Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2012, miðvikudaginn 5. desember kl. 10.05, var haldinn 298. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Marta Guðjónsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Björn Axelsson, Björn Stefán Hallsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir.Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar, Valný Aðalsteinsdóttir og Björn Ingi Edvardsson.Fundarritari var Einar Örn Thorlacius.

Þetta gerðist:
(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 30. nóvember 2012.

(B) Byggingarmál

2. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN044003
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 710 frá 04. desember 2012.

3. Flugvöllur 106746, (01.65-.-99) Mál nr. BN044899
Gjaldskyld bílastæði fyrir gesti við flugstöð
Flugfélag Íslands ehf., Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. ágúst 2012 þar sem sótt er um leyfi fyrir fullnaðarfrágang gjaldskyldra bílastæða fyrir gesti með því að malbika, yfirboðsfrágang, raflýsingu og koma upp gjaldskyldubúnaði og öryggismyndavélum við Flugfélag Íslands á Reykjavíkurflugvelli lóð nr. 106746.Gjald kr. 8.500
Staða málsins kynnt.

Sverrir Bollason tók sæti á fundinum kl. 10:20

4. Flugvöllur 106746, Bílastæði fyrir starfsmenn (01.65-.-99) Mál nr. BN044900
Flugfélag Íslands ehf., Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. ágúst 2012 þar sem sótt er um leyfi fyrir fullnaðarfrágang á bílastæða fyrir starfsmenn með því að malbika við flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli lóð nr. 106746.Gjald kr. 8.500
Staða málsins kynnt.

(C) Fyrirspurnir

5. Austurhöfn-TRH, (fsp) breyting á deiliskipulagi vegna skiltis (01.11)Mál nr. SN120441
Á fundi skipulagsstjóra 5. október 2012 var lögð fram fyrirspurn forstjóra Hörpu dags. 28. september 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna breyttrar staðsetningar skiltis við Hörpu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 18. október 2012.
Skipulagsráð tekur jákvætt í að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 18. október 2012.

6. Tjarnargata 11, (fsp) - Flotbryggja við kaffihús ráðhússins (01.141.401)Mál nr. BN044451
Studio Granda ehf, Smiðjustíg 11b, 101 Reykjavík
Lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að staðsetja u.þ.b. 30 fermetra flotbryggju við suðurhlið ráðhúss Reykjavíkur á lóð nr. 11 við Tjarnargötu samkv. meðfylgjandi uppdrætti.
Notkun bryggjunnar verður tengd veitingarekstri kaffistofu ráðhússins. Erindi var vísað til umsagnar umhverfis- og samgöngusviðs og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 30. október 2012. Bréf hönnuðar dags. 02.05.2012 fylgir erindinu.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið. Sækja þarf um byggingarleyfi.

(D) Ýmis mál

7. Húsahverfi, svæði C, dómur hæstaréttar (02.84) Mál nr. SN120527
Lagður fram dómur Hæstaréttar frá 22. nóvember 2012 þar sem dæmt var í máli Arngunnar Regínu Jónsdóttur og Helga Rúnars Rafnssonar gegn Reykjavíkurborg.
Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður kynnti.

8. Reykjavíkurflugvöllur, frumvarp til laga (01.6) Mál nr. SN120511
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 14. nóvember 2012 þar sem óskað er umsagnar skipulagsráðs á frumvarpi til laga um miðstöð innanlandsflugs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. nóvember 2012 og umsögn skrifstofustjóra borgarstjórnar og fulltrúa borgarlögmanns dags. 28. nóvember 2012.

9. Þorragata 1, stækkun á lóð (01.635.7) Mál nr. SN120485
Árni Þorvaldur Jónsson, Miklabraut 40, 105 Reykjavík
Lagt fram erindi Árna Þ. Jónssonar arkitekts dags. 31. október 2012 fh. lóðarhafa varðandi stækkun á lóðinni nr. 1 við Þorragötu um 3 metra til norðurs.
Skipulagsráð tekur jákvætt í umbeðna lóðastækkun.

10. Útilistaverk, eftir Rafael Barrios Mál nr. SN120493
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf Menningar- og ferðamálasviðs dags. 2. nóvember 2012 þar sem óskað er eftir umsögn um staðsetningu útilistaverks eftir Rafael Barrios. Einnig er lögð fram tillaga safnsstjóra Listasafns Reykjavíkur dags. 17. september 2012 að staðsetningu listaverksins upp á hringtorgi á mótum Borgartúns og Höfðatúns.
Frestað.

11. Drafnarstígur 5, friðun (01.134.214) Mál nr. BN045267
Lagt er fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 16. nóvember 2012 ásamt bréfum Mennta- og Menningarmálaráðuneytisins dags. 9. nóvember 2012 og 22. október 2012. Friðunin nær til ytra byrðis hússins.

12. Drafnarstígur 5A, friðun (01.134.213) Mál nr. BN045266
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 16. nóvember 2012 ásamt bréfum Mennta- og menningarmálaráðuneytis dags. 9. nóvember 2012 og 22. október 2012. Friðunin nær til ytra byrðis hússins.

