Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Árið 2013, miðvikudaginn 6. mars 2013 kl. 09.18, var haldinn 9. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Vindheimum. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Torfi Hjartarson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir.
Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Björn Axelsson, og Marta Grettisdóttir.
Fundarritari var Örn Sigurðsson.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070

Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 1. mars 2013.

2. Pósthússtræti 11, breyting á deiliskipulagi (01.140.5) Mál nr. SN120519
Hótel Borg ehf, Borgartúni 26, 105 Reykjavík
THG Arkitektar ehf., Faxafeni 9, 108 Reykjavík

Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Borgarinnar okkar dags. 21. nóvember 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.140.5, Pósthússtrætisreitur, vegna lóðarinnar nr. 11 við Pósthússtræti. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, stækkun byggingarreits o.fl. , samkvæmt uppdr. 1 og 2, THG Arkitekta dags. 12. nóvember 2012.
Auglýsing stóð frá 17. desember 2012 til og með 1. febrúar 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Knút Lütz, dags 18. janúar 2013, Jón Örn Valsson, Eiríkur Óskarsson og Margrét Ragnarsdóttir f.h. húsfélagsins Pósthússtræti 13 og Árný Helgadóttir, Ágúst Jónsson og Ingjaldur Hannibalsson f.h. húsfélagsins Lækjargötu 4 dags. 30. janúar 2013. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2013.
Samþykkt með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2013
Vísað til borgarráðs.

Margrét Þormar verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið.

3. Gamla höfnin - Vesturbugt, breyting á deiliskipulagi (01.0) Mál nr. SN120436

Lögð fram að nýju lýsing vegna deiliskipulags Vesturbugtar dags. 1. október 2012. Skipulag Vesturbugtar afmarkast af Ánanaustum í vestri og að Slippnum í austri. Einnig eru kynnt drög að deiliskipulagi svæðisins dags. í mars 2013.
Jakob Líndal arkitekt og Kristján Ásgeirsson arkitekt kynntu.

(D) Ýmis mál

4. Samgöngumiðstöð í Reykjavík, kynning Mál nr. US130072
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Lögð fram til kynningar skýrsla vinnuhóps dags. 18. febrúar 2013 varðandi þróun samgöngumiðstöðvar og nánasta umhverfis. Einnig er lagt fram bréf borgarráðs dags. 1. mars 2013 þar sem óskað er umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs.
Þorsteinn R. Hermannsson verkfræðingur frá Mannvit kynnti.

(A) Skipulagsmál

5. Grandavegur 44, breyting á deiliskipulag (01.520.4) Mál nr. SN130055

Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðarinnar nr. 44 við Grandaveg. Í breytingunni felst niðurfelling á hjúkrunarheimili og fjölgun íbúða á svæðinu samkvæmt uppdr. Gláma/Kím ehf. dags. í febrúar 2013. Einnig eru lögð fram drög að skilmálum dags. í mars 2013. og skýringarmyndir ásamt skuggavarpi dags. í febrúar 2013.
Frestað.

Guðlaug Erna Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið.

6. Hagamelur 1, Melaskóli, breyting á deiliskipulagi (01.542.1) Mál nr. SN120099
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík

Lagt fram erindi framkvæmda- og eignasviðs dags. 1. mars 2012 varðandi breytingu á deiliskipuagi Mela og Grímsstaðaholts vegna lóðarinnar nr. 1 við Hagamel, Melaskóla. Í breytingunni felst að staðsetja boltagerði á lóðinni við Melaskóla, samkvæmt uppdrætti dags. 27. febrúar 2013.
Frestað

Rúnar Gunnarsson deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

(B) Byggingarmál

7. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð Mál nr. BN045423

Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 721 frá 5. mars 2013.

8. Laugavegur 164, Skjalasafn (01.242.101) Mál nr. BN045438
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Sótt er um leyfi til að byggja yfir þaksvalir, setja valmaþak, einangra og klæða að utan með málmklæðningu, breyta innra skipulagi og innrétta skjalasafn í iðnaðarhúsi á lóð nr. 164 við Laugaveg.
Erindi fylgir minnisblað frá Almennu verkfræðistofunni um ástand steyptra veggja dags. 23. janúar 2013. Stækkun: 35 ferm., 1.932,1 rúmm. Gjald kr. 9.000 + 173.889
Frestað.

9. Tryggvagata 19, Bílastæðarampur (01.118.301) Mál nr. BN045618
Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík

Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einfalda ljósastýrða skábraut með inn- og útkeyrslu á vesturhlið (Naustin) og koma fyrir 85 bílastæðum á þaki og til að breyta gluggum og hurðum á jarðhæð norðurhliðar tollhússins á lóð nr. 19 við Tryggvagötu.
Jafnframt er erindi BN044261 dregið til baka. Stækkun: xx ferm. Gjald kr. 9.000
Frestað
Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnastjóri sat fundinn undir þessu lið.
(C) Fyrirspurnir

10. Aðalstræti 6, (fsp) endurbætur á rishæð (01.136.5) Mál nr. SN130112
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Arkís arkitektar ehf, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík

Á fundi skipulagsfulltrúa 22. febrúar var lögð fram fyrirspurn Reita I dags. 22. febrúar 2013 um endurbætur á rishæð hússins á lóðinni nr. 6 við Aðalstræti, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 20. febrúar 2013. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2013.
Umhverfis- og skipulagsráð tekur neikvætt í fyrirspurnina með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2013.

Margrét Þormar verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið.

11. Bankastræti 14, (fsp) klæðning og útlit (01.171.2) Mál nr. SN130105
GP-arkitektar ehf, Litlubæjarvör 4, 225 Álftanes

Lögð fram fyrirspurn GP-arkitekta ehf. dags. 20. febrúar 2013 um klæðningu og útlit hússins á lóðinni nr. 14 við Bankastræti. Einnig er lögð fram tillaga GP-arkitekta ehf. dags. febrúar 2013.
Umhverfis- og skipulagsráð gerir ekki athugasemd við fyrirspurnina.

Margrét Þormar verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið.

(D) Umhverfis- og samgöngumál

12. Sorpa bs., Fundargerðir Mál nr. US130002

Lögð fram fundargerð Sorpu bs. nr. 314 frá 4. mars 2013.

