Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2006, þriðjudaginn 12. september kl. 09:20 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 411. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Þórður Búason, Jón Magnús Halldórsson, Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Reynisdóttir og Sigríður Kristín Þórisdóttir
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Austurstræti 12 (01.140.407) 100850 Mál nr. BN034436
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað á fyrstu hæð með aðstöðu í kjallara í húsinu á lóðinni nr. 12 við Austurstræti.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

2. Bergstaðastræti 16-18 Mál nr. BN034392
Leiguíbúðir ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja húsið Hverfisgata 44 að Bergstaðastræti 16. Núverandi bakstigahús verður rifið og nýtt byggt í staðinn. Húsið er úr timbri tvær hæðir og ris á steyptum kjallara. Bréf borgarminjavarðar dagsett 18. ágúst 2006 fylgir erindinu, ásamt ljósmyndum af núverandi útliti.
Stærðir 411,6 ferm., og 1169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 71.357
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

3. Bergþórugata 27 (01.190.324) 102456 Mál nr. BN033802
Einar Freyr Sverrisson, Grundarás 5, 110 Reykjavík
Árni Ásmundur Hilmarsson, Bergþórugata 27, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum í kjallara fjölbýlishússins á lóð nr. 27 við Bergþórugötu.
Samþykki meðeigenda ódags. (teikning með á blaði) fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

4. Bíldshöfði 5A (04.055.603) 110561 Mál nr. BN034282
Brimborg ehf, Bíldshöfða 6, 110 Reykjavík
Sp fasteignafélag hf, Skútuvogi 12H, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi bílaverkstæðis, rífa útbyggingu við suðausturhorn og byggja nýja, stærri og tveggja hæða í staðinn, rífa skúr við norðurhlið og byggja nýjan í staðinn á lóðinni nr. 5A við Bíldshöfða.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2006 fylgir erindinu.
Stærð niðurrifs: Útbygging (skáli) 25 ferm., skúr 7,8 ferm. Samtals niðurrif 32,8 ferm., 114,2 rúmm.
Stærð nýbygginga: Skáli 63,8 ferm., 194,6 rúmm. Skúr 8,05 ferm., 26,8 rúmm. Samtals 71,9 ferm., 221,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 13.505
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

5. Bjarnarstígur 5 (01.182.223) 101875 Mál nr. BN034609
Óskar Jónasson, Bjarnarstígur 5, 101 Reykjavík
Eva María Jónsdóttir, Bjarnarstígur 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja léttbyggða ofanábyggingu ofan á útbyggingu á baklóð einbýlishússins á lóð nr. 5 við Bjarnastíg.
Samþykki eigenda Bjarnarstígs 3 dags. 29. janúar 2006 og ódags. samþykki nokkurra nágranna fylgja erindinu.
Stærð: Ofanábygging 10,7 ferm., 34,1 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.080
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.

6. Borgartún 21 (00.000.000) 102771 Mál nr. BN034619
Rekstrarfél samei Borgartúni 21, Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir 3,4 ferm., upplýsingaskilti við aðkomu á lóð nr. 21 við Borgartún.
Gjald 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

7. Borgartún 25 (01.218.101) 102773 Mál nr. BN034616
Fasteignafélagið Sjávarsíða hf, Borgartúni 25, 105 Reykjavík
Sótt er um að leyfi fyrir tveimur sambærilegum 3,6 ferm., leiðbeiningarskiltum við bílstæði að austan og vestanverðu á lóðinni nr. 25 við Borgartún.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Dofraborgir 15 (02.344.404) 173998 Mál nr. BN034549
Joseph Lee Lemacks, Dofraborgir 15, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja 2. hæða viðbyggingu við einbýlishús á lóðinni nr. 15 við Dofraborgir. Neðri hæð verður steinsteypt en efri hæð úr timbri.
Stærð: Viðbygging 71,2 ferm., 191,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.672
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