13. Bergstaðastræti 56, kæra (01.185.6) Mál nr. SN120536
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála, dags. 30. nóvember 2012, vegna samþykktar byggingarfulltrúa frá 30. október 2012 á byggingarleyfi fyrir svalir á suðvesturhlið 1., 2. og 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 56 við Bergstaðastræti. Einnig er gerð krafa um stöðvun framkvæmda.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

14. Hverafold 112, kæra (02.862.6) Mál nr. SN120533
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. nóvember 2012 ásamt kæru mótt. 27. nóvember 2012 þar sem kærð er veiting byggingarleyfis til að innrétta íbúð á 3. hæð í hverfismiðstöð í húsi nr. 112 við Hverafold. Í kærunni er gerð krafa um bráðabirgðaúrskurð um stöðvun framkvæmda.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

15. Búðavað gestabílastæði, kæra, umsögn (04.79) Mál nr. SN120517
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 19. nóvember 2012 ásamt kæru dags. 16. nóvember 2012 þar sem kærð er ákvörðun skipulags- og byggingarsviðs um að hafna því að gestabílastæði við Búðavað 4, 6 og 8 verði felld út af deiliskipulagi. Einnig lögð fram umsögn yfirlögfræðings skipulags- og byggingarmála dags. 23. nóvember 2012.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

16. Suðurgata 18, kæra, umsögn (01.161.2) Mál nr. SN120499
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 31. október 2012 ásamt kæru dags. 29. október 2012 þar sem kærð er synjun um leyfi fyrir gerð bílastæða á lóðinni nr. 18 við Suðurgötu. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 15. nóvember 2012.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

17. 1.171.1 Hljómalindarreitur, lýsing, breytt deiliskipulag(01.171.1) Mál nr. SN120137
Laugavegsreitir ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. nóvember um samþykkt borgarráðs dags. 15. nóvember 2012 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi reitsins.

18. 1.172.0 Brynjureitur, lýsing, breytt deiliskipulag (01.172.0) Mál nr. SN120140
Laugavegsreitir ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 16. nóvember um samþykkt borgarráðs dags. 15. nóvember 2012 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi reitsins.

19. Holtsgöng, byggðasvæði nr. 5, lýsing, breyting á svæðisskipulagi Mál nr. SN080500
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 21. nóvember um samþykki borgarstjórnar dags. 20. nóvember 2012 vegna breytingar á svæðisskipulagi um Holtsgöng og byggingarsvæði 5.

Fundi slitið kl. 12.05.

Páll Hjalti Hjaltason

Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Sverrir Bollason Júlíus Vífill Ingvarsson
Gísli Marteinn Baldursson Marta Guðjónsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2012, þriðjudaginn 4. desember kl. 10.20 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 710. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Björn Stefán Hallsson, Eva Geirsdóttir, Sigurður Pálmi Ásbergsson, Óskar Torfi Þorvaldsson og Björn Kristleifsson.Fundarritari var Harri Ormarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Arngrímsgata 5 221201 Mál nr. BN044048
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja #GLHús íslenskra fræða#GL, sporöskjulaga, þrjár hæðir og kjallari auk bílakjallara fyrir 60 bíla, staðsteypt og með veðurhjúp úr cortenstáli á lóð nr. 5 við Arngrímsgötu.
Meðfylgjandi er yfirlýsing Framkvæmdasýslu ríkisins vegna færslu kvaðar vegna lagna dags. 3.12. 2012 og ósk Framkvæmdasýslu ríkisins um frávik frá gildandi byggingarreglugerð sbr. grein 17.1.2 ákvæði til bráðabirgða, dags. 28.11. 2012.
Stærð: Kjallari 1.324,7 ferm., 1. hæð 1.967,4 ferm., 2. hæð 1.659,5 ferm., 3. hæð 1.538,1 ferm.
Samtals: 6.489,7 ferm., 28.065,3 rúmm.
Bílgeymsla (B-rými) 2.250 ferm.
Gjald kr. 8.500 + 2.385.551
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er byggingin undanþegin ákvæðum í 6. - 16. hluta reglugerðarinnar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

2. Baldursgata 32 (01.186.321) 102274 Mál nr. BN045138
Dán tán ehf., Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu, einangrað að innan og með bárujárnsklæddu timburþaki fjögurra hæða og sjö íbúða fjölbýlishús á lóð nr. 32 við Baldursgötu.
Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. gr. 17.1.2 ákvæði til bráðabirgða í bréfi arkitekts dags. 16. nóvember 2012.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 9. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 9. nóvember 2012.
Einnig mótmæli frá eiganda 0102 og eiganda 0103 í Freyjugötu 14 dags. 26. nóvember 2012 vegna svala við lóðamörk en komið hefur verið til móts við þessi mótmæli með því að fella niður svalir, einnig fylgir með bréf umsækjanda dags. 27.11. 2012.
Stærðir:
1. hæð 145 ferm., 2. hæð 140,8 ferm., 3. hæð 111,4 ferm., 4. hæð 55,3 ferm.
Samtals 452,6 ferm., 1.351,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 114.861
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er byggingin undanþegin ákvæðum í 6. - 16. hluta reglugerðarinnar.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

