla 40,2 ferm., 154,7 rúmm. Samtals: 260 ferm., 979,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 75.429
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Hávallagata 11 (01.160.304) 101166 Mál nr. BN041525
Auður Ólafsdóttir, Hávallagata 11, 101 Reykjavík
Arndís Lóa Magnúsdóttir, Hávallagata 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi bílskúr í verkstæði með snyrtingu og eldhúskrók og bílskúr, að koma fyrir heitum potti og byggja lóðarvegg og tröppur frá svölum 1. hæðar við tvíbýlishúsið á lóð nr. 11 við Hávallagötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Heiðargerði 55 (01.801.207) 107628 Mál nr. BN041365
Anna Dóra Þorgeirsdóttir, Heiðargerði 55, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja forstofu og útitröppur, tvennar svalir á vesturhlið með þaki yfir, jafnframt því sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi einbýlishússins á lóð nr. 55 við Heiðargerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. apríl 2010 fylgir erindinu.
B-rými 7,2 ferm.
Stækkun: 2,8 ferm., 8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 616
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

25. Húsdýragarður (01.392.001) 172992 Mál nr. BN041482
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við núverandi byggingu frysti- og kæliklefa sem er óeinangruð og óupphituð á lóð fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Stækkun: XX ferm., XX rúmm.
Gjald kr. 7.700 + XX
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Kleppsvegur 90 (01.352.203) 104184 Mál nr. BN041508
Félagsbústaðir hf, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta skráningartöflu og rýmisnúmerum á teikningum sbr. erindi BN039380 þannig að skráðar eru fimm búsetueiningar og ein þjónustueining í einni eigu í húsi á lóð nr. 90 við Kleppsveg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

27. Laufásvegur 58 (01.197.201) 102716 Mál nr. BN041322
Klettur-eignir ehf, Laufásvegi 49-51, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi jarðhæðar, síkka glugga á suðurhlið, útbúa franskar svalir og innrétta tvær íbúðir í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 58 við Laufásveg.
Erindi fylgir bréf umsækjanda ódagsett, staðfesting á starfsábyrgðartryggingu dags. 18. mars, umsögn burðarvirkishönnuðar og viljayfirlýsing eigenda efri hæða Laufásvegar 58 dags. dags. 19. mars og samkomulag um framkvæmdir milli eigenda Laufásvegar 58 dags. 20. mars 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. apríl 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

28. Laugarásvegur 1 (01.380.104) 104729 Mál nr. BN041499
Laugaás ehf, Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum sem fela í sér að gera dyragat í kjallara og gera gólfniðurfall í eldhúsi veitingastaðarins sem er í flokki II á lóð nr. 1 við Laugarásveg. Sbr. erindið BN040851 dags. 23. feb. 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Laugav 22/Klappars 33 (01.172.201) 101456 Mál nr. BN040678
Átt-kaup ehf, Stekkjarseli 9, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka stigahúsi á 1. hæð og leggja niður eldhús á 1. hæð í veitingahúsi á lóð nr. 22 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er Leyfisbréf dags. 27.2. 2009, Umsókn dags 23.7. 2009, Umsókn dags. 20.7. 2009, leigusamningur dags.12.3. 2009, Umsögn Byggingarfulltrúa dags. 3.9. 2009, Umsögn dags. 23.7. 2009, Umsögn Vinnueftirlits dags. 13.8. 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Laugavegur 28 (01.172.206) 101461 Mál nr. BN041481
Reykjavík backpackers ehf, Laugavegi 28, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingasölu í flokki II og móttöku fyrir gistiheimili á 1. hæð og í kjallara gistiskála í húsi á lóð nr. 28 við Laugaveg.
Erindi fylgir brunahönnun dags. 31. mars 2009, endurskoðuð 13. apríl 2010.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna hlutfalls veitingastaða.

