Umhverfis- og skipulagsráð
Skipulagsráð
Ár 2012, mánudaginn 1. október kl. 09.10, var haldinn 288. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Björn Stefán Hallsson, Ólafur Bjarnason, Ágúst Jónsson og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Lilja Grétarsdóttir og Guðlaug Erna Jónsdóttir. Fundarritari var Einar Örn Thorlacius.
Þetta gerðist:
(A) Skipulagsmál
1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 28. september 2012.
2. Ísleifsgata 2-34, breyting á deiliskipulagi (05.113) Mál nr. SN110527
Búseti svf,húsnæðissamvinnufél, Síðumúla 10, 108 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Búseta hsf. dags. 12. desember 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsáss vegna lóðanna nr. 2-34 við Ísleifsgötu. Í breytingunni felst fjölgun og smækkun íbúða, samkvæmt uppdrætti Teiknistofu Arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 10. apríl 2007 síðast breytt 15. nóvember 2011. Tillagan var auglýst frá 27. janúar til og með 9. mars 2012. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Kristín Sigurey Sigurðardóttir og Hjörtur Lúðvíksson dags. 6. febrúar, Rúnar Lárusson dags. 7. febrúar, Sylvía Lárusdóttir dags. 27. febrúar, Gunnar Ás Vilhjálmsson dags. 4. mars, Fjóla Agnarsdóttir og Sigurður Ólafsson dags. 5. mars, Atli Björnsson dags. 7. mars, Baldvin Þ. Svavarsson og Harpa Sigmarsdóttir dags. 8. mars, Guðbjörn Guðmundsson og Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir dags. 8. mars, Róbert Jónasson og Heiðrún Níelsdóttir dags. 8. mars, Árni Viðar Sigurðsson dags. 9. mars og Kristín S. Sigurðardóttir dags. 9. mars 2012 ásamt lista 28 íbúa við Reynisvatnsás. Einnig er lögð fram umsögn hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals dags. 9. mars 2012 og fram umsögn skipulagsstjóra dags. 13. september 2012.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 13. september 2012.
3. Stakkholt 2-4, breyting á bílastæðakröfum (01.241.1) Mál nr. SN120422
Þorvaldur H Gissurarson, Ólafsgeisli 63, 113 Reykjavík
Lagt fram erindi Þorvaldar Gissurarsonar dags. 17. september 2012 varðandi breytingu á kröfum um bílastæðafjölda á lóðinni nr. 2-4 við Stakkholt, samkvæmt tillögu THG Arkitekta dags. 5. september 2012.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Jafnframt var samþykkt að upplýsa hagsmunaaðila á svæðinu um auglýsinguna með bréfi.
Vísað til borgarráðs.
(B) Byggingarmál
4. Njarðargata 45, Gistiheimili (01.186.605) Mál nr. BN044742
Spur ehf, Freyjugötu 24, 101 Reykjavík
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júlí 2012. Sótt er um leyfi til þess að innrétta gistiheimili með átta gistiherbergjum og níu rúmum og koma fyrir svölum á vesturhlið annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 45 við Njarðargötu. Erindi var í grenndarkynningu frá 23. júlí til og 21. ágúst 2012 kynningin var framlengd til 4. september 2012. Eftirtaldir hagsmunaaðilar sendu athugasemdir: Guðrún Friðriksdóttir, athugassemd 1 og 2 dags. 31. júlí 2012, Sigurður Gunnarsson og Aude Busson dags. 20. ágúst 2012 og Gunnar Jónsson dags. 21. ágúst 2012, Þórir Benediktsson og Guðrún Laufey Guðmundsdóttir dags. 28. ágúst 2012, Björg Eva Erlendsdóttir og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir dags. 30. ágúst 2012 og Sigríður Guðjónsdóttir dags. 3. september 2012. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 11. september 2012.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 11. september 2012.
