Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 161/2005
Árið 2005, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 10:00 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 370. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Þórður Búason, Guðlaugur Gauti Jónsson, Sigurður Pálmi Ásbergsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. Fasteignir

1. Aðalstræti 10, endurbygging, viðbygging (01.136.504) Mál nr. BN032665
Minjavernd hf, Pósthólf 1358, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja húsið nr. 10 við Aðalstræti að miklu leyti í samræmi við upphaflega gerð þess og/eða virðingargjörð frá 1822. Jafnframt verði byggð tengibygging og tvílyft steinsteypt bygging og kjallari að baki hússins. Í húsinu verði sýningarstarfsemi.
Erindinu fylgir brunahönnunarskýrsla dags. 13. okt. 2005 (uppfærð 18. okt. og 24. okt. 2005), bréf Húsafriðunarnefndar dags. 30. sept. 2005, tölvupóstur Minjaverndar Reykjavíkur dags. 3. okt. 2005, yfirlýsing Reykjavíkurborgar og Minjaverndar hf vegna samnýtingar húsnæðis innfærð 5. okt. 2005, yfirlýsing Reykjavíkurborgar og Minjaverndar hf vegna lóðarmarka innfærð 5. okt. 2005.
Stækkun: 319,8 ferm. og 1051,6 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 59.941
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

2. Aðalstræti 12, stækkun kjallara og lóðarmörk (01.136.505) Mál nr. BN032680
Minjavernd hf, Pósthólf 1358, 121 Reykjavík
Sótt er um stækkun kjallar hússins nr. 12 við Aðalstræti til að koma fyrir gasgeymslu og loftræsibúnaði. Jafnframt er sótt um leyfi til að leiðrétta lóðarmörk í samræmi við meðfylgjandi yfirlýsingar.
Erindinu fylgir yfirlýsing Reykjavíkurborgar og Minjaverndar hf vegna samnýtingar innfærð 5. okt. 2005, yfirlýsing Reykjavíkurborgar og Minjaverndar hf vegna lóðarmarka innfærð 5. okt. 2005, hvorutveggja í ljósriti.
Stækkun: 1,3 ferm. og 16,3 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 921
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

3. Amtmannsstígur 5, endurnýjun á umsókn (01.170.209) Mál nr. BN032819
Gló sf, Hrafnhólum 6, 111 Reykjavík
Sótt er um endurnýjun á samþykki, frá 30. janúar 2000, fyrir tveimur áður gerðum íbúðum á 1. hæð, tveimur á 2. hæð og einni á rishæð ásamt leyfi fyrir lagfæringum á baði og eldhúsi á rishæð og skiptingu geymslna í kjallara hússins (matshluta 01) á lóð nr. 5 við Amtmannsstíg.
Bréf umsækjanda dags. 20. desember 2000, samþykki meðlóðarhafa dags. 29. desember 2000, ljósrit úr virðingarbók frá 1902, umsögn Árbæjarsafns dags. 3. janúar, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 8. janúar 2001 , íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 4. janúar 2001og húsaskoðun heilbrigðiseftirlits dags. 29. janúar 2001 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

4. Álfaland 12/Áland 7, Álfaland 12-14 - Áland 7-9 (00.000.000) Mál nr. BN032773
Gísli Gíslason, Steinsholt, 851 Hella
Ágústa Guðmarsdóttir, Steinsholt, 851 Hella
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins á lóðinni Álfaland 12-14 / Áland 7-9.
Sameignilegri geymslu (rými 0104) hefur verið komi fyrir í óútgröfnu rými á fyrstu hæð og bílskúrar á annarri hæð hafa verið minnkaðir.
Samþykki eigenda dags. 2. október 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun áður gerð geymsla (rými 0104) xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Álfheimar 13, viðbygging á þaksvölum (01.432.002) Mál nr. BN032713
Guðrún Bergsteinsdóttir, Álfheimar 13, 104 Reykjavík
Brynjar Viggósson, Álfheimar 13, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja yfir hluta af þaksvölum hússins nr. 13 við Álfheima. Í viðbyggingunni verði m.a. steinsteyptur arinn.
Erindinu fylgir fundargerð húsfundar útprentað 13. sept. 2005.
Stækkun: 21,3 ferm. og 67,2 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 3.830
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 101 og 102 dags. október 2005.

6. Baldursgata 24A, Sólstofa (01.186.209) Mál nr. BN032596
Guðrún Margrét Jóhannesdóttir, Baldursgata 24, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu með þaksvölum að suðurhlið 1. hæðar einbýlishússins á lóðinni nr. 24A við Baldursgötu.
Jafnframt er erindi 28729 dregið til baka.
Stærð: Viðbygging xxx ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Bárugata 11, geymsluskúr (01.136.303) Mál nr. BN032790
Gistihúsið Ísafold ehf, Bárugötu 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja geymsluskúr úr timbri á lóðinni nr. 11 við Bárugötu.
Stærð: Geymsluskúr xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

8. Bíldshöfði 14, br. innar frkl f veitingastað (04.064.102) Mál nr. BN032674
FoodCo ehf, Pósthólf 1171, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir veitingastað á 1. hæð í húsinu nr. 14 við Bíldshöfða. Aðalsalur taki allt að 120 manns í sæti og minnisalur allt að 48. Jafnframt er sótt um leyfi til að breyta fyrirkomulagi á sorpgeymslu á lóð og fyrirkomulagi bílastæða á framlóð. Ennfremur er sótt um leyfi til að setja upp tvö veggskilti, hvort um sig ca. 1,2 ferm.
Erindinu fylgir samþ. húsfélags dags. 18. okt. 2005, bréf hönnuðar ódags.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

