Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2006, þriðjudaginn 25. júlí kl. 10:30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 405. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Bjarni Þór Jónsson, Þórður Búason, Helga Guðmundsdóttir, Sveinbjörn Steingrímsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Aðalstræti 10 (01.136.504) 100594 Mál nr. BN034350
Minjavernd hf, Pósthólf 1358, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja kvist og þakglugga á austurþekju nýbyggingar (matshluta 02), færa lítillega bakdyrainngang matshluta 02 og fjölga þakgluggum á vesturþekju gamla hússins (matshluta 01) á lóð nr. 10 við Aðalstræti.
Bréf Línuhönnunar vegna brunarhönnunar dags. 19. júlí 2006, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 10. júlí 2006 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 24. júlí 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Stækkun (matshluta 02, vegna kvists birt stærð 2 ferm., 3,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 195
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

2. Austurberg 3 (04.667.101) 112094 Mál nr. BN034376
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að setja upp skilti norðan við aðalinngang að Breiðholtslaug á lóð nr. 3 við Austurberg.
Afrit af samningi við AFA JCDecaux dags. 12. júlí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

3. Álfabakki 6-18 (04.603.201) 111720 Mál nr. BN034253
Á-14,fasteignafélag ehf, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum til reksturs á spilasal í húsi nr. 14A á lóð nr. 6-18 við Álfabakka.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

4. Árland 1-7 (01.854.301) 108776 Mál nr. BN034413
Steingrímur Wernersson, Fjallalind 141, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að rífa núverandi einbýlishús nr. 1 við Árland og byggja nýtt steinsteypt einlyft einbýlishús með innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu ásamt kjallara undir hluta hússins allt einangrað að utan og að mestur klætt með eir á lóð nr. 1-7 við Árland.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 203-7305 merkt 01 0101 íbúð 174,9 ferm., og merkt 06 0101 bílskúr 55,1 ferm.
Nýtt einbýlishús kjallari 217,3 ferm., íbúð 1. hæð 304,3 ferm., bílgeymsla 44,6 ferm., samtals 566,2 ferm., 1880,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 114.717
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

5. Ásendi 7 (01.824.104) 108392 Mál nr. BN034382
Skúli Sigurðsson, Ásendi 7, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við stofu einbýlishússins á lóðinni nr. 4 við Ásenda.
Stækkun 13,4 ferm., 48,08 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2923
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

6. Barðastaðir 1-5 (02.422.501) 178904 Mál nr. BN034248
Eiríkur V Friðriksson, Hrísrimi 11, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp hamborgarastað í rými 0104 í húsi á lóð nr. 1-5 við Barðastaði.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

7. Barðastaðir 25-35 (00.000.000) 178850 Mál nr. BN034230
Hússjóður Öryrkjabandalagsins, Hátúni 10, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft steinsteypt raðhús með fjórum húsum sem hús nr. 25-31 ásamt fjóra steinsteypta bílskúra vestan við þau á lóð nr. 25-35 við Barðastaði.
Stærð: Raðhús nr. 25 (matshluti 08) íbúð 83,6 ferm., 273,8 rúmm. Bílskúr (matshluti 09) 22,9 ferm., 83 rúmm.
Raðhús nr. 27 (matshluti 06) íbúð 81,9 ferm., 268 rúmm. Bílskúr (matshluti 07) er sömu stærðar og við nr. 25, 29 (matshluti05) og 31(matshluti 03) eða 22,9 ferm., 83 rúmm hver skúr. Raðhús nr. 29 (matshluti 04) er sömu stærðar og hús nr. 27 eða 81,9 ferm., 268 rúmm. Raðhús nr. 31 (matshluti 02) er sömu stærðar og hús nr. 25 eða 83,6 ferm. 273,8 rúmm., Raðhús samtals 331 ferm., 1083,6 rúmm., og bílskúrar samtals 91,6 ferm., og 332 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 86.352
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Umsækjandi ber allan kostnað af breytingum þ.m.t. hugsanlegan kostnað vegna breytinga á veitum og borgarlandi og skulu þær framkvæmdar af aðila sem Framkvæmdasvið og OR samþykkja og undir eftirliti þeirra.

8. Bergstaðastræti 16-18 Mál nr. BN034392
Byggingarfélagið Strýtusel ehf, Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja húsið Hverfisgata 44 að Bergstaðastræti 16, Núverandi bakstigahús verður rifið og nýtt byggt í staðinn. Húsið er úr timbri 2. hæðir og ris á steyptum kjallara.
Stærðir 411,6 ferm., og 1169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 71.357
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Brautarholt 8 (01.241.205) 103023 Mál nr. BN034400
S.Waage sf, Hlíðarbyggð 19, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að byggja nýja hæð úr stálgrind klæddri múr ofan á húsið á lóðinni nr. 4 við Brautarholt.
Stækkun: 5406 ferm., og 1656,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 101.070
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.