13. Sæmundargata - Hringbraut, framkvæmdir Mál nr. US130029

Lagt fram bréf samgöngustjóra dags. 18. janúar 2013 varðandi umbætur á Sæmundargötu, gönguleið yfir Hringbraut og 30km afmörkun á svæði Háskóla Íslands skv. meðfylgjandi uppdrætti dags. í febrúar 2013.
Kristín Soffía Jónsdóttir vék af fundi kl. 14:40

Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason, Karl Sigurðsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, fulltrúi Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson, fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfi Hjartarson og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir samþykktu að ráðist í gerð göngu- og hjólastíga á Sæmundargötu og þverun fyrir gangandi og hjólandi yfir Hringbraut í framhaldi hennar. Rýnihópi um samgöngumál verði falið að fara yfir hönnun og útfærslu tillögunar, í samráði við hagsmunaaðila á svæðinu.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson bókaði:
„Forgangsröðun í Umhverfis og skipulagsráði er óskiljanleg. Nú er sett í forgang að þrengja Sæmundargötu sem liggur á milli Norræna hússins og Hringbrautar. Víða í íbúðarhverfum borgarinnar er viðhald gatna og gangstétta orðið brýnt enda mjög mikið skorið niður í viðhaldskostnaði á undanförnum árum og auk þess má augljóslega bæta öryggi vegfarenda með endurhönnun gatna og gangstétta. Við Sæmundargötu býr hins vegar enginn enda liggja engin íbúðarhús að henni og þess vegna getur ekki verið forgangmál að endurgera hana. Því er haldið fram í umræðum um málið að ekið sé greitt um götuna en engar mælingar á hraða umferðar liggja að baki slíkum fullyrðingum. Ég ek og geng oft um þetta svæði og verð ekki var við neinar hættur sem þarf að bregðast við. Engin slys hafa orðið á þessari götu og engar talningar á umferð hafa verið gerðar áður en ákvörðun er tekin um breytingar og framkvæmdir. Hluti breytinganna er að taka út 350 bílastæði sunnan götunnar án þess að nokkuð liggi fyrir um það hvar stúdentar og starfsfólk sem kemur á bílum í Háskólann geti lagt bílum sínum. Þrenging götunnar mun kosta 90 milljónir króna á sama tíma og mörg mikilvæg verkefni sitja á hakanum. Þetta er dýrt verkefni með lítinn tilgang.“
Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason, Karl Sigurðsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, fulltrúi Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson, fulltrú Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfi Hjartarson og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir bókuðu:
„Háskólasamfélagið hefur ítrekað lýst yfir vilja sínum til þess að umhverfisvænar ferðavenjur verði gerðar aðgengilegar og þægilegar. Með þessari mikilvægu framkvæmd er komið til móts við þær óskir.
Sæmundargata liggur frá Hringbraut um háskólasvæðið sunnanvert framhjá Norræna húsinu í jaðri friðlandsins í Vatnsmýri. Hún er lykilgata í gatnakerfi Háskólans og mikilvægi hennar eykst enn þegar stúdentagarðar milli Sæmundargötu og Oddagötu verða teknir í notkun í haust.
Leiðin frá stúdentagörðunum, og fyrirhugðum vísindagörðum sunnan stúdentagarðanna, niður í miðbæ liggur eftir Sæmundargötu og því eðlilegt að sú leið sé gerð greið og örugg með vaxandi notkun, en stúdentar ekki látnir hrekjast upp á umferðareyjar í mikilli umferð, eins og ástandið er nú.
Engin ákvörðun liggur fyrir um bílastæðamál. Samráð við stúdenta og háskólasamfélagið tekur nú við, og full ástæða er til að ætla að hagsmunir þeirra og borgarinnar fari saman um að skapa vistvænt og gott háskólasamfélag í góðu borgarumhverfi. Fyrirhugaðar framkvæmdir á Sæmundargötu falla vel að því meginmarkmiði sem lýst er í drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi að gera götur borgarinnar mannvænni og vistvænni“.
Stefán Finnsson verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið.

14. Elliðabraut, biðskylda Mál nr. US130074

Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 28. febrúar 2013 þar sem lagt er til að sett verði biðskylda á Sandavað og Selvað gagnvart umferð um Elliðabraut.
Samþykktin verði með fyrirvara um samþykki lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu.
Samþykkt.

Stefán Finnsson verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið.

15. Hljóðvistarskýrsla, Mál nr. US130077

Lögð fram skýrsla Umhverfisstofnunar varðandi gagnaskil og aðgerðaráætlanir dags. 5. febrúar 2013.
Kynnt.

Stefán Finnsson verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið.

16. Miklabraut, hljóðmanir Mál nr. US130075

Lagt fram bréf íbúa við Rauðagerði dags. 1. febrúar 2013 ásamt undirskriftarlista vegna framkvæmda við hljóðmanir við Miklubraut.
Frestað.

17. Nýframkvæmdir 2012, Verkstöðuskýrsla Mál nr. US130076
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf skrifstofustjóra framkvæmda og viðhalds dags. 4. mars 2013 ásamt verkstöðuskýrsla nýframkvæmda 2012 dags. í mars 2013.
Frestað
(E) Ýmis mál

18. Nýr Landspítali við Hringbraut, nýtt deiliskipulag (01.19) Mál nr. SN110037

Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 18. janúar 2013 þar sem óskað er eftir að gerð verði betur grein fyrir einstaka atriðum í deiliskipulagi Nýs Landsspítala við Hringbraut. Einnig eru lagðar fram umsagnir Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 29. janúar 2013, Minjastofnunar Íslands dags. 1. febrúar 2013, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 18. febrúar 2013, Flugmálastjórn Íslands dags. 19. febrúar 2013, Isavia dags. 18. febrúar 2013 .
Einnig eru lögð fram drög að svörum skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2013 ásamt tillöu SPITAL að deiliskipulagi Landsspítala við Hringbraut samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum dags. 8. mars 2012 br. 26. mars 2012, lagfærðir 5. mars 2013 ásamt ásýndarmyndum og skuggavarpi dags. 10. ágúst 2011 br. 8. mars 2012, lagfært 5. mars 2013 greinargerð og skilmálar dags. 8. mars 2012 br. 26. mars 2012 uppfærð 7. júní 2012, lagfært 5. mars 2013.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2013 samþykkt

Ágústa Sveinbjörnsdóttir sat fundinn undir þessum lið.