9. Bolholt 6-8, breyting á skráningu (01.251.203) Mál nr. BN032784
Hult ehf, Pósthólf 1399, 121 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta skráningu hússins nr. 6 (matshl. 01) á lóð nr. 6-8 við Bolholt.
Skráning fyrstu, annarrar og sjöttu hæðar breytist ekki.
Þriðja, fjórða og fimmta hæð hússins verða nú skráðar sem skólahúsnæði en voru áður skráðar sem skrifstofur nema fjórða hæð sem var skráð sem gistiheimili.
Bréf f.h. Kennaraháskóla Íslands dags. 1. september 2005 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Borgartún 29, ofanábygging (01.218.103) Mál nr. BN032618
PH eignir ehf, Ægisíðu 92, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriðju og inndregna fjórðu hæð ofan á steinsteypt atvinnuhús, breyta hluta kjallara í bílgeymslu fyrir 13 bíla, sameina áður tvö stigahús með lyftu frá kjallara og upp á 4. hæð og klæða húsið með flísum á lóð nr. 29 við Borgartún.
Samþykki meðeigenda (á teikningu) og ljósrit af kaupsamning vagna sölu einnar eignar dags. 11. október 2005 fylgja erindinu. Jafnframt lagt fram bréf Hauks Margeirssonar, verkfræðings dags. 20. október 2005.
Stærð: Stækkun samtals 1193,8 ferm., 4361,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 + 248.617
Frestað.
Leiðrétta skráningu. Athuga samþykki allra eigenda þarf að fylgja erindinu.

11. Brekkugerði 32, viðbygging, breytingar (01.804.307) Mál nr. BN032074
Grímur Guðmundsson, Vesturbraut 23, 780 Höfn
Að lokinni grenndarkynningu er sótt um leyfi til að breyta og byggja við húsið nr. 32 við Brekkugerði. M.a. verði byggt við húsið til vesturs og til suðurs, innra fyrirkomulagi beggja hæða breytt, komið fyrir arni á efri hæð og gerðir stoðveggir á lóð. Jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðu kjallararými, sem sýnt var sem uppfyllt sökklarými, og gerð grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á því, samkv uppdr. Teiknistofunar Óðinstorgi, dags. júlí 2005. Málið var í kynningu frá 17. ágúst til 14. september 2005. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

12. Byggðarendi 13, br á samþ frá 11.10.05 (01.826.007) Mál nr. BN032769
Hlín Sverrisdóttir, Urriðakvísl 26, 110 Reykjavík
Hreggviður Jónsson, Urriðakvísl 26, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka efri hæð hússins nr. 13 við Byggðarenda, sem samþykkt var 11.10.2005, til samræmis við breytt skipulag. Jafnframt verði innra fyrirkomulagi og útliti breytt lítillega.
Stækkun: 2,3 ferm., 10,1 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 575
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

13. Bæjarflöt 1-3, nýbygging (nr.1) (02.576.001) Mál nr. BN032346
Strókur ehf, Dimmuhvarfi 27, 203 Kópavogur
SORPA bs, Pósthólf 12100, 132 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja stálgrindarhús sem verslunar- og lagerhúsnæði með skrifstofum á 2. hæð yfir hluta atvinnuhússins á lóð nr. 1-3 við Bæjarflöt.
Jafnframt er lagt til að húsið verði númer 1 við Bæjarflöt.
Stærð: Atvinnuhús 1. hæð 1500,0 ferm., 2. hæð 364,5 ferm., samtals 1864,5 ferm., 14175,0 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 + 807.975
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Vottun eininga skal liggja fyrir eigi síðar en við úttekt á botnplötu.

14. Engjavegur 8, Laugardalsh. stækkun, reyndart. Mál nr. BN032708
Fasteignafélagið Laugardalur eh, Engjavegi 8, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem orðið hafa á byggingartíma viðbyggingar (mhl 02) við Laugardalshöll nr. 8 við Engjaveg.
Bréf VST vegna brunahönnuar dags. 14. okt. 2005 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Lagfæra skráningu.

15. Fiskislóð 75-83, lokun á hurðaropi 1 hæð nr. 81 (01.087.101) Mál nr. BN032789
Ingimundur hf, Pósthólf 5049, 125 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta gluggum á norðvesturgafli og múra upp í hurðarop á fyrstu hæð (rými 0107) í húsinu á lóðinni nr. 81-89 við Fiskislóð.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

16. Grasarimi 6-8, stækkun 2.hæð (02.585.502) Mál nr. BN032735
Jón Kristján Sigurðsson, Grasarimi 6, 112 Reykjavík
Þröstur Sigsteinsson, Grasarimi 8, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja ofan á eldhús við langhliðar hússins nr. 6 á lóðinni nr. 6-8 við Grasarima.
Stækkun: 25 ferm. og 62,6 ferm.
Gjald kr. 5.700 + 3.568
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

17. Grímshagi 7, áður gerðar breytingar inni og úti (01.554.313) Mál nr. BN032630
Valdís Daníelsdóttir, Grímshagi 7, 107 Reykjavík
Sigurður Kristinn Eyjólfsson, Grímshagi 7, 107 Reykjavík
Markús Karl Torfason, Grímshagi 7, 107 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á húsinu á lóðinni nr. 7 við Grímshaga. Gerð er grein fyrir geymslukjallara undir bílgeymslu og breyttri aðkomu að íbúðum í húsinu þar sem útitröppum er breytt.
Samþykki meðeiganda í húsi dags. 25. október 2005 fylgir erindinu.
Umsögn vegna burðarþols gólfplötu í bílgeymslu dags. 21.10.05 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun geymslukjallari 49,0 ferm. og 184,8 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 10.534
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

18. Guðríðarstígur 2-4, breyting á þaki (04.121.301) Mál nr. BN032778
Fróðengi ehf, Hamravík 62, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að nota forsteyptar holplötueiningar í milligólf og þak hússins nr. 2-4 við Guðríðarstíg í stað hefðbundinnar plötu og léttra þakeininga.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vantar vottun eininga.