3. Baldursgata 34 (01.186.322) 102275 Mál nr. BN045139
Dán tán ehf., Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu, einangrað að innan og með bárujárnsklæddu timburþaki þriggja hæða og þriggja íbúða fjölbýlishús með undirgangi á lóð nr. 34 við Baldursgötu.
Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. gr. 17.1.2, ákvæði til bráðabirgða í bréfi arkitekts dags. 23. október 2012.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 9. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 9. nóvember 2012. Samþykki eigenda Þórsgötu 14 fylgir með.
Stærðir:
1. hæð 54,3 ferm., 2. hæð 63,4 ferm., 3. hæð 37,6 ferm.
Samtals 155,3 ferm., 504,3 rúmm.
B-rými 13,4 ferm.
Gjald kr. 8.500 + 8.500 + 42.865
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er byggingin undanþegin ákvæðum í 6. - 16. hluta reglugerðarinnar.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Bárugata 11 (01.136.303) 100561 Mál nr. BN045288
Asar Invest ehf, Kvistalandi 14, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu þar sem gerð er grein fyrir minni háttar breytingum á innra skipulagi, sjá erindi BN044083, í gistiheimili á lóð nr. 11 við Bárugötu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

5. Bíldshöfði 9 (04.062.001) 110629 Mál nr. BN039315
Umtak fasteignafélag ehf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja geymslu til að geyma gaskúta, utan á atvinnuhúsið á lóð nr. 9 við Bíldshöfða.
Bréf frá hönnuði dags. 22. nóv. 2012 og Bréf frá N1 dags. 27.jan. 2012
samþykki meðeigenda ódags. fylgja.
Stækkun: 17,9 ferm og 46,8 rúm.
Gjöld kr. 7.300 + 8.500 + 3.978
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bragagata 33A (01.186.215) 102244 Mál nr. BN045186
Arnar Már Þórisson, Sólvallagata 14, 101 Reykjavík
Frjálsi hf., Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN042913 þar sem sótt var um leyfi til að breyta innréttingum og búa til sér íbúð í þakhæð fjölbýlishússins á lóð nr. 33A við Bragagötu.
Erindi fylgir bréf frá Húseigendafélaginu dags. 3. janúar 2012.
Samþykki meðeigenda dags. 14. apríl 2011.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Umsókn þarf að fylgja nýtt samþykki meðeiganda.

7. Bragagata 38 (01.186.630) 102325 Mál nr. BN045059
Íris Sif Ragnarsdóttir, Bragagata 38, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja kvist á norðvesturhlið rishæðar (3.h.) hússins á lóðinni nr. 38 við Bragagötu.
Samþykki meðeigenda (ódags.) fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. nóvember 2012 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 25. október til og með 22. nóvember. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: Stækkun, kvistur 3,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 272
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

8. Dragháls 14-16 (04.304.504) 111026 Mál nr. BN045256
Skák ehf, Lyngbarði 3, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum þær eru að breyta brunavörnum gera grein fyrir millipöllum og sameina mhl. 01 og 02 þannig að þeir verða 01 í húsinu á Fossháls 13-15 á lóð 13-15 og 14-16 við Dragháls.
Samþykki meðeigenda dags. nóv. 2012 fylgir.
Skýrsla brunahönnuðar dags. nóv. 2012.
Stækkun: millipalla : 207,5 ferm.
Gjald 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

9. Einholt 2 (01.244.101) 103179 Mál nr. BN045185
Arnar Már Þórisson, Sólvallagata 14, 101 Reykjavík
Fasteignin Einholti 2 ehf, Tunguási 9, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN042002 þar sem sótt var um að byggja fernar svalir, innrétta sex íbúðir og byggja sólpalla á baklóð atvinnuhúss á lóð nr. 2 við Einholt.
Samþykki meðeigenda dags. 11. okt. 2010 fylgir
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Umsókn þarf að fylgja nýtt samþykki meðeiganda.

10. Esjugrund 5 (32.473.703) 125784 Mál nr. BN045286
Sambýlið Esjugrund 5 slf, Esjugrund 5, 116 Reykjavík
Þorsteinn Einarsson, Jörfagrund 42, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044221 þannig að teikning er samræmd við núverandi ástand og texta um brunavarnir í húsinu á lóð nr. 5 við Esjugrund.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

11. Fannafold 120-122 (02.854.402) 110043 Mál nr. BN045259
Sigurður Ófeigsson, Fannafold 120, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við mhl. 01, parhúsið nr. 120 á lóð nr. 120-122 við Fannafold. Einnig er er sótt um að ógilda erindið BN044589 sem samþykkt var 26. Júní 2012.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 21. nóv 2012 fylgir.
Viðbygging mhl. 01: 23,5 ferm., 70,7 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 6.009
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Friggjarbrunnur 14-16 (05.053.703) 205897 Mál nr. BN045282
Dalhús ehf., Ögurhvarf 6, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 2-3 hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum og bílakjallara fyrir 12 bíla á lóð nr. 14-16 við Friggjarbrunn.
Einnig er óskað eftir leyfi til að nota undanþáguákvæði í grein 17.1.2 í nýrri byggingareglugerð og fylgir greinargerð þar um dags. 26. nóvember 2012.
Jafnframt er erindi BN037671 fellt úr gildi.
Stærð: Kjallari: Bílgeymsla 349,2 ferm., geymslur 337,1 ferm., 1. hæð 568,3 ferm., 2. hæð 594,6 ferm., 3. hæð 385,6 ferm.
Samtals 2.234,8 ferm., 6.994,5 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 594.353
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Fýlshólar 11 (04.641.511) 111895 Mál nr. BN045183
Tama V Bjarnason, Fýlshólar 11, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að gera íbúð í fremri hluta kjallara einbýlishússins á lóðinni nr. 11 við Fýlshóla.
Jákvæð fyrirspurn BN044813 dags. 14. ágúst 2012 fylgir erindi sem og bókun skipulagsstjóra.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