9. Drápuhlíð 8 (01.704.204) 107084 Mál nr. BN033897
John Peter Boyce, Drápuhlíð 8, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á 3. hæð, stækka og fjölga kvistum og setja tröppur frá svölum 1. hæðar niður í garð austarihelming fjölbýlishússins nr. 6 og 8 á lóðinni nr. 8 við Drápuhlíð.
Samþykki meðeigenda dags. 28. ágúst 2006,
útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. maí 2006 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Stækkun 29,2 ferm., 37,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.300
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Dugguvogur 15 (01.454.118) 105635 Mál nr. BN034529
Einar Þór Guðmundsson, Breiðagerði 25, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að útbúa og innrétta íbúð með vinnustofu í atvinnuhúsnæðinu á lóðinni nr. 15 við Dugguvog.
Málinu fylgir samþykki sumra meðlóðarhafa, dags. 31. júlí 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umfjöllun skipulagsfulltrúa vegna skipulags ólokið.

11. Eggertsgata 2-34 (01.634.-99) 106682 Mál nr. BN034620
Félagsstofnun stúdenta, Hringbraut, 101 Reykjavík
Sótt er um að breyta glerþaki í hefðbundið þak yfir leikskóla á lóðinni nr. 8 við Eggertsgötu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Faxafen 12 (01.466.102) 195610 Mál nr. BN034595
Sjóklæðagerðin hf, Miðhrauni 11, 210 Garðabær
Sótt er um fjölgun eigna, áður eignarhald 0203 verði að tveimur eignarhlutum og tilfærslu á útihringstiga á austurhlið til að samnýta flóttaleið fyrir rými 0202 og 0212 á lóðinni nr. 12 við Faxafen.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir dagsett ágúst 2006 ásamt fundagerð aðalfundar húsfélagsins Faxafen 12 dagsett 24. apríl 2006.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

13. Giljasel 1 (04.933.803) 112882 Mál nr. BN034614
Halldór Kvaran, Giljasel 1, 109 Reykjavík
Sótt er um svalalokun með einföldu gleri í álbrautum með fulla opnunarmöguleika á húsi á lóð nr. 1 við Giljasel.
Samþykki húseiganda að Gljúfraseli 2 fylgir erindinu.
Gjald 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Gufunes Sorpa (02.226.001) 108951 Mál nr. BN034615
SORPA bs, Pósthólf 12100, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja opið gámaskýli fjær samhliða sorpflokkunarhúsi úr 28,5 m. í 30 m. og einnig örlitið vestar á lóðinni Sorpa Gufunesi landnr.108956
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Hjallavegur 16 (01.353.114) 104232 Mál nr. BN034513
Pétur Jóhann Sigvaldason, Hjallavegur 16, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við suðurhlið húss, skipta um glugga og utanhússklæðningu. Einnig er sótt um leyfi til að byggja verönd og koma fyrir setlaug við parhúsið á lóðinni nr. 16 við Hjallaveg.
Stærð: Stækkun 18,6 ferm., 54,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 3.325
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

16. Hólmvað 10-22 (04.741.501) 200343 Mál nr. BN034068
Leiguhúsnæði ehf, Blikanesi 2, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að byggja 2. - 3. hæða fjölbýlishús með samtals átján íbúðum allt úr forsteyptum einingum á lóð nr. 10-22 við Hólmvað.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúar frá 8. septebmer 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Íbúðir 1. hæð 617,2 ferm., 2. hæð 864 ferm., 3. hæð 774,4 ferm., samtals 2255,6 ferm., 7542,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 460.117
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Hraunberg 12 (04.674.202) 112208 Mál nr. BN034427
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að bæta við þriðju færanlegu kennslustofunni fyrir Waldorfskólann við þær tvær sem fyrir eru og að þær fái að vera næstu þrjú árin á lóð nr. 12 við Hraunberg.
Stærð: Færanlegar kennslustofur samtals 214,5 ferm., 712 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 43.432
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

