Umhverfis- og skipulagsráð - og skipulagsráð

Umhverfis- og skipulagsráð

Skipulagsráð

Ár 2009, miðvikudaginn 2. september kl. 09:05, var haldinn 182. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ragnar Sær Ragnarsson, Stefán Þór Björnsson, Sóley Tómasdóttir, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Magnús Skúlason. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Bjarnason, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir og Marta Grettisdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Björn Axelsson og Guðfinna Ósk Erlingsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

(A) Skipulagsmál

1. Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð Mál nr. SN010070
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 21. og 28. ágúst 2009.

2. Starhagi, æfingasvæði KR (01.555) Mál nr. SN090211
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Teiknistofunnar Storð dags. 5. júní 2009 varðandi deiliskipulag við Starhaga vegna æfingasvæði fyrir KR samkvæmt uppdrætti dags. 5. júní 2009 og greinargerð . Einnig lögð fram greinargerð Fornleifaskráningu Þormóðsstaða dags. 2009. Tillagan var auglýst frá 24. júní til og með 5. ágúst 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ögmundur Skarphéðinsson dags. 5. ágúst 2009. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 21. ágúst 2009 og minnispunktar frá vinnufundi dags. 20. ágúst 2009.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.

3. Gufunes, útivistarsvæði, breyting á deiliskipulagi(02.2) Mál nr. SN090170
Fjörefli ehf, Suðurlandsbraut 48, 108 Reykjavík
Eyþór Kristján Guðjónsson, Mánabraut 7, 200 Kópavogur
Á fundi skipulagsstjóra 26. júní 2009 var lagt fram erindi Fjöreflis ehf. mótt. 7. maí 2009 um breytingu á deiliskipulagi Gufunes útivistarsvæði vegna skemmtigarðs. Í breytingunni felst að færa og stækka byggingarreit samkvæmt uppdrætti Landarks dags. 5. maí 2009. Einnig var lögð fram eldri umsögn umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar dags. 1. apríl 2009, fundargerð af samráðsfundi dags. 11. júní 2009, lagfærðir uppdrættir dags. 16. júní 2009, breytt 19. ágúst 2009 og umsögn umhverfis - og samgöngusviðs dags. 12. júní 2009.
Samþykkt að vísa tillögunni til kynningar hjá hverfisráði Grafarvogs.

4. Hólmsheiði við Suðurlandsveg - athafnasvæði A3, deiliskipulag Mál nr. SN060676
Arkís ehf, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík
Á fundi skipulagsráðs 14. maí 2008 var lögð fram ný tillaga Arkís að deiliskipulagi athafnasvæðis á Hólmsheiði við Suðurlandsveg dags. í maí 2008. Einnig lagðar fram umsagnir umhverfis- og samgöngusviðs dags. 13. júlí 2009.
Frestað.
(B) Byggingarmál

5. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð Mál nr. BN040336
Fylgiskjal með fundargerði þessari er fundargerð nr. 551 frá 25. ágúst 2009 og nr. 552 frá 1. september 2009.

6. Alþingisreitur, flutningur á húsi ofl. (01.141.106) Mál nr. BN039779
Alþingi, Kirkjustræti, 150 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að flytja hús af sökkli sínum á lóð nr. 12 við Vonarstræti yfir á nýjan, hærri sökkul á fornleifauppgreftri við Kirkjustræti nr. 4, Mhl. 03, að endurbyggja Skjaldbreið á lóð nr. 8 við Kirkjustræti Mhl. 04, til að byggja steinsteypta nýbyggingu Mhl.07 á milli þessara tveggja húsa og tengja öll húsin ásamt Kirkjustræti 8B og 10 við þjónustubyggingu Alþingis á Alþingisreit.
Jafnframt er erindi BN039619 dregið til baka.
Erindi fylgir fyrirspurn BN039505 dags. 24. febrúar 2009, umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. mars 2009, Húsafriðunarnefndar dags. 3. mars 2009 og skýrsla um brunavarnir dags. 6. janúar 2009. Meðfylgjandi er Fornleifaverndar ríkisins dags. 14. apríl 2009, einnig ný umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 26. mars 2009, einnig bréf hönnuða dags. 17. apríl 2009 og brunaskýrsla útgáfa 2 dags. 20. apríl 2009. Einnig er lagt fram minnisblað skipulagsstjóra dags. 1. september 2009.
Stærðir nýbyggingar, Mhl. 07: Kjallari 381,5 ferm., 1. hæð 212 ferm., 2. hæð 287,1 ferm., 3. hæð 162,7 ferm.Samtals 1.043,3 ferm., 3.844,8 rúmm.
Gjald kr: 7.700 + 296.050
Frestað.
Minnisblað skipulagsstjóra samþykkt.

Áheyrnarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, Magnús Skúlason óskaði bókað: Umfang og útlit millibyggingar er óviðunandi þar sem hún fer m.a. fyrir suðurhlið Kirkjustrætis 12, #GLHótel Skjaldbreiðar#GL. Aukin notkun glers breytir litlu þar um. Þá er mælikvarði millibyggingar ekki í takt við þau hús sem hún tengist. Ekki er fallist á að lausn ferlimála kalli á framangreinda gerð byggingar. Ekki er því mótmælt að farið er eftir samþykktu deiliskipulagi. Því þarf hins vegar að breyta m.a. að fella niður ofanjarðar tengigang við Alþingisskála. Því ber hins vegar að fagna að við flutning Vonarstrætis 12 skuli takast að varðveita prentsmiðju Þjóðviljans og flytja hana einnig.

7. Austurstræti 16, breyta innra skipulagi (01.140.501) Mál nr. BN040328
Toppmál ehf, Naustabryggju 27, 110 Reykjavík
A 16 fasteignafélag ehf, Kirkjutorgi 4, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta í tvo hluta, annarsvegar skemmtistað með 250 gesti og í flokki III og hinsvegar bar með 100 gesti og í flokki III, með því að koma fyrir millivegg og bæta við tveimur snyrtingum í núverandi skemmtistað á jarðhæð verslunarhússins á lóð nr. 16 við Austurstræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vék af fundi kl. 9:55, Brynjar Fransson tók sæti á fundinum í hans stað

8. Hverfisgata 61, endurnýjun á byggingarleyfi bn037817(01.152.515)Mál nr. BN039928
Vatn og land I ehf, Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2009 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfi BN037817 til að rífa fjölbýlishúsið á lóðinni nr. 61 við Hverfisgötu.
Niðurrif: Fastanúmer 200-3352 merkt 01 0101 íbúð 48,1 ferm., fastanúmer 200-3353 merkt 01 0201íbúð 47,5 ferm. og geymsla merkt 03 0101 58,8 ferm., fastanúmer 200-3354 merkt 02 0001 vörugeymsla 126,4 ferm., og vörugeymsla merkt 02 0102 86,4 ferm., fastanúmer 200-3355 merkt 02 0101 verslun 40 ferm. Samtals 407,2 ferm. Var fyrst samþykkt 16.maí. 2006 og 4. mars 2008
Gjald kr. 7.700
Synjað.
Á fundi skipulagsráðs þann 24. júní sl. var óskað eftir upplýsingum um tímasett uppbyggingaráform á lóðinni. Slíkar upplýsingar hafa ekki borist.

(D) Ýmis mál

9. Efnistaka og efnislosun, stofnun vinnuhóps Mál nr. SN090281
Lagt fram erindisbréf fyrir vinnuhóp um mótun heildstæðrar stefnu um efnistöku og efnislosun í nýju aðalskipulagi.
Samþykkt.

10. Dofraborgir 3, málskot (02.344) Mál nr. SN090298
Ellert Már Jónsson, Miðhús 32, 112 Reykjavík
Lagt fram málskot Ellerts Más Jónssonar, móttekið 24. ágúst 2009, vegna neikvæðrar afgreiðslu embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra þ. 3. júlí 2009 á umsókn um breytingu á deiliskipulagi Borgahverfis vegna lóðar nr. 3 við Dofraborgir.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að lóðarhafi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, sem síðar verður grenndarkynnt.

11. Laugateigur 24, bréf skilmálafulltrúa (01.364.306) Mál nr. BN040369
Lagt fram bréf skilmálafulltrúa dags. 28. ágúst 2009 vegna stöðvunar framkvæmda án byggingarleyfis á lóð nr. 24 við Laugateig.
Bréf skilmálafulltrúa samþykkt.