14. Granaskjól 13 (01.517.009) 105882 Mál nr. BN045278
Arndís Inga Sverrisdóttir, Granaskjól 13, 107 Reykjavík
Jóhannes Þórðarson, Granaskjól 13, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í tvíbýlishúsinu á lóðinni nr. 13 við Granaskjól.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

15. Grandavegur 44 (01.520.402) 216911 Mál nr. BN045297
Þingvangur ehf, Hlíðasmára 9, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús, einangrað að utan og klætt flísum og málmplötum, með 99 íbúðum, tíu hæðir og bílakjallara fyrir 73 bíla á lóð nr. 44 við Grandaveg.
Stærðir:
Mhl. 01: 4.340,4 ferm., 12.853,5 rúmm.
Mhl. 02: 4.387,5 ferm., 13.003,8 rúmm.
Mhl. 03: 4.388,4 ferm., 13.130,6 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xxx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Grensásvegur 50 (01.802.509) 107715 Mál nr. BN045289
Skúli Magnússon, Lækjarás 2, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta dýralæknastofu á fyrstu hæð hússins (matshl.02) á lóðinni nr. 50 við Grensásveg.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

17. Grjótháls 7-11 (04.304.001) 111019 Mál nr. BN045301
Kolefni ehf., Hverfisgötu 78, 101 Reykjavík
Ölgerðin Egill Skallagríms ehf., Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta frárennslislögn þannig að settir eru upp tveir brunnar utanhús þar sem stöðug mæling á hita- og sýrustigi og rennslismælingar fara fram og nýjar lagnir lagðar inn í hús til sýnatöku í verksmiðjuhúsi á lóð nr. 7-9 við Grjótháls.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

18. Guðrúnartún 8 (01.216.303) 102760 Mál nr. BN045292
SRE-S10 ehf., Austurhrauni 7, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1.hæð þar sem breytt er aðalinngangi í austur , anddyri með rennihurðum skipt út fyrir hringhurð og gönguhurð í húsinu á lóð nr. 8 við Guðrúnatún. Sbr. erindið BN43338.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

19. Gvendargeisli 62 (05.135.409) 190252 Mál nr. BN045225
Rafn Valur Alfreðsson, Gvendargeisli 62, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta sólstofu á suðurhlið í lokaða viðbyggingu við einbýlishús á lóð nr. 62 við Gvendargeisla.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

20. Hallveigarstígur 8 (01.180.205) 101693 Mál nr. BN045274
Vigdís Hjaltadóttir, Hallveigarstígur 8, 101 Reykjavík
Steingrímur Gunnarsson, Austurbrún 4, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja kvist á norðausturþekju og koma fyrir tveimur kvistum og svölum á suðvesturþekju hússins á lóðinni nr. 8 við Hallveigarstíg.
Stærð: Stækkun kvistir xx rúmm.
Gjald kr. 8.500 +xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Haukdælabraut 5-9 (05.113.803) 214785 Mál nr. BN045235
Gæðahús ehf, Logafold 25, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt raðhús á einni hæð, með kjallara undir mhl. 03, á lóð nr. 5-9 við Haukdælabraut.
Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. gr. 17.1.2, ákvæði til bráðabirgða í bréfi arkitekts.
Mhl.01: Íbúð 170,1 ferm., bílgeymsla 32,7 ferm.
Mhl.02: Íbúð 161,2 ferm., bílgeymsla 30,1 ferm.
Mhl.03: Kjallari 60,1 ferm., 1. hæð 152 ferm., bílgeymsla 33 ferm.
Samtals: 639,2 ferm., 2.158,5 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 183.473
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er byggingin undanþegin ákvæðum í 6. - 16. hluta reglugerðarinnar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Háteigsvegur 34 (01.245.307) 103262 Mál nr. BN045210
Soffía Stefánsdóttir, Háteigsvegur 34, 105 Reykjavík
Georg Ólafsson, Háteigsvegur 34, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem breyting er á rýmum og eignarhaldi í húsinu á lóð nr. 34 við Háteigsveg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

23. Hjallavegur 30 (01.354.208) 104286 Mál nr. BN045270
Hannes Tómasson, Hjallavegur 30, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að afmarka sérafnotaflöt fyrir íbúðir 0101 og 0201 í húsinu á lóð nr. 30 við Hjallaveg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Hólmaslóð 10 (01.110.502) 100020 Mál nr. BN045279
Olíudreifing ehf., Pósthólf 4230, 124 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN043780 þannig að hurð milli 0102 og 0103 er fjarlægð og gryfja felld út, settur er upp nýr hlaupaköttur og brunamerkingum breytt í húsinu á lóð nr. 10 við Hólmaslóð.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Hólmgarður 19 (01.818.108) 108183 Mál nr. BN045320
Tryggvi Gíslason, Hólmgarður 19, 108 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til þess að hækka ris hússins á lóðinni nr. 19 við Hólmgarð sbr. erindi BN034458/BN044666.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.

