Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 9. september kl. 09:09, var haldinn 183. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Brynjar Fransson, Stefán Þór Björnsson, Kristján Guðmundsson, Sóley Tómasdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum:, Bragi Bergsson og Margrét Þormar.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 4. september 2009.

2. Gufunes, útivistarsvæði, breyting á deiliskipulagi(02.2) Mál nr. SN090170
Fjörefli ehf, Suðurlandsbraut 48, 108 Reykjavík
Eyþór Kristján Guðjónsson, Mánabraut 7, 200 Kópavogur
Á fundi skipulagsstjóra 26. júní 2009 var lagt fram erindi Fjöreflis ehf. mótt. 7. maí 2009 um breytingu á deiliskipulagi Gufunes útivistarsvæði vegna skemmtigarðs. Í breytingunni felst að færa og stækka byggingarreit samkvæmt uppdrætti Landarks dags. 5. maí 2009. Einnig var lögð fram eldri umsögn umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl 2009, fundargerð af samráðsfundi dags. 11. júní 2009, lagfærðir uppdrættir dags. 16. júní 2009, breytt 19. ágúst 2009 og umsögn umhverfis - og samgöngusviðs dags. 12. júní 2009. Einnig lögð fram bókun Hverfaráðs Grafarvogs dags. 3. september 2009
Vísað til kynningar hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur.

3. Túngötureitur, deiliskipulag, staðgreinireitur 1.137.4 (01.137.4) Mál nr. SN080622
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 25. maí 2009 að deiliskipulagi Túngötureits. Reiturinn afmarkast af Túngötu, Bræðraborgarstíg Hávallagötu og Hofsvallagötu. tillagan var kynnt frá 5. júní til og með 22. júní 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Haraldur Ólafsson dags. 20. júní, 9 athugasemdaaðilar dags 20. júní, Edda Einarsdóttir dags. 20. júní, Áshildur Haraldsdóttir dags. 22. júní, Katrín Karlsdóttir dags. 22. júní, Stefán Snær Grétarsson dags. 22. júní. Einnig lögð fram samantekt skipulagsstjóra dags. 4. september 2009.
Athugasemdir kynntar.
Frestað.

(B) Byggingarmál

4. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN040390
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 553 frá fundi 8. september 2009.

5. Alþingisreitur, flutningur á húsi ofl. (01.141.106) Mál nr. BN039779
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að flytja hús af sökkli sínum á lóð nr. 12 við Vonarstræti yfir á nýjan, hærri sökkul á fornleifauppgreftri við Kirkjustræti nr. 4, Mhl. 03, að endurbyggja Skjaldbreið á lóð nr. 8 við Kirkjustræti Mhl. 04, til að byggja steinsteypta nýbyggingu Mhl.07 á milli þessara tveggja húsa og tengja öll húsin ásamt Kirkjustræti 8B og 10 við þjónustubyggingu Alþingis á Alþingisreit.
Jafnframt er erindi BN039619 dregið til baka.
Erindi fylgir fyrirspurn BN039505 dags. 24. febrúar 2009, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. mars 2009, Húsafriðunarnefndar dags. 3. mars 2009 og skýrsla um brunavarnir dags. 6. janúar 2009. Meðfylgjandi er bréf Fornleifaverndar ríkisins dags. 14. apríl 2009, einnig ný umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 26. mars 2009, einnig bréf hönnuða dags. 17. apríl 2009 og brunaskýrsla útgáfa 2 dags. 20. apríl 2009. Stærðir nýbyggingar, Mhl. 07: Kjallari 381,5 ferm., 1. hæð 212 ferm., 2. hæð 287,1 ferm., 3. hæð 162,7 ferm.Samtals 1.043,3 ferm., 3.844,8 rúmm.
Gjald kr: 7.700 + 296.050

Frestað.
Náið og gott samráð hefur átt sér stað við meðferð skipulagsráðs Reykjavíkur á byggingarleyfisumsókn Alþingis vegna uppbyggingar á Alþingisreit. Þó almennt sé samstaða um að áorðnar breytingar séu til bóta, þykir enn ríkja talsverð óvissa um framtíðaruppbyggingu á reitnum í heild sinni.