10. Brekkugerði 32 (01.804.307) 107747 Mál nr. BN034414
Grímur Guðmundsson, Vesturbraut 23, 780 Höfn
Sótt er um leyfi til að stækka garðskála, breyta inngangi og snyrtingu í kjallaraíbúð í húsinu á lóðinni nr. 32 við Brekkugerði.
Stækkun: 1,8 ferm., 4,46 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 272
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

11. Brekkulækur 4 (01.342.003) 103963 Mál nr. BN034389
Þorvarður Kári Ólafsson, Brekkulækur 4, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp kamínu og reykrör á 3. hæð í húsinu á lóðinni nr. 4 við Brekkulæk.
Samþykki meðeigenda dagsett 6. júní 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

12. Brúnavegur Hrafnista (01.351.001) 104174 Mál nr. BN034405
Laugarásbíó, Brúnavegi Hrafnistu, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa hluta Laugarásbíós (snyrtingar) og byggja nýjan bíósal austan við núverandi bíó úr steinsteypu einangrað að utan og klætt með steinflísum og álplötum á lóð Hrafnistu við Brúnaveg.
Stærð: Niðurrif 26 ferm. Viðbygging 513,1 ferm., 3578,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 218.289
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Bröndukvísl 14 (04.235.104) 110889 Mál nr. BN034103
Höskuldur H Höskuldsson, Bröndukvísl 14, 110 Reykjavík
Aðalheiður Ríkarðsdóttir, Bröndukvísl 14, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallara og leyfi til þess að stækka tengibyggingu á 1. hæð milli íbúðarhúss og bílskúrs á lóð nr. 14 við Bröndukvísl.
Stærð: Áður gerð stækkun kjallara 107,3 ferm., 297,5 rúmm. Stækkun 1. hæð 13,4 ferm., 34,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 20.270
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Dalhús 2 (02.841.201) 109707 Mál nr. BN034377
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að setja upp upp skilti austan við aðalinngang að Grafarvogslaug á lóð nr. 2 við Dalhús.
Afrit af samningi AFA JCDecaux dags. 12. júlí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

15. Dugguvogur 8-10 (01.454.002) 105618 Mál nr. BN034404
Efrihlíð ehf, Þverási 25, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra fyrirkomulagi 2. hæðar suðurhluta í húsi nr. 10 á lóð nr. 8-10 við Dugguvog. Eignunum nr. 0206 og 0207 er breytt í níu skrifstofueiningar.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

16. Flugvöllur 106746 (01.65-.-99) 106746 Mál nr. BN034406
Flugfélag Íslands ehf, Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af flugstöð Flugfélags Íslands ásamt leyfi til þess að byggja við skrifstofur við norðurhlið, stækka skyggni yfir aðalinngangi og klæða norðurhlið með málmklæðningu á vestarihluta flugvallarsvæðisins.
Brunatæknileg úttekt Línuhönnunar dags. 18. júlí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Viðbygging xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

17. Fríkirkjuvegur 7 (01.183.415) 101975 Mál nr. BN034380
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi á kaffistofu i Listasafni Íslands Fríkirkjuvegi 7.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

18. Frostaskjól 9 (01.515.508) 105860 Mál nr. BN034356
Reir ehf, Rekagranda 10, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja þakglugga á raðhús nr. 9d og samþykki fyrir uppfærðum uppdráttum og skráningu alls raðhússins á lóð nr. 9 við Frostaskjól.
Stærð: Leiðréttar stærðir raðhúsa, hús nr. 9A (matshluti 01) samtals 274,3 ferm., 8881,8 rúmm., hús nr. 9B (matshluti 02) samtals 274,5 ferm., 882,4 rúmm., hús nr. 9C (matshluti 03) samtals 274,5 ferm., 882,4 rúmm., hús nr. 9D (matshluti 04) samtals 274,5 ferm., 882,2 rúmm. Samtals byggt á lóð 1097,8 ferm., en voru 1098,8 ferm. og 3528,8 rúmm., en voru 3486,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.562
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

19. Fylkisvegur 9 (04.364.701) 111278 Mál nr. BN033603
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að staðsetja skilti norðan við aðalinngang að Árbæjarsundlaug á lóð nr. 9 við Fylkisveg.
Afrit af samningi AFA JCDecaux dags. 12. júlí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

20. Grasarimi 9 (02.585.203) 109534 Mál nr. BN034388
Tómas Ellert Tómasson, Nauthólar 18, 800 Selfoss
Ásmundur Karlsson, Grasarimi 9, 112 Reykjavík
Sótt er um að reisa girðingu 1,8 m 0,5 m frá lóðarmörkum og setja upp setlaug á lóðinni nr. 9 við Grasrima.
Undirritað samþykki lóðarhafa Grasarima 11, dagsett 15. júní 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr.6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

21. Grensásvegur 11 (01.461.102) 105666 Mál nr. BN034409
Guðmundur Kristinsson ehf, Gerðhömrum 27, 112 Reykjavík
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sætrar ehf, Gerðhömrum 27, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæða steinsteypta húsálmu, á lóðinni nr. 11 við Grensásveg, austan við núverandi hús, nýbyggingin mun síðar tengjast eldra húsi með glerbyggingu, kjallari í eldra húsi verður gerður að bílakjallara.
Stærðir: 2945,4 ferm., 11643 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 710.223
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

22. Grímshagi 3 (01.554.302) 106604 Mál nr. BN034408
Einar Ögmundsson, Grímshagi 3, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun og breytingum á innra skipulagi kjallara tvíbýlishússins ásamt fyrir skrániningu bílskúra á lóð nr. 3 við Grímshaga.
Stærð: Áður gerð stækkun xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Guðríðarstígur 2-4 (04.121.301) 188024 Mál nr. BN034384
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um breytingar á innra skipulagi á 3. hæð í húsinu á lóðinni nr. 2-4 við Guðríðarstíg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Háaleitisbraut 52-56 (01.284.402) 103736 Mál nr. BN034399
Stefán Albertsson, Háaleitisbraut 52, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka og setja bárujárnsþak og klæða með Steniklæðningu bílskúrana á lóðinni nr. 52-56 við Háleitisbraut.
Samþykki eigenda Háleitisbrautar 52-54-56 dagsett 27. júní 2006 fylgir ásamt samþykki stjórna Húsfélagsins Miðbær Háleitisbraut 52-56 dagsett 7. júlí 2006.
Stækkun: 208,4 rúmm.
Gjald kr.6.100 + 12.712
Frestað.
Lagfæra skráningu.

