Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005

Árið 2006, þriðjudaginn 13. júní kl. 09:30 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 399. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Sveinbjörn Steingrímsson, Sigrún Reynisdóttir, Þórður Búason, Helga Guðmundsdóttir og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Arnarbakki 1-3 (04.632.201) 111860 Mál nr. BN034133
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborga, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja 3 gamlar færanlegar kennslustofur og setja í staðinn 3 af nýrri gerðinni á lóðina nr. 1-3 við Arnarbakka.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Austurbrún 31 (01.354.104) 104272 Mál nr. BN034060
Félag aðstandenda alzheimersj, Brekkuhvammi 18, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að byggja hús á einni hæð á baklóð Austurbrúnar 31, skv. uppdr. Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, dags. 10.05.06.
Stærðir 64,5 ferm., 219,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 13.377
Frestað.
Skipulagsferli ólokið.

3. Ánanaust 3 (01.130.112) 100124 Mál nr. BN034140
Ánanaust ehf, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja allt að sjö hæða steinsteypta byggingu með 142 íbúðum fyrir aldraða, 44 íveru einingum, þjónusturýmum og bílgeymslum allt einangað að utan og klætt með xxx á lóð nr. 3 við Ánanaust.
Stærð: Íbúðir og þjónusturými samtals 21585 ferm. og bílgeymsla 10737 ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Bakkagerði 13 (01.816.405) 108123 Mál nr. BN034073
Brynjólfur Þór Brynjólfsson, Ólafsbraut 21, 355 Ólafsvík
Ragnheiður Jónsdóttir, Ólafsbraut 21, 355 Ólafsvík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta viðbyggingu við suður- og austurhlið einbýlishúss, hækka þak yfir hluta íbúðarhúss, hækka þak bílskúrs og einangra þrjár hliðar bílskúrs að utan og klæða með múrkerfi á lóð nr. 13 við Bakkagerði.
Samþykki lóðarhafa aðlægra lóða dags. 3. júní 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Viðbygging við einbýlishús samtals 58,9 ferm., 230,5 rúmm., stækkun bílskúrs 2,5 ferm., 45,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 16.860
Frestað.
Lagfæri skráningu. Senda rafræna töflu.

5. Barðavogur 26 (01.442.007) 105478 Mál nr. BN033815
Hólmfríður H Einarsdóttir, Barðavogur 26, 104 Reykjavík
Sigurður Sigurðsson, Barðavogur 26, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja svalir með tröppum niður í garð af miðhæð hússins á lóðinni nr. 26 við Barðavog.
Málinu fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. mars 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

6. Borgartún 22 (01.221.003) 102798 Mál nr. BN034114
Húsfélagið Borgartúni 22, Borgartúni 22, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 30. október 2001 fyrir þegar gerðri skábraut framan við aðalinngang og lyftu í lyftustokk í stigahúsi atvinnuhússins á lóðinni nr. 22 við Borgartún.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

7. Borgartún 32 (01.232.001) 102917 Mál nr. BN034128
Borgartún ehf, Hegranesi 22, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi herbergja á 6. hæð hótelsins á lóðinni nr. 32 við Borgartún.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

8. Brekkustígur 3 (01.134.206) 100333 Mál nr. BN034131
Sigurgeir Steingrímsson, Brekkustígur 3, 101 Reykjavík
Ragnheiður Jónsdóttir, Brekkustígur 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum breytingum s.s. breytingum á innra skipulagi, tekinn er út lítill gluggi í stigarými, og endurbyggður garðskúr við húsið á lóðinni nr. 3 við Brekkustíg.
Stærð: 10,9 ferm., 27,9 rúmm.,
Gjald kr. 6.100 + 1.702
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

9. Bræðraborgarstígur 26 (01.134.406) 100376 Mál nr. BN033779
Jóhannes Tómasson, Bárugrandi 5, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á jarðhæð hússins nr. 26 við Bræðraborgarstíg, þar sem jarðhæðin er innréttuð sem læknastofur.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Byggðarendi 23 (01.826.012) 108437 Mál nr. BN033975
Hákon Hákonarson, Byggðarendi 23, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við einbýlishúsið á lóðinni nr. 23 við Byggðarenda.
Stærð: Stækkun 27,3 ferm., 78,1 rúmm.
Gjald kr. 6.100 +47.641
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

11. Bæjarflöt 10 (02.575.803) 178967 Mál nr. BN034005
Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 21. október 2003 fyrir tvílyftri viðbyggingu úr samlokueiningum við norðurhlið atvinnuhússins á lóðinni nr. 10 við Bæjarflöt.
Brunahönnun VSI endurskoðuð 7. október 2003 og samþykki eigenda að Gylfaflöt 9 innfært 23. september 2003 fylgja erindinu.
Stærð: Viðbygging 1035,2 ferm., 5425,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 330.949
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Votturn eininga skal skila fyrir úttekt á botnplötu.

12. Efstaland 16 (01.850.002) 108754 Mál nr. BN034121
Kristbjörg Ólafsdóttir, Efstaland 16, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalaskýli á 2. hæð fjölbýlishúss nr. 16 á lóð nr. 2-24 við Efstaland.
Samþykki f.h. Efstalands 14, 16 og 18 (á teikningu) fylgir erindinu.
Stærð: Svalaskýli 13,5 ferm., 36,5 rúmm.,
Gjald kr. 6.100 + 2.227
Frestað.
Lagfæra skráningu.