19. Vesturbæjarlaug, Framkvæmdir 2013, nýtt pottasvæði Mál nr. US130038
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík

Kynnt fyrirkomulag, frumkostnaðaráætlun og áætlaður framkvæmdatími vegna Vesturbæjarsundlaugar. Einnig er lagður fram uppdráttur dags. 12. febrúar 2013.
Samþykkt

Fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Torfi Hjartarson greiddi atkvæði á móti afgreiðslu málsins og bókaði:“ Fulltrúi Vinstri-hreyfingarinnar græns framboðs í skipulagsráði telur að nýr og vandaður pottur sem skipulagsráð leggur til að verði byggður við Vesturbæjarlaug sé eftirsóknarverð viðbót við laugina en þurfi að falla betur að formi laugarinnar og stærð en tillagan gerir ráð fyrir. Úr því væri auðvelt að bæta. Atkvæði gegn fyrirliggjandi tillögu er greitt á þeim grunni“

Rúnar Gunnarsson sat fundinn undir þessum lið.

20. Umhverfis- og skipulagsráðs, Mál nr. US130078

Fundur umhverfis- og skipulagsráðs miðvikudaginn 27. mars 2013 fellur niður.

21. Umhverfis- og skipulagsráð, starfsdagur 2013 Mál nr. US130068

Starfsdagur umhverfis- og skipulagsráðs verður haldinn 3. apríl 2013.

22. Kirkjuteigur 21, kæra 6/2013, umsögn (01.361.1) Mál nr. SN130077
Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík

Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. febrúar 2013 ásamt kæru dags. 28. janúar 2013 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Kirkjuteig 21. Einnig lögð fram umsögn lögfræðings umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. febrúar 2013.
Umsögn lögfræðings umhverfis- og skipulagssviðs dags. 26. febrúar 2013 samþykkt.

23. Ísleifsgata 2-34, breyting á deiliskipulagi (05.113) Mál nr. SN120465
Búseti húsnæðissamvinnufélag, Síðumúla 10, 108 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. febrúar 2013 um samþykkt borgarráðs dags. 21. febrúar 2013 vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Reynisvatnsás, lóðirnar að Ísleifsgötu 2-34.

24. Seljahverfi, breyting á deiliskipulagi (04.9) Mál nr. SN120520

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. febrúar 2013 um samþykkt borgarráðs dags. 21. febrúar 2013 vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Seljahverfi vegna göngustíga.

25. Sogamýri, breyting á deiliskipulagi Mál nr. SN110157

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. febrúar 2013 um samþykkt borgarráðs dags. 21. febrúar 2013 vegna auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi fyrir Sogamýri.

26. Sogamýri, breyting á aðalskipulagi Mál nr. SN120218

Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. febrúar 2013 um samþykkt borgarráðs dags. 21. febrúar 2013 vegna auglýsingar á breytingu á aðalskipulagi fyrir Sogamýri.

27. Umhverfis og skipulagsráð, tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins Júlíusar Vífils Ingvarssonar, Gísla Marteini Baldurssyni og Hildi Sverrisdóttur l Mál nr. US130079

Í drögum að aðalskipulagi sem kynnt voru í borgarstjórn í gær er vísað í veðurmælingar Veðurstofu Íslands á Hólmsheiði en þær eru gerðar í þeim tilgangi að kanna veðurfar og skyggni á heiðinni með tilliti til hugsanlegs flugvallarstæðis. Jafnframt er í drögunum vísað í álit Mannvits á mælingunum. Þessi gögn hafa ekki verið lögð fram og því ekki hægt fyrir kjörna fulltrúa að kynna sér málið og fjalla um það með hliðsjón af öllum gögnum. Óskað er eftir því að Veðurmælingar Veðurstofunnar, álit Mannvits og önnur vinnugögn málsins verði þegar afhent borgarfulltrúum.
Frestað.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 16.15.

Fundargerðin lesin yfir og undirrituð

Páll Hjalti Hjaltason

Hjálmar Sveinsson Elsa Hrafnhildur Yeoman
Karl Sigurðsson Torfi Hjartarson
Júlíus Vífill Ingvarsson Gísli Marteinn Baldursson
Hildur Sverrisdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2013, þriðjudaginn 5. mars kl. 10.40 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 721. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Sigrún Reynisdóttir, Harri Ormarsson, Björn Stefán Hallsson, Eva Geirsdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Sigurður Pálmi Ásbergsson, Óskar Torfi Þorvaldsson og Björn Kristleifsson.
Fundarritari var Harri Ormarsson

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Álfab. 12-16/Þönglab. (00.000.000) 111722 Mál nr. BN045589
Faxar ehf., Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingarverslun sem sérhæfir sig í að gera flatbökur í rými 0106 í húsinu nr. 6 við Þönglabakka á lóð við Álfab. 12-16/Þönglabakka.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

2. Álfheimar 74 (01.434.301) 105290 Mál nr. BN045633
Sportbarinn ehf, Eikarási 9, 210 Garðabær
Sótt er um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi í billjardsal, starfsmannaaðstöðu og eldhúsi Sportbarsins Ölvers í kjallara matshluta 01 á lóðinni nr. 74 við Álfheima.
Um er að ræða veitingastað í flokki III.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

3. Baldursgata 30 (01.186.212) 102241 Mál nr. BN045547
SS Verk ehf., Haukdælabraut 2, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að innrétta íbúð í húsnæði sem skráð er vörugeymsla á annarri hæð í matshluta 02 á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu.
Samþykki meðeigenda dags. 15. nóvember 2012 (og á teikn.) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