25. Hofsvallagata Mál nr. BN034375
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að setja upp skilti norðan við aðalinngang á lóð Vesturbæjarsundlaugar við Hofsvallagötu.
Afrit af samningi við AFA JCDecaux dags. 12. júlí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

26. Holtsgata 39 (01.133.406) 100284 Mál nr. BN034370
Linda Björg Árnadóttir, Hagamelur 40, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja steyptan vegg og setja stálbita í staðinn á 2. hæð í húsinu á lóðinni nr. 39 við Holtsgötu.
Samþykki meðeigenda, dags. 11. júlí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

27. Hringbraut - þjónustustöð Olíufélagsins Mál nr. BN034449
Olíufélagið ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Ofanritaður sækir um takmarkað byggingarleyfi fyrir greftri, fyllingu og aðstöðugerð.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

28. Hringbraut - þjónustustöð Olíufélagsins Mál nr. BN034425
Olíufélagið ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja bensínafgreiðslu með verslun og veitingarsölu sem stálgrindarbyggingu klædda með ljósgráum flísum og skyggni klætt hvítu áli, á til þess afmarkaðri lóð við Hringbraut.
Brunahönnun Línuhönnunar 26. júní 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Verslun m.m. (matshluti 01) 505,3 ferm., 2030 rúmm., tæknirými við bílaþvottaplan (matshluti 02) 9,8 ferm., 17,2 rúmm., eldsneytisgeymir (matshluti 03) 25,7 ferm., 55,9 rúmm., eldsneytisgeymir (matshluti 04) 25,7 ferm., 55,9 rúmm., eldsneytisgeymir (matshluti 05) 6,4 ferm., 11,6 rúmm., eldsneytisgeymir (matshluti 06) 4,6 ferm., 5,6 rúmm., dæluskyggni og gasgeymsla (B-rými) 232,9 ferm., 1273,1 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 208.705
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Ingólfsstræti 1 (01.150.307) 100974 Mál nr. BN033851
Gamla gagnkvæma ehf, Þverholti 11, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta byggingaraðferð nýsamþykktrar ofanábyggingar úr steinsteypu í stálvirki klætt með forsteyptum einingum, stækka 8. hæð meira en samþykkt var 20. desember 2005 ásamt leyfi til þess að gera kjallara undir móttöku hótelsins ásamt hluta af bílaplani hússins á lóðinni nr. 1 við Ingólfsstræti.
Jafnframt er erindi nr. 33185 dregið til baka.
Brunahönnun endurskoðuð 16. maí 2006, bréf hönnuðar dags. 20. júní 2006 og Rb- vottorð á framleiðslu holplatna gildistími 25. maí 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Stækkun 210,1 ferm., 118,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 6.100 + 6.100 + 7.241
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Greiða skal til viðbótar við áður útreiknuð bílastæðagjöld fyrir 4,3 bílastæði í flokki II, 4,3 x 235.236 kr. = 1.011.514

30. Ingólfsstræti 8 (01.170.308) 101345 Mál nr. BN034265
Múltikúlti ehf, Ingólfsstræti 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingu á notkun kjallara þar sem sýnd er testofa í hluta ásamt fleiri breytingum í kjallara hússins á lóðinni nr. 8 við Ingólfsstræti.
Samþykki meðeigenda dags. 6. maí og 16. desember 2004 fylgdi erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Keilufell 49 (04.677.207) 112257 Mál nr. BN034329
Halldóra Árnadóttir, Keilufell 49, 111 Reykjavík
Benedikt Sveinn Kristjánsson, Keilufell 49, 111 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri breytingu bílskýlis í bílskúr og leyfi til þess að byggja sólstofu við suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 49 við Keilufell.
Stærð: Áður gerður bílskúr 19,8 ferm., 48,6 rúmm. Sólstofa 13,9 ferm., 38,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.319
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

32. Lambasel 20 (04.998.502) 200769 Mál nr. BN034395
Jón Þ Gíslason, Rauðagerði 43, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft steinsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 20 við Lambasel.
Stærð: Íbúð 146,2 ferm., bílgeymsla 38,5 ferm., samtals 184,7 ferm., 696,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 42.468
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Lambasel 44 (04.998.707) 200790 Mál nr. BN034009
Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir, Bakkasel 18, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft einbýlishús úr forsteyptum einingum með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 44 við Lambasel
Stærð: Íbúð 1. hæð 139,7 ferm., 2. hæð 60,5 ferm., bílgeymsla 36,2 ferm., samtals 236,4 ferm., 886,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 54.058
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Langholtsvegur 159 (01.442.113) 105500 Mál nr. BN033308
Eiður Páll Sveinn Kristmannsson, Langholtsvegur 159, 104 Reykjavík
Gná Guðjónsdóttir, Langholtsvegur 159, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallara, leyfi til þess að lækka gólf vestari hluta húss um 1 m, breyta innra fyrirkomulagi, byggja viðbyggingu að suðurhlið, kvisti á norður- og suðurþekju og byggja steinsteyptan bílskúr á lóðinni nr. 159 við Langholtsveg.
Á uppdráttum er gerð grein fyrir setlaug á lóðinni.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. febrúar 2006, samþykki eigenda Langholtsvegar 157 (á teikningu) og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 22. júní 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Áður gerð stækkun kjallara 16,8 ferm., 38,6 rúmm., umsótt stækkun einbýlishúss (kvistir og sólstofa) samtals 18,6 ferm., 102,9 rúmm., bílskúr 46,4 ferm., 134,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 6.100 + 16.836
Frestað.
Lagfæra skráningu. Grenndarkynningu ólokið.