12. Stýrimannastígur 14, bréf Umhverfisráðuneytisins(01.135.408) Mál nr. BN040313
Lagt fram bréf Umhverfisráðuneytisins dags. 25. maí 2009 þar sem óskað er eftir umsögn byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna beiðni um undanþágu frá ákvæðum ákvæða 78. gr. um lofthæð í kjallara á Stýrimannastíg 14. Einnig eru lagðar fram umsagnir heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 8. júní 2009, byggingarfulltrúa dags. 8. júní 2009 og skipulagsráðs dags. 2. september 2009.

13. Úlfarsfell, fjarskiptabúnaður, bráðabirgðarleyfi (02.6) Mál nr. SN090305
Fjarski ehf, Tangarhöfða 7, 110 Reykjavík
Lagt fram erindi Guðmundar Daníelssonar fh. Fjarska ehf. dags. 28. ágúst 2009 þar sem sótt er um bráðabirgðarleyfi á uppsetningu fjarskiptabúnaðar á Úlfarsfelli samkvæmt ódags. uppdrætti og korti.
Ekki er gerð athugasemd við erindið. Sækja þarf um stöðuleyfi til tveggja ára til embættis byggingarfulltrúa.

14. Viðey, framkvæmdaleyfi (02.0) Mál nr. SN090279
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Lögð fram umsókn Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 29. júlí 2009, um framkvæmdaleyfi í Viðey. Ætlunin er að nota námu í landi Ólafs Stephensens til að laga malarstíga á eynni. Einnig lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 6. ágúst 2009.
Samþykkt með vísan til c-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

15. Útilistaverk, minnisvarði um stofnun Knattspyrnufélagsins Þróttar Mál nr. SN090270
Knattspyrnufélagið Þróttur, Engjavegi 7, 104 Reykjavík
Lagt fram bréf framkvæmdastjóra Þróttar, dags. 21. júlí 2009, með ósk um að reisa minnisvarða um stofnun Knattspyrnufélagsins Þróttar við Ægissíðu/Skerjafjörð. Um er að ræða þrjá sexhyrnda stuðlabergssteina, 30-40 cm. á breidd og 80-120 cm. á hæð. Einnig lögð fram umsögn borgarminjavarðar dags. 29. júlí 2009 og minnisblað dags. 31. ágúst 2009.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í minnisblaði umhverfisstjóra.

Fulltrúi Samfylkingarinnar Björk Vilhelmsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsin

16. Hringbraut 35-49, friðun (01.541.001) Mál nr. BN040362
Lagt fram afrit af bréfi Húsafriðunarnefndar ríkisins til menntmálaráðherra, dags. 20. ágúst 2009, þar sem Húsafriðunarnefnd gerir tillögu um friðun á ytra byrði atvinnu- og fjölbýlishúsanna nr. 35-49 við Hringbraut.

17. Gvendargeisli 106, kæra, umsögn, úrskurður (05.135) Mál nr. SN080067
Úrskurðarnefnd skipul/byggmál, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 27. ágúst 2009 vegna afgreiðslu skipulagsráðs Reykjavíkurborgar varðandi fjölgun bílastæða við Gvendargeisla 106.

18. Húsahverfi svæði C, (02.84) Mál nr. SN090006
breyting á skilmálum vegna húsagerðar E8 og E9
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um að auglýsa breytingu á skilmálum í deiliskipulagi fyrir Húsahverfi.

19. Háskóli Íslands, sunnan Brynjólfsgötu, (01.552) Mál nr. SN090249
breyting á deiliskipulagi reits A1 vestan Suðurgötu
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Háskóla Íslands sunnan Brynjólfsgötu.

20. Fróðengi 1-11, Spöngin 43, (02.376) Mál nr. SN090259
breyting á deiliskipulagi vegna bílastæða
THG Arkitektar ehf, Faxafeni 9, 108 Reykjavík
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. ágúst 2009 um samþykkt borgarráðs s.d. um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir Spöngina.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl. 11:35.

Júlíus Vífill Ingvarsson
Brynjar Fransson Ragnar Sær Ragnarsson
Stefán Þór Björnsson Sóley Tómasdóttir
Stefán Benediktsson Björk Vilhelmsdóttir

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

Árið 2009, þriðjudaginn 1. september kl. 10.40 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 552. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 2. hæð Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Bjarni Þór Jónsson, Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason og Eva Geirsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.