19. Hagamelur 52, burðarveggur fjarlægður (01.524.407) Mál nr. BN032779
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, Hagamelur 52, 107 Reykjavík
Magnús Antonsson, Hagamelur 52, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja burðarvegg milli eldhúss og borðstofu á fyrstu hæð fjölbýlishússins nr. 52 við Hagamel.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

20. Háteigsvegur 4, bílskúr (01.244.419) Mál nr. BN032788
Böðvar Tómasson, Háteigsvegur 4, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr við vesturmörk lóðarinnar nr. 4 við Háteigsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. júlí 2005 (vegna fyrirspurnar) fylgir erindinu.
Stærð: Bílskúr 36,0 ferm. og 106,2 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 6.053
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði, að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.

21. Helluvað 7-17, (nr 7-13) innra frkl og útlit (04.731.601) Mál nr. BN032531
Eykt ehf, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi í baðherbergjum í húsi nr. 7-13 á lóðinni nr. 7-17 við Helluvað. Jafnframt verði gluggasetningu breytt lítillega og skráning leiðrétt.
Ný stærð matshluta: 4490,9 ferm. og 13467,5 rúmm., var 4492,9 ferm., 13909,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

22. Helluvað 7-17, (nr 15-21) innrafrkl og útlit (04.731.601) Mál nr. BN032530
Eykt ehf, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi í baðherbergjum í húsi nr. 15-21 á lóðinni nr. 7-17 við Helluvað. Jafnframt verði gluggasetningu breytt lítillega og skráning leiðrétt.
Ný stærð matshluta: 4172,9 ferm. og 12551 rúmm., var 4172,3 ferm., 12848,1 rúmm.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

23. Helluvað 7-17, bílageymsla, skábraut o.fl. (04.731.601) Mál nr. BN032529
Eykt ehf, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fella niður vestari skábraut niður í bílgeymslu á lóðinni nr. 7-17 við Helluvað. Jafnframt verði eystri skábraut breikkuð, fyrirkomulagi bílastæða breytt og þeim fjölgað um eitt og verða 77, komið fyrir tækniherbergi fyrir sprinklerkerfi o.fl. Ennfremur verði stæðum á lóð fækkað og verða 77 og skráning leiðrétt.
Ný stærð á bílgeymslu: 2170,8 ferm. var 2190,8 ferm., ný stærð 6295,4 rúmm., var 6353,5 rúmm.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

24. Hraunbær 101, Framlengja bráðabirgðaleyfi (04.331.101) Mál nr. BN032813
Landssími Íslands hf., Ármúla 25, 150 Reykjavík
Sótt er um framlengingu á bráðabirgðaleyfi vegna tækjahúss (mh 02) á lóðinni nr. 101 við Hraunbæ.
Erindinu fylgi bréf Teiknistofunnar T.ark. dags. 24. okóber 2005.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin gildir til 1. nóvember 2010.

25. Ingólfsstræti 1, byggja ofaná, br í hótel (01.150.307) Mál nr. BN032626
Fiskifélag Íslands, Pósthólf 145, 602 Akureyri
Gamla gagnkvæma ehf, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fimm hæðir ofan á hús Fiskifélags Íslands við Ingólfsstræti 1 og að byggja við suðurhlið hússins. Jafnframt verði burðarvirki styrkt, innra fyrirkomulagi hússins breytt og komið fyrir hótelstarfsemi með xx gistiherbergjum á sjö neðri hæðum en veitingastað á þeirri efstu.
Skv. bílastæðabókhaldi skal greiða fyrir 38,5 stæði í fl. II. ( ca. 8.5 milljónir).
Erindinu fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. sept. 2005 vegna fyrirspurnar, brunahönnun dags. 25. október 2005.
Stækkun: xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Höfundur hafi samband við embættið.

26. Kistumelur, bensínstöð Mál nr. BN032741
Atlantsolía ehf, Vesturvör 29, 200 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að koma fyrir sjálfsafgreiðslustöð fyrir bensín og olíu á Kistumel við Norðurgrafarveg.
Stærð: xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Áður en fjallað verður um málið skal umsækjandi gera greina fyrir lóðaréttindum.

27. Lambasel 28, einbýlishús (04.998.506) Mál nr. BN032795
Ófeigur Grétarsson, Silungakvísl 7, 110 Reykjavík
Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Silungakvísl 7, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús úr steinsteypu og timbri með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 28 við Lambasel.
Stærð: Íbúð 158,3 ferm., bílgeymsla 25,7 ferm.
Samtals 184,0 ferm. og 757,8 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 43.195
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Lambasel 3, nýtt einbýlishús (04.998.302) Mál nr. BN032787
Haukur Halldórsson, Vesturás 48, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 3 við Lambasel.
Stærð: Íbúð xx, bílgeymsla xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

29. Lambasel 40, nýtt einbýlishús (04.998.710) Mál nr. BN032745
Ingvar Elíasson, Skógarás 17, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt einbýlishús á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 40 við Lambasel.
Stærð: Íbúð 153,4 ferm., bílgeymsla 30,0 ferm.
Samtals 183,4 ferm. og 753,0 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 4.292
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Laugarnesvegur 60, reyndarteikningar (01.346.105) Mál nr. BN032777
Lárus Þórir Sigurðsson, Laugarnesvegur 60, 105 Reykjavík
Guðný Smith Ægisdóttir, Laugarnesvegur 60, 105 Reykjavík
Einar Reynir Finnbogason, Laugarnesvegur 60, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi og áður gerðri stækkun bílskúra (matshluta 02 og 03) á lóðinni nr. 60 við Laugarnesveg.
Stærð: Stækkun bílskúrar, matshl. 02 xx, matshl. 03 xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