4. Barmahlíð 38 (01.710.103) 107143 Mál nr. BN045640
Björk Baldursdóttir, Barmahlíð 38, 105 Reykjavík
Ólafur Örn Helgason, Skipholt 50a, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagið kjallara þannig að íbúðin stækkar í húsinu á lóð nr. 38 við Barmahlíð.
Samþykki eigenda að íbúð 0201 fylgir dags. 20. feb. 2013.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Barónsstígur 47 (01.193.101) 102532 Mál nr. BN045651
Álftavatn ehf., Pósthólf 4108, 124 Reykjavík
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna lokaúttektar af nýlega samþykktu erindið BN044274 í húsi á lóð nr. 47 við Barónsstíg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

6. Bauganes 31A (01.673.020) 205181 Mál nr. BN045664
Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Tómasarhagi 19, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús, hæð og ris úr forsteyptum samlokueiningum á lóð nr. 31A við Bauganes.
Stærð: 1. hæð 127,1 ferm., 2. hæð 105 ferm.
Samtals 232,1 ferm., 743,6 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 66.924
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

7. Brúnavegur 13 (01.351.001) 104174 Mál nr. BN045660
Fulltrúaráð Sjómannadagsins, Laugarási Hrafnistu, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN045358 þannig hólfað verur niður geymslusvæði í C álmu kjallara, færa til áður samþykkta fótasnyrtingu, taka niður veggi á milli skrifstofa og síkka glugga á norðurhlíð D álmu, innrétta skrifstofur og síkka glugga og lækka jarðvegshæð í G- álmu norðurhlið hússins á lóð nr.13 við Brúnaveg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

8. Brúnavegur 13 (01.351.001) 104174 Mál nr. BN045620
Benta Margrét Briem, Sörlaskjól 2, 107 Reykjavík
Valgarð Briem, Sörlaskjól 2, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu við endaraðhús nr. 21 við Jökulgrunn á lóð Hrafnistu nr. 13 við Brúnaveg.
Stærð: Sólskáli 12 ferm., 25,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 2.295
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Drápuhlíð 48 (01.713.012) 107223 Mál nr. BN045685
Kjarnakarlar slf, Drápuhlíð 48, 105 Reykjavík
Baldvin Már Magnússon, Drápuhlíð 48, 105 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð á rishæð hússins á lóðinni nr. 48 við Drápuhlíð.
Þinglýst yfirlýsing húsfélags hússins dags. 2. maí 2006 fylgir erindinu. Virðingargjörð dags. 20. apríl 1948 og afsal dags. 2. október 1952 fylgja erindinu. Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 10. febrúar 2006 fylgir erindinu. Bréf vegna nýrrar eignaskiptayfirlýsingar hússins dags. 6. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Samþykki eldvarnaeftirlits (í tölvubréfi dags. 4. mars 2013) fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

10. Fálkagata 30 (01.553.016) 106530 Mál nr. BN045554
Sindri Sigurðarson, Flétturimi 12, 112 Reykjavík
Dröfn Guðmundsdóttir, Flétturimi 12, 112 Reykjavík
Sigurður Skúli Skúlason, Flétturimi 12, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta vinnustofu listamanna í bílgeymslu og nefna 30B á baklóð húss nr. 30 við Fálkagötu.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda á lóð áritað á uppdrátt og bréf umsækjanda ásamt þinglýstum kaupsamningi dags. 12. ágúst 1993 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2013.
Gjald kr. 9.000
Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2013.

11. Frostaskjól 2 (01.516.-99) 105873 Mál nr. BN045349
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að flytja færanlegar stofur: K-39, K-40, K-41, T-19 og T-20 frá Borgarskóla á bílastæði Íþróttahúss KR/Frístundaheimilið Frostheima á lóð nr. 2 við Frostaskjól.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

12. Gerðarbrunnur 24-26 (05.056.405) 206056 Mál nr. BN045639
Hrafn Ómar Gylfason, Kristnibraut 87, 113 Reykjavík
Gylfi Már Jónsson, Kristnibraut 87, 113 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN037555 þar sem koma fram breytingar á gluggum, handrið verður steypt, setlaugum bætt við á lóð, stiga milli hæða breytt úr léttri í steyptan, millipallur hækkaður, nýr steyptur veggur milli húsa 24 og 26 og veggur við göngustíg hækkaður í 1,60m í húsinu á lóð nr. 24-26 við Gerðarbrunn.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

13. Grundarland 10-16 (01.855.001) 108781 Mál nr. BN045596
IP Eignarhald hf., Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktu erindi, sjá BN045057 þar sem veitt var leyfi til að rífa einnar hæðar einbýlishús að hluta og byggja nýtt staðsteypt einbýlishús, með kjallara undir hluta húss og innbyggðri tvöfaldri bílgeymslu. Aðalbreytingin felst í því að eldra hús og bílskúr verður rifið að fullu og bílgeymsla færist því lítillega til sem sem því nemur og lagnarými verður gert undir bílskúr í húsi nr. 12 á lóð nr. 10-16 við Grundarland.
Niðurrif: íbúð 168 ferm., bílgeymsla 50,8 ferm.
Stækkun frá erindi BN045057: 31,8 ferm., 299,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 26.955
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Haukdælabraut 11-15 (05.113.305) 214786 Mál nr. BN045669
Monika Sigurlaug Baldursdóttir, Hverafold 46, 112 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu vegna raðhúss á lóðinni nr. 11-15 við Haukdælabraut, erindi nr. BN045137.
Frestað.
Gera þarf betur grein fyrir erindinu.