18. Kleppsvegur 86 (01.352.201) 104182 Mál nr. BN034550
Selma Samúelsdóttir, Kleppsvegur 86, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta óútgrafið rými í húsinu á lóðinni nr. 86 við Kleppsveg sem skrifstofu og tómstundaherbergi. Einnig að koma fyrir nýrri útidyrahurð, gera tvo nýja glugga á suðurhlið, síkka glugga á norðurhlið og lækka stoðvegg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar ódags. fylgir umsókn.
Stækkun: 24,9 ferm., 85,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.240
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

19. Lambasel 44 (04.998.707) 200790 Mál nr. BN034009
Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir, Bakkasel 18, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft einbýlishús úr forsteyptum einingum með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 44 við Lambasel
Stærð: Íbúð 1. hæð 139,1 ferm., 2. hæð 60,3 ferm., bílgeymsla 36,2 ferm., samtals 235,6 ferm., 802 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 48.922
Frestað.
Lagfæra skráningu.

20. Laufásvegur 68 (01.197.207) 102722 Mál nr. BN034624
AB stoð ehf, Brautarholti 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka bílskúr í suðaustur að húsvegg, stækka svalir á 1. hæð og setja svalahurð úr borðstofu, breyta innra skipulagi og stiga að rislofti og byggja kvist á suðvesturþekju einbýlishússins á lóð nr. 68 við Laufásveg.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 5. september 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Nýr kvistur xxx ferm., xxx rúmm.
Stækkun bílskúrs 5,8 ferm., 18,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Lagfæra skráningu.

Jón Magnús Halldórsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

21. Laugarnesvegur 44 (01.360.102) 104504 Mál nr. BN034326
Lárus Stefán Jóhannesson, Laugarnesvegur 44, 105 Reykjavík
Helga Einarsdóttir, Laugarnesvegur 44, 105 Reykjavík
Ragnar Friðrik Valsson, Laugarnesvegur 44, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvöfaldan bílskúr úr steinsteypu í einangrunarmót á lóð nr. 44 við Laugarnesveg.
Samþykki meðeigenda og nágranna að Laugarnesvegi 46 og Hrísateig 11 dags. 12. mars 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr samtals 87 ferm., 259,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 15.811
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

22. Laugavegur 89-91 (01.174.119) 101597 Mál nr. BN034611
Brekkuhús ehf, Brekkugerði 8, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja opnanleg fög í glugga á 3. hæð suðurhliðar húss nr. 89 og innrétta skrifstofur á hluta 3. hæðar sama húss á lóð nr. 89-91 við Laugaveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Nóatún 17 (01.235.201) 102967 Mál nr. BN034293
Saxhóll ehf, Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að hækka og stækka áður samþykkta rishæð á norðurhúsi í austur og vestur, stækka stigahús á norðurhúsi í norður á 2., 3. og 4. hæð, setja upp lyftu í norðurhúsi, stækka verslun á 1. hæð í suðurhúsi og skyggni yfir, breyta útliti og innra skipulagi tengibyggingar og breyta núverandi klæðningu í álplötuklæðningu á verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóð nr. 17 við Nóatún.
Stærð: Stækkun samtals 122,7 ferm., 675 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 41.175
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

24. Ránargata 8A (01.136.018) 100521 Mál nr. BN034622
Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir, Hófgerði 6, 200 Kópavogur
Jon Olav Fivelstad, Hófgerði 6, 200 Kópavogur
Sótt er um leyf til að byggja við kjallara og 1. hæð með verönd og tröppum niður í kjallararými á norðurhlið hússins á lóðinni nr. 8A við Ránargötu.
Þinglýst samþykki aðliggjandi lóðarhafa að Ránargötu 10 og Vesturgötu 21B fylgir erindinu.
Stærð: viðbygging 45,1 ferm., 185,2 rúmm.
Gjald 6.100 + 11.298
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Samþykki eigenda á Ránargötu 8 er skilyrt vegna framhalds málsins.