35. Laugarásvegur 1 (01.380.104) 104729 Mál nr. BN034398
Laugarásvegur 1,húsfélag, Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta svalahandriðum og gluggum á húsinu á lóðinni nr. 1 við Laugarásveg.
Samþykki meðeigenda dagsett 11. júlí 2006 fylgir, ásamt ástands og viðgerðar skýrslu frá Línuhönnun dags. apríl 2005.
Gjald kr.6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Laugarnesvegur 44 (01.360.102) 104504 Mál nr. BN034326
Lárus Stefán Jóhannesson, Laugarnesvegur 44, 105 Reykjavík
Helga Einarsdóttir, Laugarnesvegur 44, 105 Reykjavík
Ragnar Friðrik Valsson, Laugarnesvegur 44, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvöfaldan bílskúr úr steinsteypu í einangrunarmót á lóð nr. 44 við Laugarnesveg.
Samþykki meðeigenda og nágranna að Laugarnesvegi 46 og Hrísateig 11 dags. 12. mars 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr samtals 87 ferm., 259,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 15.811
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Laugateigur 42 (01.365.110) 104677 Mál nr. BN034149
Jón Magngeirsson, Þykkvibær 14, 110 Reykjavík
Hlöðver Oddsson, Laugateigur 42, 105 Reykjavík
Birna Júlíusdóttir, Laugateigur 42, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka kjallaraíbúð um áður sameiginlegan kjallaragang, fjarlægja veggi og breyta innra skipulagi íbúðarinnar, síkka glugga á vesturhlið kjallara og setja svalahurð að garði á lóð nr. 42 við Laugateig.
Jafnframt lögð fram umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 19. júlí 2006.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

38. Laugavegur 163 (01.222.211) 102873 Mál nr. BN034321
Kjálkar ehf, Laugavegi 163, 105 Reykjavík
Sótt er um breytingar á innra skipulagi 3. hæðar þ.e stigi settur inn á milli hæða í húsinu á lóðinni nr. 163 við Laugarveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda umhverfis- og heilbrigðisstofu á umsóknarblaði.

39. Laugavegur 28B (01.172.207) 101462 Mál nr. BN034285
Tvívík ehf, Hólatorgi 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi allra hæða, breyta staðsetningu á svölum við suðurhlið 3. hæðar og leiðrétta skráningu atvinnuhússins á lóðinni nr. 28b við Laugaveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Laugavegur 74 (01.174.207) 101610 Mál nr. BN033408
Laugavegur 74 ehf, Hamraborg 12, 200 Kópavogur
Emil Emilsson, Brúnás 20, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að flytja núverandi hús (matshluta 01) á lóð nr. 74 við Laugaveg og byggja nýtt og stærra hús í staðinn. Nýja húsið verður steinsteypt, klætt loftræstum klæðningum og að útliti að Laugavegi áþekkt því gamla. Enfremur á að rífa geymslu og vinnuskúr (matshl 02, 77 ferm og matshl 03, 35 ferm). Verslun verður á 1. hæð, en samtals sex íbúðir á 2. og 3. hæð og kjallari er undir hluta hússins.
Bréf hönnuðar mótt. 8. mars 2006 og dags. 3. apríl og 5. maí 2006 ásamt bréfi Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 7. mars 2006. og bréf móttekið 21. júní 2006 um flutning á gamla húsinu.
Stærðir nýbygging: Kjallari 176,9 ferm., 1. hæð 418,0 ferm., 2. hæð 298,0 ferm., 3. hæð 250,6 ferm., samtals 1144,1 ferm., 3.706,8 rúmm.
Niðurrif: Fastanúmer 200-5406, stærð 250,4 ferm., fastanúmer 200-5407, stærð 77,1 ferm., fastanúmer 200-5408, stærð 35,6 ferm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 226.115
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Greiða skal fyrir 10,6 bílastæði í flokki II, 10,6 x 235.236 = kr. 2.493.501