15. Háaleitisbraut 29-35 (01.291.202) 103767 Mál nr. BN045580
Daniela Ilea Gunnarsson, Háaleitisbraut 35, 108 Reykjavík
Sótt er um samþykki fyrir núverandi innra fyrirkomulagi í kjallara hússins nr.35 á lóðinni nr. 29-35 við Háaleitisbraut.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

16. Hátún 14 (01.234.002) 102923 Mál nr. BN045595
Reykjavíkurborg, Ráðhúsinu, 101 Reykjavík
Íþróttafélag fatlaðra Reykjavík, Pósthólf 5214, 125 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa áhaldageymslu og 60 m bogfimivöll með 400 cm. hárri öryggisgirðingu við enda vallar og 170 cm. á hliðum og neti upp í 4 metra hæð og skothlífum yfir að ofan og jafnframt er fallið frá fyrirhugaðri byggingu á annari hæð yfir anddyri við íþróttahús Íþróttafélags Fatlaðra á lóð nr. 14 við Hátún.
Samhljóðandi erindi, BN039096,var samþykkt 29. september 2009. Meðfylgjandi því erindi er bréf frá arkitekt dags. 4. nóvember 2008 með vísan í erlendar reglur. Einnig minnisblað um öryggismál dags. 6.2. 2013 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2013.
Stærðir, stækkun: 21,7 ferm., 60,7 rúmm.
Stærðir samtals fyrir breytingar: 2.052,8 ferm., 10.967,3 rúmm.,
Samtals minnkun: 384,1 ferm., 1.533,2 rúmm.
Samtals stærð eftir breytingar: 1.668,7 ferm., 9.434,1 rúmm.
Gjöld kr. 9.000 + 9.000 + 5.463
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

17. Heiðarbær 17 (04.351.403) 111143 Mál nr. BN045670
Guðmundur H Magnason, Brautarás 12, 110 Reykjavík
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu vegna bílgeymslu á lóðinni nr. 17 við Heiðarbæ, erindi nr. BN045171.
Synjað.
Ekki sýnt fram á að knýjandi ástæður liggi að baki umsókn.

18. Hlíðargerði 13 (01.815.108) 107970 Mál nr. BN045689
Tryggvi G Guðmundsson, Hlíðargerði 13, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa forstofu og kvisti og endurbyggja og hækka mæni þaks, endurbyggja kvisti og byggja viðbyggingu og svalir á vesturhlið einbýlishúss á lóð nr. 13 við Hlíðargerði.
Niðurrif: 5,8 ferm., 27,6 rúmm.
Stækkun: 1. hæð 7 ferm., 18,9 rúmm., 2. hæð 6,3 ferm., 70,5 rúmm.
Samtals 13,3 ferm., 89,4 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 55.350
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1, 2, 3, 4, dags. 27. febrúar 2013.

{Sigrún Reynisdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.}

19. Hofteigur 8 (01.364.003) 104601 Mál nr. BN045626
Þórður Geir Jónasson, Ásgerði 6, 730 Reyðarfjörður
Hulda Brá Magnadóttir, Bandaríkin, Lárus Helgi Guðbjartsson, Bandaríkin, Sótt er um leyfi til að fjarlægja vegg og koma fyrir í staðinn stálbitum og stálstoðum á 2. hæð í húsinu á lóð nr. 8 við Hofteig.
Samþykki meðeigenda dags. 16. feb. 2013 fylgir sem og áritun burðarvirkishönnuðar á teikn. dags. 21.feb. 2013. Umsögn burðarvirkishönnuðar fylgir dags. 4. mars. 2013.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

20. Hverfisgata 33 (01.151.507) 101012 Mál nr. BN045592
Brennheitt ehf, Skúlagötu 17, 101 Reykjavík
Ergo fjármögnunarþjónusta Íslan, Suðurlandsbraut 14, 155 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II fyrir 75 gesti á 1. hæð og í kjallara og fyrir útiveitingar á sumrin fyrir 25 gesti við vesturhlið húss á lóð nr. 33 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27 febrúar 2013.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

21. Hörpugata 14 (01.635.706) 106697 Mál nr. BN045635
Gísli Másson, Hörpugata 14, 101 Reykjavík
Freyja Hreinsdóttir, Hörpugata 14, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við til vesturs anddyri og stigahús ásamt samþykki á áður gerðum og fyrirhuguðum breytingum innanhúss og á geymsluskúr á lóð við parhúsið á lóð nr. 14 við Hörpugötu.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15.2. 2013,
Stærðir stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 9.000 + xx
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

22. Kambasel 69 (04.975.104) 113227 Mál nr. BN044696
Dagný Ágústsdóttir, Kambasel 69, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að færa til vegg og minnka þannig rými 0402 en stækka rými 0401 sem því nemur í fjölbýlishúsinu nr. 69 á lóðinni nr. 67-69 við Kambasel.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Samþykki húsfélags af húsfundi dags. 13. júní 2012 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Lambhagavegur 29 (02.680.701) 208854 Mál nr. BN045662
111 ehf, Vesturlbr Fífilbrekku, 113 Reykjavík
Sótt er um afskráningu gróðurhúss mhl. 02. Einnig um leyfi til að rífa 1. hæð núverandi íbúðarhúss úr timbri og byggja við steyptan kjallara íbúðarhúss úr steinsteypu á lóðinni nr. 29 við Lambhagaveg.
Stærðir:
Niðurrif 99 ferm.
Núverandi kjallari stendur áfram 45 ferm. nýbygging kjallari 30,8 ferm., samtals kjallari 75,8 ferm., 1. hæð 346,2 ferm.
Samtals eftir stækkun brúttó: 422 ferm., 1.442,6 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 129.834
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

24. Laugarnesvegur 47 (01.360.006) 104499 Mál nr. BN045656
Igor Ingvar V. Karevskiy, Meistaravellir 5, 107 Reykjavík
Svetlana Vasilievna Kabalina, Meistaravellir 5, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN04459 þannig að húsið stækkar þar sem bætt verður við kaldri geymslu undir anddyri, innréttað verður gufubað og sturta í hluta bílgeymslu, glugga og hurð breytt, sett verður vængjahurð á bílageymslu og stiga breytt úr steyptum í timburstiga í húsinu á lóð nr. 47 við Laugarnesveg.
Stækkun frá áður samþykktu er: 12,1 ferm., 28,5 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 2.565
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

25. Laugavegur 105 (01.240.005) 102974 Mál nr. BN045591
Hilda ehf., Höfðatúni 2, 105 Reykjavík
Hostel LV 105 hf., Hafraþingi 5, 203 Kópavogur
Sótt er um leyfi til að innrétta móttöku (fyrir gistiheimili á efri hæðum) og veitingastað í flokki ? á 1. hæð, gera stiga milli kjallara og 1. hæðar, skyggni yfir inngang og til að breyta innra skipulagi í kjallara verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 105 við Laugaveg.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Lækjargata 2A (01.140.505) 100865 Mál nr. BN045622
Reitir I ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi og skerma af hluta óráðstafaðs rýmis sem áður var veitingahús í norðvesturhluta annarrar hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 2A við Lækjargötu.
Gjald kr. 9000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