25. Reykjavíkurvegur 25A (01.635.807) 106705 Mál nr. BN034527
Sturla Óskar Bragason, Reykjavíkurvegur 25a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja við stofu og bílskúr einbýlishússins á lóðinni nr. 25A við Reykjavíkurveg.
Stærð: Stækkun íbúðar 13,4 ferm., 148,7 rúmm. Stækkun bílgeymslu 14,2 ferm., 43,1 rúmm.
Samtals 27,6 ferm., 191,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

26. Skólavörðustígur 22B (01.181.205) 101759 Mál nr. BN034038
Sigurður Ingi Sveinsson, Skólavörðustígur 22c, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á samþykkt frá 17. janúar 2006, þ.e., breyttum eignaskiptum þ.e 0304 verði séreign 0301 í Skólavörðustíg 22B og stækkun svala.
Með málinu fylgir undirritað þinglýst samþykki allra eigenda dags. 1. maí 2005. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vantar nýtt samþykki meðeigenda vegna stækkunar svala frá fyrri samþykkt.

27. Skúlagata 51 (01.220.008) 102784 Mál nr. BN034623
Eignarhaldsfél Kirkjuhvoll ehf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til ýmissa breytinga á áður samþykktri viðbyggingu atvinnuhússins á lóðinni nr. 51 við Skúlagötu. Breytingarnar fela m. a. í sér að byggja bílakjallara undir nýbyggingu, að byggja nýtt stigahús með lyftu á baklóð, að hækka gólfkóta efstu hæðar uppfyrir mænishæð eldra húss og að einangra og klæða báðar byggingar með flísum og stálklæðningu.
Stærð: Stækkun xx ferm. xx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

28. Stakkholt 2-4 (01.241.103) 103018 Mál nr. BN034605
Fjárfestingafélagið Vöxtur ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa áður hús Hampiðjunnar á lóð nr. 2-4 við Stakkholt.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 221-7710 samtals 7303,5 ferm.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Haft skal samráð við lóðarhafa í Mjölnisholti 12 og 14 vegna niðurrifsins þar sem byggingar á þeim lóðum tengjast þeim byggingum sem á að rífa.

29. Stakkholt 3 (01.241.017) 103012 Mál nr. BN034606
Fjárfestingafélagið Vöxtur ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa húsin (gamla Málleysingjaskólann) á lóð nr. 3 við Stakkholt.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 201-0487 íbúðir í FMR 202,3 ferm., fastanúmer 201-0488 skrifstofur í FMR 134 ferm. og fastanúmer 201-0489 íbúðir í FMR 506 ferm.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

30. Stóragerði 4-8 (01.800.101) 107584 Mál nr. BN034535
Stóragerði 4,6,8,húsfélag, Stóragerði 8, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða með Steni austurgafl hússins á lóðinni nr. 4 við Stóragerði. Bréf burðarvirkishönnuðar dags.18. júlí 2006 um ástand útveggja fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Stórhöfði 22-30 (04.071.001) 110548 Mál nr. BN034489
Síminn hf, Ármúla 25, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á matshlutum 05 og 06 í atvinnuhúsinu á lóðinni nr. 22-30 við Stórhöfða.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

32. Sunnuvegur 33 (01.386.209) 104948 Mál nr. BN032183
Ríkharður Daðason, Skeljanes 4, 101 Reykjavík
Þórey Vilhjálmsdóttir, Skeljanes 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að saga niður úr glugga á suðvesturhlið 1. hæðar, setja nýja svalahurðir á suðausturhlið 2. hæðar, breyta innra skipulagi beggja hæða og lengja lítilega bílgeymslu á 1. hæð einbýlishússins á lóð nr. 33 við Sunnuveg.
Stærð: Viðbygging við bílgeymslu xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 5.700 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Súðarvogur 3-5 (01.451.401) 105601 Mál nr. BN034593
Húsasmiðjan hf, Holtagörðum 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir 5 metra háu mastri, að hólfa af vinnuaðstöðu í tengibyggingu og útbúa nýjar útidyr inn í hið nýja rými í húsinu á lóðinni nr. 3A við Súðarvog.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