13. Eikjuvogur 9 (01.470.102) 105706 Mál nr. BN034159
Svæðisskrifst málefna fatlaðra, Síðumúla 39, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta dagstofu og svefnkrók fyrir skammtímavistun fatlaðra í bílskúr ásamt samþykki fyrir áður gerðum breytingum á gluggum og innra fyrirkomulagi einbýlishússins á lóð nr. 9 við Eikjuvog.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

14. Eiríksgata 6 (01.194.303) 102553 Mál nr. BN034115
Rúnar V Sigurðsson, Eiríksgata 6, 101 Reykjavík
Sótt er um að íbúð eiganda verði öll 1. hæðin eða 1/3 af íbúðarhúsinu á lóð nr. 6 við Eiríksgötu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Erindið ótækt til umfjöllunar eins og það liggur fyrir. Löngu er tímabært að umsækjandi geri upp við sig hvað hann ætlar að sækja um.

15. Eldshöfði 5 (04.035.203) 110529 Mál nr. BN034047
Guðmundur Kristinsson, Gerðhamrar 27, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi og til að koma fyrir þrem gluggum á norðurhlið hússins á lóðinni nr. 5 við Eldshöfða. Samþykki eigenda Eldshöfða 19 dagsett 12.apríl. 06 fylgir
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Þinglýsa skal yfirlýsingu eiganda á nr. 19 fyrir útgáfu á byggingarleyfi.

16. Eldshöfði 7 (04.035.204) 110501 Mál nr. BN034125
Sólhöfði ehf, Smárarima 42, 112 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi fyrir millilofti í eignarhluta 0104 á lóðinni nr. 7 við Eldshöfða.
Breytingin var samþykkt 30. nóv.2004
Stærð 45.6 ferm.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

17. Esjugrund 58 (32.475.308) 187953 Mál nr. BN034061
Sverrir Marinósson, Esjugrund 58, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja og vindfang við gafl og stakstæðan bílskúr við einbýlishúsið á lóðinni nr. 58 við Esjugrund. Samþykki eigenda nr. 60 og 62 dags. 26. maí 2006 fylgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Stærð vindfangs 6,73 ferm., 19,9 rúmm. Stærð bílgeymslu 27,3 ferm 86,27 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.476
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Eyjarslóð 7 (01.110.504) 100022 Mál nr. BN033919
Glitnir fjármögnun, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir leiðréttingu á nýsamþykktum teikningum hússins og leyfi til þess að klæða norður- og austurhliðar atvinnuhússins með báraðri málmklæðningu á lóð nr. 7 við Eyjarslóð.
Samþykki meðeigenda dags. 4. maí 2006 og ástandskönnun útveggja dags. 1. júní 2006 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

19. Fiskislóð 10 (01.115.230) 188006 Mál nr. BN034105
Exton ehf, Fiskislóð 10, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, m. a. voru teknar út svalir, á atvinnuhúsnæðinu nr. 10 við Fiskislóð.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vantar rafræna skráningartöflu

20. Flókagata 6 (01.247.117) 103349 Mál nr. BN028180
Ásgerður Kjartansdóttir, Fálkagata 5, 107 Reykjavík
Hrappur Steinn Magnússon, Fálkagata 5, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu sem byggð hefur verið sunnan bílskúrs á lóðinni nr. 6 við Flókagötu. Jafnframt hefur bílskúr verið breytt í #GLvinnuherbergi#GL, suðurveggur bílskúrs verið fjarlægður og mannvirkið klætt á þrjá vegu með Steni-plötum. Ennfremur er sótt um leyfi fyrir einu bílastæðum til viðbótar einu, sem fyrir er á lóðinni.
Bréf umsækjanda dags. 7. okt. 2003 varðandi byggingarár skúrsins, bréf burðarvirkjahönnuðar dags. 12. nóv. 2003, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. des. 2003, umsögn Verkfræðistofu RUT og samþykki meðlóðarhafa og lóðarhafa aðlægrar lóðar (á teikningu) fylgja erindinu.
Stækkun: Áður byggð viðbygging samtals 11,9 ferm., 27,6 rúmm.
Gjald kr. 5.100 + 1.684
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar 465001 dags. 31. maí 2006.

21. Frakkastígur 16 (01.182.125) 101839 Mál nr. BN034167
Endurreisn verktakar ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að rífa húsið að Frakkastíg (matshluta 03) og fella úr gildi umsókn nr. 32645 um breytingar á sama húsi og viðbyggingu við vesturhlið þess á lóð nr. 16 við Frakkastíg.
Samþykki sumra meðlóðarhafa dags. 8. febrúar 2006, skilyrt samþykki eins eiganda Njálsgötu 23 fyrir niðurrifi dags. 7. júní 2006 og samþykki lóðarhafa Frakkastígs 14 dags. 22. febrúar 2006 fylgja erindinu.
Stærð: Niðurrif (mashluti 03) fastanúmer 200-6257 samtals 357,5 ferm., 913 rúmm.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

22. Framnesvegur 16 (01.133.230) 100259 Mál nr. BN034139
Guðmundur A Jóhannsson, Framnesvegur 16, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja kvist bæði á norðurþekju og suðurþekju og innrétta risloft sem sjálfstæða íbúð í húsinu á lóð nr. 16 við Framnesveg.
Stærð: Stækkun rishæðar xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Að þeim uppfylltum verður málið grenndarkynnt.

23. Goðheimar 15 (01.432.405) 105261 Mál nr. BN033884
Gísli Héðinsson, Goðheimar 15, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka svalir 2. hæðar um 5,3 ferm til samræmis við svalir 1. hæðar fjölbýlishússins á lóðinni nr. 15 við Goðheima. Samþykki meðeigenda fylgir.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. maí 2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 100, 101 og 102 dagss. 15. maí 2006.