27. Njálsgata 51B (01.190.126) 102401 Mál nr. BN045663
Sara Hlín Marti Guðmundsdóttir, Bretland, Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN045374 þannig að frágangi lóðar verður breytt lítillega og komið verður fyrir nýjum gluggum við vesturhlið nýrrar viðbyggingar í húsinu á lóð nr. 51 við Njálsgötu.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

28. Skarfagarðar 2 (01.321.701) 210413 Mál nr. BN045609
Smáragarður ehf., Bíldshöfða 20, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir girðingum við norðaustur hlið og suðvesturhlið og sett verður ökufært hlið í suðurhorni og einnig frá Skarfabakka fyrir aðkomu slökkviliðs að húsinu á lóð nr. 2 við Skarfagarða.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

29. Skildingatangi 1 (01.675.101) 106899 Mál nr. BN045665
Gunnar I Hafsteinsson, Skildinganes 58, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka til suðurs, breyta gluggasetningu og innra skipulagi í nýsamþykktu einbýlishúsi, sjá erindi BN045243 á lóð nr. 1 við Skildingatanga.
Stækkun: 16 ferm., 32,7 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 2.943
Frestað.
Samkvæmt gögnum embættisins er lágmarksgjald ógreitt.

30. Skipasund 34 (01.357.111) 104422 Mál nr. BN045464
Arnar Halldórsson, Skipasund 34, 104 Reykjavík
Vegna eignaskiptasamnings er sótt um samþykki fyrir núverandi innra fyrirkomulagi tvíbýlishússins á lóðinni nr. 34 við Skipasund.
Samþykki meðeigenda dags. 23. janúar 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

31. Skipholt 50A (01.254.001) 103465 Mál nr. BN045588
Vesturbakki ehf., Ofanleiti 27, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta atvinnuhúsnæði 0201 á annarri hæð í tvær íbúðir, breyta innréttingum og gera hurð út og svalir yfir sorpgeymslu fyrir íbúð 0201 í húsi á lóð nr. 50A við Skipholt.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

32. Skúlagata 4 (01.150.301) 100968 Mál nr. BN045658
Sjávarútvegshúsið (Skúlagata 4), Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir innri breytingum á 1.- 4. hæð þar sem úrbætur á vinnuaðstöðu starfsmanna eru gerðar í húsinu á lóð nr. 4 við Skúlagötu. Jafnframt er erindi BN045351 dregið til baka.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

33. Sóltún 1 (01.230.003) 208475 Mál nr. BN045659
Skuggabyggð ehf., Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi 8. hæðar og 9. hæðar í húsinu í mhl 02 Mánatún 3-5 á lóð nr. 1 við Sóltún.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Sólvallagata 79 (01.138.101) 100717 Mál nr. BN045657
K.Steindórsson sf, Hofgörðum 18, 170 Seltjarnarnes
Sótt er um leyfi til að innrétta í rými 0102 matvöruverslun í húsinu á lóð nr. 79 við Sólvallagötu.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

35. Suðurlandsbraut 4-4A (00.000.000) 103513 Mál nr. BN045545
Mænir Reykjavík ehf., Klettatröð 1, 235 Keflavíkurflugvöllu
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í fl. 1 fyrir 70 gesti á 1. hæð í vesturenda húss á lóð nr. 4 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

36. Súðarvogur 6 (01.452.101) 105606 Mál nr. BN045637
Vogabyggð ehf., Austurstræti 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindið BN042928 sem samþykkt var þann 24. maí 2011, setja hurð á suðurgafl, tvær lofttúður á þak, breyta innra skipulagi og breyta brunakerfi í húsinu með því að setja vatnsúðakerfi í húsið á lóð nr. 6 við Súðavog. Jafnframt er erindi BN045011 dregið til baka.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

37. Tjarnargata 12 (01.141.306) 100909 Mál nr. BN045587
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að fjarlægja innri stiga milli 2. og 3. hæðar, innrétta kaffieldhús í fundaherbergi á 2. hæð auk breytinga á léttum innveggjum í borgarskrifstofum í húsi á lóð nr. 12 við Tjarnargötu.
Gjald kr. 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

38. Tunguháls 10 (04.329.201) 179475 Mál nr. BN045581
Hólmsteinn Helgason ehf, Hafnarbraut 6, 675 Raufarhöfn
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN045386 þar sem glerveggur er fjarlægður, veggur á milli fundaraðstöðu og kaffistofu færist til og skjalageymsla minnkar í rými 0202 í húsi á lóð nr. 10 við Tunguháls.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

39. Vatnagarðar 8 (01.337.703) 103914 Mál nr. BN045363
Reginn A1 ehf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Reginn hf., Hagasmára 1, 201 Kópavogur
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi, koma fyrir nýjum innkeyrsludyrum, breyta flóttaleiðum og nýta sem þrjár séreignareiningar atvinnuhúsið á lóðinni nr. 8 við Vatnagarða.
Gjald kr. 8.500 + 9.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

40. Vesturgata 54A (01.130.216) 100139 Mál nr. BN045276
Ásthildur Kjartansdóttir, Vesturgata 54a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að útbúa franskar svalir á annarri hæð suðurhliðar fjölbýlishúss á lóðinni nr. 54A við Vesturgötu.
Samþykki meðeigenda (í tölvubréfi dags. 13. og 14. nóvember 2012 og á teikningu dags. 15. nóvember 2012 fylgja erindinu.
Jákvæð fyrirspurn BN0449654 fylgir erindinu um 60 cm djúpar svalir á suðurhlið ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. september 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 21. september 2012.
Bréf hönnuðar dags. 15. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Staðfesting burðarvirkishönnuðar dags. 27. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