34. Úlfarsbraut 26-28 (02.698.405) 205713 Mál nr. BN034468
Gísli Borgfjörð Þorvaldsson, Hlíðarbraut 2, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt parhús með innbyggðri bílgeymslu sem hús nr. 28 á vestari hluta lóðar nr. 26-28 við Úlfarsbraut.
Samþykki lóðarhafa aðlægrar lóðar fyrir tröppum að lóðamörkum (á teikningu) fylgir erindinu.
Stærð: Helmingur parhúss íbúð kjallari115 ferm., 1. hæð 77,7 ferm., bílgeymsla 30,4 ferm., samtals 223,1 ferm., 813,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 49.642
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Úlfarsbraut 26-28 (02.698.405) 205713 Mál nr. BN034469
Stefán Rósar Esjarsson, Gautavík 19, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða steinsteypt parhús með innbyggðri bílgeymslu sem hús nr. 26 á eystri hluta lóðar nr. 26-28 við Úlfarsbraut.
Samþykki lóaðarhafa aðlægrar lóðar fyrir tröppum og sorpgeymslu að lóðamörkum (á teikningu) fylgir erindinu.
Stærð: Helmingur parhúss íbúð kjallari 115 ferm., 1. hæð 77,7 ferm., bílgeymsla 30,4 ferm., samtals 223,1 ferm., 813,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 49.642
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Vesturgata 21 (01.136.005) 100508 Mál nr. BN034490
M2-Eignir ehf, Hverfisgötu 103, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 21 við Vesturgötu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Vesturlandsv. Keldnal 110481 (02.9--.-99) 110481 Mál nr. BN034610
Tilraunastöð Hásk í meinafræði, Vesturlandsv Keldum, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að hækka nýsamþykkt hús lítillega, lagfæra kjallaratröppur, færa tröppur á gafli og stækka fataskiptiklefa á 1. hæð rannsóknarhúss tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum við Vesturlandsveg.
Stærð: Hús (matshluti 06) stækkar úr 873,9 rúmm. í 898 rúmm. eða um 24,1 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.470
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Vogaland 7 (01.880.009) 108850 Mál nr. BN034514
Þór Kristjánsson, Vogaland 7, 108 Reykjavík
Birna Jóna Jóhannsdóttir, Vogaland 7, 108 Reykjavík
Sótt er um að endurnýja þak, zinkklæða þakkant, gera nýtt skyggni yfir aðalinngang og timburklæða framhlið bílgeymslu ásamt reyndarteikningu sem sýna stækkun kjallara hússins á lóðinni nr. 7 við Vogaland.
Staðfesting burðarvirkishönnuðar dags.14 ágúst 2006 fylgir erindinu.
Stækkun: Rúmmálsaukning 147,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 8.997
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Þingvað 61-83 (04.791.201) 201479 Mál nr. BN034426
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja ellefu tvílyft steinsteypt keðjuhús ásamt innbyggðum bílgeymslum kringum sameiginlegan garð á lóð nr. 61-83 við Þingvað.
Stærð: hús nr. 61 (matshluti 01) Íbúð 1. hæð 95,4 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., bílgeymsla 27,5 ferm., samtals 205,8 ferm., 676,6 rúmm. Hús nr. 63 (matshluti 02) Íbúð 1. hæð 95,1 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., bílgeymsla 26,6 ferm., samtals 204,6 ferm., 672,8 rúmm. Hús nr. 65 (matshluti 03) Íbúð 1. hæð 111,1 ferm., 2. hæð 82,9 fem., þrjár bílgeymslur 79,7 ferm., samtals 273,7 ferm., 887,1 rúmm. Hús nr. 67 (matshluti 04) Íbúð 1. hæð 109,6 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., samtals 192,5 ferm. Hús nr. 69 (matshluti 05) Íbúð 1. hæð 109 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., samtals 191,9 ferm., 633,3 rúmm. Hús nr. 71 (matshluti 06) Íbúð 1. hæð 110,4 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., samtals 193,3 ferm., 637,6 rúmm. Hús nr. 73 (matshluti 07) Íbúð 1. hæð 103 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., tvær bílgeymslur 46,5 ferm., samtals 232,4 ferm., 759 rúmm. Hús nr. 75 (matshluti 08) Íbúð 1. hæð 95,4 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., bílgeymsla 26,4 ferm., samtals 204,7 ferm., 673,2 rúmm. Hús nr. 77 (matshluti 09) Íbúð 1. hæð 96,7 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., bílgeymsla 27,6 ferm., samtals 207,2 ferm., 680,9 rúmm. Hús nr. 79 (matshluti 10) Íbúð 1. hæð 95,8 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., bílgeymsla 28,1 ferm., samtals 206,8 ferm., 679,7 rúmm. 81 (matshluti 11) Íbúð 1. hæð 96,8 ferm., 2. hæð 82,9 ferm., bílgeymsla 28,1 ferm., samtals 207,8 ferm., 682,7 rúmm.
Samtals á lóð 2320,7 ferm., 7618 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 464.698
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Þórsgata 14 (01.186.301) 102257 Mál nr. BN034519
Norðvestur ehf, Kirkjuteigi 11, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta matshluta 01 sem er verslunarrými í þrjár íbúðir á lóðinni nr. 14 við Þórsgötu.
Málinu fylgir bréf umsækjanda varðandi bílastæði dags. 30. ágúst 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