Vísað til borgarráðs
(C) Fyrirspurnir
5. Þórsgata 13, (fsp) breyting á deiliskipulagi (01.181.1) Mál nr. SN110512
Karl Sigfússon, Þórsgata 13, 101 Reykjavík
Lögð fram tillaga skipulagsstjóra, dags. 14. september 2012, um að skipulagsráð endurupptaki neikvæða afgreiðslu skipulagsráðs frá 22. febrúar 2012 á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs
(D) Ýmis mál
6. Betri Reykjavík, Gott að vera gangandi í miðbænum Mál nr. SN120405
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lögð fram efsta hugmynd í skipulagsflokki á Betri Reykjavík frá 31. ágúst 2012 #GL Gott að vera gangandi í miðbænum#GL ásamt samantekt af umræðum og rökum.
Erindið framsent til umhverfis- og samgönguráðs.
7. Suðurlandsbraut 6, málskot Mál nr. SN120303
Plúsarkitektar ehf, Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Húsfélagið Suðurlandsbr 6-framh, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
Lagt fram málskot dags. 21 júní 2012 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsstjóra frá 8. júní 2012 varðandi stækkun 7. hæðar hússins á lóðinni nr. 6 við Suðurlandsbraut og byggingu svala á vesturgafli. Einnig er lagt bréf Þormóðs Sveinssonar fh. Húsfélagsins Suðurlandsbrautar 6 dags. 28. ágúst 2012.
Fyrri afgreiðsla skipulagsstjóra frá 8. júní staðfest.
Páll Hjaltason vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
8. Kaplaskjól, breyting á deiliskipulagi (01.523) Mál nr. SN120236
Á fundi skipulagsstjóra 14. september 2012 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 5. september 2012 þar sem gerðar eru athugasemdir við málsmeðferð. Einnig lagður fram uppdráttur dags. 18. maí 2012 lagfærður 5. september 2012 til samræmis við athugasemdir skipulagsstofnunar, ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. ágúst 2012 breytt 17. september 2012.
Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
9. Skipulagsráð, tillaga varðandi dagsektir. Mál nr. SN120383
Á fundi skipulagsráðs 22. ágúst 2012 var lögð fram eftirfarandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Júlíusar Vífils Ingvarssonar, Hildar Sverrisdóttur og Jórunnar Frímannsdóttur dags. 22. ágúst 2012
#GL Óskað er eftir að á næsta fundi skipulagsráðs verð lögð fram skýrsla um yfirstandandi dagsektir sem byggingarfulltrúi hefur lagt á eigendur húsa sem talin hafa verið í niðurníðslu. Upplýst verði um einstakar dagsektir, hvort brugðist hafi verið við og hvar ekki og einnig þá upphæð sem einstakar dagsektir eru komnar í#GL Á fundinum var lögð fram skýrsla byggingarfulltrúa #GL aðgerðir embættis byggingarfulltrúa varðandi úrbætur fasteigna og umhverfis, yfirlit#GL dags. 29. ágúst 2012.
Kynnt
10. Gamla höfnin, (01.0) Mál nr. SN120423
rammaskipulag frá Grandagarði að Hörpu R12070091
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 14. september 2012, varðandi afgreiðslu borgarráðs frá 13. s.m. vegna endurskoðunar skipulags við höfnina frá Grandagarði að Hörpunni. Einnig lagt fram bréf formanns stýrihóps um endurskoðun skipulags við höfnina frá Grandagarði að Hörpu, dags. 12. september. Jafnfram er lagður fram formáli formanns stýrihópsins og bókun Júlíusar Vífils Ingvarssonar sem lögð var fram á fundi stýrihópsins. Borgarráð vísaði málinu til meðferðar skipulagsráðs og skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar.
Vísað til meðferðar skipulagstjóra.
11. Grandavegur 40, friðun (01.520.310) Mál nr. BN045000
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 13. september 2012 ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins 13. ágúst og 28. ágúst 2012. Í bréfunum er lýst friðun ytra byrðis hússins .
12. Ægisíða 45 - Garðar, friðun (01.53-.-90) Mál nr. BN045001
Lagt fram bréf Húsafriðunarnefndar dags. 13. september 2012 ásamt bréfum mennta- og menningarmálaráðuneytisins dags. 13. ágúst og 28. ágúst 2012. Í bréfunum er lýst friðun á ytra byrði hússins.