Þetta gerðist:

Nýjar/br. fasteignir

1. Akurgerði 35 (01.813.201) 107888 Mál nr. BN040223
Kolbeinn Ágústsson, Akurgerði 35, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti á báðum hliðum parhússins nr. 35 við Akurgerði.
Erindi fylgir fsp. BN040223 dags. 21. apríl 2009.
Stækkun húss: 6,1 ferm., 10,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 824
Eftir samþykkt byggingarleyfisumsóknar á fundi nr. 551 kom í ljós að grenndarkynningu var ólokið og málið því tekið fyrir að nýju.
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.

2. Akurgerði 37 (01.813.202) 107889 Mál nr. BN040275
Jón Ásgeir Einarsson, Akurgerði 37, 108 Reykjavík
Sólveig Gyða Jónsdóttir, Akurgerði 37, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr og til að byggja kvisti á báðar hliðar parhússins nr. 37 við Akurgerði.
Erindi fylgir fsp. BN040223 dags. 21. apríl 2009 og samþykki lóðarhafa Akurgerðis nr. 39 áritað á uppdrátt.
Stækkun húss: 6,1 ferm., 10,7 rúmm.
Bílskúr: 28 ferm. og 71,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.322
Eftir samþykkt byggingarleyfisumsóknar á fundi nr. 551 kom í ljós að grenndarkynningu var ólokið og málið því tekið fyrir að nýju.
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.

3. Áland 3-5/Álfal. 8-10 (01.847.108) 108726 Mál nr. BN040354
Steinunn Ásta Helgadóttir, Álfaland 10, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skilgreina sérnotaflöt við íbúð 0101 í mhl. 02, Álfaland 10 í fjölbýlishúsinu á lóðinni Áland 3-5/Álfaland 8-10.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 25. mars 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

4. Barónsstígur 47 (01.193.101) 102532 Mál nr. BN040352
Álftavatn ehf, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta hluta kjallara fyrir grunnskóla í Heilsuverndarstöðinni á lóð nr. 47 við Barónsstíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

5. Bergstaðastræti 20 (01.184.011) 102006 Mál nr. BN040353
Birtingur ehf, Leifsgötu 30, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja við til norðvesturs og norðurs, til að rífa bílskúr og byggja í staðinn garðskála, til að breyta innra skipulagi og innrétta sex íbúðir í húsi á lóð nr. 20 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins dags. 24. ágúst 2009.
Stækkun: Kjallari: xx ferm., xx rúmm., 1. hæð 11,3 ferm., xx rúmm., 2. hæð 11,3 ferm., xx rúmm.
Samtals: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

6. Dalbraut 12 (01.344.501) 104042 Mál nr. BN040212
Landspítali, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á innra skipulagi eldri bygginga barnageðdeildar á lóð nr. 12 við Dalbraut.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

7. Efstasund 42 (01.357.013) 104402 Mál nr. BN040047
Snæbjörn Sigurgeirsson, Efstasund 42, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa niður geymslu matshluti 70 og byggja bílskúr með geymslu sem verður staðsteyptur á lóð nr. 42 við Efstasund.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 26. júní 2009 fylgir erindinu.
Niðurrif: 12 ferm.
Stærð: Bílskúrs og geymslu 40,4 ferm. 123,9 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 9.540
Synjað.
Samræmist ekki deiliskipulagi sbr. bókun skipulagsstjóra á umsóknarblaði.

8. Efstasund 90 (01.412.003) 105035 Mál nr. BN040361
Bjarki Þór Atlason, Efstasund 90, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfi BN037996 dags. 10. júní 2008 sem er að gera þrjá kvisti og staðfesta núverandi fyrirkomulag kjallara og fyrstu hæðar einbýlishússins á lóð nr. 90 við Efstasund.
Stærðir: 5,6 ferm. yfir 1,8 m. 15,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.178
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

9. Eirhöfði 8 -Breiðh 15 (04.030.102) 110518 Mál nr. BN040330
Kemis ehf, Pósthólf 9351, 129 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja vörugeymslu (Mhl 02) úr forsteyptum einingum á lóðinni Eirhöfði 8/Breiðhöfði 15.
Stærð: 339 ferm., 2.215 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 170.555
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