26. Hraunbær 102D og 102E (04.343.301) 111081 Mál nr. BN045162
Hraunbraut ehf., Síðumúla 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð í sex íbúðir í húsum nr. 102D og 102E (matshl. 07 og 08) á lóðinni nr. 102 við Hraunbæ.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 30.11.2012 fylgir erindinu.
Samþykki hluta meðeigenda (ódags.) fylgir erindinu.
Umsögn skipulagsstjóra dags. 10.08.2012 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

27. Hringbraut 26 (01.143.107) 100955 Mál nr. BN045195
Þorsteinn Sæmundsson, Háahlíð 14, 550 Sauðárkrókur
Sótt er um leyfi til að opna út í garð á norðurhlið með tvöfaldri hurð og palli, reisa 2metra háa skjólveggi úr timbri við norðvestur og norðaustur horn á einbýlishúsinu á lóð nr. 26 við Hringbraut.
Umsögn burðarvirkshönnuðar dags. 26. nóv. 2012 og samþykki meðeigenda (ódags. og í tölvupósti dags. 3. des. 2012) fylgja erindinu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

28. Kirkjuteigur 5 (01.360.507) 104541 Mál nr. BN045296
105 fasteignir ehf, Ármúla 23, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta upp eign 0201 í tvær eignir 0201 og 0202 á 2. hæð í húsinu á lóð nr. 5 við Kirkjuteig.
Samþykki meðeigenda dags. 15. nóv. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

29. Klapparstígur 25-27 (01.172.016) 101438 Mál nr. BN045295
Réttur-Aðalsteins & Partner ehf, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík
Klapparhorn ehf, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi á þriðju hæð hússins á lóðinni nr. 25-27 við Klapparstíg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Krókháls 9 (04.141.201) 200478 Mál nr. BN045317
Vagneignir ehf., Vagnhöfða 23, 110 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á erindi BN035743, þar sem veitt var leyfi til að byggja steinsteypt einlyft atvinnuhús ásamt kjallara undir hluta og millilofti fyrir bílaumboð, verslun og verkstæði allt einangrað að utan og klætt með ýmist liggjandi svörtu trapisustáli, dökkgrænu stáli og álplötuklæðningu á lóð nr. 9 við Krókháls.
Brunahönnun VSI dags. 29. mars 2007 fylgir erindi BN035743.
Stærð: Kjallari 1705,7 ferm., 1. hæð 5766,4 ferm., samtals 7472,1 ferm., 42434,3 rúmm.
Yfirbyggð útisvæði (B-rými) samtals 590,5 ferm., 3949,4 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 335.699
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

31. Krókháls 9 (04.141.201) 200478 Mál nr. BN045318
Vagneignir ehf., Vagnhöfða 23, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN043725, þar sem veitt var leyfi til að byggja geymslu við kjallara og uppfæra smávægilegar breytingar á gluggaveggjum, þakgluggum og inntaksrými sbr. erindi BN035743 samþykkt 26. júní 2007 í bifreiðasölu og verkstæði á lóð nr. 9 við Krókháls.
Stækkun: 187 ferm., 99,1 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 8.424
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

32. Krókháls 9 (04.141.201) 200478 Mál nr. BN045314
Vagneignir ehf., Vagnhöfða 23, 110 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvegsframkvæmdum, sökklum, sökkulveggjum og jarðplötu á lóðinni nr. 9 við Krókháls sbr. erindi BN045317 og BN045318.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
33. Langholtsvegur 44 (01.384.108) 104887 Mál nr. BN044100
Stefán Þórarinn Sigurðsson, Langholtsvegur 44, 104 Reykjavík
Njörður Ludvigsson, Langholtsvegur 44, 104 Reykjavík
Ludvig Guðmundsson, Dalaþing 14, 203 Kópavogur
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu þar sem gerð er grein fyrir áður gerðri íbúð í kjallara, og jafnframt óskað eftir samþykkt á henni í einbýlishúsi á lóð nr. 44 við Langholtsveg.
Erindi fylgir virðingargjörð dags. 10. ágúst 1946, íbúaskrá frá Þjóðskrá dags. 9. mars 2010 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 21. febrúar 2012.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

34. Laugavegur 100 (01.174.310) 101645 Mál nr. BN045218
ÚG100 ehf, Hrísholti 21, 800 Selfoss
Sótt er um leyfi til að breyta eldvarnarmerkingum og hólfunarkröfum í kjallara húss á lóð nr. 100 við Laugaveg.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

35. Laugavegur 105 (01.240.005) 102974 Mál nr. BN045257
Hostel LV 105 hf., Hafraþingi 5, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi baðherbergja á 4. hæð í nýsamþykktu erindi, sjá BN045029, í gistiskála í húsi á lóð nr. 105 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

36. Laugavegur 18 (01.171.501) 101417 Mál nr. BN045273
Kaupangur eignarhaldsfélag ehf., Laugavegi 18, 101 Reykjavík
S.L. Kaffi ehf., Ásakór 6, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta notkun rýmis á 2. hæð úr veitingarstað í flokki I í flokk II í húsinu á lóð nr. 18 við Laugaveg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Lautarvegur 30 (01.794.606) 213581 Mál nr. BN045234
Ragnar Þór Hannesson, Geitland 2, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt raðhús á þremur hæðum, með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 30 við Lautarveg.
Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. gr. 17.1.2, ákvæði til bráðabirgða í bréfi arkitekts dags. 23. október 2012.
Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. gr. 17.1.2, ákvæði til bráðabirgða sbr.bréf arkitekts.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. nóvember 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 23. nóvember 2012.
Kjallari 97,1 ferm., 1. hæð 93,1 ferm., bílgeymsla 42 ferm., 2. hæð 89 ferm.
Samtals 321,2 ferm., 1.039,1 rúmm.
B-rými XX ferm.
Gjald kr. 8.500 + 88.324
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