41. Logafold 21 (02.875.504) 110394 Mál nr. BN034156
Bergþór Halldórsson, Logafold 21, 112 Reykjavík
Bryndís Gunnarsdóttir, Logafold 21, 112 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun 1. hæðar í áður sökkulrými tvíbýlishússins á lóð nr. 21 við Logafold.
Stærð: Áður gerð stækkun 88,2 ferm., 255,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 15.604
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Lækjarmelur 12 (34.533.403) 206645 Mál nr. BN034233
Fasteignafélagið Hlíð ehf, Ármúla 13a, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja stálgrindarhús með fjórum iðnaðareiningum allt klætt að utan með grárri stálklæðningu á lóð nr. 12 við Lækjarmel.
Minnisblað Línuhönnunar um brunavarnir dags. 17. júlí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Atvinnuhús 1. hæð og millipallar samtals 1247,2 ferm., 5947,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 362.785
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Miklabraut 74 (01.710.004) 107119 Mál nr. BN034235
Kristín Daníelsdóttir, Miklabraut 74, 105 Reykjavík
Miklabraut 74-76-78,húsfélag, Miklubraut 74-76-78, 105 Reykjavík
Sótt er um að stækka kvisti hússins á lóðinni nr. 74 við Miklubraut.
Samþykki eigenda Miklubrautar 74-78 fylgir erindinu.
Stærðir: 15 rúmm.
Gjald kr 6.100 + 915
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Miklabraut 76 (01.710.005) 107120 Mál nr. BN034238
Ráðhús ehf, Mánatúni 4, 105 Reykjavík
Miklabraut 74-76-78,húsfélag, Miklubraut 74-76-78, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka kvisti, byggja tvennar svalir við suðurhlið rishæðar og fá samþykkta íbúð á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 76 við Miklubraut.
Samþykki meðeigenda Miklubrautar 74-78 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun vegna kvista xxx ferm., 15 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 915
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Miklabraut 78 (01.710.006) 107121 Mál nr. BN034240
Miklabraut 74-76-78,húsfélag, Miklubraut 74-76-78, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta kvistum, byggja svalir við suður- og austurhlið rishæðar og breyta innra skipulagi rishæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 78 við Miklubraut.
Samþykki meðeigenda Miklubrautar 74-78 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun vegna kvista xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

46. Mururimi 13 (02.544.801) 109482 Mál nr. BN034190
Jökull Heiðdal Úlfsson, Mururimi 13, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við einbýlishúsið á lóðinni nr. 13 við Mururima. Yfirlýsing frá Tækniþjónustu Vestfjarðar, dagsett 12. júlí 2006, varðandi burðarþol fylgir
Stærð: Stækkun 9,2 ferm., 45,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.763
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

47. Mýrargata 26 (01.115.303) 100059 Mál nr. BN034394
Nýja Jórvík ehf, Grandagarði 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka milliloft á 3. og 5. hæð og stækka glugga á nokkrum íbúðum á 2., 3., 4. og 5. hæð ásamt smávægilegim lagfæringum á nýsamþykktum uppdráttum eins og stækkun bílgeymslu í hluta áður samþykkts atvinnuhúsnæðis svo bílastæðum fjölgar í 92 í stað 89 áður í fjöleignarhúsinu á lóð nr. 26 við Mýragötu. Jafnframt er sótt um leyfi til þess að færa hús að norðurlóðarmörkum.
Stærð: Stækkun vegna millilofta samtals 461,2 ferm.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Nökkvavogur 60 (01.445.203) 105569 Mál nr. BN034411
Indriði Haukur Þorláksson, Nökkvavogur 60, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á sama stað og svipaðan og samþykktur 1989 á lóð nr. 60 við Nökkvavog.
Bréf hönnuðar dags. 18. júlí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr 30,6 ferm., 90,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5,508
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Nönnugata 3A (01.186.226) 102254 Mál nr. BN029532
Snorri Sigfús Birgisson, Nönnugata 3a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að hækka þak lítillega (15cm við þakkant, 34cm við mæni), setja franskar svalir á suðvesturgafl, koma fyrir þakglugga á suðausturþekju og innrétta svefnloft á rishæð hússins á lóðinni nr. 3A við Nönnugötu.
Erindið var grenndarkynnt frá 29. júní til 28. júlí 2004. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: Stækkun samtals 4,8 ferm., 12,1 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 738
Frestað.
Umsækjandi hafi samband við Orkuveitu Reykjavíkur vegna staðsetningu inntaka. Vantar rafræna skráningartöflu.

50. Ólafsgeisli 20 - 28 (04.126.601) 186347 Mál nr. BN034401
Sigurður Gestsson, Ólafsgeisli 20, 113 Reykjavík
Sótt er um að loka svölum með gleri,setja skjólveggi úr gleri á svalir, gera stétt og þrep sunnan við hús á lóðinni nr. 20 við Ólafsgeisla.
Samþykki eigenda Ólafsgeisla 24, 26, 28 dagsett 3. maí 2006 fylgir erindinu.
Vísað er til afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2006.
Stærðir: 20,3 ferm., 82,21 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5015
Frestað.
Vantar skráningartöflu.

51. Skipholt 50 A (01.254.001) 103465 Mál nr. BN034383
Þórsafl hf, Skútahrauni 15, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að breyta þaki yfir viðbyggingu, hússins á lóðinni nr. 50A við Skipholt, úr staðsteyptu og forsteyptu í léttar einingar frá Lett-tak, ennfremur að breyta baðherbergjum í 0205, 0206, 0306, 0307.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Skógarhlíð 18 (01.705.702) 107113 Mál nr. BN034283
Heimsferðir ehf, Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja hæða steinsteypta viðbyggingu við atvinnuhúsið á lóðinni nr. 18 við Skógarhlíð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2006, samþykki f.h. meðeigenda ódags. og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 10. júlí 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Viðbygging samtals 1160,9 ferm., 3777,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 230.434
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Skógarhlíð 6 (01.703.003) 107071 Mál nr. BN033608
Forval ehf, Pósthólf 5246, 125 Reykjavík
Fjársýsla ríkisins,ríkisfjárh., Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Sótt er um að breyta hluta kjallara í starfsmanna, fundaraðstöðu og mötuneyti í húsinu á lóðinni nr. 6 við Skógarhlíð.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