10. Flókagata 8 (01.247.118) 103350 Mál nr. BN040242
Gestur Gunnarsson, Flókagata 8, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja og breyta erindi BN027492, endurnýjað sem BN031090 1. mars 2005, þar sem veitt var leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr á lóð nr. 8 við Flókagötu.
Breytingin felst í að útveggir verði einangraðir að utan.
Erindi fylgir samþykki sumra lóðarhafa aðliggjandi lóða áritað á uppdrátt sjá einnig eldri samþykkt.
Bílskúr: 26,9 ferm. og 82,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 6.337
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

11. Fossaleynir 16 (02.467.401) 186199 Mál nr. BN040014
Reyðar fasteignafélag ehf, Laufengi 174, 112 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að sameina tvö rými, 0107 og 0110 í 0107, byggja milliloft sem verður 0126 og fá aðskilið byggingarleyfi fyrir 0107, sbr. BN030014.
Stækkun 55,5 ferm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

12. Frakkastígur 7 (01.173.030) 101517 Mál nr. BN040299
101 hús ehf, Lokastíg 6, 101 Reykjavík
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og opna kaffihús/bar í flokki II í húsi mhl 03 á lóð nr. 7 við Frakkastíg.
Jákvæð fyrirspurn BN39905 fylgir erindinu dags 2. júní 2009
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Umsögn skipulagsstjóra ólokið.

13. Frakkastígur 7 (01.173.030) 101517 Mál nr. BN040348
Linda Mjöll ehf, Laugavegi 11, 101 Reykjavík
101 hús ehf, Lokastíg 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að opna húðflúrstofu í mhl 01 og 02 á 1. hæð hússins á lóð nr. 7 við Frakkastíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

14. Friggjarbrunnur 43-45 (02.693.506) 205813 Mál nr. BN040356
Baldur Þór Jack, Mávahlíð 23, 105 Reykjavík
Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir parhús nr. 45 á lóð nr. 43 - 45 við Friggjarbrunn.
Sbr. BN035800
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin stöðuúttekt fyrir útgáfu aðskilins byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

15. Gvendargeisli 168 (05.134.701) 190285 Mál nr. BN040350
Framkvæmda- og eignasvið Reykja, Borgartúni 10-12, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að áfangaskipta Sæmundarskóla til að hægt væri að taka austasta hluta 1. hæðar, 1. áfanga skólans í notkun á lóð nr. 168 við Gvendargeisla.
Bréf frá hönnuði dags. 24. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.

16. Hjarðarhagi 11 (01.553.007) 106521 Mál nr. BN040345
Hjarðarhagi 11,húsfélag, Hjarðarhaga 11, 107 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breytinga á svalahandriðum á fjölbýlishúsi á lóð nr. 11 við Hjarðarhaga.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

17. Kringlan 4-12 (01.721.001) 107287 Mál nr. BN040322
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta hluta innra fyrirkomulagi einingar S - 248 í verslun Vodafone inn í verslun Skífunar og verður innangengt á milli, verslunarfrontur verður að hluta endurnýjaður í verslunarmiðstöðinni á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Staðfestingu brunahönnuðar dags. 25. ágúst 2009 fylgir erindinu
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

18. Laufásvegur 6 (01.183.008) 101920 Mál nr. BN040108
Laufásvegur 6,húsfélag, Laufásvegi 6, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að rífa núverandi svalir, fjarlægja heitan pott og til að byggja þrennar nýjar svalir á vesturhlið fjölbýlishússins á lóð nr. 6 við Laufásveg.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 7. júlí 2009 og Minjasafns Reykjavíkur dags. 9. júlí 2009 fylgja
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

19. Laugavegur 21 (01.171.108) 101374 Mál nr. BN039568
Festar ehf, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir fyrirkomulagsbreytingu innanhúss á verslun með kaffisölu í kaffihús þar sem boðið verður upp á ýmsan varning til sölu í húsi á lóð nr. 21 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. mars 2009 ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 12. mars 2009 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

20. Laugavegur 42 (01.172.223) 101478 Mál nr. BN040312
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til breyta áður samþykktu erindi BN039782 dags. 21. júlí 2009 og fjölga um 7 gesti og salernum breytt vegna samnýtingar af báðum stöðum, er annað ætlað fötluðum og afgreiðslulínu er breytt í húsi á lóð nr. 42 við Laugaveg.
Gjald kr.7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykkt með sömu bókunum og við samþykkt erindis BN039782.
Staðurinn verði í flokki II.