38. Logafold 20-22 (02.874.503) 110381 Mál nr. BN045291
Aðalsteinn Óðinsson, Noregur, Sótt er um leyfi fyrir gustlokun á brautum á svalir íbúðar 0302 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 20-22 við Logafold.
Jákvæð fyrirspurn BN045291 fylgir erindinu og samþykki meðlóðarhafa ódagsett.
Stækkun: 23,4 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 1.989
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

39. Lokastígur 2 (01.181.101) 101738 Mál nr. BN045304
Hótel Óðinsvé hf, Þórsgötu 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að opna tímabundið yfir lóðamörk Þórsgötu 1 (Týsgötu 5) og Lokastígs 2 með tengibyggingu og stækka með endurinnréttingu og breytingum hótel Óðinsvé á lóð nr. 1 við Þórsgötu og 2 við Lokastíg.
Sjá bókun skipulagsráðs frá 11.7. 2012.Stækkun xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 8.500 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Lækjargata 8 (01.140.510) 100870 Mál nr. BN045233
Lækur ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss, sbr. nýsamþykkt erindi BN044972, að koma fyrir matarlyftu, breyta aðstöðu starfsfólks, fyrirkomulagi í eldhúsi og snyrtingum er fækkað um eina á 1. hæð, en fjölgað um eina á 2. hæð í veitingahúsi á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

41. Lækjargata MR (01.180.001) 101665 Mál nr. BN045277
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri klæðningu á austur- og vesturhlið Þingholtsstrætis 18, á lóðinni Lækjargata MR.
Erindi fylgir bréf frá rektor dags. 4. október og greinargerð hönnuðar dags. 8. nóvember 2012. Einnig bréf íbúa Þingholtsstrætis 13 og 17 dags. 13. september 2012.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað er til uppdrátta nr.1-6 síðast breytt 15. maí 2012.

42. Njálsgata 86 (01.182.209) 102495 Mál nr. BN045284
Berglind Guðmundsdóttir, Arnarhraun 27, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að byggja milliloft úr timbri í verslunarrými 0102 í húsinu á lóð nr. 86 við Njálsgötu.
Jákvæð fyrirspurn BN045125 fylgir.
Stækkun: millipallur 13,4 ferm.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Óðinsgata 15 (01.184.519) 102124 Mál nr. BN045255
Ólöf Sigurðardóttir, Óðinsgata 15, 101 Reykjavík
Sigurgísli Bjarnason, Óðinsgata 15, 101 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi bílastæða á lóð fjölbýlishúss nr. 15 við Óðinsgötu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

44. Óðinsgata 5 (01.181.001) 101725 Mál nr. BN044865
Novator ehf, Óðinsgötu 5, 101 Reykjavík
Kristín Ólafsdóttir, Bretland, Björgólfur T Björgólfsson, Bretland, Sótt er um samþykki fyrir ýmsum áður gerðum breytingum í húsinu á lóðinni nr. 5 við Óðinsgötu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Pósthússtræti 13-15 (01.140.512) 100872 Mál nr. BN045120
Eiríkur Óskarsson, Pósthússtræti 13, 101 Reykjavík
Margrét Ragnarsdóttir, Bretland, Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN042650 dags. 15. mars 2011, þar sem veitt var leyfi til að breyta eignarhluta 0202 merkt skrifstofa, í tvær íbúðir merktar 0202 og 0203, til að síkka glugga og byggja tvennar svalir á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhússins á lóð nr. 13 við Pósthússtræti.
Samþykki frá lögboðuðum húsfundi dags. 15. Nóv. 2012
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

46. Safamýri 46-50 (01.286.101) 103743 Mál nr. BN045299
Emilija Aleksandraviciene, Rauðarárstígur 26, 105 Reykjavík
Zakaria Elías Anbari, Safamýri 46, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara og fyrir hurð úr stofu út í garð á suðvesturhlið hússins nr. 46 á lóðinni nr. 46-50 við Safamýri.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

47. Safamýri 5 (01.281.101) 103672 Mál nr. BN045129
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á innveggjum og auk þess er eldhús flutt úr kjallara upp á 1. hæð í húsi fyrir frístundastarfsemi fatlaðra á lóð nr. 5 við Safamýri.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

48. Sjafnarbrunnur 1-3 (05.053.501) 206126 Mál nr. BN045215
Dalhús ehf., Ögurhvarf 6, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt fjölbýlishús, fjórar hæðir og kjallari undir hluta húss með 15 íbúðum og bílgeymslu fyrir 14 bíla á lóð nr. 1-3 við Sjafnarbrunn.
Jafnframt er sótt um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. grein 17.1.2 ákvæði til bráðabirgða sbr. bréf arkitekts.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. nóvember 2012 fylgir erindinu, einnig greinargerð um undanþágu dags. 26. nóvember 2012.
Kjallari: 88,4 ferm., 1. hæð bílgeymsla 363 ferm., íbúð 379,4 ferm., 2. hæð 588,4 ferm., 3. hæð 588,4 ferm., 4. hæð 372,8 ferm.
Samtals: 2.380,4 ferm., 7.525,5 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 639.668
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er byggingin undanþegin ákvæðum í 6. - 16. hluta reglugerðarinnar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