54. Skólavörðustígur 14 (01.180.302) 101713 Mál nr. BN034062
Arnar Jónsson, Skólavörðustígur 14, 101 Reykjavík
Þórhildur Þorleifsdóttir, Skólavörðustígur 14, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta gluggum á 4. hæð, koma fyrir heitum potti á svölum og hurð út á svalir ásamt breytingum á innra skipulagi íbúðar 0401 í fjöleignarhúsinu á lóðinni nr. 14 við Skólavörðustíg.
Með málinu fylgir undirritað samþykki meðlóðarhafa dags. 22. maí 2006 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 17. júlí 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

55. Skólavörðustígur 8 (01.171.206) 101387 Mál nr. BN034372
Hjördís Gísladóttir, Ögurás 4, 210 Garðabær
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi sem samþykkt var 16.sept 2003 varðandi breytingar á innra fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 8 við Skólavörðustíg.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

56. Skúlagata 14-16 (01.152.301) 101036 Mál nr. BN033769
101 Skuggahverfi hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt fjölbýlishús sem sex byggingar ofan á bílgeymslukjallara fyrr 205 bíla þar sem eitt er þriggja hæða, eitt átta hæða, tvö ellefu hæða , eitt sautján hæða og eitt nítján hæða há með samtals hundrað sextíu og átta íbúðum á lóð nr. 14-16 við Skúlagötu.
Jafnframt er lagt til að húsin verði framvegis númer 35, 37 og 39 við Lindargötu og nr. 14, 16-18. 20-22 við Vatnsstíg.
Brunahönnun Línuhönnunar dags. 4. apríl og endurskoðuð 12. júní 2006, bréf Línuhönnunar varðandi breidd stiga dags. 7. mars 2006 og bréf Línuhönnunar varðandi hljóðstig dags. 3. maí 2006 fylgja erindinu. Jafnframt lagt fram bréf Brunamálastofnunar vegna stigabreidda dags. 9. maí 2006 og bréf Skipulagsstofnunar um stigabreiddir dags. 5. maí 2006.
Stærð: Vatnsstígur 16-18 (matshluti 10) kjallari 824,8 ferm., 1. -19. hæð 6452,7 ferm., samtals 7277,5 ferm., 22957,9 rúmm.
Vatnsstígur 14 (matshluti 11) kjallari 351 ferm., 1.-8. hæð 1960,5 ferm., samtals 2311,5 ferm., 7447,2 rúmm.
Lindargata 35 (matshluti 12) kjallari 175,5 ferm., 1.-3. hæð 912,8 ferm., samtals 1088,3 ferm., 3511,5 rúmm.
Lindargata 37 (matshluti 13) kjallari 545,1 ferm., 1.-11. hæð 3847,6 ferm., samtals 4392,7 ferm., 14091,3 rúmm.
Lindargata 39 (matshluti 14) kjallari 621,8 ferm., 1.-11. hæð 3830,7 ferm., samtals 4452,5 ferm., 14309,1 rúmm.
Vatnsstígur 20-22 (matshluti 15) kjallari 779,3 ferm., 1.-17. hæð 5991,6 ferm., samtals 6766,9 ferm., 21443,7 rúmm.
Samtals 26289,4 ferm., 83760,7 rúmm.
Bílageymsla neðri kjallari 1632,2 ferm., kjallari 3359,1 ferm., 1. hæð 1630,3 ferm., samtals 6621,6 ferm., 20.448,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 6.356.767
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

57. Sóleyjarimi 19-23 (02.536.106) 199447 Mál nr. BN034337
Mótás hf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja til fimm hæða steinsteypt fjölbýlishús með þremur stigahúsum og samtals 45 íbúðum allt einangrað að utan og klætt með álklæðningu ýmist sléttri eða báraðri ásamt geymslu- og bílgeymslukjallara fyrir 45 bíla á lóð nr. 19-23 við Sóleyjarima.
Stærð: Íbúð kjallarageymslur 764,2 ferm., 1. hæð 1148,9 ferm., 2. hæð 1191,2 ferm., 3. hæð 1191,2 ferm., 4. hæð 795,4 ferm., 5. hæð 399,6 ferm., bílgeymsla 1332 ferm., samtals 6822,5 ferm., 20145,1 rúmm. Svalagangar o.fl. (B-rými) samtals 195,3 ferm., 547,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.262.230
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

58. Spöngin 9-31 (02.375.201) 177193 Mál nr. BN034412
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum af innra skipulagi eldhúss og veitingastaðar í Spönginni 13.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

59. Sundlaugav. 30 (01.37-.-99) 104720 Mál nr. BN034374
AFA JCDecaux Ísland ehf, Vesturvör 30b, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að setja upp skilti norðvestur af aðalinngangi að innilaug við Laugardalslaug á lóð nr. 30 við Sundlaugaveg.
Afrit af samningi við AFA JCDecaux dags. 12. júlí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

60. Tunguháls 8 (04.342.101) 179593 Mál nr. BN033803
Patti ehf, Krókhálsi 10, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu úr stálgrind klæddri með samlokueiningum með lóðréttri báru við suðurenda núverandi atvinnuhúss sem skipt verður í tvo matshluta á lóð nr. 8 við Tunguháls.
Jafnframt er erindi nr. 33361 dregið til baka.
Samkomulag eigenda dags. 5. maí 2006, yfirlýsing hönnuðar vegna samræmingar erindis 33819 dags. 10. maí 2006, samþykki eigenda Klettháls 3 og 5 dags. 10. apríl 2006, samþykki eigenda Tunguháls 10 dags. 6. júní 2006 og samkomulag vegna frágangs að lóð nr. 5 við Klettháls dags. 20. júlí 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Viðbygging samtals 2357,4 ferm., 8510,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 519.165
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skila skal vottun eininga eigi síðar en við úttekt á botnplötu.