24. Grensásvegur 11 (01.461.102) 105666 Mál nr. BN034144
Sætrar ehf, Gerðhömrum 27, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á verslunarrými á 1. hæð í húsinu á lóðinni nr. 11 við Grensásveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Gvendargeisli 168 (05.134.701) 190285 Mál nr. BN034136
Fasteignastofa Reykjavíkurborg, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja upp þrjár færanlegar kennslustofur ásamt miðrými tengt með tengigangi við vesturhlið núverandi færanlegra kennslustofa (matshluti 01) Sæmundarsels á lóð nr. 168 við Gvendargeisla.
Stærð: Stækkun matshluta 01 samtals 301,7 ferm., 873,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 53.277
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Háteigsvegur 3 (01.244.202) 103186 Mál nr. BN034001
Kvikmyndaþýðingar ehf, Háteigsvegi 1, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir og hækka hús um eina hæð ásamt þakhæð þannig að samtals verði þrettán íbúðir í húsinu á lóð nr. 3 við Háteigsveg.
Stærð: Stækkun 497,6 ferm., 1492,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 91.067
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

27. Heiðargerði 15 (01.801.008) 107606 Mál nr. BN034122
Haraldur Þór Stefánsson, Heiðargerði 15, 108 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi fyrir áður gerðri yfirbyggingu yfir hluta svala á 2. hæð og fyrir áður gerðu anddyri við austurhlið ásamt leyfi til þess að stækka svalaskýli og hækka bílskúr og stækka að útvegg íbúðarhússins á lóð nr. 15 við Heiðargerði.
Samþykki eigenda Heiðargerðis nr. 17 (á teikningu) og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. júlí 2003 fylgja erindinu.
Stærð: Áður gert anddyri 5,7 ferm., áður gert svalaskýli 7,5 ferm., samtals áður gert 13,2 ferm., 35 rúmm.
Stækkun 2. hæðar 3,9 ferm., 9 rúmm., bílskúrs 5,5 ferm., 15,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 3.081
Frestað.Vantar samþykki eigenda nr. 13.

28. Heiðargerði 17 (01.801.009) 107607 Mál nr. BN033795
Einar Gunnarsson, Heiðargerði 17, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við húsið nr. 17 við Heiðargerði. Viðbygging verði gerð úr steinsteypu með steyptri þakplötu og svölum á þaki. Jafnframt verði innra fyrirkomulagi beggja hæða eldra húss breytt, þaki yfir anddyri breytt og komið fyrir geymslu í bílskúr. Álit burðarvirkishönnuðar dagsett 22. maí 2006 fylgir
Stærðir: 14,7 ferm, 38,5 rúmm
Gjald kr. 6.100 + 2.348
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Hestháls 2-4 (04.323.001) 111033 Mál nr. BN033896
Nói-Siríus hf, Pósthólf 10213, 130 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir þegar gerðum breytingum, glerskáli stækkaður, móttöku breytt, skrifstofa gerð á 2. hæð, sett inn lyfta, dyr færðar á norður- og austur- hliðum og tengigangur styttur á nýbyggðri viðbyggingu Nóa og Síríus á lóð nr. 2-4 við Hestháls.
Jafnframt er erindi 32955 dregið til baka.
Umsögn Brunahönnuðar dags. 18. maí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Leiðréttar stærðir (matshluti 04) var 1770,5 ferm. verður 1800,2 ferm. eða 29,7 ferm. stækkun, var 13856,7 rúmm. verður 12935,5 rúmm. eða 721,2 rúmm. minnkun.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

30. Hlíðarendi 2-6 / Valur (01.628.801) 106642 Mál nr. BN034110
Byggingarnefnd Hlíðarendasvæðis, Laufásvegi Hlíðarendi, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta dyrum milli heiðursstúku og útistúku og reisa stoðveggi og girðingar á lóð Knattspyrnufélagsins Vals við Hlíðarenda 2-6.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Sveinbjörn Steingrímsson vék af fundi við afgreiðslu málsins

31. Hólmsheiði fjáreig.fé (05.8--.-96) 113450 Mál nr. BN033901
Ólafur Örn Ólafsson, Hamraberg 32, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja hesthús með 13 stíur og litla hlöðu á 1. hæð ásamt kaffistofu á millipalli allt steinsteypt, einangrað að utan og klætt með báraðri klæðningu sem hús nr. 14B við Surtlugötu á lóð við Hólmsheiði.
Stærð: Hesthús 1. hæð 200 ferm., millipallur 49 ferm., samtals 249 ferm., 666,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 40.681
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda á umsóknarblaði

32. Hólmsheiði fjáreig.fé (05.8--.-96) 113450 Mál nr. BN033900
Ólafur Örn Ólafsson, Hamraberg 32, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja hesthús með 13 stíur og litla hlöðu á 1. hæð ásamt kaffistofu á millipalli allt steinsteypt, einangrað að utan og klætt með báraðri klæningu sem hús nr. 9B við Surtlugötu á lóð við Hólmsheiði.
Stærð: Hesthús 1. hæð 200 ferm., 2. hæð 49 ferm., samtals 249 ferm., 666,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 40.681
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda á umsóknarblaði.

33. Hraunbær 59 (04.331.702) 111070 Mál nr. BN034119
Egill Jóhann Ólafsson, Hraunbær 59, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðu þaki og til að byggja við og koma fyrir setlaug við húsið nr. 59 á lóðinni nr. 51-67 við Hraunbæ.
Stærð: Viðbygging 15,9 ferm., 47,2 rúmm. Áður gert þak: Stækkun xx rúmm. Stækkun samtals 15,9 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Ingólfsstræti 1 (01.150.307) 100974 Mál nr. BN033851
Gamla gagnkvæma ehf, Þverholti 11, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta byggingaraðferð nýsamþykktrar ofánábyggingar úr steinsteypu í stálvirki klætt með forsteyptum einingum, stækka 8. hæð meira en samþykkt var 20. desember 2005 ásamt leyfi til þess að gera kjallara undir móttöku hótelsins ásamt hluta af bílaplani hússins á lóðinni nr. 1 við Ingólfsstræti.
Jafnframt er erindi nr. 33185 dregið til baka.
Brunahönnun endurskoðuð 16. maí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 176,7 ferm., 517 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 31.537
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Jónsgeisli 89 (04.113.305) 189864 Mál nr. BN033646
Almerking ehf, Heiðarseli 8, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyft steinsteypt atvinnuhús með milliloft yfir hluta allt einangrað að utan og klætt með liggjandi báruálklæðningu í állit á lóð nr. 89 við Jónsgeisla.
Stærð: Atvinnuhús samtals 311,2 ferm., 1435,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 87.547
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