21. Lækjargata 2A (01.140.505) 100865 Mál nr. BN040317
Hreyfimyndasmiðjan ehf, Garðsenda 21, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að setja upp auglýsingadúk vegna kvikmyndar á norðurgafl húss nr. 2A við Lækjargötu frá 21. ágúst í nokkrar vikur.
Samþykki Iðanda ehf. dags. 17. ágúst 2009 og Landic Property dags. 18. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Synjað.
Samræmist ekki reglum um skilti í Reykjavík.

22. Nýlendugata 15A (01.131.209) 100178 Mál nr. BN040203
María Dís Cilia, Nýlendugata 15a, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á suðurhlið 2. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 15a við Nýlendugötu.
Samþykki meðeigenda ódags, Umsögn frá Minjasafni Reykjavíkur dags. 18. ágúst 2009, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 25.8. 2009 og ljósrit af síðu úr dagbók byggingarfulltrúa fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

23. Skriðustekkur 9-15 (04.616.201) 111836 Mál nr. BN040344
Þórður M Sigurðsson, Skriðustekkur 15, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta burðarvirki úr tré í steinsteypu í áður samþykktum bílskúr, BN036793 dags. 11. september 2007 við einbýlishúsið nr. 15 á lóð nr. 9-15 við Skriðustekk.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

24. Skúlagata 53-55 (01.220.007) 102783 Mál nr. BN040343
Frímúrarareglan á Íslandi, Skúlagötu 53-55, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningum í samræmi við lokaúttekt á húsi Frímúrarareglunar á lóð nr. 53-55 við Skúlagötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

25. Skútuvogur 8 (01.420.601) 105169 Mál nr. BN040074
Landic Ísland ehf, Kringlunni 4-12, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, skyggni á suðurhlið fjarlægt, innkeyrsluhurðum á suðurhlið fækkað og stækkaðar og bætt við innkeyrslurampa fyrir bíla í atvinnuhúsinu á lóð nr. 8 við Skútuvog.
Yfirlýsing burðarvirkishönnuðar dags 22. júní 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

26. Suðurgata Háskóli Ísl -Háskólatorg (01.60-.-99) 106638 Mál nr. BN039318
Háskóli Íslands, Suðurgötu, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta í tvo matshluta Háskólatorgi og Gimli sem nú er einn matshluti þannig að Háskólatorg Sæmundargötu 4 verði Mhl. 13 og Gimli Sæmundargötu 10 verði Mhl. 14 á lóð Sæmundargötu 2-14, Sturlugata 1-3
Gjald kr. 7.300
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

27. Suðurlandsbraut 12 (01.263.004) 103521 Mál nr. BN040335
Faxar ehf, Kringlunni 5, 103 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN038856 sem felst í að breyta flóttaleiðum og starfsmannaaðstöðu í rými 0101 á 1. hæð í húsinu á lóð
nr. 12 við Suðurlandsbraut.
Bréf frá hönnuði dags. 20. ágúst 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

28. Tryggvagata 22 (01.140.004) 100816 Mál nr. BN040347
Eik fasteignafélag hf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Írena Sól ehf, Tryggvagötu 22, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að bæta við öðrum dyrum frá veitingasal út á svalir á 2. hæð í veitingahúsi á lóð nr. 22 við Tryggvagötu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

29. Tunguvegur 9 (01.824.005) 108377 Mál nr. BN040155
Hafsteinn Guðmundsson, Tunguvegur 9, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja anddyri yfir útitröppur og til að stækka svalir á suðurhlið 1. hæðar einbýlishússins á lóð nr. 9 við Tunguveg.
Jafnframt er sótt um að fella áður samþykkt erindi, BN037827 samþ. 8. apríl 2008, inn í þessa samþykkt.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. ágúst 2009 fylgir erindinu. Erindið var grenndarkynnt frá 22. júlí til og með 20. ágúst 2009. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 6,8 ferm., 19,7 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.517
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

30. Vesturberg 169-175 (04.660.802) 112026 Mál nr. BN040300
Jean Jensen, Vesturberg 175, 111 Reykjavík
Guðrún Ingibjörg Hlíðar, Vesturberg 175, 111 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum geymsluskúr við vesturhlið einbýlishússins nr. 175 á lóð nr. 169-175 við Vesturberg.
Stærð: 19 ferm., 47,8 rúmm
Gjald kr. 7.700 + 3.681
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