61. Tunguháls 8 (04.342.101) 179593 Mál nr. BN033819
Veiðarfærasalan Dímon ehf, Tunguhálsi 8, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við norðurenda hússins tveggja hæða stálgrindarbyggingu í sama lit og sama frágangi utanhúss og eldra hús á lóð. Jafnframt er sótt um leyfi til að koma fyrir nýju millilofti í hluta eldra húss og breyta matshlutaskiptingu á lóð nr. 8 við Tunguháls.
Samkomulag lóðarhafa Tunguháls 8 dags. 5. maí 2006, samþykki hönnuðar viðbyggingar við suðurenda dags. 10. maí 2006, samþykki lóðarhafa Klettháls 3 og 5 dags. 10. apríl 2006 og samþykki lóðarhafa Tunguháls 10 vegna frágangs á lóðamörkum dags. 18. júní 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Viðbygging og stækkun millilofts í eldri hluta samtals 1714,7 ferm., 6346,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 387.124
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

62. Vaðlasel 7 (04.930.504) 112839 Mál nr. BN034362
Gissur Pétursson, Vaðlasel 7, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyfta steinsteypta tengibyggingu milli íbúðarhúss og bílgeymslu á lóð nr. 7 við Vaðlasel.
Stærð: Stækkun íbúðar einbýlishúss 41,6 ferm., 121,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 7.411
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

63. Vesturás 37 (04.385.603) 111520 Mál nr. BN034324
Helga Stefánsdóttir, Vesturás 37, 110 Reykjavík
Júlíus Roy Arinbjörnsson, Vesturás 37, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að nýta áður sökkulrými fyrir tómstundarými og geymslukjallara, byggja steinsteypta viðbyggingu við suðausturhlið 1. hæðar ásamt palli með heitum potti við hús nr. 37 á lóð nr. 31-39 Vesturás.
Samþykki meðlóðarhafa dags 3. júlí 2007 (á teikningu) fylgir erindinu.
Stærð: Kjallari 58,7 ferm., 138,5 rúmm. Viðbygging 18,6 ferm., 55,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.828
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

64. Vesturgata 24 (01.132.003) 100193 Mál nr. BN034396
Eignarhaldsfélagið Normi ehf, Pósthólf 130, 212 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja hæða fjölbýlishús ásamt þakhæð með stálgrindarveggjum klædda bárujárni og flísum á fyrstuhæð, steinsteyptar plötur og með steinsteyptan bíla- og geymslukjallara fyrir átta íbúðir og sjö bílastæði í bílgeymslu á lóð nr. 24 við Vesturgötu.
Stærð: Íbúð geymslukjallari 93,5 ferm., 1. hæð 93,6 ferm., 2. hæð 139 ferm., 3. hæð 139 ferm., 4. hæð 139 ferm., bílgeymsla 217,2 ferm., samtals 821,3 ferm., 2349,7 rúmm. Stigahús (B-rými) samtals 95,9 ferm., 349,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 164.645
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

65. Vesturgata 54A (01.130.216) 100139 Mál nr. BN033121
Ragnar Ólafsson, Vesturgata 54a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja svalir fyrir framan kvist á austurhlið og stækka kvist á norðurhlið þakhæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 54A við Vesturgötu.
Erindið var grenndarkynnt frá 1. mars til og með 29. mars 2006. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. janúar 2006, samþykki f.h. eigenda Vesturgötu 54 dags. 18. febrúar 2006 og samþykki meðeigenda (á teikningu) fylgja erindinu.
Stærð: Stækkun 6,5 ferm., 18,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 6.100 + 1.110
Frestað.
Lagfæra skráningu.

66. Viðarhöfði 4-6 (04.077.502) 110687 Mál nr. BN033721
Bifreiðar & landbúnaðarvélar hf, Grjóthálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss og utan, stækka milliloft, starfsmannaaðstöðu og glugga breytt í innkeyrsludyr á atvinnuhúsi nr. 4 á lóð nr. 4-6 við Viðarhöfða.
Stærð: Stækkun millilofts xx ferm.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

67. Þórsgata 10 (01.184.205) 102027 Mál nr. BN033946
Alda Lóa Leifsdóttir, Þórsgata 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við húsið á lóðinni nr. 10 við Þórsgötu. Húsinu verður breytt í einbýlishús og íbúðarhús (matshl.2 .0101) á baklóð verður rifið.
Stærð: Niðurrif fastanúmer 200-6895 02 0101 íbúð 66,8 ferm.
Viðbygging: Stækkun 172,6 ferm., 778,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 47.470
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

68. Þórsgata 27 (01.181.312) 101782 Mál nr. BN034387
Þorsteinn Guðmundsson, Þórsgata 27, 101 Reykjavík
Sótt er um að byggja stigahús og snyrtingu við húsið úr steinsteypu og gera svalir úr timbri á austurhlið 1. hæðar, einnig er sótt um leyfi fyrir nýju bílastæði á lóðinni nr. 27 við Þórsgötu.
Stækkun: 39,6 ferm., og 85,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.209
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