36. Kaplaskjólsvegur 51-59 (01.525.104) 106068 Mál nr. BN034117
Kaplaskjólsvegur 51-55,húsfélag, Kaplaskjólsvegi 53, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að klæða með álplötuklæðningu gafl og anddyri og breyta gluggum á suðurhlið á fjölbýlishúsinu númer 51-55 á lóðinni nr. 51-59 við Kaplaskjólsveg.
Bréf fylgir frá verkfr.þjónustunni Strendingi dags. 16. maí 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Gera gein fyrir ráðstöfunum vegna frostskemmda og hvort gaflar verði viðbótareinangraðir.

37. Kistuhylur 4 (04.26-.-99) 110979 Mál nr. BN034087
Minjasafn Reykjavíkur, Pósthólf 10020, 130 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á og við Dillonshús á Árbæjarsafni þar sem sýnt er kaffihús á lóð nr. 4 við Kistuhyl.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Kjalarvogur 5 (01.424.401) 178219 Mál nr. BN034135
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á húsinu á lóðinni nr. 5 við Kjalarvog.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Klapparstígur 33 (00.000.000) 101456 Mál nr. BN034064
Hótel Frón ehf, Laugavegi 22a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til innanhússbreytinga í þremur íbúðum og breyttri aðkomu og flóttaleiðum í húsinu á lóðinni nr. 33 við Klapparstíg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vantar rafræna skráningartöflu.

40. Kleppsvegur 108 (01.355.113) 104340 Mál nr. BN034042
Jón Sigurgrímsson, Skipasund 2, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa Mhl. 01 0102 og byggja nýtt hús á þeim grunni á lóðinni nr. 108 við Kleppsveg.
Samþykki meðlóðarhafa dags. í maí 2006 fylgir erindinu.
Stærð niðurrifs: Fastanúmer 201-8033 merkt 01 0102 íbúð 84,5 ferm.
Stærð nýbyggingar: 157 ferm., 507,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 +
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

41. Klettagarðar 13 (01.325.201) 180007 Mál nr. BN034126
Bikar ehf, Klettagörðum 11, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja stálgrindarhús með glergafli sem vöruhús og verslun á lóðinni nr. 13 við Klettagarða.
Brunahönnun Línuhönnunar dags. 30. maí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: 9.082.3 ferm., xx rúmm.,
Gjald kr, 6.100 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Klettagarðar 25 (01.324.201) 207396 Mál nr. BN034020
R.Sigmundsson ehf, Pósthólf 828, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einnar hæðar stálgrindarhús klætt málmsamlokueiningum og með millilofti yfir hluta atvinnuhússins á lóðinni nr. 25 við Klettagarða.
Brunahönnun VSI dags. 6. júní 2006 fylgir erindinu.
Stærð 3255 ferm., 26080,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.590.911
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Knarrarvogur 4 (01.457.002) 105650 Mál nr. BN033821
Olíufélagið ehf, Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Glitnir fjármögnun, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja gasgeymslu (fyrir gaskúta ) úr steinsteypu við norðurlóðamörk á lóðinni nr. 4 við Knarrarvog. Samþykki eigenda Knarravogs 2-4 móttekið 23. maí fylgir
Stærð: 18,8 ferm., 33,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.061
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

44. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN034143
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir teikningum af núverandi skipulagi veitingastaðar McDonalds í einingu S-354 á Stjörnutorgi á 3. hæð Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN034003
Fasteignafélagið Stoðir hf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innréttingum og #GLfrontum#GL í einingum S-226, S-228, S-238 og S-250-2 í verslunarhúsinu á lóðinni nr. 4-12 við Kringluna.
Bréf varðandi brunavarnir dags. 17. maí og 8. júní 2006 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

46. Kringlan 1 (01.723.501) 107300 Mál nr. BN034145
Klasi hf, Pósthólf 228, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á skrifstofuhúsnæði til nota sem kennsluhúsnæði tímabundið til þriggja ára í húsinu á lóðinni nr. 1 við Kringluna.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

47. Köllunarklettsvegur 10 (01.329.101) 199098 Mál nr. BN034178
Eignarhaldsfélagið Sigtún ehf, Selbraut 84, 170 Seltjarnarnes
Lýsing hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Ofanritaðir sækja um takmarkað byggingarleyfi fyrir greftri, fyllingu og aðstöðugerð á lóðinni nr. 10 við Köllunarklettsveg.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna úttgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

48. Langholtsvegur 5 (01.355.004) 104317 Mál nr. BN033958
Víking ehf, Vagnhöfða 17, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa núverandi hús og byggja nýtt steinsteypt íbúðarhús með þremur íbúðum á lóðinni nr. 5 við Langholtsveg.
Stærð niðurrifs: Fastanúmer 201-7974 merkt 01 0101 einbýli 58,2 ferm og merkt 70 0101 bílskúr 18,8 ferm., samtals 77 ferm.
Stærð nýbyggingar: Kjallari 36,8 ferm., 1. hæð 159,8 ferm., 2. hæð 79,5 ferm. Samtals 277,9 ferm., 809,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 49.404
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