31. Vesturlandsv. Dælust. (05.17-.-79) 195207 Mál nr. BN040217
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að setja tvær nýjar hurðir á vesturhlið, loka hurð á milli núv. húss og viðbyggingar og stækka millilofti í stýrihúsi á Reynisvatnsheiði við Vesturlandsveg, landnr. 195207.
Stækkun milliloft 2,6 ferm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

32. Vínlandsleið 12-14 (04.111.601) 208323 Mál nr. BN040305
Mótás hf, Stangarhyl 5, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að innrétta sérhæfðar rannsóknarstofur í kjallara , 1. 2. og 3. hæð í atvinnuhúsinu á lóð nr. 12-14 við Vínlandsleið.
Skýrsla brunahönnuðar dags. 11. ágúst 2009 fylgir.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits á umsóknarblaði.

33. Þingholtsstræti 27 (01.183.301) 101953 Mál nr. BN040331
Þingholtsstræti 27,húsfélag, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík
BK eignir ehf, Ægisíðu 121a, 107 Reykjavík
Dundur ehf, Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir girðingu á lóðamörkum og hlið á henni út að götu, færa sorptunnur og breyta atvinnuhúsnæði á 3. og 4. hæð í nýja húsinu í íbúðir eins og er á upphaflegum uppdráttum í húsi á lóð nr. 27 við Þingholtsstræti.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts/eiganda dags. 18. ágúst 2009. Einnig staðfesting stjórnar húsfélags á samþykki eigenda dags. 20. ágúst 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.

34. Þverholt 5 (01.241.019) 103014 Mál nr. BN040349
Þverholt 5,húsfélag, Þverholti 5, 105 Reykjavík
Þór Vilhelm Jónatansson, Þverholt 5, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN034421 dags. 5. febrúar 2008 sem fjallar um áður gerðar breytingar á innra fyrirkomulagi íbúða, leyfi til þess að stækka tvennar svalir á 4. hæð, byggja svalir á 3. hæð, síkka glugga á tveimur stöðum á austurhlið 2. hæðar fyrir franskar svalir, loka undirgangi fyrir sameiginlega hjóla- og vagnageymslu og loka áður stigahúsi frá Þverholti fjöleignarhússins á lóð nr. 5 við Þverholt.
Stærð: Stækkun vegna undirganga 5,5 ferm. á lóð nr. 5 og 5,5 ferm. á lóð nr. 7, samtals 11 ferm., 30,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 2.333
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Ýmis mál

35. Gufunesvegur 10 Mál nr. BN040370
Byggingarfulltrúi leggur til að lóð sorpflokkunar Reykjavíkur við Gufunes, landnúmer 108956 verði tölusett nr. 10 við Gufunesveg.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.

Fyrirspurnir

36. Dragavegur 5 (01.352.702) 104205 Mál nr. BN040334
Ásgeir S Olsen, Dragavegur 5, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr við tvíbýlishúsið á lóð nr. 5 við Dragaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

37. Eddufell 2-8 (04.683.009) 112308 Mál nr. BN040233
Magnús Þorleifsson, Hólabraut 13, 630 Hrísey
Spurt er hvort setja megi söfnunarkassa fyrir Rauða krossinn og Háskóla Íslands í rými 0201 í húsi á lóð nr. 2 við Eddufell.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. júlí og 28. ágúst 2009 fylgja erindinu ásamt umsögn lögfræði- og stjórnsýslu dags. 27. ágúst 2009.
Nei.
Samanber umsögn lögfræði- og stjórnsýslu frá 27. ágúst sl.

38. Hafnarstræti 20 (00.000.000) 100836 Mál nr. BN040366
Hlédís Sveinsdóttir, Víðimelur 58, 107 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta ísbúð í rými 0101 í verslunar- og skrifstofuhúsinu á lóð nr. 20 við Hafnarstræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

39. Hraunbær 102A (04.343.301) 111081 Mál nr. BN040329
Svana Björk Hjartardóttir, Hraunbær 110, 110 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að starfrækja snyrtistofu og að breyta innra skipulagi hússins á lóð nr. 102 við Hraunbæ.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.