69. Þönglabakki 1 (00.000.000) 111722 Mál nr. BN034403
Landsafl hf, Pósthólf 709, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta hluta 2. hæðar fyrir heilsuverndarrstöð barna og mæðravernd, bæta við brunastiga við norðurgafl og setja spjöld í glugga atvinnuhússins Þönglabakka 1 á lóð nr. 12-16 við Álfabakka/Þönglabakka.
Bréf hönnuðar dags. 18. júlí 2006 og greinagerð um brunamál Verkfræðistofu Snorra Ingimarssonar fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

70. Æsufell 4 (04.681.001) 112291 Mál nr. BN034196
Æsufell 4,húsfélag, Æsufelli 4, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að færa snyrtiherbergi og útbúa eldunarkrók í sameign á annarri til og með sjöundu hæð í fjölbýlishúsi nr. 4 við Æsufell (matshluta 02) á lóðinni nr. 2-12 við Asparfell.
Samþykki hússtjórnar Æsufells 2,4 og 6 dags.13.júní 2006 og bréf hönnuðar dags. 20. júlí 2006 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

71. Öldugata 53 (01.134.305) 100354 Mál nr. BN034017
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir, Öldugata 53, 101 Reykjavík
Eyjólfur Már Sigurðsson, Öldugata 53, 101 Reykjavík
Elizabeth Ortega Lucio, Öldugata 53, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 53 við Öldugötu.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Fyrirspurnir

72. Dugguvogur 23 (01.454.409) 105647 Mál nr. BN034422
Marteinn Einarsson, Bakkahjalli 5, 200 Kópavogur
Spurt er hvort möguleiki sé á að gera íbúð í hluta 03-05 í húsi á lóð nr. 23 við Dugguvog.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

73. Einarsnes 44 (01.672.006) 106795 Mál nr. BN034397
Hrefna Gunnarsdóttir, Einarsnes 44, 101 Reykjavík
Spurt er hvort taka megi af kvöð sem er á viðbyggingu austanmegin á húsinu á lóðinni nr. 44 við Einarsnes.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

74. Eirhöfði 13 (04.030.201) 110520 Mál nr. BN034381
Nortek ehf, Hjalteyrargötu 6, 603 Akureyri
Spurt er hvort leyfi fáist fyrir viðbyggingu við húsi á lóðinni nr. 13 við Eirhöfða.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

75. Fálkagata 32 (01.553.017) 106531 Mál nr. BN034402
Björn Sigurðsson, Fálkagata 32, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fáist til að breyta rými í risi í séríbúð með löglegum breytingum í húsinu á lóðinni nr. 32 við Fálkagötu. M.a. með því að gera kvisti á þak.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

76. Háaleitisbraut 49-51 (01.291.402) 103777 Mál nr. BN034415
Gunnlaugur Jónsson, Háaleitisbraut 49, 108 Reykjavík
Spurt er hvort opna megi út í garð úr kjallara og skapa þar litla verönd í húsinu á lóðinni nr. 49 við Háaleitisbraut.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem samþykki meðeigenda fylgi.

77. Hólmsland (08.2--.-99) 113490 Mál nr. BN030033
Sigurlína Konráðsdóttir, Hraunbraut 18, 200 Kópavogur
Ofanrituð spyr hvort leyft yrði að reisa nýtt sumahús í stað eldra húss frá 1943. Á lóðinni er jafnframt sumarhús frá 1998 og 5 ferm. geymsluhús. Óvíst er um stærð húss frá 1998.
Jafnframt lagt fram svarbréf fyrirspyrjanda dags. 3. september 2004.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. janúar 2005 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2005 fylgja erindinu.
Einnig lagt fram bréf umhverfissviðs dags. 14. júlí 2006.
Frestað.
Nýjum uppdráttum dags. 21. apríl 2006 vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

78. Mávahlíð 12 (01.702.206) 107050 Mál nr. BN034373
Rúnar Þór Þórarinsson, Mávahlíð 12, 105 Reykjavík
Spurt er hvort samþykkt verði sjálfstæð íbúð í risi hússins á lóð nr. 12 við Mávahlíð.
Frestað.
Óska skal eftir íbúðarskoðun byggingarfulltrúa til að hægt sé að taka afstöðu til erindisins.

79. Njálsgata 50 (01.190.303) 102436 Mál nr. BN034407
Rúnar Már Sverrisson, Njálsgata 50, 101 Reykjavík
Spurt er hvort íbúð fáist samþykkt í kjallara hússins á lóðinni nr. 50 við Njálsgötu.
Með erindinu fylgja, bréf umsækjanda dags. 17 júlí 2006, ljósrit með íbúðarumsókn dags. 5. okt 1916, samþykki bæjarstjórna fyrir íbúð dags. 23. okt. 1916, virðingargjörð frá 1. desember 1942 og 10. ágúst 1946, frá Rafmagnstjórn Reykjavíkur 16. nóvember 1950 og 23. júlí 956 ásamt ljósmyndum.
Frestað.
Óska skal eftir íbúðarskoðun byggingarfulltrúa til að hægt sé að taka afstöðu til erindisins.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 15:40.

Bjarni Þór Jónsson
Þórður Búason Helga Guðmundsdóttir
Sveinbjörn Steingrímsson Sigríður Kristín Þórisdóttir