49. Laugavegur 22 (00.000.000) 101456 Mál nr. BN034037
Laugavegur 22 ehf, Laugavegi 22, 101 Reykjavík
Átt-kaup ehf, Stekkjarseli 9, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir smávægilegum breytingum á teikningum og texta v/lokaúttektar á húseigninni á lóðinni nr. 22 við Laugaveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Laugavegur 24 (01.172.203) 101458 Mál nr. BN034063
Hótel Frón ehf, Laugavegi 22a, 101 Reykjavík
Sótt er um að færa gang norður fyrir stiga á 2. hæð í hús á lóð nr. 24 við Laugarveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Lágmúli 5 (01.261.301) 103507 Mál nr. BN033989
Lyfja hf, Bæjarlind 2, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að innrétta verslunarrými í tenglum við núverandi lyfjaverslun á 1. hæð, breyta inngangi á vesturhlið og setja nýjan glugga á norðurhlið 1. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 5 við Lágmúla.
Samþykki meðeigenda dags. 14. maí 2006 og bréf hönnuðar dags. 6. júní 2006 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Láland 10 (01.874.202) 108835 Mál nr. BN034053
Vilhelm Róbert Wessman, Láland 10, 108 Reykjavík
Sigríður Ýr Jensdóttir, Láland 10, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við og stækka kjallara hússins nr. 10 á lóðinni nr. 10-16 við Láland.
Málinu fylgir undirritað samþykki eigenda Lálands 10-16 dags. 15. maí 2006.
Stærð: Stækkun 36,4 ferm., 108,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 61.109
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

53. Lindargata 30 (01.152.411) 101057 Mál nr. BN033955
Guðbjartur K Ingibergsson, Hléskógar 6, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa allar þær byggingar sem standa á lóðinni nr. 30 við Lindargötu.
Erindinu fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 30. maí 2006.
Einnig fylgir umsögn borgarminjavarðar dags. 9. júní 2006.
Niðurrif: Fastanúmer 200-3227 merkt 01 0101 íbúð 116,8 ferm., fastanúmer 200-3228 merkt 02 0101 smiðja 247 ferm.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

54. Logafold 138 (02.871.607) 110347 Mál nr. BN032878
Anna Borgþórsdóttir, Logafold 138, 112 Reykjavík
Pétur Kristinn Hilmarsson, Logafold 138, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu úr timbri að suðausturhlið hússins á lóðinni nr. 138 við Logafold.
Stærð: Stækkun 35,2 ferm., 114,9 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 6.100 + 7.009
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

55. Mávahlíð 30 (01.710.203) 107167 Mál nr. BN033329
Árni Blandon Einarsson, Mávahlíð 30, 105 Reykjavík
Svavar Gestsson, Mávahlíð 30, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvöfaldan steinsteyptan bílskúr á suðvesturhorni lóðar nr. 30 við Mávahlíð. Einnig lagt fram bréf allra eigenda að Mávahlíð 30.
Erindið var grenndarkynnt frá 31. mars til og með 28. apríl 2006. Athugasemd barst.
Skilyrt samþykki meðeigenda (á teikningum m. fyrirspurn) fylgir erindinu. Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. febrúar 2006 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. maí 2006.
Stærð: Bílskúr 60,5 ferm., 186,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 6.100 + 11.364
Frestað.
Þau tvö bílastæði sem sýnd eru austan við fyrirhugaða bílskúra er ekki hægt að samþykkja þar sem stæðin eru ónothæf standi bifreið framan við bílskúrsdyr.

56. Nökkvavogur 10 (01.441.005) 105411 Mál nr. BN034070
Elín Haraldsdóttir, Nökkvavogur 10, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, sólpalli með heitri laug og timbursvölum á suðurhlið hússins á lóðinni nr. 10 við Nökkvavog.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

57. Nökkvavogur 23 (01.441.312) 105466 Mál nr. BN033708
Bragi Baldursson, Nökkvavogur 23, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að endurbyggja bílskúr og stækka, setja heitan pott á lóðina og svalir á austurhlið einbýlishússins á lóðinni nr. 23 við Nökkvavog.
Málinu fylgir undirritað samþykki nágranna á teikningu sem dagsett er 18. janúar 2006.
Stærð: Niðurrif bílskúr fastanúmer 202-2716 merki 02 0101 samtals 32 ferm.
Nýr bílskúr/geymsla 60,8 ferm., 170,2 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 10.382
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

58. Pósthússtræti 11 (01.140.514) 100873 Mál nr. BN034106
101 heild ehf, Hafnarstræti 1-3, 101 Reykjavík
Hótel Borg ehf, Pósthússtræti 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurinnrétta veitingasali og eldhús á 1. hæð hótelsins á lóðinni nr. 11 við Pósthússtræti. Málinu fylgir brunahönnun VSI, dags. 19. maí 2006.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

59. Síðumúli 30 (01.295.203) 103842 Mál nr. BN033982
TM húsgögn ehf, Síðumúla 30, 108 Reykjavík
Sótt er um stækkun lóðar fyrir bílastæði á lóðinni nr. 30 við Síðumúla.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006 fylgir erindinu.
Málinu fylgir bréf dags. 25. febrúar 2003, og samningur um bílastæði á lóð dags. 12. júlí 1979.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Með vísan til bókunar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006.

60. Síðumúli 30 (01.295.203) 103842 Mál nr. BN033981
TM húsgögn ehf, Síðumúla 30, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að loka gluggum, einangra og klæða með álklæðningu suðurhlið hússins á lóðinni nr. 30 við Síðumúla. Ástandsskýrsla steinsteypu dags. 26. maí
2006 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

61. Skipasund 62 (01.410.103) 104986 Mál nr. BN034134
Astrid Björk Eiríksdóttir, Skipasund 62, 104 Reykjavík
Sótt erum leyfi til að fjarlægja #GL forskalningu#GL , klæða með timurklæðningu, skipta um glugga og útbúa björgunarop í svefnherbergi í húsinu á lóðinni nr. 62 við Skipasund.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

62. Skólavörðustígur 22B (01.181.205) 101759 Mál nr. BN034038
Sigurður Ingi Sveinsson, Skólavörðustígur 22c, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breyttum eignaskiptum í þ.e 0304 verði séreign 0301 í Skólavörðustíg 22B .
Með málinu fylgir undirritað þinglýst samþykki allra eigenda dags. 1. maí 2005
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Stigapallur getur ekki verið í séreign. Lokun skal vera á eignaskilum.