Í umsögn Fornleifaverndar ríkisins, sem er hluti af gögnum málsins kemur fram að enn er unnið að rannsóknum á reitnum og að fyrirhugaðar framkvæmdir eru unnar í fullu samráði við stofnunina. Þrátt fyrir þetta er talið æskilegt að nýskipaður starfshópur menntamálaráðherra um varðveislu og meðferð fornleifa á Alþingisreit, sem skila á niðurstöðum sínum 1. nóvember nk., fái svigrúm til að ljúka vinnu sinni áður en fyrirliggjandi umsókn um byggingarleyfi á reitnum er samþykkt. Þetta þykir æskilegt m.a. vegna þess að niðurstaða hópsins getur haft áhrif á endanlega útfærslu bygginga við Kirkjustræti sem getur kallað á breytingu á núgildandi deiliskipulagi Alþingisreits, sér í lagi ef ákveðið verður að gera ráð fyrir fornleifasýningu í kjallara flutningshússins á lóð Kirkjustræti 4.

Í ljósi ofangreinds er samþykkt umsóknarinnar frestað og ítrekuð sú niðurstaða ráðsins frá síðasta fundi, að leggja til stofnun starfshóps á vegum Alþingis og embættis skipulagsstjóra Reykjavíkur um hugsanlega endurskoðun á deiliskipulagi Alþingisreits. Í þeirri endurskoðun skal m.a. taka tillit til lokaniðurstöðu starfshópsins og setja fram tillögu að áfangaskiptingu uppbyggingar. Ofangreind frestun skal þó ekki koma í veg fyrir að hafist verði handa við endurgerð Skjaldbreiðar, að höfðu samráði við embætti byggingarfulltrúa.

Skipulagsráð fagnar jafnframt faglegum vinnubrögðum Alþingis, vegna fornleifafunda á reitnum og uppbyggingu til framtíðar.

6. Bergstaðastræti 24B, viðbygging, kvistur (01.184.313) Mál nr. BN040178
Júlíana Rún Indriðadóttir, Bergstaðastræti 24b, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júlí 2008 þar sem sótt er um leyfi til að hækka veggi, gafla, byggja nýtt anddyri, setja kvist úr steinsteypu og hækka timburþak sbr. fsp.BN038508 á einbýlishúsi á lóð nr. 24B. Grenndarkynning stóð frá 22. júlí til og með 20. ágúst 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Inga Jóhannsdóttir, dags. 11. ágúst og Guðrún Margrét Árnadóttir, dags. 18. ágúst 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 4. september 2009.
Stærðir stækkun: xx ferm., xx rúmm. Samtals eftir stækkun. Gjald kr. 7.700 + xx

Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði og með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Sóley Tómasdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson óskaði bókað;
#GLSigmundur Davíð Gunnlaugsson samþykkir með þeim fyrirvara að tryggt verði að gluggar hússins verði í samræmi við upprunalega hönnun, þ.e. viðargluggar í réttum hlutföllum og að gengið verði þannig frá gafli hússins að það styrki fremur en skerði umgjörð steinbæjarins við Bergstaðastræti 24.#GL

(D) Ýmis mál

7. Gæðastefna Reykjavíkur, kynning Mál nr. SN090312
Halldóra Vífilsdóttir arkitekt kynnti drög að stefnu Reykjavíkurborgar um gæði í manngerðu umhverfi.
Kynnt.

Stefán Þór Björnsson vék af fundi kl. 10:10 og tók Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sæti hans á fundinum. Þá höfðu verið afgreidd mál nr. 1- 4 á dagskrá.

8. Ný götuheiti, Vatnsmýri og Grafarholt Mál nr. BN040389
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 4. september 2009 þar sem gerð er tillaga að nýjum götuheitum.
Samþykkt.

9. Borgartún, Höfði, menningarmerkingar (01.217.6) Mál nr. SN090315
Lögð fram tillaga að staðsetningu upplýsingarskiltis við Höfða.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við staðsetningu upplýsingaskiltis.

10. Skipulagsráð, starfsdagur 2009 Mál nr. SN090313
Lögð fram drög að dagskrá starfsdags skipulagsráðs Reykjavíkur árið 2009.
Formaður skipulagsráðs lagði fram tillögu um starfsdag skipulagsráðs þann 21. október 2009.