31. Laugavegur 126, breyting (01.241.001) Mál nr. BN032785
Devitos Pizza ehf, Laugavegi 126, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi og útliti skyndibitastaðar á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 126 við Laugaveg.
Samþykki eins eiganda (á teikn.) fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

32. Laugavegur 180-182, nr.182 br. rými 0101 og 0102 (01.252.001) Mál nr. BN032796
Langastétt ehf, Aðalstræti 8, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofu í rými 0101 og verslun í rými 0102 á fyrstu hæð hússins nr. 182 á lóð nr. 180-182 við Laugaveg.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Laugavegur 55, dýpkun gólfs, tenging við veitingastað (01.173.020) Mál nr. BN032444
Casa ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogur
Orri Árnason, Laugavegur 39, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi skábrautar og tröppu á lóð, færa sorpgeymslu út á lóð, dýpka gólf í áður sorpgeymslu í kjallara matshl. 02 og tengja það rými tímabundið veitingastað í matshluta 03 á lóðinni nr. 55 við Laugaveg.
Stærð: Stækkun matshl. 02 16,8 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 958
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Laugavegur 85, niðurrif + nýtt fjölbýlishús (01.174.124) Mál nr. BN031888
Uppsalamenn ehf, Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að rífa eldra hús og byggja í þess stað fjögurra hæða hús úr steinsteyptum einingum með atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð en sex íbúðum á efri hæðum á lóðinni nr. 85 við Laugaveg.
Umsögn rýnihóps dags. 27. júlí 2005 fylgir erindinu.
Stærðir: Hús sem rifið verður: Matshl. 01, landnr. 101599, fastanr. 200-5359 og 200-5361, stærð 268,5 ferm. og 785,0 rúmm.
Nýbygging: Kjallari geymslur o.fl. 151,7 ferm., 1. hæð verslun 188,2 ferm., 2. hæð íbúðir 188,6 ferm. 3. hæð íbúðir 188,5 ferm., 4. hæð 163,2 ferm.
Samtals 880,2 ferm. og 2989,1 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 +170.379
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Logaland 1-27 2-40, (9-19) hækkun svalahandriða (01.870.301) Mál nr. BN032776
Aimée Einarson, Logaland 11, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka handrið á svölum húsanna nr. 9-19 á lóðinni nr. 1-27 og 2-40 við Logaland.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

36. Lóuhólar 2-6, br. innra frkl og skráning (04.642.701) Mál nr. BN032725
Hólagarður ehf, Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til færa út vegg í norðausturhorni, breyta innra fyrirkomulagi, afmörkun notaeininga og skráningu á neðri hæð verslunarhússins nr. 2-4 á lóðinni nr. 2-6 við Lóuhóla. Jafnframt er sótt um leyfi til að stækka neyðarútgang og koma fyrir snyrtingum á efri hæð.
Stækkun: 9,1 ferm. og 35,8 rúmm.
Gjald kr. 5.700+ 2.043
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

37. Lynghagi 22, reyndart. v/eignask. (01.554.109) Mál nr. BN032511
Ólafur Tryggvi Mathiesen, Lynghagi 22, 107 Reykjavík
Ingibjörg Harðardóttir, Lynghagi 22, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi hússins nr. 22 við Lynghaga. M.a. er gerð grein fyrir notkun rishæðar og breytingu í kjallara.
Erindinu fylgir umsögn burðarvirkjahönnuðar dags. 18. okt. 2005.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

38. Lækjargata 6A, br, veitingastað o.fl. (01.140.508) Mál nr. BN032732
Hreiðar Hermannsson, Miðvangur 27, 220 Hafnarfjörður
Vesturgata 4 ehf, Helluhrauni 14, 220 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á veitingastað í kjallara og á fyrstu hæð hússins nr. 6A við Lækjargötu. Jafnframt verði gert innangengt milli veitingastaðar og ósamþykkts skúrs á baklóð.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Mýrargata 26, nýbygging 61 íbúð (01.115.303) Mál nr. BN032792
Nýja Jórvík ehf, Hátúni 6a, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús með 61 íbúð, um 100 ferm. atvinnuhúsnæði og bílageymslu fyrir 92 bíla á lóðinni nr. 26 við Mýrargötu. Húsið verði byggt úr steinsteypu nema efsta hæð sem verður byggð úr stáli, einangrað að utan og klætt með dökkum steinskífum, sinkplötum og timbri.
Erindinu fylgir bréf burðarvirkjahönnuðar dags. 25. okt. 2005.
Stærðir: xx Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

40. Mýrargata 26, Niðurrif (01.115.303) Mál nr. BN032812
Nýja Jórvík ehf, Hátúni 6a, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að fjarlægja húsið á lóðinni nr. 26 við Mýrargötu.
Stærð: 6113,4 ferm.
Landnúmer 100059.
Erindinu fylgir bréf Nýju Jórvíkur ehf., dags. 27. október 2005.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin er gerð með fyrirvara um samþykkt deiliskipulags.

41. Norðurkot 2 125741, hesthús og reiðskemma o.fl. (00.062.001) Mál nr. BN032699
Unnur Högnadóttir, Norðurkot 2, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sambyggt hesthús með safnstíum fyrir 18 hross og reiðskála með tengibyggingu (mhl 03), byggja vinnustofu við bílskúr (mhl 02) og tengibyggingu milli íbúðarhúss og bílskúrs (mhl 01) að Laufbrekku í landi Norðurkots á Kjalarnesi. Hesthús og reiðskáli verði byggð úr steinsteypu, hesthús einangrað að utan og klætt með lituðu bárustáli en skemma óeinangruð og með malargólfi.
Stærði: xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

42. Óðinsgata 20A, v/eignaskipta (01.184.430) Mál nr. BN032715
Halla Guðrún Mixa, Maríubakki 10, 109 Reykjavík
Þór Sigurðsson, Mörkin 8, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir reyndarteikningum af húsinu á lóðinni nr. 20A við Óðinsgötu vegna eignaskipta.
Erindinu fylgir skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 27. apríl 2000, afsal vegna íbúðar 0001 innfært 3. sept. 1999.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Lagfæra skráningu.