31. Laugavegur 70 (01.174.204) 101607 Mál nr. BN041506
Sigurgeir Sigurjónsson ehf, Hverfisgötu 71, 101 Reykjavík
Sigurjón Sigurgeirsson, Laugavegur 128, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir leiðréttingu á innra fyrirkomulagi og skráðum stærðum í einingum 0001 í kjallara og 0101 á 1. hæð, óuppfyllt rými eru sýnd þar sem áður voru teiknaðar geymslur, í húsi á lóð nr. 70 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

32. Ljósvallagata 12 (01.162.312) 101285 Mál nr. BN041521
Helgi Egill Einarsson, Brávallagata 20, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningu af kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 12 við Ljósvallagötu.
Erindi fylgir bréf eiganda og þinglýst eignaskiptayfirlýsing dags. 29. júní 1994.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Lækjargata 8 (01.140.510) 100870 Mál nr. BN041523
Lækur ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að innrétta á 2. hæð í mhl. 01 stækkun á veitingaaðstöðu í fl. II á 1. hæð sbr. nýsamþykkt erindi BN041309 fyrir samanlagðan gestafjölda 89 manns, einnig er sótt um aðstöðu fyrir 16 manns á gangstétt í og við veitingahúsið á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Umsagnir fylgja máli BN041309
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Réttarsel 7 (04.925.206) 112717 Mál nr. BN034360
Höskuldur H Dungal, Réttarsel 7, 109 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallara með tómstundaherbergi og geymslu og leyfi fyrir gluggum og tröppu að kjallara í húsi nr. 7 á lóð nr. 7-9 við Réttarsel.
Stærðir: 70,1 ferm., 187,7 rúmm. Bréf frá hönnuði dagsett 24.okt 2006 fylgir.
Gjald kr. 6.100 + 11.449
Synjað.
Bókun byggingarfulltrúa: Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 31. október 2006 var bókað að samþykki meðlóðarhafa þyrfti að koma til til þess að unnt sé að samþykkja umsóknina. Umsækjandi hefur ekki lagt samþykki meðlóðarhafa fram og er málinu því synjað.

35. Safamýri 11 (01.281.104) 103675 Mál nr. BN041503
Vala Guðbjartsdóttir, Safamýri 11, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN038792 dags. 14. okt. 2008 þar sem verið er að fjarlægja glugga og setja garðdyr í staðinn á suður- og vesturhlið kjallaraíbúðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 11 við Safamýri.
Gjald: kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

36. Salthamrar 2 (02.293.301) 109013 Mál nr. BN039992
Eggert Lindberg Ólafsson, Salthamrar 2, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu við vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 2 við Salthamra.
Stækkun: 12,2 ferm., 40 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 3.080
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

37. Skeifan 17 (01.465.201) 195607 Mál nr. BN041512
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina verslunarrými á 1. hæð, lagfæra eldvarnarmerkingar og samþykkja reyndarteikningar af verslunarhúsi á lóð nr. 17 við Skeifuna.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Skólavörðustígur 42 (01.181.417) 210269 Mál nr. BN041529
R.Guðmundsson ehf, Pósthólf 1143, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að minnka kjallara og til að loka undirgangi að Skólavörðustíg í gistiheimilinu á lóð nr. 42 við Skólavörðustíg.
Kjallari var 157,9 ferm., verður 51,3 ferm.
Minnkun 106,6 ferm., xx rúmm.
1. hæð var 287,2 ferm., verður 323,1 ferm.
Stækkun: 35,9 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Skriðustekkur 17-23 (04.616.202) 111837 Mál nr. BN041357
Lárus Einar Huldarsson, Skriðustekkur 23, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við suðurhlið einbýlishússins nr. 23 á lóð nr. 17-23 við Skriðustekk.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 30. mars 2010 þar sem er gerð grein fyrir breyttu deiliskipulagi.
Viðbygging: 40,0 ferm., 135,0 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 10.395
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Skuggasund 1, Lindarg (01.151.212) 100993 Mál nr. BN041443
Rekstrarfélag stjórnarráðsbygg, Arnarhvoli, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp brunastiga á norðurhlið og breyta fundasölum á 1. hæð húss á lóð nr. 1 við Skuggasund.
Meðfylgjandi er bréf frá arkitekt dags. 28. apríl 2010
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