41. Öldugata 53 (01.134.305) 100354 Mál nr. BN034017
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir, Öldugata 53, 101 Reykjavík
Eyjólfur Már Sigurðsson, Öldugata 53, 101 Reykjavík
Elizabeth Ortega Lucio, Öldugata 53, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 53 við Öldugötu.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

42. Sóleyjarimi 19-23 (02.536.106) 199447 Mál nr. BN034637
Mótás hf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 5. september síðastliðinn var samþykkt að minnka bílgeymslu með tilheyrandi breytingum á tengibyggingu við fjölbýlishús og fjölgun bílastæða á lóð ásamt því að hækka hæðarkóta bygginganna um 1m miðað við nýsamþykktar teikningar á lóð nr. 19-23 við Sóleyjarima.
Stærðarbreyting var bókuð samtals minnkun 571,6 ferm., 1528,6 rúmm., en átti að vera samtals minnkun 571,1 ferm., 1487,6 rúmm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

43. Álfheimar 26-30 (01.431.103) 105204 Mál nr. BN034603
Álfheimar 28-30,húsfélag, Álfheimum 28-30, 104 Reykjavík
Álfheimar 26,húsfélag, Álfheimum 26, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir 1,8 m. háum skjólveggjum sem ná 2 m. beint út frá húsi, beggja vegna við hverja íbúð á jarðhæð og 0,9 m. hátt handrið þar milli við fjölbýlishús nr. 28 og 30 við Álfheima.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum. Ekki þarf að sækja um byggingarleyfi.

44. Barðavogur 17 (01.443.003) 105510 Mál nr. BN034590
Ólafur Örn Jónsson, Barðavogur 17, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka anddyri einbýlishússins á lóðinni nr. 17 við Barðavog.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem taki mið af athugasemd eldvarnareftirlits.

45. Barmahlíð 7 (01.701.109) 106963 Mál nr. BN034612
Bessi Gíslason, Barmahlíð 7, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja skála sem tengist fyrstu hæð og gera þaksvalir ofan á hluta af tvöföldum bílskúr við fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 7 við Barmahlíð.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

46. Granaskjól 28 (01.515.504) 105856 Mál nr. BN034607
Kristinn Gylfi Jónsson, Seilugrandi 11, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja ca 25 ferm. tveggja hæða viðbyggingu við norðausturhorn einbýlishússins á lóðinni nr. 28 við Granaskjól.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