49. Skerplugata 4 (01.636.304) 106711 Mál nr. BN045271
Friðrik Már Ottesen, Skerplugata 4, 101 Reykjavík
Ísleifur Ottesen, Bandaríkin, Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044223 þannig að hætt verður við að hafa tvöfaldan vegg á milli bílskúra nr. 4 og nr. 6 og veggurinn gerður einfaldur á lóð nr. 4 við Skerplugötu.
Samþykki eigendum á Skerplugötu 6 dags. 8. ágúst. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

50. Skerplugata 6 (01.636.306) 106713 Mál nr. BN045272
Guðmundur P Guðmundsson, Skerplugata 6, 101 Reykjavík
Hjördís Elísabet Gunnarsdóttir, Skerplugata 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN044223 þannig að hætt verður við að hafa tvöfaldan vegg á milli bílskúra nr. 4 og nr. 6 og veggurinn gerður einfaldur á lóð nr. 6 við Skerplugötu.
Samþykki eigendum á Skerplugötu 4 dags. 8. ágúst. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

51. Skólavörðustígur 40 (01.181.404) 101794 Mál nr. BN045175
S40 ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir ýmsum minni háttar breytingum á nýsamþykktu erindi, BN044819, m. a. að einangra kjallara að utan í fjölbýlishúsi á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 16. nóvember 2012 fylgir erindinu.
Stækkun frá fyrra erindi: 9,5 ferm., 19,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 1.641
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

52. Smáragata 13 (01.197.305) 102724 Mál nr. BN044800
Stefán Einar Matthíasson, Smáragata 13, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir setlaug norðan við einbýlishúsið á lóðinni nr. 13 við Smáragötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. júlí 2012 vegna fyrirspurnarerindis SN120337 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

53. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN045300
Landey ehf., Hátúni 2B, 105 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á erindi BN036568, þar sem veitt var leyfi til að byggja sex til tíu hæða steinsteypt fjölbýlishús með áttatíu og níu íbúðum ásamt geymslukjallara á tveimur hæðum, allt einangrað að utan og klætt með steinflísum, álklæðningu, harðvið og zinkklæðningu, sem hús nr. 7- 17 við Mánatún sem 2. áfanga framkvæmda sbr. BN 33317 á lóð nr. 1-17 við Mánatún og 1-3 við Sóltún.
Sótt er um undanþágu frá nýrri byggingarreglugerð sbr. gr. 17.1.2 ákvæði til bráðabirgða. Erindi fylgir greinargerð um undanþágu dags. 28. nóvember 2012 sem viðauki við byggingarlýsingu.
Brunahönnun Línuhönnunar dags. 10. júlí 2007, endurskoðuð 20. nóvember 2007 fylgir erindinu.
Stærð: Mánatún 7-17 (matshluti 02) neðrikjallari geymslur 535,7 ferm., kjallari geymslur 1589,5 ferm., íbúðir 1. hæð 1516,1 ferm., 2. og 3. hæð 1730,4 ferm. hvor hæð, 4.-6. hæð 1729,5 ferm. hver hæð, 7. hæð 842 ferm., 8. hæð 802,3 ferm., 9. hæð 261,9 ferm., 10. hæð 145,7 ferm., samtals 14342,5 ferm., 46915 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 3.987.775
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er byggingin undanþegin ákvæðum í 6. - 16. hluta reglugerðarinnar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

54. Stuðlaháls 1 (04.326.801) 111050 Mál nr. BN044861
Vífilfell hf., Stuðlahálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum af verksmiðju og skrifstofum Vífilfells á lóð nr. 1 við Stuðlaháls.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

55. Suðurlandsbraut 12 (01.263.004) 103521 Mál nr. BN045290
Suðurlandsbraut 12 ehf., Mánalind 5, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að breyta núverandi skrifstofum á 2. til 7. hæð í hótel í flokki ? sem verður með 95 herbergi og veitingarstað fyrir 108 gesti, útlit breytist þar sem hurðir verða settar á suður hlið og gluggar á vesturhlið bakhúss síkkaðir í húsinu á lóð nr. 12 við Suðurlandsbraut.
Bréf hönnuðar um undanþágu frá byggingareglugerðinni nr. 112/2012 dags. 27. nóv. 2012 og bréf þar sem óskað er leyfi til að hefja framkvæmdir á niðurrifi innanhús. 27. nóv. 2012 fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

56. Tangarhöfði 8 (04.063.601) 110666 Mál nr. BN045149
Vagneignir ehf., Vagnhöfða 23, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta nýtingu kjallara og fellistigi færður á suðurhlið hússins á lóð nr. 8-12 við Tangarhöfða. Sbr. BN041017.
Bréf hönnuðar ódags. fylgir.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