43. Rauðagerði 72, bílskúr (01.823.109) Mál nr. BN032749
Ásmundur B Gústafsson, Rauðagerði 72, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr og fjölga bílastæðum úr einu í tvö á lóðinni nr. 72 við Rauðagerði.
Jafnframt er gerð grein fyrir breyttu innra fyrirkomulagi og stækkun íbúðarhússins á lóðinni. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun íbúðarhúss xx
Bílskúr (matshl. 02) 31,5 ferm. og 88,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

44. Seljabraut 54, br. 2.h í 10 íbúðir (04.970.002) Mál nr. BN032189
Þrjú tré ehf, Esjugrund 38, 116 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi 1. hæðar, leyfi til þess að byggja hjóla- og vagnageymslu ásamt kælipressuklefa við suðurhlið, innrétta tíu studíóíbúðir á 2. hæð með aðkomu frá nýjum svalagangi að átta þeirra, stækka milliloft í fimm íbúðum og innétta sameiginlegt þvottaherbergi á 1. hæð þar sem áður var stigahús að 2. hæð fjöleignarhússins á lóð nr. 54 við Seljabraut.
Stærð: Hjól- og vagnageymsla 10 ferm., kælipressuklefi 10 ferm., milliloft xxx ferm., samtals xxx ferm., 51,4 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 2.930
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

45. Sigtún 38, viðbygging (01.366.001) Mál nr. BN030959
Húseignarfélagið Sigtún 38 ehf, Sigtúni 38, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að lengja stóra ráðstefnusal Grand Hótels til suðurs, stækka veislusal á 4. hæð, byggja þrettán hæða steinsteypta viðbyggingu með 210 hótelherbergjum og tveimur svítum ásamt kjallara og opinni neðanjarðar bílgeymslu við suðvesturhlið og annarri bílgeymslu við norðurhlið núverandi hótelbyggingar sem eftir breytingu verður með samtals 316 gistirými á lóð nr. 38 við Sigtún. Jafnframt lögð fram endurskoðuð brunahönnunarskýrsla dags. 24. október 2005.
Stærð: Viðbygging samtals 11085,1 ferm., 43898,6 rúmm. Opnar bílgeymslur (B-rými) samtals 3224,1ferm., 10993,9 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 + 3.128.873
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

46. Sigtún 42, reyndart v eignaskipta (01.367.001) Mál nr. BN032711
Húsfélagið Sigtúni 42, Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi og eignaafmörkun í húsinu nr. 42 við Sigtún vegna eignaskipta.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

47. Skipasund 59, viðbygging (01.411.010) Mál nr. BN032690
Alfreð Gunnarsson Baarregaard, Skipasund 59, 104 Reykjavík
Milagros Valencia Palmero, Skipasund 59, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við húsið á lóðinni nr. 59 við Skipasund. Byggð verði tvílyft bygging norðvestan við húsið og einlyft bygging suðaustan við húsið. Neðri hæðir verði úr steinsteypu en efri hæð úr timbri. Jafnframt er sótt um leyfi til að grafa út mikinn hluta lóðar um ca. 120 cm, byggja stoðveggi, byggja útiarinn og koma fyrir setlaug á lóðinni. Ennfremur er sótt um leyfi til að rífa bílskúr í norðvesturhorni lóðarinnar.
Erindinu fylgir samþykki nágranna að Sæviðarsundi 90 og 94 og Skipasundi 57, 61, 62, 64 og 66. Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2005 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2005.
Niðurrif: xx
Stækkun húss: xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Synjað.
Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa þar sem umsótt breyting er ekki í samræmi við deiliskipulag og deiliskipulagshugmyndir.

48. Skúlagata 21, bílastæði, jarðvegsmön (01.154.202) Mál nr. BN032718
Sætún ehf, Lækjarbergi 2, 221 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til að gera 10 bílastæði og jarðvegsmön á borgarlandi norðan við lóðarmörk lóðarinnar nr. 21 við Skúlagötu.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til sömu athugasemda og gerðar voru 18. október 2005. Færa skal inn kvaðir á afstöðumynd.

49. Skúlagata 54, reyndarteikningar (01.222.103) Mál nr. BN032524
Skúlagata 54,húsfélag, Skúlagötu 54, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins nr. 54 á lóðinni nr. 54-54A við Skúlagötu.
Gerð er grein fyrir íbúð í kjallara, sýnd er ein íbúð á fyrstu hæð en tvær íbúðir á annarri hæð.
Einnig er gerð grein fyrir áður gerðri sólstofu á suðurhlið hússins.
Samþykki f.h. eigenda húsa nr. 54 og 54A (á teikn.) fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun sólstofa 5,0 ferm. og 11,2 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 638
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

50. Skútuvogur 14-16, breyting kaffitería (01.426.402) Mál nr. BN032791
Húsasmiðjan hf, Holtavegi 10, 104 Reykjavík
Lýsing hf, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi í eldhúsi og kaffiteríu í tengibyggingu hússins á lóðinni nr. 14-16 við Skútuvog.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