41. Skúlagata 30 (01.154.305) 101120 Mál nr. BN041353
Vatn og Land II ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta afgreiðslu fyrir bílaleigubíla á 2. hæð á suðurhlið í húsi á lóð nr. 30 við Skúlagötu.
Meðfylgjandi er samþykki umsækjanda dags. 17. mars 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. apríl 2010.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Skútuvogur 4 (01.420.201) 105166 Mál nr. BN041469
Nýborg ehf, Súlunesi 19, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að koma fyrir leikjasal fyrir börn, ásamt tilheyrandi veitingaaðstöðu í flokki 1 á 1. og 2. hæð í eystri hluta mhl 01 í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 4 við Skútuvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010 fylgir erindinu.Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Sogavegur 166 (01.830.116) 108484 Mál nr. BN041518
Inga Lára Þórisdóttir, Sogavegur 166, 108 Reykjavík
Mínerva Alfreðsdóttir, Sogavegur 166, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka baðherbergið á 1. hæð með því að byggja við vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 166 við Sogaveg.
Stækkun: 9,4 ferm., 28,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.187
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Sóleyjarimi 99-113 (02.536.702) 195537 Mál nr. BN041483
Svandís Jónsdóttir, Sóleyjarimi 99, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta út hleðslugleri fyrir trégluggum á norðurhlið raðhússins á lóð nr. 99 - 113 við Sóleyjarima.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

45. Sólheimar 27 (01.433.502) 105282 Mál nr. BN040522
Sólheimar 27,húsfélag, Sólheimum 27, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til endurnýjunar á handriðum á svölum og þaki og til að koma fyrir svalalokun á fjölbýlishúsi á lóð nr. 27 við Sólheima.
Meðfylgjandi er umsögn burðarvirkjahönnuðar dags. 16. 2. 2010 og bréf hússtjórnar dags. 7. maí 2010.
Stærðir: 480 ferm., 1.347 rúmm., einstaka svalir og samtals.
Gjald 7.700 + 7.700 + 103.720
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Spöngin 33-41 (02.375.301) 188554 Mál nr. BN041534
Snyrtistofa Kristínar ehf, Ljósuvík 21, 112 Reykjavík
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innanhúss til að starfrækja snyrtistofu í rými 0205 í atvinnuhúsnæðinu nr. 37 á lóð nr. 33-41 við Spöngina.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

47. Spöngin 9-31 (02.375.201) 177193 Mál nr. BN041504
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Þröstur Theódórsson, Búagrund 3, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja texta í byggingarlýsingu varðandi brunaviðvörun og vatnsúðunarkerfi í rými 02-0103, sbr. erindið BN040921 dags. 2. jan. 2010 í atvinnuhúsnæðisins nr.13 á lóð nr. 9 - 31 við Spöngina.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

48. Stýrimannastígur 10 (01.135.406) 100484 Mál nr. BN041526
Yngvi Daníel Óttarsson, Stýrimannastígur 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á nýsamþykktu erindi BN040057, sem felast í að framlengja skjólgirðingu um 4 metra, bæta við tröppum úti við bílgeymsluhurð og breyta þakfrágangi á bílgeymslu við einbýlishús á lóð nr. 10 við Stýrimannastíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Suðurlandsbraut 16 (01.263.102) 103523 Mál nr. BN041297
Vegmúli ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra fyrirkomulagi 5. hæðar, ásamt samþykki fyrir þegar gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi annarra hæða skrifstofuhússins Vegmúla 2 á lóð nr. 16 við Suðurlandsbraut.
Jafnframt eru eignir sameinaðar í eina.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um samruna eigna til að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

50. Tunguháls 10 (04.329.201) 179475 Mál nr. BN041515
Hólmsteinn Helgason ehf, Hafnarbraut 6, 675 Raufarhöfn
Sótt er um leyfi til að setja 5x12 metra mynd á vegg á lóð nr. 10 við Tunguháls.
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Samræmist ekki samþykkt um skilti í Reykjavík. Er alltof stórt.