41. Vitastígur 14A (01.190.018) 102356 Mál nr. BN044570
Halla Dögg Másdóttir, Ásabraut 6, 240 Grindavík
Sótt er um samþykki fyrir afmörkun tveggja séreigna á fyrstu hæð, breyttu innra skipulagi íbúðar á annarri hæð, áður gerðri íbúð á rishæð og áður gerðum kvistum á vesturþekju húss nr. 14A á lóðinni nr. 14-14A við Vitastíg.
Jafnframt er erindi bn036156 dregið til baka.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 15. febrúar 2013 fylgir erindinu.
Samþykki meðeigenda dags. 18. febrúar og 28. febrúar 2013 fylgja erindinu.
Virðingargjörðir dags. 17.03.1923 og 29.04.1967 fylgja erindinu.
Nýjar skráningartöflur vegna matshluta 02 (íbúðarhúsið sem erindið fjallar um) og matshluta 03 (geymsluskúr) fylgja erindinu.
Afsalsbréf dags. 9. febrúar 1933 (geymsluskúr), 9. júní 1978 (herbergi á 1. hæð), 9. júní 2011 (ósamþ.íbúð á 1.h.), 14. nóvember 1996 (íbúð á 2.h.) og 18. mars 1971 (íbúðareign á rishæð) fylgja erindinu.
Gjald kr. 8.500
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

42. Vogasel 9 (04.930.305) 112827 Mál nr. BN045594
Valgeir Sigurðsson, Vogasel 9, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallara, 1. og 2. hæðar (sem er rishæð), komið er fyrir nýjum millipalli, hringstiga frá vinnustofu upp á 1. hæð, stigi milli 1. og 2. hæðar færður til og komið fyrir 4 þakgluggum á einbýlishús á lóð nr. 9 við Vogasel.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 25. feb. 2013
Millipallur stækkun: 10,2 ferm.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

43. Þorragata 1 (01.635.709) 106699 Mál nr. BN045418
Sælutröð,dagvistunarfélag, Þorragötu 1, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa skúrbyggingu og byggja steinsteypta tveggja hæða viðbyggingu við leikskólann Sælukot á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Niðurrif: 6,4 ferm., 13,7 rúmm.
Viðbygging: 248,7 ferm., 647,1 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 58.239
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Nýjum teikningum vísað til skipulagsstjóra.

44. Þórufell 2-20 (04.682.101) 112292 Mál nr. BN045599
þórufell 2-20,húsfélag, Þórufelli 16, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka svalahandrið í 120 cm og klæða þau að utan samfara múrviðgerðum og gluggaskiptum, einnig er sótt um að koma reyklúgu fyrir í stigagangi og loka svölum 95#PR með ál/glerkerfi á íbúðum í húsi nr.6, 203 og 403, nr. 16, 201 og 303, nr. 18 nr. 303 og 403 og í nr. 20, 201, 301, 302, 304, 401 og 403 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2-20 við Þórufell.
Meðfylgjandi er bréf aðalhönnuðar dags. 20.2. 2013 og fundargerð aðalfundar húsfélagsins dags. 19.3. 2012.
Stærðir samtals brúttó sbr. ofanskráða upptalningu: 54,83 ferm.. 125,73 rúmm.
Gjald kr. 9.000 + 11.316
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.

45. Ægisíða 74 (01.545.004) 106460 Mál nr. BN045636
Ægisíða 74,húsfélag, Ægisíðu 74, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi þakglugga, byggja inndregnar þaksvalir og um samþykki á þegar framkvæmdum breytingum og endurnýjun sem felast í að í kjallara hefur verið bætt við stiga upp á 1. hæð, baðherbergi fært, útidyr á norðvesturhlið færðar á norðausturhlið, nýjum útgangi bætt við á suðausturhlið, á 1. og 2. hæð hafa tvö herbergi verið sameinuð í eitt og innangengt gert á baðherbergi í íbúðarhúsinu á lóð nr. 74 við Ægisíðu.
Meðfylgjandi er samþykki eiganda neðri hæða dags. 18.2. 2013, bréf arkitekts dags. 18.2. 2013.
Gjald kr. 9.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

Ýmis mál

46. Freyjugata - OR (01.186.317) 102270 Mál nr. BN045673
Byggingarfulltrúi leggur til að dreifistöð OR, fastanúmer 200-7676, Mh. 01 og 03 verði tölusett sem Freyjugata 19A.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

47. Meistari - múrarameistari Mál nr. BN045686
Birgir Örn Birgisson, Hraunteigur, 801 Selfoss
Ofanritaður sækir um staðbundin réttindi sem múrarameistari í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Málinu fylgir afrit af meistarabréfi dags. 30. apríl 1985, námssamningur dags. 17. maí 1977 og staðfesting og úrtak úr færslubók frá byggingarfulltrúanum í Uppsveitum Árnessýslu og Flóahrepps.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Sbr. ákvæðum 7. mgr. gr. 4.10.1 í Byggingarreglugerð 112/2012.

48. Stóragerði skóli (01.804.101) 107732 Mál nr. BN045671
Byggingarfulltrúi leggur til að lóð Hvassaleitisskóla við Stóragerði verði tölusett sem nr. 11A við Stóragerði. Landnúmer 107732, Mh. 01, fastanúmer 203-3837.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.

Fyrirspurnir

49. Aðalstræti 9 (01.140.414) 100855 Mál nr. BN045666
Gunnar Viðar Árnason, Klukkuholt 15, 225 Álftanes
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta 5-6 íbúðir á 2. hæð í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 9 við Aðalstræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

50. Ásvallagata 48 (01.139.118) 100763 Mál nr. BN045593
C3 ehf., Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Spurt er hvort byggja megi fjögurra hæða fjölbýlishús með kjallara sbr. fyrirspurn BN035809, á lóð nr. 48 við Ásvallagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.

51. Bauganes 40 (01.675.005) 106886 Mál nr. BN045667
Gísli Kristján Birgisson, Tómasarhagi 45, 107 Reykjavík
Spurt er hvort hækka megi ris um 1 metra og byggja kvist á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 40 við Bauganes.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

52. Bergþórugata 14A (01.192.017) 102523 Mál nr. BN045638
Hildur G Jónsdóttir, Garðsstaðir 6, 112 Reykjavík
Sigmundur Karl Ríkarðsson, Garðsstaðir 6, 112 Reykjavík
Spurt er hvort rými í kjallara sé samþykkt íbúð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 14A við Bergþórugötu.
Erindi fylgir þinglýst afsal dags. 30. desember 2004, virðingargjörð dags. 21. október 1938 og afrit af fasteignaskráningu dags. 28. október 2008.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

53. Bugðulækur 20 (01.344.308) 104041 Mál nr. BN045642
Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir, Bugðulækur 20, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta eignaskiptum í kjallara eins og sýnt er á meðfylgjandi skissum af fjölbýlishúsi á lóð nr. 20 við Bugðulæk.
Erindi fylgir þinglýst eignaskiptalýsing dags. 6. desember 2002.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.
Vísað er til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði.