11. Skipulagsráð, tillaga v/ bótaskyldu Mál nr. SN090317
Formaður skipulagsráðs, Júlíus Vífill Ingvarsson, lagði fram eftirfarandi tillögu;

#GLSkipulagsráð felur Skipulagsstjóra að gera samantekt á þeirri bótaskyldu sem sveitarfélög geta skapað sér samkvæmt núgildandi skipulags- og byggingarlögum nr. 73 frá 1997 vegna minnkunar byggingarmagns eða annarra breytinga á gildandi deiliskipulagsáætlunum. Ber í því sambandi að líta sérstaklega til aukinnar áherslu á verndun húsa, byggðarmynsturs, kvarða og samfellu nýrrar og eldri byggðar. Í samantektinni komi fram framkvæmd laganna og dómafordæmi.

Til samanburðar verði í sömu greinargerð skipulagsstjóra til ráðsins einnig gerð úttekt á sambærilegum ákvæðum í nærliggjandi löndum, einkum á norðurlöndunum, og hvernig þau hafa verið framkvæmd.

Skipulagsstjóri geri jafnframt tillögu að leiðum sem skapað geta skipulagsyfirvöldum meira frelsi við gerð skipulagsáætlana.
Hugsanleg bótaskylda sveitarfélaga heftir frelsi þeirra til þess að laga deiliskipulagsáætlanir að nýrri sýn og leiðrétta það sem ekki á við lengur og ekki er vilji til að haldi gildi sínu.#GL
Samþykkt

12. Grundarstígur 10, kæra Mál nr. SN090316
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 31. ágúst 2009 ásamt kæru dags. 19. ágúst 2009, þar sem kært er byggingarleyfi fyrir breytingum á fasteigninni nr 10. við Grundarstíg.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

13. Búrfellslína, Kolviðarhólslína, suðvesturlínur, Mál nr. SN070190
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Landsnet ehf, Krókhálsi 5c, 110 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna suðvesturlína, Búrfellslínu og Kolviðarhólslína.

14. Grandagarður/Geirsgata, Mál nr. SN090056
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Faxaflóahafnir sf, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Teiknistofa ark Gylfi G/fél ehf, Skólavörðustíg 3, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna Grandagarðs og Geirsgötu.

15. Græni trefillinn, útmörk höfuðborgarsvæðisins, Mál nr. SN080612
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.2001-2024, breyting
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins innan Græna trefilsins.

16. Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur, (05.18) Mál nr. SN080691
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna aðstöðu til bráðabirgða fyrir Fisfélag Reykjavíkur.

17. Hólmsheiði, Fisfélag Reykjavíkur, (04.4) Mál nr. SN080048
Fisfélag Reykjavíkur, Pósthólf 8702, 128 Reykjavík
deiliskipulag athafnasvæðis Fisfélagsins
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna deiliskipulags fyrir Hólmsheiði, bráðabirgða athafnasvæðis Fisfélags Reykjavíkur.

18. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, (05.8) Mál nr. SN080570
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, breyting
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna jarðvegsfyllinga í Hólmsheiði.

19. Hólmsheiði, jarðvegsfylling, endurauglýsing deiliskipulags(05.8) Mál nr. SN080657
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna deiliskipulags í Hólmsheiði, afmörkun svæðis vegna jarðvegsfyllinga.

20. Lokastígsreitir 2, 3 og 4, deiliskipulag Mál nr. SN080688
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 27. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. vegna auglýsingar á tillögu að deiliskipulagi fyrir Lokastígsreiti 2, 3 og 4.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:40.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Brynjar Fransson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Kristján Guðmundsson Sóley Tómasdóttir
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 8. september kl. 10:15 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 553. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Þórður Búason, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson og Eva Geirsdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Almannadalur 9-15 (05.865.501) 209395 Mál nr. BN040376
Sigurður Ársælsson, Skildinganes 16, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og útliti á hesthúsi nr. 13 á lóðinni nr. 9-15 í Almannadal.
Erindi fylgir samþykki sumra meðlóðarhafa áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