51. Varmahlíð 1 (01.762.501) 107476 Mál nr. BN029632
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir uppfærðum teikningum þar sem fram kemur m.a. önnur veitingaafgreiðsla á 4. hæð í útsýnishúsinu Perlunni á lóð nr. 1 við Varmahlíð.
Gjald kr. 5.400 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

52. Vínlandsleið 12-14 (04.111.601) 208323 Mál nr. BN041079
Mótás fasteignir ehf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofur í mhl. 02 á 2. og 3. hæð og leiðrétta stærðir í samræmi við skráningartöflu, sömuleiðis er eldvarnatexti uppfærður í atvinnuhúsinu nr. 14 á lóð nr. 12-14 við Vínlandsleið.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

53. Þingholtsstræti 2-4 (01.170.205) 101333 Mál nr. BN041425
Íslenska eignafélagið ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum og innra skipulagi á 1. 2. og 3. hæð og innrétta sex hótelherbergi/íbúðir og móttöku í húsinu á lóð nr. 2-4 við Þingholtsstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

54. Laufásvegur 68 (01.197.207) 102722 Mál nr. BN041551
Byggingarfulltrúi leggur til að sá hluti byggingarleyfis nr. BN035330 sem sýnir rýmisnúmer 0002, útigeymslu, verði fellt úr gildi. Útigeymslan er öll staðsett utan byggingarreits og var samþykkt fyrir mistök. Hún er sýnd á aðaluppdráttum samþykktum 21. mars 2007. Málið var kynnt umsækjanda með bréfi dags. 12. apríl 2010. Andmælabréf lögmanns umsækjanda dags. 28. apríl 2010, fylgir málinu ásamt bréfi lögfræði- og stjórnsýslu dags. 3. maí 2010. Stærðir: 32,3 m2 og 77,3 m3.
Samþykkt.Með vísan til 56. gr. laga nr. 73/1997

Fyrirspurnir

55. Akurgerði 37 (01.813.202) 107889 Mál nr. BN041345
Jón Ásgeir Einarsson, Akurgerði 37, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta lóðum við parhúsin nr. 35-37 og 39-41 við Akurgerði.
Bréf frá lögfræði og stjórnsýslu dags. 27. apríl 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010 og umsögn skipulagsstjóra dags. 7. maí 2010.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 7. maí 2010.

56. Dalhús 74 (02.847.604) 109829 Mál nr. BN041479
Marta Konráðsdóttir, Dalhús 74, 112 Reykjavík
Yngvi Pétursson, Dalhús 74, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir gróðurhúsi sem verður staðsett á horni lóðar nr. 74 sem liggur að lóðum nr. 68 og 72 við Dalhús.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

57. Flókagata 23 (01.244.407) 103200 Mál nr. BN041275
Kristján Viborg, Flókagata 23, 105 Reykjavík
Spurt er hvort stækka megi kvist á suðurhlið og sameina og stækka kvisti á norðurhlið húss, sbr erindi BN040938, á lóð nr. 23 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010 fylgir erindinu.
Neikvætt.
Nema vegna kvists á norðlægri hlið. Sækja verður um byggingarleyfi, sem grenndarkynnt verður. Að öðru leyti vísast til umsagnar skipulagsstjóra.