51. Sólvallagata 29, séríbúð í rishæð kvistir og svalir (01.139.110) Mál nr. BN032721
Hrönn Kristinsdóttir, Sólvallagata 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sjálfstæða íbúð í risi (fjórðu hæð) hússins nr. 29 við Sólvallagötu. Jafnframt verði gerður gaflkvistur og annar inndreginn með svölum fyrir framan. Ennfremur verði skráning leiðrétt.
Erindinu fylgir samþykki meðeigenda dags. 14. sept. 2005, útskrift úr gerðarbók skipulagsfulltrúa frá 5. júlí 2005 vegna fyrirspurnar, afsal vegna eignar í kjallara innfært 21. jan. 1992. Greiða skal fyrir eitt bílastæði í flokki III kr. 1.219.825
Stækkun: 6,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 381
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

52. Sunnuvegur 3, garðskáli (01.385.008) Mál nr. BN032474
Sigfús Ægir Árnason, Sunnuvegur 3, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála að mestu úr gleri og stáli við suðausturhlið hússins nr. 3 við Sunnuveg, skv. uppdr. Ellerts Más Jónssonar, dags. 30.08.05.
Erindinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 30.8.2005. Málið var í kynningu frá 15. september til 13. október 2005. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 16,8 ferm. og 41,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 2.376
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

53. Teigagerði 17, stækkun á einbýlishúsi (01.816.410) Mál nr. BN032753
Guðjón Hilmarsson, Teigagerði 17, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypta viðbyggingu við austurhlið, hækka veggi rishæðar, stækka kvist á austurþekju og fjölga um einn kvist á vesturþekju, setja svalir á suðurhlið, breyta innra skipulagi einbýlishússins og setja risþak á bílskúr á lóð nr. 17 við Teigagerði.
Stækkun: xx
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Nýjir uppdrættir eru dags. 31. október 2005, þar sem málið er til umfjöllunar skipulagsfulltrúa skal afrit þeirra sent þangað.

54. Tindar 125726, véla- og reiðskemma, hesthús (00.052.010) Mál nr. BN032528
Atli Guðlaugsson, Tindar, 116 Reykjavík
Halldóra Jóna Bjarnadóttir, Tindar, 116 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sambyggða vélaskemmu, hesthús og reiðskemmu á lóð Tinda á Kjalarnesi (landnr. 125726). Skemman verði byggð úr stáli og reiðskemma óeinangruð.
Erindinu fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. september 2005, bréf landbúnaðarráðuneytis dags. 10. okt. 2005, þinglýsingarvottorð stimplað 6. okt. 2005.
Stærð: 367,5 ferm., 2267,5 rúmm., stærð á taðþró 10,6 ferm., 13,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 13.748)
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

55. Traðarland 1, reyndarteikningar (01.875.-99) Mál nr. BN032740
Knattspyrnufélagið Víkingur, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi fyrstu og annarrar hæðar félagsheimilis (matshl. 01- vallarhús) íþróttafélagsins Víkings á lóð nr. 1 við Traðarland.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

56. Tryggvagata 18, br. kj. og 1.hæð (01.132.105) Mál nr. BN032794
Kirkjuhvoll sf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta útliti og innra fyrirkomulagi og byggja kjallara undir fyrirhugað hús nr. 18 við Tryggvagötu á lóðinni nr. 6-10A við Vesturgötu og nr. 18-18C við Tryggvagötu.
Í kjallara verða geymslur og tæknirými en á fyrstu hæð er komið fyrir bílageymslu fyrir 11 bíla.
Stærð: Stækkun kjallari xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.

57. Tunguháls 6, atvinnuhúsnæði (04.328.101) Mál nr. BN032558
Kexverksmiðjan Frón ehf, Tunguhálsi 11, 110 Reykjavík
Íslensk-ameríska verslunarfélag, Pósthólf 10200, 130 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja verksmiðjuhúsnæði úr stáli á lóðinni nr. 6 við Tunguháls.
Brunahönnun dags. 13. sept. 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Matshl. 01 Kjallari, lager o.fl. 1805,8 ferm., fyrsta hæð, skrifst. og framleiðsla 2573,9 ferm., önnur hæð 205,8 ferm.
Samtals matshl. 01 4585,5 ferm. og 30483,5 rúmm.
Matshl. 02 Kornsíló 6,2 ferm. og 43,1 rúmm.
Matshl. 03 Kornsíló 6,2 ferm. og 43,1 rúmm.
Alls samtals 4597,9 ferm. og 30569,7 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 + 1.742.473
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

58. Týsgata 6, reyndarteikningar v/eignaskiptalýsingar (01.181.012) Mál nr. BN032783
Ingunn Vilhjálmsdóttir, Týsgata 6, 101 Reykjavík
Óskar Einar Hallgrímsson, Týsgata 6, 101 Reykjavík
Sigurður Guðjón Sigurðsson, Týsgata 6, 101 Reykjavík
Vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir reyndarteikningum af húsi (matshl. 01) og áður gerðum geymsluskúr (matshl. 02) á lóðinni nr. 6 við Týsgötu.
Gerð er grein fyrir innra fyrirkomulagi og eignarhaldi í húsi og geymsluskúr.
Virðingargjörð dags. 2. janúar 1944 fylgir erindinu.
Skoðunarskýrslur byggingarfulltrúa vegna séreigna í húsinu allar dags. 23. október 2002 fylgja erindinu.
Stærð geymsluskúrs 16,2 ferm. og 37,2 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 2.120
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

59. Úthlíð 13, reyndarteikn v. eignaskipta (01.270.113) Mál nr. BN032727
Andrew Anthony Hicks, Úthlíð 13, 105 Reykjavík
Sighvatur E Sighvatsson, Úthlíð 13, 105 Reykjavík
Ása Kristín Jónsdóttir, Úthlíð 13, 105 Reykjavík
Jón Gunnar Borgþórsson, Úthlíð 13, 105 Reykjavík
Kristín Jóhannsdóttir, Úthlíð 13, 105 Reykjavík
Valgarður Sigurðsson, Stigahlíð 49, 105 Reykjavík
Sótt er um að reyndarteikningar að húsinu nr. 13 við Úthlíð verði samþykktar vegna eignaskipta.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