2. Austurstræti 16 (01.140.501) 100861 Mál nr. BN040328
Toppmál ehf, Naustabryggju 27, 110 Reykjavík
A 16 fasteignafélag ehf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta í tvo hluta, annarsvegar skemmtistað með 250 gesti og í flokki III og hinsvegar bar með 100 gesti og í flokki III, með því að koma fyrir millivegg og bæta við tveimur snyrtingum í núverandi skemmtistað á jarðhæð verslunarhússins á lóð nr. 16 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

3. Álfheimar 2-6 (01.430.208) 105199 Mál nr. BN040263
Báxít ehf, Þórsstíg 4, 600 Akureyri
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í mhl 01 í verslunarhúsnæðinu 2 - 4 á lóð nr. 2 - 6 við Álfheima
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 3. sept. 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

4. Bakkagerði 6 (01.816.303) 108113 Mál nr. BN040384
Viktor Smári Sæmundsson, Bakkagerði 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN040306 dags. 25. ágúst 2009 að byggja staðsteypta viðbyggingu á vesturhlið, breyta kvistum og skipta um glugga, breytingin felur í sér að stækka viðbyggingu um 5,3 ferm frá áður samþykktu erindi í einbýlishúsinu á lóð nr. 6 við Bakkagerði.
Stækkun: 18,5 ferm og 62,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.820
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

5. Bankastræti 5 (01.170.008) 101326 Mál nr. BN040175
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta tvöfaldri opnun hurða á 2., 3. og 4. hæð yfir í einfalda opnun og koma fyrir grænum handboða tengdum hurðarlæsingu á fjórðu hæð í rými til vesturs í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóðinni nr. 5 við Bankastræti.
Gjald 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

6. Bergstaðastræti 20 (01.184.011) 102006 Mál nr. BN040353
Birtingur ehf, Leifsgötu 30, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við til norðvesturs og norðurs, til að rífa bílskúr og byggja í staðinn garðskála, til að breyta innra skipulagi og innrétta sex íbúðir í húsi á lóð nr. 20 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 24. ágúst 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009.Stækkun: Kjallari: xx ferm., xx rúmm., 1. hæð 11,3 ferm., xx rúmm., 2. hæð 11,3 ferm., xx rúmm.
Samtals: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Synjað.
Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009.

7. Blönduhlíð 23 (01.713.016) 107227 Mál nr. BN040375
Arnar Þorkell Jóhannsson, Blönduhlíð 23, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á skráningu fjölbýlishússins á lóð nr. 23 við Blönduhlíð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Borgartún 8-16 (01.220.107) 199350 Mál nr. BN040382
Höfðatorg ehf, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir breytingum frá erindi BN035574 dags. 19. júní 2007 sem orðið hafa á byggingartíma verslunar- og skrifstofuhússins H1, Höfðatún 2 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Erindi fylgir skrá yfir breytingar dags. 1. september 2009 og skýrsla brunahönnuðar dags. 6. mars 2007, endurskoðuð 1. september 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

9. Brekkustígur 3 (01.134.206) 100333 Mál nr. BN040381
Sigurgeir Steingrímsson, Mosfell, 270 Mosfellsbær
Sótt er um leyfi til að einangra að utan og klæða með Aluzink bárujárni viðbygginguna við einbýlishúsið á lóð nr. 3 við Brekkustíg.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Brekkustígs 1 og 3A áritað á uppdrátt ásamt umsögn Húsafriðunarnefndar.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

10. Brekkustígur 7 (01.134.203) 100330 Mál nr. BN040373
Kjartan Sveinsson, Brekkustígur 7, 101 Reykjavík
María Huld Markan Sigfúsdóttir, Brekkustígur 7, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir garðskúr við einbýlishús á lóð nr. 7 við Brekkustíg.
Erindi fylgir jákv. fsp. dags. 2. júní 2009.
Stærð: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