40. Jakasel 33 (04.994.206) 113299 Mál nr. BN040337
Guðlaugur Kristján Sigurðsson, Jakasel 33, 109 Reykjavík
Anna María Jónsdóttir, Jakasel 33, 109 Reykjavík
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir áður gerðum breytingum, kjallara með gluggum og hurðum, steyptum palli með geymslu undir og anddyrisviðbyggingu á suðausturhlið einbýlishússins á lóð nr. 33 við Jakasel.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Jakasels nr. 34, 31, 17, 13, 19 og 44
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

41. Klapparstígur 33 (01.171.505) 101421 Mál nr. BN040372
Ólafur G Sveinbjörnsson, Goðatún 22, 210 Garðabær
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir veitingastað í flokki III á 1. hæð og kjallara hússins á lóðinni Laugavegur 22/Klapparstígur 33.
Erindi fylgir jákv. fsp. BN040281 dags. 25. ágúst 2009
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem byggir á ákvæðum reglugerðar um hávaða nr. 724/2008

42. Máshólar 8 (04.643.606) 111944 Mál nr. BN040314
Sveinn Viðar Jónsson, Máshólar 8, 111 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að fjölga bílastæðum við einbýlishúsið á lóð nr, 8 við Máshóla.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

43. Réttarholtsvegur 63-79 (01.834.003) 108598 Mál nr. BN040296
Réttarholtsvegur 63-79,húsfélag, Réttarholtsvegi 65, 108 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir 18 bílastæðum og að reisa stoðvegg á lóðarmörkum raðhúsins á lóð nr. 63-79 við Réttarholtsveg.
Jákvæð fyrirspurn BN39871 dags 2. júní 2009 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. ágúst 2009.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi í samræmi við umsögn skipulagsstjóra.

44. Skipasund 56 (01.357.312) 104459 Mál nr. BN040341
Rangá sf, Skipasundi 56, 104 Reykjavík
Gunnar Steinþórsson, Skipasund 56, 104 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 35 ferm. yfir ónýttar tröppur og stétt við suðurhlið og færa bílastæði inn á lóð fyrir efri hæð hússins á lóð nr. 56 við Skipasund.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

45. Skúlagata 26 (01.154.302) 101118 Mál nr. BN040338
Ásmundur Jóhannsson, Hraunteigur 9, 105 Reykjavík
Spurt er um leyfi til að reka ballskáksal á 2. hæð atvinnuhúsnæðis á lóð nr. 26 við Skúlagötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sbr. athugasemdir á fyrispurnarblaði.

46. Starengi 6 (02.384.002) 173536 Mál nr. BN040325
Félagsmálaráðuneyti, Tryggvag Hafnarhúsi, 150 Reykjavík
Spurt er hvort leyft yrði að breyta notkun Mhl. 03 úr geymslu- og áhaldahúsi í íbúðareiningu og til að innrétta aðstöðu fyrir starfsfólk í 0102 í Mhl.02 sambýlisins á lóð nr. 6 við Starengi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 28. ágúst fylgir erindinu.
Jákvætt.
Með vísan til bókunar skipulagsstjóra frá 28. ágúst sl.

47. Vesturvallagata 2 (01.134.506) 100390 Mál nr. BN040368
Hadda Sigríður Þorsteinsdóttir, Vesturvallagata 2, 101 Reykjavík
Spurt er hvort leyfi þurfi fyrir 4 ferm. garðskúr á lóð nr. 2 við Vesturvallagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.

48. Vitastígur 12 (01.173.119) 101536 Mál nr. BN040346
Anna Sóley Þorsteinsdóttir, Miklabraut 48, 105 Reykjavík
Spurt er hvort breyta megi atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði í bakhúsi á lóð nr. 12 við Vitastíg.
Frestað
Ekki er unnt að taka afstöðu til erindisins þar sem framlögð gögn eru ófullnægjandi.

49. Þangbakki 8-10 (04.606.101) 111744 Mál nr. BN040339
Guðrún Guðmundsdóttir, Drekakór 2, 203 Kópavogur
Spurt er hvort leyfi fengist til að starfrækja snyrtistofu á
1. hæð í rými 0109 í verslunarhúsinu á lóð nr. 8-10 við Þangbakka.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi er taki mið af athugasemdum á fyrirspurnarblaði

Fundi slitið kl. 12.40.
Magnús Sædal Svavarsson
Björn Kristleifsson Bjarni Þór Jónsson
Sigrún Reynisdóttir Jón Hafberg Björnsson
Þórður Búason Eva Geirsdóttir