13. Hjálmholt 6, kæra 86/2012 (01.255.2) Mál nr. SN120417
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. september 2012 ásamt kæru dags. 7. september 2012 þar sem kærð er veiting byggingarleyfis fyrir framkvæmdum í fjöleignarhúsi á lóð nr. 6 við Hjálmholt.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.
14. Grundarstígur 10, kæra, umsögn Mál nr. SN120433
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. sept. 2012, þar sem kærð er útgáfa byggingarleyfis þann 14. mars 2012 vegna samþykktar umsóknar þann 3. janúar 2012 um leyfi til að byggja við kjallara sal úr steinsteypu, steypa vegg á lóðamörkum að Grundarstíg 8, setja op og hlið í vegg að Skálholtsstíg og breyta nýtingu í blandaða atvinnustarfsemi á lóð nr. 10 við Grundarstíg. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 7. sept. 2012.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.
15. Vesturvallareitur 1.134.5, kæra, umsögn (01.134.5) Mál nr. SN120355
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. júlí 2012 ásamt kæru, dags. 13. júlí 2012, vegna ákvörðunar skipulagsráðs frá 11. apríl 2012 að samþykkja deiliskipulag fyrir Vesturvallareit. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 11. sept. 2012.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.
16. Borgartúnsreitur vestur, kæra 60/2011, umsögn, afturköllun(01.216)Mál nr. SN110360
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 30. ágúst 2011 ásamt kæru dags. 5. ágúst 2011 þar sem kærð er deiliskipulagsákvörðun fyrir Borgartúnsreit. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 20. apríl 2012. Lagt fram bréf Karls Ó. Karlssonar hrl., dags. 19. sept. 2012, þar sem kæru Húsfélagsins Sætúni 1, dags. 5. ágúst 2011, er afturkölluð.
17. Úlfarsfell, kæra, umsögn, úrskurður (02.6) Mál nr. SN120338
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 29. júní 2012, vegna útgáfu byggingarleyfis fyrir fjarskiptamannvirki á Úlfarsfelli og krafa um stöðvun byggingarframkvæmda. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 9. júlí 2012. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 10. september 2012. Úrskurðarorð: Kæru íbúasamtaka Úlfarsárdals, Landverndar og Geislabjargar er vísað frá úrskurðar-nefndinni. Ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 22. maí 2012, um að veita byggingarleyfi fyrir tækjaskýli úr timbri og tveimur 10 m tréstaurum til fjarskiptareksturs á toppi Úlfarsfells, er felld úr gildi.
18. Þingholtsstræti 18, kæra, umsögn, úrskurður (01.180.0) Mál nr. SN120360
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 23. júlí 2012, vegna samþykktar byggingarfulltrúa frá 29. maí 2012 að veita byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsinu við Þingholtsstræti 18 (á lóð Menntaskólans í Rvík við Lækjargötu) án grenndarkynningar. Þess er krafist að byggingarleyfið sé fellt úr gildi þar sem um meiri háttar breytingar á útliti hússins sé að ræða og enn fremur er krafist stöðvunar framkvæmda nú þegar. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 26. júlí 2012. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 10. sept. 2012. Úrskurðarorð: Ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 29. maí 2012, um að veita byggingarleyfi til að endurbyggja úr gleri og áli austur- og vesturhlið Þingholtsstrætis18, er felld úr gildi.
19. Brekknaás 9, kæra 20/2012, umsögn, úrskurður(04.764.1) Mál nr. SN120118
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 8. mars 2012 ásamt kæru dags. 7. mars 2012 þar sem kærð er synjun á veitingu byggingarleyfis fyrir breyttu innra skipulagi vegna breyttrar notkunar Brekknaáss 9. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 2. maí 2012. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 20. september 2012. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. febrúar 2012 um að synja umsókn um leyfi til að breyta innra skipulagi hússins á lóðinni nr. 9 við Brekknaás í Víðidal í Reykjavík
Fundi slitið kl. 10.50.
Páll Hjalti Hjaltason
Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Kristín Soffía Jónsdóttir Júlíus Vífill Ingvarsson
Hildur Sverrisdóttir