11. Drekavogur 4-4B (01.414.004) 192230 Mál nr. BN039458
Gerpir ehf, Laugavegi 22A, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með ellefu íbúðum, byggja við og byggja hæð (3. hæð) úr steinsteypu ofan á húsið, klæða og einangra að utan með sléttri og báraðri álklæðningu ásamt því að koma fyrir lyftu og stækka og breyta fyrirkomulagi í kjallara hússins nr. 4 á lóðinni nr. 4, 4A og 4B við Drekavog.
Jafnframt eru erindi BN024696, BN024943 og BN034193 felld úr gildi.
Stækkun 371 ferm. og 1284,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 98.922
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Fannafold 223-223A (02.852.206) 109995 Mál nr. BN040311
Anna Jóna Arnbjörnsdóttir, Fannafold 223, 112 Reykjavík
Sigurður G Leifsson, Fannafold 223, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta sólstofu í lokað rými og klæða með timburklæðningu á lóðrétta fleti í parhúsi á lóð nr. 223 við Fannafold.
Samþykki meðeiganda ódags. fylgir erindinu ásamt bréfi Sigríðar Sigþórsdóttur dags. 31. ágúst 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

13. Faxafen 14 (01.466.201) 195611 Mál nr. BN040303
Heilsuborg ehf, Sunnuflöt 23, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á líkamsræktarstöð sem verið hefur í rekstri og felast í að færa til innveggi og breyta rýmum á neðri hæð en milligólf verður óbreytt í húsnæðinu á lóð nr. 14 við Faxafen.
Samþykki eigenda húsnæðisins dags 10. ágúst 2009 og jákvæð fyrirspurn BN040222 dags. 21. júlí 2009 fylgir erindinu sem og bréf rekstraraðila dags. 1. sept 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Fiskislóð 5-9 (01.089.401) 197869 Mál nr. BN039855
Lýsi hf, Fiskislóð 5-9, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum með ýmsum breytingum og stækkun á iðnaðarhúsi á lóð nr. 5-9 við Fiskislóð.
Stækkun: Milliloft 56,6 ferm.
Olíutankur 01, ferm 10 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 770
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

15. Frakkastígur 7 (01.173.030) 101517 Mál nr. BN040299
101 hús ehf, Lokastíg 6, 101 Reykjavík
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og opna kaffihús/bar í flokki II í húsi mhl 03 á lóð nr. 7 við Frakkastíg.
Jákvæð fyrirspurn BN39905 fylgir erindinu dags 2. júní 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009 og eldri umsögn skipulagststjóra dags. 29. maí 2009.Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Grettisgata 56A (01.190.111) 102386 Mál nr. BN040383
Sonja Margrét Scott, Austurgata 9, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum þar sem fyrri breytingar eru sýndar ásamt skráningartöflu vegna eignaskiptasamnings fyrir íbúðarhúsið á lóð nr. 56 við Grettisgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

17. Grundarstígur 2A (01.183.304) 101956 Mál nr. BN040351
Verslunin Þingholt ehf, Stakkahlíð 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til niðurrifs á þegar fjarlægðum bakskúr og fyrir endurbyggingu hans í sömu mynd sbr. fsp. BN039934 og breytinga á 1. hæð þar sem íbúð er innréttuð í stað verslunar sbr. fsp. BN039737 í íbúðarhúsi á lóð nr. 2A við Grundarstíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Grundarstígur 3 (01.184.006) 102001 Mál nr. BN040365
Skjöldur Sigurjónsson, Grundarstígur 3, 101 Reykjavík
Ísold Grétarsdóttir, Grundarstígur 3, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir uppmælingarteikningum ásamt fyrirkomulagsbreytingum innanhúss af einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Grundarstíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Gvendargeisli 168 (05.134.701) 190285 Mál nr. BN040350
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að áfangaskipta Sæmundarskóla til að hægt verði að taka austasta hluta 1. hæðar, 1. áfanga skólans í notkun á lóð nr. 168 við Gvendargeisla.
Bréf frá hönnuði dags. 24. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Hádegismóar 2 (04.412.301) 194768 Mál nr. BN040355
Klasi ehf, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á nýsamþykktum reyndarteikningum sem felast í tilfærslu á vöskum í móttökueldhúsi í Morgunblaðshúsinu á lóð nr. 2 við Hádegismóa.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

21. Hofteigur 12 (01.364.101) 104609 Mál nr. BN040364
Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir, Hofteigur 12, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis BN035750 fyrir þegar byggðum stiga af svölum 1. hæðar og dyrum úr þvottahúsi út í garð á húsi á lóð nr. 12 við Hofteig.
Samþykki meðeigenda dags. 25. ágúst 2009 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