58. Grandagarður 16 (01.114.-96) 100040 Mál nr. BN041500
Hugmyndalist ehf, Grandagarði 2, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta frumkvöðlasetur, tímabundið til ársloka, á efri hæð atvinnuhússins Bakkaskemmu á lóð nr. 16 við Grandagarð.
Erindi fylgir leigusamningur dags. 21. janúar 2010 og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 7. maí 2010.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Vísað er til athugasemda eldvarnaeftirlits á fyrirspurnarblaði. Sýna verður fram á að kröfum eldvarnaeftirlits sé fullnægt.

59. Laugardalur austurhluti Mál nr. BN041507
Hafna- og mjúkboltafélag Rvík, Kúrlandi 4, 108 Reykjavík
Spurt er hvort staðsetja megi gám með salerni tímabundið frá miðjum maí fram í miðjan september fyrir hafnabolta- og tennisiðkendur í Laugardal á svæði V, lóð nr. R1.
Meðfylgjandi er bréf skipulagsstjóra dags. 11. jan. 2010.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum. Sækja verður um stöðuleyfi.

60. Nökkvavogur 26 (01.441.203) 105444 Mál nr. BN041467
Kerstin Tryggvason, Nökkvavogur 26, 104 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir áður gerðri íbúð í kjallara tvíbýlishússins nr. 26 við Nökkvavog.
Erindi fylgir virðingargjörð dags. 6. desember 1952 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 7. maí 2010.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

61. Réttarbakki 13-25 (04.608.104) 111752 Mál nr. BN041480
Sæmundur Sæmundsson, Réttarbakki 15, 109 Reykjavík
Stella Björk Halldórsdóttir, Réttarbakki 15, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir 6 ferm. garðhúsi við raðhúsið nr. 15 á lóð nr. 13-25 við Réttarbakka.
Frestað.
Svo unnt sé að taka afstöðu til erindisins skal fyrirspyrjandi leggja fram greinarbetri gögn.

62. Safamýri 73 (01.284.205) 103722 Mál nr. BN041510
Friðrik Ragnarsson Hansen, Safamýri 73, 108 Reykjavík
Spurt er hvort innrétta megi íbúð í kjallara þriggja hæða tvíbýlishúss með bílastæði innan lóðar nr. 73 við Safamýri.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

63. Sogavegur 152 (01.830.111) 108479 Mál nr. BN041484
Valgerður Gunnarsdóttir, Sogavegur 152, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að lengja kvist um ca. 70 cm, setja hurð á kvistinn og koma fyrir svölum á garðstofu á einbýlishúsið á lóð nr. 152 við Sogaveg.
Frestað.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist hún.

64. Sundlaugavegur 37 (01.347.108) 104103 Mál nr. BN041502
Arion banki hf, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Guðjón Magnússon, Fellsás 4, 270 Mosfellsbær
Spurt er hvort lagfæra megi núverandi hús og byggja lágreista byggð við fyrir gistiheimili og/eða stúdíóíbúðir samtals 1180 ferm. á 1971 ferm. lóð (nhl. 0,6) nr. 37 við Sundlaugarveg.

Frestað.Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

65. Tryggvagata 10 (01.132.101) 100210 Mál nr. BN041514
Cent ehf, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Spurt er hvort rífa megi núverandi hús og byggja annað í sem næst sömu mynd skv. gildandi skipulagsákvæðum á lóð nr. 10 við Tryggvagötu.
Meðfylgjandi er bréf Húsafriðunarnefndar dags. 9. nóv. 2009
Vísað er til bókunar skipulagsráðs Reykjavíkur frá 16. desember 2009 en þar segir: Skipulagsráð leggst ekki gegn niðurrifi á húsinu nr. 10 við Tryggvagötu en gerir það að skilyrði að áður liggi fyrir samþykktir aðaluppdrættir af nýbyggingu á lóðinni ásamt tímaáætlun framkvæmdanna.

Fundi slitið kl. 12.12.

Magnús Sædal Svavarsson
Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Jón Hafberg Björnsson Þórður Búason
Guðfinna Ósk Erlingsdóttir Eva Geirsdóttir