60. Vagnhöfði 21, anddyri, fjölgun eignarhluta o.fl. (04.063.103) Mál nr. BN032520
Vélaland ehf, Vagnhöfða 21, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri anddyrisbyggingu sunnan hússins á lóðinni nr. 21 við Vagnhöfða. Jafnframt er sótt um leyfi til að hólfa af norðurhluta hússins og koma þar fyrir fjórum sjálfstæðum eignarhlutum, að hluta á tveimur hæðum. Ennfremur verði gerðar innkeyrsluhurðir ásamt göngudyrum á norðurhlið.
Erindinu fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. október 2005 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. október 2005, breyting á lóðarleigusamningi dags. 14. okt.
Stækkun: 255,3 ferm. og 192,5 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 10.972)
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.

61. Víðihlíð 16-22, nr. 18 reyndarteikningar (01.782.607) Mál nr. BN030949
Baldur Hauksson, Víðihlíð 18, 105 Reykjavík
Steinunn Björk Eggertsdóttir, Víðihlíð 18, 105 Reykjavík
Halldór Magnússon, Víðihlíð 18, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi raðhúss nr. 18 á lóðinni nr. 16-22 við Víðihlíð vegna nýrrar eignaskiptayfirlýsingar.
Gerð er grein fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi og áður gerðri stækkun í óútfyllt kjallararými.
Stærð: Stækkun kjallari (sjá grunnm. kjallara) 46,6 ferm. og 125,8 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 + 5.700 + 7.171
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.

62. Vogaland 7, girðing o.fl. (01.880.009) Mál nr. BN032337
Þór Kristjánsson, Vogaland 7, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi í garði sem felur í sér að 195 cm hár skjólveggur úr timbri verður framlengdur og útbúinn verður laufskáli (pergóla) vestanvert við húsið á lóð nr. 7 við Vogaland.
Bréf frá hönnuði dags. 15. ágúst 2005 og mótmæli frá eiganda að Undralandi 4 dags. 6. september 2005 fylgja erindinu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. september 2005 fylgir erindinu.
Áður samþykktu erindi (erindi 31973) fylgdi samþykki lóðarhafa að Vogalandi 5 dags. 20. júní 2005 og Undralandi 6 dags. 21 júní 2005
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.

63. Þingholtsstræti 17, geymslukjallari, nýjar útitröppur (01.180.103) Mál nr. BN032793
Þingholtsstræti 17,húsfélag, Þingholtsstræti 17, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að byggja að mestu niðurgrafna viðbyggingu úr steinsteypu að suðurhlið hússins nr. 17 við Þingholtsstræti.
Samþykki nágranna Þingholtsstræti 21 dags. 24. október 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun viðbygging 61,0 ferm. og 143,0 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 8.151
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

64. Þingvað 35, nýtt einbýlishús (04.791.301) Mál nr. BN032724
Óli Þór Barðdal, Skerplugata 2, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft einbýlishús úr steinsteypu á lóðinni nr. 35 við Þingvað. Í húsinu verði innbyggð bílgeymsla og neðri hæð verði einangruð og klædd að utan með láréttri báruálklæðningu en efri hæðin með standandi timburklæðningu.
Stærð: xx
Gjald kr. 5.700 + xx
Frestað.
Leiðrétta skráningartöflu.

Ýmis mál

65. Aðalstræti 10 og 12, Lóðamarkabreyting (01.136.504) Mál nr. BN032822
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, Landupplýsingadeildar, dags. 31. október 2005, að breytingu á lóðamörkum lóðanna nr. 10 og 12 við Aðalstræti.
Aðalstræti 10:
Lóðin er 235 ferm. Bætt við lóðina frá Aðalstræti 12, 3 ferm.
Leiðrétting vegna fermetrabrota 1 ferm.
Lóðin verður 239 ferm.
Aðalstræti 12:
Lóðin er 266 ferm.
Tekið af lóðinni og lagt við Aðalstræti 10, 3 ferm.
Leiðrétting vegna fermetrabrota 1 ferm.
Lóðin verður 262 ferm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.

66. Fríkirkjuvegur 3, lóðamarkabreyting (01.183.001) Mál nr. BN032820
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, Landupplýsingadeildar, að breytingu á lóðamörkum lóðarinnar nr. 3 við Fríkirkjuveg.
Fríkirkjuvegur 3:
Lóðin er talin 694,5 ferm.
Lóðin reynist vera 695 ferm., skv. mælingu og rannsókn mælingadeildar.
Tekið undir götu 10 ferm.
Lóðin verður 685 ferm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.

67. Grettisgata 51, Lóðamarkabreyting (01.174.228) Mál nr. BN032808
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, landupplýsingadeildar, dags. 24. október 2005, að breytingu lóðamarka lóðanna nr. 51 við Grettisgötu og Laugavegi 66-68.
Grettisgata 51:
Lóðin er talin 504,5 ferm.
Lóðin reynist 496 ferm.
Tekið af lóðinni og lagt við Laugaveg 66-68, 232 ferm.
Lóðin verður 264 ferm.
Laugavegur 66-68:
Lóðin er 1182 fern.
Bætt við lóðina frá Grettisgötu 51, 232 ferm.
Leiðrétting vegna fermetrabrota 1 ferm.
Lóðin verður 1415 ferm.
Sjá samþykkt skipulags- og byggingarnefndar 9. apríl 2003 og samþykkt borgarráðs 11. apríl 2003.
Jafnframt lagt fram samþykki eigenda lóðarinnar nr. 51 við Grettisgötu dags. 27. október 2005.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.