22. Hraunbær 111, 111A-G (04.333.201) 193555 Mál nr. BN040319
Leigufélag Búseta ehf, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta loftræsingu í geymslum og texta um flokkun klæðningar frá áður samþykktum teikningum af fjölbýlishúsinu nr. 111-111A á lóðinni 111-111G við Hraunbæ.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Hverfisgata 46 (01.172.008) 101430 Mál nr. BN040221
Foldir fasteignaþróunarfél ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Leigufélagið Mikli Drangur ehf, Hverfisgötu 46, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skilgreina í flokk III og breyta innra fyrirkomulagi í knattborðsstofu, sjá erindi BN038677 dags. 30. september 2008, á 1. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 46 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda á umsóknarblaði.
Greinagerð um hljóðvist ófullnægjandi.

24. Kirkjustétt 2-6 (04.132.201) 188525 Mál nr. BN040098
BS-eignir ehf, Kirkjustétt 2-6, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri starfsmannasnyrtingu á 1. hæð, bráðabirgðalokun milli pizzastaðar og bakarís og innrétta skrifstofuaðstöðu á 2. hæð í atvinnuhúsinu á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.
Bréf frá hönnuði dags. 22. júní 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

25. Kleifarsel 18 (04.975.601) 113267 Mál nr. BN040359
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til minni háttar breytinga, sjá erindi BN038845 dags. 16. september 2008, á íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 18 við Kleifarsel.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Laugavegur 116 (01.240.103) 102980 Mál nr. BN040367
Smáragarður ehf, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi fyrir þegar framkvæmdum breytingum á 1. hæð og í kjallara í verslunarhúsi á lóð nr. 116/118 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

27. Laugavegur 180-182 (01.252.001) 103443 Mál nr. BN040316
Kauphöll Íslands hf, Laugavegi 182, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningu af rými 0501 í verslunarhúsinu á lóð nr. 182 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

28. Laugavegur 21 - Klapp (01.171.108) 101374 Mál nr. BN040103
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta kaffihús í flokki III í húsi á lóð nr. 30 við Klapparstíg. Gert er ráð fyrir 49 gestum innandyra og 50 gestum í garði. (Laugavegur 21/Klapparstígur 30).
Jákvæð fyrirspurn BN040066 fylgir málinu.
Bréf frá Eddu Einarsdóttur arkitekt dags. 7. júlí 2009, frá Agli Guðmundssyni dags 14. júlí 2009, bréf frá Húsafriðunarnefnd dags. 6. júli 2009, Minjasafni Reykjavíkur dags. 8. júlí 2009 og Önnu Á. Ragnarsdóttur dags. 28. ágúst 2009, einnig hljóðvistarskýrsla dags. 7. sept. 2009 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.700 +7.700
Frestað.
Hljóðvistarskýrsla dags. 7. september 2009 er ófullnægjandi m.a:
1. Hvernig er hljóðeinangrun húss. 2. Hvernig er loftræsing húss. 3. Skjólveggur ekki sannfærandi hávaðavörn. 4. Nýr inngangur - ný vandamál. 5. Ósamræmi í tölum.

29. Lágmúli 5 (01.261.301) 103507 Mál nr. BN040257
Húsfélagið Lágmúla 5, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti á og við hús á lóð nr. 5 við Lágmúla.
Meðfylgjandi er ódags. bréf formanns húsfélags, fundargerð húsfundar 12. júní 2009, ódags. samningur um afnotarétt, ódags, reglur um merkingar, heildarmynd með samþykktum og skiltabókhald dags. 7. sept. 2009
Gjald kr 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

30. Nýlendugata 15A (01.131.209) 100178 Mál nr. BN040203
María Dís Cilia, Nýlendugata 15a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á suðurhlið 2. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 15a við Nýlendugötu.
Samþykki meðeigenda ódags, umsögn frá Minjasafni Reykjavíkur dags. 18. ágúst 2009, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 25. ágúst 2009 og ljósrit af síðu úr dagbók byggingarfulltrúa fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Ofanleiti 14 (01.746.202) 107442 Mál nr. BN039527
Hamborgarabúlla Tómasar ehf, Pósthólf 131, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi söluturni í hamborgarastað til meðtöku án veitingasalar, bætt verður við sorp- og gasgeymslu utan við hús á lóð nr. 14 við Ofanleiti.
Málinu fylgir bréf frá skrifstofu borgarstjóra dags. 9.jan. 2009. Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. febrúar 2009 fylgir erindinu
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Smárarimi 38 (02.524.704) 109354 Mál nr. BN040374
Óskar Rúnar Olgeirsson, Smárarimi 38, 112 Reykjavík
Jónína Ómarsdóttir, Smárarimi 38, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu við suðvesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 38 við Smárarima.
Stækkun 45 ferm., 133,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 +10.303
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