47. Hlaðbær 15 (04.353.008) 111232 Mál nr. BN034579
Gísli Þór Þorbergsson, Hlaðbær 15, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist fyrir stækkun á einbýli til norðurs sem nemur 27,74 ferm. við lóð nr. 15 við Hlaðbæ.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 2006 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

48. Kirkjutorg 6A (01.141.212) 100902 Mál nr. BN034569
Hallfríður Jakobsdóttir, Kirkjutorg 6a, 101 Reykjavík
Herbert Haraldsson, Kirkjutorg 6a, 101 Reykjavík
Spurt er hvort hægt sé að breyta notkun eignarhluta 0101 úr atvinnuhúsnæði (rakarastofa á fyrstu hæð) til íbúðar tengt íbúð 3. hæðar á lóðinni nr. 6a við Kirkjutorg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. september 206 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

49. Laufásvegur 19 (01.183.510) 197991 Mál nr. BN034621
Jósef Halldórsson, Laufásvegur 19, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja þaksvalir framan við kvist á götuhlið hússins á lóðinni nr. 19 við Laufásveg. Einnig er spurt hvort breikka mætti kvist þennan og tengja stærri kvist fyrir miðju hússins.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

50. Laufásvegur 37 (01.185.209) 102163 Mál nr. BN034600
Helgi Gunnarsson, Laufásvegur 37, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að rífa einbýlishúsið á lóðinni nr. 37 við Laufásveg, og byggja nýtt hús í staðinn.
Frestað.
Áður en unnt er að fjalla um erindið skal leggja fram umsagnir Húsafriðunarnefndar ríkisins og Minjasafns Reykjavíkur. Athygli er vakin á því að götumynd nýtur verndar.

51. Ljósaland 24 (01.870.601) 108818 Mál nr. BN034608
Jón Þorvaldur Bjarnason, Ljósaland 24, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að glerja inngang, reisa skyggni og sólskála við suðurhlið raðhússins á lóðinni nr. 24 við Ljósaland.
Frestað
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

52. Samtún 42 (01.221.412) 102828 Mál nr. BN034602
Guðrún Friðriksdóttir, Ljósheimar 8, 104 Reykjavík
Heimir Örn Jensson, Ljósheimar 8, 104 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist til að innrétta tveggja herbergja íbúð í rishæð einbýlishússins á lóðinni nr. 42 við Samtún.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

53. Selvogsgrunn 13 (01.350.404) 104149 Mál nr. BN034596
Jón Magnús Halldórsson, Blómvellir 16, 221 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við og stækka efri hæð tvíbýlishússins á lóðinni nr. 13 við Selvogsgrunn.
Frestað
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Jón Magnús Halldórsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

54. Sogavegur 194 (01.831.101) 108508 Mál nr. BN034617
Elinóra Inga Sigurðardóttir, Sogavegur 194, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr, hækka og breyta þaki og byggja kvisti skv. meðfylgjandi uppkasti af einbýlishúsinu á lóðinni nr. 194 við Sogaveg.
Nei.
Samræmist ekki skipulagi. Umsækjandi getur haft samband við hverfisstjóra skipulagsfulltrúa til að fá nánari upplýsingar.

55. Þverholt 11 (01.244.108) 180508 Mál nr. BN034618
Hanza-Hópurinn ehf, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft veri að byggja ofan á hús í líkingu við fyrirliggjandi uppdrætti þar sem sýnd er stækkuð 4. hæð fyrir skrifstofur eins og þar fyrir neðan og nýjar tvær hæðir með íbúðum þar ofan á á lóð nr. 11 við Þverholt.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

56. Öldugata 9 (01.136.404) 100579 Mál nr. BN034589
Tómas Áki Tómasson, Öldugata 9, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir hurð út í garð á jarðhæð fjölbýlishússins á lóðinni nr. 9 við Öldugötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Fundi slitið kl. 12:29.

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Helga Guðmundsdóttir
Þórður Búason Sigrún Reynisdóttir
Jón Magnús Halldórsson Sigríður Kristín Þórisdóttir