68. Tryggvagata 28, Lóðasameining (01.140.103) Mál nr. BN032821
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, Landupplýsingadeildar, dags. 28. október 2005 að sameiningu lóðanna Tryggvagata 28, Pósthússtræti 2, Hafnarstræti 9 og 11.
Tryggvagata 28:
Lóðin er talin 297 ferm. Lóðin reynist 299 ferm.
Pósthússtræti 2:
Lóðin er talin 607,7 ferm. Lóðin reynist 610 ferm.
Hafnarstræti 9:
Lóðin er talin 154,8 ferm. Lóðin reynist 155 ferm.
Hafnarstræti 11:
Lóðin er talin 140 ferm. Lóðin reynist 140 ferm.
Sameinaðar verða lóðirnar ein lóð 1204 ferm.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðamörk.

Fyrirspurnir

69. Einholt 2, (fsp) bæta við hæð (01.244.101) Mál nr. BN031706
E2 ehf, Einholti 2, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja inndregna hæð (4. hæð) ofan á húsið nr. 2 við Einholt.
Bréf hönnuðar (ódags.) fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2005 fylgir erindinu.
Frestað.
Með vísan til útskriftar úr gerðabók skipulagsfulltrúa.

70. Fannafold 35, (fsp) Viðbygging (02.855.101) Mál nr. BN031775
Hjörvar Hjörleifsson, Fannafold 35, 112 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu að norðvesturhlið hússins á lóðinni nr. 35 við Fannafold.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2005 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2005 fylgja erindinu.
Bréf fyrirspyrjanda dags. 14. október 2005 vegna neikvæðrar afgreiðslu erindisins þann 21. júní síðastliðinn fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda láti fyrirspyrjandi vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem grenndarkynnt verður.

71. Hestháls 12, (fsp) byggingarmagn (04.323.202) Mál nr. BN032804
Tandur hf, Hesthálsi 12, 110 Reykjavík
Spurt er um byggingarmagn og viðbyggingu á lóð nr. 12 við Hestháls.
Nei.
Fyrirspyrjandi haldi sig innan byggingarreits.

72. Hofsland I, (fsp) einbýlishús Esjubær (30.000.020) Mál nr. BN032644
Sigurjón Benediktsson, Kaldbakur, 640 Húsavík
Snædís Gunnlaugsdóttir, Kaldbakur, 640 Húsavík
Spurt er hvort leyft yrði að reisa tvílyft einbýlishús að Esjubæ í landi Hofs á Kjalarnesi. Húsið yrði byggt úr timbri (bjálkahús).
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2005 fylgir erindinu.
Nei.
Samræmist ekki Aðalskipulagi Reykjavíkur um landnotkun.
73. Karlagata 18, (fsp) áðurg. íb. + breytingar í kj. (01.243.121) Mál nr. BN032772
Elísabet Pétursdóttir, Karlagata 18, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta innra fyrirkomulagi og fá þannig samþykki fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins á lóðinni nr. 18 við Karlagötu.
Aðkomu að íbúð er breytt, komið er fyrir geymslu í íbúð og gert innangengt milli eldhúss og íbúðar.
Virðingargjörð dags. 21. desember 1938, afsal dags. 12. desember 1989 og skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 1. júlí 2004 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda komi til samþykki meðeigenda.

74. Laugavegur 28D, (fsp) fá íbúðir samþykktar (01.172.209) Mál nr. BN032782
Arnar Jón Agnarsson, Laugavegur 28d, 101 Reykjavík
Spurt er hvort íbúðin á fyrstu hæð hússins teljist samþykkt.
Erindinu fylgir virðingargjörð frá 2. des. 1941 afsal innfært 24. júlí 2003.
Já.

75. Laugavegur 99/ Snorrabraut 24, (fsp) nýtt fjölbýlishús (01.174.116) Mál nr. BN032797
Laugavegur 99 ehf, Laugavegi 49, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja fjögurra hæða fjölbýlishús með ellefu íbúðum á lóðinni Laugavegur 99 / Snorrabraut 24.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.
Lagfæra verður tengingu hússins við Hverfisgötu 108. Ekki er tekin afstaða til glugga á stigahúsi að Snorrabraut þar sem upplýsingar liggja ekki fyrir.

76. Skipholt 31, reykingarskýli á lóð (01.251.004) Mál nr. BN032809
Víðsjá-kvikmyndagerð ehf, Birkihlíð 13, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja skýli fyrir reykingarmenn á lóðinni nr. 31 við Skipholt.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

77. Sóltún 1 o. fl., (fsp) fjögur ný fjölbýlishús (01.230.202) Mál nr. BN032786
Íslenskir aðalverktakar hf, Pósthólf 221, 235 Keflavíkurflugvöllu
Spurt er hvort leyft yrði að byggja fjögur fjölbýlishús auk bílageymslukjallara á lóðinni nr. 1 við Sóltún að mestu í samræmi við meðfylgjandi forteikningar. Jafnframt er spurt hvort leyft yrði að merkja húsin á þann hátt sem fram kemur á teikningum.
Frestað.
Höfundar hafi samband við embættið.

79. Víðimelur 65, fsp stækka svalir 2.h. (01.524.105) Mál nr. BN032781
Stefán Erlingur Helgason, Víðimelur 65, 107 Reykjavík
Kristín Harðardóttir, Víðimelur 65, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að stækka svalir á suðurhlið annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 65 við Víðimel. Um er að ræða ca. 50 cm stækkun til suðurs og ca. 60 cm stækkun til austurs.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 13:25.

Magnús Sædal Svavarsson
Bjarni Þór Jónsson Þórður Búason
Guðlaugur Gauti Jónsson Sigurður Pálmi Ásbergsson