33. Smiðjustígur 4A (01.171.115) 101381 Mál nr. BN040393
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir málaðri veggmynd sem hlotið hefur styrk Reykjavíkurborgar með hugmyndaheitinu #GLglaðir gaflar#GL á hús á lóð nr. 4A við Smiðjustíg.
Meðfylgjandi er afstöðumynd, mynd af vegg, bréf frá listamönnum ódags. og leyfi húseiganda/lóðarhafa dags. 4.9. 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

34. Stórhöfði 29-31 (04.084.801) 179559 Mál nr. BN040378
200 þúsund naglbítar ehf, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Stafir lífeyrissjóður, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Rafiðnaðarsamband Íslands, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
MATVÍS (Matvæla- og veitingaf), Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta mhl. 01 í mhl. 01 og 02 ásamt ýmsum breytingum og tilfærslum innanhúss í húsi á lóð nr. 31 við Stórhöfða.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Súðarvogur 7 (01.453.002) 105615 Mál nr. BN040379
Nasi ehf, Súðarvogi 7, 104 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, v/gerðar eignaskiptasamnings, í atvinnuhúsinu á lóð nr. 7 við Súðarvog.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Varmadalur 4 (00.080.003) 202099 Mál nr. BN039920
Jón Sverrir Jónsson, Varmadalur 2, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja stálgrindarskemmu klædda með yleiningum í Varmadal 4 í Reykjavík. Grenndarkynning stóð frá 19. júní til 17. júlí 2009. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi eru bréf hönnuðar dags. 11. maí 2009 og 11. júní 2009. Einnig fylgir umsögn Brunamálastofnunar um samlokueiningar dags. 22. maí 2009.
Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. júlí 2009 fylgir erindinu.
Stærðir: 334 ferm., 1.612,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 12.414
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

37. Vesturhlíð 3 (01.768.501) 107478 Mál nr. BN040377
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja kennslustofu frá Korpuskóla og staðsetja við Brúarskóla á lóð nr. 3 við Vesturhlíð.
Stærðir 80,7 ferm., 284,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

38. Vínlandsleið 12-14 (04.111.601) 208323 Mál nr. BN040305
Mótás hf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sérhæfðar rannsóknarstofur í kjallara , 1. 2. og 3. hæð í atvinnuhúsinu á lóð nr. 12-14 við Vínlandsleið.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 11. ágúst 2009 fylgir.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

Fyrirspurnir

39. Borgartún 30 (01.231.101) 180387 Mál nr. BN040380
Helgi Magnússon, Hjallabraut 19, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyfi fengist til að loka biðaðstöðu á 3. hæð með því að koma fyrir léttum vegg í skrifstofuhúsnæðinu á lóð nr. 30 við Borgartún.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

40. Dragavegur 5 (01.352.702) 104205 Mál nr. BN040334
Ásgeir S Olsen, Dragavegur 5, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr við tvíbýlishúsið á lóð nr. 5 við Dragaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009 fylgir erindinu, einnig er lögð fram eldri umsögn Borgarskipulags Reykjavíkur dags. 28. ágúst 2000.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi, sbr. einnig umsögn skipulagsstjóra.

41. Hafnarstræti 1-3 (01.140.005) 100817 Mál nr. BN040278
Ásmundur Jóhannsson, Hraunteigur 9, 105 Reykjavík
Merlot ehf, Hafnarstræti 1-3, 101 Reykjavík
Spurt er hvort setja megi upp skjóltjald yfir útiveitingaaðstöðu við veitingahúsið á lóð nr. 1-3 við Hafnarstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009 fylgir erindinu.
Nei
Samræmist ekki gildandi deiliskipulagi sbr. útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009.