63. Skriðusel 7 (04.925.104) 112709 Mál nr. BN033923
Jóna Björk Guðnadóttir, Skriðusel 7, 109 Reykjavík
Jón Marinó Jónsson, Skriðusel 7, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka eldhús yfir í áður blómaskála við suðvesturhlið, hækka gólf þess hluta, breyta glerhlið í lokað þak með #GL kvisti#GL, breyta hurð á suðvesturhlið í glugga og koma fyrir heitum potti við einbýlishúsið á lóð nr. 7 við Skriðusel.
Stærð: Rúmm. minnkar um 1,4 rúmm., vegna breytinga.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

64. Skúlatún 1, Höfðatún 2-8 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN033860
Holtasel ehf, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja 6. hæðina ofan á áður samþykkta fimm hæða skrifstofu- og þjónustubyggingu á lóð nr. 8 - 16 við Borgartún.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006 fylgir erindinu.
Bréf brunahönnuðar dags. 25. apríl 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 1760,8 ferm., 6185,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 377.328
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

65. Skútuvogur 14-16 Mál nr. BN034146
Húsasmiðjan hf, Holtagörðum 10, 104 Reykjavík
Lýsing hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi innanhúss og að bæta við dyrum á suðurhlið hússins á lóðinni nr. 14-16 við Skútuvog.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

66. Smáragata 8A (01.197.404) 102739 Mál nr. BN033857
Kristrún Auður Ólafsdóttir, Smáragata 8a, 101 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi fyrir yfirbyggingu svala á 2. hæð, fyrir steinsteyptrum kjallaratröppum við suðvesturhlið og breyttum palli með tröppum niður í garð frá 1. hæð sömu hliðar íbúðarhússins nr. 8A á lóð við Smáragötu.
Samþykki meðeigenda að húsi (á teikningu) fylgir erindinu.
Stærð: Svalaskýli 8,1 ferm., 20,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.238
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

67. Sogavegur 130 (01.830.010) 108462 Mál nr. BN034180
Hrund Jónsdóttir, Sogavegur 109, 108 Reykjavík
Ofanrituð sækir um takmarkað byggingarleyfi til þess að undirbúa jarðvinnu á lóðinni nr. 130 við Sogaveg.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa,

68. Sóleyjarimi 19-23 (02.536.106) 199447 Mál nr. BN034142
Mótás hf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja til fimm hæða steinsteypt fjölbýlishús með þremur stigahúsum allt einangrað að utan og klætt með álklæðningu ýmist sléttri eða báraðri með samtals 45 íbúðum ásamt geymslu- og bílageymslukjallara fyrir 45 bíla á lóð nr. 19-23 við Sóleyjarima.
Stærð: Íbúð kjallari 879,3 ferm., 1. hæð 1170 ferm., 2. hæð 1230 ferm., 3. hæð 1230 ferm., 4. hæð 820 ferm., 5. hæð 410 ferm., bílgeymsla 1233 ferm., samtas 6972,3 ferm., 20520,7 rúmm. Svalagangar og o.fl (B-rými) samtals 286,5 ferm., 802,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.300.715
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

69. Tunguháls 8 (04.342.101) 179593 Mál nr. BN033819
Veiðarfærasalan Dímon ehf, Tunguhálsi 8, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við norðurenda hússins nr. 8 við Tunguháls. Viðbygging verði tveggja hæða stálgrindarbygging í sama lit og sama frágangi utanhúss og eldra hús á lóð. Jafnframt er sótt um leyfi til að koma fyrir nýju millilofti í hluta eldra húss og breyta matshlutaskiptingu á lóð.
Stækkun: xx
Gjald kr. 6.100 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

70. Tunguháls 8 (04.342.101) 179593 Mál nr. BN033803
Patti ehf, Krókhálsi 10, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við suðurenda hússins nr. 8 við Tunguháls. Viðbygging verði tveggja hæða stálgrindarbygging í sama lit og sama frágangi og eldra hús á lóð. Jafnframt er sótt um leyfi til að breyta matshlutaskiptingu þannig að á lóðinni verði tveir matshlutar og fyrra erindi nr. 33361 dregið til baka. Ennfremur er sótt um leyfi fyrir sérgreindu inntaki fyrir veitulagnir.
Stækkun: xx
Gjald kr. 6.100 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

71. Tunguvegur 15 (01.824.008) 108380 Mál nr. BN034069
Hjörleifur Herbertsson, Tunguvegur 15, 108 Reykjavík
Helena Hilmisdóttir, Tunguvegur 15, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á einbýlishúsinu á lóðinni nr. 15 við Tunguveg.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Lagfæra skráningu.

72. Tunguvegur 18 (01.823.112) 108359 Mál nr. BN033840
Auður Edda Karlsdóttir, Tunguvegur 18, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á einbýlishúsinu á lóðinni nr. 18 við Tunguveg.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

73. Unnarstígur 2 (01.137.009) 100641 Mál nr. BN033495
Þórarinn St. Halldórsson, Nýlendugata 6, 101 Reykjavík
Soffía Petra Landmark, Nýlendugata 6, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð á rishæð og leyfi til þess að breyta innra skipulagi kjallara íbúðarhússins á lóð nr. 2 við Unnarstíg.
Jafnframt er erindi 31283 dregið til baka.
Íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 15. mars 2006 og endurskoðun dags. 12. júní 2006 fylgja erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

74. Urriðakvísl 17 (04.212.305) 110768 Mál nr. BN033945
Halldóra Magnúsdóttir, Urriðakvísl 17, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta gluggum á áður samþykktri viðbyggingu við einbýlishúsið á lóðinni nr. 17 við Urriðakvísl.
Gjald kr. 6.100 + 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

75. Vagnhöfði 19 (04.063.102) 110638 Mál nr. BN034132
Aðalblikk ehf, Arnartanga 10, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að gera nýjan inngang á húsið á lóðinni nr. 19 við Vagnhöfða. Einnig er sótt um leyfi til að gera bílastæði við einingu 0102 Dvergshöfðamegin.
Gjald kr. 6.100
Synjað.
Bílastæði Dvergshöfðamegin samræmast ekki deiliskipulagi.