57. Vatnsveituv. Fákur (04.712.001) 112366 Mál nr. BN045302
Erla Katrín Jónsdóttir, Bakkavör 40, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um samþykkt á reyndarteikningu v/lokaúttektar, þar sem gerð er grein fyrir breyttri staðsetningu frá erindi BN044227 á svölum og snyrtingu í rými 0201 í hesthúsi við Faxaból 9 á lóð við Vatnsveituveg.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

58. Vesturgata 54A (01.130.216) 100139 Mál nr. BN045276
Ásthildur Kjartansdóttir, Brávallagata 18, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að útbúa franskar svalir á annarri hæð suðurhliðar fjölbýlishúss á lóðinni nr. 54A við Vesturgötu.
Samþykki meðeigenda (í tölvubréfi dags. 13. og 14. nóvember 2012 og á teikningu dags. 15. nóvember 2012 fylgja erindinu.
Jákvæð fyrirspurn BN0449654 fylgir erindinu um 60 cm djúpar svalir á suðurhlið ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. september 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 21. september 2012.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

59. Vínlandsleið 2-4 (04.121.101) 188022 Mál nr. BN045281
Vínlandsleið ehf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta lögreglustöð í hluta af 2 hæð og millipalls hússins á lóð nr. 2-4 við Vínlandsleið.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

60. Þórsgata 1 (01.181.116) 101752 Mál nr. BN044411
Hótel Óðinsvé hf, Þórsgötu 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tengibyggingu milli Lokastígs 2 og Týsgötu 5/Þórsgötu 1, breyta fyrirkomulagi innanhúss og sameina húsin í hótel, jafnframt eru erindi BN044183 og BN044184 dregin til baka, á lóð nr. 1 við Þórsgötu.
Meðfylgjandi er loftræsihönnun fyrir kjallararými á teikningu númer A-004.
Viðbygging stækkun: 64,1 ferm., 173,2 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 14.722
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

61. Eyjarslóð 11 (01.110.402) 100017 Mál nr. BN045308
Faxaflóahafnir sf., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
Árið 2004 var lóðinni Eyjarslóð skipt upp í tvo lóðarhluta, nr. 11 sem var 657 m2 og nr. 11B sem var 837 m2, báðir lóðarhlutarnir höfðu sama landnúmer en mismunandi staðgreini. Nú hefur lóðinni í heild verið úthlutað til Olíudreifingar ehf. og er því farið fram á að sameina þessa lóðarhluta í eina lóð Eyjarslóð 11, lóðin haldi sama landnúmeri 100017 og staðgreini 1.110.402.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

62. Sundlaugavegur 32 (00.000.000) 199448 Mál nr. BN045307
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á afmörkun lóðarinnar Sundlaugavegur 32, landnr. 199448, eða eins og sýnt er á meðsendum Lóðauppdrætti Landupplýsingadeildar dags. 28. 11. 2012.
Lóðin Sundlaugavegur 32, landnr. 199448, er talin 22068 m² í Þjóðskrá Íslands og er þar með staðgr. 1.37-.-01.
Lóðin Sundlaugavegur 32, landnr. 199448, verður 39741 m² og fær staðgr. 1.371.101.
Óútvísað land landnr. 218177 minnkar sem því nemur.
Sbr. samþykkt borgarráðs 01. 03. 2012, samþykkt embættisfundar skipulagsstjóra 27. 04. 2012 og auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, dags. 04. 06. 2012.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

63. Helluland 1-19 2-24 (01.862.201) 108799 Mál nr. BN045287
Hreiðar Páll Haraldsson, Helluland 5, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta frágangi á vatnsrennum og þakkanti á raðhúsinu svo og að færa þvottahús dyrnar og að setja glugga á austurgafl á nr. 5 á raðhúsinu á lóð nr. 1- 19 við Helluland.
Teikningar af tillögum.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

64. Laugavegur 20B (01.171.504) 101420 Mál nr. BN045294
Stórval ehf, Pósthólf 188, 121 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að endurnýja og endurinnrétta veitingastað á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 20B við Laugaveg.
Bréf hönnuðar dags. 28. nóvember 2012 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.
Með vísan til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði.

65. Lóuhólar 2-6 (04.642.701) 111914 Mál nr. BN045319
Nautn ehf, Ugluhólum 12, 111 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja skyndibitastað í húsinu nr. 2-4 (matshl. 01) á lóðinni nr. 2-6 við Lóuhóla.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

66. Saltvík 125744 (00.064.000) 125744 Mál nr. BN045283
Stjörnugrís hf, Vallá, 116 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka nýlega samþykkta byggingu um 2500 ferm og byggja aðra byggingu um 3000 ferm. samtals 5500 ferm. fyrir 660 gyltur á lóðinni landnr. 125744 við Saltvík Kjalarnesi.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

67. Vatnagarðar 8 (01.337.703) 103914 Mál nr. BN045285
Reginn hf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta núverandi innra fyrirkomulagi þannig að húsnæðið nýtist sem þrjár einingar, koma fyrir nýjum innkeyrsludyrum og bæta flóttaleið í húsnæðinu á lóð nr. 8 við Vatnagarða.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

Fundi slitið kl. 13.20.

Björn Stefán Hallsson Björn Kristleifsson
Sigrún Reynisdóttir Harri Ormarsson
Sigurður Pálmi Ásbergsson Óskar Torfi Þorvaldsson
Eva Geirsdóttir