42. Hafnarstræti 20 (00.000.000) 100836 Mál nr. BN040366
Hlédís Sveinsdóttir, Víðimelur 58, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta ísbúð í rými 0101 í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóð nr. 20 við Hafnarstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009 og umsögn skipulagsstjóra dags. 3. september 2009 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

43. Hraunbær 36-60 (04.334.301) 111075 Mál nr. BN040239
Grétar Þór Nielsen Þórsson, Hraunbær 58, 110 Reykjavík
Spurt er hvort steina megi austurhlið fjölbýlishússins nr. 58 á lóð nr. 36 - 60 við Hraunbæ.
Bréf Húsfélagsins Hraunbæ 58 dags. 6. september 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

44. Laufásvegur 24 (01.183.409) 101969 Mál nr. BN040357
Valdimar Sigfús Helgason, Grjótasel 15, 109 Reykjavík
Sigrún Steina Valdimarsdóttir, Laufásvegur 24, 101 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi yfir svalir á 2. hæð í íbúðarhúsi á lóð nr. 24 við Laufásveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

45. Naustavogur 15 (01.456.201) 105648 Mál nr. BN040392
Ingólfur Guðlaugsson, Háaleitisbraut 15, 108 Reykjavík
Valgeir Berg Steindórsson, Vættaborgir 144, 112 Reykjavík
Spurt er hvort stöðuleyfi fáist fyrir 10/17 metra geymslutjald á lóð Snarfara við Naustavog.
Meðfylgjandi er bréf frá fulltrúa sportbátaeigenda dags. 3. sept. 2009, staðfesting stjórnar Snarfara dags. 2. sept. 2009 og myndir af tjaldinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

46. Skipasund 56 (01.357.312) 104459 Mál nr. BN040341
Rangá sf, Skipasundi 56, 104 Reykjavík
Gunnar Steinþórsson, Skipasund 56, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 35 ferm. yfir ónýttar tröppur og stétt við suðurhlið og færa bílastæði inn á lóð fyrir efri hæð hússins á lóð nr. 56 við Skipasund.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009 fylgir erindinu.
Neikvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

47. Tangarhöfði 2 (04.063.501) 110662 Mál nr. BN040363
Mr. Boss ehf, Hátúni 12, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja 6 niðurföll frá efri hæð sem koma til með að liggja sýnileg í lofti í kjallara atvinnuhússins á lóð 2 við Tangarhöfða.
Samþykki meðeigenda þarf að liggja fyrir, ásamt samþykktum uppdráttum af lögnum

48. Tryggvagata 11 (01.117.401) 100089 Mál nr. BN040358
Guðmundur R Mýrdal Jónsson, Bandaríkin, Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta skrifstofurými á
3. hæð í gistiheimili eða stúdíóíbúðir í atvinnuhúsinu á lóð nr. 11 við Tryggvagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

49. Tryggvagata 16 (01.132.104) 100213 Mál nr. BN040371
Kristján Kristjánsson, Gullteigur 4, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að fjarlægja vegg á milli eigna 0101 sem er í eigu Ömmu ehf og 0102 sem er í eigu Basalt ehf til þess að þriðji aðili sem nú leigir af Basalt geti stækkað við sig í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

50. Vatnsveituv. Fákur (04.712.001) 112366 Mál nr. BN040394
Róbert Petersen, Vesturás 18, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að færa til á lóð og byggja yfir taðþró við hesthúsið nr. 1 á lóð Fáks við Vatnsveituveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

51. Vesturvallagata 2 (01.134.506) 100390 Mál nr. BN040368
Hadda Sigríður Þorsteinsdóttir, Vesturvallagata 2, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi þurfi fyrir 4 ferm. garðskúr á lóð nr. 2 við Vesturvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 4. september 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður ef berst, samanber útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. september 2009.

52. Þorláksgeisli 120 (04.135.804) 189609 Mál nr. BN040388
Herdís Björg Rafnsdóttir, Þorláksgeisli 120, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja niðurgrafna geymslu framan við einbýlishúsið á lóð nr. 120 við Þorláksgeisla.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13:00.
Bjarni Þór Jónsson
Þórður Ólafur Búason
Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir
Jón Hafberg Björnsson
Eva Geirsdóttir