76. Vesturgata 3 (01.136.102) 100528 Mál nr. BN034113
Lindarvatn ehf, Borgartúni 31, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir breyttu innra skipulagi í kjallara viðbyggingar við Hlaðvarpann (matshluta 02), breytingum mest við eldhús á 2. hæð eldri hluta, breytingum á gangi milli húsa og breyttu innra skipulagi 3. hæðar, fyrir fjölgun kvista á austurhluta eldra húss og leiðréttingu hæða hússins á lóð nr. 3 við Vesturgötu.
Stærð: Leiðrétt stækkun og stærðaraukning vegna viðbótar kvists samtals xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

77. Víðimelur 71 (01.524.101) 106016 Mál nr. BN034153
Ragnar Jóhann Halldórsson, Víðimelur 71, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir leiðréttingu skráningar rishæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 71 við Víðimel.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Lagfæra skráningu.

78. Víðimelur 73 (01.524.102) 106017 Mál nr. BN034154
Ólöf Örvarsdóttir, Víðimelur 73, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir leiðréttingu skráningar rishæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 73 við Víðimel.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Lagfæra skráningu.

79. Þjóðhildarstígur 1 (04.112.101) 188026 Mál nr. BN033994
KFC ehf, Garðahrauni 2, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt einlyft hús fyrir veitingastað allt einangrað að utan og klætt með gráum steinflísum og sléttu áli ásamt sorpskýli með pressugám úr 2,3m háum steinveggjum, stoðvegg á lóðamörkum að Reynisvatnsvegi og skiltastanda allt að 8m háa (skilti samtals 36,2 ferm.) á lóð nr. 1 við Þjóðhildarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júní 2006 og bréf hönnuðar dags. 6. júní 2006 fylgja erindinu.
Stærð: 499,7 ferm., 2207,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 134.682
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

80. Þverás 14 (04.724.307) 112413 Mál nr. BN034138
Sölvi Oddsson, Þverás 14, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja nýja rishæð, breyta innra fyrirkomulagi, endurnýja og breyta gluggum og einangra hús að utan og klæða með múrkerfi á lóð nr. 14 við Þverás.
Stærð: Stækkun samtals 100,7 ferm., 319,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 19.477
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Ýmis mál

81. Bergstaðastræti 16-18 Mál nr. BN034163
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, landupplýsingadeildar, dags. 31. maí 2006, að berytingu lóðarmarka og skiptingu lóðarinnar nr. 16 við Bergstaðastræti.
Bergstaðastræti 16:
Lóðin er talin 549,4 ferm. Lóðin reynist við mælingu 536 ferm.
Tekið undir götu 3 ferm. Tekið undir nýja lóð Bergstaðastræti 18, 261 ferm. Lóðin verður 272 ferm.
Bergstaðastræti 18 (Ný lóð stgr. 1.184.016):
Lóðin verður 261 ferm.
Sjá samþykkt skipulagsráðs 9. nóvember 2005 og samþykkt borgarráðs 24. nóvember 2005.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

82. Laufásvegur 47 (01.185.309) 102176 Mál nr. BN034162
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 30. maí s.l., var samþykkt umsókn Sigurgeirs Jónssonar þar sem sótt var um leyfi fyrir breyttu eignarhaldi á geymslum í kjallara og fyrir leiðréttri skráningu hússins á lóðinni nr. 47 við Laufásveg.
Þá láðist að bóka eftirfarandi stækkun rúmmáls og byggingarleyfisgjald.
Stækkun: 80,8 rúmm., gjald kr. 4.928.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

83. Skólabær 6 (04.363.001) 111275 Mál nr. BN034166
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, dags. 8. júní 2006, að stækkun lóðarinnar nr. 6 við Skólabæ.
Skólabær 6, leikskólalóð:
Lóðin er 3120 ferm. Bætt við lóðina úr óútvísuðu landi 2260 ferm.
Lóðin verður 5580 ferm.
Bílastæðalóð:
Lóðin er 575 ferm. Bætt við lóðina úr óútvísuðu landi 145 ferm.
Lóðin verður 720 ferm.
Sjá samþykkt skipulagsráðs 22. febrúar 2006 og samþykkt borgarráðs 2. mars 2006.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

84. Barmahlíð 21 (01.702.016) 107015 Mál nr. BN034027
Jón Kristinn Sigurðsson, Barmahlíð 21, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja tvöfaldan bílskúr, allt að 50 ferm. við fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 21 við Barmahlíð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2006 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður.

85. Bergstaðastræti 16-18 (01.184.010) 102005 Mál nr. BN034147
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að flytja húseignina Hverfisgötu 44 á lóðina nr. 16-18 við Bergstaðastræti.
Ekki tekin afstaða til málsins þar sem lóðarúthlutun hefur ekki farið fram.