54. Drafnarfell 2-18 (04.683.007) 112306 Mál nr. BN045529
Ingvar Magnússon, Grænakinn 8, 220 Hafnarfjörður
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta sportbar í flokki III í verslunarrými á lóð nr. 14-16 við Drafnarfell.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2013.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2013.

55. Grettisgata 55 (01.174.221) 101624 Mál nr. BN045654
Fold-fasteignasala ehf, Laugavegi 170, 105 Reykjavík
Spurt er hvort íbúð í kjallara hússins nr. 55 við Grettisgötu sé samþykkt eða samþykkjanleg íbúð.
Frestað.
Vísað til leiðbeininga á fyrirspurnarblaði.

56. Háteigsvegur 17 (01.245.102) 103222 Mál nr. BN045646
Anna Þórsdóttir, Háteigsvegur 17, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir annað hvort á suðausturhlið eða á suðvesturhlið annarrar hæðar hússins nr. 17 við Háteigsveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

57. Hverfisgata 117 (01.222.114) 102850 Mál nr. BN045614
Ólafur Pálsson, Hverfisgata 117, 105 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir íbúð í húsnæði þar sem áður var rekinn söluturn í húsinu nr. 117 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2013.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2013.

58. Hverfisgata 19 (01.151.410) 101004 Mál nr. BN045652
Framkvæmdasýsla ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu, timburgrind klædd dökkgráu zinki, fyrir vörumóttöku og vinnu við leikmyndir ofan á smíðaverkstæði við austurhlið Þjóðleikhússins á lóð nr. 19 við Hverfisgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

59. Jónsgeisli 91 (04.113.306) 189863 Mál nr. BN045621
Sigurður Gestsson, Ólafsgeisli 20, 113 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta iðnaðarhúsi í parhús á tveimur hæðum á lóð nr. 91 við Jónsgeisla.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.

60. Lækjarás 9 (04.375.305) 111420 Mál nr. BN045570
Hermann Hreiðarsson, Bretland, Spurt er hvort leyft yrði að stækka hluta efri hæðar um 1,5 m til norðurs og stækka þannig um 11 fermetra einbýlishús á lóð nr. 9 við Lækjarás.
Erindi fylgir samþykki flestra lóðarhafa við Lækjarás og eins lóðarhafa við Kleifarás. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.
Jákvætt.
Með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.

61. Malarhöfði 10 (04.055.401) 110553 Mál nr. BN045567
Sigurdór Bragason, Hvannarimi 10, 112 Reykjavík
Spurt er hvort nýta megi ca 6000 fermetra fyrir 3-4 bílasölur með stöðuleyfi fyrir 3-4 60 ferm. aðstöðuhús á lóðinni nr. 10 við Malarhöfða.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.
Jákvætt.
Með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013. Sækja þarf um byggingarleyfi og stöðuleyfi til byggingarfulltrúa.

62. Mánagata 4 (01.243.502) 103144 Mál nr. BN045653
Fold-fasteignasala ehf, Laugavegi 170, 105 Reykjavík
Spurt er hvort rými 0001 sé samþykkt íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Mánagötu.
Já.

63. Nýlendugata 15A (01.131.209) 100178 Mál nr. BN045655
Fold-fasteignasala ehf, Laugavegi 170, 105 Reykjavík
Spurt er hvort rými 0001 sé samþykkt íbúð í húsi á lóð nr. 15A við Nýlendugötu.

Íbúð samþykkt 1981

64. Rauðalækur 14 (01.343.307) 104006 Mál nr. BN045643
Fjalar Jóhannsson, Rauðalækur 14, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að endurbyggja og stækka svalir á suðausturhlið fyrstu, annarrar og þriðju hæðar hússins nr. 14 við Rauðalæk.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

65. Síðumúli 29 (01.295.302) 103844 Mál nr. BN045676
Hjálmar Styrkársson, Safamýri 79, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta skráningu eigna 0001 og 0101 í skólahúsnæði til samræmis við notkun síðustu tíu ára í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 29 við Ármúla.
Jákvætt.
Sækja þarf um byggingarleyfi með tilheyrandi uppdráttum og skráningartöflu til embættisins við innlögn.

66. Skeifan 7 (01.460.201) 105659 Mál nr. BN045644
Eik fasteignafélag hf., Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að sameina rými A og B við rými C og lager rými D verður sér brunahólf samkvæmt fylgiskjali A í húsinu á lóð nr. 7 við Skeifuna.
Fylgiskjal A fylgir, bréf frá eiganda dags. 22. feb. 2013 fylgir.
Frestað.
Gera þarf betur grein fyrir erindinu.

67. Skipholt 15 (01.242.211) 103037 Mál nr. BN045612
Sigurjón Björnsson, Silungakvísl 3, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að skrá atvinnuhúsnæði sem íbúð á fyrstu hæð í húsinu á lóðinni nr. 15 við Skipholt.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.Fastanúmer húsnæðisins er 226-7515
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.

68. Sólvallagata 48 (01.134.616) 100416 Mál nr. BN045647
Hrannar Már Sigurðsson, Dalaþing 27, 203 Kópavogur
Spurt er hvort breyta mætti atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð í tvær íbúðir í húsinu nr. 48 við Sólvallagötu.
Húsnæðið er skráð vörugeymsla hjá Fasteignamati.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.

Fleira gerðist ekki.

Fundi slitið kl. 12.20

Björn Stefán Hallsson

Björn Kristleifsson Sigrún Reynisdóttir
Jón Hafberg Björnsson Sigurður Pálmi Ásbergsson
Harri Ormarsson Óskar Torfi Þorvaldsson
Eva Geirsdóttir