86. Bragagata 32 (01.186.635) 102330 Mál nr. BN034170
Sveinn Þórir Þorsteinsson, Bragagata 32, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að hækka um eina hæð húsið á lóðinni nr. 32 við Bragagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

87. Freyjugata 36 (01.196.005) 102633 Mál nr. BN034004
Oddur Kristján Finnbjarnarson, Nökkvavogur 19, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að rífa bílskúr og lítið íbúðarhús og byggja nýjan bílskúr á lóðinni nr. 36 við Freyjugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. maí 2006 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður

88. Gvendargeisli 54-76 (05.135.4) Mál nr. BN032246
Viðar Marinósson, Gvendargeisli 76, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að fjölga bílastæðum úr tveimur í þrjú þannig að kantsteinn yrði lækkaður 6 m frá suðvesturhorni lóðanna 66-76 við Gvendargeisla.
Samþykki eigenda Gvendargeisla 54-76 dags. 8. ágúst 2005 fylgir erindinu.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006.
Nei.
Samræmist ekki meginmarkmiðum deiliskipulags.

89. Háaleitisbraut 52-56 (01.284.402) 103736 Mál nr. BN034177
Fjarhitun hf, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja upp einhalla þak ofan á núverandi flatt bílskúrsþak og klæða, með ljósri sléttri steniklæðningu, bílskúrana að utan á lóð nr. 52-56 við Háaleitisbraut.
Tölvubréf Fjarhitunar dags. 6. júní 2006 fyrlgir fyrirspurn.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

90. Í Úlfarsfellslandi 125477 (97.001.030) 125477 Mál nr. BN033873
Gísli Kristjánsson, Skógarlundur 2, 210 Garðabær
Spurt er hvort leyft yrði að byggja nýtt hús í stað húss sem brann 30. janúar 2006 á lóðinni Þrastalundi í Úlfarsfellslandi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2006 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum . Enda verði sótt um byggingarleyfi í samræmi við bókun skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006.

91. Jónsgeisli 41 (04.113.703) 189821 Mál nr. BN034158
Metta Ragnarsdóttir, Jónsgeisli 41, 113 Reykjavík
Spurt er hvort fjölga megi bílastæðum við einbýlishúsið á lóð nr. 41 við Jónsgeisla.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

92. Kvistaland 1-7 (01.863.301) 108806 Mál nr. BN034116
Óli Hörður Þórðarson, Kvistaland 7, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja sólstofu skv. meðfylgjandi rissmynd við húsið nr. 7 á lóðinni nr. 1-7 við Kvistaland.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála

93. Leiðhamrar 27-29 (02.292.703) 108993 Mál nr. BN034172
Þorsteinn Þorsteinsson, Leiðhamrar 27, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu sambærilega og samþykkt var 1994 við eins hús að Leiðhömrum 11-13 við suðurhlið parhússins á lóð nr. 27-29 við Leiðhamra.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

94. Óðinsgata 4 (01.180.304) 101715 Mál nr. BN034120
Kristjana Stefánsdóttir, Bandaríkin, Spurt er hvort kjallaraíbúð 0002 fengist samþykkt í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 4 við Óðinsgötu.
Virðingargjörð dags. 21. desember 1932, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 27. júlí 1998 og 11. júní 2004 og eignaskiptasamningur dags. 19. október 1988 fylgja erindinu.
Neikvætt.
Ekki hefur verið sýnt fram á tilurð eignarinnar fyrir árið 1979

95. Sílakvísl 15-27 (04.233.901) 110879 Mál nr. BN034025
Dóra Ingibjörg Magnúsdóttir, Sílakvísl 25, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breikka og lengja svalir fjölbýlishússins á lóðinni nr. 15-27 við Sílakvísl.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júní 2006 fylgir erindinu.
Nei.
Eins og erindið liggur fyrir vegna skuggamyndunnar.

96. Skógarás 21 (04.386.502) 111537 Mál nr. BN034137
C-35 ehf, Rjúpufelli 33, 111 Reykjavík
Spurt er hvort samþykkt yrði einlyft steinsteypt einbýlishús í líkingu við fyrirliggjandi uppdrætti á lóð nr. 21 við Skógarás.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

97. Skólavörðustígur 24 (01.181.206) 101760 Mál nr. BN034035
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Spurt er hvort eftirfarandi breytingar á áður samþykktum teikningum af húsinu á lóðinni nr. 24 við Skólavörðustíg yrðu samþykktar þar sem lóð reyndist 30 cm minni en mæliblað segir til um.
Bréf Láru V. Júlíusdóttir, hrl. dags. 31. maí 2006 fylgir erindinu.
Frestað.
Með vísan til bréfs dags. 31. maí 2006.

98. Stekkjarsel 1 (04.924.101) 112654 Mál nr. BN034152
Jón Hilmar Gunnarsson, Stekkjarsel 1, 109 Reykjavík
Árný Hallgerður Friðriksdóttir, Stekkjarsel 1, 109 Reykjavík
Karl Gunnar Jónsson, Stekkjarsel 1, 109 Reykjavík
Lesley Anne Kealty, Stekkjarsel 1, 109 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta aðkomu að einbýlishúsinu á lóðinni nr. 1 við Stekkjarsel.
Jákvætt.
Enda verði gengið frá byggingarleyfisumsókn á fullnægjandi hátt.

99. Stelkshólar 8 (04.648.401) 112001 Mál nr. BN034079
Erla Sigurðardóttir, Súluhólar 4, 111 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að gera glugga á suðurhlið bílskúrs á lóðinni nr. 8 við Stelkshóla.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði gluggi innan lóðar og sótt um byggingarleyfi sem fylgi samþykki meðeigenda.

100. Vesturlandsv. Keldnal 110481 (02.9--.-99) 110481 Mál nr. BN034129
Tilraunastöð Hásk í meinafræði, Vesturlandsv Keldum, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja nýtt hús fyrir öryggisrannsóknarstofu í líkingu við meðfylgjandi uppdrætti á lóð tilraunastöðvar HÍ að Keldum við Vesturlandsveg.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 12:50.

Magnús Sædal Svavarsson
Sveinbjörn Steingrímsson Sigrún Reynisdóttir
Helga Guðmundsdóttir Þórður Búason
Eva Geirsdóttir